Til gamans.........

....má geta þess að Gunnar Hallsson ætlar líka að mæta með gítarinn í hádeginu á morgun og spila og syngja nokkur lög...Allir að mæta sem vettlingi geta valdið.

Elín Ey í Kjallaranum

Elín EyElín Eyþórsdóttir mun halda tónleika í Kjallaranum í Einarshúsi þann 20. desember nk. en nýlega kom út fyrsta plata Elínar sem ber heitið "See You In Dreamland". Á plötunni eru átta frumsamin lög en auk þeirra má heyra tvær "ábreiður", aðra af þekktu Bítlalagi en hina með "eighties" stjörnunni Haddaway. Sjálf syngur Elín öll lögin og leikur á gítar í þeim flestum.

Elín fékk nokkra góðkunna listamenn í lið með sér við gerð plötunnar, má þar á meðal nefna KK, Steina úr Hjálmum og Eyþór Gunnarsson. Auk þess koma fram á plötunni Pétur Sigurðsson bassaleikari, Jón Óskar trommuleikari og þær Sigríður Eyþórsdóttir og Myrra Rós Þrastardóttir söngkonur.

Elínu hefur verið lýst sem gríðarlega hæfileikaríkri tónlistarkonu með einstaka rödd, sem nýtur sýn til fulls í tregafullum textum og sálarfullum blús-lögum hennar. Óhætt er að fullyrða að hér sé á ferðinni eitt mesta efni sem komið hefur fram í íslensku tónlistarlífi í langan tíma.


Upplestur á jólabókum í Einarshúsi

Guðfinna Hreiðarsdóttir les upp úr bók sinni "Svanurinn minn syngur" sem fjallar um ljóð og líf skáldkonunnar Höllu Eyjólfsdóttir, í hádeginu á föstudag. Einnig ætlar Auður Finnbogadóttir að lesa upp úr bók föður síns, Finnboga Hermannssonar sem ber heitið "Í húsi afa míns". Ilmandí súpa verður á boðstólnum og eru menn hvattir til að mætast í húsi sorgar og gleði á síðasta föstudegi fyrir jól og gleðjast saman.

Fastar skorður

Aðeins er að róast hjá Vertinum í Víkinni. Dagarnir eru engan veginn nógu langir til að rúma allt það sem títtnefnd þarf að gera um þessar mundir og sólarhringurinn líður of hratt fyrir smekk margnefndrar. Stiklað skal hér á stóru hvað viðburði helgarinnar varðar og myndum skal dritað eftir hendinni. Mikið líf og fjör var í Einarshúsi og því frá mörgu að segja.

Upplestur úr jólabóknum á föstudaginn

P1040113Kristín Theódóra læknir las fyrir gesti Einarshúss í hádeginu á föstudaginn fyrir fullu húsi gesta. Án efa hafa margir hugsað gott til glóðarinnar og ætlað sér að láta lækninn skrifa upp á recept fyrir pillum og mixtrúrum, fyrst hún var þarna á annað borð en enginn tími gafst til þess að sjúkdómsgreina veislugesti sem voru reyndar afar heilbrigðir að sjá. Vertinn varð að galdra fram aukaborð til að koma öllum fyrir sem vildu njóta stundarinnar og Einarshús laðaði sig að öllum þeim sem vildu heyra. Fólk frá öllum hugsanlegum þjóðernum var samankomið í húsi sorgar og gleði og allt fór vel fram þrátt fyrir að sumir skildu ekki innihald sögunnar vegna hve framandi tungumálið er þeim.

P1040117

Hjördís Jóns og Elli Ketils mættu einnig í þetta sama hádegi og tóku lagið. Þau hljómuðu gríðarlega vel saman og var eins og englar af himnum ofan hefðu sest upp hjá Vertinum. Jólalögin ómuðu í takt og sungið var með af innlifun enda nálgast jólin óðfluga og upplagt að syngja svoldið saman á fallegum dögum á aðventu. Elli Ketils er vanur allskyns uppistandi enda er hann hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kemur þá sér í lagi ef hann er staddur í útlöndum en þá kyrkja hann gleðisöngva fyrir mann og annan. Hjödda kann einnig vel sitt fag og er afar flink á gítarinn og kann gripin utanað og heldur fullkomlega lagi.

Mitt í þessu hádegi þegar allir hámuðu í sig unaðslegan pottrétt mætti Pétur Magg með vestfirska kvótasvindlið undir hendinni. Hann færði húsinu spilið að gjöf svo Bolvíkingar geti fengið að kynnast því hvernig kvótabrask gengur fyrir sig í hugskoti þeirra sem eiga heiðurinn af þessu stórskemmtilega spili.

P1040120

Pétur kom að vinnu við kvótasvindlið og hefur án efa svindlað til að koma ár sinni vel fyrir borð og nappað til sín kvóta í fúski og braski en engu að síður var það vel hugsað hjá honum að færa títtnefndri eitt spil að gjöf af þeim 150 eintökum sem gerð voru. Það á án efa eftir að koma sér vel í framtíðinni. Hann þurfti þó ekkert að svindla sér inn í Einarshús enda stendur það honum, líkt og öðrum, ávallt opið.

P1040118

Pabbi auðvitað mætti til að hlusta og borða enda er mamma ekki heima til að elda ofan í þennan mikla matmann og kunni hann vel að meta trakteringarnar. Guðfinna Hreiðarsdóttir mun lesa upp úr bók sinni í hádeginu á föstudaginn kemur en ekki er alveg búið að skipuleggja til enda hverjir fleiri láti ljós sitt skína.

 

Jólahlaðborðið á laugardagskvöldið

P1040139

Það var eitt af þeim kvöldum í Einarshúsi sem verður minnst um aldur og eilífð og ritað í rúnir minninganna meðan títtnefnd man eitthvað að ráði. Það kvöld heppnaðist frábærlega. Maturinn þótti æðislega góður og þjónustan til fyrirmyndar í alla staði. Framúrskarandi matreiðslumenn sáu um allar trakteringar og hantéringar og veisluborðið var eins og listaverk og allt gekk eins blómstrið eina.

P1040138

Dagskrá sem auglýst var á borðhaldið sem ber heitið "Úti er alltaf af snjóa" sló í gegn og viðstaddir voru hæstánægðir enda mjög frambærileg dagskrá í boði. Þar eru sungin lög eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni og engin var svikinn af þeim flutningi frábærra tónlistarmanna sem þar komu fram . Títtnefnd er eiginlega alveg bit hve Vestfirðir eru ríkir af hæfu listafólki sem skarar framúr á sínu sviði.

P1040142

Ekki bætti svo úr skák að bílskúrsbandið Haltur leiðir blindan sló í gegn í orðsins fyllstu merkingu. Þeir voru alveg frábærir og er það sagt hér og skrifað af fullri alvöru enda væri annað marklaust og ekki boðlegt fyrir lesendur.

P1040143

Stemningin var stórkostleg og fólkið sem mætti í svo innilega góðu stuði að leitun var að öðru eins. Sálin hans Jóns míns bliknar í samanburðinum við þessa stórgóðu hljómsveit og Stebbi Hilmars nær Gumma Sala svo ótrúlega vel að furðu vekur og undrun má telja.

P1040144

Trommarinn var bara helv....góður og sýndi það að hann hafði engu gleymt og tryllingurinn við trommusláttin var svo mikill að einn kjuðinn fór í mask og rétt skaust framhjá gítarleikaranum sem mátti prísa sig sælan að halda lífi og limum. Engum tómmötum né eggjum var kastað í kappana en engum brjósthöldum né g-strengjum fleygt í áttina að þeim heldur svo þetta var undir kontról. Ég reikna fastlega með að þeir verði fastir liðir þegar á líður í Kjallaranum sem stundum er nefndur "Best geymda leyndamál Vestfjarða".

P1040161

Fjölmargir gestasöngvarar tóku lagið. Þarna syngur Einar Hrafn

P1040154

Elsa tekur lagið með hjómsveitinni

P1040148

Einar Ægir tók í gítarinn með pabba sínum

P1040158

Og Kuno var kátur með sínum mönnum

P1040152

Og Beggi "sæbjúga" var kúl að venju og færði Vertinum gull, reykelsi og myrru úr hafinu til að hafa í Kjallaranum eins og hann gerir er hann kemur úr hverri veiðiferð . Á myndinni er hann með Lilju á Hóli að segja af sér frægðarsögur.

Kvöldverður á sunnudag

Til að slá punktinn yfri i-ið var starfsfólkinu mínu boði til kvöldverðar heima á Hólastíg á sunnudagskvöldið. Tilefnið var að kveðja tengdadótturina hana Þórunni sem unnið hefur hug og hjörtu allra sem kynnst hafa henni þetta undanfarna hálfa árið sem hún hefur dvalið hjá Vertinum og unnið í Einarhúsið.

Krakkarnir mínir

Auðvitað væri tækifærið notað og smellt af öllum hópi barna, tengdabarna og fósturbarna títtnefndrar því kannski verður einhver bið á því að þau hittist aftur öll saman.

 


Kjallarakeppnin í kvöld

Björg Guðmundsdóttir er spyrill........tilboð á krepputíma......mæta og vera með

Lán í óláni

Sú gamla kemur heim í dag ef háloftavindar verða til friðs með glænýja mjaðmakúlu í stað þeirrar gömlu. Það má reyndar segja að það hafi verið kominn tími til að setja nýja kúlu í kellu því þessi gamla var að verða áttræð og sumir myndu telja að það væri þokkaleg ending. Best hefði þó auðvitað verið ef sú upprunalega hefði dugað til enda, en gott er að geta fengið varahluti ef á þarf að halda. Aðgerðin gekk vel og mamma fór á fætur í gær og fór örlítið á ferðina til að koma blóðinu á hreyfingu. Hún er furðu hress miðað við aldur og fyrri störf og vonandi nær hún sama þrótti og fyrr. Góði eiginleikinn hennar mömmu mun þó án efa flýta mikið fyrir bata því hún er einstaklega jákvæð, svona í seinni tíð, og á auðvelt með að sjá bjartar hliðar á tilverunni og kemur alltaf auga á það hversu lánsöm hún sé, þó ólánið nái í skottið á henni endrum og eins.

 

 


Mamma

Litla jólabarnMamma leit út um gluggann á þriðjudag er hún var að pakka jólagjöfum og horfði á mannlífið á aðalgötu bæjarins. Fólk gekk öruggum skrefum fram og til baka á leið sinni um þorpið og mamma taldi sig vera það léttstíga að hún gæti skotist gangandi í handverkshúsið til að kaupa það sem vantaði í jólapakkann. Hún brá undir sig betri fætinum og greip stafinn því ófært var fyrir göngugrindina vegna snjóa. Hélt þessi litla og brothætta kona leiðar sinnar eins og ekkert hafði í skorist sem leiðin lág í humátt á áfangastað. Í bakaleiðinni skrikaði henni fótur og hún datt og lá hjálparlaus á götunni fyrir framan Hvíta húsið. Brátt bar að fólk sem stumraði yfir henni og kallaði á sjúkrabíl. Hún sagði að presturinn hafi komið að og blessað hana í bak og fyrir svona rétt til öryggis og þess vegna taldi hún sig örugga.

Þegar sjúkrabíllinn hafði skilað henni af sér á sjúkrahúsið á Ísafirði og sérfræðingar tóku hana til meðhöndlunar kom í ljós að sú gamla hafði brotnað og setja þurfti nýja kúlu í mjaðmaliðinn og það varð að gera í Reykjavík. Sjúkraflugvél var kölluð út í snarhasti frá Akureyri og mamma var lögð til í sjúkrarúmi fyrir flutninginn suður. Þessari litlu og viðkvæmu konu var skáskotið inn í flugvélina á Ísafjarðarflugvelli í rökkrinu fyrrakvöld og komst hún á áfangastað heilu og höldnu eftir smá hopp og hí í háloftunum. Aðgerð var gerð í gærkvöld og engar fréttir hafa fengist ennþá en það skýrist í dag hvernig til tókst. Engin ástæða er til að ætla annað en að aðgerðin hafi tekist vel enda er ólseigt í kellu því er hún af góðu kyni og ýmsu vön. Ef allt gengur eftir mun hún koma heim einhvern næstu daga og þá getur pabbi farið í heimsókn til hennar á hverjum degi og snúist í kringum hana eins og honum frekast er unnt.

 


Læknirinn og liðveislan á föstudag

Kristín Theodóra Hreinsdóttir læknir mun lesa upp úr jólabók í hádeginu á föstudag yfir rjúkandi súpu að hætti Einarshúss. Hjördís Jónsdóttir liðveisla mætir með gítarinn og syngur nokkur jólalög til að hleypa öllum í eintómt jólaskap.

Kristín les

Kristín Magnúsdóttir að las upp úr jólabók á sl. föstudag

 


Lúin

Jólahlaðborð forréttirVertinn í Víkinni er lúin enda búin að standa vaktina teinrétt alla helgina og hvergi slá af. Hver veislan á fætur annarri hefur verið hrist fram úr erminni og rúllað upp eins og ekkert sé og allt tekist með afbrigðum vel. Ber að þakka hversu vel tókst til því einstaka starfsfólki sem Vertinn hefur á að skipa enda er valin kona í hverju rúmi en þessar konur vinna saman sem ein. Allar þekkja sín hlutverk og vita upp á hár hvað skal gera í það og það skiptið. Það að geta verið einn hlekkur í slíku teymi þrautþjálfaðra vinnuhjúa í Einarshúsi eru forréttindi. Jólahlaðborðið á laugardaginn gekk einstaklega vel en þetta er fyrsta slíka hlaðborðið sem títtnefnd og hennar skyldulið framreiðir og útbýr af kostgæfni og af eigin rammleik að mestu. Þegar öllu er á botninn hvolft þá virðast meistarakokkar vera í öllum hlutverkum í eldhúsi Einarshúss og takast bara nokkuð vel upp svo títtnefnd taki ekki sterkara til orða en það.

Góður rómur var gerður að matnum og ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðarmála sagði matinn vera " ógeðslega góðan" og varla lýgur hann slíku í heyrenda hljóði. Guðbjörg Stefanía Hafþórsdóttir fór á kostum eins og við var að búast og skilaði sínu hlutverki afar vel. HafþórJólahlaðborð aðalréttir Gunnarsson pabbi hennar var veislustjóri til vara og gerði stormandi lukku en hann sagði dagsannar lygasögur af mönnum fyrr og nú sem voru allar fyrir ofan mitti eða þar um bil. Fjölmargir sögðu sögur og mikil gleði ríkti meðal veislugesta. Einarshús var líka hamingjusamt enda líkar því lífið þegar margir gleðjast saman í húsinu. Benni Sig tók lagið á nikkuna og gítarinn og hélt uppi þrumandi stemningu um kvöldið. Vertinn hefði auðvitað viljað ættleiða hann allt kvöldið en hann er vinsæll og varð að vera á mörgum stöðum í einu. Benni fikraði sig niður í Kjallarann þegar líða tók á og þar hélt fjörið áfram fram eftir nóttu. Til að toppa kvöldið tókst Vertinum að ná nokkrum dönsum í restina þegar búið var að ganga frá eftir herlegheitin á efri hæðinni og þá var stiginn steppdans í hringdans og svo öfugt. Þá gerðist það um það leiti sem klukkan sló í þrjú að úthaldið var búið og brunað var beint í bólið.

Títtnefnd varð að gera klárt fyrir kaffihóp sem átti pantaðar trakteringar á sunnudaginn og varð því að halda oneftir um leið og augun opnuðust.  Það skipti engum togum að það gekk vel eins og við er að búast og Einarshús gladdist enn meira.

Hólskirkja hafði síðan boðið til helgistundar á hólnum um kvöldið í tilefni af 100 ára afmælis kirkjunnar og taka þurfti myndir fyrir kirkjunnar menn. Margnefnd gaf sig að sjálfsögðu í það enda hafði Baldur tekið myndir í messu fyrr um daginn svo nú komið að títtnefndri að smella af sem aldrei fyrr. Kirkjugestir brostu kankvíslega í myndavélina en létu sér fátt um finnast er ljósmyndarinn myndaði í gríð og erg og festi andartakið á filmu. Hugvekjan sem flutt var um kvöldið var öll handskrifuð og það verkefni beið er heim var komið að pikka hana inn og birta hana á www.vikari.is og það tókst og gekk eins og til var ætlast. 

 


Dansað upp á stól

Vertinn í Víkinni dansaði upp á stól í teiti sem haldið var í tilefni af degi heilagrar Barböru á framkvæmdasvæði við Ós í kvöld. Fjörið var þvílíkt og ætla má að kýrnar á nærliggjandi bæ hafi baulað í takt við Benna Sig er hann kyrjaði gleðisöngva við undirleik færustu hljóðfæraleikara. Títtnefnd þarf engan gleðivökva lengur til að geta dansað upp á stólum og borðum enda er alveg hægt að sleppa fram af sér beislinu með góðu móti án þess. Þó verða óáfengir drykkir að vera á boðstólnum í bland við hina til að væta kverkar þeirra aflógu gömlu fyrrum drykkjurúta sem verða að forðast áfengi eins og heitan eldinn.

Margnefndri er minnisstætt heljarinnar teiti sem haldið var í tengslum við fjármálaráðstefnum fyrir rúmum tveimur árum í Landsbankanum sáluga í Reykjavík. Vertinn var nýbúin að taka ákvörðum um að leggja áfengi á hilluna og beið eftir plássi á Vogi þegar boðað var til veislunnar og því óvön að vera allsgáð þar sem allt var fljótandi í áfengi. Bráðhuggulegt þjónustfólk gekk um pleisið með léttvín og lagði mikið kapp á að fylla glös gesta í gríð og erg en glas Vertsins beið alltaf tómt. Þegar títtnefndri var tjáð að hún gæti farið að afgreiðsluborðinu og náð í áfyllingu ein og sjálf og upp á eigin spýtur fyrst oftnefndri vantaði bara gos, varð Vertinn að setja aðeins í brýrnar og kvarta yfir ástandinu svo vesalings þjónustufólkið þorði ekki öðru en að vera á hjólum í kringum margnefnda allt kvöldið. Þetta skiptir töluverður máli þegar nauðsynlegt þarf að vera edrú og er nokkuð prinsippmál fyrir téðan Vert.

Annars er stór helgi í vændum, upplestur úr jólabókum í hádeginu í dag, föstudag og stór hópur í mat um kvöldið. Jólahlaðborð á laugardag og kaffihópur á sunnudag. Þess vegna ætti téður Vert að fara að halla sér.

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband