18.11.2007 | 17:00
Hvíldardagurinn
Árshátíð starfsmanna Bolungarvíkurkaupstaðar var haldin í gærkvöldi og mikið var um dýrðir í félagsheimilinu af því tilefni. Rúmlega eitthundrað manns þáðu trakteringar og annan velgjörning sem Vertinn í Víkinni og hennar skyldulið reiddi fram með mikilli snilli. Mér er ljúft og skylt að geta þess að allt gekk eins og í sögu og kvöldið gekk eins vel og hægt var að hugsa sér. Þeir sem störfuðu á mínum vegum stóðu sig afskaplega vel enda ekki er við öðru að búast þegar saman eru komin albestu vinnuhjú hér vestra sem kunna vel til verka og vita alveg upp á hár hvernig hlutirnir skulu framkvæmdir. Ég er mjög stolt af mínu starfsfólki og tel mig lánsama að hafa þetta fólk í vinnu.
Skemmt er frá því að segja að veislustjórinn fór á kostum og kom Ylfa Mist mér nokkuð á óvart er hún stýrði veislunni styrkri hendi. Hún var bráðsmellinn og stórskemmtileg. Húsið á sléttunni stóð alveg fyrir sínu að vanda og dansað og tjúttað var fram á rauða nóttina. Segja verður þó alveg eins og er að það voru þreyttar mæðgur sem komu heim þegar líða tók á morguninn og í dag er úr okkur allur vindur og tökum við hlutunum því rólega og höldum því hvíldardaginn heilagan í dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2007 | 16:19
Elgsprófið
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2007 | 00:38
Einar Jón er spyrill í Kjallarakeppni
Enginn annar en Einar Jón Snorrason verður spyrill í Kjallarakeppninni sem hefst í kvöld kl. 10:30. Reikna má með því að hann spyrji um eitt og annað sem reynir á heilabú bæjarbúa og tel ég því nauðsynlegt að gáfumenn staðarins standi klárir fyrir kvöldið. Vel má búast við því að hann láti reyna á kunnáttu manna í Færeysku því hann talar hana reiprennandi og tel ég líklegt að túlka þurfi allar spurningarnar fyrir keppendur. Einnig hefur strákurinn verið til sjós og mun án efa varpa fram velvöldum spurningum af aflabrögðum landans. Hver veit nema kolamolinn verði á spottprís og trúlega brosa bardömurnar breiðar en oftast áður enda engin ástæða til annars því Einar Jón er algjör draumur og hvers manns hugljúfi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.11.2007 | 11:01
Tímamótaviðtal
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.11.2007 | 00:49
Ný myndasería
Búið er að raða samviskulega nýjum myndum frá árshátíð Einarshúss um helgina inn í myndaalbúm. Með auðveldum hætti er hægt að skoða þær gaumgæfilega hér á síðunni í myndaalbúmi hér til hliðar. Tekið skal þó sérstaklega fram að sumar myndirnar eru ekki fyrir viðkvæma og hjartveikt fólk er beðið um að hafa eitthvað hjartastyrkjandi við höndina ef bera fer á aðsvifum eða yfirliðum. Veislugestir slógu á létta strengi þetta kvöld og skemmtu sér hið besta fram á rauða nóttina og segja má með sanni að maður hafi verið manns gaman. Brúka þurfti allskyns fatnað héðan og þaðan, auk þess sem aukahlutir voru notaðir til að krydda skemmtiatriðin svo um munaði og féll það vel í kramið. Þorsteinn Haukur umboðsmaður Vífilfells hér vestra mundaði myndavélina af mikilli fimi og tók myndirnar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2007 | 00:05
Í Einarshúsi
Í Einarshúsi er oftast hlýtt.
Við eldinn þar raddir óma
enda er húsið orðið sem nýtt
og eigendum þess til sóma.
Höf: Finnbogi Bernódusson
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2007 | 16:24
Okkar á milli.......
Einstaklega gaman er að geta þess að viðtalið sem hinn knái útvarpsmaður, Björn Baldursson, tók við Vertinn í Víkinni gekk alveg ljómandi vel. Ég talaði viðstöðulaust um allt og ekkert og lét gamminn geysa og móðan mása stefnulaust í óratíma. Ég reyndi allt hvað af tók að vera jákvæð og bjartsýn í garð byggðarlagsins og svo kemur það bara í ljós hvernig hefur til tekist. Þættinum verður útvarpað kl. 09:00 í fyrramálið á rás eitt og nefnist þátturinn Okkar á milli, en hann leysir Laufskálann af hólmi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.11.2007 | 21:36
Gamla góða gufan
Gamla góða gufan kallar á Vertinn í Víkinni og öldur ljósvakans bíða óþreyjufullar eftir komu minni. Enn eitt gáfumannaviðtalið fer senn í loftið og þjóðin stendur á öndinni í eftirvæntingu. Þessi margrómaði spjallþáttur mun án efa verða einn sá besti sem ómað hefur um útvarpsbylgjur á ísakalda fróni um langa hríð. Því var hvíslað að mér að alheimsútsending yrði um gervihnött til að koma frásögn minni til Íslendinga sem búa erlendis en einnig geta þeir útlendingar sem þekkja hvorki haus né sporð á téðum Vert og skilja hvorki upp né niður í mæltu íslensku máli, hlustað með athygli. Séð verður til þess að sjófarendur fjarri Íslandsströndum nái útsendingu á langbylgju og þeir sem búa langt upp í landi fái að hlusta með stuttbylgjusendi Símans. Flugfarþegar ná án efa útsendingu með loftbylgjum og það mun verða sérstök neyðarvakt upp á Bolafjalli ef úthafsbylgjur trufla útsendingu. Þið getið farið að setja ný batterí í útvarpstækin til öryggis ef rafmagnið skildi bresta og betra er að vera búin að finna réttu rásina í tíma.
Ég mæti galvösk í útvarpið í fyrramálið og læt ykkur vita nánar hvenær þessu sögulega spjalli verður varpað til hlustenda.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2007 | 14:38
Örlagadagur
Í dag er ár liðið síðan ég tók þá ákvörðun fyrir fullt og fast að hætta að drekka áfengi. Þetta er því mikill örlagadagur í lífi mínu. Satt best að segja var það gríðarlega erfitt að þurfa að viðurkenna það að ég réð ekki lengur við neysluna mína og að ég hafði tapað baráttunni við Bakkus. Ég hef oft líkt þessari upplifun við það að skella á vegg með ógnarhraða og geta ekki borið hönd yfir höfuð sér með neinum hætti og það var skrambi erfitt, en hver segir að lífið eigi alltaf að vera auðvelt. Eftir þess afdrifaríku ákvörðun og uppgjöf, hafa spor mín í lífinu verið afar léttstíg og mér finnst einhver æðri máttur leiða mig áfram í hverju skrefi og ég er svo þakklát hverri stund sem ég er laus við áfengið og ég nýt mín sem aldrei fyrr.
Íhugun dagsins í "Tuttugu og fjögurra stunda bókinni" hljóðar svo:
Þegar þú lítur til baka yfir liðna ævi, er auðvelt að láta sér detta í hug, að leystar þrautir hafi haft þann tilgang að búa þig undir eitthvað mikilvægt hlutverk í lífinu. Allt líf þitt hefur kannski verið hnitmiðað af Guði til þess að láta þig vinna eitthvað þarft í þessum heimi. Líf hvers manns er eins og forsmíð að mósaíkmynd. Hvaðeina sem fyrir þig kemur er eins og smásteinn í myndinni og sérhver smásteinn fellur inn í fullgerða mynd lífs þíns, sem Guð hefur dregið upp.
Bæn dagsins í þessari sömu bók og gildir fyrir daginn í dag er svohljóðandi:
Ég bið að ég þurfi ekki að sjá allt mynstur lífs míns. Ég bið að ég beri traust til myndasmiðsins.
Hver svo sem þessi myndasmiður er þá gleðst ég yfir hverjum smásteini sem haganlega er fyrirkomið í mósaíkmynd í lífsmynstrinu mínu. Ég mun halda áfram á sömu braut og halda áfram að vinna sigra á hverjum degi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.11.2007 | 18:52
Enn um jólahlaðborð
Er nær dregur að jólum og stressið fer að yfirtaka hug og hönd, keppast allir við að komast á jólahlaðborð fyrir jólin. Ekki get ég látið hjá líða að geta þess í tíma að tvö jólahlaðborð verða haldin í Einarshúsi fyrir jólin og undirbúningur er þegar hafinn vegna þessa. Eðalkokkur kemur til með að hantéra allar jólatrakteringar ofan í veislugesti og bera það á borð með glæsibrag. Benni mun svo leika og syngja unaðstóna meðan á borðhaldi stendur og eitthvað fram á nóttina. Tel ég tímabært að setja í loftið auglýsingu um þessi eðalfínu jólahlaðborð hér og nú. Glöggir lesendur reka eflaust augun í það að uppselt er á fyrra hlaðborðið og ekkert er svosem meira um það að segja. Flestar aðrar helgar eru uppteknar fyrir hópa og ég þarf ekki að láta mér leiðast fyrir jólin.
Jólahlaðborð 1. desember
Eðalfínt hlaðborð dýrindisrétta munu prýða borðstofuborðið í Einarshúsi þetta kvöld. Snorri Bogason kokkur mun elda ofan í gesti Einarshúss og telja má nokkuð öruggt að enginn verður svikinn af því sem hann ber á borð fyrir gesti. Veislustjóri er einn fyndnasti maður Íslands og hrókur alls fagnaðar, Hákon Unnar Seljan, og mun hann reyta af sér brandarana í gríð og erg kvöldið út í gegn. Benni Sig. ætlar svo að koma og syngja fyrir gesti á borðhaldinu og eitthvað fram á nóttina og á hann án efa eftir að koma öllum í rétta jólaskapið. Uppselt er á þetta hlaðborð.
Jólahlaðborð 8. desember
Enn og aftur munu borð svigna undan dásemdarkrásum í Einarshúsi og Snorri Bogason stendur klár með heimsins bestu rétti sem smakkast guðdómlega. Það verður engin svikinn af því sem hann ber á borð. Veislustjóri er enginn annar en hinn bráðsmellni Jónas sýslumaður sem lét undan miklum þrýstingi Vertsins í Vikinni og ætlar hann að stýra veislunni styrkri hendi. Benni Sig. mun aftur koma með gítarinn sinn og fallegu söngröddina sína og syngja fyrir gesti á borðhaldinu og halda uppi stuði ásamt félögum sínum eitthvað fram á nóttina. Ennþá eru laus sæti fyrir gesti og gangandi en nú þegar er farið að panta.
Dægurmál | Breytt 10.11.2007 kl. 01:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm