14.5.2008 | 13:16
Forleikur í Einarshúsi
Forleikurinn hefst í Kjallaranum á föstudagskvöldið 6. júní klukkan 21:00
Hápunktur stundarinnar verður svo í framhaldinu
og eftirleikurinn auðveldur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2008 | 01:11
Flestir farnir
Flestir yfirgáfu kaupstaðinn í dag og það voru mikil viðbrigði að sjá á bak allri hersingunni. Hádegismatur var þó snæddur áður en haldið var í hann og komu afgangar gærdagsins að góðum notum. Það tekur einhvern smátíma að ná sér niður eftir svona at en áfram líður tíminn og næg verkefni bíða handan hornsins. Núna langar mig helst að leggjast undir feld og hvíla mig rækilega fyrir næstu törn en trúlega gefst enginn tími til þess. Framundan eru spennandi tímar með fjölbreyttri dagskrá í Einarshúsi.
Útskrift Andra og Þórunnar er innan tveggja vikna og þá gefst aftur tími til að gleðjast og koma saman. Þá verður enn eitt teitið með nánustu fjölskyldu. Þá mun höfuðborgin fá þeirrar ánægju aðnjótandi að fá Vertinn í heimsókn enn eina ferðina.
Þá verður hopp og hí og hamagangur á Hóli.................
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2008 | 18:37
Fríður hópur
Má til með að setja inn mynd af þessum glæsilega hóp sem tekin var á ljósmyndastofunni Myndás á Ísafirði í gærdag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.5.2008 | 18:23
Spennufall
Það má með sanni segja að fermingardagurinn hafi tekist fullkomlega og stóðst fyllilega vonir og væntingar Vertsins í Víkinni og allra hinna. Allir draumar rættust og allt gekk eins og til var ætlast. Dagurinn tók á móti okkur í býtið með heiðum himni og sól og blíðu. Hólskirkja bókstaflega geislaði er hún bauð fermingarbörnin velkomin og foreldra þeirra ásamt gestum sínum. Kirkjubekkirnir áttu fullt í fangi með að rúma allan herskarann sem fylgdi hverju barni fyrir sig en þröngt mega sáttir sitja og það fór vel um flesta.
Lilja fór í greiðslu á hárgreiðslustofu bæjarins og rauði makkinn bylgjaðist blíðlega í fyrirfram ákveðnu lokkaflóði um höfuðið og heimagerð hárspöngin tók sig vel út með krullum og liðum sem lögðust um kollinn á yngismeynni. Laufey kom alla leið frá Hafnarfirði til að greiða Vertinum og fleiri glæsidömum innan fjölskyldunnar og snarhrokknu hári marnefndrar var haganlega fyrirkomið með spennum og hárlakki og glansaði téður Vert sem aldrei fyrr. Mest stirndi þó af fermingarbarninu sjálfu sem tók athöfnina alvarlega og lifði sinn inn í atburðarrásina enda mun þessi dagur verða henni eftirminnilegur um aldur og ævi og eins gott að vera með á nótunum og með hugann við það sem er að gerast.
Mamman og pabbinn voru að vonum rígmontin af stelpunni sem hrifsuð var í fullorðinna manna tölu í einum vettvangi í litlu kirkjunni Grundarhólnum. Kirkjunni sem ég var fermd í sjálf fyrir bara aðeins örstuttu síðan. Á myndinni hér til hliðar má sá foreldrana með unglinginn á milli sín og dagurinn beið. Það var sunnudagsmorgunn og sólin hún sat við gluggann svo yndisleg. Dagurinn leið þó með örlitlum rigningarskúrum við og við og það var bara til að gera daginn enn eftirminnilegri enda var hlýtt úti og allt var eins best og á varð kosið. Einarshús skartaði sínu fegursta og notaði Gunna Ásgeirs tímann til að skreyta það að utan með bleikum blúndum og pífum á meðan við vorum í kirkjunni. Það kom skemmtilega á óvart að sjá hve skreytingar utanhúss bærðust í takt við íslenska fánann sem dreginn var að húni fyrir utan húsið í allri sinni dýrð. Þetta var æðislegt.
Veislan var öll til fyrirmyndar enda sáu meistarakokkar um trakteringarnar. Allra handa dýrðarkrásir voru á boðstólum í Einarshúsi eitt skiptið enn og hver rétturinn af öðrum bragðaðist guðdómlega. Lilja reið á vaðið og fékk sér fyrst að smakka á eðalfínum og gómsætum réttum fermingardagsins og hver gesturinn á fætur öðrum fylgdi í kjölfarið. Kaffinu á eftir var skolað niður með sætakökum og allir gátu farið heim saddir, sælir og ánægðir. Setið var langt fram á kvöld að spjalli og kvöldið leið í góðum félagsskap. Reyndar var Vertinn orðin lúin áður en yfir lauk og fæturnir þreyttir eftir daginn enda skórnir glænýir og áttu eftir að laga sig að fimu fótum eiganda síns. Er hallaði að miðnætti þótti fermingarbarninu gott að kúra sig undir sængina í nýja rúminu sem hún fékk í fermingargjöf og leggjast til hvílu eftir annasaman dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.5.2008 | 13:20
The day before
Dagurinn fyrir fermingu er runnin upp og allt með kyrrum kjörum. Iðulaus stórhríð geysaði í gærkvöldi og heiðar klosslokuðust. Greiðfært er þó núna á milli staða og gestirnir eru lagðir af stað svo allt verður eins og blómstrið eina í fermingunni á morgun.
Set að gamni blogg stóra bróður fyrir ykkur að njóta og hafa gaman af.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.5.2008 | 11:35
Humátt
Lognið fer frekar hratt yfir þessa stundina og það faldar í ef litið er inn Ísafjarðardjúp. Flugvélin sem ætlar að ferja fólkið mitt vestur er væntanleg upp úr miðjum degi og fyrst munu tengdaforeldrarnir og stóri bróðir minn lenda á Ísafjarðarflugvelli og húsbóndinn og hundur hans koma svo í kjölfarið. Mér sýnist við fyrstu sýn sem vindurinn komi úr þeirri átt sem líklegust þykir til lendinga hér vestra, en annars er ég ekki veðurglögg manneskja en tel þó nokkuð öruggt að áttin komi úr humátt sem er trúlega hin eina og rétta átt. Ekki hef ég þó haft mikinn tíma til að spá í garnir eða annan innmat til að sjá fyrir um veðurfar helgarinnar en hef lagt inn beiðni hjá skapara himins og jarðar um gott veður á hvítasunnudag þegar Liljan mín fermist.
Ekki það að auðvitað hef ég rýnt í veðurkort og séð að hæðir og lægðir liggja sitt á hvað og í kross eftir því hvort landakortið snýr upp eða niður og stundum virðast þær dreifa sér í eintóma hringi sem ég hvorki skil upp né niður í.
Tel ég þó nokkuð tryggt að ef litli veðurfréttamaðurinn hefur spáð stormi um helgina vænti ég þess að það verði sól og blíða og heiður himininn blár og fallegur.
Annað nær auðvitað engri átt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.5.2008 | 01:45
Fyrsta hoppið
Máfarnir á kampinum litu Vertinn í Víkinni stórum augum er hún liðaðist um himinhvolfin í dag á trampólíninu sem komið er á sinn stað í garðinum. Flugumferð raskaðist þó ekki svo neinu nemi þrátt fyrir að gusturinn væri töluverður frá téðum Vert og vargurinn liti í forundran á títtnefnda er hann leitaði ætis við sjávarsíðuna. Háloftavindar tóku því fagnandi að fyrrnefnd væri farin að hoppa á ný og tel ég næsta víst að nágrannar gleðjist efa yfir því að ég skuli geta fylgst náið með öllu því sem fram fer í nærliggjandi görðum. Trampólínhopp eru eitt það skemmtilegasta sem ég tek mér fyrir hendur og er stórgóð hreyfing í alla staði svo er það líka svo einstaklega skemmtilegt. Það er eins og það losni um hláturtaugarnar samhliða þessum prýðilegu grindarbotnsæfingum í taumlausu hoppi og híi. Því fleiri sem hoppa í senn, því meira gaman og fjörið magnast stig af stigi eftir því sem hærra er hoppað hverju sinni.
Eins og fyrr segir trufluðu glæsileg heljarstökk Vertsins á trampólíninu ekki umferð flugvéla í grenndinni og Andri og Þórunn lentu á hárréttum tíma á flugvellinum á Ísafirði seinnipartinn. Öll börnin eru því komin heim í heiðardalinn og mikil gleði ríkir hjá Vertinum og ánægja með að hafa allan barnahópinn sinn í nálægð. Á föstudaginn mætir húsbóndinn með hundinn og tengdaforeldrarnir einnig og í framhaldinu dúkka upp hinir og þessir fjölskyldumeðlimir sem ætla að heiðra tilvonandi fermingarbarn á hvítasunnudag. Heimtur eru góðar í fermingu Lilju og oftnefnd er full tilhlökkunar fyrir deginum. Síðasta barnið verður því hrifsað í fullorðinna manna tölu um helgina og þá er þeim kafla lokið í lífi barnanna minna og nýr kafli að byrja með endalausum ævintýrum. Allt er klárt fyrir veisluna og ekkert annað að gera en að taka hlutunum með ró og spekt og njóta þess að fá gestina í heimsókn.
Einarshús ætlar að skarta sínu fegursta á fermingardaginn og bíður álíka spennt og ég eftir deginum. Það mun verða klætt í kjól og hvítt líkt og allir hinir og umvafið djásnum og demöntum í stíl við alla þá sem mæta og vonandi kemur sólin til með að glitra á herlegheitin og sveipa daginn þeim ljóma sem lifir um aldur og ævi í minningunni.
Ár og dagur er síðan ég fermdist þann 20 maí. Mér finnst þó ekki svo langt síðan þegar ég lít til baka en nokkuð ótrúlegt má teljast að sonur minn eigi átta ára fermingarafmæli, sem nær auðvitað engri átt. Nokkrar bekkjarsystur mínar hafa verið í sambandi undanfarna daga vegna þeirra hremminga sem presturinn sem fermdi okkur virðist hafa ratað í. Ekki legg ég mat á málið fyrr en rannsókn hefur farið fram á meintum brotum.
Við vorum frekar óþekk hjá sr. Gunnari enda var hann frekar ungur og óreyndur fyrir hartnær 30 árum. Við smökkuðum ótæpilega á messuvíninu ( eða strákarnir) og grófum upp bein hér og þar í kirkjugarðinum ( þeas strákarnir). Stundum var klifrað upp í predikunarstólinn ( sko strákarnir) og söfnuðurinn ( þe. við stelpurnar) blessaður eftir kúnstarinnar reglum. Þess vegna hefur lífsleið mín trúlega verið eins góð og raun ber vitni.
Þó ég stórefi á þessu augnabliki að að messuvínið sem ég dreypti á í fyrsta sinni úr bikar Krists á fermingardaginn hafi komið mér á bragðið á sínum tíma og orðið þess valdandi að ást mín á Bakkusi hafi þess vegna farið úr böndum, þá er ég samt þeirrar skoðunar að fylla eigi bikarinn óáfengum drykk svo allir geti fengið að njóta þess að dreypa á blóði frelsarans er gengið er til altaris á hátíðis og tyllidögum.
Trönuberjasafi gæti því verið tilvalinn í staupið til að skola oblátunni niður kverkarnar. Fyrir manneskju eins og mig sem get ekki einu sinni borðað flöskuna úr Nóa Síríus konfektkassanum og því síður drukkið maltöl, þó að það eigi að vera óáfengt, þýðir ekkert að bjóða upp á annað en hreinan og tæran safa úr aldingarðinum því forboðni ávöxturinn er áfengur í mínu tilviki og nægar freistingar eru allstaðar og hvergi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2008 | 17:06
Upphefð
Það þykir nokkur upphefð að fá að spyrja í Kjallarakeppni enda eru spyrjendur sérvaldir af Vertinum í Víkinni og þykja því einstakir að einhverju leiti í augum fyrrnefndrar. Spyrjendur þurfa að sjálfsögðu að hafa eitt og annað til brunns að bera til að Vertinn hafi yfir höfuð áhuga á því að fá viðkomandi á stóra sviðið í Kjallaranum til að láta ljós sitt skína og þar við situr.
Kata Gunn stóð sig fantavel á Kjallarakeppninni enda bráðskörp kona og spurningar hennar skemmtilegar. Það var greinilegt að þar var þaulvanur kennari í aðalhlutverki enda bar hún sig fagmannlega í spyrlahlutverkinu. Næsti spyrill verður Jóhann Ævarsson og næsta spurningakeppni er eftir hálfan mánuð svo fólk er hvatt til að fara að undirbúa sig vel og mæta til leiks ferskt og til í slaginn.
Glöggt mátti sjá þegar orðið var ljóst hvernig skipað var í liðin að tveir menn þóttu nokkuð sigurstranglegir og fullljóst mátti telja að þeir myndu bera sigur úr býtum. Ég tel næsta víst að ef greindarvísitala þeirra yrði lögð saman myndi hún jafnast á við heilan bekk í virtum framhaldsskólum eða öðrum sambærilegum menntastofnunum á landsvísu. Baldur og Gunnar vita nánast allt milli himins og jarðar þegar þeir leggjast á eitt og fóru að sjálfsögðu með sigur af hólmi. Kassinn var því þeirra og gleði ríkti í bæ það sem eftir lifði kvölds.
Benni Sig og Halli mættu svo eiturhressir að vanda og sungu sig inn í hug og hjörtu gestanna. Harmonikkutónar í bland við eldfjörug lög þar sem hver gat sungið undir með sínu nefi, ómuðu í takt við nýrri tónverk og ballöður. Í Bolungarvíkinni hljómaði um Kjallarann og undirtók í húsinu er þessi þjóðsöngur Bolvíkinga var kyrjaður. Sjaldan hef ég heyrt kraftmeiri söng um hve lífið er björgulegt í Víkinni og vel var tekið undir. Ef lagið "Ljúfa Anna" hefði ekki komið strax í kjölfar fyrsta erindis þessa Bolungarvíkurbrags, hefði Vertinn kannski hugsað sinn gang og barið í borðið, enda eru erindin alls 17 að tölu og hefði það einungis verið til þess fallið að æra óstöðugan ef þau hefðu öll verið sungin í belg og biðu.
Kvöldið leið ljúft og var einstaklega skemmtilegt í alla staði. Enn ein notalega kvöldstundin að baki með skemmtilegu fólki.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.5.2008 | 09:01
Ég man
Svo virðist sem örlítið sé farið að örla á minnisleysi hjá téðum Vert. Stundum hellist það yfir fyrirvaralaust að það sem á ekki að geymast falli í gleymskunnar dá. Trúlega er bara ekki pláss fyrir allar þessar upplýsingar í geymsluhólfi heilans og þess vegna leka gagnslausar upplýsingar út og bráðnauðsynlegir óþarfa hlutir tínast í hringiðunni. Þessar smávægilegu hlutir sem endalaust þarf að muna eftir í tengslum við eitt og annað eru ótalmargir, þegar fólk hefur margt á sinni könnu, og stundum getur það verið bagalegt að gleyma því sem nauðsynlegt telst að muna í það og það skiptið. Ekki það að það háir mér ekkert sérstaklega þegar á heildina er litið en samt minnir mig að stundum hafi ég lent í hálfgerðum vandræðum með þetta ótímabæra minnistap á ögurstundum.
Ég man þó það eitt að atburðir undarfarinna vikna verða mér minnisstæðir og mig minnir að sumir hafi komið mér verulega á óvart í atburðarrásinni en ég tel nokkuð öruggt að það muni falla í gleymskunnar dá innan tíðar. Lífsins skóli er mjög lærdómsríkur og hver raun sem ekki drepur er einungis til þess fallinn að herða viðkomandi og gera hann traustari á vellinum.
Í miðri orrahríðinni var Vertinn minnt á að það þyrfti að fara í útréttingar á Ísafjörð. Allt sem vantaði í reksturinn var samviskulega skrifað niður og lagt var fyri títtnefnda að muna nú eftir miðanum svo hægt væri í eitt skipti fyrir öll að treysta því að varan kæmist heim í hús.
Auðvitað mundi Vertinn eftir að blogga þá og þegar og sérstaklega þegar efni stóðu til en lagt var upp með það, eins og ætíð, að segja fallegar fréttar af lífinu og tilverunni og sveipa heimabæinn minn og ævileiðina mína ævintýraljóma í leiðinni.
Miðinn var geymdur samviskusamlega í innkaupaferðinni og oftnefnd mundi eftir öllu sem þurfti að kaupa. Það sem gerði þó þessa ferð svo eftirminnilega voru minnistöflur sem gripnar voru með í mjólkurkælinum í Bónus sem eiga víst að hress upp á minnið hjá fólki sem aðeins er farið að gleyma bara rétt svona endrum og sinnum. Pilluglasið fór fullt tilhlökkunar í pokann tilbúið að þjóna eiganda sínum og skerpta á heilasellunum og koma í veg fyrir frekara minnistap.
Auðvitað mátti ekki gleyma því í millitíðinni að flytja jákvæðar og skemmtilegar fréttir á www.vikari.is, en hann lesa að jafnaði um 30 þúsund manns á mánuði og þar fer fram góð kynning á heimabænum mínum svo um munar. Þar fer fram jákvæð umfjöllun um Bolungarvík nánast á hverjum degi.
Þess á milli þurfti að segja sögu Einarshúss og Péturshúss fyrir ferðamenn sem gleyptu í sig hvert orð. Það vandaðist reyndar aðeins málið í gær er sagan varð að vera á framandi tungumáli en sem betur fer var góður túlkur með í för og heillandi sagan fylgið gestunum út í fyrsta maí. Saga hússins er greypt inn í hugskot Vertsins í Víkinni og hún gleymist ekki hvað sem á dynur enda er sagan hluti af heimabænum mínum og húsið er djásn Bolungarvíkur og þessi perla kynnir heimabæinn sinn með stolti og sóma og Vestfirði alla í leiðinni. Það er téður Vert sem hefur komið ein og óstudd að þeirri kynningu um sögu frumkvöðla og enginn annar, enda kynnir sú magnþrungna saga sig sjálf og rekstur hússins og allt sem þar fer fram er að mínu mati gott fyrir heimabæinn minn. Ég man ekki betur en sagan sé þokkalega velframborin fyrir gesti og gangandi af téðum Vert.
Fermingarundirbúningurinn er svo í algleymingi en allt verður klárt í tíma og ég hef engar áhyggjur af því. Ég hlakka svo sannarlega til að fá alla gestina mína hingað vestur að hlakka enn meira til að eiga með öllum stund á fermingardegi Lilju. Ég er búin að redda öllu varðandi ferminguna og er þess fullviss að ég hef engu gleymt að því sem ég átti að muna varðandi fermingarundirbúninginn.
Miðað við allt sem ég mundi eftir að setja hér niður á blað þá virðist ég muna eftir einu og öðru ekki satt ?? Ég man líka orðatiltækin "Enginn er spámaður í sínu föðurlandi" og "Nýir vendir sópa best" en líka er mér minnsstæð nauðsyn þess að líta björtum augum til framtíðar. Ég ætla líka, á meðan ég man, að halda áfram að kynna heimabæinn minn eins og frekast er kostur enda engin ástæða til annars á þessum spennandi tímum sem framundan eru í Bolungarvík.
Ég man þó ekki betur en það sé einungis eitt sem hrjái mig núna.......það eru minnistöflurnar mínar..............ég man ekki hvar ég setti þær...........ætlið þið að hjálpa mér að leita?
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2008 | 00:41
Nú er lag
Nú tel ég tilvalið að geta þess í tíma að Kjallarakeppnin mun byrja að vanda upp úr 22:30 á föstudagskvöldið. Mun Katrín Gunnarsdóttir spyrja fólk spjörunum úr og tel ég því lag fyrir bráðgáfaða að klæða sig upp á og mæta með skilningarvitin meðferðis. Ég tel trúlegt að greindarvísitala þeirra sem spreyta sig á spurningunum hennar Kötu þurfi að vera vel yfir meðallagi og heilasellurnar þurfa ugglaust að vera vel vakandi ef svara á spurningunum rétt og ná að hreppa kassann af guðaveigunum sem í boði er í verðalaun. Allir eru velkomnir að vanda í Kjallarann til að taka þátt í þessari litlu spurningakeppni sem hefur verið nokkuð vinsæl frá byrjun og trúlega verður kolamolinn á einhverjum afslætti framan af.
Benni Sig mun svo mæta til leiks síðar um kvöldið. Ekki er vitað með vissu hvort hann mæti einn til leiks eða hafi meðferðist annan tónlistarmann sér til halds og trausts. Ég tel amk. bráðnauðsynlegt að mæta og skemmta sér hið besta með Benna út í nóttina. Ég mæli með miklum mannfagnaði þetta kvöld og hátíð í bæ, því sumarið nálgast og engin ástæða til annars en að líta björtum augum til framtíðar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm