24.8.2008 | 23:47
Fjölgun
Gaman er að geta þess hve Vertinn bólgnar út dag frá degi en fjölskyldan virðist stækka óðfluga. Sú fregn sem birt var hér á blogginu, með vilja, um að margnefnd ætti von á barni hefur valdið taugatitringi í bæjarfélaginu. Líklega finnst mörgum óhugsandi að nægur tími finnist í sólarhring Vertsins í Víkinni til að huga að einu barninu enn og eflaust þykir öðrum að viðkomandi ætti að eyða tímanum í annað og vitlegra en að búa til börn í gríð og erg. Gróa á Leiti gladdist þó óskaplega yfir fréttunum og másaði og blásaði um þessa fregn við eldhúsborðið hjá málglöðum meyjum hér í byggðarlaginu sem hristu hreinlega hausinn yfir þessu framferði viðkomandi Verts og vitleysisgangi að vera að fara að fjölga mannkyninu kominn á þennan aldur.
Hægt er nú að geta þess að "barnið" birtist í dag en Ida kom örlítið fyrir tímann því þessi norski skiptinemi, sem ætlar að dvelja hjá okkur í vetur, átti að koma með kvöldvélinni en lenti á Ísafjarðarflugvelli í morgun. Til allrar hamingju voru aðrir "nýbakaðir" foreldrar á vellinum að taka á móti hinum skiptinemanum sem mun dvelja hér vestra og tóku þau Idu með sér heim og þangað var hún sótt um hádegisbilið. Skemmst er frá því að segja að þessi nýi fjölskyldumeðlimur er einstaklega geðug stúlka og virðist falla vel í hópinn við fyrstu kynni og eru allir einhuga um að láta samveruna ganga vel.
Upplagt þykir að setja myndir af öllum hópnum sem dvelur að staðaldri á heimili Vertsins og einnig þeim sem dvelja svona endrum og eins og jafnvel oftar en það. Eins og glöggt má sjá þá er þetta afar fríður hópur enda samankomnir einir frábærustu krakkar sem ég þekki.
Hér má sjá Elsu, Einar, Lilju og Idu og á myndinni fyrir neðan eru Þórunn og Andri
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.8.2008 | 14:11
Til hamingju Ísland
Vertinn er aldeilis forundrandi yfir árangri Íslensku strákanna í handboltanum. Þessi dásemdarljós skutu Spánverjum ref fyrir rass er þeir sigruðu með glæsibrag með sex marka mun nú rétt í þessu. Koma strákarnir okkar því til með að spila um gullið á Ólimpíuleikunum. Téður Vert er uppfull af rembingi og rígmonti yfir því að eiga þvílíkt og annað eins stóð af krúttum og kjútípeyjum sem kunna betur en flestir aðrir að spila handbolta. Taugaspennan er þó í rénun eftir leikinn en geðshræringin og þjóðarrembingurinn er enn allráðandi. Ef einhvertímann hefur rignt upp í nefið á margnefndri þá er það í dag, það eitt er víst. Ég leyfi mér að gera orð ekki ómerkari manneskju en Silvíu nótt að mínum og segi " Til hamingju Ísland" með að skara framúr eitt skiptið enn.
Í tilefni af þessum frábæra árangri verður fagnað í Einarshúsi í kvöld þar sem tveir kolamolar verða á verði eins frá kl. 22:00 til kl. 24:00 og eru menn hvattir til að láta fagnaðarerindið berast milli fullorðinna og ráðsettra einstaklinga í bænum og í nágrannabyggðarlögum einnig. Euróvisionlög munu óma í græjunum í bland við allrahanda tónlist og stóra sviðið er á lausu fyrir tónelska hljómlistarmenn sem vilja troða upp og láta ljós sitt skína.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.8.2008 | 01:29
Haustið við súluna
Haustið nálgast og brýnt er að setja niður dagskrá vetrarins í Einarshúsi. Hugur Vertsins í Víkinni og vinnuhjúanna er uppfullur af skemmtilegum hugmyndum sem reyna á að láta verða að veruleika í vetur til að létta fólki lundina og bæta geðið í skammdeginu. Súludans verður þó ekki í boði fyrst um sinn enda súlurnar í Kjallaranum ekki til þess fallnar að rugga sér mikið í lendunum eða nudda sér fast upp við þær vegna ótta við að fá tréflísar í kroppinn. Margir hafa þó reynt að láta líkamann leika við trésúlurnar í Kjallaranum og nýtt sér stöðugleika þeirra til að halda jafnvægi í dansinum en það hefur aldrei farið úr böndum svo neinu nemi. Súlurnar munu því eingöngu gegna því veigamikla hlutverki að halda húsinu stöðugu og sjá til þess að það falli ekki um sjálft sig og detti framfyrir sig þegar síst skyldi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 02:37
Útskriftarbragur
Þrátt fyrir að öll viska Vertsins í Víkinni sé ásköpuð eða meðfædd hefur viðkomandi þó gengið menntaveginn af og til. Einhver framhaldskólamenntun hefur fylgt téðum Vert gegnum árin og hin og þessi námskeið prýða ferilskránna. Til að mynda er margnefnd útlærð í listeríu-gerlafræðum og fengið orðu þess vegna fyrir þriftæknistörf í þágu hreingerninga í Bakkavík. Einnig hefur oftnefnd sótt ræðunámskeið, verið í málfreyjunum og setið námskeið í Menntasmiðju kvenna svo fátt eitt sé nefnt. Oftsinnis reynt að læra á gítar en ekki tekist og þar spillir án efa lélegt tóneyra fyrir framförum á því sviði. Það viðurkennist hér og nú að margnefnd er frekar ólagviss og getur með glans vaðið úr Atti katti Nóa yfir í Einsa kalda úr Eyjunum án þess að verða þess var að laglínan riðlist svo neinu nemi.
Eins og fram kom í fyrri færslu fundust pappírar í drasli í tiltekt gærdagsins. Þar leyndist bragur sem fluttur var á Bifröst er sótt var námskeið fyrr á árum. Tilvalið telst að setja braginn á bloggið til frekari varðveislu en hann var saminn í tilefni af útskrift í Mætti kvenna á Bifröst 9. maí 2004. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og téður Vert skolar ekki líkjörum í lítravís niður lengur enda hefur lífsins skóli leitt það í ljós að þess þarf ekki. Bragurinn var fluttur af Mæðuveikikór máttugra meyja í lokahófi á Hótel Borgarnesi. Þess ber að geta að bragurinn er örlítið klúr á kafla og er því varla fyrir sakleysinga sem eru sérstaklega varaðir við neðanmittisdjóki. Þrátt fyrir það var hann fluttur fyrir ráðherra og rektora án þess að nokkur fengi rönd við reist. Lagið er Flagarabragur
Útskriftarbragur
Viðlag:
Hér við skemmtum okkur saman
staðráðnar í því að hafa af því gagn og gaman.
Vafalaust nú viskan mun um æðar okkar renna
því virkjað höfum ógnarkraft, sem býr í Mætti kvenna.
Í Fræðslumiðstöð funduðum við verkefnin að klára
á fyrirlestra hlustuðum með athygli hjá Smára.
Í upplýsingatækni þurftum eilítið að hugsa
hjá Önnu Rún ei þýddi neitt, að skrópa eða slugsa.
Er gerðum við í markaðsmálum uppgötvanir merkar
með guðaveigum þurftum þá að væta okkar kverkar
og líkjörum í lítravís við skoluðum þá niður
og lærdómsmeyjum þótti það, skrambi góður siður.
Viðlag:
Af kraftinum við konur unnum áætlunargerðir
því kunnáttan í slíku efni huga okkar herðir.
Þótt Eygló lærði yfir sig, þá gegnum tárin brosti´
og síðan hefur dvalið í, léttu taugalosti.
Í fjármálum hann kenndi okkur prósentur og mengi
og lagði sig í líma við að tala nógu lengi.
Þó var það ei að síður alveg guðdómlegur lestur
hann hljómaði úr tölvunni, sem biskup eða prestur
(man reyndar ekki við hvern er átt)
Viðlag:
Í heilsubænum Petrína þarf allmörgu að sinna
að stuðla að heilsueflingu er heljarmikil vinna.
Á meðan situr Ragna oft á bæjarstjórnarfundum
en þess á milli lærðu þær, nánast öllum stundum.
Til Pálínu við fórum eitt sinn amstrinu að gleyma
með von. um það að meðhjálparinn hennar væri heima
En allt það kvöld við urðum bara bókfærslu að læra
því Herkúles sá frómi fýr, lét ekkert á sér kræla.
Viðlag:
Og karla okkar kvörtuðu í sífellu í hljóði
er viskan fyllti okkar vit svo næstum út úr flóði.
Því námið hér í Mætti kvenna settum við á oddinn
og aldrei gafst neinn tími til, að fá sér einn á broddinn.
En sterkari nú flestar okkar sameinaðar stöndum
og sumar hafa bundist góðum vináttunnar böndum.
Nú komið er að leiðarlokum, máttug kona, meyja
og teljum við því tímarbært, að hætta hér og þegja.
Viðlag:
Þetta er auðvitað bara eins og hver önnur vitleysa sem enginn skilur nema kannski þeir sem skilja akkúrat ekki neitt enda er bragurinn óttalegur leirburður sem trúlega fáir skilja eða hafa gaman af. Það er komið að leiðarlokum hjá flestum okkar sem sóttu þetta námskeið og tel ég því tímabært að hætta hér og þegja
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2008 | 01:58
Vopnaðir kúrekar og villtar meyjar
Vertinn getur ekki verið þekkt fyrir annað en að birta myndir af kúrekum sem komu í Kjallarann nýverið. Glöggt má sjá á myndinni að þessir kúasmalar úr Villta Vestrinu eru vel vopnum búnir og trúlega stórhættulegir fyrir vikið.
Það vildi þó til happs að bráðhuggulegar yngismeyjar mættu líka í Kjallarann þetta kvöld og bar skvísan á myndinni með sér sérstakan yndisþokka.
Verst að Vertinn skildi missa af þessu öllu saman
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.8.2008 | 02:45
Tiltekt
Tiltekt hefur verið í fullum gangi á heimilinu við Hólastíg og Einarshúsið bíður átekta. Senn bætist við fjölskylduna því Vertinn á von á barni innan tíðar. Fórna þarf einu herberginu sem gegnt hefur hlutverki tölvuherbergis og skrifstofu undanfarin ár undir nýja fjölskyldumeðliminn. Útbúið hefur verið afdrep fyrir stóra tölvuhlunkinn og pappírsfarganið í bílskúrnum og það rúmast bara vel.
Í tiltekt sem slíkri kemur margt í ljós og fjölmargir pappírar sem Vertinn hefur viðað að sér í áranna rás rata beint í ruslatunnuna en gömlum ljóðum og ræðum sem viðkomandi hélt að væru týndar og tröllum gefnar litu dagsins ljós við mikinn fögnuð margnefndrar. Læt ég flakka að þessu sinni ljóð sem ég orti til vinkonu á fertugsafmæli hennar 1. maí árið 2004. Þá notaði ég tækifærið á leiðinni í Borgarfjörðinn til að hnoða þessum brag saman og mesta furða hve vel til tókst.
Í faðmi blárra fjalla inn í fagurgrænni sveit
lítið fljóð með ljósa lokka veröldina leit,
þá Halla var í heiminn þennan borin.
Við Ingjaldssand, sem skaparinn af sinni snilli skóp
á Brekku bættist Halla inn í stóran barnahóp
og gekk þar fyrstu ævi sinnar sporin.
Á árum áður lífsbaráttan þótti stundum hörð
hún barnaskóla sótti yfir fjall í næsta fjörð
á Núpi hlaut hún sína fyrstu menntun.
Í Víkina svo flutti, þar ég hitti þessa snót
þá léttstígar við leiddumst yfir urð og yfir grjót
í minningunni er það eintóm skemmtun.
Og fljótlega hún fann, hún eiginmann hún yrði að fá
hún fyrir Sigga Gumma sínar snörur lagði þá
og eftir það var ekki hægt að bakka.
Hvort annað hafa eflaust kysst og knúsað eitthvert kvöld,
kelað oft í rökkrinu á nýliðinni öld
því saman eiga fjóra myndarkrakka.
Það hefur ætíð verið ein af hennar innstu þrám
að drífa sig í háskóla í rekstrarfræðinám
á Bifröst frúin fullnema sig vildi.
Svo fyrir vestan kvaddi sérhvern dal og sérhvern hól
með ógnarhraða kvaddi höfuðbýlið Kirkjuból
í reiðileysi eftir allt þar skildi.
Ávallt hefur leiðin hennar legið bein og greið
og ætíð hefur sólin skinið skært á lífsins leið
nú sér að baki fjörutíu árum.
Þeim árum hefur Halla varið þokkalega vel
og vaxið vel og dafnað prýðilega að ég tel
þó fjölgi á höfði hennar gráum hárum.
Nú tel ég tíma kominn til að enda þennan brag
sem saminn var í tilefni af þessum mæta dag
þó efalaust ég mörgu hérna gleymi.
Að endingu þér, Halla, vildi óska allt í hag
með góðum vættum gakktu nótt sem fagurbjartan dag
og gæfudísir framtíð þína geymi.
Það má kannski segja að bragur sem þessi sé einungis til þess fallinn að brenna músum í gríð og erg enda er það algengt að afmælisvísur beri væmnikeim og jafnvel hafi jafnvel yfirbragð eftirmæla. Alkunna er að mæra afmælisbörn í hástert á merkisdögum og framliðna einnig.
Fyrst talið berst að framliðnum þá er vert að geta þess að fyrrum íbúum Einarshúss og þar áður Péturshúss virðist vera kappsmál að skilja eftir sig góða nærveru. Allir sem sækja húsið heim virðast finna þennan yl sem liggur í innviðum hússins með tilheyrandi straumum sem veita vellíðan. Fjölmargir hafa orð á því hve góður andi sé í húsinu sem geymir svo mikla sögu en þær systur Sorg og Gleði eiga það sammerkt að hafa dvalið um hríð í þessu húsi harma og hamingju. Það virðist oft vera fjör og glens og gaman þó ekki sé hægt að henda reiður á mannfagnaðinn í það og það skiptið og ófáar hjálpsamar hendur koma að rekstrinum þó ekki sé hægt með nokkru móti að átta sig á hvaðan þær koma. Það er ekki amalegt að hafa slík við höndina ef á þarf að halda og telst það staðnum til tekna að öllu leiti.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.8.2008 | 11:48
Í húsinu þar sem hjartað slær
Er rennt var heim í hlað á aðfaranótt laugardagsins heyrðist glaumur og gleði óma frá Einarshúsi. Þegar ekið var hjá lýstu rauð ljós upp umhverfið og hjörtu slógu í gluggunum í takföstum rithma. Vinnuhjúin höfðu nýtt tímann til að skreyta allt hátt og lágt og húsið bókstaflega æpti af gleði enda var Kjallarinn kjaftfullur eins og svo oft áður. Einarshúsið naut sín eins og ætíð enda slær hjartað ört í húsinu alla daga allan ársins hring. Vertinn í Víkinni getur því slegið um sig allar vikur ársins og montað sig af sínu skylduliði og því sem gerist í húsi gleðinnar. Rauðu ljósin í gluggunum munu fá að lýsa upp umhverfið inn í haustið og veturinn og talið er fullvíst að ástir munu áfram kvikna á brennheitum augnablikum í húsinu sem geymir sögu sögu gleði og hamingju.
Allar slagæðar Bolungarvíkur bera ólgandi blóðið svo taktfast að hjarta bæjarins sem er Einarshús. Með reglulegu millibili eru æðisgengnar uppákomur í þessu húsi sem auka enn frekar á taktfastan hjartsláttinn sem gerir staðinn að griðastað allra sem Víkina sækja heim. Vertinn hefur þá trú að hjartsláttur Bolungarvíkur yrði heldur veikur ef slagbrandurinn yrði settur fyrir dyrnar í eitt skipti fyrir öll og margnefnd hefur þá trú að vel flestir bæjarbúar séu líka á þeirri skoðun. Margir hafa sagt að endurgerð hússins og sú starfssemi sem þar fer fram hafi verið eitt það besta sem komið hefur fyrir Bolungarvík enda bera tíðar heimsóknir bæjarbúa og gesta þess vitni. Því telur margnefnd að ekki sé þörf á neinni hjartaþræðingu í Bolungarvík á meðan rekstrinum er framhaldið með svipuðu sniði.
Enn var líf og fjör í nótt. Vertinn svaf þó að mestu á sínu græna eyra enda farinn að þreytast á næturvinnunni í bili. Dagskrá haustsins er í smíðum og allt á eftir að ganga eins og blómstrið eina líkt og í fyrra. Sjávarréttahlaðborð, Jólahlaðborð, Pétur og Einar, Spilavist, Kjallarakeppni, Sagnakvöld, og margt fleira verður í boði fram á jól. Árshátíðir fyrirtækja eru einnig boðnar velkomnar þá og þegar og mannfagnaðir af öllu tagi. Nokkuð ljóst má telja að opnunartíminn verður ekki skertur svo neinu nemi til jóla en það ræðst þó að sjálfsögðu af framboði og eftirspurn og lesendum bent á það að því oftar sem komið er við í húsi gleðinnar í Einarshúsi í Bolungarvík og bragðað á trakteringum hússins, því meiri líkur eru á því að hægt verði að halda opnu lengur út í veturinn. Einnig ber að geta þess að alla virka daga er boðið upp á hefðbundinn heimilismat í hádeginu en tryggara telst þó að panta borð ef hópar ætla að mæta.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.8.2008 | 10:55
Mamma mía
Vertinn heldur áfram viðstöðulaust í sumarfríi og gistir núna hjá piparsveininum í Njarðvík í góðu yfirlæti. Gunna vinkona og Dóri búa hérna rétt hinumegin við götu og reikna má með því að sú krafa verði gerð að potturinn verði hitaður í 40° til að laða dreifbýlingana að og viðbúnaður allur verði hinn mesti.
Fríið er annars búið að vera ágætt. Mikið er reyndar um útréttingar í höfuðborginni og fjallabíllinn orðinn fullur af vörum og dóti, sumt má án efa telja til munaðarvöru og annað til nauðsynja og allt jafn nauðsynlegt fyrir vikið. Bíóhús borgarinnar hafa verið sótt heim eins og tilhlýðilegt telst í slíkum ferðum og laugarnar notið þeirrar ánægju að fá margnefnda í heimsókn og allt þar frameftir götunum.
Kvikmyndin "Mamma mía" var sérdeilis aldeilis frábær bíómynd. Reyndar leit svo út fyrir að allur kvennalistinn í heild sinni væri samankominn í salnum og varpaði það einn meiri ljóma á sýninguna fyrir vikið. Myndin virðist greinilega höfða meira til kvenna en karla enda er hún sambland af ástarsögu, sem endar vel, skemmtilegum söngvum og dansi.
Ítalía stóð undir væntingum eins og ætíð. Fjögur systkini af fimm áttu þar saman góða kvöldstund í gærkvöldi. Tekin var mynd af þessu sjaldséða mannfagnaði
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.8.2008 | 13:45
Líf og fjör
Góður gestur sendi Vertinum myndir úr Kjallaranum sem teknar voru um helgina svo viðkomandi gæti fylgst með fjörinu úr fjarlægð. Smelli einni mynd með þessari færslu og fleiri birtast væntanlega um síðir.
Myndina af þessu fjörugu fljóðum tók Bæring Gunnarsson
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.8.2008 | 00:20
Frænkur
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm