Gott hlutskipti

Einar Jón í stelpuhópiÞað voru krakkar úr öllum áttum sem áttu saman notalega stund hjá Vertinum rétt á meðan heimsbyggðin titraði. Lögreglumaðurinn gat ekki verið með á myndinni því einhver varð að halda uppi lögum og reglu á Vestfjörðum á þessum tímum óvissu og breytinga. Andri var því fjarri góðu gamni er myndin var tekin. Einar Jón var aftur á móti hæstánægður með hlutskipti sitt enda eini strákurinn í stórum stelpuhópi. María sem er þýskur skiptinemi var í heimsókn hjá Idu og Bryndís var í heimsókn hjá Lilju , Einar hjá Elsu og Þórunn er annar helmingur Andra  svo hópurinn var nokkuð stór þegar allt er meðtalið.

 

 


Jólahlaðborð

Helga Guðrún við jólatréðÞrjú jólahlaðborð verða haldin í Einarshúsi fyrir jólin og er það eðalkokkurinn Snorri Bogason sem mun sjá um matseldina og hantéra guðdómlega rétti sem hæfa hlaðborðum sem þessum. Er nú tilvalið fyrir vinnustaði að panta borð í tíma en hátt í 60  manns rúmast í salnum í Einarshúsi.

Fyrsta jólahlaðborðið verður haldið 29. nóvember og þá mun leikritið Pétur og Einar verða leikið undir borðhaldi. Biggi Olgeirs mætir svo galvaskur með gítarinn síðar um kvöldið í Kjallarann og leikur og syngur út í rauða nóttina. Verð 6.600,- per mann

Annað jólahlaðborðið mun verða haldið 6. desember en þá verður Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir veislustjóri. Benni Sig. mun svo heiðra gesti á jólahlaðborði með nærveru sinni síðar um kvöldið og leika í Kjallaranum fram á nóttina. Verð 5.600,- per mann

Þriðja og síðasta hlaðborðið mun verða 13. desember en þá mun Litli leikklúbburinn í samvinnu við Kómedíuleikhúsið flytja söngdagskrá sem ber heitið " Úti er alltaf að snjóa" sem inniheldur verk Jónasar og Jóns Múla Árnasyni. Hljómsveitin "Haltur leiðir blindan" leikur á stóra sviðinu síðar um kvöldið. Verð 6.600,- per mann.

Þeir sem vilja tryggja sér sæti á herlegheitunum eru beðnir að panta borð fyrr en seinna í síma 456-7901 eða 864-7901


Fjórtán ára hnáta

Lilja blómarós á afmæli í dag.

Lilja og rós

Til hamingju með daginn


Raunveruleg kjarabót

des VII 115Vertinn telur tilhlýðilegt að minna á þann geigvænlega mun sem er á kolamolum hér á landi miðað við útlönd því kaldur og freyðandi mjöðurinn er tvöfalt ódýrari í Kjallaranum í Bolungarvík en á Strikinu í Kaupmannahöfn. Segja má því með sanni að raunveruleg kjarabót sé falin í heimsókn í Einarshúsið. Ekki er svo úr vegi að geta þess að bardömurnar eru ekki af verri endanum og fegurri fljóð finnast varla hér á landi enn og þótt víðar væri leitað og hið írska yfirbragð snótarinnar á myndinni blandast vel svip norsku víkinganna sem námu land hér forðum og byggðu Ísland upp úr engu.

 


Spilavistin heldur áfram

Á föstudaginn 10. október verður lokakvöld í þriggja kvöld keppni. Stigahæsti keppandinn eftir þrjú kvöld mun fá matarkörfu í verslun Samkaupa að upphæð 10 þúsund krónum, auk annars glaðnings. Veitt eru verðlaun fyrir flestu stigin á hverju spilakvöldi en þeir sem fara heim með fæstu stigin fá líka sárabætur


Góð fjárfesting

Vertinn í Víkinni hefur beitt sinni alkunnu útsjónasemi í fjármálum frá því að rekstur hófst í Einarshúsi og sýnt eindæma visku í fjárfestingum. Títtnefnd hefur safnað saman digrum sjóði og pakkað  honum saman í stórar umbúðir sem standa óhreyfðar á atvikum stað. Miðað við fréttir undanfarinna daga virðist þessi sjóður hafa skilað hvað mestum arði og ekki haggast í gengishruni undanfarið. Ætla má að stórgróði verði af þessum sparnaði sem geymist í handraðanum og hægt verður að breyta í íslenska krónu ef þurfa þykir. Þarna er auðvitað um að ræða flöskur sem fallið hafa til í rekstrinum og hefur haganlega verið komið fyrir í svörtum ruslapokum. Reikna má með að þessar flöskur skili hagnaði þegar litið verður aftur í tímann eftir nokkur ár og munu án efa standa fyrir sínu í hvívetna þegar á heildina er litið.

Til að hægt verði að bæta við sjóðinn og stækka gjaldeyrisforðann að sama skapi þarf títtnefnd að eiga skotsilfur til að kaupa umbúðirnar áður en þær eru tæmdar og einn mikilvægasti hlekkurinn, svo það geti orðið, er að fá nógu marga viðskiptavini á barinn til að drekka innihaldið í sig á sem skemmstum tíma. Þar kemur samheldni bæjarbúa auðvitað að góðum notum við að halda þessari hringrás við og því er allt lagt í sölurnar til að koma sem flestum í Kjallarann þegar þannig viðrar.

Ýmislegt verður því í boði um helgina sem léttir lundina og bætir geðið og mun verða greint frá því á veraldarvefnum innan tíðar en einnig munu dreifibrét berast í hús í bænum á föstudag.

 


Lífið er línudans....

...í kvöld kl. 20:00 í Einarshúsi með Laddawan


Á hvolfi

Lilja og EbbaEf ekki væri fyrir þessa fyrirmyndarunglinga sem stilltu sér upp fyrir myndavélina héldi Vertinn að eitthvað væri bogið. Það kom þó á daginn að heimasætan og vinkonan höfðu sett allt á hvolf.

Von

StóðréttirVertinn í Víkinni telur nú enn brýnna en áður að slá á bölsýni og bölmóð enda hefur það verið keppikefli margnefndrar að vera bjartsýn og jákvæð í bloggskrifum sínum. Engin breyting verður þar á þrátt fyrir fréttir dagsins í dag um sviptingar í fjármálaheiminum. Vertinn sér fjölmörg tækifæri í stöðunni og hefur tekið þá ákvörðun að halda haus og brosa framan í heiminn. Krakkarnir á myndinni brostu einnig framan í heiminn á stóðréttunum á sl. helgi er sólin baðaði þau í geislum sínum enda lék allt í lyndi hjá þeim þá eins og nú. Þetta er fríður hópur sem heldur þéttingsfast saman líkt og þjóðin þarf að gera nú á þessum umbrotatímum. Bolungarvíkin mun áfram vera nafli alheimsins og bjargföst er sú trú að hjartað muni halda áfram að slá með sama takti og áður í túninu heima.


Minnstu munaði...

Vertinn á stóðréttumSólin baðaði Vestfirðingana á stóðréttum í Víðidalnum um helgina og létu vel að Vertinum og hennar skylduliði. Auðvitað vakti títtnefnd óskipta athygli sveitamanna í þessu landbúnaðarhéraði enda hefur önnur eins tískudrós aldrei prílað milli dilka í þessari margumtöluðu Víðidalstungurétt. Glingrið vafðist utan um margnefnda og minnstu munaði að Vertinn í Víkinni yrði boðin upp í misgripum fyrir folald undan landsfrægum hesti úr sveitinni. Folaldið var slegið á fjórtánhundruð þúsund krónur í fyrsta, öðru og þriðja en trúlega hefur útlit og atgervi Vertsins blindað þann sem bauð í og gert það að verkum að því fór sem fór.  Kreppan virðist ekki hafa náð til forríkra hestamanna ef eitthvað er að marka þetta uppboð á skepnunni og eitthvað klink virðist vera eftir í vösum þeirra sem eitt sinn áttu miklu meira en nóg til hnífs og skeiðar.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband