24.12.2007 | 12:55
Jólakertið
Ég man það fyrir mörgum liðnum árum,
er mamma kom með jólakertið inn,
ég hafði grátið, grátið beiskum tárum,
en gleymt er nú, hvað vakti harminn minn.
Þá sagði mamma, svona er guð þér góður
hann gaf þér jólin, sjáðu kertið þitt.
Hann elskar þig, þú átt hann fyrir bróður,
og ekki máttu gráta, barnið mitt.
Það varð svo bjart, ég brosti gegnum tárin,
er blessað jólaljósið við mér skein.
Og eftir mörgu, mörgu horfnu árin
er minning þessi ennþá ljúf og hrein.
Og jafnan eiga jólin töframáttinn,
er jólanóttin fyrsta í sér bar.
Þótt öldin nýja hafa annan háttinn,
er hjarta barnsins líkt og áður var.
Og jólaljósin ljóma í austur, vestur
og lýsa þeim, er vilja heyra og sjá,
til hans, er öllum reynist bróðir bestur
og börnin huggar bæði stór og smá.
Margrét Jónsdóttir
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.12.2007 | 23:02
Barnapían og barnið
Troðfullt var í Kjallaranum í nótt sem leið og þar kom saman æska Bolungarvíkur. Það var fallegur hópur samankominn sem við megum vera stolt af. Biggi Olgeirs hélt uppi þrumustuði ásamt sínu skylduliði og það var einstaklega gaman. Mikið var að gera og tíminn leið hratt og áður en varði var löngu komin háttatími fyrir ráðsetta Verta. Strákurinn sem eitt sinn var svo lítill og ég gætti eins og sjáaldur auga minna, er ég sinnti barnapíustarfi sem stelpa, mætti alla leið frá Noregi þar sem hann hefur verið búsettur undanfarin ár. Hann var orðin svo ógnarstór og náði alveg upp í rjáfur eins og sjá má á myndinni hér til hliðar og ég virtist ógnarsmá við hlið hans. Bjarna Heiðari hefur farnast vel og ég tel það að stórum hluta mér að þakka og þeim tíma sem ég kom að uppeldi hans og leiddi hann áfram til visku og þroska.
Hrikalega mikið fjör var þangað til einhverjir fór að hnoðast og hristast, nuddast og níðast, kalla og hrópa og brjóta og bramla. Allt virtist þó ætla að sleppa fyrir horn þangað til afar merkisgripur, forláta kompás, úr Hafrúnu ís, sem strandaði við Stigahlíð og var í eigu Einars Guðfinnssonar, fór á hliðina. Vertinn greip um höfuðið og ákallaði skapara sinn og guð sinn því margir munir Einarshúss eru ómetanlegir og óbætanlegir og hafa þeir sem betur fer fengið að vera í friði til þessa. Vonandi verður þó hægt að laga gripinn. Hugmyndir hafa komið upp að annað hvort setja kompásinn í keðju eða gestina sem urðu valdir að óhappinu og mun ég íhuga það um jólin á hvern veginn það verður.
Skemmst er frá því að segja að Vertinn setti í brýrnar þegar atburðarrásin var komin í þennan farveg og breyttist í Grýlu um tíma. Leppalúði veitti henni innblástur ásamt Leiðindaskjóðu og jólakettinum og sópaði hún öllum gestunum út með vendi enda var kominn morgun og tími fyrir alla til að fara heim að sofa.
Dægurmál | Breytt 24.12.2007 kl. 02:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.12.2007 | 01:37
Lokahönd
Vertinn situr við kveðskap fyrir þorrablótið og það tekur vonandi enda innan skamms. Slík vinna tekur frá mér alla orku þennan dyntinn og hugurinn er því galtómur og lítið fer fyrir hugmyndaflugi til skiptanna til að skrifa um á þessa bloggsíðu af einhverju viti. Lítill tími vinnst til að gera hreint og þrífa allt í hólf og gólf og heimilið er ekki sett á hvolf til að minnast fæðingu frelsarans. Jóhannes í Bónus bakar fyrir mig smákökurnar núna eins og í fyrra enda er maðurinn sannkallaður bjargvættur jólanna. Konfektið kemur beint úr smiðju Nóa og Síríus enda besta konfekt sem völ er á svo allt verður þetta eins og blómstrið eina eins og ætíð. Jólin koma og þau fara eins og ætíð og stundin ætíð jafn hátíðleg.
Vertinum varð á að nefna það hvort ekki væri upplagt að fara til kirkju á aðfangadag en það hefur svosem ekki verið siður hjá okkur í gegnum árin heldur frekar undantekning. Það féll ekki í góðan jarðveg og ég er stöðugt minnt á messuna í fyrra þegar ég heimtaði að allir færu með mér í kirkju til að fá yfir mig anda jólanna beint í æð frá sóknarprestinum og Guði föður almáttugum. Það skipti engum togum að yfir mig sveif svo mikil sifja í messunni að ég steinsvaf mest allan tímann og missti því af flestu sem fram fór. Ég hafði skorðað mig upp við kirkjuvegginn og hraut víst í takti við blessunarorð kirkjunnar þjóns og varpaði því vissum skugga á helgihald heimamanna ( eða svo er mér sagt). Yggld augu þeirra sem ég hafði með mér nauðuga viljuga til messu hvíldu þó á mér messuna út í gegn og trufluðu svefninn að hluta og gerðu mig órólega. Mér hefur verið tilkynnt að ég geti sofið ein og óstudd í Hólskirkju þessi jólin ef ég kæri mig um að hlusta á guðorðið þar og megi því hrjóta að vild yfir kirkjugestum og eyðileggja jólagleðina fyrir öllum hinum. Þau hin, ætla að vera heima!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.12.2007 | 02:04
Sumarblíða
Þegar þessi orð eru rituð er niðdimm nótt. Vertinn drollar frameftir við eitt og annað. Það er hreint ótrúlegt til þess að hugsa að núna klukkan tvö um nótt í desember skuli vera þvílík sumarblíða að ég get gengið í kringum húsið mitt á skyrtunni einni saman til að virða fyrir mér gluggaskreytingarnar og vindurinn er heitur og notalegur. Ég man bara ekki eftir öðru eins og stend alveg á gati. Ég heyrði bát fara á sjóinn og sá fyrir mér öldurnar bylgjast á haffletinum í kjölfarið og mér varð hugsað til blíðsumarsnátta. Ég fann angann af sumarblómum og ég sá Pera gamla fyrir mér við grindverkið að gefa hundinum mínum harðfisk. Allt svo raunverulegt en samt úr öllum takti við raunveruleikann. Raunveruleikinn er eitthvað svo óraunverulegur og ég hef á tilfinningunni að ég líði áfram í draumi..afskaplega góðum draumi sem hefur að geyma sól og vor.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2007 | 23:29
Föndrað fyrir jólin
Eitt af því sem bráð nauðsynlegt telst að gera fyrir jólin er að föndra og viðahafa annan myndarskap. Jólakort voru í miklu uppáhaldi listakvenna sem settust niður í erli dagsins í Einarshúsi og föndruðu lifandis býsn fyrir jólin. Glans og glimmer sáldraðist um allt hús eins og englaryk og englarnir flögruðu um með vængjaþyt og bros á vör. Jesúbarnið hjalaði í jötunni sinni á sumum glansmyndanna og vitringarnir þrír komu færandi hendi með gull, reykelsi og myrru og reykelsisangan lagði um Einarshúsið og glöggt mátti finna að hátíð ljóss og friðar var að ganga í garð. Bull, ergelsi og fyrra átti því ekki upp á pallborðið hjá þessum ungu konum á myndinni til hliðar en þær Þórunn, Elsa og Lilja voru niðursokknar í jólaföndur í dag.
Ólína Þorvarðar mun lesa upp úr Vestanvindum í hádeginu á fimmtudag yfir rjúkandi súpu og vonandi verða veðurguðirnir til friðs svo hún komist klakklaust Hlíðina. Gunnar Sigurðsson ætlar að grípa í jólabók í leiðinni og lesa fyrir okkur hin og þið eru hvött til að mæta.
Sr. Agnes og Jónas munu reka endahnútinn á upplestur úr jólabókum í hádeginu á föstudag og ég tel brýnt að mæta til að hlusta á prestinn og sýslumanninn hefja upp raust sína. Ekki veit ég hvort hægt verði að fá syndaaflausn í leiðinni hjá prestinum eða niðurfellingu sekta hjá sýslumanninum, annað eins hefur þó gerst í Einarshúsi gegnum árin og hvet ég sem flesta til að mæta í hádegissúpuna og hlusta á fyrrnefnda embættismenn svo hægt verði að taka á móti jólunum með hreint borð.
Klukkan þrjú á laugardag ætlar dæmalaust dúó sem skipað er engum öðrum en Ella Ketils og Hjöddu að mæta í Einarshús og syngja og spila jólalögin. Af því má engin maður missa en þetta telst góð upphitun fyrir Ella Ketils en hann er á leið til Kanarí í janúar og þar mun hann væntanlega troða upp á hverju kvöldi margar vikur í röð. Ætli Vertinn sjálf lesi ekki bráðskemmtilega jólasögu, af sinni einskæru hógværð og lítillæti, sem henni áskotnaðist nýverið. Eins og allir vita er títtnefndur Vert alls ekki fyrir það að koma fram eða láta bera á sér á einn eða annan hátt en mun þó gera þessa undantekningu í þetta sinn. Hver veit nema fleiri komi til með að láta ljós sitt skína á laugardaginn og þið fáið að vita að því jafnóðum.
Biggi Olgeirs ætlar svo að trylla lýðinn á laugardagskvöldið og allir mæta eins og ætíð þegar Biggi treður upp. Kannski verða tilboð í kolageymslunni, hver veit.
Dúndurfréttir herma að fjör verði í Íþróttahúsinu Torfnesi og fregnir herma að Vertinn í Víkinni verði á svæðinu ásamt sínu skylduliði. Munið að kaupa miðana í tíma því bráðnauðsynlegt er að hlýða á þessa langbestu eftirhermuhljómsveit allra tíma.
Malt og Appelsín er afskaplega góð blanda og mun hún vera í réttum hlutföllum í Kjallaranum á laugardagskvöldið 29. desember. Þar munu læknirinn og bæjarstjórinn, sundþjálfarinn og einhverjir fleiri útvaldir stíga á stokk. Vonandi verður ekki svo kjaftfullt í Kjallaranum að Vertinn þurfi að vísa fólki frá eins og gert var við Jósep og Maríu í gistihúsinu í Betlehem hér forðum. Vonandi verður rúm fyrir alla í gleðihúsinu í Bolungarvík þetta kvöld.
Auðvita verður opið á nýársnótt...auðvita tökum við á móti nýju ári í húsinu sem skiptir okkur öll svo miklu máli....auðvita hittumst við hress og kát og fögnum komandi ári í húsinu sem ber svo mikla sögu harma og hamingju, sorgar og gleði og vona og væntinga....auðvita hittumst við í Einarshúsi...hvar annarsstaðar?
Dægurmál | Breytt 19.12.2007 kl. 01:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.12.2007 | 00:37
Taumlaust tjútt
Langt er um liðið frá síðustu færslu og mér finnst ég vera að svíkjast um en nóg er að sýsla þessa stundina. Segja má með sanni að tíminn sé fugl sem flýgur hratt og ég virðist stefna hraðbyri inn í framtíðina án þess að fá rönd við reist. Jólin verða komin áður en ég veit af og árið án efa gengið í aldanna skaut áður en ég get snúið mér við og nýtt ár með vonum og væntingum runnið upp og ég á eftir að gera ALLT
Grenjandi rigningin lemur gluggarúðurnar af áfergju þegar þessi orð eru rituð og vindurinn æðir áfram í æsilegum leik við organdi veðurham. Veðurguðirnir virðast í ham þessa dagana og geta ekki með neinu móti gert upp við sig hvernig veður á að vera í það og það skiptið. Þó lét Vertinn ekki tíðarfarið stoppa sig að fara inn á Ísafjörð á jólaskemmtun nema í þriðja bekk MÍ en það var fjáröflun vegna utanlandsferðar krakkana sem er fyrirhuguð næsta sumar. Það var reglulega skemmtilegt og þau sungu eins og englar, spiluðu eins og ljós og allt var eins og blómstrið eina. Glímukappar sýnu nýjustu glímutökin og gerðu það með miklum ágætum. Um tíma hélt ég að ég væri orðin þátttakandi í bardaga gamalla tíma og taldi um stund að verið væri að berjast um athygli Vertsins í Víkinni en áttaði mig þó fljótlega á því að svo var ekki, heldur var hugurinn farinn að reika full langt aftur í aldir og var hlaupinn um ævintýraheima fornra slóða. Trúlega ruglaði æðisgengin rigning og rjúkandi rokið mig því óhugur blundaði í mér vegna heimferðarinnar um Óshlíðina. Það kom reyndar á daginn að tvær aurskriður höfðu fallið á Eyrarhlíð og grjót og leðja lagði yfir veginn og út í sjó. Þráin eftir því að komast heim og þrjóskan var þó hræðslunni yfirsterkari og ókum við mæðgurnar yfir urð og grjót í grenjandi slagviðri og héldum í áttina heim. Keyrt var af festu veginn sem heldur litlu víkinni milli fjallanna í helgreypum. Óshólaviti hoppaði hæð sína af kæti þegar við gægðumst framhjá Sporhamri en þá vorum við úr allri hættu. Óróleikinn blundar þó enn innra með mér því húsbóndinn er veðurtepptur í höfuðstaðnum og sonurinn úti í veðurhamnum að aðstoða bæjarbúa í vonda veðrinu við eitt og annað. Hann verður þó vonandi ekki sendur á hlíðina í nótt og vonandi get ég sofið rótt.
Vertinn fór ásamt vinnuhjúum sínum á jólahlaðborð á hótelið á Ísafirði á laugardagskvöld og það var einstaklega gott að geta sest niður og látið aðra stjana við sig á alla lund. Vertinn klæddist einum glæsikjólnum enn sem keyptur var í Fríðu frænku og er aldagamall og keyptur úr dánarbúi glæsikonu. Eftir borðhaldið voru stuttu pilsin þó dregin fram og haldið var í Edinborgarhúsið og taumlaust var tjúttað fram á rauða nótt. Hljómsveit frá Flateyri spilaði fyrir dansi og þeir héldu virkilega góðum takti og það voru svo sannarlega þreyttir fætur og lúnir sem skriðu heim um miðja nóttina eftir stífa dagskrá kvöldsins en mikið lifandis skelfing getur verið gaman að dansa.
Jólabingóið hjá Sjálfsbjörg á sunnudaginn heppnaðist vel í alla staði og húsið var fullt af fólki. Panellinn á veggjunum gliðnaði til að allir gætu komist fyrir og uppistöður sveigðust til hliðanna svo allir hefðu nægt pláss. Setið var í hverju skúmaskoti og spenningurinn skein af hverju andliti.
Þær fréttir berast innan að með ofsarokinu að húsbóndinn komi til með að standa vaktina á Ísafirði í nótt og sonurinn hér í Bolungarvík. Íbúar á norðanverðum Vestfjörðum eru því í góðum höndum og get ég því áhyggjulaus farið að sofa.
Góða nótt
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2007 | 12:11
Jólabingó Sjálfsbjargar
Jólabingó Sjálfsbjargar verður haldið í Einarshúsi á morgun og hefst það stundvíslega klukkan tvö. Þá ætla Björn og Ingi að standa vaktina ásamt Nikulási, Gunnari og Oddi og tel ég tilvalið að mæta og spila með því til mikils er að vinna. Hægt verður að kaupa kaffi og með því í hléi og því upplagt að mæta með fjölskylduna og eiga huggulega stund, skilja jólastressið eftir heima og slaka á eitt augnablik. Aðgangur er 500 krónur og rennur hann óskiptur til Sjálfsbjargar og þar veitir án efa ekki af aurunum til góðra verka.
Unnið er að konfektgerð af miklum krafti þessa dagana í húsi gleðinnar. Betukaffi verður í boði með heimagerðu konfekti og ég teldi upplagt að kíkja við og smakka. Elsa og Þórunn vinna að konfektgerðinni upp á kraft og standa sig með prýði enda harðduglegar ungar konur.
Eins og fyrr segir verður slagbrandinum skellt fyrir seinnipartinn í dag vegna jólagleði starfsmanna minna. Smá partý verður haldið heima fyrir herlegheitin og það er tilhlökkunarefni að fá gesti heim.
Jóladagskrá er í smíðum og þar verður í boði eitthvað hopp í hí sem ég segi ykkur frá síðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.12.2007 | 18:47
36 metrar á sek
Skiltið á Óshlíðinni sýndi 36 metra á sekúndu í kviðunum rétt í þessu. Vertinn varð að skjótast mót veðurhamnum til að útrétta í höfuðstaðnum og bitið var á jaxlinn að venju þegar haldið er á veginn í svona veðri. Það undirtók í öllu þegar Óshlíðin hló sínum háværa tryllingshlátri er hún espaði ólgandi dröfn til lags við sig. Leikar æstust er vindurinn náði hámarki sínu og sjávarlöðrið fauk með tilþrifum upp hlíðarnar og Óshlíð skemmti sér. Verndarhendi var þó haldið yfir Vertinum í Víkinni að vanda og leiðin gekk áfallalaust.
Helga Vala las óaðfinnanlega úr jólabók í hádeginu og tel ég nokkuð víst að hún hafi ekki verið að lesa upp í fyrsta skipti. Hægt er að geta þess að konan er leikari að mennt og kann því eitt og annað fyrir sér á þessum sviðum. Áfram verður haldið með upplestur úr jólabókum fram að jólum og auglýst verður jafnóðum hverjir koma til með að lesa í það og það skiptið. Ólína mætir galvösk með vestanvindinum á fimmtudaginn kemur og les þá úr ljóðabókinni sinni yfir ilmandi súpu. Þetta virðist falla vel í mannskapinn að bjóða upp á slíkan menningarviðburð í hádeginu og afar gleðilegt að sjá hve margir hafa gefið sér tíma til að koma og njóta.
Tel ég tilhlýðilegt að geta þess að lokað verður í Einarshúsi á laugardagskvöldið eða á morgun. Ástæðan er sú að Vertinn bíður öllu sínu starfsfólki á jólahlaðborð á hótelið á Ísafirði enda á þetta frábæra starfsfólk mitt svo sannarlega skilið að fara út að borða. Ung stúlka mun halda upp á afmælið sitt í Einarshúsi það sama kvöld svo þar verður líf og fjör engu að síður og margt um manninn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.12.2007 | 23:49
Ólína Þorvarðar og Helga Vala lesa
Enn á ný var boðið upp á upplestur úr bókum sem út koma fyrir jólin í Einarshúsi. Baldur Smári og Elín mættu galvösk í kjúklingasúpu í hádeginu í dag og einstaklega gaman var að hlýða á lesturinn. Stundin var eitthvað svo notaleg. Baldur las úr bók Einars Más sem ber heitið Rimlar hugans og fjallar ma. um áfengisneyslu rithöfundarins og ferðina inn á Vog. Hann lýsir ástandi álkóhólista svo einstaklega vel og flestir þeir sem hafa átt við áfengis vandamál að strýða finna sig í hverju orði og hverri setningu. Oft hef ég velt fyrir mér þeim einkennum alkóhólisma að kenna alltaf einhverjum öðrum um eigin ófarir og sjá ekki bjálkann í eigin auga fyrir flísinni í auga náungans. Sumir hugsa reyndar þannig þótt þeir bragði sjaldan eða aldrei áfengi og sökkva sér dýpra og dýpra ofan í eigin vorkunnsemi og ólund yfir því hvað allir aðrir en þeir sjálfir eru ómögulegir. Þeir hinir sömu ættu kannski að líta í eigin barm af og til, það myndi án efa létta þeim lífið.
Ólína Þorvarðar og Helga Vala lesa í hádeginu á morgun, föstudag. Þá verður gúllassúpa á boðstólnum og vonandi getum við átt saman notalega stund. Vonandi blæs Kári kuldaboli ekki með sama offorsi og hann gerði í nótt. Vertinn í Víkinni var ræst út kl. 6 í morgun vegna þess að gluggi í Einarshúsi hafði fokið upp og fleira lauslegt var að fjúka. Vökul augu Bolvíkinga vaka yfir þessu merka húsi og passa að ekkert ill hendi það eða skaði.
Ég fæ þó vonandi að sofa á mínu græna eyra í nótt þvi húsbóndinn rennur brátt í hlað frá Reykjavík með soninn og tengdadótturina meðferðis. Gott verður að fá hópinn minn í öruggt skjól heim í heiðardalinn þegar vindur blæs og sjórinn er úfinn.
Mikið hlakka ég til þess þegar ég hef alla mína hjá mér ..........þá eru jólin.
Dægurmál | Breytt 14.12.2007 kl. 00:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
12.12.2007 | 23:44
Myndasería

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm