4.10.2007 | 12:31
SÁÁ
Vertinn lagði leið sína á hátíðarfund samtaka áhugafólks um áfengis og vímuefnavandann eða SÁÁ í gærkvöldi og skemmti sér konunglega. Þar var margt um manninn og fjölbreytt dagskrá í boði og kvöldið var virkilega skemmtilegt. Gylfi beið mín í anddyri Háskólabíós og við sátum eins og fyrirmyndarsystkin út allt kvöldið og vorum eins og dásemdarljós. Margar ræður voru fluttar og góðar gjafir bárust samtökunum. Mannakorn steig á stokk og Maggi Eiríks og Pálmi Gunnarsson stóðu alveg fyrir sínu og fleiri stórgóðir skemmtikraftar létu ljós sitt skína. Bubbi Morthens frumflutti tvö lög af sinni alkunnu snilli og naut sín á stóra sviðinu í Háskólabíói. Það verður örlítið þrengra um karlinn í næstu viku þegar hann grípur í gítarinn sinn í Kjallaranum í Einarshúsi og trúlega örlítið færri sem berja hann augum það kvöld en hann á eftir að njóta sín vel þrátt fyrir það. Einar Már las kafla úr nýjustu bók sinni sem kemur út eftir einn mánuð og salurinn hreint veltist um af hlátri þegar rithöfundurinn fór á kostum við lesturinn. Ég ætla að fjárfesta í þessari bók um leið og hún kemur út.
Er á leið út í Reykjavík því stíf dagskrá bíður Vertsins í dag. Við systurnar ætlum að fá okkur grænmetisfæði á einhverjum grænum og grösugum veitingastað í hádeginu. Kaffiboð bíða hirst og her og verslanir standa á öndinni og bíða í örvæntingu eftir að Vertinn í Víkinni boði komu sína. Norðurlandið bíður mín í ofvæni því stefnan er tekin þangað á morgun . Þar stendur Víðidalstungurétt teinrétt og töfrandi og væntir mín í stóðréttir um helgina.
Er ekki lífið yndislegt ?
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 19:21
Vertinn komin á þing

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2007 | 18:19
Gleðifréttir
Haustangan fyllti vit Vertsins í Víkinni er hún labbaði glaðbeitt út af leitarstöð Krabbameinsfélagins í dag. Grenitrén sem tekið hafa sér bólfestu í garðinum við hús krabbameinsfélagsins voru grænni en oftast áður og loftið í henni Reykjavík var hreinna en oft áður og lífið enn bjartara en áður. Við hópleit að brjóstakrabbameini á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði vaknaði grunur um illkynjun í vinstra brjóstinu og var ég því kölluð hið snarasta til frekari skoðunnar í Reykjavík. Hefur þetta angrað huga minn um tíma sem eðlilegt er, því það reynir á að takast á við slíkar fréttir og óvissan er erfið. Dagurinn bar gleðifréttir í skauti sér og ég er svo þakklát fyrir að vera heil heilsu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.10.2007 | 20:59
Kjallarakeppnin
Kjallarakeppnin hefur göngu sína að nýju nk. föstudagskvöld en þessi stórskemmtilega keppni hefur verið í fríi í sumar. Það er engin önnur en Ilmur Dögg sem spyr fólk spjörunum úr þetta kvöld og verða spurningarnar ekki í léttari kantinum ef ég þekki þetta kjarnorkufljóð rétt. Þar sem hún starfar við heilbrigðisgeirann þykir mér líklegt að hún spyrji einna helst út í líffræðileg atriði er varða mannslíkamann frá toppi til táar en svo væri hún vís með að varpa fram spurningum um eitthvað allt annað sem akkúrat kemur því máli alls ekkert við. Ég myndi því vera búin að lesa mér vel til um eitt og annað fyrir föstudagskvöldið og vera vel undirbúinn ef ég ætlaði mér að taka þátt. Vífilfell verðlaunar vinningshafa og eru sigurlaunin í fljótandi formi. Þorsteinn Haukur, umboðsmaður Vífilfells hér vestra, mun örugglega sjá mér fyrir slíkum eðalvökva enda stjanar hann við Vertinn í Víkinni eins og honum frekast er unnt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.9.2007 | 16:43
Fullt hús stiga
Annasöm helgi að líða undir lok og ró og friður að færast yfir Vertinn í Víkinni. Það er endalaust líf í Einarshúsi og þykir það sífellt vinsælla að koma þar saman yfir mat og drykk og hafa gaman. Mikið var þó gott að koma heim um miðnættið og setjast niður og slaka á eitt augnablik. Láta líða úr sér þreytu undanfarinna daga og leita uppi sína innri ró. Fæturnir kvörtuðu reyndar sáran undan háhæluðu skónum sem Vertinn klæddist og þrammaði á upp og niður stigann allt kvöldið, en hvað er ekki gert til að líta sem best út og tolla í tískunni. Skórnir voru órjúfanlegur þáttur í einni heild og allsherjar múnderingu, þar sem pilsið tónaði við skóna, sem aftur tónuðu við skyrtuna, sem gáfu útliti mínu og atgervi öllu þann þokka sem Vertar þurfa að hafa þegar þeir bjóða þjónustu sína. Mikilvægt er að vera "smart "því það undirstrikar það tælandi augnaráð sem nauðsynlegt þykir að nota óspart til að lokka gesti og gangandi að barnum, því þá er eftirleikurinn auðveldur og Vertinn gleðst yfir hverju glasi guðaveiga sem selst okurverði.
Gúllassúpa var framborin á föstudagskvöld fyrir sársvanga Lionsmenn og ekki var annað að sjá en að þeir hefðu góða matarlist. Þeir gátu varla rennt niður síðustu bitunum þegar spilafíklar ruddust í salinn spenntir og taugatrekktir yfir því að fá að byrja að spila eftir langt hlé. Spilað var á sjö borðum sem telst mjög gott. Það er alltaf mikil og skemmtileg stemning á spilakvöldum sem þessum og reglulega gaman að fylgjast með úr fjarlægð. Sumum verður á að setja út kolrangt spil og þá skammast samherjar og tuða ofan í hálsmálið yfir gáfnafari þess sem setti út hjarta í stað spaða og setti með því stigafjöldann í uppnám. En þetta er auðvita bara skemmtilegt og til þess fallið að hafa gaman af því. Jón Bjarni var rifinn upp úr notalegheitunum við kamínuna í Kjallaranum og drifinn í spilavist því það vantaði mannskap til að fylla þessu sjö borð. Var hann svo ljónheppinn ásamt Önnu Helgu af fá skammarverðlaunin og fór því heim með Sigga Björns sem mun syngja hann í svefn með sinni rámu röddu gamla slagara í bland við nýja. Hjónakornin, María Ólafs og Gunnar Júl duttu svo í lukkupottinn um kvöldið og unnu vegleg baðhandklæði í bland við baðsölt í aðalverðlaun og munu þau án efa njóta þess að brúka slíkan munað við gott tækifæri.
Árshátíð eldri borgara var svo á laugardagskvöldið og ekki er annað að segja að þessi fríði hópur valinkunnra heiðursborgara Bolungarvíkur hafi verið öldruðum til sóma enda var svo sem ekki við öðru að búast. Jónatan spilaði undir fjöldasöng þar sem sópran í bland við eðalfínar bassaraddir hljómuðu um salinn fína í Einarshúsi. Mikinn hita lagði frá þessum síungu unglingum enda heitt úti og logn og þessi stórskemmtilegi hópur fram úr hófi heitfengur. Þessi fríði flokkur ungmenna á besta aldri lét það þó ekki á sig fá og tók vel undir í söngnum og dillaði sér í takt við tónlistina þegar það átti við. Það er svo sannarlega tilhlökkunarefni að komast á þennan aldur ef svona gott partý stendur til boða. Á myndinni hér til hægri má sjá Jónatan munda nikkuna og spila undurþýðan óð til ljúfu Önnu sem ein getur læknað hans hjartasár. Tæplega 50 manns sat í sátt og samlyndi að snæðingi þetta kvöld og undrast ég alltaf
jafn mikið hversu margir komast með góðu móti í salinn og tel ég fullvíst að húsið lagi sig að þeim fjölda sem þarf að koma sér þar fyrir og kippt sé í spotta á himneskum stöðum þegar aldagamlar undirstöður styrkjast og veggir gliðna til að auka það rými sem nauðsynlegt þarf í það og það skiptið. Ég er ansi hrædd um að þröngt verði á þingi þegar sá hinn sami og sagði okkur söguna af skipinu Synetu sem strandaði við Skrúðinn kemur í heimsókn í Kjallarann. Ég má taka 150 manns í húsið svo ég hef ekki stórar áhyggjur og veit að þetta blessast allt saman. Kvikmyndatökulið hans hefur óskað eftir því að stýrið úr Pourquoi Pas? verði komið á vegginn þegar upptökur fara fram og að sjálfsögðu verð ég við því, enda er sýningin um strand franska seglskipsins lokið í Englendingavík í Borgarnesi. Trúlega hljóma ennþá gömlu góðu lögin sem þessar hressu stelpur, á myndinni hér til hliðar, sungu á árshátíð eldri borgara í Einarshúsi í gærkvöldi, þegar kóngurinn kemur vestur. Það á án efa eftir að gleðja Bubba Morthens ef rammíslensk ættjarðarlög óma milli þilja í þessu merka húsi sem stendur svo hnarrreist við Lækjarbryggjuna í Bolungarvík.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.9.2007 | 00:33
Spilavistin byrjar í kvöld
Spilavistin hefst að nýju í kvöld, föstudagskvöld kl. 21:00, og hef ég haft spurnir af því að fjöldi manns bíði með óþreyju eftir því að fá að hittast og taka í spil. Spilað var á sjö til átta borðum að jafnaði sl. vetur og skemmtu spilafíklar sér afbragðsvel er þeir spiluðu nóló og grand við keppinauta sína. Verðlaun verða að sjálfsögðu veitt út og suður og geta þeir sem fá sem flesta slagina, slegið því nánast föstu að fá sigurlaunin en einnig fá þeir sem gjörsamlega geta ekki neitt og spila frá sér ráð og rænu, stundum glaðning í sárabætur. Geisladiskurinn með Villa Valla var vinsæl fyrir þá sem náðu ekki því takmarki sínu að sigra og mun jazzistinn hljóma víða á heimilum í Bolungarvík eftir að hafa fylgt fjölmörgum spilagestum heim af spilavistinni síðastliðinn vetur. Hagleikskonur sem starfa í Listasmiðjunni í Bolungarvík hafa gert glæsilega gripi sem verða aðalverðlaun eftir þriggjakvölda keppni og verða menn að vera duglegir að mæta, því til mikils er að vinna og vegleg verðlaun eru í boði. Sjáumst hress og kát í kvöld.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.9.2007 | 23:42
Þorrablótsnefndin 2008

Dægurmál | Breytt 26.9.2007 kl. 02:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.9.2007 | 17:43
Hús gleðinnar
Hús gleðinnar vaggaði sér taktfast við hljómfallið frá þeim félögum, Valda og Orra, í gærkvöldi og nótt og segja má með sanni að Einarshús hafi verið á iði eitt skiptið enn. Húsfyllir var þegar kapparnir þöndu raddböndin og plokkuðu gítarstrengina af mikilli fimi og segja má að þeir hafi slegið í gegn enda afar trylltir og töfrandi náungar. Mikið var dansað og brugðið á leik og kvöldið var skemmtilegt eins og yfirleitt áður. Undir restina var þó beðið um óskalög sem Vertinn spilaði með bros á vör í hljómtækjum staðarins. Ég vildi að alla daga væru jólin þótti eitt vinsælasta óskalagið og sérstaklega var óskað eftir því að það væri spilað aftur og aftur við misgóðar undirtektir þó, en það gladdi þó sérstaklega danspar eitt fimt og flott sem dillaði sér duglega við jólakvæðið kunna. Heims um ból skal þó geymt þar til nær dregur jólum en Jólahjól gæti þó lætt sér með á góðri stundu í Kjallaranum í Einarshúsi þegar líður að hátið ljóss og friðar.
Hittingur var hjá árgangi ´63 og allir sameinuðust í sjávarréttahlaðborði og tilheyrandi í Einarshúsi í gærkvöldi og ekki var annað að sjá en að þessir rígfullorðnu unglingar skemmtu sér hið besta yfir sögum frá gamalli tíð. Það má með sanni segja að tíminn sé fugl sem flýgur hratt því ein 30 ár eru liðin síðan þessi krakkar fermdust og voru þau að hittast í tilefni af þeim tímamótum. Gaman var að sjá gamalkunnug andlit sem ekki höfðu verið hér á sveimi til margra ára og merkilegt að sjá hversu aldurinn hefur farið vel með þessa krakka sem eitt sinn léku sér saman sem lítil börn í faðmi fagurra fjalla og undu sér við niðinn frá sænum sem lúrir við Víkina góðu.
Teljast þessar tvær nýliðnu helgar góð upphitun fyrir komu Bubba Morthens sem væntanlegur er til Bolungarvíkur í október en þá mun hann eyða heilum degi í Einarshúsi ásamt 20 manna tökuliði við upptökur á þættinum sínum. Ég tel það næsta víst að eftir heimsókn Bubba kóngs, muni Einarshúsið ekki lengur teljast til best geymdu leyndarmála á Vestfjörðum, heldur verður það trúlega augasteinn allrar íslensku þjóðarinnar og á án efa eftir að freista enn fleiri að líta þar við í framtíðinni.
Aðeins tvö og hálft ár eru síðan rekstur hófst í þessu aldagamla húsi og oft hugsa ég til þess hvernig komið væri fyrir húsinu í dag ef við hefðum ekki sýnt þann kjark að taka það að okkur og gera það upp og gefa því líf að nýju. Þarna slær hjarta bæjarins hverja helgi og blóðið rennur um æðar hússins líkt um ungabarn væri að ræða. Þróttur og þor hefur líka vaxið með hverju handtaki sem unnið er við húsið vegna þess feikilega góða meðbyrs sem flestir bæjarbúar og aðrir hafa sýnt þessu verkefni okkar. Reyndar er þetta mikið langhlaup og sýna þarf mikla þrautseigu til að ná að klára þetta maraþon en það hefst með tíð og tíma og nauðsynlegt er að eiga næga þolinmæði og staðfestu í farteskinu svo hægt sé að klára verkið og halda áfram ótrauð. Ekki má svo gleyma því hversu atvinnuskapandi þetta verkefni er og á álagstímum er töluverður fjöldi fólks þar við störf sem gengur vasklega til verks enda eru bestu vinnukraftar bæjarins í vinnu hjá Vertinum í Víkinni. Ég segi oft að þessi störf sem hér um ræðir hafi verið búin til " úr engu" þ.e. úr rústum gamals húss með sögu og eljusemi hugsjónafólks sem hefur trú á því að hver bær þurfi á húsi að halda til að hýsa gleðina og glauminn sem fylgjir hverri manneskju sem lifir lífinu lifandi.
Að endingu geta spilafíklar farið að taka gleði sína á ný því spilavistin byrjar á föstudag og reikna má með því að einhverjir spili af sér og fari heim með öngulinn í rassinum. Ekki er svo úr vegi að geta þess að Guðmundur Jónsson sem er gítarleikari í Sálinni hans Jóns míns, kemur í heimsókn í Kjallarann í október og ber á borð fyrir okkur það nýjasta í tónlistinni sinni og það er vissulega tilhlökkunarefni að hitta hann. Ég kem til með að fjalla um þetta betur þegar nær dregur.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.9.2007 | 16:04
Kóngurinn kemur í Kjallarann
Dægurmál | Breytt 22.9.2007 kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2007 | 00:58
The day after..
Sit við eldhúsborðið heima og hlusta á Eivöru og ét ábrystir af mikilli áfergju með miklum kanilsykri en húsfreyjan á Ósi hafði nýlega fært mömmu þá munaðarvöru og ég nýt góðs af því. Brátt verð ég búin að kíla vömbina svo út að trúlega verð ég andvaka fram á morgun sem er ekki gott því morgundagurinn ber krabbameinsskoðun í skauti sér og er það yfirleitt sérstakt tilhlökkunarefni hjá konum að fá að fara í slíkt eftirlit og betra að vera útsofin. Ég ber þá von í brjósti að þeir sem taka á móti mér í fyrramálið á sjúkrahúsinu á Ísafirði verði ekki gamlir, loðnir og ljótir karlar heldur snoppufríðir kvenkyns kvensjúkdómalæknar. Aðalatriðið er að sjálfsögðu að láta fylgjast með sér reglulega svo hægt sé að sjá frumubreytingar á frumstigi og koma í veg fyrir að illa geti farið. Eru krabbameinsskoðanir lífsnauðsynlegar hverri konu og venjast með aldrinum.
Annars var löngum tíma varið í Súðavík í dag hjá henni Laufey en hún hefur rekið Dekurhúsið um árabil. Skerpa þurfti háralitinn á Vertinum og upplagt þótti að setja strípur á víð og dreif um hrokkið og úfið hárið. Krullurnar voru hrekkjóttar að venju og veittu mikla mótspyrnu þegar hinar gullnu strípur voru makaðar í hringavitlausa slöngulokkana en allt hafðist þetta að lokum. Hárið á mér er alveg ótrúlega lifandi og virðist hafa nokkuð sjálfstæðan vilja og ég er að verða jafnhrokkin og þegar ég var lítil stelpa. Laufey segir hárið á mér kraftmikið eins og konuna sem ber það dags daglega og trúlega er það rétt. Laufey er að flytja suður og ég á eftir að sakna hennar því hún hefur verið stoð mín og stytta undanfarið.
Heyri að Eivör er sofnuð og hætt að syngja. Ætli ég láti ekki staðar numið í bili og gangi á vit draumaheima.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 635846
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm