Jón Svanberg spyrill í Kjallarakeppni

Jón SvanbergBráðnauðsynlegt þykir á þessu stigi málsins að vekja athygli á því að Jón Svanberg Hjartarson er spyrill í næstu Kjallarakeppni sem er á föstudagskvöldið kemur og hefst upp úr kl. 22:00. Jón kemur alla leið frá Flateyri og er kappinn kunnur fyrir óstjórnlega söfnunaráráttu en hann leggur sig fram við að safna gömlu drasli af ýmsu tagi. Hann hefur þá bjargföstu trú að sá sem eigi mest af drasli þegar hann fer yfir móðuna miklu "vinni"??? Ekki veit ég við hvað hann miðar í þessu sambandi en trúlega telur hann betra að skilja óhemjumagn af óþarfa drasli eftir "hérna megin" fyrir þá sem eftir lifa til að sortera úr og flokka. Jón hefur einnig mikla reynslu af því að meðhöndla glæpamenn og lögbrjóta af öllum toga því fyrrnefndur Jón er lögreglumaður og starfað hefur sem slíkur til margra ára. Reikna ég fastlega með því að hann varpi fram spurningum úr lögreglulögunum og tel ég því skynsamlegt að glugga í lög og reglugerðir sem finna má í handbók fangelsismálastofnunar og kynna sér sektargerðir ýmiskonar og flest annað sem tengist notkun handjárna og annars lögreglubúnaðar. Einnig er bara gott að viða að sér gagnslausum upplýsingum um akkúrat ekki neitt sem hægt er að grípa í ef spurningarnar fara úr böndunum hjá stráknum. 

Vísnagerð

Sungið af innlifun á ÞorrablótiVertinn er á kafi í vísnagerð um þessar mundir því tíminn líður með eldingarhraða og Þorrablótið nálgast óðfluga. Ekki skortir hugmyndirnar í kollinum á téðum Vert sem sér fyrir sér háð og spott og grínatriði um annan hvern bæjarbúa . Vonir standa þó til að skemmtiatriðin rúmist innan þeirra tímamarka sem Þorrablótið tekur alla jafna, sem er ein kvöldstund. Ekki er þó loku fyrir það skotið að öll helgin verði undirlögð af gríni og glensi og tel ég því tímabært að þorrablótsgestir taki frá fyrstu helgina í Þorra og standi klárir fyrir spaugið. Þegar staðið er í kveðskap dettur Vertinn í annan gír og er varla viðræðuhæf á meðan. Hugurinn vinnur hratt og sveimar um ljóðalendur þar sem stuðlum og höfuðstöfum er reynt að koma fyrir með lagni þar sem það á við. Þegar andinn kemur yfir mig er þetta eitt það skemmtilegasta sem ég geri enda ótrúlega gaman að sjá eitthvað vitrænt verða úr orðum sem raðast eftir kúnstarinnar reglum í setningar. Innihaldið skiptir þó höfuðmáli og það verður að segja það sem segja þarf, ekki of mikið og ekki of lítið og helst þarf að halda sig innan marka og fara ekki yfir strikið á neinum sviðum. Menn túlka þó strikið misjafnlega og línan liggur ekki alltaf í samræmi við skoðanir allra, enda erum við ekki öll eins og höfum mismunandi skoðanir á mönnum og málefnum. Ég held mig þó alveg réttu megin við strikið.  Þessi bloggskrif mín hjálpa mér mikið í vísnagerðinni því orðaforðinn hefur aukist og ég er ekki eins lengi að upphugsa orð sem passa. Það er gott til þess að vita að þessar endalausu vitleysur sem ég læt fara frá mér skili einhverju góðu. Einn bragur er búinn og sá næsti bíður.

Bið að heilsa í bili.


Vel af Guði gerð

Krakkarnir í kaffi hjá ömmu og afaKuldalegt er um að litast í dag, sjórinn er úfinn og þungur og Ægir er í ham. Engin ástæða er þó til að æsa sig yfir veðráttunni því þegar haustar má búast við kulda og trekki. Það er um að gera að klæða sig vel og vandlega ef reka á snoppuna út fyrir dyrnar. Ég er búin að hafa alla rollingana mína hjá mér undanfarna daga, því haustfrí var í Borgarholtsskóla og Andri og Þórunn brunuðu vestur í heimsókn. Þau voru að fara rétt í þessu eiga eftir að keyra yfir fjöll og firnindi til að komast á leiðarenda. Ég vildi óska að ég gæti haft krakkana mína alla hjá mér að jafnaði og þykir hundfúlt að geta ekki barið frumburðinn minn augum þegar mér hentar því naflastrengurinn er ekki nándar nærri slitinn en ungarnir fljúga úr hreiðrinu einn af öðrum og við því er ekkert að gera nema að sætta sig við það þegar að því kemur. Ég er svo heppin að hafa Elsu og Lilju heima og ég verð að njóta þeirra stunda sem við stelpurnar getum verið saman og haft gaman. Börnin mín eru mjög heilbrigðir einstaklingar og rétthugsandi. Þau eru stórgóðir húmoristar og hvert öðru fyndnara og oft er glatt á hjalla þegar við erum öll samankomin. Hávær hlátrasköll eru einkennandi fyrir samverustundir okkar og oftar en ekki er litið til okkur með hornauga ef við erum að fíflast þar sem ókunnir eru í nálægð sem ekki þekkja til. Krakkarnir mínir eru til fyrirmyndar og það er svo sannarlega mikið lán að þau skuli vera svona vel af Guði gerð.

 

 

 


Gummi Jóns í Kjallarann

Gummi Jóns í SálinniTilvalið þykir í tíma að láta vita af komu Gumma Jóns, en hann er stórgóður lagasmiður og er oft kenndur við Sálina hans Jóns míns og margir þekkja af góðu einu. Hann hefur komið við í Kjallaranum og skoðað aðstæður og að sjálfsögðu kom ekkert annað til greina en að fá að mæta með gítarinn sinn og flytja okkur tónlistina sína hjá Vertinum í Víkinni. Hann mun koma á fimmtudagskvöldið og ég vona svo sannarlega að sem flestir láti sjá sig og berji kappann augum og sýni honum hversu við kunnum vel að meta það að hann skuli koma alla þessa leið og heimsækja okkur og leyfa okkur að njóta tónlistarinnar sinnar.  Nýjasti hljómdiskurinn hans ber heitið Fuður og er hann jafnframt endahnykkurinn á þríleik hans Japl, Jaml og Fuður.  Hafa lög af þessum nýja diski fengið töluverða spilun á öldum ljósvakans. Tónleikarnir hefjast á fimmtudagskvöldið 18. okt. kl. 21:00 og vissara er að hafa 1500 krónur meðferðis til að borga aðgangseyrinn.


Viðtal í Kjallaranum

Viðtal var tekið í Kjallaranum við Bubba og Unni Birnu í gær rétt fyrir útsendingu. Þeir sem vilja heyra það geta hlustað hér


Spilavist

Spilavist2Lífið heldur víst áfram eftir Bubba og tel ég tilvalið að nota tækifærið og auglýsa spilavistina í tíma. Hún er annaðkvöld , föstudagskvöld, og byrjar kl. 21:00 að venju og verðlaun og vinningar stórglæsilegir að vanda. Þetta er annað kvöldið í þriggja kvölda keppni og því afar mikilvægt að mæta alltaf svo möguleikar á því að vinna glæsilegt glerlistaverk úr listasmiðjunni verði enn meiri. Hjónakornin Gunnar Júl og Mæja Ólafs fóru með sigur af hólmi síðast þegar gripið var í spil í Einarshúsi og söfnuðuð þau fjölmörgum stigum í sarpinn en þá var spilað á sjö borðum og mikið fjör var eins og svo oft áður. Gott er að mæta tímanlega og vera búinn að undirbúa sig vel svo hægt verði að safna sem flestum slögum og stigum. Mönnum er svo frjálst að sýna spilagaldra í hléi eða bara spila með hvert annað að vild. Nauðsynlegt er að hafa 500 kall meðferðis til að borga sig inn í herlegheitin.

Spennufall

Ný dagur er upprisinn með sól og blíðu og mesta spennan fyrir bý. Ég viðurkenni það fúslega að úr mér var orðinn allur vindur þegar ég lagðist á koddann í nótt eftir annasaman dag en mikið lifandis skelfing var þetta skemmtilegt. Húsfyllir var í Einarshúsi í gærkvöldi þegar þáttur Bubba Morthens var tekinn upp og allt gekk eins og lagt var upp með ekkert fór úrskeiðis sem ekki var hægt að kippa í liðinn hratt og örugglega. Maður gekk undir manns hönd til að fá Vertinn og hennar vinnuhjú með í hringferðina í kringum landið til að halda selskap og elda ofan í mannskapinn því trakteringar þóttu ekki af verri endanum og þjónusta öll til fyrirmyndar en Vertinn verður að vera í Víkinni og hafa ofan af fyrir sínu fólki og stendur því staðföst á sínum bás og lætur allt annað lönd og leið.

Bubbi MorthensKóngurinn sómdi sér vel í Kjallaranum og ekki var annað að sjá og heyra en að allir hafi verið sáttir. Margir stigu á stokk og sungu fyrir meistarann og sumir voru góðir og aðrir enn betri. Nú geymi ég leyndarmálið um hverjir komust áfram til áframhaldandi þátttöku en það eru vinir mínir og félagar sem mátað hafa sig við sviðið í Kjallaranum áður og voru því eins og heima hjá sér þegar þeir báru sina frammistöðu á borð fyrir gesti. Það er mikill kjarkur og mikið þor sem þarf til að geta stillt sér upp fyrir framan fullan sal af fólki og kvikmyndatökuvélar og syngja lögin hans Bubba fyrir Bubba sjálfan og heyra hans gagnrýni á flutninginn. Ég get þó ekki neitað því að ég vildi sjá Benna Sig. sig taka lagið og brýna eðalfínu raddböndin sín því ég hef þá trú að hann hefði náð langt en hann er víst á kafi í öðrum verkefnum.

Einn meðlima Papanna er umboðsmaður Bubba og var honum sýnd sú sjálfsagða kurteisi að bjóða Papihonum ásamt hljómsveit sinni að spila á stóra sviðinu í Kjallaranum við gott tækifæri og ég er ekki frá því að honum hafi litist nokkuð vel á hugmyndina. Hugsanlega gæti orðið örlítið þröngt um strákana en það ætti varla að vefjast fyrir þeim að koma sér haganlega fyrir upp á sviði. Ég þarf þó trúlega að láta mér nægja að spila geisladiskana þeirra í hljómtækjunum til að byrja með og láta mig dreyma um að fá þá í eigin persónu í heimsókn. Allt er þó í lagi að láta sig dreyma um blóm í haga og blómstur í tún. Bubbi er nú einu sinni búinn að koma og því ekki Paparnir?? Á myndinni má sjá Papa í hrókasamræðum í gsm símanum í eldhúsinu í Einarshúsi og tel ég næsta víst að hann sé að skipuleggja komu hljómsveitarinnar í Kjallarann innan tíðar.

 


Bubbi

BubbiVertinn í Víkinni hefur haft í nógu að snúast það sem af er degi því heill skari kvikmyndatökumanna hefur fylgt goðinu sjálfu eftir hvert fótmál og mikið er að gera við að snúast í kringum kónginn og hans fylgdarlið. Ljós og annar upptökubúnaður hefur verið settur upp í Kjallaranum og ekki er þverfótað fyrir rafmagnssnúrum sem liggja á víð og dreif. Albert rafvirki hefur verið vakinn og sofinn yfir því að leggja þriggja fasa rafmagn í húsið svo lýsingin verði eins góð og frekast er unnt, samt þurfti að ræsa út Finnbjörn í snarhasti til að redda aukarafmagni fyrir herlegheitin. Núna er stund milli stríða og menn hvíla sig fyrir kvöldið og því nota ég tímann til að blogga og segja ykkur fréttir. Ég er búin að fá einkatónleika prívat og persónulega og Lilja fékk afmælissönginn sinn á silfurfati. Þetta er ótrúlega skemmtilegt og enn eitt ævintýrið sem ég er þátttakandi í.

Lilja

Lilja í DæliTáningurinn minn á afmæli í dag. Lilja er orðin þrettán ára gömul og hún breyttist á einni nóttu úr litlu og saklausu  barni í ungling. Það er hrein ótrúlegt hvað tíminn líður hratt og sú tilfinning að börnin vaxi mér yfir höfuð eitt af öðru er nokkuð merkileg. Stelpan var búin að hafa vaðið fyrir neðan sig og halda stelpu partý og taka með því forskot á sæluna hvað það varðar. Fjölskylduboð bíða fram að helgi því annasamur dagur er runninn upp því Bubbi er mættur á svæðið og mikið að gera í dag. Lilja er mjög skemmtileg stelpa, skondin og skýr og mikill húmoristi og hláturmild. Hún er réttsýn eins og systkini hennar og þekkir vel muninn á réttu og röngu. Hún vinnur við barnapössun með skólanum og stendur sig þar með prýði og passar vel upp á sitt.  Á  myndinni má sjá skvísuna í góðum selskap í Dæli í Víðidal um helgina. Það eru þær Sponsa, Osa og Hómer sem njóta þessa að láta Vestfirðinginn stjana við sig á alla lund. Mig langar að senda þessu fýruga fljóði og litlu stelpunni minni sem er að verða svo stór afmæliskveðju í tilefni dagsins.


Sveitalíf

Vertinn í Víkinni er búin að vera á faraldsfæti um helgina. Norðurlandið var þeirrar ánægju aðnjótandi af fá téðan vert í heimsókn og var ekki annað að sjá og heyra en að það vekti kátínu og lukku fyrir norðan að hafa mig á svæðinu. Tilefni ferðarinnar var að fylgjast með stóðréttum í Víðidalstungurétt í Víðidal og sjá hvernig slíkar réttir fara fram í eitt skiptið fyrir öll. Ekki er hægt að segja að veðrið hafi leikið við hvern sinn fingur,  því laugardagurinn rann upp með snjóstormi og öllu tilheyrandi og ánægjan af því að vera yfir, undir og allt um kring, við réttina við Stóru Ásgeirsá, dvínaði í samræmi við haglélið sem lamdi andlitið. Það stytti upp þegar líða tók á daginn og að endingu baðaði sólin knapa og hross og aðra gesti með sínum geislandi sólargeislum og gerðu daginn einn þann besta sem hugsast getur. 

Vertinn varð að gefa sér tíma um miðjan daginn til að líta við á fundi kjördæmisráðs sem haldinn var á Blönduósi en þar var samankominn fríður hópur valinkunnra sjálfstæðismanna sem nýttu tækifærið til spjalls og ráðagerða. Andrúmsloftið í félagsheimilinu á Blönduósi var blandað sigurbláma síðustu kosninga en framfaramál Norðvesturkjördæmis voru líka í brennidepli því ætíð er nauðsynlegt að vinna að bættum hag byggðanna hér vestra og þar má hvergi slaka á.

HöskuldurGist var hjá vinafólki á Blönduósi og skemmst er frá því að segja að á þeim bænum var höfðinglega tekið á móti Vertinum og hennar fylgdarliði og þar gekk maður undir manns hönd við að gera dvölina sem besta. Höskuldur og Anna Margrét hafa komið sér vel fyrir í húsinu sínu við Húnabrautina og útbúið fínasta afdrep fyrir ferðalanga. Ekki skammar svo heiti potturinn upp á sem á sér vísan stað úti í garði og var það alveg einstakt að skella sér ofan í hann og mýkja sig upp fyrir dansleikinn í Víðigerði síðar um kvöldið og fá að njóta þeirra einstöku norðurljósadýrðar sem boðið var upp á þetta kvöld í bland við stjörnubjartan himinn. Höskuldur gekk þó alveg fram af sér við að þjónusta liðið að vestan og sjá má glögglega á myndinni að hann er alveg búinn á því og við það að fara yfir um. Farið var að bera á svitaköstum hjá karli sem orsökuðu það að losa þurfti um bindið til að létta aðeins á þrýstingnum í hálsinn svo hjartað gæti slegið eðlilega. Rétt á meðan myndin var tekinn var enginn ökumaður í Húnavatnssýslu tekinn fyrir of hraðan akstur því löggan var í fyrirsætustörfum inni á stöð og létti því aðeins á taugatitringi þeim sem fylgir því að aka um á þessum slóðum.

Geirmundur Valtýsson beið mín með óþreyju um kvöldið því hann var staðráðinn í því að yrkja til mín ástarljóð í sandinn. Allir fóru á ball sem vettlingi gátu valdið og dansað var kvöldið út í gegn og ekki lét Vertinn sig vanta.  Á slíku balli dansa allir sem náð hafa sextán ára aldri og upp úr, salsa og tangó í bland við gömlu dansanna og fjörið var í algleymingi allt kvöldið. Ég var ökumaðurinn og keyrði ballgesti og partýfólk fram og til baka og fara þurfti framhjá byggðum bólum í gríð og erg og þotið var fram hjá Hnausum og Gröf og Nípukot og Enniskot nikkuðu til Vertsins er brunað var framhjá. Glöggt mátti heyra angistaóp Agnesar og Friðriks sem hálshöggvin voru við Vatnsdalshóla fyrir margt löngu síðan. Þau hefðu án efa vilja húkka sér far með mér á ballið og dilla sér í takt við músíkina en tónlistin þeirra er víst löngu þögnuð og síðasta lagið þeirra var mikið sorgarlag. 

Í EnniskotiÞrátt fyrir stöðugar ferðir á milli bæja brustu þó engar sauðfjárveikivarnir enda lagði ég mig fram um að eta ekkert af heimaslátruðu og forðaðist mikla nánd við búfénað og nautgripi því nú ríður á að ég standi klár fyrir kónginn á miðvikudaginn kemur. Á myndinni hér til hliðar má sjá fólkið mitt við Enniskot en önnur heimasætan þar er stelpan hans Andra. Eins og sjá má lét sólin sig ekki vanta og lék við hvern sinn fingur þegar myndin var tekin fyrir norðan í dag. Ferðin heim gekk vel og snjóað hafði í fjöllin í Ísafjarðadjúpi og snjórákir mynduðu tár sem runnu niður fjallshlíðar og var eins og fjöllin grétu af gleði yfir heimkomu minni. Gott er að vera komin heim eins og ætíð. Næsta vika ber með sér mikið af ævintýrum og þið fáið að fylgjast með eftir því sem tækifæri gefst.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband