Hljómfagrar raddir

Í hljóðverinuHljómfagrar raddir frá þokkuðum þorrablótsnefndarkonum ómuðu um hljóðver Hrólfs Vagnssonar í kvöld. Þar þurfti  að slípa saman dásemdarraddir drottninganna sem koma til með að skemmta blótsgestum næstkomandi helgi og ekki var annað að heyra en að söngurinn ómaði fullkomlega og laglínan lagaði sig með ágætum að flutningnum. Ljóst má telja að kirkjukór Gaulverjabæjarhrepps bliknar í samanburðinum við þessar stútungkerlingar sem þöndu raddirnar sínar af innlifun. Þetta var hrikalega skemmtilegt að fá að upplifa að syngja í stúdíói sem þessu. Engin okkar hafði upplifað slíkt og allar vorum við komnar með stjörnur í augun og létum okkur flestar dreyma um frægð og frama á þessu svið. Ég á þó von á því að Hrólfur hafi ýtt á einhvern kraftaverkatakka á stóra lyklaborðinu sínu til að fá okkur til að fúnkera í takti við lagið og þess vegna hafið útkoman verið svo góð. Ákvörðun um útgáfur á þessum tónlistarflutningi er þó í biðstöðu því vafasamt telst trúlega að þeysast út á hljómplötumarkaðinn svona rétt eftir jólin. Metsöluplata  mun þó án efa líta dagsins ljós áður en yfir líkur og mun afrakstur hennar ekki renna í stólasjóð Félagsheimilisins heldur til að mæta auknum kostnaði við þorrablótið í Bolungarvík í ár.  

Spilavistin á sínum stað

Spilavistin verður á sínum stað í kvöld klukkan 21:00. Vertinn verður fjarri góðu gamni og getur því ekki fylgst með æsilegri viðureign spilafíkla um flestu slagina. Í síðustu spilavist gekk annað glerlistaverkið út og var það spaðalampinn að þessu sinni sem unnin er af handverkskonunni Dísu ,sem hefur umsjón með Listasmiðjunni á staðnum, og fór hann til Helgu Friðriksdóttur á Ísafirði. Einstaklega gaman var að sjá hversu margir Ísfirðingar mættu til að spila en þeir voru í miklum meirihluta og fara að yfirtaka spilavistina innan tíðar. Nú er spilað aðra hverja helgi inn á Ísafirði svo þeir sem hafa gaman af að grípa í spil geta því spila um hverja helgi og gleðjast því stórum.

Á leið á blót

ÞorrablótsgellurÞorrablótið í Bolungarvík verður haldið í sextugasta og þriðja sinn laugardaginn 26. janúar næstkomandi en þorrablótið hefur verið haldið nær óslitið frá árinu 1944. Efnt er til blóts í Bolungarvík á fyrsta laugardegi í þorra ár hvert og bjóða þá bolvískar konur bónda sínum til slíkrar skemmtunar þetta eina kvöld ársins. Þorrablótið er ætlað hjónum, sambýlisfólki, ekkjum og ekklum í Bolungarvík og sjá konur um allan undirbúning að skemmtuninni. Ávalt er skipuð nefnd til eins árs í senn og geta liðið u.þ.b. sex til tíu ár á milli nefndarsetu þeirra. Öllu er tjaldað til að gera kvöldið sem veglegast hverju sinni og koma leikhæfileikar nefndarkvenna oft á óvart er þær stíga á stokk í hinum og þessum hlutverkum. Blótsgestir mæta í sínu fínasta pússi, konur í upphlut eða peysufötum og karlmenn í hátíðarbúningi eða dökkum jakkafötum með hálstau. Meðferðis er eins og ætíð hefðbundinn þorramatur, sem borinn er fram í trogum líkt og forðum og oftar en ekki telst nauðsynlegt að skola herlegheitunum niður með guðaveigum sem renna ljúft niður kverkarnar. Auk þess er brýnt að hafa gleðina og góða skapið í farteskinu svo kvöldið verði fullkomnað.

Brotið verður blað í sögu þorrablótsins í Bolungarvík þetta árið því nú mun það fara fram í íþróttahúsinu Árbæ vegna endurbóta á Félagsheimili Bolungarvíkur en blótið hefur verið haldið þar frá árinu1953. Að mörgu er að hyggja í slíkum flutningum en allt kapp er lagt á að halda í þær hefðir sem ríkt hafa á þorrablótinu í Bolungarvík frá upphafi.

Eins og glöggt má sjá af framansögðu lifir Vertinn í Víkinni og hrærist í þorablótsundirbúningi þennan dintinn. Stífar æfingar eru dag hvern og mikil skipulagning fylgir því að koma blótinu fyrir í íþróttahúsinu. Allt hefst þetta þó með glans og þetta er einstaklega skemmtilegt verkefni.


SÍBS

Nýtt happdrættisár hefst á morgun í happdrætti Sambands íslenskra berkla og brjóstholssjúklinga eða SÍBS. Vertinn í Víkinni hefur verið umboðsmaður happdrættisins til margra ára og notar því " dauða" tímann til að sinna happdrættinu þegar þurfa þykir. Það er gott að geta hlaupið í svona smáverk þegar ekkert annað er að gera Crying. Saga berklaveikinnar er samofin sögu Péturshúss því Pétur Oddsson missti fjölskyldu sína að mestu úr berklum svo það á því vel við að ég sinni þessu verki. Hver og einn sem áhuga hefur á því að styðja við þetta góða málefni eru hvattir til að fá sér miða og spila með.


Nýtt lógó

LógóNýtt lógó hefur litið dagsins ljós fyrir Einarshúsið en það hefur verið í vinnslu hjá þeim Nínu og Smára um nokkurn tíma. Þau eru sannkallaðir snillingar og listamenn og ekki síðri hönnuðir sem hafa fullkomnað hugmyndir okkar að merki hússins. Stýrið úr Pourquoi Pas? spilar stórt hlutverk í myndinni enda setur það hvað mestan svip á húsið en Einarshúsið sem áður hét Péturshús er svo einstaklega falleg bygging að útlit þess eitt og sér gerir þetta lógó framúrskarandi flott og fínt. Stafirnir liðast svo upp úr strompinum og af því má glöggt sjá að kveikt er upp í kamínunni og ylurinn leitar til himins og færir í leiðinni timbur angan um bæinn. Á bak við þetta merki býr því bæði hlýja og ylur, auk fegurðar og merkrar sögu.

Endurbætur

Kjallarinn verður víst að vera lokaður um helgina vegna endurbóta sem standa yfir í húsinu þessa dagana. Mikið niðurrif er yfir undir og allt um kring í eldhúsinu og allt er í skralli og hvergi er þverfótað fyrir spýtum og öðru sem tilfellur og varla bólar á rennandi vatni. Þetta er vissulega bagalegt fyrir þá sem ætla að koma og fá sér kollu en ekkert við þessu að gera. Næsta helgi þykir tilvalin til skemmtanahalds og hvet ég ykkur til að mæta þá og gera ykkur glaðan dag.


Systkin

G_AU_RFékk senda þessa fallegu mynd af prúðbúnum systkinum á hátíðarstund. Eitthvað hefur tognað úr Vertinum síðan þessi mynd var tekin en glögg má þó sjá að svipurinn leynir sér ekki og hárið er jafn hrokkið þá og nú. Þarna lítur lítil snót í myndavélina með spyrjandi augnaráði og lesa má út úr svipnum hversu forvitin hún er fyrir komandi framtíð. Stelpan hefur staðið sig þokkalega vel og getur enn litið glaðbeitt í myndavélina og bíður enn framtíðar með forvitni. Þarna vissi hún ekki að tíminn er fugl sem flýgur hratt og að lífið líður áfram með ógnarhraða. Þarna lifði hún bara áhyggjulaus fyrir líðandi stund.


Tónviss

Öll kvöld eru undirlögð í ofstækisfullum hlátrasköllum og fíflagangi því nefndarkonur í þorrablótsnefndinni undirbúa blótið af fullum þunga. Skemmtiatriði sem eru leikin af fingrum fram, en líka framborin eftir fyrirframgerðu handriti, eru framúrskarandi og ef þorrablótsgestir hlægja jafn mikið á þorrablótinu og við gerum þessar stundirnar þá verður sko aldeilis gaman. Harmonikku Hrólfur mun annast allan undirleik um kvöldið og mætti hann með nikkuna sína til að hlusta á okkur í gærkvöldi. Glögglega mátti sjá hrifninguna í augum hans er við fórum að syngja gamanvísur um mann og annan en þó aðallega okkur sjálfar.  Nokkuð örugglega mátti lesa út úr andliti hans að honum þótti þetta samansafn íðilfagra radda óma eins og englakór í eyrum hans og tel ég trúlegt að þessi upplifun hafi snert hann djúpt. Allar héldum við lagi og með stefnufestu fórum við upp tónstigann og síðan niður hann aftur eftir því sem það átti við.

 


Tíminn er fugl...

Segjast verður hreint alveg eins og er að fleiri klukkutímar væru vel þegnir í sólarhringinn um þessar mundir. Undirbúningur fyrir þorrablótið gengur vel og allt er í lukkunar velstandi þar. Þorrablótsnefndin hittist nær daglega og útbýr glens og grín um náungann og Vertinn hefur yndi af þessari vinnu. Þorrablótskonur eru einstaklega skemmtilegar og frjóar í hugsun og æfingar líða ljúft með góðri blöndu af hlátrasköllum. Reyndar verður að segja alveg eins og er að það kallar á vangaveltur að færa heilt þorrablót sem haldið hefur verið í Félagsheimili staðarins frá örófi alda um set og koma því fyrir inn í íþróttahúsi en það hefst allt saman á endanum og á eftir að ganga vel.

Anna HelgaAlheimsfegurðardrottningin heimsótti Einarshús í hádeginu í gær ásamt kvikmyndatökuliði frá Saga film. Tilefnið var viðtal sem taka átti við einn keppandann sem tók þátt í söngkeppni sem haldin var í Einarshúsi til að komast í  Bandið hans Bubba en kóngurinn hóf leit sína að látúnsbarka í hljómsveit sína Bolungarvík í október sl. Viðtalið gekk mjög vel og ekkert út á það að setja. Mér þykir gaman að fá að taka þátt í svona ævintýrum annað slagið og býð alla þá sem vilja gera þætti í húsinu velkomna.

Samfylkingin hélt opinn stjórnmálafundi í gærkvöldi en þar var gamli leikfimiskennarinn minn í broddi fylkingar. Það er ugglaust Kristjáni Möller að þakka hversu kattliðug ég er og snögg og snör í hreyfingum því hann kenndi leikfimi og sund í denn og fórst það afar vel úr hendi. Kjaftfullt var í húsinu en allir komust þó fyrir eins og ætíð en hátt í 70 manns komu héðan og þaðan til að hlýða á ráðherra samgöngumála og þingmenn. Guðbjartur Hannesson þingmaður var einn frummælanda en hann var að heimsækja húsið í fyrsta sinn. Hann hefur komið að stuðningi við uppbygginguna eins og svo margir aðrir og því einstaklega gleðilegt að sýna honum endurbæturnar.

Annar ráðherra úr ríkisstjórninni er væntanlegur í dag til skrafs og ráðagerða. Ég ætti auðvita að leggja til að Alþingi Íslendinga verði flutt í Einarshúsið og gera þingmönnum skylt að eiga lögheimilið sitt í Bolungarvík, því fjölmargir ráðherrar hafa sótt húsið heim. Geir Haarde hafði á orði er ég hitti hann nýverið að eitt dýrasta kaffi sem hann hefi fengið, hafi hann fengið í Einarshúsi, og vísaði hann þá til ferðar þingflokks sjálfstæðismanna til Bolungarvíkur en þá þáðu þeir morgunverð í Kjallaranum. Eftir þá ferð var ákveðið að leggja jarðgöng um Óshlíð og hófst undirbúningsvinna í framhaldinu. Reikna má því með því að kaffibollinn hafi kostað nokkra milljarða enda fyrirtakskaffi í boði og ekkert meira um það að segja. Jarðgöng undir Óshlíð sem kallast Bolungarvíkurgöng verða tilbúin í júlí 2010 og þá verða svo sannarlega jólin hér í Bolungarvík.

 

 

Í framboð

Einhver hélt að Vertinn ætlaði að draga sig út úr bæjarpólitíkinni til að hafa svigrúm til að bjóða sig fram í embætti forseta Íslands. Ekki var það ætlunin en hugmyndin virðist ekkert galin þegar á heildina er litið. Nokkuð öruggt má telja að títtnefndur Vert myndi sóma sér betur í þessu embætti en Ástþór nokkur Magnússon sem boðað hefur þátttöku sína í forsetakosningunum. Ekki er þó hægt að segja að hart hafi verið lagt að Vertinum í Víkinni að taka slaginn en eitt er þó vitað fyrir víst að ef 1500 athugasemdir koma við þessa færslu mína mér til stuðnings til framboðs forseta yfir lýðveldinu Íslandi, þá mun málið verða ígrundað af kostgæfni.

Aftur á móti hefur verið hart lagt að mér að sitja sem fastast á bæjarfulltrúastóli og ég mun að sjálfsögðu taka tillit til þeirra óska ef Ólafur Ragnar nær kjöri á ný.

Ef breyta viltu vinur minn 

vísast þá með hraði, 

lát Ólaf út og Vertann inn

beint á Bessastaði

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband