30.4.2008 | 01:59
Flaggað í heila
Vinna við að skipuleggja viðburði næstu vikna tekur mikinn tíma af tíma Vertsins í Víkinni sem er annars af skornum skammti þessa dagana. Endalaust áframhald virðist vera í uppsiglingu og taumlaus gleði virðist ætla að vera allsráðandi í húsi gleðinnar á næstu mánuðum. Fyrstu útlendu ferðamennirnir heimsóttu Einarshús í dag og búast má við fleirum í framhaldinu.
Stór helgi er í nánd þar sem mikið verður um dýrðir á blakmóti sem haldið verður hér vestra. Einarshús verður opið flesta daga og hægt verður að fá einhverjar trakteringar þá og þegar en þó einna helst umsvifalaust. Þrátt fyrir að fyrsti maí sé afar heilagur dagur í huga oftnefnds Verst, þá munu vinnukonurnar í Einarshúsi hafa þann starfa að taka á móti gestum frá morgni til kvölds. Væntanlega mun sú sem hefur töglin og hagldirnar í Einarshúsi standa vaktina einhvern hluta dagsins með bros á vör því þetta er afmælisdagur títtnefndrar og því afar merkilegur fyrir þær sakir.
Frídagur verkalýðsins ber upp á þennan sama dag og ugglaust telja margir að það skyggi um of á hátíðisdag Vertsins í Víkinni en best er að láta sér fátt um finnast og taka á móti hverju ári sem safnast í sarpinn með jafnaðargeði. Það má nokkuð ljóst telja að aldur minn er nokkuð óútreiknanlegur enda tel ég næsta víst að fáir beri aldurinn eins vel og ég. Það að geta haldið upp á tvítugsafmælið sitt í 23 sinn tel ég viðkomandi Vert til tekna og held því ótrauð áfram að ganga lífleiðina léttstíg í mínum stuttu pilsum og háhæluðu skóm með allrahanda glingur umvafið um líkamann hér og þar.
Ég get ekki látið hjá líða að beina þeim tilmælum til þeirra tryggu og góðu lesenda minn að flagga í heila stöng mér til handa á þessum dýrðardegi sem birtist okkur í allri sinni mynd á fimmtudaginn. Verkalýðurinn heldur sínu striki þrátt fyrir allt og fer væntanlega í kröfugöngur víðsvegar um landið og mótmælir óréttlætinu og það er mér að meinalausu. Eina óréttlætið í augnablikinu í mínum huga er það eitt hvað árin líða hratt og hellast yfir með miklum þunga. Hægt er þó að gleðjast yfir því að heilsan er nokkuð góð og pípulagnirnar virka fullkomlega og minnið er þokkalega gott ef miðað er við allt sem ég þarf að muna í sambandi við það sem ég má ekki gleyma. Ég mun þess vegna taka þessum degi fagnandi eins og öllum öðrum dögum og ætla væntanlega að eyða honum að mestu í fallega veitingastaðnum mínum og vera í hlutverki gestgjafa og miðaldra húsfreyju sem þykist enn vera táningsstelpa sem lætur líta svo út fyrir að hún eldist ekki neitt. Blóm og kransar eru vissulega afþakkaðir enda verður allt slíkt að bíða fram yfir andlátið og gjafir eru eiginlega frekar illa séðar líka enda vantar mig ekki neitt. Ég kaupi mér svo sannarlega allt sem mig langar til að eignast og vanhagar ekki um neitt eða þannig, allavegana man ég ekki eftir neinu sem ég á að muna eftir til að minna mig á hvað mig vanhagi um í augnablikinu..............eða þannig.
Held ég ætti að fara að halla mér. Dagskrá helgarinnar verður birt innan tíðar....ekki fara langt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2008 | 00:53
Afmæli
Mikil var gleðin og glaumurinn í Einarshúsi í kvöld er pabbi hélt veislu fyrir fólkið sitt. Þriggja rétta máltíð var framborin af Guðlaugu sem lagt hafði alla sína natni í eldamennskuna. Vertinn mætti sem gestur og þáði veitingar og lék á alls oddi líkt og allir hinir sem voru í boðinu og kvöldið var ljúft og gott. Það vantaði nokkra í hópinn en smellt var mynd af þeim sem gátu verið viðstaddir afmælið hans pabba.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2008 | 10:42
Síungur öldungur
Hann pabbi á afmæli í dag en hann fæddist 27. apríl árið 1923 og fagnar því 85 ára afmælisdeginum sínum. Hann er sonur Ragnars Jóhannssonar frá Garðsstöðum í Ísafjarðardjúpi og Ragnheiðar Margrét Jónsdóttur sem var vinnukona á heimili foreldra hans, þeirra Jóhanns Pálssonar og Sigríðar Gísladóttur ljósmóður.
Þegar upp komst að Ragnar hafði gert vinnukonunni barn gripu foreldrar hans inn í atburðarásina og sendu hana til Bolungarvíkur. Þar fæddi hún barnið í elsta húsinu í Bolungarvík, sem enn er upprunalegt og óbreytt frá fyrstu tíð, að Miðstræti 4 hér í bæ en það hús er byggt árið 1900. Barninu var komið í fóstur hjá Guðjóni Jónssyni og Kristbjörgu Margréti Halldórsdóttur og Ragnheiður eða " Ranka amma" flutti til Reykjavíkur.
Þegar ég fæddist átti ég að heita Guðbjörg Hjálma í höfuðið á langafa mínum og langömmu, Hjálmari Þorsteinssyni ( Hjalla tudda) og Guðbjörgu Sigurðardóttur, en þau bjuggu hér á Kambinum og ólu mömmu upp. Nóttina fyrir skírnina mína dreymir pabba að Ragnar faðir hans kæmi að vöggunni minni og segði að honum langaði að vera hjá okkur. Þá vildi pabbi að ég bæri nafnið hans og heiti ég þess vegna nafninu Ragna Jóhanna og kann bara nokkuð vel við að bera nöfn afa míns og langafa.
Pabbi hefur erft fríðleika föður síns og atgervi allt er hið glæsilegasta. Hann er topp eintak, ótrúlega hraustur, rólegur, fagur, og hefur alla tíð verið mikill dugnaðarforkur. Hann keyrir enn bílinn sinn og fer ásamt mömmu í bónus.
Ég er ótrúlega heppin að eiga hann pabba ennþá og vona að ég fái að hafa hann hjá mér sem lengst og ég sendi honum hér litla blogg afmæliskveðju.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2008 | 01:39
Dollar
Nýr fjölskyldumeðlimur heimsótti nýja heimili sitt í fyrsta sinni í gær. Hundurinn ber heiti erlendrar myntar enda enskur að uppruna og kemur frá hundaræktunarstöð í Bretlandi. Labrador hundurinn "Dollar" er búinn að dvelja í lögbundinn tíma í einangrun í einangrunarstöð á Reykjanesi en þaðan fór hann til yfrhundaþjálfarara Ríkislögreglustjóra sem staðsettur er á Eskifirði. Undanfarna viku hefur Dollar verið í hundaþjálfun í Reykjavík og mun verða þar næstu þrjár vikur til viðbótar áður en hann kemur vestur á firði þrautþjálfaður sem lögregluhundur.
Vertinn í Víkinni hefur veitt nokkrum hundunum húsaskjól í gegnum árin og ber þá hæst hundurinn Nökkvi, sem var landsþekktur leitarhundur, vatnaleitarhundur, lögregluhundur og kvikmyndaleikari. Minningargrein birtist um hann í mörgum blöðum er hann féll frá sem segir nokkuð um hversu fjölhæfur hann var. Nökkvi bjó á heimilinu til margra ára og var einstakur ljúflingur. Það kom mér mjög á óvart hversu mikið ég hafði tengst honum þegar yfir lauk og ég sá mikið eftir honum eins og allir aðrir í fjölskyldunni. Pabbi saknaði hans mikið enda voru þeir miklir vinir alla tíð.
Það kom í minn hlut að tilkynna Elsu látið hans Nökkva og ég taldi mig vel til þess fallna vegna þess að þá hafði ég nýverið sótt námskeið í sálrænni skyndihjálp. Ég fór vandlega yfir allt sem ég hafði lært á námskeiðinu áður en ég settist niður með telpunni og byrjaði að ná augnsambandi við hana, sem var frumskilyrði þess að geta komið slíkum sorgarfregnum frá sér með sóma. Ég passaði mig einnig á því að sitja í sömu hæð og hún svo henni fyndist ég ekki yfirgnæfa hana er sjokkið yfir tíðindunum myndi ríða yfir. Þá hófst magnþrungin frásögn af aðdraganda þessa dauðsfalls innan fjölskyldunnar sem endaði með því að flóðgáttir opnuðust og óstöðvandi grátur fór að berast frá títtnefndum Vert. Það var alls ekki lagt upp með það á þessu námskeiði að útskrifuð sálræn skyndihjálparmanneskja færi að orga eins og stunginn grís er fréttir af þessu tagi væru boðaðar. Blessað barnið horfði með angistarsvip á móður sína í ekkasogum yfir því að hundurinn skildi gefa upp öndina og brá hún því á það ráð að kjökra móður sinni til samlætis og endaði þetta því í allsherjar grátkór með tilheyrandi ekkasogum og snýtingum. Ég hef trúlega ekki staðist prófið í sálrænni skyndihjálp og telst því trúlega fallin í þeim fræðum. Nökkvi var jarðaður í útskorinni furukistu umvafinn úrvals híalíni úr silki í trjálundi við sumarbústaðnum okkar í Dýrafirði.
Í millitíðinni hafa verið þrír schafer hundar verið á heimilinu en geðslag þeirra ekki að mínu skapi. Labrador hundar eru góðir heimilishundar og einkar geðgóðir og hefur Dollar brætt hjörtu okkar allra líkt og Nökkvi gerði hér fyrrum. Gaman var að sjá glampann í augunum hans pabba er hann gaf honum bita af harðfisk í dag er þeir hittust í fyrsta sinni. Þeir eiga án efa eftir að verða góðir vinir. Mér finnst notalegt að vera komin aftur með hund á heimilið og hlakka til að fá hann alkominn heim ásamt húsbóndanum en við mæðgurnar bíðum þess þó með æðruleysi að allir skili sér heim í vorinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2008 | 01:23
Saga frumkvöðla í Bolungarvík
Saga frumkvöðla í Bolungarvík hlaut náð fyrir augum Menningarráðs Vestfjarða og mun því draumaleikritið mitt fara á fjalirnar innan skamms. Stemmt er að því að frumsýna leikritið á sjómannadagshelgina og það verður einstakt að geta boðið upp á Elvar Loga færa okkur einleik um frumkvöðlana, Einar Guðfinnsson og Pétur Oddsson í húsinu sem þeir bjuggu í á miklum uppgangstímum. Enn vantar reyndar þó nokkuð upp á að endar nái saman því eitt svona leikverk kostar auðvitað mikla peninga en Vertinn heldur ótrauður áfram að nurla einhverju klinki saman svo hægt verði að standa straum af kostnaði. Vonir standa því til að fjölmargir sæki sýninguna heim og komi okkur til aðstoðar við að setja sögu frumkvöðla í nýjan búning og styðji þannig við verkefnið. Smellt var af mynd við þetta hátíðlega tækifæri í dag og standa Vertinn og leikarinn kokhraust í félagsheimilinu á Hólmavík með styrkinn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.4.2008 | 01:27
Ný sólarupprás
Sumardagurinn fyrsti mun heilsa í bítið og bjóða upp á bjartari tíma með hækkandi sól og blómstur í tún. Sunnanvindar fara að gera sig heimakomna með blíðan blæinn í eftirdragi og allt fer að lifna við í orðsins fyllstu merkingu. Sumarið er vertíð hjá Vertinum í Víkinni og svo sannarlega er farið að bera á aukningu þeirra sem gera sig heimakomna í Einarshús. Varla er haft undan að skrá niður viðburði sem eiga sér stað á næstunni og það er vel.
Stefnan er tekin á Hólmavík um hádegisbilið en þar á að afhenda styrki úr Menningarráði Vestfjarða. Vertinn er sérstaklega boðin þangað til teitis og því skal lagt í langferð til að geta sýnt sig og séð aðra. Þá mun Vertinn setja upp Sparisvipinn ásamt leikaranum í Kómedíuleikhúsinu og brosa út í bæði. Saga frumkvöðla er stórmerk enda bjuggu miklir athafnamenn í húsinu sem hýsir svo mikla sögu sorgar og gleði. Það verður einstaklega gaman ef hægt verður að frumsýna einleikinn um þá Einar Guðfinnsson og Pétur Oddsson um sjómannadagshelgina því þá er búist við mikið af fólki í bænum.
Skólaskákmót er um helgina og gera fjölmargir sig heimakomna í bæinn. Stór hluti gestanna mun njóta veitinga í Einarshúsi og því verður ekkert um helgarfrí hjá mér og mínu vinnufólki og er því tekið með miklu jafnaðargeði. Síðan er bara eintómt áframhald út í sumarið og það verður án efa mjög gaman. Það verða að jafnaði fimm konur í fullri vinnu hjá mér í sumar sem hlýtur að teljast nokkuð gott. Greitt er af hverjum mínum starfkrafti í pyngju bæjarsjóðs, eins og lög gera ráð fyrir, og hlýtur það að telja þegar til kastanna kemur.
Annars er hver mínúta skipulögð þessa dagana og því lítill tími til að standa í löngum bloggfærslum. Vertinn er dauðþreytt og verður að fara að sofa......stór dagur á morgun.......sólarupprás sumardagsins fyrsta bíður handan við hornið.
Góða nótt............og eigið ljúfa drauma
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.4.2008 | 02:09
Helgin
Sjálfsagt þykir að geta þess í tíma að spilavistin heldur áfram á föstudagskvöldið og spilafíklar eru hvattir til að mæta. Þegar spilamennskan hefur náð hámarki mun Biggi Olgeirs koma sér fyrir á stóra sviðinu í Kjallaranum og grípa í gítarinn og leika og syngja fram á nótt. Vertinn leggur til að bæjarbúar bregði undir sig betri fætinum og taki stefnuna í Kjallarann til að sýna sig og sjá aðra. Maður er umfram allt manns gaman og því fleiri sem láta sig vaða út í kvöldið, því skemmtilegri verður stemningin og meira gaman að vera til. Skákmót er um helgina og kannski verður hægt að sjá nýjum andlitum bregða fyrir sem eykur þar með á flóru fjölbreyttra ásjóna um kvöldið. Biggi Olgeirs er þekktur fyrir að halda úti stemningu og oftar en ekki hefur verið dansað við hans frambærilega tónlistarflutning. Vissara þykir því að fara að gera sig klára fyrir kvöldið.
Sjáumst.......
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2008 | 00:25
Bretland eða Ísafjörður
Eitthvað óaði Vertinum í Víkinni við því að keyra alla leiðina heim í dag og eftir dálitla umhugsun ákváðum við mæðgurnar að taka flugið. Þurftum við þó að velta fyrir okkur kostum og göllum þess hvaða flugleið heppilegast væri að velja. Jafndýrt virðist um þessar mundir að fljúga til Bretlands með lágfargjaldaflugfélagi eins og að fljúga með Dash 8 til Ísafjarðar. Vestfirðirnir toguðu meira í téðan Vert enda biðu þeir okkar með óþreyju og var Bond street og Oxford street því sett á hold um tíma. Þrátt fyrir það að við mæðgurnar þrjár værum látnar greiða mest allan olíukostnað við flugferðina, fengum við enga sérstaka þjónustu um borð umfram aðra flugfarþega, enda hafa þeir trúlega greitt svipað okurverð fyrir farið og við og greitt fyrir lágflugfargjöldum á flugleiðinni til Bretlands í staðinn.
Ísafjarðadjúpið bauð Vertinn velkomna með spegilsléttum sjó og blankandi logni og brakandi blíðu. Ekki var boðið upp á ókyrrð í Djúpinu líkt og venja er til heldur leið vélin rétt yfir haffletinum og hagaði flugi sínu þannig að títtnefndur Vert gat varalitað sig óaðfinnanlega í spegluninni frá sjónum og gert sig fína fyrir lendingu á Ísafjarðarflugvelli. Kyrrðin var einstök og varirnar að sama skapi einstakar, skreyttar glimmer og silkifallegum brúnum varalit sem átti vel við þokka og yfirbragð Vertsins í Víkinni.
Næsti áfangastaður var sjúkrahúsið á Ísafirði. Þar kom mamma valhoppandi eftir ganginum eins og skólastelpa og rak okkur rembingskoss sem gerði það að verkum að allt varaglimmerið fór yfir á hana og glampaði og glitraði á þessa litlu, penu og gráhærðu konu sem beið komu okkar af svo mikilli tilhlökkun. Hún er öll að koma til og fær vonandi að fara heim á morgun og þess er vænst að lífið fái að halda áfram með sinn vanagang og sunnanvindar blási þunglyndinu norður og niður svo hún geti notið þess að vera í garðinum sínum í sumar og dundað sér við að dást að blómunum sínum sem hún hefur hlúð að í áratugi.
Á morgun bíður nýr dagur með glimmer og glansi og ljúfum sunnanvindum sem blása vonandi sorg og sút á braut. Vorlaukarnir í garðinum hennar mömmu halda áfram að gægjast upp úr moldinni og rósirnar bíða þess að hún komi og tali til þeirra með ástúð og hlúi að þeim af natni. Þá verður gott að setjast niður á sólskinsdegi umvafin blómaskrúði í garðinum við Miðstræti og fá sér kaffi og súkkulaði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.4.2008 | 01:07
Fröken Reykjavik
Fröken Reykjavík gekk niður Austurstræti á ótrúlega rauðum skóm og stúlkan sú var engu lík. Borgin iðaði af lífi og strætin yfirfull af bílum sem óku stefnulaust í allar átti. Leið flestra lá trúlega í Kringluna ef marka má þann gríðarlega fjölda fólks sem þar gekk um hálfsturlað í leit að einhverju til að kaupa. Tilboðsdagar voru í verslunarmiðstöðinni og allt kapp lagt á að selja sem mest og kaupa sem mest og eyða sem mestum peningum á sem skemmstum tíma.
Laddi var stórskemmtilegur í gærkvöldi er hann brá sér í allra kvikinda líki. Karakterarnir hans eru hver öðrum betri og allir ólíkir og hver hefur sinn sjarma. Marteinn Mosdal er þó í miklu uppáhaldi hjá mér og venjulega fær hann mig til að veltast um af hlátri enda er maðurinn óborganlega fyndinn. Það á bara að vera einn ríkisskemmtikraftur sem segir bara eina gerð af bröndurum sem allir hafa smekk fyrir.
Hugurinn leitaði þó ósjálfrátt vestur í Einarshús að fínu veislunni sem haldin var í gærkvöldi. Þar var á boðstólnum sjö rétta matseðill, blómaskreytingar, dinnertónlist, þjónar, kokkar, drykkir sem hæfðu hverjum rétti og allt annað var í svipuðum dúr. Fréttir hafa borist þess efnis að veislan hafi tekist með afbrigðum vel og vonandi hafa allir notið sín vel. Flottustu konur landsins, sem jafnframt eru vinnukonur í Einarshúsi, héldu um stjórnartaumana og sáu til þess að allt færi á besta veg og enn einu sinni sá ég að ég er ekki ómissandi. Auðvitað gekk ég að frá einu og öðru áður en ég fór og hnýtti flesta lausa enda, en restin var í höndum annarra.
Dagurinn í dag bar með sér enn meiri hnúta sem þurfti að leysa. Veikindi innan fjölskyldunnar enduðu með því að kalla þurfti til sjúkrabíl sem flutti hana mömmu í öruggt skjól þar sem vel er að henni hlúð. Hún mun dvelja í góðu yfirlæti á sjúkrahúsinu á Ísafirði eitthvað áfram og strax berast fregnir af eitthvað betri líðan. Heimferð er fyrirhuguð á morgun og brúnin mun án efa léttast á þeirri gömlu þegar við mæðgurnar lítum til hennar í leiðinni heim í Víkina góðu.
Húsbóndinn og hundurinn munu þó verða áfram í höfuðborginni næsta mánuðinn í þjálfun svo það verða þrjár mæðgur sem keyra heim í bítið og halda á með hið daglega líf í faðmi fjallanna fyrir vestan. Vorið er á leiðinni og allt fer að vaxa úr grasi og gróa og með hækkandi sól koma blómstur í dali og þröstur í tún.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2008 | 11:34
Reyklaus bekkur
Krakkarnir sem eru núna í áttunda bekk í Grunnskólanum hrepptu annað sætið í keppni lýðheilsustofnunar árið 2007 í samkeppni reyklausra bekkja á landinu. Eitthvað þurfti Vertinn að koma nálægt textagerð og lagasmíð í sambandi við þetta verkefni þeirra sem þau lögðu einstaklega mikla natni í ásamt kennara sínum, honum Björgvini, en þau unnu fréttaþátt um skaðsemi reykinga. Ég rakst á þetta smá brot nú nýverið af þessu framlagi krakkanna sem eru í bekknum hennar Lilju og langar til að leyfa öllum að njóta sem vilja.
Þetta eru þeir flottustu krakkar sem ég þekki.
Dægurmál | Breytt 20.4.2008 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm