4.12.2008 | 02:58
Niðdimm nótt
Vertinn er algjörlega búin að snúa sólarhringnum á hvolf og vakir fram á nótt og sefur fram á dag. Smettisskruddan hefur heltekið títtnefnda og ómældur tími fer í að vafra um í heimi andlitsbókarinnar og hitta mann og annan. Þó gefur margnefnd sér tíma til að skreyta húsið og ljósaseríur lýsa upp heimilið vítt og breytt. Áhyggjur Orkubús Vestfjarða á ástandinu stóraukast með hverri nýrri seríu sem Vertinn setur upp og varaaflstöðvar kikna brátt undan ástandinu. Það vill þó OV til happs hér í næsta nágrenni eru tólf sumarhús, já ég sagði tólf, sem engin dvelur í að jafnaði og brúka litla sem enga raforku. Lífið í þessari sumarhúsabyggð er þó eftir atvikum afar gott þó vissulega vanti fólk til að dvelja í öllum húsum allan ársins hring með tilheyrandi lífi og fjöri.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.12.2008 | 00:09
Bókaupplestur
Tilvalið telst að geta þess í tíma að upplestur á jólabókum heldur áfram á föstudaginn kemur en þá munu Kristín Magnúsdóttir og Halla Signý Kristjánsdóttir lesa upp úr bókum sem út koma fyrir jólin. Benni Sig ætlar að mæta með nikkuna og spila nokkur jólalög til að setja punktinn yfir i-ið í súpunni í hádeginu.
Það er því lag fyrir þá sem dæsa þungt og væla armæðulega yfir því hve lítið er um að vera í bænum að taka hádegið frá og mæta EKKI í hádegisverðinn til að tryggja það að hægt sé að vera áfram ygldur á brún yfir því eymdarástandi sem ríkir í bæjarfélaginu. Vertinn mun nefnilega leika á þá og halda sérstakt armæðukvöld á nýju ári þar sem armæðusöngur mun óma milli þylja og kvein og kvart fær að njóta sín sem aldrei fyrr
Annars þá er brátt síðasti sjéns að skrifa sig á jólahlaðborðið á laugardagskvöldið en Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir er veislustjóri. Ef henni kippir í kynið þá veltur án efa út úr henni glettnin og grínið kvöldið út í gegn. Benni Sig mun svo einnig mæta á stóra sviðið um helgina og leika út í rauða nóttina.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 10:41
Kalli Hallgríms á leið vestur
Vertinn telur tilhlýðilegt að geta þess í tíma svona rétt til að auka á tilhlökkun vegna jólanna að Kalli Hallgríms hefur sett sig í startholurnar og er byrjaður að pakka gítarnum og munnhörpunni niður. Hann mun mæta í Kjallarann á hárréttum tíma og taka lagið milli jóla og nýárs.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.12.2008 | 02:05
Heimkoma
Vertinn í Víkinni brá undir sig betri fætinum og dvaldi í höfuðborginni fáeina daga. Húsbóndinn og hundurinn voru í prófi og títtnefnd fékk að fljóta með svona rétt sí svona til að dilla sér hirst og her. Upplagt þótti að sýna sig og sjá aðra og tipla um á háhæluðu um hallir og moll og brosa sínu breiðasta við höfuðborgarbúum. Jólaverslun var þó ekki gerð að neinu marki enda eru verslandi hér vestra með framúrskarandi vöru á boðstólnum sem upplagt er að kaupa er líður að jólum.
Jólahlaðborðavertíðin er í algleymingi um þessar mundir svo tilhlýðilegt þótti að heiðra eitt slíkt með nærveru sinni á föstudagskvöld. Madonnu sjóvið í Broadway varð fyrir valinu og segjast verður alveg eins og er að Vertinn skemmti sér konunglega. Frábærir dansarar og söngvarar stigu á svið og ekkert var út á það að setja. Aðeins vantaði þó upp á að ungstirnið Jóhanna Guðrún væri nógu " glyðruleg" fyrir hlutverkið en Madonna er ekki beint þekkt fyrir sakleysi og englabossatakta.
Að jólahlaðborði loknu var uppáhaldsbar höfuðborgarinn heimsóttur en Thorvaldsen bar var einn sá besti hér áður þá sér í lagi vegna hins bragðgóða mohito drykks sem var einstakur í sinni röð meðan Vertinn var og hét drykkfeld. Núna bragðast vatnið ennþá betur og tilfinningin að vera allsgáð er svo frábær og æðisleg að það tekur varla tali. Músíkin var algjörlega æðislega skemmtileg þetta kvöld og það var svo einstaklega gaman að dansa og sleppa fram af sér beislinu. Ef gefa ætti kvöldinu einkunn fengið það ellefu af tíu mögulegum, Vertinn renndi í hlaðið um miðjan daginn með viðkomu í Enniskoti og Dæli eins og svo oft áður og það var gott að komast heim í jólasnjóinn.
Áfram líður þó tíminn og næg verkefnin bíða og helgin verður undirlögð veisluhöldum sem kalla á skipulagningu og annan tilverknað. Verið er að leggja síðustu hönd á skipulagningu skemmtanahalda um jólahátíðina og verið er að púsla einu og öðru saman svo allt gangi upp. Búist er við fjölmörgum í bæinn og sjálfsagt að hafa nóg við að vera fyrir fólkið. Trúbadorar koma héðan og þaðan og ætla sér að trylla lýðinn ef hægt er með einhverju móti. Það verður sagt frá því síðar en allar helgar héðan í frá á þessu herrans ári sem senn gengur í garð eru nánast fráteknar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.11.2008 | 02:21
Helgin
Upplestur úr jólabókum í bland við ilmandi gúllassúpu
Vertinn telur tilhlýðilegt svona rétt fyrir svefninn að gera almenningi það ljóst að hin margrómaða gúllassúpa verður á boðstólnum í hádeginu í dag, föstudaginn 28. nóvember. Með henni er hægt að hlusta á upplestur úr jólabókunum en Daðey Steinunn Einarsdóttir og Elín Jónsdóttir ætla að lesa upp úr bókum sem út komu fyrir jólin gestum og gangandi til yndisauka. Lesið verður upp úr jólabókum hvern föstudag á aðventunni til jóla.
Kjallarakeppnin
Kjallarakeppni verður á sínum stað um kvöldið og spyrill að þessu sinni er enginn annar en Finnbogi Bjarnason. Verðlaunin eru í fljótandi formi og tilboð verða eins og endranær á krepputíma svo betra er að mæta en að sitja heima í eymd og volæði.
Pétur og Einar
Á laugadagskvöldið verður ekta bolvískt leikhús í boði fyrir almenning því einleikurinn Pétur og Einar verður sýndur kl. 21:00. Skyldumæting fyrir þá sem er annt um sögu Bolungarvíkur og bráðnauðsynlegt fyrir hina að lyfta sér upp úr amstri hversdagsleikans og baða sig upp úr menningunni sem dafnar svo vel í nafla alheimsins, Bolungarvík
Biggi Olgeirs
Trúbadorinn ástsæli, Biggi Olgeirs mætir svo glaðbeittur með gítarinn um miðnættið á laugardagskvöldið og heldur uppi stuðinu út í nóttina.
Fjarstýrt
Eins og glöggt má sjá slær hjarta Einarshúss enn í traustum takti þótt Vertinn bregði sér af bæ.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2008 | 01:38
Smettisskruddan
Leið Vertsins í Víkinni lá í humátt til höfuðborgarinnar í dag eins of spáð var fyrir um í fyrri færslu. Ísafjarðardjúpið hefur iðað af síld sem hló tryllingshlátri yfir vestfirsku ferðalöngunum sem tilheyra hópi Vestfirðinga sem ekki mega veiða bein úr sjó. Aðgerðarlaus sátum við hjá er drekkhlaðnir bátarnir sigldu beinu stími með aflann í burtu til vinnslu annarsstaðar og eftir sátu miðin innantóm og sorgbitin líkt og kona sem fætt hefur barn sem tekið er strax við fæðinu og fært til vandalausra. Auðvitað er ekki rétt að taka hvítvoðunginn frá móður sinni nýfæddan heldur á hann að alast upp í faðmi vestfirskrar móður náttúru þar sem hann er borinn og barnfæddur svo sem flestir njóti góðs af uppeldi hans í formi aukinna starfa við meðhöndlun sjávarfangs úr hafinu sem umlykur Vestfirði.
Yoko Ono stóð svo hnarreist við friðarsúluna er rennt var í bæinn og Lennon var með í anda er súlan vísaði veginn allt til enda. Eftir smá spjall við tengdó var "viðhaldið" tekið upp úr tölvutöskunni og nokkrum bréfum svarað, nokkrar greinar settar á www.vikari.is en þá tók við sívaxandi vinna á Smettisskruddunni eða facebook. Þar laðast frænkur og frændur, vinir og kunningjar að margnefndri og aldagömul bekkjarsystkin dúkka upp sem legið hafa í dvala í hundrað ár. Einhverjir voru trúlega stungnir á snældu í fermingartímunum hjá Gunnari presti í denn og hafa nánast legið í dvala síðan. Nú er þó tími til að vakna því gömlu kerlingarnar og karlarnir sem fermdust með ungpíunni sem hér ritar eiga víst stórt afmæli í vor og tilmælum er beint til þeirra að skrá sig á smettið hið fyrsta og hafa upp á títtnefndiri og adda henni sem vin því heljarinnar húllumhæ er nefnilega fyrirhugað að vori með þessum framúrskarandi krakkahópi sem fermdist í Hólskirkju 20. maí árið 1979.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2008 | 11:37
Upplestur úr jólabókunum
Haldið verður áfram þeim góða sið að lesa upp úr jólabókunum í hádeginu á föstudögum í Einarshúsi fyrir þessi jól. Þær Daðey Einarsdóttir og Elín Jónsdóttir ætla að velja sér bækur úr jólabókaflóðinu að þessu sinni og ryðja brautina fyrir þessi jól yfir ilmandi gúllassúpu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2008 | 03:01
Að kveldi kominn
Einu sinni sem oftar er dagur að kveldi kominn. Dagurinn í dag byrjaði með morgunverðarheimsókn til Súðavíkur þar sem búið var að skipuleggja agnarlítinn AA fund. Þessi agnarlitli fundur gerði gæfumuninn fyrir daginn og geislandi bros Vertsins í Víkinni lýsti upp Ísafjarðardjúpið er ekið var heim á hárréttum hámarkshraða með jólalögin í botni í græjunum. Nú á að taka á því enda ekki seinna vænna að fara að lesa AA bókina af einhverri alvöru og kafa ofan í sálartetrið fyrir fullt og fast. Títtnefnd hefur komist að því að það er sáluhjálparatriði að komast til móts við hið innra sjálf og hræra í tilfinningapotti sálarlífsins til að höndla hina innri ró sem okkur öllum er svo nauðsynleg því ef trassað er að vinna prógrammið myndast innri ókyrrð sem kallar á einn sopa sem er jafnan byrjunin á heilu baðkeri fullu af bjór sem er alls ekki á leið til Betlehem. Fyrir Vertinn í Víkinni eru litlir fundir þar sem hægt er að ræða heima og geyma við traustan AA vin það besta sem völ er á í stöðunni og hreint æðislegt að hafa tök á því einu sinni í viku.
Höfuðborgin bíður í ofvæni eftir Vertinum í Víkinni enda töluverður tími frá síðustu heimsókn en leggja á í hann eftir hádegi í dag. Ekki hefur heyrst af neinum mótmælum vegna þessarar heimsóknar enda á títtnefnd víst lítinn þátt í efnahagshruninu í landinu og því tilgangslaust að mótmæla veru hennar í borginni. Án efa má þó hugsa sér að mótmælendur láti það vera að mótmæla rétt á meðan margnefnd er í bænum til að raska ekki ró hennar í kaffihúsaferðum og öðrum viðlíka viðskiptaerindum sem eru bráðnauðsynlegar þeim sem hýrast á landsbyggðinni allan ársins hring. Reyndar má telja nokkuð öruggt að senn fari að bera á öfund í garð þeirra sem hafa búið í kreppu úti á landi í áratugi og kunna því að draga fram lífið í slíku ástandi, því má vænta þess að margnefnd fái þrekvaxinn lífvörð til að tryggja fyllsta öryggi á hverjum viðkomustað fyrir sig.
Trúlega var það hið mesta happ að hafa nýtt gróðann af tapinu í kreppunni til að fjárfesta í húsnæði á landsbyggðinni en ekki sett tapið af gróðanum í að kaupa hlutabréf sem nú eru einskis virði. Eitt sinn kom þó lítill fermingardrengur úr bankageiranum með brilljantín greitt hárið og með lakkrísbindið reyrt upp í barkakíli og ætlaði að stokka upp fjármál Vertsins og gera hana ríka. Til allrar hamingju var einhver ósýnileg hönd sem kom í veg fyrir það svo enn stendur það sem stendur. Eftir stendur að þrjú hús hér vestra eru í eigu títtnefndrar, tvö í Víkinni og eitt í næsta firði svo segja má með sanni að oftnefnd hefur í næg hús að vernda þótt kreppi að.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.11.2008 | 09:35
Eitthvað um að vera
Vert er að geta þess að Finnbogi Bjarnason verður spyrill á föstudagskvöldið á Kjallarakeppninni. Án efa telst betra að vera nokkuð vel undirbúinn því strákurinn gæti spurt spurninga sem krefjast sérstakts gáfnafars og skarpleika.
Hætt hefur verið við jólahlaðborðið þann 29. nóvember en stefnt er að því að reyna að halda sýningu á Pétri og Einari kl. 21:00 á laugardagskvöldið engu að síður. Biggi Olgeirs er svo væntanlegur með gítarinn upp úr miðnætti og leikur hann eitthvað út í nóttina.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2008 | 22:44
Haltur leiðir blindan
Hljómsveitin Haltur leiðir blindan æfir sig stíft þessa dagana til að getir slegið í gegn eftir jólahlaðborðið þann 13. desember. Takturinn er sleginn aftur og aftur til að geta haldið lagi kvöldið umrædda og trommarinn telur í ásamt bassaleikaranum sem reynir hvað hann getur að tolla í takti við gítaristanna. Þetta er eitt besta bílskúrsband sem leikið hefur í Kjallaranum fyrr og síðar og stendur svo sannarlega undir nafni. Þeir kappar æfa lög héðan og þaðan sem líkleg eru til að falla í hlustendur svo hægt sé að dilla sér við hljómfagra tóna. Ekki er vitað hversu mörg lög eru á efnisskránni en heyrst hefur eftir áreiðanlegum heimildum að bæði lögin sem kapparnir kunna séu orðin ofboðslega góð og slái út hvað hljómsveit sem er svo vænta má þess að fleiri lög komi í kjölfarið.
Þrátt fyrir að Vertinn hafi tekið þá ákvörðun að hætta að dekstra bæjarbúa til að koma á uppákomur í Einarshúsi í framtíðinni mun síðasta áminning birtast hér og nú því örfá sæti eru laus á hlaðborðið þann 13. desember og reyndar þann 6. des einnig.
Reiknað er með að þetta verði síðasta útkall á síðasta hlaðborð í húsi gleði og sorgar í eitt skipti fyrir öll.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm