Kosningavaka í Einarshúsi

Kosningavaka verður í Einarshúsi í kvöld og hefst hún kl. 21:00. Þar geta fulltrúar allra flokka sameinast í gleði og sorg og notið þess að geta setið saman í sátt og samlyndi hvernig sem úrslitin ráðast. Hægt verður að syngja í Singstar í Kjallaranum á milli þess sem kosningatölur berast en Sigrún Waltersdóttir er búin að fylla tölvuna sína af nýjum slögurum sem hægt verður að kyrja í kvöld og verðlaunin koma að vanda ofan af Vífilfelli. Kolamolinn verður á kostakjörum og kostulegir kynjakvistir blandast án efa vel í hóp framsóknar og samfylkingar, frjálslyndra og vinstri grænna, sjálfstæðismanna og borgarahreyfing og lýðræðishreyfing aðlaga sig án efa vel að samkomunni sem er opin fyrir alla sem náð hafa tilskyldum aldri.

Áminning

Vertinn telur tilhlýðilegt að minna á spilavistina í kvöld kl. 21:00 en vekur athygli á því að áður auglýstur trúbador forfallaðist og stígur því ekki á stóra sviðið að svo stöddu

Frábært í alla staði

Bormenn við EinarshúsVertinn er alsæl eftir frábært gærkvöld. Vaskir bormenn Bolungarvíkur gerðu sér glaðan dag og fögnuðu þeim áfanga að vinnan við jarðgöngin undir Óshlíð er hálfnuð. Vertinn og vinnuhjú smurðu smárétti af miklum móð sem brögðuðust guðdómlega og smökkuðust afar vel. Slóvakar og Íslendingar skemmtu sér í mesta bróðerni ásamt Svisslendingum og án efa fólki af fleiri þjóðarbrotum og lífið í Víkinni var eins og best verður á kosið. Drukkurinn rann ljúflega niður kverkar og gerði það að verkum að dansinn var stiginn af áfergju og sungið var af innlifun. Hömlur losnuðu hjá þeim sem fengu sér ótæpilega í tánna og tryllt og töfrandi andrúmsloft skapaðist við súlurnar hér og þar. Stemningin var stórgóð, líkt og ætíð í Kjallaranum, og brosandi andlit lístu upp svæðið og andartakið var ævintýralegt.

Benni og BaldurBenni Sig, Baldur Hannesar og húsbóndinn stilltu saman strengi Jón trommar með Benna og Baldrisína og töldu í taktinn í fyrsta sinn í gærkvöldi og slógu í gegn. Þeir voru sérdeilis frábærir og slógu aldrei feiltakt. Benni hefur íðilfagra rödd og syngur öll heimsins lög, ef hann man ekki textann býr hann til nýjan jafnóðum og oft má sjá hve undrandi hann er þegar nýr smellinn texti fæðist. Baldur er snillingur á gítarinn og tók hvert gítarsólóið á fætur öðru og sló algjörlega í gegn enda er strákurinn á leið í tónlistarskóla FÍH. Húsbóndinn er stórgóður trommari og kemur alltaf janfnmikið á óvart hve hann er liðtækur á settið en hann trommaði töluvert í denn. Það var þó fyrir tíð títtnefndrar og því telst að til tíðinda á heimilinu að eiga trommara til að grípa til á ögurstundum. Þetta var semsagt frábært kvöld í alla staði og ber að þakka öllum sem að komu til að gera það að veruleika.

 


1/2 tunnel partý

Biggi og OrriFagnað verður þeim áfanga í Kjallaranum í kvöld að búið að bora helmingin af jarðgöngunum undir Óshlíð. Þar verða samankomnir 65 vaskir bormenn Bolungarvíkur og aðrir áhangendur sem ætla að gæða sér á veitingum og öðrum trakteringum. Kjallarinn opnar fyrir almenning á miðnætti og einhleypar konur geta merkt sig með rauðum borða ef þær vilja aðgreina sig frá þeim giftu en það er auðvitað hverri í sjálfs vald sett og einungis sagt hér í gríni. Benni Sig, Baldur Hannesar og Jón Bjarni halda uppi stuði um kvöldið og fram á rauða nóttina en trommarinn er tekinn með trompi í hvert sinn sem einhver treður upp í húsinu og fenginn til að slá húðirnar af kappi. Á myndinni hér til hliðar má sjá Bigga Olgeirs og Orra taka lagði í gærkvöldi. Tveir tónlistarmenn höfðu samband við Vertinn í gær og vilja stíga á stóra sviðið. Frá því verður sagt síðar.

 

 


Lán að fagna

Varðskipið áði í Ísafjarðardjúpi er Vertinn ók á fjallajeppanum til höfuðstaðarins í kvöld. Ekki var að sjá merki hættuástands í farvatninu á Vestfjörðum enda þokkalegasta veður í hvívetna svo líklega eru varðskipsmenn á venjulegu eftirliti vestra. Lífið er með ró og spekt enda fjörug helgi afstaðin og menn að safna kjarki til að takast á við næstu skref tilverunnar. Ekkert viðbúnaðarstig á kjálkanum og menn og skepnur því ekki í hættu þrátt fyrir allt.

Fjölmörg þjóðlönd munu eiga því láni að fagna að fá Vertinn og hennar skyldulið í heimsókn þetta árið. Berlín iðar í skinninu eftir því að títtnefnd heiðri land og þjóð ásamt húsbóndanum og kanslarinn ku vera full tilhlökkunar yfir því  að fá að berja viðkomandi augum. Mikill viðbúnaður verður í landinu og þjóðfáninn mun blakta við hún í hverju héraði í Þýskalandi enda litið á títtnefnda sem þjóðhöfðingja. Vertinn mun þó ekki nöldra við húsbóndann í viðtölum og líkja sér við Dorrit sem líkti sér við múslimakerlingu enda slíkt ekki við hæfi á erlendri grundu né yfirhöfuð nokkur staðar. 

Unglingurinn pantaði sér ferð til Noregs í kvöld en hún ætlar að besöka vini okkar og frændur þar ytra. Skiptineminn og hennar fjölskylda mun taka á móti henni og fóstra hana af alúð í nokkra daga og leifa henni að njóta lands og þjóðar. Kærastinn bauð eldri dótturinni til Írlands í vikutúr í tilefni af útskrift hennar úr MÍ í vor svo ljóst má telja að allir verða á faraldsfæti um hin ýmsu lönd. Ekki hafa heyrst fregnir af útlandaferðum sonarins og hans kærustu enda tekur lærdómurinn í flugskólanum allan tímann fram á haustið svo reikna má með því að hann ferðist milli staða innanlands í ár eða skjótist í sveitina eða hingað vestur eftir því hvor togar meira í, mamman eða tengdamamman.

Af þessu má glöggt sjá að ævintýrin  tylla sér á hvert fjörugrjót í firðinum og lífið er ævintýri sem greypt er í sandinn. AA vinkonan er væntanleg í morgunkaffið og Vertinn er byrjuð að blogga af viti á ný sem er gott. Það virðist liður í bata alkans í þessu tilviki að geta nótað hugsanir sínar á blað reglulega og festa frásögnina af því sem gerist á stað sem þennan. Því er nauðsynlegt að gefa sér smá tíma til að fara haganlega með sannleikann hér á blogginu og halda áfram að spila með í ævintýri lífsins.


Söngelsk systkin

Tónelsk Traustabörn

Söngelsk systkin


Að lokum

Hreint út sagt framúrskarandi helgi er nú að baki og segjast verður alveg eins og er að Vertinn er himinlifandi eftir heimsóknirnar yfir páskana. Kjaftfullt var í Kjallaranum í nótt sem leið og setið var á báðum hæðum svo húsið nýttist nánast til fullnustu. Toppurinn hefði þó verið ef gistingin hefði verið komin í gagnið á efstu hæðinni en það kallar á örlítið lengri þolinmæði og tíma því góðir hlutir gerast hægt og nauðsynlegt að geta sætt sig við það.

Hjörtur TraustaHjörtur Trausta blés ekki úr nös alla nóttina og var til fyrirmyndar í alla staði og í raun alveg frábær og títtnefnd hefur lagt inn óskir þess efnis að hann komi aftur og aftur og aftur. Systkini hans sungu með honum þegar svo bar undir og margnefnd telur það mikið lán fyrir Bolungarvík að hafa alið svona tónelsk systkin af sér. Stóra sviðið í Kjallaranum rúmaði alla og hljóðkerfið bar hljóðið til gestanna sem endurspeglaði englaraddir bolvísks tónlistarfólks svo unun var að heyra og hvílíkt lán sem lá í loftinu. Bolungarvík er afskaplega rík af hæfileikaríku fólki og frábært þegar það fær tækifæri til að láta ljós sitt skína.

Þau forréttindi að fá að reka Kjallarann og fylgjast með flóru mannlífsins og vera með puttann á púlsinum eru einstök. Að fá að taka á móti fólki sem er komið saman til þess eins að skemmta sér og hafa gaman er svo einstaklega skemmtilegt að Vertinn vildi ekki skipta fyrir nokkurn mun. Ætla má að eitthvað á fjórða hundrað manns hafi heimsótt hús sorgar og gleði um páskana og ekki er hægt að kvarta yfir því. Tilhlýðilegt telst að þakka gestum komuna og prúðmannlega framkomu í alla staði. Það verður að segjast alveg eins og er að þeir sem sækja heim hús sorgar og gleði eru einstakir.

Auðvitað gefur það auga leið að þegar næturvaktin er staðin nótt eftir nótt fram á rauðan morgun fer dagurinn í afslappelsi og rólegheit. Orkan búin og restarnar ekki nema hálfdrættingur á við hitt. Vertinn verður þó að halda á, því önnur helgi bíður eftir þessa sem miklu stuði og fjöri þar sem Benni Sig þenur raddböndin á miðnætti á laugardagskvöldið eftir einkasamkvæmi. Þar verður mikið stuð og mikið gaman og virkilegt tilhlökkunarefni.

Vertinn þarf þó að rísa upp því hljómsveitin Haltur leiðir blindan bíður í Kjallaratröppunum og bankar á dyrnar. Hljómsveitaræfing er fyrirhuguð og stóra sviðið mun iða af lífi í dag eins og í gær.


Upprisan um miðnættið

Sá sem reis á þriðja degi mun án efa gleðjast yfir fjörinu sem verður í Kjallaranum frá miðnætti í kvöld. Hann mun trúlega dilla sér í hásætinu við hægri hönd guðs föður almáttugs en mun varla koma og dæma lifendur og dauða rétt á meðan Hjörtur Trausta tekur lagið út í nóttina. 

Hjörtur stillti upp á stóra sviðinu í dag og tók nokkur vel valin lög fyrir títtnefnda og það sem ómaði um húsið gaf þess glöggt merki að strákurinn er stórskemmtilegur og á eftir að halda uppi taumlausu stuði. Ekki er neitt sérstaklega reiknað með því að restin af Fjallabræðrum raddi né tóni með kappanum enda var ekki annað að heyra en að hann komi sínu vel til skila og þurfi ekki hjálp við sönginn en vænta má þess þó að hann fái aðstoð frá velvöldum látúnsbörkum eftir þörfum.

Lagt er því til að menn setji tímanlega brilljantín í hárið og finni lakkrísbindið eða mæti bara klæddir eftir þörum. Heilagur andi verður án efa yfir undir og allt um kring þó fyrirgefning syndanna fáist ekki  í rabbat með hverjum drukk sem keyptur er á uppsprengdu verði í kolageymslunni. Ekki er hægt að lofa upprisu mannsins né eilífu lífi en taumlaust fjör er hægt að bóka í Kjallaranum í Einarshúsi í nótt svo lagt er til að sem flestir mæti

 

 


Stund

Stundin var hugljúf í Ísafjarðarkirkju er AA félagar héldu sinn árlega fund á föstudaginn langa. Þeir sem flytja þar hugleiðingar tala allir út úr hjarta Vertsins í Víkinni enda hafa flestir sömu sögu að segja sem hljómar nokkurn veginn eins. Kaffimeðlæti var í boði og kaffið var mátulega sterkt og rann ljúft niður með spjalli við mann og annan og tilgangi stundarinnar var náð. Það hægðist örlítið á huganum og heilastarfssemin snerist á eðlilegum hraða og hjartað í takt við blóðrásina sem rann um æðarnar í ró.

Rétt var rennt framhjá lopahátíðinni og skiptineminn gripinn í vegkantinum á leið sinni heim í heiðardalinn. Unglingurinn lét sig þó hafa það að dvelja í margmergðinni eitthvað lengur þrátt fyrir að vera komin með ælupestina enda er langþráð stund loks runnin upp. Unglingurinn er búin að bíða hátíðarinnar í heilt ár og getur því ekki látið mínútu framhjá sér fara. Það eru greinilega fjölmargir sem aldrei fóru suður samankomnir á einu og sama staðnum og í því augnabliki sem margnefnd ók hjá minnti augnablikið á mauraþúfu svo mikill var mannfjöldinn. Lopahátíðin AFÉS er eitt af því góða sem hent þetta svæði og það er í raun undravert hve lítil þúfa hefur velt miklu hlassi og heiður mega þeir eiga Muggi og hans sonur.

Rétt í þessu er þó stund milli stríða hjá Vertinum því Kjallarinn kallar háum rómi. Á miðnætti skal opnað fyrir gesti og gangandi. Til er ætlast að tónelskir mæti og syngi í singstar sem mest þeir mega.

Þangað til ætlar títtnefnd að næla sér í kríu...............................og reyna að sofna eitt augnablik.


Singstar í kvöld

Ekki er úr vegi að geta þess að gleðin heldur áfram í kvöld enda engin ástæða til þess að slá af uppákomum í Einarshúsi. Signstar mun óma um sali Kjallarans eins og svo oft áður og söngelskir tónlistarmenn geta því komið og brýnt röddina. Sigrún Waltersdóttir mun vera undir, yfir og allt um kring og stjórna herlegheitunum sem hefjast um miðnættið og verðlaun verða væntanlega í boði fyrir þann sem ber sigur úr býtum.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband