Skjótum blysum á loft..

P1040356

Stelpur stefna fram á nýtt ár


Gleðilegt árið

Vertinn óskar öllum farsældar á því ári sem senn gengur í garð og þakkar samfylgdina á þessu skemmtilega ári sem rennur sitt skeið innan tíðar.

Lífið er ferðalag

Trúlega má telja til þrekvirkis allt það sem Vertinn og hennar skyldulið er búið að framkvæma á þessum örfáu dögum í höfuðborginni. Ekkert hefur verið litið í áttina að Smáralindinni sem emjar og vælir yfir ástandinu og grætur í senn yfir óréttlæti heimsins sem er í hrópandi ójafnvægi við venjur Vertsins. Stefnan var sett á skautasvellið í Egilshöll og þar skautaði margnefnd eins og drottning á svellinu og lék á alls oddi. Svellana þeirra spaugstofumanna bliknaði í samanburðinum við snilldartakta Vertsins í Víkinni sem sýndi það svo um munaði að hún hafði engu gleymt frá í gamla daga. Flikk flakk heljarstökk voru framkvæmd í huganum um leið og  oftnefnd leið um salinn við undirleik jólalaga og ritminn algjörlega sló í gegn og ljúft var að líða um á skautunum. Allt í einu og með undraverðum hætti fipaðist flugið og fæturnir sneru allt í einu norður og niður í stað þess að vísa beint fram og bossinn, sem er með mýksta móti um þessar mundir, tók mestan þungan af fallinu og varði rófubeinið fyrir frekari skakkaföllum. Sprunga kom í ísinn sem varð þess valdandi að Ameríkuflekinn skekktist og færðist úr stað svo súlan hennar Yoko sem alla jafna vísar beint upp í loft, bendir nú vestur á firði og lýsir upp skammdegisskuggana heima. Vertinn var fljót að rísa á fætur og láta ekki á neinu bera og hélt sínu striki eftir sem áður og brosti enn breiðar en aldrei fyrr. Það er galdurinn að láta ekki á neinu bera þótt örlítið á móti blási og smæla framan í heiminn eins oft og þurfa þykir.  

Til að svara einhverju óskiljanlegu kalli sem sest hefur að í hugskoti hugans, lagði margnefnd leiðina til að finna 100 ára afabróðir í Kópavogi. Það tengist sögunni sem margnefnd verður að koma niður á blað á næstu misserum. Afabróðirinn hafði þá veikst í gær og var fluttur á sjúkrahús og liggur þar á sjúkrabeði. Skrýtið að hann skuli veikjast á þeim tíma er svo brýnt erindi téður Vert þarf að eiga við hann. Hann er búinn að vera stálhraustur í heila öld en svo bilar maskínan akkúrat núna en vonandi tekst margnefndri að eiga við hann orð áður en haldið verður í næsta ferðalag.


Eitthvað

Þá er Vertinn kominn í höfuðborgina til að dvelja þar fram yfir áramótin. Það er auðvitað segin saga að það þykja tíðindi er margnefnd lætur sjá sig í Sódómu, borg óttans, enda óttablandin virðing borin fyrir flestum gestum sem koma að vestan. Frekar rólegt er þó yfir bænum er þessi orð eru skrifuð enda er klukkan er vel gengin í tvö um nótt og lítið meira líf í borginni en í Bolungarvík um svipað leiti. Einn og einn bíll rennur þó hjá eins og gerist heima er trillukarlarnir fara á stjá um miðjar nætur og skemmtistaðurinn Players sefur hér rétt hjá, líkt og Kjallarinn gerir í hálsakotinu heima.

Íbúð verkalýðsfélagsins tekur vel á móti Vestfirðingunum eins og ætíð myndirnar á veggjunum tala sínu máli og segja söguna að heiman sem er svo kunnugleg.  Tölvan mín er þó ekki tengd veraldravefnum og setur það vissulega strik í reikninginn hjá Vertinum sem situr oftar en ekki límd við tölvuskjáinn og ritar hina og þessa vitleysuna á bloggið. Þetta ferðablogg er skrifað á þar til gert word skjal sem sett verður í birtingu um leið og tölvan tengist. Smettisskruddan bíður átekta en töluverður tími fer í hana þegar vel liggur á Vertinum og þar eru vinir á víð og dreif sem gaman er að spjalla við. Ferðin suður gekk þó vel þrátt fyrir blauta vegi og holótta hér og þar. Betra hefði verið ef brúin yfir Mjóafjörðinn hefði verið tilbúin en nú hefði trúlega verið lag í þessu blíðskaparveðri að klára hana og hleypa á hana umferð.

Einn og einn flugeldur sást springa hér og þar í borginni í næturhúminu og búast má við að stórbrotin flugeldasýning verði er nýju ári verður fagnað víðs vegar um landið. Flugeldasala er mikil tekjulind björgunarsveitanna á landinu og afar brýnt að styðja við bakið á þeim og lýsa upp næturhúmið með fallegum ljósum í leiðinni. 

Morgundagurinn ber í skauti sér eitthvað skemmtilegt, auk þess þyrfti Vertinn að viða að sér heimildum í nokkuð stórt verkefni sem er handan hornsins. Það er vinna sem tengist skrifum og upplýsingaöflun og er þetta eitt verkefnið sem dúkkaði upp rétt sí svona. Það er eitt af því sem gerist án þess að títtnefnd fái rönd við reist og er ætlað að vinna. Ekki er vitað með vissu hvert sú vinna kann að leiða margnefnda en hver veit nema það verði aðgengilegt einn góðan veðurdag og á borð fyrir alþjóð til að njóta.


Líf og fjör á Fróni

Kalli, Muggi og VenniGærkvöldið með Kalla Hallgríms var alveg stórskemmtilegt. Símalínan brá þó á það ráð að verða eitthvað hrekkjótt og sló kortaposann út af laginu sem gerði það að verkum að aðeins hægði á millifærslum á íslenskum krónum á barnum fyrst í stað og voru gjaldeyrisviðskipti í lágmarki. Allt gekk þó eins og blómstrið eins áður en yfir lauk og Vertinn dillaði sér í takt við óminn frá gítaristanum. Gunna Ásgeirs fór flikk flakk heljarstökk á barnum eins og hennar er von og vísa og dansaði hún trylltan dans er hinir og þessir gestasöngvarar tóku lagið við mikinn fögnuð viðstaddra. Dansað var á sama litla blettinum og súlurnar dilluðu sér í takt við hljómfallið og dans gestanna og húsið vaggaði sér í lendunum og naut þess að hafa allt þetta líf innanborðs. Kjallarinn er opinn í kvöld að vanda og allir eru velkomnir. Aftur á móti er lokað milli jóla og nýárs en opið á miðnætti á Nýársnótt eins og verið hefur undanfarin ár.

Höfuðborgin kallar á Vertinn í Víkinni og hennar skyldulið á morgun og lagt af stað er allir eru klárir. Þar verður áð í nokkra daga eða þar til nýtt ár hefur gengið í garð. Akureyri er svo næsti viðkomustaður títtnefndrar beint í framhaldinu og heyrst hefur að öllum verði gefið frí í Eyjafirðinum rétt á meðan téður Vert staldrar þar við og slegið verður upp hátíð í bænum til að fagna. Allir grænmetisbændur fá þó að vatna plöntum sínum eins og til þarf og bændur fá að  fóðra skepnurnar enda annað ekki inn í myndinni. Jólahúsið verður þó vonandi haft opið í tilefni af heimsókninni og ein og ein pilsaverslun með glingurvörum höfð ólæst rétt á meðan.

Þjóðarsorg verður aftur á móti hér vestra á meðan oftnefnd er í burtu en gleðjast má þó yfir því að alltaf kemur Vertinn aftur og aftur og væntanlega sprækari en aldrei fyrr.

.

 

 


Gleðileg jól

Mikið lifandis skelfingar ósköp hefur dagurinn verið dásamlegur. Hann er búin að líða hjá eins og draumur og nú stendur Vertinn á blístri eftir át dagsins og allt er eins og bómstrið eina. Maturinn heppnaðist frábærlega eins og ætíð og kvöldið var okkar. Reyndar hefur eitthvað skolast til í kollinum á téðum Vert því það hefur runnið upp fyrir margnefndri að sumir hafa fengið jólakort en aðrir ekki og einn einn hefur fengið sama jólakortið tvisvar á kostnað þeirra sem ekkert fengu. Því er reynt að bæta það upp hér og nú og kveðja send til allra sem voru snuðaðir um kort að þessu sinni með myndum af kvöldinu.

Jólin 2008

Krakkarnir

Jóla-Dollar

Fíkniefnaleitarhundurinn Dollar hafði þó varann á í öllu pakkaflóðinu og hélt sig til hlés inn í hellinum sínum sem útbúinn hefur verið undir stiganum

Jólasystur

Þarna má sjá jólasystur sestar eru til borðs

Jólasnæðingur

að jólasnæðingi.

Jóla-Ida

hin norska Ida naut sín eins og hinir.

Mamma að malla

Skötuveislan á þorlák gekk einstaklega vel fyrir sig og mamma lék á alls oddi enda komin með nýjan mjaðmalið í stað þess gamla

Elsa og Einar

Einar mætti auðvitað eins og sannur kærasti

Lilja og Bryndís

og Lilja og Bryndís sungu af hjartans list


Kalli Hallgríms...

...mætir með góða skapið, gítarinn og munnhörpuna í Kjallarann að kvöldi annars í jólum. Þá er upplagt að líta upp úr makkintosdósunum og konfektkassanum, hætta að narta í hangikjötið og druslast upp úr rúminu og arka í Einarshús til að hitta skemmtilegt fólk.

Kalli Hallgríms

Tilvalið er að kíkja á efri hæðina og dásama verkin hennar Grétu, eiginkonu Kalla, í leiðinni en hún er með sýningu á myndum sínum uppi.

Gréta Gísladóttir


Elín Ey

Elín Eyþórs

Hrikalega góð


Lionsmenn áttu saman stund...

í vikunni ...og Baldur las lítið erótískt jólaævintýri.....

Baldur les


Lesið og sungið

Margt var um manninn í hádeginu í Einarshúsi er þær Guðfinna Hreiðarsdóttir og Auður Finnbogadóttir lásu upp úr jólabókum. Myndum birtast hér af samfagnaðinum fyrir þá lesendur sem ekki komust til að hlusta.

Lesið úr jólabókum 19. des 2008

Auður les og Borgar hlustar með athygli

Þórir hlustar

Þórir brosir út í bæði

Gunnar og Ylfa

Gunnar og Ylfa sungu og spiluðu

Guðfinna áritaði

Guðfinna las upp úr bókinni sinni og áritaði

Finnbogi Rúnarsson 

Og Finnboga fannst kjötsúpan góð.

Vestfirskir verktakar að snæðingi

Þetta var síðasti hádegislesturinn í bili.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband