Kona fer til læknis...

Vertinn hefur ekki lesið mikið að skáldsögum í seinni tíð. Nú ber svo við að nokkrar mektarmeyjar í plássinu eru saman í bókaklúbb og reyna eftir fremsta megni að kryfja bókmenntir af öllu tagi til mergjar. Bókin "Kona fer til læknis" varð fyrir valinu að þessu sinni og Vertinn er hugfangin yfir sögunni sem fjallar konu sem fær krabbamein og hvernig hún og eiginmaður hennar takast á við þær hremmingar sem sjúkdómnum fylgi. 

Sagan hefur gríðarleg áhrif á sálarlíf títtnefndrar og tilfinningar brjótast fram við minnsta tilefni við lesturinn og einhverra hluta vegna virðast varnir oftnefndrar ekki vera mjög sterkar þegar allt kemur til alls. Vesælir Vertar hafa kannski ekki úthald til að halda haus yfir gröf og dauða og þegar varnirnar bresta virðist ljósið svo órafjarri og bjartsýnin takmörkuð. Þá er sem tími sé kominn til að pakka saman og gera eitthvað nýtt við lífið og leyfa öðrum að njóta starfskraftanna meðan þeir eru einhverjir. Þá er sem það renni upp sá dagur að Vertinn í Víkinni fylli sinn tóma vagn og skrölti með hann úr byggðarlaginu og snúi aldrei til baka, illum tungum og öfundarmönnum til gleði.

Þá er eins og það sé kominn tími til að kona fari til læknis........

 


Fullt hús stiga

Mæja ólafs að spilaSpilavistin tókst afskaplega vel í alla staði og mikið kapp var lagt á að fá sem flest stigin og vinna sem flesta slagina. Mæja Ólafs fékk flestu stigin eftir þrjú spilakvöld en hún er einstaklega heppin í spilum og fékk að launum miða á jólahlaðborð í Einarshúsi fyrir jólin fyrir tvo. Frí verður tekið á spilavist fram yfir jólin enda næg verkefni sem liggja fyrir spilafíklum á aðventunni og lag að líta upp frá vistinni smástund.

 

 

Í Kjallaranum skemmti sprikklhópur sér í lokahófi eftir að hafa tekið á því um tíma um tíma og gæddLokahóf hjá Árna sér á hinni einu sönnu gúllassúpu hússins. Hún er frábærlega góð og girnileg og bragðlaukarnir bókstaflega öskra af kæti þegar hún er framreidd. Brandarar voru látnir fjúka og skemmtiatriði voru í hávegum höfð enda allri glaðir og hressir eftir stíft prógramm undanfarinna mánaða.

 

 


Hvernig stendur á því ?

Hvernig stendur á því að Vertinn þurfti að veðsetja sál sína og allar eignir til að fá örfáar milljónir að láni til að geta til að geta komið þaki yfir höfuðið og byggt upp fyrirtæki, meðan aðrir gátu fengið milljarða að láni til kaupa á hlutabréfum sem urðu kannski verðlaus strax í kjölfarið??

Hvernig stendur á því að Vertinn gat ekki fengið lán með veði í ferðamönnum sem áttu eftir að koma vestur, meðan aðrir gátu fengið nánast ótakmörkuð lán með veði í fiskinum í sjónum sem átti eftir að veiða??

Hvernig stendur eiginlega á þessu??

 


Áminning

Vert er að minna á sýningu Péturs og Einars í kvöld kl. 20:00 og eru Magga Lilja og Agnar, Kristný og Valdimar, Olli og Eygló, Dedda og Snorri, Helga Jóns og Gummi Ragg, Ingibjörg og Jón Sveinsson, Sísí og Halldór, Anna Jör og Bjarni með Evlalíu, Anna Edvards, Elli Ketils, Díana og Bjarki, Hagbarður og Ragnhildur, Guðrún Ben, Beta Mæja og Kobbi, Guðrún og Bragi, Elvar og Elín hvött til að mæta auk......Dídí og Bíbí......Víðir og Lalli.....Fríðu og Guðjónu.....slökkviliðið allt eins og það leggur sig......brunaliðið til að vera til takts ef slökkviliði klikkar.........kirkjukórinn til að syngja......frímúrarana....oddfellow......sjómannadagsráð....engilráð....bjargráð....góð ráð.....vinnueftirlitið...heilbrigðiseftirlitið...hafnarnefnd....og sóknarnefnd...sjómenn og guðsmenn....verkamenn og trúnaðarmenn....húsmæður og armæður...bræður og systur og bara alla sem vilja koma á þessa frábæru sýningu um frumkvöðla í Bolungarvík og upplifa sögu staðarins á 45 mínútum


Hárið

Góð spretta er í hárinu á Vertinum í Víkinni og lokkarnir leika sér við toppstykkið sem aldrei fyrr. Þykktin á hárinu gerir það reyndar að verkum að töluverð þyngsli eru fólgin í öllum þessu hárfargani  og oft á tíðum strekkist  á höfuðleðrinu með þeim afleiðingum að nokkuð strembið er að halda andlitinu í réttum skorðum. Augun virðast uppglennt og augabrýrnar á miðju enni svo ekki sé talað um brosið á andliti áðurnefndrar sem glennist út í báðar áttir ef strekkingsvindur feykir hárinu til. Eyrum hallast utar en ella svo erfiðlega gengur að halda gleraugunum á nefinu og heyrnin skerðist að sama skapi.

Allt þetta er auðvitað orðum aukið eins og gefur að skilja en verkjatöflu var þó sporðrennt í kvöld til að stilla kvalirnar sem sest höfðu að í höfðinu vegna hársins sem vex svo tryllt, villt og galið út úr hausum á téðum Vert. Þetta er auðvitað hróplegt óréttlæti gagnvart þeim, sem hafa varla stingandi strá á hausnum og glíma við skallabletti hér og þar og lítinn, lélegan eða jafnvel engan hárvöxt. Títtnefnd þarf þó ekki að hafa áhyggjur af slíku en ofvöxtur af þessu tagi ,sem virðist einkenna sprettuna hjá títtnefndri, virðist leiða af sér verki í höfuðleðrinu endrum og sinnum en þó sjaldnar en ætla má.

Ekki er frítt við það að það hljómi undarlega að vera illt í " hárinu" og hvað þá að þurfa að taka verkjastillandi lyf við ástandinu en ekki vill Vertinn þó skerða eitt einasta hár á höfði sínu þrátt fyrir þær þrautir sem fylgja því að bera makkann daginn út og daginn inn. Stefnt er að því að láta hárið spretta aðeins meira svo hægt sé að væla yfir ástandinu þegar annað umræðuefni þrýtur og fátt hægt að skrifa með viti í bloggheimum

 

 


Dillandi færsla

Allar helstu dansdrottningar staðarins hafa haft þá reglu að hittast tvisvar í mánuði í Einarshúsi hjá Da og dansa villta, tryllta dansa. Vert er því að minna Lilju, Sísí, Ingibjörgu, Arndís, Eygló, Gunnu og allar hinar sem vilja vera með, á danstímann annaðkvöld ,miðvikudagskvöld, kl. 20:00. Engum blöðum er um það að fletta að dansinn er taktfastur og hvergi stigið feilspor. Samtakamátturinn einstakur og hláturinn yfirþyrmandi og það er eins og hvert dansspor veki upp einstaka kátínu.

Hittumst því hressar...í dillandi dansi

 


Fjölskyldufréttir

Einu sinni sem oftast leið þessi dagur eins og örskot. Oftar en ekki þegar dagur sem þessi eru að kveldi kominn er vert að líta yfir daginn og spá hvernig hann hafi liði hjá. Vertinn var væntanlega nokkuð geðgóð og dagfarsprúð þegar á heildina er litið og stóð sína plikt eins og endranær.

Foreldraviðtalið hjá unglingnum fór eins og til var ætlast enda er ekkert undan þeirri stórskemmtilegri stelpu að kvarta. Hún virðist nokkur gleðigjafi í skólanum enda er hún aðlaðandi og skemmtileg því Lilja er  litríkur persónuleiki og afar eðlilegur unglingur.  “Haltu áfram að vera frábær” voru skilaboðin sem við mæðgurnar fórum með heim úr þessu foreldraviðtali og segja þau það sem segja þarf.

  

Elsa lét skrá sig í Háskólann á Akureyri í dag en hún klárar nám við Menntaskólann á Ísafirði nú um áramótin. Viðskiptafræðin á hug hennar allan en námið er kennt í fjarkennslu í Háskólasetri Vestfjarða svo hún getur stundað námið í sinni heimabyggð og það skiptir sköpum sérstaklega á þessum tímum. Kærastinn, Einar Jón, mun halda áfram að draga björg í bú á meðan og stunda undirstöðuatvinnugrein Íslendinga á einum af aflahæstu bátum byggðarlagsins.

Andri hefur þegar innritað sig í Flugskóla Íslands og sest þar á skólabekk á nýju ári. Hann og Þórunn munu því yfirgefa hreiðrið um áramótin og flytja til Reykjavíkur. Þau eru svo einstaklega heppin að hafa aðgang að íbúð í höfuðborginni sem foreldrar Þórunnar eiga og þar fá að vera í eins og þeim listir og er það forsenda þess að þetta sé hægt með góðu móti. Það verður eftirsjá í þeim eins og gefur að skilja en svona fljúga ungarnir úr hreiðrinu einn af öðrum. 

Eftir situr norska Ida hjá okkur hinum og heldur sínu striki í Menntaskólanum en hún fellur vel inn í fjölskylduna. Hún er ósköp róleg og fyrirferðalítil en samt ákveðin og röggsöm ef því er að skipta. Íslenskan kemur hægt og hægt og hún getur vel talað ef hún vill. Ida vill borða kartöflur í hvert mál sem er nokkuð nýnæmi á heimilinu. Húsbóndinn er þó farinn að heimta hrísgrjón í staðinn fyrir þessi jarðepli og togstreita virðist í uppsiglingu þegar síst skildi en það leysist þó jafnan jafnóðum við matarborðið.

Bónus bauð svo títtnefnda velkomna í dag með enn hækkandi prís og lakara gengi.  Kílóið af kjúklingabringum hafði hækkað um þúsund kall og kuldinn í kælinum beit téðan Vert í kinnar fastar en oft áður í takt við hækkandi verðlag. Það vildi til að suðusúkkulaðið var á tilboði svo hægt var að gleðjast þegar á heildina var litið

Þessi færsla er nú meira svona fjölskyldufærsla en einnig er hún í boði fyrir alla hina sem endilega vilja vera ofan í Vertsins koppi og nauðsynlegt telja að vita af hverju skrefi margnefndrar og hennar skilduliðs.Væntanlega er gott að hafa orð kennarans í huga á morgun og hinn og hinn...........

Höldum áfram að vera frábær...það hjálpar


Góð ráð

Það er sagt að maður eigi að borða eitt epli daglega útaf járninu og einn banana  til að fá kalíum. Líka eina appelsínu, útaf c-vítamíninu og einn bolla af grænu te án sykurs, til að forðast sykursýki.  Svo má ekki gleyma lýsinu sem er náttúrulega allra meina bót. Drekka tvo lítra af vatni alla daga (Já, og síðan að pissa því, sem tekur tvöfaldan tímann sem það tók að drekka það). Á hverjum degi borða jógúrt og eitt skot af   LGG út af gerlunum sem enginn skilur hvað gera, en ef þú færð ekki eina og hálfa milljón á dag mun það hafa skelfilegar heilsufarslegar afleiðingar.  

Daglega  taka inn eina aspirín til að koma í veg fyrir hjartaáfall, og drekka eitt rauðvínsglas í sama tilgangi. Og annað hvítt fyrir taugakerfið. Og einn bjór,  sem ég man ekki hvaða gagn á að gera. Ef þú færð þér þetta allt í einu, skaltu gæta þess að eiga einn Red Bull ísskápnum til að drekka  daginn eftir,  nema  náttúrulega ef þú ert  þá búinn að fá heilablóðfall. Ef það gerist, muntu ekki taka eftir því.


Daglega borða trefjar. Mikið, mjög mikið af trefjum. Þar til þú kúkar heilli peysu.  Það á að borða fjórar til sex máltíðir  á dag, hollar, fitulitlar máltíðir og ekki gleyma að tyggja hvern  munnbita hundrað sinnum. Með smá útreikningi er  ljóst að það tekur þig um fimm  klukkustundir á dag að borða. Ó, og  síðan  má ekki gleyma að bursta tennurnar eftir hverja máltíð.
Á eftir jógúrtinu og  trefjunum, tannbursta; á eftir eplinu, tannbursta; á eftir banananum, tannbursta...

Og á meðan þú ert á annað borð með tennur máttu ekki gleyma tannþræðinum og munnskolinu með tilheyrandi gurgli. Best að stækka baðherbergið og setja þar inn hljómflutningstækin þín,  því  þar áttu eftir að dvelja drjúgan tíma: vatnsþambið, trefjarnar, tennurnar...
Síðan á að sofa í átta stundir og vinna aðrar átta plús þessar fimm sem fara í að borða. Þetta gerir  tuttugu og eina klukkustund.  Þá áttu þrjár stundir eftir, það er að segja ef ekkert sérstakt kemur uppá þann daginn. Samkvæmt  könnunum  eyðum við  þremur stundum daglega í sjónvarp...og ekki gleyma  tölvunum!!!  En þú hefur engan tíma í svoeiðis, því daglega áttu að fá þér a.m.k. hálftíma göngutúr  (Ég tala af reynslu: Snúðu við eftir 15 mínútur, því annars verður hálftíminn að klukkustund).

Síðan verður að huga að vinunum því þeir eru eins og blóm: það þarf að vökva þau daglega. Líka þegar þú ferð í frí. Það er að segja ef þú ferð í frí.
Síðan þarf að vera vel upplýstur. Lesa að minnsta kosti tvö dagblöð og eina grein í tímariti til að bera upplýsingarnar saman.

Ah! Síðan er það kynlífið. Kynlíf daglega og þar að auki á það að vera frumlegt og skapandi . Þetta tekur sinn tíma!!!  Að maður tali nú ekki um tantra kynlíf!!! Að öllu framansögðu  vil ég minna þig á: Það á að tannbursta sig eftir hverja máltíð. Það þarf líka að skúra, þurrka af, þvo þvott, fara í sturtu og vaska upp og áttu kannski hund að auki eða hamstur? Börn?!


Nú reiknast mér til að þetta kalli á um 30 stundir á dag. Eina lausnin á þessum vanda,  er að framkvæma eitthvað af þessum atriðum í einu. Til dæmis: Þú ferð í kalda sturtu með opinn munninn og drekkur þannig lítrana tvo af vatni.  Þegar þú gengur út úr baðherberginu með tannburstann í munninum nýturðu um leið ásta (tantrískt)  standandi með makanum þínum, sem um leið horfir á sjónvarpið og segir þér frá á meðan þú burstar tennurnar.

Var ein hendi laus? Hringdu í vinina!!! Og foreldrana!!!

Fáðu þér rauðvín (eftir spjallið við foreldrana muntu þurfa á því að halda) eplið getur makinn þinn matað þig á á meðan þú borðar bananann með jógúrtinu. Úffffff! En ef þú átt tvær mínútur eftir , sendu þetta þá á vinina (sem þú þarft að vökva eins og blóm)  um leið og þú tekur inn eitt hvítlaukshylki  sem er svo gott fyrir...

En nú verð ég að hætta því eftir jógúrtið, appelsínuna, bananann, bjórinn, fyrri  vatnslítrann, þriðju máltíðina með trefjum, hef ég ekki hugmynd um það hvað ég er að gera og þarf nauðsynlega að komast á klósettið. Aha, ég ætla að nýta tímann og kippa tannburstanum með mér.

Ef ég er að birta þetta í annað sinn , er það vegna þess að þrátt fyrir að fylgja öllum þessum ráðum  er ég samt komin með alzheimer.


Besta fjárfestingin

Það er víst alveg óhætt að segja það að eitt og annað hefur verið unnið í Einarshúsi frá því að húsið komst í hendur núverandi eigenda. Hvergi hefur verið slegið slöku við í þeirri viðleitni að koma þessu reisulega húsi í fyrra horf og vinnustundirnar hafa verið ófáar og kraftaverk unnið nánast hvern einasta dag undanfarin fjögur ár.

Myndir í vél 14.03.05 019

Reyndar eru vinnustundirnar sem farið hafa í húsið það margar að hverjum manni myndi sundla við tilhugsunina og fáir hefðu sætt sig við þennan þrældóm í sjálfboðavinnu. Uppskeran er þó ríkuleg og launin meiri en margan manninn grunar því djásnið er að verða algjör draumur og þessi perla staðarins orðin hin mesta bæjarprýði

IMG_1168

Flestir héldu að þessir nýju eigendur Einarshúss væru gengnir af göflunum. Fólk hristi hausinn og leit til okkar í meðaumkun er byrjað var að rífa og henda drasli út úr húsinu og ekki var frítt við að bæjarbúar felldur tár yfir geðveikinni sem virtist hafa hertekið blessað fólkið. Sumir tóku sveig framhjá húsinu og litu til fjalla og hálf kjökruðu yfir þeim ósköpum að einhver skildi ætla að taka þetta stóra hús að sér í þeirri veiku von að geta gert það upp.

Myndir í vél 14.03.05 027

Auðvitað má það vera hverjum manni ljóst að áhættan var mikil og er það enn þann dag í dag. Óbilandi kjarkur, þor og trú á verkefninu hefur þó alltaf verið leiðarljósið og sú að sú ákvörðun að taka þetta sögufrægasta hús bæjarins í ræmur og gera það upp var hin hárrétta ákvörðun.

IMG_1344

 

 


Sigur

Það má með sanni segja að helgin hafi verið ljúf og góð í alla staði. Vertinn stóð vaktina eins og venja er til í Einarshúsi og reyndi eftir fremsta megni að töfra fram það besta sem í boði var í það og það skiptið. Helgin var þó fremur róleg en þó kom slæðingur inn til að sýna sig og sjá aðra og það er vel. Finnbogi Bjarna og Diddi Rós fóru með sigur af hólmi í Kjallarakeppninni hjá Gumma Reynis og mun Finnbogi verða spyrill eftir hálfan mánuð. Menn eru því beðnir að setja sig í stellingar og fara að lesa sig til um eitt og annað og standa klárir fyrir næstu spurningakeppni.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband