7.4.2008 | 00:28
Dagur í senn
Gaman er að segja frá þvi að helgin er búin að vera stórfín. Útlendu trúbadorarnir voru alveg stórgóðir og kvöldið varð skemmtilegt eins og svo mörg önnur kvöld í Einarshúsi. Sjávarréttahlaðborðið tókst í alla staði vel. Mætingin var alveg þokkaleg og allt gekk eins og flís við rass enda kunnum við að hantéra þessa dýrindis rétti enda hagvanar frá því í fyrrasumar þegar sjávarréttahlaðborðin voru vikulega. Núna verða þau mánaðarlega fram til haustsins amk. og vonandi mun fólk notfæra sér að líta upp úr amstri hversdagsleikans og mæta á slíkan eðalkvöldverð fyrsta laugardag í hverjum mánuði.
Eftir söng og spilerí komst Vertinn í Víkinni að því að útlendu söngvararnir sem haldið höfðu þokkalegu lagi út nóttina voru hálf heimilislausir og þurftu húspláss. Var aukaherbergið því boðið undir þreytta drengi og gátu þeir sofið eins og ljós fram miðjan dag en þá var þeim keyrt inn á Ísafjörð. Veit reyndar ekkert hvert en út úr bílnum fóru þeir með það loforð upp á vasann að hafa samband innan tíðar vegna frekari músíkhalds í Kjallaranum. Hver veit nema þeir mæti að hálfum mánuði liðnum til að troða upp í síðasta sinn í bili. Á myndinni má sjá Jude frekar léttklæddan og bindið aðeins skakkt. Það kom þó ekki að sök í flutningi laga af öllum toga.
Um miðjan daginn kallaði Vertinn litlu stórfjölskylduna saman til að snæða saman vöfflur og rjóma og ekta súkkulaði var hitað í tilefni dagsins. Ekki veit ég hvað var í súkkulaðinu því svefnhöfgi lagðist á alla gestina með þeim afleiðingum að Vertinn varð að leggja sig og yfirgefa partýið. Það kom þó ekki að sök því flestir aðrir voru við það að sofna líka og drifu sig heim í framhaldinu. Ef ég þyrfti á svefntöflum að halda hefði ég verið viss um að ég hefði óviljandi misst úr öllu pilluglasinu ofan í pottinn með súkkulaðinu. En einhver önnur álög hafa trúlega ráðið því að allir urðu svona þreyttir. Það tekur reyndar á að vinna langt fram á nótt og dagurinn eftir er venjulega umvafinn þreytu og syfju.
Ég svaf eins og steinn í rúma þrjá tíma og rétt vaknaði til að fara í Gospelmessu upp í Hólskirkju þar sem Þorsteinn Haukur flutti sálma eftir sig ásamt Gospelkórnum. Mér þótti afar gaman að naut mín vel. Mér þykir gott að fara í kirkju endrum og eins til að fá ró á hugann og létt var yfir guðþjónustunni og fjör í söngvunum. Einn fallegast sálmur sem ég hef heyrt var sunginn og ég gaukaði því að prestinum í framhjáhlaupi að hann væri tilvalinn til spilunar í fermingarmessunni um Hvítasunnuna. Sálmurinn "Dagur í senn er"fermingarbörnum gott veganesti út í framtíðina. Auðvitað eiga kirkjugestir ekkert með að skipta sér af messuhaldi með þessum hætti en engu að síður hefur þeirri ósk minni verið komið á framfæri.
Í minni fermingu óskuðum við krakkarnir eftir því að lag Jóns Norðdal við texta Halldórs Laxness "Hvert örstutt spor" yrði sungið í kirkjunni og mér er það mjög minnisstætt enda lagið einstaklega fallegt. Það var síðan leikið í giftingunni minni líka og lagði þar með áherslu á auðnusporin sem ég ætlaði að ganga með eiginmanni mínum. Ætli ég láti ekki spila það í jarðaförinni minni þegar þar að kemur og kveðji þá sem eftir lifa með þakklæti fyrir hverja sólskinsstund um stundareilífð, eina sumarnótt.
Brjálað at er framundan í Einarshúsi næstu vikurnar og mikil veisluhöld. Vonandi gengur það allt eins og væntingar gera ráð fyrir. Hópar hafa varla undan að panta fyrir hin og þessi tækifæri og sem betur fer þarf ég ekki að kvarta. Til allrar hamingju þá er ég komin með fasta manneskju með mér sem er mín hægri hönd í rekstrinum svo ég þarf ekki að bera þetta uppi alveg ein, enda gengur slíkt ekki til lengdar sérstaklega þegar reksturinn vindur alltaf upp á sig meira og meira. Það er ótrúlega mikil vinna að skipuleggja hlutina og halda utan um það sem gera þarf og er það nánast fullt starf fyrir vesælan Vert eins og mig.
Að hálfum mánuði liðnum hefur Laddi boðið til samkomu í tilefni sextugsafmælis síns. Leikritið hans er á fjölunum í einhverju leikhúsi borgarinnar og þar eigum við frátekin sæti. Þetta ber upp á sama kvöld og stórt og viðamikið kvöld er haldið í Einarshúsi með sjö rétta matseðli. Það er erfitt að sleppa því en ég er víst ekki ómissandi og vinnukonur mínar halda utan um herlegheitin eins og þeim einum er lagið. Ég verð örugglega búin að segja þeim fyrir verkum áður en ég fer og allt á eftir að ganga að óskum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2008 | 16:26
The bad bread and the rotten rolls
Vertinn tók sig upp og æddi inn á Langa í gærkvöldi til að berja trúbadorana augum sem leika í kvöld og þeir eru stórskemmtilegir. Þeir leika írsk lög í bland við allrahanda og ég held að enginn verði svikinn af því að koma og hlusta. Ekki skemmir fyrir að þessir prúðu drengir eru afskaplega fallegir og eiga án efa eftir að heilla marga stúlkuna upp úr skónum og jafnvel einhverja þannig þenkjandi pilta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 19:27
Konan og börnin á borðið
Jóns Elli var afabróðir minn og fastagestur á mínu heimili þegar ég var lítil stelpa enda voru hann og Gaui afi minn vinir. Hann var lengi vel í hreppsnefnd hér í Hólshreppi og starfaði þar að málefnum bæjarins. Hann hafði þann sið að taka út úr sér tennurnar til hálfs með reglulegu millibili og oft mátti litlu muna að þær hrykkju út úr karli þegar honum var mikið niðri fyrir. Hann átti það til að svara með skondnum hætti óafvitandi og öfugmæli ýmiskonar ultu stundum af hans vörum þegar síst skildi.
Eitt sinn var Jónsi spurður að því hvernig útsvarið væri reiknað út til álagningar á bæjarbúa og karlinn svaraði ef að þú átt fjögur börn og einhver annar tíu og ég ekki neitt, þá eru konan og börnin á borðið, börnin frá og þá eru allir eftir sama skala".
Eitt sinn koma hann heim til afa og var óánægður með ákvörðun hreppsnefndar í einhverju máli. Þá sagði Jónsi Elli Þó ég sé vitlausastur allra manna þá tekur enginn mark á mér".
Dægurmál | Breytt 5.4.2008 kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.4.2008 | 17:01
Verðlaunamynd
Auður systir vann til verðlauna í virtri ljósmyndasamkeppni nýverið. Myndin hennar lenti í öðru sæti í ljosmyndakeppni.is og sýnir það og sannar hve góður ljósmyndari hún er í raun.
Blóm í eggi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2008 | 23:51
Barnið og fræið
Einu sinni fyrir margt löngu síðan kom eitt barnanna minna heim úr skólanum með nokkur frækorn í skál. Plastfilmu hafði verið vafið utan um skálina til að varðveita þessi örfáu frækorn sem lágu bara í reiðileysi hvert upp við annað í skálinni. Barnið hljóp strax til móður sinnar ( mín) og sýndi henni skálina með fræjunum og andlitið var eitt sólskinsbros. Eitthvað var mamman utan við sig og hélt að þetta væru sesamfræ sem barnið hefði notað á brauðið í matreiðslunni og gleypti fræin í fljótfærni og lét sem þetta væri heimsins besti matur. Kjamsaði á þessu og lét mikla velþóknun í ljós á hversu einstaklega bragðgóð þessi fræ væru sem barnið hafði komið með heim úr skólanum.
Undrunarsvipurinn sem færðist yfir litla andlitið er þetta gekk yfir, breyttist síðar í skelfingarsvip og að lokum var þessi litli angi allur útgrátinn og sorgmæddur yfir þessari misgjörð móður sinnar.
Fræin voru þá, eftir allt saman, lítil sáðkorn fyrir paprikujurt sem barnið átti samviskulega að setja í mold og koma með í skólann daginn eftir og láta dafna til vorsins ásamt plöntum bekkjarsystkina sinna. Þegar planta var orðin að stóru tré átti barnið að fá að koma heim til mömmu sinnar með ávöxtinn af plöntunni og gefa henni að smakka afurðina.
Þessi saga, sem gerðist fyrir nokkrum árum, dúkkaði upp í kollinn á mér í dag og vakti hjá mér mikla kátínu. Hún ætti að kenna okkur það að fljótfærni borgar sig ekki alltaf. Ég átta mig þó á því að þetta hefði getað farið enn verr...............ég hefði getað gleypt barnið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2008 | 16:03
Kjallarakeppnin
Kjallarakeppnin heldur áfram á föstudagskvöldið eftir þó nokkuð hlé. Það er Sveinbjörn Rögnvaldsson sem spyr gesti og gangandi. Hann er víst nokkuð vel gefinn strákurinn og veit víst eitt og annað. Verðlaunin eru í fljótandi formi og renna ljúft niður kverkar þeirra sem þykir mjöðurinn góður og kunna með hann að fara. Ætli kolamolinn verði ekki á spottprís til að byrja með um kvöldið og opið verður fram á nóttina eða eins og stemningin segir til um.
Þeir sem hafa áhuga á að verða spyrlar í keppninni eru vinsamlega beðnir að hafa samband jafnt og þétt við Vertinn í Víkinni sem mun útdeila hlutverkum eftir hentugleika og hentisemi. Starfssviðið er stóra sviðið í Kjallaranum og eru hæfniskröfur þær að viðkomandi sé skýrmæltur, þokkalegur til fara og tali staðgóða íslensku og geti gert sig skiljanlegan á mæltu máli. Ekki er mælt gegn því neitt sérstaklega að viðkomandi spyrji nokkuð gáfulegra spurninga en helst er ætlast til þess að þær séu ekki of léttar og ekki of þungar, heldur rétt mátulegar fyrir meðalgáfaða einstaklinga að svara. Launin eru skv. kjarasamningi almennra húsmæðra í samfélaginu, sem sagt frítt húsnæði, frítt að drekka til að byrja með, stóll til að sitja á ef þarf, og rennandi vatn og klósett.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2008 | 22:00
Sjávarréttahlaðborð
Borðstofuborðið í Einarshúsi verður hlaðið unaðslegum réttum úr sjávarfangi gestum til handa á laugardagskvöldið. Mikilvægt er að panta borð í sl. í hádeginu á föstudaginn kemur og verðið er 2500.- á mann. Herlegheitin hefjast um klukkan 19:30 eða fljótlega upp úr því og hægt er að panta borð í síma 456-7901 og 864-7901
" The bad bread and the rotten rolls" leika í Kjallaranum síðar um kvöldið og skapa ekta kráarstemningu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.4.2008 | 10:00
Milljónir á milljónir ofan
Nú útdeilir Húsafriðunarnefnd milljónatugum til uppbyggingar gamalla húsa vítt og breytt. Einarshúsið fékk þrjár milljónir til uppbyggingarinnar sem er sérdeilis frábært og bráðnauðsynlegt fyrir uppgerð hússins. Ætli Vertinn væri ekki komin í skuldafangelsi ef hliðhollir aðilar hefðu ekki komið til aðstoðar og veitt styrki til endurbótanna. Reyndar eru þetta sömu þrjár milljónirnar og Fjárlaganefnd alþingis ákvað að rynni til hússins í nóvemer í fyrra en þá var fjallað um styrkveitingar til endurbótanna í fjölmiðlum. Fjárlaganefnd útdeilir penngunum en Húsafriðunarsjóður greiðir. Styrkurinn er vel þeginn og Vertinn í Víkinni svo sannlega þakklát fyrir stuðninginn og áfram verður reynt að fjárfesta í nöglum og skrúfum, panel og málningu, gluggum og hurðum, innréttingum og tækjum...........................................................en smiðurinn verður þó að bíða enn um sinn eftir útborgun.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2008 | 23:19
Ekkert plat
Ég er hrifin af fyrsta apríl og vildi gjarnan að þessi dagur væri oftar enda er ég frekar stríðin og hef gaman af því að hagræða sannleikanum enda mikill lygalaupur inn við beinið. Dagurinn í dag hefur einkennst af plati og lygasögum sem hafa sprottið úr kollinum á mér við hvert tilefni. Á Vertinn í Víkinni er ekkert að treysta í þessum efnum enda vita þeir sem þekkja mig að ég get verið mjög varasöm þegar kemur að áreiðanleika sannra lygasagna. Það væri auðvitað helber lygi að bera það á borð fyrir lesendur mína að ég geti ekki sagt sannleikann svona öðru hverju en ég kýs að sveipa hinn heilaga sannleika ljóma skröksagna svo enginn geti áttað sig á því hvað er satt og hvað er logið.
Hitt er svo annað má að vel getur hugsast að ég hafi verið látin hlaupa fyrst apríl trekk í trekk í dag án þess að verða þess var og þá er það altílagi og vonandi hefur það fullnægt þörfum annarra hrekkjusvína eins og mín.
Einhverjir virðast þó hafa haldið, að frásögn mín af sjávarréttahlaðborði í Einarshúsi á laugardagskvöldið væri plat og að ég hefði logið til um útlendingana sem ætla að spila hjá mér síðar um kvöldið. Ég færi aldrei að ljúga til um svoleiðis lagað og það er dagsönn frásögn og ekkert plat. Ég get svo svarið það og tíu fingur upp til guðs að ég er strangheiðarleg þegar ég kem hér fram eins og saklaust barn og ítreka mikilvægi þess að fara að PANTA borð. Ég verð að fá vissan fjölda til að þetta beri sig og miða ég við að amk. 20 manns hætti sér út úr húsum sínum og geri sér glaðan dag í trakteringum í Einarshúsi.
Kjallarakeppnin verður svo á sínum stað á föstudagskvöldið og ætlar Sveinbjörn Rögnvaldsson að spyrja fólk spjörunum úr. Hann er stórgáfaður strákurinn og mig grunar að spurningarnar verði erfiðar og aðeins fyrir heilasellur bráðgáfaðra einstaklinga. Ég legg svo um og mæli með að menn fari að setja sig í stellingar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.4.2008 | 01:52
Beitt fyrir sig engilsaxnesku
Vertinn í Víkinni ætlar að reyna með öllum mætti að halda sjávarréttahlaðborð á laugardaginn kemur en slíkur eðalkvöldverður hefur ekki verið í boði síðan sl. sumar. Á boðstólnum eru ótal kræsingar fínna rétta sem kitla bragðlaukana svo um munar og fá hvern mann til að sleikja út um. Laxapaté í bland við steinbítspaté og aðra unaðslega fiskirétti munu verma borðið í Einarshúsi ef næg þátttaka fæst og ríður nú á að hringja og panta tímanlega og hvet ég fólk til að hringja sem fyrst. Satt best að segja tel ég nauðsynlegt fyrir bæjarbúa að lyfta sér upp um þessar mundir og líta upp úr amstri hversdagsleikans og gera sér glaðan dag um helgina.
Ekki er úr vegi að geta þess að einhverjir útlendingar hafa sýnt áhuga á að troða upp og hringdu þeir í dag til að bjóða fram krafta sína í söng og spileríi. Vertinn varð að grípa til engilsaxnesku til að gera sig skiljanlega á þeirra tungumáli en annar mannanna er enskur en hinn kemur alla leið fá Skotlandi til að stíga á stóra sviðið í Kjallaranum. Oxford enskan rann upp úr téðum Vert sem gat talað af fingrum fram á þessu erlenda tungumáli og það var fastmælum bundið að þessir tveir eðalgítaristar og söngvarar kæmu að spila á laugardagskvöldið fyrir gesti mína. Þeir leika bæði frumsamin lög, auk þessa að bjóða upp á kántrý, Bob Dylan og Bítlana en allrahanda tónlist er þó að efnisskránni. Eru því hörku trúbadorar í boði eftir hlaðborð dýrindis sjávarrétta en bandið mun bera heitið" The bad bread and the rotten rolls" ef ég hef skilið kauða rétt og ég þykist vita að það verði stórskemmtilegt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm