Suðrænn og seiðandi

Suðrænn og seiðandi andvarinn leikur um Vertinn í Víkinni þessa dagana. Hitastigið er líkt og á sólarströnd og laufléttur fatnaður hefur verið tekinn upp úr töskum og fær að njóta þess að hylja helgustu bletti líkamans. Núna um hánótt er hitinn 16 gráður og augnablikið ævintýralegt og framandi.

Elsa flýgur til framandi landa í fyrramálið með bekkjarfélögum sínum og hyggst njóta sömu sólar og við hin. Spánn mun taka á móti dömunni með viðhöfn og vonandi verður sumarleyfið ógleymanlegt. Lilja upplifði ævintýralega stund í kvöld því henni var boðið í flugferð með bróður sínum og þau systkinin flugu yfir Víkina og veifuðu til mömmu sinnar sem stóð agndofa á jörðu niðri. Þetta venst þó að horfa á eftir hverjum fjölskyldumeðlimnum á fætur öðrum upp í þessa litlu flugvél og upp í himinhvolfin. Hringurinn þrengist dag frá degi og senn líður að því að Vertinn verður að taka sér far og fljúga með drengnum. Nokkuð ljóst má telja að það verður eftirminnileg ferð sem lengi verður í minnum höfð. Ef þið eruð heppin þá munuð þið fá að heyra þá ferðasögu frá upphafi til enda.


Áskorun

Pétur og Einar verður sýndur á fimmtudagskvöldið kl. 20:00 og er það síðasta sýning í bili. Fleiri sýningar munu þó verða í framhaldinu en ekki er vitað um það að svo stöddu hvenær þær verða. Það er því lag núna fyrir þá sem enn eiga eftir að koma og sjá kaffileikhúsið að mæta á fimmtudaginn og njóta sögunnar.

Skorað er á starfsmenn Vélsmiðjunnar Mjölni að mæta en einnig þykir tilhlýðilegt að hvetja Vélvirkjann til að bjóða sínu starfsfólki á sýninguna. Tilvalið telst fyrir starfsmenn Bjarnabúðar að mæta og allir smábátakarlarnir eru hvattir til að bregða undir sig betri fætinum og bjóða sínum heittelskuðu í leikhús. Allir ferðamenn sem eiga leið um bæinn mega einnig koma sem og aðrir íbúar svæðisins í heild sinni, nýbúar, molbúar og bara frónbúar héðan og þaðan geta mætt en einnig má geta þess að þurfalingar og puttalingar eru velkomnir. Háir sem lágir geta mætt með ríkum og fátækum og konur geta komið með körlum og svo öfugt. Kærustupör eru sérstaklega vel séð á sýninguna og allir litlir og stórir, mjóir og langir, en einnig eru þeir sem eru vel við vöxt hvattir til að mæta. Brosmildir og hláturmildir, jákvæðir og bjartsýnir fá sérstakar kveðjur Vertsins ef þeir mæta á sýninguna sem og allir hinir sem geta komið á meðan húsrúm leyfir


Afmæli

Það var eins og við manninn mælt að er Vertinn tók upp á því að blogga fyrir alvöru fóru diskasamstæður moggans á hliðina og kerfið koslúttaðist. Myndin af flugtaki sonarins hefur án efa gert útslagið og enn er allt í hálfgerðri steik og menn leggja sig alla fram um að gera við það fór úr böndum er kerfið hrundi. Vertinum líður ekki vel ef eitthvað amar að bloggsíðunni og fer alveg á taugum ef útlit síðunnar breytist eða eitthvað verður öðruvísi en venjulega.

Vertinn er að jafnaði mjög vanaföst og telur betra að hafa hlutina í föstum skorðum en viðukennir þó fúslega að stundum raskast stöðuleikinn en það er líka ágætt að geta stundum breytt út af vananum svona endrum og eins. Glöggt má sjá vanafestu Vertsins í hjónabandinu því 19 ára brúðkaupsdagurinn minn er runninn upp í allri sinni dýrð og bíður okkur góðan dag með yndislegu veðri og sólskini.

gifting 1_0001

Glöggt má sjá hve þessi nýgiftu hjón er sæl og glöð á brúðkaupsdaginn. Hlátur er einkennandi fyrir lífið á þeirra heimili og sprell og fjör oft í hávegum haft.

gifting 2_0003

Hláturinn lengir lífið og því er best að hlægja eins oft og lengi og þurfa þykir og við höfum reyndar hlegið mikið saman gegnum árin og best er að minnast gleðistundanna. Eiginmaðurinn gisti reyndar á Patreksfirði í nótt ásamt hundinum Dollar. Ekki vegna þess að hann taki hundinn alveg framyfir eiginkonuna ennþá, heldur fóru þeir félagar í vinnuferð. Er húsbóndinn kemur heim í dag munum við mæta glaðbeitt í kaffisopa hjá mömmu en hún heldur upp á 78 ára afmælið sitt í dag. Hún mun án efa baka pönnukökur eins og hún á vanda til og bjóða upp á uppáhaldssúkkulaðið. Þá verður lífið eins og það á að vera.

 

 

 


Flugtak


Flugferðin

Ingi, Ceres, Ýmir gall í hátarakerfi flugstjórnar í Reykjavík er sonurinn tilkynnti sjónflug um Vestfirði í kvöld. Áætlaður flugtími var ein og hálf klukkustund og flugþol fjórar og var flughæð mest 3000 fet sem er u.þ.b einn kílómeter. Flughæðin var 1000 fet yfir Bolungarvík er vélin sólaði hringi yfir bænum og veifaði til bæjarbúa. Það var frekar skrýtin upplifun að sjá á eftir feðgunum fljúga upp í háloftin og enn skrýtnara til þess að hugsa að sonurinn væri við stýrið og bæri ábyrgð á lífi og limum þeirra sem um borð væru. Hann er þó einstaklega passasamur enda er ekki annað í boði hjá ábyrgum flugmönnum.

Andri flugmaður

Mamman á eftir að fara með í fyllingu tímans. Þá skulu háloftavindar vera til friðs og útsýnið vera hið fegursta. Betra telst þó að láta flakka með mynd að flugfreyjunni í flugferðinni sem ekki reyndist vera pláss fyrir þegar allt kom til alls. Því var ekki hægt að fá svala og kaffi í ferðinni en flugið reyndist hið ánægjulegasta þrátt fyrir það.

Flugfreyjan um borð

Hér á myndinni má sjá litlu flugvélina með feðgana innanborðs á leið í loftið

Feðgar á leið í flugferð

 


Sólarlagið

Sólarlagið 25.07.08

Himneskt


Á bólakaf

Svona var nú lífið á höfninni í Bolungarvík í dag er tilvonandi björgunarsveitarstúlkur æfðu stökk og dýfingar. Lilja, Rebekka og Lovísa Anna létu sig vað æ ofan í æ og lífið var ljúft.

Svona var Bolungarvík í dag


Fullt hús

Fullt hús af fólki mætti í hádegið í himneska fiskisúpu úr hinu besta sjávarfangi úr Ísafjarðardjúpi. Þeir 50 Garðbæingar sem tilheyra félagi eldri borgara voru góðir gestir og kunnu vel að meta trakteringarnar. Sagan fylgdi í kaupbæti og heillandi frásögnin sogaðist inn í vitund gestanna sem urðu fyrir hughrifum og nutu augnabliksins og súpan þótti framúrskarandi. Kostgangarnir urðu að sætta sig við að borða í borðstofunni og tveir hópar fengu mat í Kjallarann svo borðað var í hverju skúmaskoti og allt gekk eins og í sögu.

Fullt hús var á Pétri og Einari í kvöld og matargestir í bland við kaffileikhúsagesti nutu kvöldsins. Reyndar var um tíma of mikið að gera á vissum tímapunkti en allt gekk þó á endanum og allir fóru heim saddir og sælir fyrir rest. Einstaklega gaman er að geta þess að nánast er alltaf fullt á sýningunni og allir virðast jafnánægðir og ævintýrið heldur áfram.  Næsta sýning er á fimmtudagskvöldið kemur og áskorun verður birt þegar nær dregur en Sparisjóðurinn mætti með hluta af sínu starfsfólki í kvöld svo ætla má að fleiri fjármálastofnanir verði hvattar til að mæta á næstu sýningar. Af þessu má sjá að rúmlega eitthundrað manns komu í hús gleðinnar í dag og það er vel. Svona eru sumir dagar undirlagðir af gestagangi og það er svo skemmtilegt og upplífgandi.

Nýja myndavélin fær oftast að vera um hálsinn á Vertinum og ný myndefni má sjá í hverju horni. Þetta á án efa eftir að verða nýja æðið hjá téðum Vert og mun hertaka hugann í einhvern tíma. Myndir eru sendar í þar til gerðar grúppur á flickr síðunni þar sem ljósmyndasíða Vertsins trónir á toppnum og viðkomandi hefur tekið þátt í ljósmyndakeppnum hér og þar og hyggur á landvinninga á ljósmyndasviðinu.

Læt fylgja mynd af húsbrunanum í Dísarlandi en þessi mynd hefur birts víða í dag.

Kveikjum eld


Djásnið

Fyrir þá sem ekki hafa séð djásnið síðan það fékk andlitslyftingu og var lagt skrautlistum í kringum gluggana þá er tilvalið að berja það augum hér og nú. Þessi mynd var tekin um helgina um hánóttina þegar nóttin var ung og allt í fullu fjöri inni á kránni.  Tvær ungar konur anda þó að sér fersku lofti gegnum fílterinn á sígarettunni í kjallaratröppunum en reykingar hafa að sjálfsögðu aldrei verið leyfðar í þessu húsi og var Vertinn langt á undan sinni samtíð að banna reykingar á öldurhúsum á Íslandi. Glöggt má sjá ef vel er að gáð að djásnið dillar sér við hljómþýða röddina hans Benna Sig sem hljómar úr Kjallaranum við mjög svo taktfastan ritma bongótrommunnar.

Einarshúsið á sumarnótt

Þetta er æðislegt hús.


Um hánótt

Vertinn situr ein í næturhúminu og vesenast. Nóttin er yndisleg og veðrið er fallegt. Hægt er með góðu móti að fara út á kjólnum og vindurinn stendur kyrr og blæs ekki einu sinni ofan í hálsmálið á viðkomandi. Sumarnóttin er engu lík og húsið andar svo hljótt enda allir sofnaðir en hughrif nætursólar halda vöku fyrir téðum Vert.

Ljósmyndaáhuginn orðinn nokkuð yfirgengilegur vegna nýju myndavélarinnar sem keypt var ljósmyndaranum til handa. Allt skal gert með trompi enda er það einkenni óvirkra alka að gera allt með stæl. Vertinn er hoppandi og skoppandi um móa og mela leitandi að efni til að festa á filmu og stundum ratar augnablikið inn á minnið í nýju Lumix vélina. Hægt er að taka mynd af öllu mögulegu en misjafnt hve vel það sómir sér í mynd og stundum er vandi að setja hlutina í rétt samhengi til að það líti út fyrir að vera vitrænt. Ljósmyndasíðan mín fæddist í dag með aðstoð Auðar og hægt er með auðveldum hætti að finna hana hér til hliðar á síðunni og fylgjast með nýjustu myndunum sem koma vonandi jafnt og þétt í framtíðinni. Heimasíða Einarshússins fékk einnig sess á bloggsíðunni og tilvalið að fylgjast með því sem sett er á hana í tíma og ótíma.

Vertinn sinnti einnig fanggæslustörfum um hríð og aðstoðaði vermanninn í Ósvör eitt augnablik eða rétt á meðan mynd var smellt af stelpunni með vermanninum í skinnklæðunum. Það er sko ekki amalegt að fá að leika hlutverk af þessu tagi í tilverunni og ótrúlegt en satt þá virðist Vertinn í Víkinni leika öll aðalhlutverkin í skemmtilegasta leikriti lífsins. 

P1000642

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband