Denni dæmalausi á laugardagskvöldið

Nú dregur til tíðinda enn og aftur því ekkert lát er á tíðum uppákomum í Einarshúsi. Hinu megin við fjallið fagra býr dæmalaus drengur sem ber heitið Denni og ætlar hann að gera sér ferð hingað út í Vík bara fyrir mig og ykkur hin og syngja fyrir okkur út í rauða nóttina. Denni kann nóturnar utan að og slær g- strenginn óspart á gítarinn fyrir góða gesti. Það verður hugsanlega hægt að tjútta og dilla sér þegar líða tekur á kvöldið ef áhugi er fyrir því og mig grunar að það geti orðið stuð. Kolamolinn verður falur fyrir lítið til að byrja með, svona rétt til að kynda vel undir mannskapnum.

Vertinn tekur forskot á sæluna og fær að hlusta á Denna fyrr um kvöldið á árshátíð Oddfellow sem haldin er þetta sama kvöld inn á Ísafirði. Þá mæta konur í síðkjólum og karlarnir klæddir í kjól og hvítt. Þá fæ ég að nota glæsilega samkvæmiskjólinn sem ég keypti fyrir nokkrum árum í Fríðu Frænku en kjóllinn er úr dánarbúi hefðarkonu og trúlega keyptur í London upp úr stríði. Þegar ég keypti þennan dýrindiskjól var hann allt of þröngur utan um mittið á mér en ég varð að eignast hann engu að síður. Hann passar mér núna eins og flís við rass enda er ég orðin með eindæmum mittisnett og ber kjólinn eins og hefðarmeyja.

 


Mæja Bet spyrill í Kjallarakeppni

Kominn er tími til að geta þess að engin önnur en kjarnakerlingin og hin kostulega Mæja Bet er spyrill í Kjallarakeppni næsta föstudagskvöld. Farið verður óhefðbundnar leiðir í vali á spurningum og framsetning þeirra verður með nýstárlegum hætti. Látbragð og líkamshreyfingar verða óspart notaðar eftir því sem Vertinn kemst næst og mannleg túlkun í bland við myndir af hinum og þessum verða brúkaðar við minnsta tilefni. Auk þess verða allskyns búkhljóð óspart notuð við gjörninginn ef svo ber undir. Ég myndi ekki missa af Kjallarakeppninni ef ég væri þið og ætli Vertinn í Vikinni verði ekki í góðu skapi þetta kvöld og bjóði upp á tvo kolamola á verði eins úr gömlu kolageymslunni til miðnættis. Kjallarakeppnin byrjar upp úr kl. 22:30 og betra er að koma fróður um alla skapaða hluti og í rétta gallanum, með góða skapið og hafa léttu lundina meðferðis.

Jólagjafalisti ömmu

Hér fylgja smá hugleiðingar handa þeim sem eru svo heppnir að eiga ömmu.

Jólagjafalistinn hennar ömmu.

Mér datt í hug að senda ykkur smá bréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó. Ég á orðið lager sem endist
mér út ævina.

Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

Ég á orðið 7 flónelsmorgun sloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í
bili. Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink
kerlingarlitur.

Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert
að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir
veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré. Ég
þurfti að setja tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól. Og
ég er orðin svo fótafúin.

Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar
aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur. Ef þið viljið gefa mér bækur,
þá vil ég frekar Arnald Indriða, eða Agötu Christie.

Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór
Reykjavíkur.

Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á
tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

Ég verð að segja eins og er, að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis
lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað
hljómflutningsgræjur eða tölvu. Sit afar sjaldan í svona stól, því það er
erfitt að standa upp úr honum. Og ég nota tölvu frekar, og þykir meira gaman
að háværri rokktónlist.

Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma
til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin,
við ætlum nokkur saman gamlingjar og djamma og djúsa. Vonandi verðið þið
stillt og góð á meðan.

Sjáumst á næsta ári

Kveðja 

Amma.


Kuldahrollur

Það fór um mig kuldahrollur þegar ég sá þetta hér


Kom sá og sigraði

Kalli HallgrímsKalli Hallgríms kom sá og sigraði í gærkvöldi eins og við var að búast. Strákurinn er mjög liðtækur gítaristi og söngvari og lætur brandara og gamansögur flakka í gríð og erg á milli tónlistaratriða. Fjölmargir komu til að berja hann augum og hafa gaman saman og menn skemmtu sér hið besta. Kalli sagði m.a. söguna af Barna Jóni sem bjó á ströndunum hér fyrr á árum. Hann var sagður hafa barnað fimm konur á leið sinni frá Ingólfsfirði á Ströndum að Brú í Hrútafirði og geri aðrir betur. Karlinn hefur án efa borið með sér mikinn yndisþokka og karlmennskan hefur trúlega dropið af honum er hann blikkaði fljóð á öðrum hverjum bæ á ferð sinni um héraðið sem varð þess valdandi að konur urðu tilkippilegar í allskyns kitl og kelerí.

Benni Sig. lét sig ekki vanta og tók lagið með Kalla og skipti þá engu máli hvort óperettur eða Benni, Gummi og Kalliunaðsleg ástarljóð urðu fyrir valinu, þvi Benni getur sungið allt. Undir bláhimni ómaði um Kjallarann um blíðsumarsnætur og rósfagrar meyjar hlustuðu með athygli á Gumma Þórarins og Benna meðan döggin á grasinu greri á síðasta degi sumars og vindurinn hafði hljóð rétt á meðan. Ó sóle míó hljómaði líka um salinn og Geiri á Grundunum tók undir sem aldrei fyrr og lagði allt sitt í sönginn. Kattadúettinn er hjóm eitt miðað við dúettana sem fengu að njóta sín í Einarshúsi í nótt og ómuðu um næsta nágrenni. Tríóið sem sjá má á myndinn hér til hliðar  tekur sig vel út og er til fyrirmyndar í alla staði er þeir sungu um daginn sem í austrinu rís.

Gler hjartað slærSpilavistin gekk vel að vanda. Gunnar Júl hefur verið með eindæmum heppinn í spilamennskunni undanfarin þrjú kvöld og fór hann heim með tvenn verðlaun í gærkvöldi. Bæði verðlaun fyrir flestu stigin eftir gærkvöldið og einnig átti hann flestu stigin eftir þrjú síðastliðnu spilakvöld. Hann hlaut lampa unnin úr gleri í listasmiðjunni af hagleikskonunni okkar henni Dísu Hrólfs, en hún ber hitann og þungan af öllum glerlistaverkum sem unnin eru staðnum. Lampinn ber heitið "Hjartað" og er einn af fjórum lömpum sem hún hefur búið  til handa mér til að nota í aðalverðalaun í vetur. Eftir eru Spaðinn, Laufið og Tígullinn og menn eru hvattir til að missa ekki af spilavistinni svo líkurnar á slíkum eðalvinningi verði sem bestar.


Brúðkaup.is

brudkaup.isNauðsynlegt er að geta þess að Vertinn í Víkinni hefur tekið að sér aukavinnu við alkunnan netvef sem ber heitið brúðkaup.is. Markmiðið með þeirri vinnu er að binda endi á tilhugalíf landsmanna í einum vettvangi og stefna sem flestum í hjónaband. Ég mun án efa upplýsa ykkur um allan sannleikann varðandi giftingar og ástarjátningar af öllum toga innan tíðar og ætla að vera tilvonandi brúðhjónum innan handar í framtíðinni er varðar allan undirbúning í tengslum við hjónavígslur af ýmsu tagi.  Ég mun leiðbeina sem flestum ógiftum konum og körlum í eina hjónasæng eins og mér frekast er unnt og leiða  fólk sameinað til sængur eftir fremsta megni.

Í framhaldi af framansögðu teldi ég heppilegra að kirkjunnar menn gæfu mér fullt leyfi til að framkvæma hjónavígslur hér á bloggsíðunni minni en það gæti verið handhægt þegar mikið liggur við og nauðsynlegt telst að giftast einu og sönnu ástinni eigi síðar en strax. Einnig þætti mér betra þegar fólk laðast um of, hvert að öðru í Kjallaranum, að geta framkvæmt hjónavígslu fyrirvaralaust til að forðast nánari kynni í synd og skömm. Þetta er allt í skoðun en biskupinn mun taka erindi mitt upp á fundi sóknarnefndar Grundar-og Gaulverjabæjarhrepps í næstu visiteringu sinni.

Ég mun bera hag allra á giftingaraldri fyrir brjósti og leggja mig fram um að þóknast sem flestum. Allir þeir sem hafa sterka tilhneigingu til að eignast maka geta treyst því að þeirra velferð sé höfð að leiðarljósi í viðskiptum þeirra við Vertinn í Víkinni. Klæðaskiptingar jafnt sem gagnkynhneigðir aðilar sem hneigjast að fólki af sama kyni  fá sömu þjónustu og dvergvaxnir vandræðamenn úr Vogunum og eineygðir utangarðsmenn utan af landi. Allir eru jafnir er kemur að undirbúningi brúðkaups og málið er að fylgjast með síðunni reglulega og gjóa augunum blíðlega í áttina að elskunni sinni í leiðinni.

Að öllu gamni slepptu þá er bráðgáfaði Baldur Smári og bláeygði Benni Sig. eigendur þessa vefjar og hafa þeir félagar falast eftir starfskröftum mínum við að koma að þessum brúðkaupsvef og halda honum að miklu leiti úti í framtíðinni. Hálft starf skapast í bænum í tengslum við þessa vinnu og vinnuna mína hjá www.vikari.is sem er gott fyrir litla byggðarlagið okkar þar sem hvert og eitt starf skiptir svo miklu máli. Við erum gott þríeyki sem starfar vel saman og vonir standa til að brúðkaup nái að vaxa og dafna í framtíðinni þegar vinna okkar verður komin á fullt skrið. Heimsóknir á www.vikari.is hafa margfaldast síðan ég tók við og tíðni þeirra er sækja vefinn heim eru nálægt 1100 á dag og segja má að aukningin hafi verið um 513% frá byrjum starfa minna, sem er 200% meiri aukning en Ísafjarðarbær fær út úr aukaframlagi Jöfnunarsjóðs milli ára og ber að gleðjast yfir því. Heyrst hefur að þorri landsmanna þori ekki í háttinn nema að lesa víkara áður af ótta við að missa af góðum fréttum úr byggðarlaginu en dagsönnu lygasögurnar eru alltaf til staðar hér á blogginu mínu og hef ég reynt að halda mig við það að hafa áttunda hvert orð upplogið og skrumskælt.

Í lokin má svo geta þess að í þessu áðurnefnda þríeyki er Baldur einn ógiftur en lofaður þó. Mér þætti heiður að veita honum himneska hjónablessun á bloggsíðu Vertsins í Víkinni þegar þar að kemur.

 


Til gamans gert

Set að gamni vísu sem ég samdi fyrir nokkrum árum og sungin var á árshátið Bakkavíkur en ég starfaði við þrif í rækjuvinnslunni til margra ára. Við stelpurnar í þrifaliðinu slógum aðsjálfsögðu í gegn eins og kemur fram í textanum.

Sex í þrifunum.

Lag: Tvær úr Tungunum

 

Við erum sex sem syngjum hér

og stígum nú á svið.

Ávallt til í hvað sem er

enda snoturt þrifalið.

Galvaskar við gerlaregn

við glímum æ og sí.

En nú við skulum slá í gegn

og syngj´a í karaoký.

 

Viðlag:

Við erum mátulega mittisnettar

meiriháttar hverja stund.

Lokkandi og lappaléttar

léttlyndar á alla lund.

Þrífa verður, hvað sem tautar

oft er það um of.

Í pollagöllum inn úr blautar

alveg upp í klof.

 

Oft við fáum alveg nóg

af umgengninni hér,

okkur verður um og ó

það segist eins og er.

Stífluð ræsi æ og sí

er okkur oft um megn.

En samt í kvöld í karaoký

við skulum slá í gegn.

 

Viðlag:

Við erum mátulega mittisnettar

meiriháttar hverja stund.

Lokkandi og lappaléttar

léttlyndar á alla lund.

Þrífa verður, hvað sem tautar

oft er það um of.

Í pollagöllum inn úr blautar

alveg upp í klof.


Kalli Hallgríms kemur í Kjallarann

Ekki er úr vegi að nefna það í tíma að enginn annar en sá frábæri trúbador og skemmtikraftur Kalli Hallgríms verður í heimsókn hér vestra á komandi helgi og mun troða upp í Kjallaranum á föstudagskvöldið. Ég hvet alla sem vettlingi geta valdið að taka kvöldið frá og mæta með góða skapið og léttu lundina í farteskinu í hús gleðinnar um helgina.

Ljúfur laugardagur

Jón SvanbergLoks gefst tími til að tilla sér niður og rita nokkrar línur. Gott var að sofa á sínu græna eyra fram eftir, því Vertinn stóð upp á endann fram á rauðan nótt og vaktaði mann og annan og sá til þess að viðkomandi gengi hægt inn um gleðinnar dyr. Jón Svanberg var spyrill í Kjallarakeppninni og spurði stórskemmtilegra spurninga. Ég mun taka upp þá nýbreytni að birta spurningar og svör úr þessum keppnum hér á síðunni eftir hendinni, svo betra er að fylgjast vel með hvað borið er borð fyrir lesendur hér á blogginu mínu frá degi til dags. Engum þarf að koma það á óvart að Gunnar nokkur Sigurðsson kom sá og sigraði ásamt Kamillu dóttur sinni og hafði karlinn með sér heilan kassa af nýflóaðri mjólk sem gerilsneidd hafði verið eftir kúnstarinnar reglum en það er Mjólkurbúið Vífilfell sem styrkir Kjallarakeppnina.

Gummi JónsGummi Jóns hélt tónleika á fimmtudagskvöldið og satt best að segja hefði ég viljað að fleiri hefðu fengið að njóta þeirra, því þeir voru alveg hreint framúrskarandi góðir. Gummi er stórgóður gítarleikari og án efa einn sá besti á landinu. Stundum var eins og hann hefði alla sinfóníuna á bak við sig á sviðinu því hann hafði meiriháttar græjur sem tóku upp gítarsóló og annan gítarundirleik og lét herlegheitin hljóma með þeim hætti að halda mátti að heil herdeild gítarsnillinga væru með honum á stóra sviðinu. Á myndinni má sjá kappann algjörlega missa sig í brjálæðislegu gítarsólói þar sem gítarstrengir hlupu um allan tónstigann í föstum takti og hljómfall þeirra hljómaði sem unaðsleg óratóría.

 


Konur á málþingi um atvinnumál

Halda á málþing um atvinnumál í Ísafjarðarbæ á laugardag og er yfirskriftin " atvinna fyrir alla". Athygli hefur vakið að fimmtán fílefldir karlar halda fyrirlestra um þessi mál en einungis er pláss fyrr tvær penar og fallegar konur og hefur það farið fyrir brjóstið á einum og öðrum. Fyrir utan þessar tvær konur, sem hér um ræðir, fara konur með fundarstjórn, súpa er i boði í hádeginu á þinginu og ég reikna fastlega með því að konur fái að koma að eldamennskunni og í lokin hafa skipuleggendur  heldur betur sofnað á verðinum ef konur hafa ekki verið fengnar til að taka til og þrífa eftir herlegheitin. Svo má ekki gleyma því að konur mega koma og hlusta á það sem í boði er á þessu málþingi og telst það nokkuð vel boðið að mínu viti. Trúlega telja sumir að kynjahlutföllin jafnist út þegar á þetta allt er litið og að jafnræðis sé gætt í hvívetna ef allt það sem hér hefur verið minnst á er tekið með í reikninginn.

Ég er kona.....ég er kona sem stend mína plikt....ég er kona sem er komin langleiðina með að koma börnunum mínum vel til manna....ég er kona sem rek fyrirtæki í mínum heimabæ og stend fyrir flestum uppákomum í byggðarlaginu.......ég er kona sem verið hefur í bæjarstjórn í sjö ár og unnið eftir fremsta megni að velferð bæjarins míns.....ég er kona sem held úti vikari.is.........ég er kona sem er núna formaður næstu þorrablótsnefndar......ég er kona sem stend að uppgerð eins merkilegasta húss bæjarins ásamt manninum mínum......ég er kona sem er ágætis hagyrðingur....ég er kona sem er óvirkur alkahólisti sem reynir að sína mannkærleika eftir fremsta megni....ég er kona sem held úti málþingi flesta daga á bloggsíðunni minn....ég er kona sem reynir að taka sig á á hverjum degi....ég er kona......ég er stolt kona.

Stelpur!!

Verum stoltar


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband