23.10.2008 | 01:09
Árrisul
Vertinn er alla jafna ekki mjög árrisul og kýs að sofa frameftir og kúra í draumaheimum í fegurðarblundi fram eftir morgni. Því fleiri ár sem safnast í sarpinn ríður enn meira á að ná að blunda líkt og þyrnirós gerði hér fyrrum til að halda í yndisþokkann sem lengst. Best er að vakna af sjálfdáðum en án efa þætti það tilbreyting ef hinn ungi konungsson kæmi og vekti títtnefnda með kossi í morgunsárið en það gerist auðvitað bara í ævintýrum. Reikna mætti þó með því að sá konungborni aðalsmaður sem ræki títtnefndri rembingskoss að morgni myndi breytast í frosk við kossaflensið með það sama og hlaupa skelfingu lostinn á dyr.
Glögglega má heyra á títtnefndri að hún er dottin í draumaheima og farin að sjá stjörnur eftir daginn enda var hún vakin eldsnemma. Ekki reyndar með konunglegum kossi og ekki gátu húsbóndinn né hundurinn smellt kossi á margnefnda því þeir félagar dvelja á Austfjörðum þessa stundina í vinnuferð, heldur beið bæjarstjórinn fyrir utan gluggann líkt og hvítu fiðrildin í vísunni þegar ofurlitla duggan kom siglandi inn til hafnar.
Leið okkar lá á þingmannafund á Tálknafirði að hitta þingmenn kjördæmisins. Allur dagurinn var undirlagður í fundahöldum og ferðalögum og ekki var komið heim fyrr en undir kvöld. Það er alltaf gott að sjá framan í þingmenn og sveitastjórnamenn í kring þrátt fyrir að títtnefndri sé oft fyrirmunað að muna hver sé hvað og hvur sé hvurst á þessum fundum. Nöfn virðast bara ekki festast í minninu þrátt fyrir að margnefnd hafi reynt að muna eftir að taka minnistöflur í gríð og erg undanfarið og sporðrennt lýsistöflum í ofanálag þegar hún hefur munað eftir því.
Vertinn man þó ekki betur en að hún hafi stungið sig á snældu rétt í þessu......amk leggst einhver svefnhöfgi yfir títtnefnda......held bara að margnefnd gæti sofið í 100 ár......vona bara að galdrakerlingin reki ekki rembingskoss á þyrnirós snemma í fyrramálið....vona bara........................að......við getum átt.........góðan dag á morgun...
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.10.2008 | 00:45
Ankerið
Ankeri lenti í veiðarfærum skips frá Akranesi er verið var að draga í dag langt út á ballarhafi. Ankerið var tekið um borð, því þeirri hugsun flaug í gegnum huga skippersins á dallinum, að Vertinn í Víkinni gæti haft not fyrir ankerið í Kjallaranum eða við Einarshúsið. Þessi kapteinn er ekki sá fyrsti sem hefur hugann við téðan Vert þegar gamlir hlutir dúkka upp hér og þar enda hafa fjölmargir hugsað hlýlega til títtnefndrar við slíkar aðstæður því vita flestir sem til þekkja á annað borð vita að margnefnd er hrifin af allskyns dóti og drasli með sögu. Ankerið á vissulega sína sögu enda búið að liggja á hafsbotni í áratugi og ber það þess glögglega merki. Það hefur trúlega verið vitni að einu og öðru í undirdjúpunum og á án efa eftir að segja sögur við ylinn frá kamínunni við tækifæri. Fjölmargir sjaldséðir munir leynast í Einarshúsi og einhverjir þeirra eru varla til á söfnum er fullyrt af áhugamönnum um gamla hluti og útlendir gestir bókstaflega taka andann á lofti er þeim er sýndur Kjallarinn.
Útlendur ferðamaður hefur komið í tvígang í annáluðu sjávarréttasúpuna með stuttu millibili og hefur varla bragðað annan eins unaðsrétt. Hann gat ekki leynt ánægju sinni með þetta hús sem biði í þokkabót upp á þvílíka unaðssúpu úr sjávafangi sem allt er veitt hér við ströndina. Hann á án efa eftir að koma upplýsingum um húsið áleiðis til landa sinna við fyrsta tækifæri og ætla má að það skili sér næsta sumar. Vertinn telur fullvíst að ástandið í heiminum geti skapað fjölgun ferðamanna til landsins sem getur komið sér vel hér vestra og skilað einhverjum auknum tekjum í þjóðarbúið.
Lagt er upp með að einhver gisting verði í boði næsta sumar í Einarshúsi svo hæglega verður auðvelt að koma í dýrindis mat og rölta svo niður í Kjallarann um kvöldið og koma við í kolageymslunni. Þaðan munu svo fegurstu bardömur bæjarins fylgja gestum til hvílu og fara með trúarjátninguna fyrir svefninn enda er trúin á eilíft líf, upprisu holdsins og getnað í heilögum anda umhugsunarefni. Ekkert ósiðsamlegt mun þó fara fram í húsi sorgar og gleði nú frekar en fyrri daginn en það er oft hlutverk margnefndrar og hennar skilduliðs að vera ankeri fyrir þá sem sigla stefnulaust upp á sker og sjá ekki mun á réttu og röngu í darraðadansi við Bakkus konung.
Vertinn hefur ekki dansað við Bakkus í bráðum tvö ár. Þessi tvö ár hafa liðið eins og í draumi og ótrúlegt að hugsa til þess að hafa náð verið edrú allan þennan tíma og varla fundið fyrir neinu. Dansinn hefur þó verið stiginn síðan, bara með öðrum hætti og við annan takt og ballið heldur látlaust áfram. Það er einstaklega gott að vera allsgáð í partýinu þó stundum sé erfitt að sjá hve illa áfengið getur haft áhrif á sumt fólk og þá sér maður hvað það er gott að vera laus undan álögunum. Tímatal Vertsins er því ekki lengur miðað við fæðingu frelsarans heldur 11.11.06, því þá hætti títtnefnd að drekka því þá festist ankerið sem rétti skútuna af. Það þurfti auðvitað eitt og annað til eins og gengur en þá var stefnan tekin í rétta átt í lífinu og þá hófst nýtt upphaf í lífi Vertsins í Víkinni.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.10.2008 | 00:57
Silkiábreiða
Snjóhvít silkiábreiða hafði lagst yfir Víkina er Vertinn fór í kvöldgöngutúrinn. Ekkert jafnast á við að fara út í kvöldmyrkrið á svona fallegu kvöldi og njóta þess að anda að sér hreina sjávarloftinu og láta hugann reika. Allt var svo hreint og fínt og halda mætti að himnafaðirinn hefði tekið til í plássinu og búið um rúmið.
Helgin leið framhjá hratt og örugglega enda í kapphlaupi við tímann sem er fugl sem flýgur hratt. Vertinn stóð báðar helgarvaktirnar enda sjálfsagt að títtnefnd sinni sínu starfi sem bardama við og við. Frekar rólegt var um helgina og deyfð yfir plássinu. Því var brugðið á það ráð að kynda vel í kamínunni og ylja sér við eldinn og rauður bjarminn lýsti upp andlit þeirra sem litu við og spjölluðu. Margnefnd telur sig hafa komist að því að því meiri ylur sem kemur frá kamínunni, því meira æsist þorstinn upp í gestunum og fleiri kolamolar seljast fyrir vikið. Kolamolinn virðist einnig hafa þann eiginleika að losa um málbeinið hjá gestum og gangandi og bráðskemmtilegt er oft á tíðum að fylgjast með og hlusta á þá sem þegja alla jafna, masa út í eitt. Vertinn heldur ágætum talanda þrátt fyrir að geta ekki keypt aukaorðaforða í áfengum drykkjum lengur enda er málbeinið í stöðugri notkun dags daglega dags. Hvað kemur af viti út úr téðum Vert skal ósagt látið en reikna má með að megnið sé kjaftæði og restin bull en samt hlusta ótrúlega margir á speki margnefndrar og taka mark á öllu sem frá henni flæðir.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2008 | 22:35
Brandari
Fékk þennan sendan rétt í þessu. Einn sá besti sem ég hef heyrt lengi
Shrek, Angelina Jolie og Brad Pitt snæddu hádegismat saman.
Shrek sagði: Ég hef alltaf talið að ég sé sterkastur allra í heiminum, en
hvernig get ég verið viss?
Brad sagði: Ég er nokkuð viss um að ég er kynþokkafyllsti núlifandi
karlmaður á jörðinni, en ég hef aldrei fengið það staðfest.
Angelina samsinnti þessu. Hún sagði: Mér er sagt að ég sé dásamlegust
allra kvenna, en stundum efast ég.
Þau ákváðu að besta leiðin til að fá staðfestingu á því hvort Shrek væri
sterkastur, Brad sá kynþokkafyllsti og Angelina sú dásamlegasta, væri að
spyrja hinn fræga talandi spegil: Spegill spegill herm þú mér....
Þau ákváðu að hittast aftur í hádegismat daginn eftir og bera saman bækur
sínar.
Daginn eftir mætti Shrek með breitt bros á andlitinu.
Jæja, sagði hann. Það er satt. Spegillinn sagði mér að ég væri sá
sterkasti í öllum heiminum.
Brad reigði sig og sagði: Og ég veit núna fyrir víst að ég er
kynþokkafyllsti, núlifandi karlmaður á jörðinni.
En Angelina sem hafði setið álút, lyfti nú fallega sorgmædda andlitinu
sínu og sagði: Hver í fjandanum er þessi Ragna Jóhanna Magnúsdóttir ?
Var von að hún spyrði!!
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.10.2008 | 03:21
Fjölbreytni
Það væri synd að segja að fjölbreytileiki einkenndi ekki lífið hjá títtnefndri því allir dagar bjóða upp á eitthvað skemmtilegt og spennandi. Dagurinn í dag var engin undantekning frá þeirri reglu enda naut Vertinn þeirra forréttinda að fá leiðsögn inn Óshlíðargöngin sem nú eru í vinnslu. Það var sérlega skemmtilegt og fróðlegt að sjá verkframvinduna og ekki síður gaman að ná myndum fyrir sem flesta til að njóta á www.vikari.is. Auðvitað þótti tilhlýðilegt að smella mynd af drottningunni við endann á göngunum en til allrar hamingju fór margnefnd úr stutta pilsinu og háhæluðu skónum áður en lagt var í hann, því nokkur drulla var á svæðinu og því betra að vera í vaðstígvélum upp í klof og öðrum tilheyrandi hlífðarfatnaði.
Vertinn getur leyft sér að haga vinnutímanum eftir behag. Hægt er að setjast við tölvuna þegar hentar og tími vinnst til og hægt er með offorsi að stökkva upp þegar minnst varir með myndavélina og taka myndir hirst og her. Með auðveldum hætti er einnig hægt að kjafta sinn inn á samkomur og saumaklúbba sökum tengsla sinna við netmiðil staðarins og kjaftaklúbbar eru upp með sér að fá fréttaritarann í heimsókn og knékrjúpa við minnsta tilefni fyrir títtnefndri. Þeir sem eru í föstu fæði og fljótandi í Einarshúsi dásama einnig það sem er í boði að borða hverju sinni og leggja veðurbarðir verkamenn sig fram við að dásama trakteringarnar enda þora þeir ekki öðru af ótta við stingandi augnaráð Vertsins í Víkinni og hennar skylduliðs. Glöggt má því sjá hve samtakamátturinn er mikill þegar gera á títtnefndri til geðs.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.10.2008 | 08:47
Föstudagskvöldið
Kjallarakeppnin heldur áfram eins og ekkert hafi í skorist á föstudagskvöldið. Er það Börn Sigurvaldason sem spyr spurninga úr öllum áttum yfir mannskapinn og vonandi sjá sem flestir hag sinn í því að mæta. Er það Vífilfell sem sér Vertinum fyrir mjöði til að geta gefið þeim sem fer með sigur af hólmi í keppninni og spennandi verður að sjá hver dettur í lukkupottinn að þessu sinni. Kaldur og freyðandi kolamolinn úr gömlu kolageymslunni í Kjallaranum verður á spottprís á svokölluðum "kreppu-klukkutíma" milli kl. 23 og 24 og því verður einstaklega heppilegt að mæta, taka þátt í spennandi leik og hafa gaman. Keppnin hefst upp úr kl. 22:30 og eru þeir sem vilja vera spyrlar í keppninni beðnir að setja sig í samband við Vertinn hið bráðasta.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.10.2008 | 00:59
Sumir dagar
Það er alveg merkilegt hvað sumir dagar geta verið annasamir og hreint ekki einleikið hve mikið getur verið að gera á einum og sama deginum. Ótrúlega margir heimsóttu Einarshúsið og nutu þess sem þar var í boði. Það keyrði svo um þverbak er hjólreiðapar frá Ameríku lagði knöpum sínum upp við húsið og fengu sér mat og drykk um miðjan daginn en þau eru í vikufríi á Íslandi og mættu að sjálfsögðu galvösk til að hitta Vertinn í Víkinni og voru svo sannarlega ekki svikin af því frekar en aðrir.
Títtnefnd stendur vaktina þessa dagana vegna veikinda starfsfólks og fær því að standa yfir pottunum sem er í sjálfu sér ágætt svona annað slagið. Það kemur þó pínulítið niður á öðrum verkum sem bíða þolinmóð handan hornsins en þeirra tími mun koma um leið og um hægist. Hvert annað skondið atvik leiddi af öðru og leið dagurinn í eilífum hlátrasköllum. Hláturtaugar Vertsins virðast vera í mjög góðu standi þessa stundina og virka fullkomlega eins oft og þurfa þykir. Sagt er að hlátur lengi lífið og vænta má að títtnefnd verði háöldruð með þessu áframhaldi og hrökkvi ekki upp af fyrr en hún fer endanlega yfir móðuna miklu, kveðji þennan heim og haldi á vit forfeðranna, steindauð......dáin og grafin....um aldur og eilífð.
Langt er þó í að það gerist enda er títtnefnd rétt hálfnuð á lífsins leið og á svo fjölmargt eftir að gera. Á morgun bíða mjög spennandi verkefni sem beðið hefur verið eftir með óþreyju. Þar fær fréttaritarinn á www.vikari.is að stíga einu skrefi lengra en gengur og gerist vegna þess eins að títtnefnd gefur sig út fyrir að flyta jákvæðar fréttir úr byggðarlaginu á þennan tiltekna netmiðil og varpa þeim til heimsbyggðarinnar um veraldarvefinn. Við skulum vona að það takist vel til og glöggir lesendur fái að njóta þess sem fyrir augu fréttaritarans ber á morgun á ljósmyndasafni www.vikari.is innan tíðar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.10.2008 | 00:54
Undir þínum áhrifum
Vertinn gekk hringinn um bæinn eins og í leiðslu og tunglskinsbjarminn lýsti upp fjallahringinn. Litla byggðarlagið, sem er þó svo stórt þegar á heildina er litið, var svo ævintýralega fallegt. Skýjaslæða hafði verið ofin um himinhvolfið og það var eins og silkiþræðir héldu verndarhendi yfir þorpinu sem veitt hefur skjól frá barnæsku. Stjörnur voru á víð og dreif líkt og demantar á silkiábreiðunni sem huldi bæinn og kvöldið var einstakt og kyrrlátt. Vindurinn hvíslaði huggunarorð um að allt myndi fara vel og tunglið vildi taka títtnefnda og bera hana upp til skýja. Margnefnd varð undir áhrifum af andartakinu og þóttist lukkulegasti Vert í veröldinni að eiga stað eins og Bolungarvík til að halla sér að á ögurstundum. Það var eitthvað við þetta kyrrláta kvöld sem fékk Vertinn í Víkinni til að staldra við og líta spyrjandi til fjallanna í von um svar við ráðgátum dagsins í dag. Er göngutúrinn náði að flæðarmálinu ómaði svarið frá öldunni og ljúf rödd drafnar lét það berast að bærinn stæði keikur með sínu fólki.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.10.2008 | 13:45
Gott meðal
Það þarf auðvitað ekki að spurja að því að Vertinn tók sig afar vel út í boði stöðvar tvö í þætti Jóns Ársæls, Sjálfstæðu fólki, í gærkvöldi. Heilagleikinn draup af ásjónu títtnefndrar og fasið lyfti þættinum á enn hærra plan. Læknirinn lék auðvitað aðalhlutverkið og kunni setningarnar sínar utanað enda vanur að bregða sér í allra kvikinda líki án teljandi vandræða. Hann er fjölhæfur karl og kann eitt og annað fyrir sér og hefur trúlega ratað í þáttinn þess vegna. Læknirinn varpaði fram góðum ráðum til íslensku þjóðarinnar til að halda heilsu gegnum þrengingar sem nú ríða yfir og hvetur alla þá, sem hafa náttúruna í lagi á annað borð, að njóta ásta einu sinni í viku. Vertinn telur tilhlýðilegt að bæta við þann meðalakúr og hvetja alla til að koma og borða heitan mat í hádeginu til að hafa næga orku í herlegheitin og koma svo hressir og sprækir í Kjallarann á helgum. Ef farið er eftir þessum lyfseðli er ekkert að óttast og lífið verður ljúft í framhaldinu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.10.2008 | 00:56
Vonir og væntingar
Vertinum þykir tilhlýðilegt að staldra við og brýna fyrir lesendum að halda í jákvæðni og bjartsýni. Vikan sem nú er runnin upp ber enn í skauti sér vonir og væntingar fyrir okkur öll og ljósið skín skært við endann á göngunum þó leiðin þangað sé mistorsótt eftir atvikum. Samheldni bæjarbúa skiptir líka miklu máli ekki síst núna á þessum tímum breytinga í þjóðfélaginu og samfélagið okkar þarf virkilega á því að halda um þessar mundir að fólk hlúi hvert að öðru. Það eitt að bjóða brosandi góðan dag og vísa öllu tali um bölmóð á bug getur dimmu í dagsljós breytt fyrir æði marga sem eiga um sárt að binda eða líður illa vegna ástandsins. Skaðinn er skeður og við fáum engu breytt og því er svo mikilvægt að halda áfram og horfast í augu við viðfangsefni lífsins og hopa hvergi.
Halli smellpassaði á stóra sviðið í Kjallaranum í gærkvöldi og sómdi sér afarvel. Reytingur af fólki heimsótti Einarshús og naut þess að hitta mann og annan. Títtnefndri þykja það forréttindi að fá að taka þátt í gleði gestanna og heyra hlátrasköll og sjá brosmild andlit þeirra varpa ljóma á andartakið. Enginn þeirra sem kom í Kjallarann í nótt velti sér upp úr áhyggjum morgundagsins enda nægur tími til þess á morgun. Ylurinn frá kamínunni yljaði gestunum og dreggjar gærdagsins voru ekki lengur allsráðandi enda ný sólarupprás í vændum með nýum vonum og væntingum, löngunum og þrám.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm