Ragna

 

  

Ragna:

Þá stundi Mundi

 

Í Víkinni Vertinn á kostum hér fer

og vafalaust hæglega sérhver það sér.

Við vísnagerð unir sér daglanga stund

er vísurnar yrkir um hali og sprund.

Viðlag: 

Er hún arkar um stræti

þá svo sérlega sperrt.

Vart finnst hér á landi

jafn fýrugur Vert.

 

Á Kjallarakránni hún selur þér mjöð

og kúnninn þar bíður í einfaldri röð.

Þar slekkur hún þorsta þeim þorstlátu hjá

þeir brjóstbirtu gjarnan hjá Vertinum fá.

 

Viðlag:

 

Á Víkara fréttirnar færir þér fyrst

þar fagnandi skrifar af mikilli list.

Og Bakkus hún kvaddi af kurteisis sið

og konunni líkar nú edrúlífið.

 

Viðlag:

 

 

Ef spaugsamar hliðar á lífinu sér

á veraldarvefinn það jafnharðan fer.

Hún bloggar í snarhasti fréttir um hæl

og glæðir þær lífi með alkunnum stæl.

 

Viðlag:


Óshlíðargöng

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng og munu aldrei heita annað.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng af því að með tilkomu þeirra opnast leið í báðar áttir, líka til Ísafjarðarbæjar og þaðan út um allan heim.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng af því að þau leysa Óshlíðarveg af hólmi.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng af því að þau liggja í gegnum Óshyrnu hérna megin.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng af því að þau liggja milli Ósbæjanna.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðargöng af því að ég felli mig betur við það nafn.

Í mínum huga heita jarðgöngin Óshlíðagöng vegna þess að þau að tengja öll byggðarlögin á norðanverðum Vestfjörðum saman.

Í mínum huga heita göngin Óshlíðargöng af því að þau skapa eina heild og Bolungarvík er bara hluti af heildinni á þessu svæði.


Halldóra Þórarins

 

Dóra Þórarins:

Litla flugan

 

Hér glettin mær á Glaðheimum sér leikur

með káta smáa krakkahópinn sinn.

Það sannarlega lífsgleðina eykur

og passa þessi agnar litlu skinn.

Af barnabörnum hefur mikið yndi

hún nýtur þess að hlúa vel að þeim.

Þá lífið leikur einatt allt í lyndi

er fær hún krakkaskarann til sín heim.

 

Dóra tekur fagnandi þeim gesti

er feginn kemur heim í vaktafrí.

Það gerist víst á 10 daga fresti

og jafnan kætist Dóra yfir því.

Því Röggi kemur oft að góðu gagni

það segjast verður alveg eins og er.

Í sumar byggði sólpallinn af lagni

:af hagleikssmiðum flestum hann nú ber:


Sólrún

                    

Sólrún:

Hagavagninn                    

 

Á sýslumannsins jeppanum hún ekur

um bæjarstrætin bein og greið.

Ef bílnúmerið undrun manna vekur

þá verður Sólrún sjaldnast leið.

Á fjórum hjólum hendist milli bæjarkjarna

því nýtt hún hefur fundið starf

og núna sinnir kennslu menntaskólabarna

og þýsku færir þeim í arf.

 

Þau tíðindi víst gerðust hér um daginn

sem núna skulum segja frá

hér bifreið ók víst  stefnulaust um bæinn

hún stefndi snúrustaurinn á,

og rakleiðis var ekið yfir grónar grundir

það taldist ekki vera gott.

En gleðilegt að Jónas ei var um þær mundir

á snúrunni á hengja þvott.

 

 


Peta

 

Peta:

Flagarabragur

 

Fagnandi hún Petrína við fuglaskoðun dvelur

fýrug þykir konan sú er furðufugla telur

Í spariskóm með Böðvari þá tiplar hún um breiður

og brosir jafnan konan hér, ef finnur arnarhreiður.

 

Viðlag:

Ó já, þessi kjarnakvinna

kumpánleg að venju er og varla þarf að kynna.

Við Hafnargötu keypti hús og sér nú út á sæinn

og glaðbeitt lítur til þín er gengur hún um bæinn.

 

Fjarnámið hún stundar þegar vinnutíma líkur.

sá feikimikli áhugi á menntun þykir slíkur.

Í skrifstofunnar brautargengi magnast kyngikraftur

og trúlega í meira nám, ætlar hún sér aftur.

 

Viðlag:

Þegar hún á lausa stund þá kýs hún ekkert fremur

en að verja tímanum með barnabörnum þremur.

Furðu vekur trúlega hve ungleg þessi skvísa

getur verið amma hér, á landi elds og ísa.

 

Viðlag:

 

Í sparisjóðnum stelpan þessi löngum stundum dvelur

og sæl og rjóð hún peningana okkar ákaft telur.

Og glaðbeittar hér gjaldkerann við allar hérna mærum

því háhæluðu skórnir ná, upp að miðjum lærum.

 

 


Músin

Ég hef þann háttinn á þegar ég fer í hesthúsin dag hvern til að gefa hestunum tugguna sína að banka duglega í hurðina sem skilur hesthúsin frá forðageymslunni og sparka jafnvel fast í vegginn til að undirstrika það að nú fari Vertinn að birtast í öllu sínu veldi. Þetta er allt með ráðum gert því mýs eiga það til að skjótast um heyið þegar síst skildi. Ætíð hafa þær hlaupið í hendingskasti í felur og ég hef ekki orðið var við eina einustu mús á ferðum mínum í hesthúsin og hef því ávalt borið mig vel og hestarnir fengið nóg að býta og brenna.

Í dag brá svo við að ein ofurmús lét sér ekki segjast og ákvað að bjóða Vertinum byrginn. Hún hafði greinilega skipulagt þessa fólskulegu árás um tíma því hún stökk mjög ógnandi upp úr heyinu þegar Vertinn í sakleysi sínu ætlaði að grípa fangið fullt að gómsætu og ilmandi fóðri fyrir skepnurnar. Hún virkaði mjög ófyrirleitin er hún gjóaði hvössum augum til mín og var með æsilega ofbeldis tilburði sem gerðu það að verkum að Vertinn hljóp öskrandi út í guðsgræna náttúruna, sem nú er sveipuð snjóslæðu, og hljóp í skjól til Blesa gamla sem reyndi eftir fremsta megni að hughreysta téðan Vert og hleypa í hana kjarki.

Ég sá það að sjálfsögðu í hendi mér að þrátt fyrir hið illskulega yfirbragð músarinnar og ógnandi tilburði hennar til að ráðast á mig og rífa mig á hol, hafði ég stærðarinnar vegna þó nokkra yfirburði, og ákvað ég því eftir þó nokkra umhugsun að fara inn aftur og klára að gefa þessum vinum mínum eitthvað gott í gogginn enda voru hrossin sársvöng og bráðvantaði tugguna sína. Eftir að hafa barið heyið með strákústi til að fullvissa mig um það að músin væri á bak og burt hófst ég handa við mína daglegu iðju og hristi ilmandi heyið í haug og fór með hvern faðminn á eftir öðrum út fullan af braggóðu grasi til hestanna sem tóku mér fagnandi eins og ætíð.

Það var svo í restina sem þessi ofbeldishneigða mús stökk með ógnarhraða út úr fylgsni sínu og hljóp í áttina til mín og vígtennurnar lýstu upp hesthúsin og bilið á milli þeirra tanna var jafnlangt, ef ekki lengra, en bilið á milli augnanna á löxum í kræfustu veiðisögunum íslenskra laxveiðimanna. Ég taldi ljóst á þessu augnabliki að í næstu andrá yrðu dagar mínir taldir og mér fannst ég eiga eftir að gera svo margt á lífsleiðinni og í huga mínum fóru brot úr lífi mínu á hraða ljóssins. Ég var ekki tilbúin til að deyja fram í hesthúsum í dag enda sunnudagurinn bjartur og fallegur og ég átti eftir að lesa síðara bréf Péturs postula upp í kirkju fyrir sóknarbörn í söfnuði Hólshrepps til forna í tilefni af fermingu Lilju. Ég öskraði því sínu hærra en áður og hoppaði hæð mína til að verjast þessari ógnarmús sem leit úr fyrir að ætla að ráðast gegn mér og flá mig lifandi. Einhver innri kraftur blossaði upp í mér og komst ég á harðahlaupum frá þessari vá og út úr hesthúsinu. Blesi, Brá og Tenór horfðu á mig í forundran rétt sem snöggvast en héldu síðan áfram að gæða sér á gómsætu heyinu á meðan ég ákallaði skapara minn og guð minn og þakkaði frá hjartarótum fyrir að hafa sloppið ósködduð frá kvikindinu. Heyra mátti hávær hlátrasköll innan úr húsinu er þessi alræmda mús tísti í tryllingshlátri yfir aumingjaskap mínum er ég stóð sem lömuð hjá stóðinu og ég hugsaði henni þegjandi þörfina.

Ég komst heim eftir þennan æsilega leik og mér tókst þó með ágætum að lesa úr bréfi Péturs í síðari ritningarlestri í Hólskirkju og bað þess í hljóði að músin verði farin á morgun þegar ég fer að gefa. Vonandi verð ég bænheyrð.


Sjaldan fellur eplið..

Lilja með hrokkið hárLilja lék stórt hlutverk á árshátíð grunnskólanema nýverið. Hún fór með hlutverk Stínu símalínu í Latabæ og fórst henni það afskaplega vel úr hendi enda er stelpan stórgóður leikari og hefur yndi af því að koma fram. Ég setti rúllur í rauða makkann og hún klæddist bleikum kjól sem ég átti þegar ég var á hennar aldri. Þegar rúllurnar voru teknar úr og krullurnar liðuðust um andlitið var eins og hún breyttist í mig, þegar ég var á hennar aldri, á einu augabragði og það var nokkuð broslegt að sjá sjálfa sig yngjast upp með þessum hætti.

 


Dóra Mæja

 

Dóra Mæja

Ég langömmu á.

 

Nú sögur af Dóru við segjum nú hér

í heimilishjálpinni unir hún sér

þar mætir hún glaðbeitt ef hennar er þörf

og vinnur þar margvísleg heimilisstörf.

Heimilisstörf, heimilisstörf

og vinnur þar margvísleg heimilisstörf.

 

Í Skálvík Sísi þar átti eitt kot

sem ekki hún hafði nein lengur af not

Í skyndi hún Dóra þar bjó sér til skjól

og á þar nú agnarsmátt unaðslegt ból.

Unaðslegt ból, unaðslegt ból

og á þar nú agnarsmátt unaðslegt ból.

 

Á Kanarýeyjum svo kunnugt nú er

þar Obbi tvær konurnar hafði með sér.

Hann taldi víst tryggara í þessum túr

að hafa í fórum sér heilt kvennabúr

Heilt kvennabúr, heilt kvennabúr

að hafa í fórum sér heilt kvennabúr

 

Og jeppinn hjá Dóru svo lifnaði við

og nánasta nágrenni gaf engin grið.

Við húsið svo eignaðist fínasta pall

og líka hún á núna sextugan kall.

sextugan kall, sextugan kall

og líka hún á núna sextugan kall.

 


Bandið hans Bubba

Fyrsti þáttur Bubba Morthens í æsilegri leit hans að nýjum látúnsbarka í bandið sitt var sýndur á stöð tvö í gærkvöldi. Þar fékk svo sannarlega Einarshús að njóta sín í bak og fyrir og var umgjörð þáttarins einstök vegna þess. Glögglega mátti sjá hve húsið naut sín í hvívetna og stoltið leyndi sér ekki í ásjónu þess, yfir því að geta boðið svona glæsilega byggingu undir þennan viðburð. Vertinn er í skýjunum yfir hvernig til tókst og telur sig hafa dottið í lukkupottinn, því auglýsing af þessari stærðargráðu í þætti sem þessum sem án efa tugir þúsunda manna horfa á, er ómetanleg. Ég tel næsta víst að flestir sem leggja leið sína vestur á firði muni eftir Einarshúsi og mun ég búa mig undir það að margir komi til með að sækja húsið heim á sumri komanda og stend klár eins og ætíð.

Að fleyta rjómann

Svæðisútvarp Vestfjarða bryddaði upp á þeirri nýbreytni að fleyta rjómann af viðburðum nýliðinnar viku í þætti gærdagsins og fékk til sín góða gesti í hljóðver. Vertinn tilheyrði fyrsta viðmælendahóp þáttanna og segja má að rjómi Vestfirðinga hafi verið látinn ríða á vaðið í að ræða málefni líðandi stundar. Þessi útvarpsútsending var send út beint og tel ég næsta víst að allir Vestfirðingar hafa hlýtt á Vertinn með mikilli andagt. Eitt er víst að það hefur varla kjaftur sést á ferli í bænum síðan þessu viðtali var varpað um útvarpsbylgjur hér vestra og tel ég ástæðuna vera hversu frambærileg margnefndur Vert hljómar en hún virðist hafa syngjandi rödd sem venjast má með tímanum og lokkandi málrómurinn höfðar án efa til allra. Ég reyndi að leiða þáttastjórnandann í hjónaband með hinum viðmælandanum í þættinum til að auðvelda þeim leið inn á þorrablótið í Bolungarvík og er ég ekki frá því að það hafi tekist að hluta til. Ég hef trúlega verið undir áhrifum af nýja starfinu mínu sem ég tók við í dag á brúðkaupi.is og ætlað að koma þessu ágæta fólki í eina sæng án tafar. Ég mun af mínu alkunna lítillæti láta viðtalið fylgja þessari bloggfærslu og þið sem ekki heyrðuð það getið hlusta hér.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband