6.11.2008 | 07:56
Einleikur í Einarshúsi....
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 07:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.11.2008 | 01:16
Mynd Auðar systur
Rakst á þessa stórfenglegu mynd á ljósmyndasíðu Auðar systur minnar en umhverfið er kunnuglegt enda úr Kjallaranum. Veran inn í eldinum er mögnuð og glöggt má sjá hvað andartakið er magnþrungið og hlaðið spennu. Grunur leikur þó á að ljósmyndahæfileikar Auðar hafi eitthvað fengið að njóta sín enda heitir myndir Experiment eða Tilraunin. Hver veit nema þessi mynd eigi eftir að sjást hér og þar í framtíðinni en til þess þarf stóra systir þó að gefa sitt samþykki.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2008 | 10:21
Stýrið
Stýrið úr Pourqua Pas? gaf Bubba Mortens allt annað og fegra yfirbragð er hann stillti sér upp fyrir framan Halldór Sveinbjörnsson ljósmyndara á BB er Bandið hans Bubba var tekið upp í Einarshúsi. Bubbi má vera upp með sér að hafa fengið að láta taka myndir af sér við þetta margfræga stýri úr skútunni sem strandaði í aftakaveðri út af Mýrunum árið 1936. Það er eitt mannskæðasta og sögufrægasta sjóslys Íslandssögunnar. Einn maður af 40 manna áhöfn lifði slysið af. Meðal þeirra með fórst var hinn þekkti franski landkönnuður Jean-Baptiste Charcot.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.11.2008 | 13:08
Dans með Da....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.11.2008 | 02:05
Áskorun
Vertinn í Víkinni mun nú veita nokkrum útvöldum einstaklingum þann heiður að mæta á einleikinn í Einarshúsi um þá Pétur og Einar. Það er ekki þar með sagt að allir megi ekki mæta þar fyrir utan enda eru allir boðnir velkomnir háir sem lágir í Einarshús eins og ætíð og allir verða að borga jafnmikið enda er öllum gert jafnhátt undir höfði. Þó mega þeir sem eru sérstaklega boðnir velkomnir vera afar upp með sér að fá að hljóta þá lotningu að sjá nafnið sitt hér neðar í færslunni og reikna má allt eins með að margir hverjir hreinlega kikni undan álaginu og treysti sér varla til að mæta. Hægt er þó að lofa því að enginn verður svikinn af þessum frábæra einleik sem settur var á fjalirnar í þessu húsi harma og hamingju og allir munu skemmta sér hið besta. Verkið verður flutt tvisvar í nóvembermánuði auk þess að vera leikið á jólahlaðborði fyrir jólin. Téðum Vert finnst endilega að helst enginn megi láta það happ sér úr hendi sleppa að sjá og upplifa sögu þessara manna sem settu hvað mestan svip á sögu Bolungarvíkur á uppgangstímum og telur afar brýnt að fólk njóti þess að mæta á eitt flottasta kaffileikhús landsins og þótt víðar væri leitað. Nú verðum við án efa að hætta að æða suður í tíma og ótíma og því síður til útlanda til að berja hina og þessa sýninguna augum, nú nýtum við okkur það sem er í túnfætinum í garðinum heima.
Varla þarf að nefna það að Sveinbjörn Ragnarsson var svo einstaklega heppinn á síðustu spilavist að vinna miða fyrir tvo á sýninguna og sjálfsagt þykir að hann bjóði henni Jensínu með sér eða gefi einhverjum miðann sem honum þykir vænt um svo hann nýtist til fulls. María Ólafs var einnig svo stálheppin að vinna miða fyrir tvo og reiknað er með því að hún bjóði einhverjum á einleikinn til að miðarnir geti nýst.
Þessir eru boðnir sérstaklega velkomnir eins og allir hinir sem verða sérstaklega boðnir velkomnir á næstu sýningar og eru ætíð velkomnir:
Sólberg og Lucie, Sölvi og Birna, Alda og Björn, Sólveig og Bjarni, Díana og Bjarki, Hagbarður og Ragnhildur, Helga og Gummi Ragg, Lalli og Fríða, Jón Sveinsson og Ingibjörg, Sigga Kára og Sveinn, Snorri Harðar og Dedda, Gummi Reynis og Anna, Sísí og Halldór, Anna Jör og Bjarni með Evlalíu...........kannski hafa einhverjir af þessum komið meðan títtnefnd var ekki á staðnum og beðist er velvirðingar á því.......Magga Lilja og Agnar, Kristný og Lúlli........þá er upplagt að láta hugann reika til Ísafjarðar og nefna í því sambandi... Ásthildi og Ella Skapta, Ólínu Þorvarðar og Sigga P, Hlyn og Ölmu, Gróu og Önund, Skúla og Auði, Guðfinnu og Halldór, Birnu og Lalla, Gylfa og Sóley, Möttu og Gumma Hjalta, Halla trúbador með sinni frú og svona má lengi telja áfram og trúlega heldur títtnefnd áfram að telja í fyrramálið. Ætli þetta sé þó ekki gott í bili.
Sýningin Pétur og Einar hefst í Einarshúsi á fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20:00 og er einungis í 40 mínútur og aðgangseyrir er 1500 krónur. Allir geta haft gaman af þessari sýningu og er það ekkert atriði að þekkja söguna út í hörgul því sagna lætur engan ósnortinn enda magnþrunginn. Hún er uppfull af söng, glensi og gríni í bland við alvöru lífsins hjá fyrrum íbúum Einarshúss.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.11.2008 | 08:56
Tíu lið
Tíu lið tóku þátt í Kjallarakeppninni og Pálína Jóhannsdóttir stóð sig með stakri prýði. Vertinn var reyndar í fríi og var því fjarri góðu gamni enda sjálfsagt að hún sé ekki geiflandi sig bak við barinn hvert kvöld. Guðmundur Óskar Reynisson spyr fólk spjörunum úr eftir hálfan mánuð og verður væntanlega að trekkja fleiri að en Pálína og fylla helst húsið. Kannski syngur hann allar spurningarnar sjálfur enda er hann söngvari góður og heldur lagi í hverjum tóni svo það er því tilvalið að mæta og berja kappann augum og reyna að freista þess að vinna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2008 | 13:44
Hugleiðing í vikulok
Vertinn er nú vöknuð eftir langa næturvakt en skriðið var upp í fletið þegar klukkan var langt gengin í fimm í morgun eftir stórskemmtilegt kvöld. Bardömurnar brugðu sér hinu megin við barborðið og dönsuðu villta dansa með gestunum enda var afar góðmennt í nótt og bara mjög skemmtilegt. Maður er nefnilega manns gaman og það er það sem skiptir öllu máli að mati títtnefndrar og betra er að hafa færri glaða gesti, en fleiri með fýlusvip yfir því hvað allt sé leiðinlegt og ömurlegt sem í boði er í Kjallaranum, enda er afar gott að horfa á eftir þeim gestum í glaum nágrannabyggðarlaganna. Neikvæð umræða er smitandi og einungis til þess fallin að eyðileggja og skemma fyrir því sem verið er að reyna að gera í bæjarfélaginu. Auðvitað er það vitamál að þeir sem rífa hvað mest niður það góða sem gert er, byggja hvað minnst upp að sama skapi og leggja því lítið til samfélagsins. Það er þó þeirra mál og ekki til þess fallið að láta setja sig út af laginu á nokkurn hátt enda engin ástæða til.
Reyndar verður þó eftir fremsta megni að taka vel á móti öllum sem koma í Einarshús og gestir hússins eru að leita eftir vinalegu andrúmlofti og kósýheitum. Það er því frumskilyrði að brosa og vera glaður þegar kúnninn kemur og slá á létta strengi eins og hægt er. Það er eðli Vertsins í Víkinni og hennar skylduliðs að gantast og grínast og umfram allt hlægja eins oft og þurfa þykir og kannski oftar en góðu hófi gegnir, en oft hefur verið þörf á því, en nú er nauðsyn. Fólk sem vinnur í þjónustustofnunum ber nefnilega gríðarlega ábyrgð og það er hreinlega ekki boðlegt að fólk sem vinnur á bar, í banka eða búð taki á móti viðskiptavinum sínum með hundshaus eða svartsýnistali vegna efnahagsástandsins sem gerir það jafnvel að verkum að fólk er miður sín eftir heimsóknina á viðkomandi stofnum eða stað.
Vertinn hefur því af þessu gefna tilefni hug á að flytja til landsins brospillur og gleðipillur í bland við smá jákvæðisduft og hlátursafa til að selja á götuhornum hirst og her. Aukaverkanir geta verið hláturkrampi og stífkrampi en búið er að koma í veg fyrir ristilkrampa af völdum gleðipillanna enda eru komnar pillur á markað sem halda infrastrúktúr garnanna í jafnvægi. Minnistöflur Vertsins standa þó alltaf fyrir sínu, þá sér í lagi þegar títtnefnd man eftir að taka þær, en ein lýsispilla fylgir skammtinum sem gefur fríkslegt útlit og varpar ljóma á yfirbragðið. Það setur þó strik í reikninginn að pilluskammturinn skal greiddur í japönskum jenum í bland við svissneska franka og evrur en vegna þessa ójafnvægis sem ríkir á milli landanna í peningamálum hefur Vertinn boðið íslenskar sviðalappir í býttum fyrir pillurnar en sökum þess hve vöruskiptajöfnuðinn er óhagstæður verður víst að geyma sendinguna enn um sinn. Margnefnd hefur því samið við Óla Lokbrá um að setja gleðiefni saman við duftið sem hann stráir yfir bæinn í kvöld svo vænta má þess að bæjarbúar brosi út í eitt alla næstu viku.
Dægurmál | Breytt 3.11.2008 kl. 09:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2008 | 02:07
Krepputími
Vertinn í Víkinni vildi helst af öllu vefja sig og sína inn í bómull á þessum síðustu og verstu tímum. Það er nokkuð erfitt að sneiða framhjá neikvæðum fréttum af því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu og láta það ekki hafa áhrif á hið daglega líf en kúnstin er þó að líta fram á veginn og láta ekkert trufla sig í því að ná markmiðum lífsins. Þeir sem eru þreyttir á umfjöllun hvers dags fyrir sig geta auðvita lesið www.vikari.is en þar er lagt ofurkapp á að halda því jákvæða á lofti og sveigt er framhjá hverskyns fári eins og frekast er unnt á þessum sívaxandi vinsæla netmiðli. Einnig er tilvalið að koma við í Einarshúsi ef leiði fer að hellast yfir fólk því ætíð er vel tekið á móti fólki þar enda starfa þar brosmildustu skvísur bæjarins sem hafa ráð undir rifi hverju og hugga og hughreysta ef á þarf að halda. Bardömur eru nefnilega sálfræðingar, geðlæknar, huglæknar, hjónabandsráðgjafar allt í senn og meira til ef því er að skipta. Það væri auðvitað ráð að fá leyfi til að gifta í fljótheitum til að koma í veg fyrir lifnað í synd og skömm og lesa síðan í sundur þegar allt er búið, en trúlega myndi himnafaðirinn ekki sætta sig við það og biskupinn ekki heldur. Því er þetta trúlega ágætt eins og þetta er.
Vertinn mun þó hvergi hvika frá þeirri ákvörðun sinni að halda haus og sveiga hvergi frá þeirri ákvörðun sinni að halda ótrauð áfram. Það er auðvitað háð því að fólk mæti í hús sorgar og gleði eins oft og það mögulega getur og taki þátt í lífinu þar eins oft og þurfa þykir. Kolamolinn úr kolageymslunni hefur þó ekki hækkað í langan tíma og mun halda verðgildi sínu eitthvað áfram. Gjaldeyrisvaraforði títtnefndrar er svosem enginn og stighækkandi stýrivextir og vaxtavextir ofan á verðbólgu, óðabólgu og magabólgu gera það varla kleyft til lengdar að halda kolamolanum á því verði sem hann er í dag. Því er það tilvalið að nota tækifærið og kaupa mjöðinn meðan hann endist og er á spottprís.
Kjallarakeppnin er í kvöld, föstudag, og spyr Pálína Jóhannsdóttir fólk spjörunum úr og heyrst hefur að einhver stemning sé að myndast í kringum keppnina og fjölmenni stefni í Kjallarann. Verðlaunin eru í fljótandi formi og koma frá Vífilfelli og það er því til mikils að vinna og nauðsynlegt að mæta og taka þátt í þrælskemmtilegri spurningakeppni. Vertinn telur nauðsynlegt á þessum tímum að hittast og koma saman í góðum hópi því það gerir gott að fara út og hlægja með öðrum og gera gys. Tilboð verður á krepputíma frá kl. 22:30 til 23:30 en keppnin hefst upp úr hálf ellefu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.10.2008 | 11:50
Jóni blöskrar
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.10.2008 | 01:54
Vakin og sofin
Trúlega telja einhverjir tímabært að vakna af Þyrnirósarsvefninum og segja fréttir af lífi og tilveru Vertsins í Víkinni. Flestir sem til þekkja vita það að títtnefnd hefur ekki sofið á verðinum frekar en fyrri daginn enda hefur margt og mikið á dagana drifið síðan fréttir voru bornar á borð fyrir lesendur bloggsins síðast. Ekkert sérstakt stendur þó uppúr frekar en annað enda rennur lífið ljúft hjá og átakalaust. Dagurinn samanstendur að jafnaði af kæruleysislegum rólegheitum. Myndavélin er brúkuð annað slagið enda eru myndefni fjölbreytileg og framúrskarandi. Ekki þarf að fara lengra en út fyrir hússins dyr til að augað nemi eitthvað sem gaman er að festa á filmu og nauðsynlegt þykir að smella af í tíma og ótíma. Fréttaefni eru þefuð uppi þegar þannig stendur á og viðtöl við eldri borgara í bænum munu taka stóran sess hjá fréttaritaranum í nánustu framtíð til birtingar á vefnum þegar hentar.
Vertinn í Víkinni hefur einnig staðið vaktina í Einarshúsi þegar þannig stendur á og stillt til friðar á ófriðartímum í Kjallaranum. Reyndar þurfti títtnefnd aðstoð við að hemja styrjöldina sem geisaði milli manna en það hafðist allt með smá þolinmæði og handayfirlagningu. Gestir fengu kostulega kveðju í lokin og breyttu til hins betra eftir predikun og voru til friðs það sem eftir lifði kvöldsins. Það er afar sjaldgæft að talað sé með hnefum í þessu húsi sorgar og gleði en ef eitthvað ójafnvægi raskar ró hússins leysist það allt með undraverðum hætti og andardrátturinn verður eðlilegur á ný. Vertinum var boðið í eftirpartý síðar um nóttina og svo heppilega vildi til að það var á heimili títtnefndrar. Vakað var því fram á rauðan morgunn og dagurinn eftir varð alveg handónýtur fyrir vikið. Sunnudagurinn rann þó upp og flugvélin gat lent með húsbóndann og hundinn. Allir er því á einum og sama staðnum og geta því haldist í hendur sitt á kvað.
Morgundagurinn bíður handan hornsins með sínar vonir og væntingar. Vertinn þarf að hitta gamlan sjómann sem gæti hugsanlega gefið gamalt net sem brúka mætti sem gardínur í Kjallarann. Búið er að finna ankerinu stað í koníaksstofunni og þar á það eftir að sóma sér vel í framtíðinni og kjölfestan er því fundinn svo ekki þýðir að rugga bátnum lengur. Morgundagurinn bíður líka upp á viðtal við gamlan sjómann sem þykist ekki hafa frá neinu að segja en títtnefnd veit betur og mun skrásetja sögu hans steinplötu ef ekkert annað er við hendina.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm