Einu sinni var

Jón trommariTrommarinn á myndinni hér til hliðar þótti æði frambærilegur á sínum tíma. Hann spilaði í margfrægum hljómsveitum hér og þar með vel þekktum hljóðfæraleikurum. Þessi hárprúði poppari lamdi húðirnar eins og honum væri borgað fyrir það og sögur herma að hann hafa haldið þokkalegum takti þegar svo bar undir. Þessi trommari, sem lærði hjá Guðmundi Steingrímssyni í eina tíð, er nú búinn að kaupa sér trommusett úr ekta birki, geirneglt með koparskrúfum og húðað með krókódílaskinni. Það dugir ekkert minna en atvinnumannasett, sem ættað úr smiðju Ludwigs heitins, sem var víst mikill trommari á sínum tíma, til að slá í gegn. Settið er nú komið í geymsluna hjá tengdó og brunað verður suður innan tíðar til að selflytja settið vestur á firði svo hægt verði að brúka það til hljóðfæraleiks. Það var annar miðaldra skallapoppari sem átti settið og hafði sá hinn sami án efa ætlað sér að láta gamla drauma rætast um frægð og frama á tónlistarsviðinu. Hann hefur væntanlega komist að því að það var liðin tíð, því hann seldi settið til trommarans sem hér um ræðir sem ætlar sér nú að fara að æfa sig af miklum móð. Nú verður gaman að sjá hversu vel hefur lifað í gömlum glæðum og hvort takturinn sé eins hljómfagur og hann einu sinni var.

Jóhanna

 

Jóhanna.

Komdu og skoðaðu í kistuna mína.

 

Hér er á ferðinni fósturlandsfreyja

sem ætíð er glettin um brúnir og brá.

Frá hennar lífshlaupi ætlum að segja

og fregnir af henni þið munuð nú fá.

Því Jóhanna svip setur á þessa Vík

við sannlega erum af konunni rík.

Tralla...

 

Þau gerðust undrin sem nú skal frá segja

því stórmerki skeðu víst ekki í ár.

Hún varð ekki amma sú magnþrungna meyja

þrátt fyrir hefðir og frjósemis spár.

Því konan hér átta hún á barnabörn

sem fæddust í árvissri taktfastri törn.

Tralla....

 

Oft hugurinn leitar til ókunnra stranda

með Óla hún ferðast um framandi lönd

um stórborgarstræti hún kýs víst að randa

þá oft henni halda þar hreint engin bönd

Hún þráir að geta til eilífðarnóns

hlustað án afláts á Jagger í Stones.

Tralla......

 

Í Amsterdam réð hún sér vart fyrir kæti

í sakleysi gekk inn um grunsamleg hlið.

Hún leiðina lagði inn vafasöm stræti

en Óli þá fótum hann spornaði við.

Því beint inn á gleðihús lá hennar leið

en úti stóð bóndinn og  bljúgur þar beið.

Tralla...........

 


Ekki hætt enn

....að bauna inn nefndarkvennavísum enda engin hemja að birta ekki allar vísurnar um allar konurnar.  

Sísí:

Það er draumur að vera með dáta.

Á Sólvöllum situr í sumarsins blæ

þá Skálvík brosir við ólgandi sæ.

Og Sísí þar unir sér daglanga stund

og hleypur um dali og grösuga grund

Á öflugum traktor hún móana slær

þá hlær hún og slær sér á lær.

Þar er draumur að vera með Dóra,

og dásemdin er slík.

Þar eru þau ekkert að slóra, út í Skálavík.

Þar kvöldsólin glóir um fjöll

og glitrandi gyllir upp völl.

Þar dreyma má draumana stóra,

í bland við hlátrasköll.

 

Til Danmerkur hugði í húsbílaferð,

því bílinn hún átti af flottustu gerð.

Með Ástu og Hibba og tengdó í taum

og óþarfaáhyggjum gaf hún ei gaum.

En bíllinn hann bilaði á miðri leið

og Sísí hún varð frekar leið.

Málið leysti af mikilli snilli

og hélt í þennan túr

þau sváfu öll bara á milli, svo enginn varð neitt súr.

Ef finna hún þurfti sinn fýr

þó þóttu góð ráð vera dýr.

Oft þá varð hún að sína þar stilli

og úti var ævintýr.

 

 


Spilabingó

Elli Ketils kom nýr og ferskur frá Kanaríeyjum nýverið og uppfullur að hugmyndum sem nýta má í Einarshúsi í framtíðinni. Suðrænn blærinn hefur leikið sér við karlinn enda leikur hann á alls oddi, brúnn og sællegur eftir dvölina ytra. Hann var aðaldriffjöðrin í skemmtanalífi á eyjunni þann tíma sem hann dvaldi þarna úti og tók sig vel út í því hlutverki og nutu spanjólar af öllum stærðum og gerðum samvistanna við íslenska Bolvíkinginn. Spilabingó var eitt af þvi sem hann spilaði af mikilli fimi og nú telst ljós að það muni senn hefja göngu sína í húsi gleðinnar innan skamms. Mun Elli vera þar undir, yfir og allt um kring en þetta er stórskemmtilegt spilabingó sem höfðar bæði til barna og fullorðinna og verður því spilað að degi til og eins oft og þurfa þykir. Nánari fréttir birtast fljótlega ef þessari nýjung í Einarshúsi sem er tilvalin viðbót við flóru menningar og skemmtanalífs í Bolungarvík.

Haltur leiðir blindan

IMG_2350Á miðnætti á páskadagskvöld munu margfrægir tónlistarmenn stíga á stokk í Einarshúsi. Tvíkeykið Haltur leiðir blindan hefur þanist út að undanförnu og virðist það vera orðið að fjögurra manna stórbandi sem slær flestum öðrum hljómsveitum ref fyrir rass. Heyrst hefur eftir áreiðanlegum lygasögum að forsprakkar Aldrei fór ég suður, hafi lagt allt í sölurnar við að fá þessa eðalkappa til liðs við sig á hátíðinni en allt hafi komið fyrir ekki enda spila þeir bara í Kjallaranum til að byrja með. Á myndinni má sjá tvo af þessum heiðurspiltum sem tilheyra þessu tilvonandi bílskúrsbandi sem á án efa eftir að tröllríða skemmtanabransanum hér vestra í framtíðinni og glöggt mátti heyra trommarann og gítaristann söngla gamla drykkjuvalsa í hljómfögrum takti í Kjallaranum til að undirbúa sig fyrir næstu æfingu. Ég hlakka mjög til að geta boðið upp á þessa söngelsku sveina á páskunum sem líkja má við páskaegg úr eðalsúkkulaði frá Nóa Síríus.


Dagurinn eftir

IMG_2341Það má telja nokkur öruggt að þeir félagar Jómmi og Stjáni komu sáu og sigruðu í Kjallaranum í gærkvöldi er þeir stigu á stóra sviðið. Þeir spiluðu og sungu gamla slagara í bland við nýrri söngva fyrir gesti og vel var tekið undir og dansinn var stiginn af mikilli áferju. Þeir félagar höfðu stillt strengi sína svo vel saman að aldrei mátti heyra falsnótu og hljómuðu raddir þeirra í einum kór undir fullkomnu gítarspili. Rafrænn kór var hafður með í farteskinu sem Jómmi setti í gang fyrirvaralaust ef á þurfti að halda og var honum startað einungis með því að ýta á hnapp á gólfinu. Var þá eins og allur Módettukór Hallgrímskirkju væri mættur á staðinn og stæði bakatil með sínar englaraddir og tæki undir með þeim félögum. Bardömurnar dönsuðu og sungu inn á barnum við undurblítt hljómfallið og ekki er frítt við það að það hafi laðað fleiri að barnum fyrir vikið og guðaveigar hafi runnið í mannskapinn aðeins örar en ella.  Kvöldið var sem sagt mjög skemmtilegt og stemningin góð enda samansafn að skemmtilegu fólki í Einarshúsi. Þeir sem aftur á móti höfðu ekki höfðu tök á því að koma í gær geta vonandi barið þessa pilta augum á markaðshelginni því ég tók af þeim hálfgildings loforð þess efnis að þeir kæmu þá og træðu upp en þeir hafa verið fastur liður í Kjallaranum undanfarin ár á markaðshelginni. Þeir félagar sungu svo eftirminnilega um hve allir væru að gera það gott nema þeir og unun var á að hlýða hve frambærilega þeir komu textanum frá sér. Hugur og hönd unnu óaðfinnanlega saman er takturinn var sleginn og aldrei var farið út af laginu í annars fjölbreyttir flóru laga. 

 

 

 


Draumur

Dreymdi svartar stórar pöddur skríða upp hægri handlegginn á mér. Vaknaði með látum og sló húsbóndann næstum í rot þegar ég hentist upp úr rúminu og reyndi að forðast þessa óværu.

Hvað ætli þetta tákni??


Ekki við öllu séð

Spyrill í Kjallarakeppninni á föstudaginn verður enginn annar er Ingólfur Hallgrímsson. Hann starfar nú sem verslunarstjóri í Samkaup og þykist ég vita að hann spyrji að hluta til um verðlag í matvöruverslunum vítt og breytt um landið. Ætla má þó að strákurinn viti eitt og annað um hitt og þetta svo tilvalið telst því að vera vel með á nótunum þegar strákurinn fer að reka garninrnar úr þeim sem taka þátt. Spurningakeppnin hefst upp úr klukkan 22:30 eða þegar allir eru klárir og til í slaginn. Verðlaun eru í fljótandi formi í boði Vífilfells. Ætli Vertinn skelli ekki á tveir fyrir einn í kolageymslunni til miðnættist að vanda.

Það sem setja mun svo punktinn yfir i-ið um helgina er heimsókn þeirra Jómma og Stjána hingað vestur. Þeir munu að sjálfsögðu láta ljós sitt skína í Kjallaranum eins og ætíð þegar þeir vísitera æskustöðvarnar og ég veit að andrúmsloftið á eftir að verða rafmagnað er þeir stíga á stokk á laugardagskvöldið. Við sem þekkjum til einstakra sönghæfileika þessa eðalfínu tónlistarmanna vitum að það á eftir að verða brjálað stuð og mikið fjör er strákarnir koma sér fyrir á stóra sviðinu og ég hvet sem flesta til að koma og syngja með þessum peyjum.

Þess ber að geta í framhjáhlaupi að hægt er að hlýða á undurfagra rödd Jónmundar á tónlistarspilaranum mínum hér til hliðar. Þar syngur hann lag eftir sig, við texta eftir mig sem ég birti eitt sinn á blogginu og var textinn kveðja til vinar. Jómmi hristi lag fram úr erminni sem hann nefnir "Eftirmæli" og sendi mér fyrir margt löngu síðan og gerði sér vonir um það að ég myndi hafa lagið fyrir mig og ekki leyfa neinum öðrum að njóta. Ég gat ekki setið á mér lengur og hef því birt það öllum til ánægju og tel ég líklegt að Jómmi sé pínu lítið upp með sér fyrir vikið.

Ef mig hefði grunað að ég væri svona músíkölsk væri ég fyrir margt löngu búin að búa til texta við tónverk meistaranna æ ofan í æ. Vagner, Bitófen og Bakk væru sveittir dagana út í gegn við að smíða tónverk utan um textana mína og gera þeim skil í sinfóníum og slagverksóratóríum ef þeir væru ekki löngu komnir undir græna torfu.

En það er ekki við öllu séð

Sjáumst um helgina

 


Ég mæli með

ljósmynd auðarÉg mæli með þvi að þið kíkið inn á ljósmyndasíðuna hennar Auðar systur en það er linkur inn á hana hér til hliðar. Hún er hörku ljósmyndari og henni hefur farið gríðarlega fram undanfarið eða síðan henni tókst að læra á nýju myndavélina sína. Auðvitað verður að segja það alveg eins og er að hún hafði fyrirtaks módel er hún var að fóta sig áfram á ljósmyndasviðinu því systir hennar, sem hér ritar, var ætíð tilbúin til að sitja fyrir hvar sem er og hvernig sem er enda ásjóna hennar og yfirbragð allt hið gjörfulegasta. Það eitt af hafa fórnað sér fyrir ljósmyndarann gefur lífinu til þegar svo glögglega er hægt að sjá hverju maður hefur komið til leiðar í myndunum hennar Auðar systurSmile

Eitt lag enn

Í stúdíóiEnn eitt lagið hefur verið sett í tónlistarsilarann hér á bloggsíðunni minni. Það getur því auðveldlega borist lesendum til eyrna og glatt unga sem aldna. Vinnuheiti lagsins ber heitið Samkoma í Víkinni og er textinn eftir þessa sem hér skrifar. Stebbi Hilmars söng lagið með Millunum á nýjasta geisladiski þeirrar stórsveitar og ku fyrrnefndur Stebbi skjálfa á beinunum yfir hárfínum tónum stútungskvennanna að vestan sem fóru svo vel með lagið hans og slógu honum ref fyrir rass í atgerfi öllu auk yndisþokka. Ég myndi leggja vel við hlustir ef ég væri þig og gleypa í mig hvern einasta tón því glögglega má heyra hversu vel við kerlingarnar fóru með þetta stórskemmtilega lag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband