Gremja

Kaflinn sem lesinn var úr AA bókinni fjallaði um gremjuna, helsta skaðvald alkóhólista. Ekkert hefur jafn eyðileggandi áhrif á lífið og gremja. " Það liggur í augum uppi að djúpstæð gremja leiðir aðeins til óhamingju og tilgangsleysis. Í sama hlutfalli og við leyfum slíku ástandi að viðgangast, eyðileggjum við fyrir okkur tíma sem hefði getað verið svo ánægjulegur" segir í AA bókinni. Í sömu bók segir að " fyrir alkóhólista sem byggir batavon sína á því að viðhalda andlegri heilsu og þroskast með henni er gremja grafalvarlegt mál. Við lítum svo á að hún sé bannvæn. Þegar við burðumst með slíkar tilfinningar útilokum við okkur sjálf frá hinni andlegu birtu".

"Ef við áttum að halda lífi urðum við að losa okkur við reiðina"

Þannig hljóðar hið heilaga orð. Vertinn er þess fullviss að jafnvel þeir sem ekki eiga við neina áfengissýki að stríða en bera með sér gremju og reið hið innra, hefðu gott af því að fletta AA bókinni við og við eða sambærilegum bókmenntum.


Lukkudráttur

Það er eins og við manninn mælt að nóttin hefur mætt á svæðið í allri sinni dýrð. Máninn hátt á himni skein í kvöldgöngunni og varpaði skugga á bæinn sem lág makindalega milli fjallanna. Nú er Vertinn í gönguátaki sem á að hleypa nýjum þrótti í margnefnda og skapa hraustlegt og gott útlit og auka úthald í hvívetna. Reyndar eru göngutúrarnir bara orðnir tveir það sem af er þessu ári en eiga vonandi eftir að verða fleiri þegar frá líður. Það er fátt sem jafnast á við það að arka hringinn um bæinn í veðri sem var í kvöld. Snjórinn marraði undir skónum og kaldur andvarinn strauk kinnina og hreina loftið fyllti lungun í kvöldkyrrðinni. Hundurinn vísaði veginn og húsbóndinn gekk traustum skrefum við hliðina út í náttmyrkrið framhjá höfninni þar sem bátarnir spegluðust á haffletinum. Stundum vantar Vertinum lýsingarorð til að lýsa því hve fallegt er í heimabænum.

Annar fallegur bær bíður morgundagsins því tvær vinkonur lesa AA bókina vikulega og hittast aðra hvora viku í Súðavík til að fylla hugann andans ró og kyrrð. Þetta eru heilagar stundir þar sem þýður blærinn hvíslar í eyra okkar baráttuanda og kjarki til að takast á við innri ókyrrð og finna frið fyrir ágangi Bakkusar. Alkinn er þó nokkuð róleg þennan dyntinn og í þokkalegu jafnvægi svona dags daglega dags þó hún sé stundum snögg upp ef eitthvað er. Þegar fíflunum fer að fjölga í lífi Alkans þá eru varnirnar í þann veginn að bresta og þá hringja viðvörunarbjöllur í gríð og erg í hugarfylgsninu. 

Þar sem Alkinn þarf að rífa sig upp í fyrra fallinu telst tímabært að fara að sofa. Minni þó á það að happdrætti SÍBS dregur í dag, 14 janúar en nýtt happdrættisár er að hefjast uppfullt af lukkudráttum. Allir sem vettlingi geta valdið eru beðnir að kaupa miða og styrkja í leiðinni gott málefni.

Góða nótt

 

 


Tíminn

Þegar dagur er að kveldi kominn og litið er yfir andartök dagsins er eins og klukkan hafi verið í kapphlaupi við eilífðina. Varla er Vertinn komin á ról þegar næturhúmið umvefur umhverfið og tíminn telur tímabært að fara í háttinn á ný. Snjókornin sem reika fyrir utan gluggann gjóa augunum að títtnefndir í tölvunni og hrista dúnmjúkan ískristallakollinn yfir tímanum sem fer í að vafra um á netinu. Jafnvægi er þó að komast á dagana eftir jólahátíðina þó svefntíminn sé úr lagi genginn eins og svo oft áður. Kvöldið og nóttin er tími títtnefndrar enda eru morgunlúrarnir unaðslegir en vara þó stundum lengur en lagt er upp með er farið er að sofa að kvöldi og reyndar stundum styttra.

Skipuleggja þarf tíma sinn nokkuð vel ef halda á úti öllum þeim aragrúa af síðum sem Vertinn þarf að halda úti með einum eða öðrum hætti. Þá kemur nóttin sterk til leiks til að blogga, vafra um á smettisskruddunni, undirbúa eina frétt eða svo á Vikarann og kannski vinna örlítið á vef Einarshússins svo ekki sé minnst á söguna hans afa sem skal skrásett að einhverju marki. Heilmikið gamalt efni bíður birtingar og þar liggur nóg fyrir að pikka inn til frekari varðveislu. Sækja þarf svo um einn og einn styrk vegna ýmiskonar verkefna sem gætu fallið vel að rekstri Einarshússins og það tekur sinn tíma sem hefur oftar en ekki borið árangur. Sumir halda reyndar að þetta sé ekki vinna og sagt var um daginn að það væri ekki skrýtið að margnefnd kæmi engu í verk, því tölvan tæki allan tímann frá allri alvöru vinnu en það er auðvitað regin misskilningur eins og sérhver maður getur séð.

Vertinn þarf að láta sjá sig eitt augnablik í hádeginu er karlarnir koma í snæðing í Einarshúsi. Þar lætur hún alla halda að hún hafi komið að matreiðslunni og eigi þess vegna smá heiður af þeim guðdómlega mat sem í boði er þeir vita allir að það er auðvitað regin misskilningur einnig, því Guðlaug er yfir undir og allt um kring í eldhúsinu. Þó kann Vertinn eitt og annað fyrir sér í matargerð en áhugasviðið liggur í öðru. Margnefnd þarf einnig að snattast eitt og annað yfir daginn, kaupa inn þar sem varan er á hagstæðustu kjörum, ná í skiptiminnt, panta drykki, kaupa verðlaun í spilavistina, gera upp kassann,.............og koma kannski heim eitt augnablik, mæta á fundi.......og heimsæja gömlu með reglulegu  millibili en reyndar fer stundum tíma í að gera ekki neitt. Ekki það að Vertinn sé að kvarta yfir of miklu álagi heldur einungis að leifa lesendum að fá smá innsýn inn í lífið og tilveruna, það er auðvitað gríðarleg heppni að hafa svona mikið að gera og leiðinn nær aldrei yfirhöndinni.

Auðvitað verður að gæta þess í hvívetna að eitt atriðið skyggi ekki algjörlega á annað. Bloggvinir kvarta yfir líflausum fréttum hér á síðunni og reynt verður að bæta úr því eins og skot. Myndavélin er varla komin úr jólafríi ennþá og því beðið er færis að taka myndir hér og þar, í gríð og erg og þá munu þær njóta sín hér.

Æðið á feisinu er reyndar yfirgengilegt og allir, bókstaflega ALLIR er þarna inni allt frá vöggu til grafar og nýja brumið af öllum þessu nýju/gömlu vinum hertekur hugann. Sagt er að þriðji hver Íslendingur eignist vini í tugatali á þessari síðu. Fréttir herma að hjónabönd bresti þar inni ef vinskapurinn gengur út í öfgar því ennþá þarf landinn að gera allt með stæl. Já þetta er lyginni líkast.....en...ég má ekki vera að þessu.....ég þarf að bjóða öllum vinum mínum á feisbúkk góða nótt og bið því að heilsa í bili

 


P.S

Sá sem fann svörtu öskutunnuna sem hafði fokið frá Einarshúsinu og lá í vari við norðurgaflinn á húsinu, má vera svo vænn að skila henni aftur.

Með ruslatunnusaknaðarkveðju

Vertinn í Víkinni

 


Smá fréttir inn í daginn

Helgin er afstaðin hjá Vertinum og þokkalegur atgangur hefur verið í Kjallaranum bæði kvöldin. Bús hefur fengist í bland við óblandaða drykki í gömlu kolageymslunni og allrahanda fólk af margbreytilegum þjóðernum safnaðist saman og skemmti sér. Hvorki meira né minna en tveir gítarar voru hafðir til að leika undir drykkjusöngva Slóvakanna sem vinna í jarðgöngunum í bland við gömlu góðu lögin sem Íslendingarnir sungu hver með sínu nefi í gærkvöldi. Greitt var ma. í gjaldmiðlum framandi landa sem hafa evru sem sina aðalmynt og fjárhirslur Einarshússins urðu án efa jafnt úrtroðnar og peningageymslur Seðlabanka Íslands eftir nóttina. Trúlega hefur þessi snögga innrás á erlendu fé í peningakassann skapað eitthvað ójafnvægi milli landanna en algjört jafnvægi var komið á vöruskiptajöfnuðinn er slagbrandinum var slegið fyrir þegar nóttin var í hámarki, þó akkúrat enginn hafi verið tilbúin til þess að fara heim að sofa nema þá helst margnefnd og hennar skildulið. Það má auðvitað segja að Vertinn sé komin í bullandi útrás hvað þetta varðar því það eitt að geta svalað þorsta erlendra manna með guðaveigum úr Kjallaranum hlítur að merkja visst útrásarævintýri í víðum skilningi þess orðs. þó vara áhrifin af inntöku gleðivökvans rétt augnablikið og skapa jafnmiklar væntingar og vonir og ávöxtun vafasamra sjóða bankanna gerðu hér forðum. Engin svik eru þó í tafli hjá títtnefndri og öllum er það ljóst að þegar af rennur víman tekur grámi hversdagsleikans við í öllu sínu veldi.

Grár hversdagsleikinn er reyndar alveg ágætur og þar leynast fjölmörg tækifæri fyrir fólk sem er opið fyrir nýjum hugmyndum. Vertinn hyggur á útrás sem tengist reyndar rekstri Einarshúss. Það er lag nú, sem aldrei fyrr, að spýta í lófanna og halda ótrauð áfram að byggja upp og bæta af fullum krafti og reyna að koma auga á tækifærin allt í kring. Það er hægt að gera ótalmargt ef nægri útsjónarsemi er beitt. Auðvitað er Vertinn háður því að heimamenn styrki og styði við staðinn og veri duglegir að mæta á þá viðburði sem í boði verða og þannig er það með alla þjónustu í hér í heimabyggð. Íbúarnir eru í góðum málum ef þeir styðja við bakið á því sem er í boði á  heimasvæði en það getur skipt sköpum um hvort sú þjónusta sem við viljum sjá vaxa og dafna lifi. Í svona litlu sjávarþorpi skiptir hvert og eitt okkar nefnilega gríðalegu máli því það er fólkið í bænum sem skapar samfélagið. Þá er aðsjálfsögðu horft til þess að aðilar í lykilstöðum í bæjarfélaginu leggi sitt af mörkum til að mannlíf geti blómstrað svo bærinn nái að dafna og vaxa í samræmi við væntingar fólks.

 

 


Spilavistinni frestað um viku

Eitthvað misreiknaði Vertinn sig í útreikningum á spilavist og kjallarakeppni. Kjallarakeppnin ætti að vera í kvöld en henni verður frestað um hálfan mánuð. Kjallarinn er því opinn um helgina fyrir gesti og gangandi.


Spilavist í kvöld kl. 21:00

Fyrsta kvöld í þriggja kvöld keppni hefst í kvöld kl. 21:00 í Einarshúsi. Upplagt þykir að taka í spil á nýju ári og spila með. Vegleg verðlaun eru í boði að vanda.

Hin merka saga

Þegar skammdegið hefur hreiðrað um sig hjá vestfirskum byggðum og sólin hopað á bak við sjóndeildarhring er sem bjarminn af Betlehemstjörnunni leggist brosandi yfir byggðina. Fjallatoppar drjúpa í lotningu höfði yfir þeirri fegurð sem svæðið hefur upp á að bjóða og skammdegisskuggar dansa við tunglsskinið sem speglast á haffletinum og veita birtu inn í sálartetrið. Stórbrotin náttúran fær hjartað til að slá örar og steinrunnin tröll kallast á í klettabeltum svo bergmálið ómar um fjallanna hring. Hvíta snjóhulan er sem kærkomið kærleiksteppi sem sveipar andartakið ævintýraljóma og stjörnubjartur himinn varpar birtu frá silkiofnum stjörnuvefnaði skaparans yfir hvert byggt ból. Rökkrið umvefur fólkið sem byggir sjávarþorpin fyrir vestan og húmið leiðir hvern og einn styrkum skrefum í átt að hátíð ljóss og friðar.

 

Svona sé ég heimabyggðina mína fyrir mér er skammdegisskuggarnir dansa við minningar liðinna ára í hugskoti hugans nú á aðventu. Sagan af frelsaranum sem lagður var í jötu í fjárhúsi einu í Betlehem er ljóslifandi fyrir hugskotsjónum mínum og stjarnan sem vísaði vitringunum veginn hér forðum lýsir enn þann dag í dag og er leiðandi hönd á lífsins leið. Sagan af fæðingu frelsarans er samofin sögu fjallanna hér í kring og hin ólgandi dröfn ritar æviminningar sínar í sandinn á hverju flóði og hver hóll og hver hæð hefur sögu að segja þeim sem vilja heyra.

 

Saga frumkvöðla í Bolungarvík hefur verið mér afar hugleikin um árabil. Ástæðan er sú að hús það sem tengir mestu athafnamenn byggðarlagsins, þá Pétur Oddsson og Einar Guðfinnsson, komst í mína eigu fyrir fjórum árum, þá aldargamalt. Húsið, sem í daglegu tali er nefnt Einarshús, var í niðurnýðslu og varla svipur hjá sjón þegar það komst í hendur okkar hjóna og ef vel var að gáð mátti sjá tár á hvarmi þessa merka húss sem hafði að geyma svo mikla sögu sorgar og gleði og eitt sinn var stolt byggðarlagsins og skjöldur. Hjartsláttur hússins hafði þó slegið taktfast í heila öld og hver fjöl beið þess að segja sína sögu þeim sem vildu heyra. Við hvert fótmál marraði minning liðinna tíma sem vildi ólm segja frá lífinu í húsinu en vantaði einhvern til að hlusta með athygli á frásögnina.

 

Mér var það fljótlega ljóst að það var mjög auðvelt að hlusta á innviðina segja frá þeirri tvískiptu sögu harma og hamingju sem í húsinu bjó. Það var eins og fyrrum íbúar þess leiddu mig áfram í leiðslu og aldagamall panell sagði mér sorgbitinn frá Pétri Oddssyni sem fylgdi 14 líkum frá þessu húsi sínu á 23 ára tímabili, en berklar urðu flestum að bana. Að lokum stóð hann uppi nánast einn og dó einmana og leiður. Húsið sagði mér einnig frá tímum gleði og hamingju er Einar Guðfinnsson bjó þar ásamt fjölskyldu sinni og lífið var ljúft og skammdegisskuggar léku sér  hugskoti hugans á aðventu. Þá var sungið um hve bjart væri yfir Betlehem eins og sungið er nú og ólgandi dröfn páraði minningar í fjörusandinn fyrir komandi kynslóðir.

 

Húsið, sem þjónar nú hlutverki veitingastaðar í bænum, átti bjarta framtíð fyrir sér þrátt fyrir allt, líkt og bærinn sem hefur fóstrað það alla tíð, því birta Betlehemstjörnunnar virðist skína skært á fjallatoppa bolvískrar byggðar um þessar mundir. Töluverðar framkvæmdir standa nú yfir sem gera framtíðarmöguleika staðarins mikla en vaskir bormenn Bolungarvíkur vinna nú hörðum höndum að greftri jarðganga í hlíðum Óshyrnu sem ryður öllum hindrunum úr vegi og opnar örugga leið milli byggðarkjarna. Varnargarður rís einnig í hlíðum Traðahyrnu sem verja mun byggðina og veita nauðsynlegt öryggi og skjól fyrir íbúa bæjarins, sem kúrir í hálsakoti fjöru og fjalla.

 

Bolungarvík er einnig hluti af stærri heild samfélaga á Vestfjörðum og þar standa misstór þorpin við ólíka firði og víkur og una hag sínum vel. Samfélög hafa hvert fyrir sig sína einstöku menningu og sögu, sem brýnt er að halda á lofti, en þó eru þorpin  svipuð vegna nálægðarinnar við náttúruna, fjöllin og hafið. Mikilvægt er að halda sögu byggðanna og fólksins sem í þeim býr til haga því minning dagsins í dag verður merk saga morgundagsins og greipt í frásögn framtíðar.

 

Nú þegar áherslur virðast vera að breytast í samfélaginu af ástæðum sem öllum eru ljósar, er ekki annað að sjá en fólk á Vestfjörðum telji mannlíf og afkomu jafnvel betur borgið í sínum litlum sjávarbyggðum. Um jólin finnur maður vel kosti þess að búa í þorpi þar sem allir þekkjast og taka þátt, beint eða óbeint, í gleði eða sorg sinna samferðamanna.  Þá er hægt að skynja öryggi þess að eiga athvarf í litlum bæ sem kúrir í vetrarklæðum undir fjallinu, alskreyttur litadýrð jólaljósanna.

 

Í jólasögunni var fjárhúsið athvarf Jósefs og Maríu þar sem ekki var pláss í gistihúsinu. Þá kúrði nýfæddur Jesú í jötu og bjarminn frá Betlehemsstjörnunni lá brosandi yfir byggðinni. Þá upphófs enn ein saga vona og væntinga, þeirra sömu vona og væntinga og allir Íslendingar bera í brjósti fyrir framtíð í fögru landi.

Birtist í Vesturlandi á jólum 2008

 

Útsölur

Útsölurnar í höfuðborginni eru nú í hámarki. Mörg þúsund manns ganga stefnulaust um ganga Smáralindar og þefa uppi varning sem er á spottprýs og falir fyrir örlítið minni pening en fyrir helgina. Vertinum þykir þó merkilegast hve fáir kunnuglegir eru þar á ferð enda allir bláókunnugir og útlit og atgervi algjörlega á skjön við vestfirskt útlit og ekkert andlit kunnuglegt. Kosturinn við að versla í Bjarnbúð er sá að þar nægir að hitta aðeins einn viðskiptavin og margnefnd þekkir hann og allt hans fólk og getur rakið hans ættir langt aftur í ættir. Þar er kosturinn við að búa í litla sjávarþorpinu vestur á fjörðum þar sem allir þekkja alla. Til að gera langa sögu stutta þá græða reykvískir kaupmenn ekki mikið á téðum Vert enda er lagt upp með að styðja sína heimabyggð í hvívetna eins og frekast er kostur. Þó geta kaupmenn glingurverslana á Akureyri búist við að Vertinn sæki þá heim um miðja vikunna og lagt er til að þeir tjaldi öllu því sem til er rétt á meðan.

Toppeintak

Ragna og Kristján afabróðirHann var ótrúlega sprækur og hress hinn aldargamli Kristján Jónsson bróðir hans afa míns sem var sóttur heim í morgun. Hann minnti óneitanlega á afa og bræður hans og upp rifjuðust margar minningar frá því að margnefnd var smástelpa. Hann var fæddur í Vatnsfjarðarseli í Ísafjarðardjúpi í apríl 1908 en ólst upp fram að sjö ára aldri í Efstadal. Eftir að faðir hans dó var hann sendur í fóstur að Veðrará í Önundafirði. Hann er ótrúlega ern og sér um sig sjálfur, eldar allan mat og hugsar um garðinn sinn af alúð. Það var alveg einstaklega gaman að fá að hitta hann og gleðilegt að hafa nýtt daginn í þessa merku heimsókn.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband