14.11.2008 | 14:44
Kjallarakeppnin
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.11.2008 | 02:46
Um nótt
Sólarhringur Vertsins er eitthvað umsnúinn og úthverfur þessa dagana. Hroturnar í margnefndri heyrast um allt nágrennið fram undir hádegi er svifið er um draumalandið í djúpum þyrnirósarsvefni. Það gefur að auga leið að til þess að geta sofið svo lengi, þarf að vaka fram á rauða nóttina og það er oftast nær hægur vandi enda á títtnefnd afar gott með að vaka fram á miðjar nætur og sofa fram á hádegi og jafnvel lengur ef því er að skipta. Reyndar nær þetta ástand ekki nokkurri átt, það sér hver maður, svo stefnt er að allsherjar viðsnúningi á ástandinu í fyrramálið. Ástæðan er einfaldlega sú að hluti krakkahópsins er á leið til höfuðborgarinnar og ætlar Vertinn að fylgja sínu fólki á flugvöllinn og verður því að drattast fram úr rúminu í tíma.
Til að mynda akkúrat í augnablikinu situr bloggritari alein í eldhúsinu við tölvuna sína og skrifar á veraldarvefinn umvafin næturhúmi og klukkan að ganga þrjú. Ný leið til að vekja á sér endalausa eftirtekt í tölvuheimum uppgötvaðist nýverið á andlitsbókinni svokölluðu eða facebook og sogast margnefnd inn í hana með undraverðum hætti. Vinir dúkka upp hér og þar og allstaðar og fjölmargir sem löngu voru gleymdir birtast brosmildir og vilja vera vinir í gegnum súrt og sætt. Alltaf er gott að eiga nóg af vinum til að halla sér að það eitt er víst og þeim er öllum tekið fagnandi hverjum og einum.
Til að gera eitthvað af viti annað en að skrifa eitthvað sem ekkert vit er í fór Vertinn að velta fyrir sér heimsóknum á síðuna frá því að mælingar á heimsóknartíðni hófust, eða í mars í fyrra. Flettingar eru 304690 þúsund sem tákna það að öll íslenska þjóðin hefur flett sig í gegnum þessa bloggsíðu á einu og hálfu ári en fletting telst það þegar einhver síða undir viðkomandi bloggi er sótt og skoðuð af einhverjum tilteknum notanda. (Í þessu samhengi eru myndir eða annað aukaefni inni í síðu ekki taldar með til síðna). Inn í þessari tölu er væntanlega átt við alla Íslendinga alveg frá því þeir fæðast og þangað til þeir fara yfir móðuna miklu eða alla leið frá vöggu til grafar, nema svo einkennilega vilji til að einhverjir lesi síðuna oftar en einu sinni. Það er auðvitað inn í myndinni og telja má líklegt að lestur þessara skrifa verði ávanabindandi fyrir lesandann og veiti nokkurs konar alsælu og vellíðunartilfinningu sem er eftirsóknarverð hverjum þeim sem hefur gaman af lífinu.
Væntanlega má gefa sér það að einhverjum þyki gott að lesa um eitthvað annað en gríðarlega spekingslegar vangaveltur um hverjum sé um að kenna hvernig komið er fyrir þessari litlu þjóð sem stendur svo berskjölduð fyrir veðri og vindum í Atlandshafinu og hvern eigi að grýta fyrir aðild sína að hruninu. Sumir vilja ugglaust hengja bakara fyrir smið og svo öfugt og reiði fólks er mjög skiljanleg enda alls ekki ástæðulaus. Stundum beinist reiðin að einum frekar en öðrum og stundum er eins og allt verði í stakasta lagi og stundum er eins og allt komi til með að fara í kalda kol.
Frumskilyrði er þó hér hjá okkur fyrir vestan að standa saman og styðja hvert annað. Versla í sinni heimabyggð eða reyna eftir fremsta megni að styðja við það sem er á svæðinu.....koma í Kjallarann og fá sér kolamola sem enn er á kreppuverðinu....kíkja í hádegisverð í Einarshús ( strax í dag), sem er enn á kreppuverðinu...panta sér borð á jólahlaðborði, sem er enn á kreppuverðinu...koma um miðjan daginn og fá sér heitt súkkulaði og kökusneið, sem er enn á kreppuverðinu...standa vörð um þá þjónustu sem við viljum hafa í byggðarlaginu...því engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Opið er í Einarshúsi alla virka daga frá klukkan 10:00 til klukkan 16:00 og á föstudags-og laugardagskvöldum frá kl. 22:00 til kl. 03:00
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.11.2008 | 02:12
Koss
Súðavík heilsaði Vertinum í Víkinni með kossi í kvöld enda ár og dagur síðan títtnefnd heimsótti hana í þeim erindagjörðum að fara á AA fund. Það var afmælisgjöfin frá títtnefndri til margnefndrar að fara á fund eftir allt of langt hlé og létta ögn á sér og ekki síst hlusta á aðra segja frá reynslu sinni. Það er svo ótrúlega gott að vita til þess, að maður er ekki einn á báti í lífsins ólgusjó og gott að treysta á þaulvana ræðara um borð sem róið geta með téðan Vert að landi ef báturinn lendir í ágjöf eða fær á sig brot. Það er nauðsynlegt að ná innri ró og fá hugann til að hætta að vinna á þvílíkum hraða að minnstu munar að hausinn detti af og skoppi yfir urð og grjót. Tólfta sporið var til umræðu en þar er fjallað mikilvægi þess að flytja öðrum fagnaðarerindi AA samtakanna og reynslusporanna og reyna að vera góð fyrirmynd.
Títtnefnd fær að heyra margar raunasögur við barinn og besta ráðið er að hlusta og vera til taks ef á þarf að halda. Tár sást á hvarmi um helgina er bundið var enda á þriggja mánaða edrú tíma eins gestanna. Vörnin brast fyrr um daginn og flóðgáttir alkóhólismans opnuðust fyrir allt sem rann. Þá sást Bakkus í öllu sínu veldi glottandi út í bæði, haldandi tangarhaldi með hrammi sínum um viðkomandi og gefa hvergi eftir. Vörnin brast kannski vegna þess að ekki var til fjármagn til að senda viðkomandi í áframhaldandi meðferð eftir dvölina á Vogi . Kannski hefði það verið lífsspursmál fyrir viðkomandi, kannski ekki, en brýnt er að sjá til þess að fólk sem komið er út á ystu nöf af völdum þessa ógnarsjúkdóms komist í viðeigandi meðferð. Hvergi má gefa eftir á þessum tímum óvissu og umbrota í íslensku þjóðlífi við að koma fólki til hjálpar til eðlilegs lífs sem á við alkóhólisma að glíma en ætla má að vandamál samfara áfengisdrykkju aukist í samræmi við bágt efnahagsástand þjóðarinnar.
Þessi færsla átti reyndar að vera á léttu nótunum fyrir svefninn en leiddist út hugrenninga um vanda drykkjusjúkra. Hughrif frá fundinum í kvöld ollu því trúlega að hugsunin er bundin við þessi málefni en hugurinn er líka bundinn við gestinn sem felldi tár yfir bágu ástand sínu og köldum kossi Bakkusar konungs.
Því bíður gamansöm bloggfærsla betri tíma...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.11.2008 | 11:37
Listsýningar í Einarshúsi
Vertinn í Víkinni vill árétta það að einn fallegasti salur hér vestra er falur fyrir listsýningar af ýmsu tagi. Fjölmargir listamenn hafa sýnt verk sín í Einarshúsi og um þessar mundir hanga verk Laufeyjar Eyþórsdóttur uppi til sýnist gestum og gangandi. Gaman væri að setja upp nýja sýningu í jólamánuðinum og hvetur títtnefnd listamenn að hafa samband hið fyrsta á netfangið ragna@einarshusid.is
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.11.2008 | 01:28
Fagrar frænkur
Má til með að setja mynd af þessum einstaklega fallegu frænkum og systkinadætrum á Rósaballi sem haldið var í síðustu viku. Halldór Sveinbjörnsson ljósmyndari Bæjarins Besta tók myndina og fyrirgefur mér án efa fyrir að birta hana hér á blogginu.
Lilja og Bryndís á Rósaballi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2008 | 21:54
Álit á Pétri og Einari á leikhús.is
Ég átti þess kost fyrir nokkru síðan að sjá einleikinn Pétur og Einar sem sýndur hefur verið að undanförnu í svokölluðu Einarshúsi í Bolungarvík. Eins og segir í kynningu hér að framan þá bjuggu þeir báðir í húsinu á sínum tíma, Pétur og Einar. Þegar ég var að alast upp í Bolungarvík stóð veldi Einars Guðfinnsonar einna hæst, en ég er fæddur árið 1955. Mér fannst ég raunverulega vera tekinn aftur um tugi ára, svo sannfærandi var túlkun og framsetning Elvars Loga á viðfangsefninu. Þar hafði umgjörðin auðvitað sitt að segja, en húsið hefur nýlega verið gert upp með snilldarlegum hætti þannig að gamli tíminn hefur fengið að njóta sín. Elvari Loga tekst síðan með framsetningu sinni að glæða húsið lífi og draga fram "sál" þess ef svo má að orði komast. Þeim Elvari Loga og höfundinum, Soffíu Vagnsdóttur, hefur tekist þarna afar vel til og Ragna Magnúsdóttir, vert í Einarshúsi, á heiður skilinn fyrir framtakið. Ég skora á alla þá sem hafa þess kost, að láta þessa sýningu ekki fram hjá sér fara og skella sér á aðra hvora sýninguna nú síðar í mánuðinum.
Jónmundur Kjartansson
Þessi einleikur var settur upp í Einarshúsi í Bolungarvík. Elvar Logi leikari rekur sögu fjölskyldna Einars og Péturs í húsinu. Hann kemur því vel til skila og þetta er stórvel skrifað og skilar Elvar Logi því frábærlega til áhorfenda. Systurnar hlátur og grátur bjuggu í góðu samkomulagi lengi í Einarshúsi, Þetta stykki hrífur mann til baka í söguna og skilur eftir ilminn lengi á eftir.
Halla Signý Kristjánsdóttir
Ég bæði hló mig vitlausan sem og þurfti að þurrka tár af hvarmi þar sem erfið atvik úr sögu Bolvíkinga voru rifjuð upp.
Skylda að sjá þessa sýningu.
Benedikt Sigurðsson





Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.11.2008 | 09:28
Dag í senn...
.....eitt andartak í einu....
Tvö ár eru liðin í dag frá því að Vertinn í Víkinni lagði bjórdósina frá sér og tók ákvörðun um að hætta að sulla í áfengi. Það er ótrúlegt en satt að svo langur tími skuli vera liðinn án þess að bragða á görugum drykkjum af neinu tagi. Vertinn hefur ekki svo mikið sem bragðað konfektmola með áfengu innihaldi og hafa sælgætisflöskur þær, sem áður voru í uppáhaldi í konfektkössunum frá Nóa Síríusi, fengið að vera þar án afskipta títtnefndrar. Allir hinir konfektmolarnir renna reyndar óhóflega niður í margnefnda og þykja hið besta lostæti.
Tvö ár hafa liðið ljúft hjá og átakalaust að mestu þó ljóst sé að engar rósir eru án þyrna. Þegar allt er á botninn hvolft og litið er til baka virðist þó lífið hafa runnið svo notalega áreynslulaust framhjá þegar á heildina er litið.Títtnefnd er öll að falla í það form sem var allsráðandi fyrr á árum og breytingin er töluverð að mati þeirra sem þurfa að þola margnefnda dag hvern. Einnig er hugurinn farinn að snúast um allt það sem var hreinlega algjört aukaatriði þegar títtnefnd var í neyslu en hugsanir leituðu æði oft í áhrifin af Bakkusi konungi.
Tvö ár hafa komið aftur með gamlar og góðar tilfinningar sem áður voru sofnaðar. Tilhlökkunin fyrir jólunum er til að mynda núna yfirþyrmandi og títtnefnd bíður með öndina í hálsinum eftir því að geta byrjað að skreyta húsið. Vertinum kveið fyrir jólunum og fann þeim allt til foráttu og jólabarnið var steinsofnað og hraut svo hátt að títtnefndri var ekki vært. Jólagleðin var horfin og allt umstang jólanna var óþarfi því það var komið annað í staðinn sem skipti meira máli.
Tvö ár hafa liðið þar sem einhver hönd hefur haldið títtnefnda og fylgt henni skref fyrir skref. Allt hefur haft sinn tilgang og hvert örstutt spor virðist fyrirfram ákveðið. Þegar einar dyr hafa lokast opnast aðrar um hæl með undraverðum hætti. Þó kemur það fyrir að skapið hlaupi með margnefnda í gönur en það er einfaldlega vegna þess að batanum er ekki sinnt sem skildi. AA fundir hafa farið fyrir ofan garð og neðan og það er vissulega ekki til framdráttar fyrir títtnefnda.
Tvö ár hafa opnað augun fyrir því hve áfengið gerir mörgum manninum skráveifu. Fólk sem alla jafna er geðprýðisfólk breytist oftar en ekki í hálfgerð villdýr þegar inntaka áfengra drykkja fer fram úr hófi. Æ algengara er að títtnefnd dragi sig út úr skarkala skemmtanalífsins þegar leikur stendur sem hæst og láti sig hverfa af vetfangi.
Tvö ár hafa fengið margnefnda til að vera þakklát fyrir að vakna upp að morgni án þess að vera með áhyggjur yfir því að hafa gert eitthvað eða sagt í ölæði kvöldinu áður sem kæmi títtnefndri í koll.
Tvö ár hafa liðið og gefið Vertinum fullvissu fyrir því hvað sé ríkidæmi í raun. Það er að vakna upp að morgni og sjá litadýrðina í lífinu, finna angan af náttúrunni, heyra fuglanna syngja dirrindí, halda heilsu og húmor og eiga þak yfir höfuðið, ögn af bjartsýni og jákvæðni, frábæra fjölskyldu og góða vini...
...og umfram allt að fara edrú að sofa að kveldi...
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.11.2008 | 00:35
Fréttir af einu og öðru
Skemmst er frá því að segja að heilmargt hefur verið um að vera i húsi gleði og sorgar frá því að bloggað var síðast. Pétur og Einar voru þokkalega vel sóttir á fimmtudagskvöldið og þeir sem mættu voru hæst ánægðir eins og venjulega. Til gamans má geta þess að umfjöllun er um sýninguna á leikhus.is og þar er hægt að skrifa komment ef áhugi er fyrir hendi um einleikinn. Vertinn hvetur þá sem hafa séð sýninguna að segja álitt sitt á verkinu þar. Næsta sýning á Pétri og Einari verður 20. nóvember nk.
Spilavistin var frábær á föstudagskvöldið en spilað var á sex og hálfu borði. Það er svo mikið meira gaman ef margir mæta og stemningin sem myndast er einstök. Sá sem er á myndinni með kúrekahattinn hugsar vel um að allur aðbúnaður sé til fyrirmyndar. Hann hefur í handraðanum spil ef honum Vertinn þykir ekki hafa passað nægilega vel upp á að spilastokkarnir séu í lagi. Hann passar einnig að nægjanlega lýsing sá á svæðinu og kemur því með 100 kerta perur til að bæta í perustæðin. Salurinn í Einarshúsi er himnaríki líkast þegar Bjarni hefur skipt út woltum og wöttum og Orkubú Vestfjarða á fullt í fangi með að anna eftirspurninni eftir rafmagni í húsið rétt á meðan spilavistin fer fram. Hugsanlega þarf að leggja sérstakan þriggja fasa rafstreng beint frá Reiðhjallavirkjun til að hægt sé að spila tvisvar i mánuði með aukalínu frá Mjólká til að lýsa upp samkvæmið. Aftur er spilað eftir hálfan mánuð og vonandi mæta sem flestir.
Súpufundur Sjálfstæðismanna fór fram hádeginu á laugardag og mætti Einar Kristinn á fundinn auk margra annarra karla og kvenna. Hugurinn Vertsins var þó bundinn við brúðkaupsveislu sem halda átti í húsinu síðar um daginn. Salurinn var skreyttur hátt og lágt rauðum hjörtum og rómantískt andrúmsloft var allsráðandi. Vertinn lék hlutverk ljósmyndara í veislunni og smellti af sem aldrei fyrr og festi andartakið á filmu. Baldur félagi í bæjarstjórn og samstarfsmaður á www.vikari.is gekk að eiga stúlkuna sína hana Hörpu og þótti vel til fallið að halda veisluna í húsi títtnefndrar. Fína Canon myndavélin hans Baldurs var í fyrsta skiptið brúkuð og verður væntanlega með í för í næstu ferð í Bolungarvíkurgöng enda stórskemmtilegt að taka myndir á þvílíka græju.
Strax að afloknu brúðkaupsteitinu þurfti að undirbúa fyrir Singstar keppni í Kjallaranum. Það er greinilega eitthvað sem er komið til að vera því þetta var stórskemmtilegt í alla staði. Stefnt er að því að halda slíka keppni aftur fyrir jólin og aftur og aftur eftir það og svo eins oft og þurfa þykir í framhaldinu. Helgarvaktin var því ansi löng og ströng og Vertinn var búin á þvi kl. þrjú í nótt og því var brugðið á það ráð að keyra títtnefndri heim. Þórunn og Gunna kláruðu því kvöldið án aðstoðar margnefndrar og kláruðu sig fullkomlega af því.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2008 | 19:56
Singstar í Kjallaranum

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm