Vertigo

"Góðkynja stöðusvimi" eða "benign paroxysmal positional vertigo" kallast fyrirbærið sem angrar jafnvægið hjá Vertinum um þessar mundir. Snarsvimi gerir vart við sig þá og þegar og ruglar það heiladinglinum og gerir viðkomandi ringlaða um stund. Allskyns æfingar eru nauðsynlegar til að koma jafnvægi á heilann því núllstilla þarf heilataugina til að allt fúnkeri eðlilega og myndarlegi læknirinn hefur verið heimsóttur í tíma og ótíma þar sem hann hefur farið yfir æfingarnar með margnefndri. Ekki lét téður Vert það slá sig útaf laginu því vikufríið beið handan hornsins og tilhlýðilegt taldist að halda sig við áður ákveðið plan enda á jafnvægisleysið að brá af á nokkrum dögum.

Ragna í grjóti

Haldið var því til höfuðborgarinnar með viðkomu Skötufirði þar sem myndin var tekin í steinhúsi en þaðan var haldið í Reykjanes og þar var ljúft að vera eins og ætíð. Frekar heitt var þó í herberginu eins og svo oft áður því stillilogn var úti og andvarinn gat því ekki leikið um herbergið. Sundlaugin í Reykjanes stóð þó fyrir sínu eins og alltaf og gott að díva tánni í heitt vatnið fyrir svefninn. Kollafjarðarheiði beið svo bljúg og góð í Ísafirðinum í gær og það var sérstaklega gaman að keyra hana en það er í fyrsta sinni sem Vertinn fær þeirrar ánægju aðnjótandi að sækja þessa fornu heiði heim.

Bjart var yfir Búðardal og glöggt mátti sjá hve þetta litla bændasamfélag var komið sterklega á kortið. Hlýtur að mega þakka það nýjum sveitastjóra þorpsins sem fékk þann heiður að fá að komast á kortið sjálfur með aðstoð Bolungarvíkur. Frá langömmu heillinni í Búðardal var haldið í humátt til Rutar frænku minnar í Gröf á Hvalfjarðarströnd en hún er dóttir Gríms á Ósi og eru hún og mamma systradætur. Á myndinni er hún með bónda sínum, Jóni. Þaðan var brunað í bæinn og rétt í þann mund er Gleðigöngunni var að ljúka í hjarta höfuðborgarinnar ókum við glaðbeitt inn í borgina er löðrandi leðurilmur sveif yfir vötnum. 

Rut og Jón

Dagurinn í Reykjavík í dag bíður svo upp á bolvíska bongóblíðu. Sólin mun því leika við margnefnda er hún færir sig á milli verslana í æðislegri leit að varningi sem bráðvantar. Ætlunin er að kaupa flísar og flikka upp á eitt og annað á heimilinu og því er nauðsynlegt að kaupa inn á stórútsölum borgarinnar sem nú standa sem hæst.

Það verður þó að segjast alveg eins og er að gott er að komast í burtu frá Bolungarvíkinni eins og hún er nú indæl alla jafna enda er það nauðsynlegt að taka sér frí endrum og eins. Bolungarvíkin mun trúlega bjóða upp á blóðrautt sólarlag á meðan viðkomandi er fjarverandi. Vonandi verður þó enginn baðaður upp úr blóði hennar í vikunni sem framundan er. "Elskið þá sem eru yður þóknanlegir og leggið fæð á hina" er varla eitt af boðorðum vikunnar enda ekki boðorð yfirleitt, enda er slíkt ekki boðlegt í litlum samfélögum og ekki til þess fallið að auka hróður út á við.

Vitnað er nú í "Víkina mína" sem Vertinn samdi fyrir þorrablótið en einhver bolvískur rembingur helltist yfir óforvendis:

 

Víkin mín fríða í fjallanna sölum

Víkin svo fögur við ólgandi haf

Víkin sem skartar svo fallegum dölum

Víkin sem drottinn af góðmennsku gaf

Víkin sem vonir í brjóstunum vekur

Víkin mun vandlega hlúa mér að

Víkin sem huga minn alfarið tekur

Víkin í hjarta mér ætíð á stað

 

Vertinn var ekkert smá upp með sér að þetta erindi skildi verða notað í minningargrein um mann sem jarðaður var nýverið og gladdi það margnefnda mikið.

Að endingu er birt mynd af ástföngnum pörum sem tekin var á Ísafirði fyrir skömmu. Þar blómstraði ástin og kærleikurinn. Þessi pör eru nú stödd norður í landi og þar mun ástin einnig blómstra og kærleikurinn og þá er tilgangi lífsins náð.

andri og þórunn

Bið að heilsa í bili

Verti-go

 

 

 

 


Húsin þrjú

Einarshús verður að sýna af sér sérstaka þolinmæði þessa dagana því smiðurinn getur lítið sinnt því um þessar mundir. Ástæðan er sú að téður Vert á aðra höll á staðnum sem dytta þarf að og mála og færa í nýjan búning og er það ærin vinna að halda því í horfinu. Það að eiga ein tvö glæsilegustu hús staðarins er auðvitað kostur útaf fyrir sig og mikið gleðiefni fyrir margnefnda. Húsið að Hólastíg er búið að veita fjölskyldunni örugg skjól undanfarin 15 ár og mun án efa gera það eitthvað áfram.

Hólastígur

Önnur sumarhöll hefur þurft að lúta í lægra haldi frá því að fjárfest var í Einarshúsi en það er Hólakot í Dýrafirði. Haldið verður þangað þegar um hægist og tími gefst til. Þaðan eigum við margar minningar og góðar.

Hólakot

Einarshús er svo stærsti demanturinn í hópnum og trónir á toppnum í þessu þríeyki húsa Vertsins í Víkinni og hennar skylduliðs.

Einarshúsið á sumarnótt

Jón Bjarni hefur unnið nokkuð mörg handtökin í þessum húsum þremur og á í raun heiður skilið fyrir ótrúlega eljusemi í gegnum árin við endur- og uppbyggingu húsanna þriggja

 

 

 

 


Rétt fyrir svefninn

Lítið að segja annað en bara ágætt. Dáleiðisdrullan á undanhaldi og verður án efa horfin á morgun. Legusár eru þó ekki farin að gera vart við sig enn svo brýnt telst að koma sér úr bælinu hið fyrsta. Falleg mynd af Bolungarvík má fljóta með svona rétt fyrir svefninn

Bolungarvík höfn

Eins og málverk sagði einhver


Jafnvægisleysi

Jafnvægisleysi hrjáir margnefnda í dag og Vertinn riðar til falls í áttunda hverju spori og veröldin hringsnýst og ógleðin bíður færis. Þessi vanlíðan varð þess valdandi að læknirinn á staðnum var sóttur heim og fengin til að taka heilsufarið út á viðkomandi Vert. Oftnefnd fer alla jafna ekki til læknis enda heilbrigðið uppmálað og fílhraust eins og öll ættin langt aftur í fornöld. Í þetta skipti þótti það tilhlýðilegt að fara í læknisheimsókn til að koma í veg fyrir frekari lasleika, því sumarfrí bíður handan hornsins og heilsan þarf að vera í fullkomnu lagi.

Um leið og litið var framan í þennan unga og fallega lækni sem sinnir nú læknisstörfum í bænum fór ýmislegt að skýrast sem áður hafði valdið heilabrotum. Hluti vinnuhjúanna í Einarshúsi hefur nefnilega verið einstaklega lagin við að slasa sig á alla lund og tíðar læknisferðir hafa verið daglegt brauð. Leiðin upp á heilsugæslustöðina hefur verið farinn í tíma og ótíma og hafa brunasár og stungusár í bland við allrahanda bráðaveikindi blossað upp á ögurstundum. Í upphafi mátti halda að tíðar slysfarir væri til þess fallnar að kría út smá frí endrum og eins en alltaf mæta þessar elskur í vinnuna hvernig sem stendur á og slasa sig oftar en ekki jafnóðum í framhaldinu. Sáraumbúðir á höndum og fótum hafa ekki komið að sök í vinnunni og aldrei hefur verið kvartað eða kveinað svo neinu nemi. Nú hefur ástæðan litið dagsins ljós, læknirinn er svo sætur að vinnukonur láta það ekki eftir sér að brenna sig og stinga til þess eins að láta hann líta á sig eitt augnablik.

Þessi bráðhuggulegi piltur tók blóðþrýstinginn af Vertinum og hlustaði eftir hjartslættinum. Hjartað virtist slá í eðlilegum taki og blóðið þrýstist um æðarnar akkúrat á fyrirfram ákveðnum hraða og allt virtist í normal farvegi. Ekki var mislyndi miðaldra húsfreyju kennt um né móðursýki eða athyglissýki, hvað þá hugsýki. Ekkert amaði að nema þá helst þessi hringlandi í höfðinu sem jafnar sig vonandi í dag en til stendur að taka daginn rólega og slappa af sem næst rúminu.

Vertinn hefði auðvitað þegið að hafa lækninn "standbæ" við rúmstokkin ef á þyrfti að halda, alls ekki vegna þess að hann ber með sér svo mikinn þokka, heldur vegna þess að blóðþrýstingurinn gæti falli þá og þegar og hjartað hreinlega hætt að slá. Ég fer kannski aftur til hans á morgun og trúlega aftur á hinn, ekki vegna þess að hann sé svo myndarlegur, heldur getur hugsýki tekið sig upp ásamt móðursýki sem leiðir af sér svima og ógleði sem gæti valdið athyglissýki á háu stigi.

Eitt ætla ég þó að gera fyrst.....ég ætla að lesa yfir vinnuhjúunum og sjá til þess að þær séu ekki að slasa sig að óþörfu til þess eins og fá athygli læknisins á staðnum.

Æ, mig auma...svakalega er ég orðin eitthvað slöpp...ætli sé ekki best að ég fari og hitti lækninn og fái hann til að kíkja á mig og lækna þetta jafnvægisleysi í leiðinni

 


Myndir úr garðinum

Glögglega má greina aukinn áhuga á skrifum margnefndrar frá því að nýja myndavélin komst í réttar hendur. Myndir af flugferðinni má sjá á hinum margfræga netmiðli www.vikari.is sem tröllríður húsum um allan heim og þykir einn af merkilegri netmiðlum hér og þar um veröldina. Margir eru Vertinum og fréttaritaranum þakklátir fyrir að fá að fljóta með í flugið og fá að njóta þess sem fyrir augu bar með því að skoða myndirnar og upplifa andartakið úr háloftunum. Myndavélin er við það að brenna yfir er mikið liggur við en auðvitað eru aðeins örfáar birtingarhæfar á endanum. Myndband af flugtaki Vertsins og sonarins festist ekki með nokkru móti á blogginu og vísa ég því til föðurhúsanna að stjórnborðið sé endanlega komið í lag eftir bilunina um daginn.

P1010223

Myndir verða þó birtar hér í belg og biðu frá afmælisdeginum hennar mömmu. Sólin baðaði alla sem vettlingi gátu valdið í garðpartýinu sem hún hélt fyrir fólkið sitt.

P1010243

Mæðgurnar mættu prúðbúnar í partýið og stilltu sér upp óafvitað alveg eins og glöggt má sjá á myndinni að sjaldan fellur eplið langt frá eikinni

P1010260

Æskuheimilið stóð á sínum stað og haggaðist ekki frekar en fyrri daginn.

P1010251

Og Bína kelaði við Dollar eins og hún er vön.

 

 


Myndlistarsýning í Einarshúsi

Sigrún Sigurðardóttir heldur nú myndlistarsýningu í Einarshúsi. Hún er fædd og uppalin á Þingeyri við Dýrafjörð en er búsett á Ísafirði. Sigrún hefur sótt tvö námskeið í listaskóla Rögnvaldar Ólafssonar á Ísafirði og nokkra einkatíma hjá Sólrúnu Björk Benediktsdóttir nema og listakennara í Bandaríkjunum. Sigrún hefur áður haldið sýningar í gamla samkomuhúsinu í Haukadal í Dýrafirði, á Langa Manga á Ísafirði, á Kaffi Edinborg á Ísafirði og á Kaffi Vor í Dýrafirði. Sjón er sögu ríkari og eru gestir og gangandi hvattir til að líta inn og skoða málverkin hennar Sigrúnar.

Systkinabörn

Hér á myndinni má sjá börnin okkar al-systkinanna og tengdabörn. Elsu vantar á myndina enda er hún í útskriftarferð á Spáni. Einnig vantar Bjarna Kristinn Guðjónsson og Sigurð Smára Kristinsson sem ekki eru á svæðinu. Þetta er afar föngulegur hópur sem Vertinn í Víkinni er upp með sér að eiga.

Systkinabörn

Þóra, Maggi, Andri, Þórunn, Bryndís og Lilja


Kvöldtónar

Verslunarmannahelgin hefur verið fremur róleg og lítið um heimsóknir að deginum. Kvöldin hafa hinsvegar verið góð og mikil gleði verið í hávegum höfð. Í gærkvöldi mættu einir tveir ástsælustu gítar-og mandólínleikarar sem Bolungarvík hefur upp á að bjóða í Kjallarann  og það var óvænt og skemmtilegt og féll í kramið hjá viðstöddum. Kalli Hallgríms og Hjörtur Trausta tónuðu vel saman og léku vel valin lög fyrir gesti. Það var dansað og sungið og mannskapurinn var í miklu stuði fram á rauða nóttina og það var gaman.

Kalli og Hjörtur


Flugrás Ísafjörður local

Ekki var loku fyrir það skotið að  Vestfirsku fjöllin litu með velþóknun á Vertinn í Víkinni er litla Cessnan klifraði upp Skutulsfjörðinn í áttina að himinhæðum eftir hádegisbilið í gær. Mikil gleði ríkti meðal steinrunna trölla er fregnir bárust af flugferðinni og eftirvænting var algjör að sjá nú loks til margnefndrar. Flugtakið var æðislegt og í raun ótrúlegt að téður Vert skildi láta sig hafa það að setjast upp í svo lítið flugfar og láta vaða. Það var reyndar vitað mál að að þessu kæmi og því tilvalið að bóka flug í þessu veðri sem leikið hefur við okkur hér vestra undanfarið.

P1010436

Klifrað var upp af yfirvegun og Ísafjarðadjúpið lá kylliflatt fyrir flugfarþegum. Jökulfirðirnir réðu sér ekki fyrir kæti er þeir sáu þessi mæðgin saman á flugi og fuglarnir sveimuðu látlaust í kring svo alsælir að hafa fengið að fljúga við hlið þessara stórmerku flugvélar með einn dýrmætasta farm sem um getur. Þuríður sundafyllir átti ekki orð er Vertinn veifaði  drottningarvinki og Óshyrnan, Ernirinn og Traðarhyrnan nánast brustu í grát af fögnuði. Í sannleika sagt var þetta æðislegt enda landslagið stórbrotið og töfrandi. Flugmaðurinn einstaklega ábyrgðarfullur og traustvekjandi svo ekkert var að óttast.

Er stefnan var tekinn inn Önundarfjörðinn fór uppstreymi að gera vart við sig og fjöllin fóru að blása vindinum í áttina að vélinni. Smá hoss og hí kom þó ekki að sök og þrátt fyrir þennan hrekkjaskap fjallanna í kring þá stóð Vertinum alveg á sama. Dýrafjörður bauð líka upp á háloftavinda sem léku við Cessnuna. Til stóð að lenda á Þingeyrarflugvelli en flugmaðurinn ákvað a bíða með það þar til síðar. Gemlufallsheiðin og Breiðadals og Botnsheiðar buðu Vertinn velkominn og lífið var ævintýri líkast. Einn hringur var tekinn yfir Ísafirði svona rétt í lokin og lent var aftur á Ísafjarðarflugvelli eftir 50 mín. flug. Án efa á margnefnd eftir að fljúga aftur þegar fram í sækir enda eru þetta forréttindi að fá að sjá Vestfirði frá þessu sjónarhorni. Get því miður ekki birt neinar myndir með þessari færslu vegna bilunar á moggablogginu. Svo það verður að bíða betri tíma

 

 

 

 


Á leið í flug

Vertinn er á leið í flugferð með syninum

Adios Amigos


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband