Lán í óláni

Alveg er það makalaust hvað lífið getur komið manni endalaust á óvart. Viðtalið hjá Guðmundi lækni fór alveg á skjön við fyrirætlanir Vertsins í Víkinni og ákvarðanir. Sjúkdómurinn er greinilega farinn að færa sig upp á skaftið og sækir í sig veðrið eins óvelkominn og hann er nú og illa séður. Læknirinn telur enga ástæðu til að púkka frekar upp á hann og hyggst senda títtnefna í mergfrumuskipti til Svíþjóðar í byrjun næsta árs til að drepa þennan vágest í eitt skiptið fyrir öll.

Þetta var svona svoldið stór biti alltíeinu en Vertinn hafði það nú bak við eyrað að eiga það eftir síðar á lífsleiðinni en ekki akkúrat núna. Það er auðvitað eina vitið að fara meðan heilsan er jafngóð og raun ber vitni, því lítið hrjáir mig um þessar mundir nema þá helst leti og aumingjaskapur svona almennt. Ég er ung og spræk og hraust og ætti að komast klakklaust í gegnum slíka meðferð. Það þarf auðvitað að finna réttan merggjafa og gæti hann leynst í systkinum mínum eða bara í mergfrumubanka út í hinum stóra heimi. 

Þetta á auðvitað ekkert að vera neitt mál og ég tækla þetta eins og að drekka vatn,þetta er bara bölvað vesen að vera að standa í þessu núna þegar ég ætlaði að hafa það svo gott hérna fyrir sunnan í vetur en trúlega var það lán í óláni að ég skyldi einmitt vera hér að svæðinu fyrst þetta þurfti endilega að skjóta upp kollinum á ný.

Ég má auðvitað vera þakklát fyrir það að fá tækifæri til að komast í svona meðferð og verða jafnvel alheilbrigð í þokkabót. Vertinn er með erindreka að heiman þarna úti í slíkri meðferð akkúrat núna sem gengur svona líka rosalega vel. Anton heilbrigðisfulltrúi fór líka í háskammtameðferðina rétt á undan mér svo ég virðist þurfa að lepja allt eftir honum og gera alveg eins og hann. Ég tel það næsta víst að ég myndi hrökkva uppaf um leið og hann ef hann tæki upp á því...í hárri elli. 

Við ættum eiginlega að fá allar þessar meðferðir á tilboði, tvær fyrir eina, það myndi spara þjóðarbúinu stóra peninga því mergfrumuskipti í Svíþjóð kosta aðeins 30 milljónir króna takk fyrir pent á mann. Það eru miklir peningar en samt svo angarlitlir þegar heilt mannslíf er að veði.

Við amk. missum ekkert þvag yfir þessu, tökum þessu bara með stóískri ró og gefum bara skít í rest.

 


Erindreki

Vertinn brá sér upp á Skaga í dag með húsbóndanum sem orðinn er sérlegur erindreki Landsbjargar á Íslandi í sölu á plástrum og öðrum búnaði í sjúkrakassa. Vertinn er því aðstoðarerinddreki í viðlíka söluferðum þegar tíðin er þannig. Ég komst að þeirri fráleitu staðreynd í verslun einni á Skaganum að fréttablaðið ( sem ég hef hér með litlum staf í mótmælaskyni) er SELT á Akranesi líkt og heima í Bolungarvík. Aldrei dytti mér í huga að kaupa viðlíkan snepil, sem íbúar hér á höfuðborgarsvæðinu fá frítt, fyrir svo mikið sem eina krónu. Ég bara á ekki eitt einasta orð yfir þessu óréttlæti.

Ég reikna fastlega með að þessu sé mótmælt núna á Austurvelli en þar eru 4500 manns samankomin án efa til að mótmæla þessu óréttlæti með sölu fréttablaðsins á landsbyggðinni. Títtnefnd nennti ekki oneftir í mótmælin enda er ég að lesa Fréttablaðið sem borið er frítt í öll hús í Hafnarfirði og nú er ég að renna yfir blaðið sem kom í morgun.

Já það getur verið gott að búa í Hafnarfirði. 


Breiðstræti

Nú er Vertinn farinn að geta gengið um götur nýja  heimabæjarins án þess að týna sjálfri sér. Hér eru afskaplega mörg og falleg hús sem gerð hafa verið upp líkt og Einarshús og eru verulegt augnayndi. Hér í Firðinum mjókka menn göturnar hægri vinstri til að fá umferðina niður og þá er ekki leiðinlegt að geta staldrað við á þessum tilbúnum vegþrengingum og dáðst að húsunum í bænum, sum þeirra standa meira að segja út í götuna og er gatnagerðinni lagað að þeirra staðsetningu.

Í Víkinni aftur á móti ríkir annað viðhorf. Þar þarf að rífa gömlu húsin niður til að búa til breiðstræti líkt og á Manhattan en nú stendur eitt gamalt hús þar við aðalgötuna sem er þyrnir í augum margra. Gekk svo langt að aðili út í bæ sá sig knúinn sl. sumar til að fá menn sér til aðstoðar við að rífa það að hluta í skjóli nætur, og nú stendur það eitt og yfirgefið og bíður þess að fjúka í næsta norðaáhlaupi.

Ekki veit ég hvaða bílaumferð þetta breiðstræti á þjóna en væntanlega gera menn sér vonir um að umferðin aukist til muna með árunum svo akreinarnar geti kvíslast í allar áttir. Geta þá þessir fjórir bílar sem keyra götuna að jafnaði verið á sitthverri akreininni. 

Ég held að þeir sem vilja breiðstrætið hefðu gott af því að búa í Hafnarfirði um hríð.


Fram í rauðan

Vertinn er ekki veik og við hesta heilsu ef þannig má að orði komast og þó að einhver óværa sé að bjóða sig velkomna aftur í kroppinn kemur það ekki niður á heilsunni í augnablikinu. Hafið því ekkert að óttast, ég ætla mér að tóra eitthvað áfram amk. fram í rauðan dauðann ef ekki lengur Tounge. Ég finn ekkert fyrir neinum extra óþægindum nema þessum vanalega vesaldóm sem er viðloðandi í beinunum, en þau eru öll holótt og veikburða og hafa verið það frá því ég veiktist og verða það áfram. Beinþéttnilyfið sem mér er gefið mánaðarlega varna því að beinin laskist meira eða amk. koma allverulega í veg fyrir slíkt. Títtnefnd er fyrir löngu komin í öryrkjahópinn, ekki vegna þess að mér gangi svo vel að yrkja allskyns vísur og þessháttar því ég virðist vera búin að glata þeim hæfileika í bili, heldur vegna þess að getan er lítil og þess vegna vill trúlega enginn hafa slíkan vinnukraft hjá sér í vinnu.

Við sjáum svo bara til hvaða fréttir læknirinn hefur upp á að bjóða í næsta mánuði og höfum sko ekki áyggjur af neinu þangað til. 

 


Ef guð lofar

Viðtalið hjá lækninum fór nú ekki eins og til var ætlast. Sjúkdómurinn virðist vera  farinn að láta á sér kræla á ný og því er Vertinn í Víkinni aldeilis ekki sloppin fyrir horn eins og vonast var eftir. Það var svosem vitað mál þar sem þetta er ólæknandi sjúkdómur að þetta gæti skotið upp kollinum á ný en venjan er að þetta sé til friðs í fjögur ár eftir stofnfrumumeðferð en hjá mér líða einungis tvö og hálft ár sem er síðra. Títtnefnd hefur því verið snuðuð um heil tvö ár og fær skapari himins og jarðar ekkert sérstakt prik fyrir það. 

Það þýðir víst lítið að væla yfir þessum tíðindum og taka því bara eins og hverju hundsbiti í hæl. Enn frekar verður fyllst með Vertinum og næsta blóðprufa er eftir mánuð og þá verður tekin ákvörðun með framhaldið. Sjúkdómurinn er bara á algjöru byrjunarstigi en samt hefur hann vaxið milli mánaða og ef þessi vöxtur heldur áfram fer ég á lyf sem eru ný og  hafa reynst mjög vel en þau geta haldið niðri sjúkdómnum í mörg ár. 

Þær gleðifréttir voru líka að berast bara núna á dögunum að Bretar eru að fara í byrjun næsta árs að prufa ný lyf við þessum illkynja sjúkdómi sem eiga að drepa þennan sjúkdóm í eitt skipti fyrir öll. Miklar vonir eru bundnar við að þá verði hægt að lækna mig og aðra þá sem þjást af þessu. Verið er að auglýsa eftir fólki til að taka þátt og hver veit nema ég nefni það við lækninn minn í næstu heimsókn að fá að taka þátt í því ferli.  

Nú ef allt annað þrýtur á ég einn stofnfrumuskammt í frysti sem gangast mér  ef í harðbakkann slær. 

Títtnefnd hugsar sem minnst um þetta bölvaða vesen enda er nóg að gera við að safna saman sögum af afa gamla og setja þær niður á blað. Það verður efni í dágóða sögu og jafnvel heila bók...

ef guð lofar. 

 


Snjór í Hafnarfirði

Það er nú sérdeilis ekki leiðinlegt að labba strandlengjuna í Hafnarfirði og þann göngutúr tók Vertinn í gær í blíðskaparveðri með Húsbóndanum. Í miðjum göngutúrnum rákumst við á Bolvíkinga sem er svosem ekki í frásögu færandi því þeir eru æði margir búsettir hér. Við vorum boðin í kaffi í hreiðrinu þeirra við Norðurbakkann og í leiðinni vísiteruðum við önnur bolvísk hjón sem búa í saman stigagangi. Þar voru svo sannarlega slegnar tvær flugur í einu höggi. Ása og Gummi búa svosem við hliðina á okkur í Víkinni en þar er vegalengdin á milli okkar of stutt til að það taki þvi að fara í heimsókn milli hurða, nú eru þau svona meira í leiðinni. Við komum því ekki úr göngutúrnum fyrr en eftir dúk og disk. 

Allt var hvítt í morgun þegar téður vert vaknaði. Það hafði sjóað í nótt og trén úti í garðinum voru öll hvít og falleg og minntu helst á jólatré. Það blundar þó í mér sú von að sjóinn taki fljótlega upp, því ég bókstaflega nenni honum ekki.

Húsbóndinn fór í vinnuna í dag og Lilja fékk ein átta atvinnutilboð í dag líka svo það eru næg atvinnutækifærin fyrir þá sem nenna að vinna.

Vertinn fór í lyfjagjöf í dag og í viðtal hjá Guðmundi lækni.

Ég segi ykkur frá því á morgun. 

 


Vort daglegt brauð

Með gráðu til að gifta og jarða

og guðsorðið bera milli fjarða.

Með vort daglegt brauð

og andlegan auð,

vísar hún veginn líkt og varða.

Þessa vísu klambraði Vertinn saman til að færa Biskupnum á afmælinu hennar sem var í dag. Þangað mætti títtnefnd ásamt Gunnu Ásgeirs og fleira mektarfólki. Það þykir auðvitað tilhlýðilegt að kynna sig meðal prestastéttarinnar svona fyrst maður er fluttur á höfuðborgarsvæðið.

Heilagleikinn fylgdi Vertinum svo heim því fyrsta matarboðið á nýja heimilinu var haldið í kvöld og þar mætti Auður systir og hennar skyldulið í lambalæri. Það þótti undrun sæta að lærið skyldi duga fyrir allt þetta fólk en skýringin er auðvitað sú að margnefnd viðhafði handayfirlagningu yfir kjötið og meðlætið líkt og Jesús gerði við fiskana hérna um árið, svo það dugði vel. Ekki breytti Vertinn vatni í vín í þetta sinnið enda hafnfirska vatnið bara nokkuð gott til síns brúks. 

Morgundagurinn er óráðinn og ekkert  er vitað hvað hægt er að hafa fyrir stafni. Ég er farinn að rata þokkalega um nágrennið svo ég fer óhikað í göngutúr, svo sjáum við til með rest.


Svo bregðast krosstré..

Það má með sanni segja að svo bregðist krosstré sem önnur því nú hefur Vertinn í Víkinni rifið sig upp með rótum frá Bolungarvík og er nú flutt til Hafnarfjarðar í vetur. Húsbóndinn kominn með vinnu hér syðra og Einarshúsið var skilið eftir í höndum nýrra rekstraraðila sem eiga án efa eftir að standa sig mjög vel. Það er hverjum manni svosem hollt að breyta til annars slagið og upplifa eitthvað nýtt og trúlega gerir það bæjarfélaginu bara gott að hvíla sig á títtnefndri um skeið enda hollt hverju bæjarfélagi að það sé örlítið rót á íbúunum og nýtt blóð komi í bæinn í stað þess gamla annað veifið. Til stendur að taka við rekstrinum í Einarshúsi aftur 1. maí næstkomandi og ekkert er í spilunum núna sem segir að það verði ekki. 

Vertinn fór í langan göngutúr í fyrradag til að fá tilfinningu fyrir nýja bæjarfélaginu og rammvilltist svo að spyrja þurfti tvisvar til vegar til að rata aftur heim. Þetta er mjög framandi staður og gætu allteins verið útlönd ef því er að skipta því hér hef ég aldrei þekkt hól né þúfu. Eftir dúk og disk mætti ég svo "heim" þá búin að koma við hjá mágkonu minni og aðstoðarskólameistaranum í Flensborg til að sníkja kaffi, svo allt endaði þetta vel.

Skemmst er frá því að segja að fyrsta vinnuferð húsbóndans er vestur á firði í næstu viku og vænta má þess að Vertinn verði með í ferðinni og jafnvel láti sjá sig hér og þar með staldrað er við. Annars þá er þetta líf mjög frábrugðið því gamla, hér get ég ekki ráðskast með eitt eða neitt. Einarshúsið gengur bara á minnar afskiptasemi og allt hvað eina. Hér þarf ég að hafa fyrir því að finna mér verkefni og þarf án efa að vera mjög skipulögð til að rata ekki í einhvern vesaldóm. Því verður bloggið hluti af tilverunni sem og önnur skrif en nú ætla ég mér að halda áfram með endurminningar þær sem ég hafði í huga að setja niður á blað um afa minn og pabba og svo vonandi fellur eitthvað annað til. Ekki fer ég í neina merkilega vinnu sem reynir á því ég er óttalegur öryrki eftir veikindin hérna um árið, beinin öll holótt og styrkurinn lítill sem enginn.

Vertinn er því vel sett að búa á neðri hæðinni hjá læknunum tveim sem áður bjuggu fyrir vestan. Ekki það að ekkert hrjáir margnefnda nema þá helst leti en hún getur svosem farið á sinnið ámanni en hún nær að festa sig í sessi. Það er þá gott að vita af þeim þarna uppi ef eitthvað kemur upp á sem ekki er hægt að bregðast við hérna á neðri hæðinni.

En enn sem komið er líst mér vel á mig hérna og ekki undan neinu að kvarta. Ég tel því tímabært að hætta í bili því göngutúrinn bíður.

Ef ég blogga ekkert á morgun þá er ég örugglega týnd og tröllum Hafnarfjarðar gefin.

Þið kallið þá kannski út björgunarsveit. 

 


Víkin mín Bolungarvík

 

Víkin mín Bolungarvík

 

Víkin mín fríða í fjallanna sölum

svo fögur við ólgandi haf.

Víkin sem skartar svo fallegum dölum

og drottinn af góðmennsku gaf.

Víkin sem vonir í brjóstunum vekur

mun vandlaga hlúa mér að

Víkin sem huga minn alfarið tekur

í hjarta mér ætíð á stað.

_

Víkin með Bólin í bernskunnar minni

og börnin sín stór jafnt sem smá.

Víkin hún heillar við nánari kynni

svo hugguleg þykir að sjá.

Víkin með Hólskirkju hátt upp á hólnum

þar leikur sitt hljómþýða lag.

Víkin sem klæðist æ fegursta kjólnum

og heilsar hvern einasta dag.

_

Víkin  með Ósvör og vermanninn mæta

svo máttug með manni og mús.

Víkin sem okkar svo glaðbeitt vil gæta

og gaf okkur landið svo fús.

Víkin við sjávarins staðföstu öldu

og sólroðann blika við tind.

Víkin sem vakir á haustkvöldi köldu

og kveður við sérhverja lind.

_

Víkin hún til allra bolvískra barna

þá syngur sinn hljómfagra söng.

Víkin sem garðinn sinn fékk hér til varna

og stolt bíður Óshlíðargöng.

Víkin sem bátanna brosandi gætir

og borubrött leiðir að strönd.

Víkin sem grösugar grundirnar vætir

er leiðandi lífshjálparhönd.  

 


 

 

 

 

 


Kátir verða karlar á kútmagakvöldi

Kútmagakvöld og fiskihlaðborð að hætti Snorra Bogasonar verður haldið í samstarfi við Lionklúbbinn 22. mars næstkomandi. Það er enginn annar er nýheimflutti Bolvíkingurinn Kristján Jón hinn eini sanni gleðigjafi með meiru sem sér um veislustjórn. 

Verð 7500 kr.og herlegheitin hefjast kl. 20:00

Brýnt er að panta borð tímanlega eða í sl. að kvöldi 20. mars.

Allir kátir karlar hvattir til að mæta


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 635842

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband