9.11.2007 | 15:45
Spilavist
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2007 | 23:39
Hvert örstutt spor
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 00:36
Mugison
Við mæðgurnar brugðum okkur á þrælgóða tónleika með Mugison í kvöld og við skemmtum okkur hið besta. Flestir þræðir Mugison liggja frá Bolungarvík enda er hann hálfur Bolvíkingur og við erum stolt af stráknum og eignum okkur hann með húð og hári. Hljómsveitarmeðlimir stóðu sig allir með prýði en segjast verður þó alveg eins og er að athygli mín var að mestu á trommuleikaranum því hann fór algjörum hamförum við trommusettið og sló kjuðana af mikilli fimi. Einvalalið hljómlistarmanna var þó samankomið á sviðinu og flutningur frábærra laga sem borin voru á borð fyrir tónleikagesti í taktföstum rytma féll vel í kramið hjá Vertinum í Vikinni.
Ég hef oftar en einu sinni gerst svo frökk að bjóða Mugison að spila í Kjallaranum og hefur hann með sinni einstöku hógværð þakkað mér gott boð en ekki séð sér fært að mæta. Ég el þó með mér þann draum að hann komi á heimaslóðir einn daginn og takið lagið í Einarshúsi og held ótrauð áfram að bjóða honum í heimsókn og hver veit nema það beri árangur einn daginn. Papamug hefur komið og sungið í karaoki af hjartans list í Kjallaranum og gerði það vel. Papamug var heimagangur heima hjá mér þegar ég var lítil stelpa enda voru hann og Gaui bróðir minn mestu mátar. Papamug fullyrti eitt sinn við mig að ég hafi verið "þægt barn" og ekki hef ég nokkra ástæðu til að rengja það enda er ég af góðu kyni og Muggi er meðvitaður um það því hann valdi eina af frænkum mínum sér fyrir konu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 20:15
Elsku börnin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.11.2007 | 18:46
Jólahlaðborð
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2007 | 14:33
Öskubuska
Einu sinni var................................
.......köttur út í mýri
setti upp á sig stýri
úti er ævintýri
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.11.2007 | 12:52
Leiklistargagnrýni
Leikritið Öskubuska var frumflutt enn einu sinni á Árshátíð Oddfellow í gærkvöldi við mikinn fögnuð viðstaddra. Persónur og leikendur í verkinu stóðu sig með sóma og sýndu það og sönnuðu svo ekki verður um villst að leiklistarhæfileikinn leynist víða. Túlkun leikenda á hlutverkum sínum var með eindæmum góð og skiluðu þeir hlutverkum sínum vel til áhorfenda. Samhengislausar setningar, sem fleygt var út í salinn, vöktu þó athygli og ollu undrun og þóttu oft úr lausu lofti gripnar og pössuðu engan vegin við atburðarásina í verkinu. Mér er það t.d minnisstætt þegar öskubuska kallaði "farðu í burtu druslan þín" þegar prinsinn fagri kom og bað um hönd hennar í auðmýkt og þótti þetta ekkert athugavert og eðlilegt í samhengi leikritsins. Orðbragð þótti stundum alveg á skjön og úr takti við heildarumfang verksins og var örlitlum klúryrðum varpað fram þegar minnst varði til að krydda leikinn. Trúlega má rekja þessar stefnulausu tilvitnanir í lítil minnisblöð sem leikendur fengu jafnóðum og lásu, þegar það átti við, en þau áttu að varpa nánari ljósi á atburðarrásina og glæða hana meira lífi. Oftar en ekki var þetta sprenghlægilegt og bráðsmellið og hitti í mark.
Túlkun leikenda á persónum var alveg með ágætum. Öskubuska var raunamædd að vanda enda nánast komin úr öskunni í eldinn. Nokkuð tilkomumikið þótti þegar sendiboðinn kom ríðandi inn á sviðið á moldóttum tréfák og kallaði fáránlegar orðhendingar til stjúpmóður Öskubusku sem brást við með tilefnislausu orðagjálfri. Karlmennskan draup svo af prinsinum og mjög eftirminnilegt þótti þegar hann tók stúlkuna sem hann unni hugarástum og leit í augu hennar með tilþrifum og sagði" ég er búin, komdu að skeina". Þarna fannst mér koma berlega í ljós hvað ævintýrið hefur staðist vel tímans tönn og gerði þessi magnþrungni leikur söguna með eindæmum eftirminnilega.
Búningar hafa greinilega verið valdir af handahófi en ekki var annað að sjá en að vel hefði tekist til. Hárkollur pössuðu akkúrat á leikara og kjólar og annað skart nutu sín vel þegar á heildina er litið. Ekki er úr vegi að geta þess að múnderingar þóttu bera af þegar kom að stjúpmóður aðalpersónurnar og hennar dóttur, en þær þóttu frekar ófrýnilegar ásýndum leikinn út í gegn. Öll holling og yfirbragð þeirra minnti helst á tvær aflóga piparjúnkur sem aldrei hafa verið við karlmann kenndar. Á myndinni hér til hliðar má sjá þessar kjarnakerlingar og ég spyr, HVERJIR ERU LEIKARARNIR ? Ég kalla eftir svari í athugasemdardálkinn.
Í framhaldi af framansögðu má sjá að þetta var hin besta skemmtun og ég hef ekki viljað fyrir nokkurn mun missa af þessari skemmilegu uppfærslu skemmtinefndar Oddfellowstúkunnar á Öskubusku.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.11.2007 | 20:59
Löggulíf
Með lögum skal land byggja stendur skrifað í rykföllnum doðröntum í skjalageymslum lögreglunnar og trúlega er heilmikið til í því. Lítið þýðir fyrir Vertinn í Víkinni að brjóta af sér af neinu tagi og það getur vissulega sett strik í reikninginn þegar nauðsynlegt þykir að fara í kringum lögin og svínbeygja þarf reglur landsmanna af minnsta tilefni. Ástæðan er sú að tveir laganna verðir tilheyra fjölskyldunni og standa vaktina daga jafnt sem nætur og fylgjast grannt með því að ég standi mína plikt. Ekki er úr vegi að geta þess að sakaskráin mín er tandurhrein og mannorð mitt óflekkað enda hef ég lagt mig í líma við að haga mér eins og manneskja gegnum tíðina og lítið sem ekkert er upp á mig að klaga í þeim efnum, nema ef vera skildi þegar ég stal súkkulaðimolanum frá Kitta Summa hér fyrr á árum en það atvik komst aldrei upp og var því ekki rannsakað svo neinu nemi. Karlinn lagði reyndar upp laupana fljótlega eftir það, en ég hef reynt að telja mér trú um það að hann hafi haft aðrar ástæður til að loka litlu búðinni sinni en að þessi litli súkkulaðimoli skyldi hafa horfið.
Sonurinn hefur einnig lagt starfið fyrir sig og unnið hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í sínum fríum í námi og hann kemur heim í jólafríinu og ber með sér starfskrafta sína á borð lögreglunnar á Vestfjörðum. Ég má til með að sýna ykkur myndir af þessum tveimur bráðmyndarlegu mönnum sem eru stolt Íslands, sverð þess og skjöldur og sjá til þess að lög eru reglur séu viðhafðar í hvívetna. Strákurinn er geðgóður að eðlisfari og réttsýnn og hefur það að bera sem góður lögreglumaður verður að hafa í farteskinu. Hann var í fremstu víglínu í lögreglunni í Reykjavík sl. sumar og fékk að upplifa margt og mér fannst hann þroskast mikið á þessum tíma. Óharðnaður unglingurinn varð fullorðinn í einum vettvangi og reynslubrunnurinn hans varð barmafullur. Hann tók þó öllu sem fyrir höndum bar af þolinmæði og þrautseigju. Mér hefur fundist skorta á að lögreglumönnum sé sýndur andlegur stuðningur eftir erfið verkefni og þar mættu lögregluyfirvöld taka sig á. Það vill til að strákurinn er sterkur og virðist styrkjast við hverja raun.
Það er líka til frásagnar að Elsa virðist stefna í þessa sömu átt og bróðir sinn og pabbi og leggur nú höfuðáherslu á að klára MÍ sem fyrst til að geta staðið klár um leið og hún hefur aldur til að þreyta inntökupróf í lögregluskólann. Ég veit að hún hefur mikla burði til að verða góð lögga og hér heima er hún hvött til að ná því takmarki sínu. Hún er semsagt búin að ákveða hvað hún ætlar að gera þegar hún verður "stór".
Dægurmál | Breytt 2.11.2007 kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2007 | 16:13
Fokið í flest skjól
Ástandið ekki verður verra
það viðurkenni ég fús.
Því bæjarstjórinn, sá hái herra
er kominn með höfuðlús.
.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.11.2007 | 01:14
Tindrandi tunglskin
Ísafjarðardjúpið var sveipað tindrandi tunglskini og stjörnuskari baðaði sig á spegilsléttum haffletinum í kvöld. Óshlíðin strauk Vertinum í Víkinni blíðlega um vangann og leit með lotningu til fjallanna hér í kring með von að þau færu mjúkum höndum um títtnefndan Vert og kæmi henni á áfangastað heilu og höldnu. Leiðin lá til Súðavíkur til að hitta AA félaga og deila með þeim vonum og væntingum til lífsins og að finna vegarspottann sem hefur að geyma leiðina til batnaðar. Ólgusjórinn sem var að byrja að búa um sig í brjósti mínu varð nánast jafn spegilsléttur og Ísafjarðadjúpið eftir fundinn og trúin á það að ég væri að ganga rétta leið, jafn raunveruleg og speglun mánans á haffletinum. Innri órói er hluti af mínum sjúkdómi og ég er mjög meðvituð um það og átta mig strax á því hvað er á seiði þegar ég fer að finna fyrir vanlíðan hið innra. Þá er Bakkus að banka upp á og grátbiðja mig um að fá að færa lögheimilið sitt aftur í huga minn og hjarta. Það stendur honum ekki til boða enda heimtar hann toll og tekur þurfamannatíund af hverjum þeim sem veitir honum húsaskjól.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm