9.4.2009 | 18:10
Opið á skírdagskvöld
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.4.2009 | 17:54
Rífandi stemning
Rífandi stemning var í Kjallaranum er trúbadorinn Einar Örn tróð upp og söng inn páskana. Gestir sungu með af innlifun og sumir dönsuðu eins og við er að búast og lífið var ljúft. Gömlu góðu slagararnir ómuðu um salinn og greinilegt var að létt var yfir fólki sem skemmti sér hið besta. Brottfluttir Bolvíkingar heilsuðu upp á hina sem búa hér allt árið um kring og menn féllust í faðma þegar síst skildi. Það eru forréttindi að fá að vera í hringiðunni á slíkum stundum og einstaklega skemmtilegt að fá að upplifa stemninguna sem myndast þegar fólk kemur saman og gleðst yfir því að hittast. Allt fór þó afar vel fram að vanda enda eru gestir Einarshúss einstaklega prúðir og til fyrirmyndar í alla staði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2009 | 23:28
Einar Örn mætir í Kjallarann
Það telst til tíðinda að trúbadorinn Einar Örn mun mæta á stóra sviðið í Kjallaranum á miðvikudagskvöld. Einatt þegar hann mætir er troðið út úr dyrum og Kjallarinn kjaftfullur. Engin ástæða er til að ætla að það bregði út af þeirri venju nú frekar en endranær og reiknað er með fullu húsi. Geta má þess í framhjáhlaupi að það kostar ekkert að berja karlinn augum heldur er opið hverjum sem er sem náð hafa tilskyldum aldri eins og venja er til á uppákomum í Einarshúsi. Einar mun eiga þann heiður að slá inn fjörið í Einarshúsi um páskahátíðina eins og undanfarin ár og vænst er þess að sjá sem flesta.
Af öðrum verkum Vertsins er þetta helst að nú er unnið hörðum höndum að uppsetningu matseðils fyrir næsta sumar. Þar mun uppistaðan verða guðdómlegir réttir úr hráefni sem verkað er í heimabyggð og hefur margfrægur kokkur sem tengdur er inn í fjölskylduna fengið fyrirmæli um að hanna gómsætustu rétti hér á landi til að hafa í boði á matseðli. Í hönnun á matseðli og því sem fram verður borið, fær Einarshús stuðning frá Impru vegna verkefnis sem ber heitið Krásir og það er vel. Einarshúsið er einnig þátttakandi í "Veislu að vestan" sem er verkefni í matartengdri ferðaþjónustu á Vestfjörðum og verða heimalagaðir réttir merktir sérstaklega verkefninu á matseðli svo glöggt má sjá að eitt og annað er á döfinni í þessu húsi sorgar og gleði.
Auglýsingabæklingur er einnig kominn í prentun fyrir Einarshúsið og hvergi er dregið af þegar sagt er að títtnefnd er hæstánægð með hvernig hönnunin hefur tiltekist enda snillingar sem hönnuðu bæklinginn og útfærðu. Þau Nína og Smári eru án efa göldrótt því þegar sest er niður hjá þessu listapari er eins og allt fari að hringsnúast og hugmyndirnar kvikna í belg og biðu. Bæklingurinn vísar til heimasíðu Einarshússins og er framúrskarandi flottur og á án efa eftir að slá í gegn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2009 | 00:15
Kjallarakeppni og spilavist í kvöld
Nú er hátið í Einarshúsi í kvöld heldur betur en ákveðið hefur verið að halda lokakvöldið í spilavistinni sem halda átti sl. föstudagskvöld í kvöld kl. 21:00. Er þetta lokakvöld í þriggja kvölda keppni.
Til að raska ekki því jafnvægi sem ríkir um Kjallarakeppnina verður hún einnig í kvöld að venju og hefst keppnin kl. 22:45 og er Sigurbjörg Hallgrímsdóttir spyrill að þessu sinni. Þessi samkeyrsla kemur ekki til með að valda neinum óróa enda stendur það á endum að þegar vistinni líkur er Kjallarakeppnin rétt í þann mund að byrja. Allir þeir sem eru sjúkir í spil eru hvattir til að mæta en einnig þeir sem dýrka og dá spurningakeppnir af öllum toga. Kolamolinn verður á spottprís á meðan á Kjallarakeppninni stendur en þó ekki lengur en til miðnættis
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 22:55
Upprisa Vertsins
Það er ofsögum sagt að Vertinn hafi risið á þriðja degi líkt og skaparinn þó gerð hafi verið heiðarleg tilraun til þess í dag. Trúlega telst heppilegra að segja að upprisa títtnefndrar hafi varað rétt framyfir hádegið en það var nóg til þess að geta fylgst með súpufundi um atvinnu-og menningarmál sem haldinn var í Einarshúsinu í hádeginu í dag í fyrsta sinni. Var það Rúnar Ágúst sem kynnti starfssemi fyrirtækisins Ósafls og fundurinn var afskaplega góður og upplýsandi og einstaklega skemmtilegur. Slökkviliðið mun svo kynna sína starfssemi í hádeginu 16. mars og Sýslumaðurinn kemur á slíkan fund 30. apríl nk.
Dægurmál | Breytt 3.4.2009 kl. 00:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 00:24
Flensuskítur
Ekki er úr vegi að geta þess að Vertinn liggur líkt og hver annar kramaraumingi í rúminu þennan dintinn með flensuskít. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir það að viðhaldinu hefur verið sinnt af mikilli alúð því tölvan hefur verið beintengd við rafmagnið við rúmið og komið að afar góðum notum fyrir vikið. Allskyns pistlar uppfullir af skrökvulygi hafa litið dagsins ljós á hinum og þessum vefmiðlum landans enda eru hrekkir í uppáhaldi hjá títtnefndri þá sér í lagi á fyrsta apríl. Tilhlýðilegt telst að leiðrétta aprílgabb sem birt var hér á síðunni í gær um laus störf í Einarshúsi þar sem óskað var eftir erótískum dönsurum. Það er auðvitað hin mesta vitleysa svo ekki sé hér meira sagt.
Það verður þó að segjast alveg eins og er að það gerist svosem ósköp lítið þegar legið er við rúmstokkinn allan daginn og þó títtnefnd sé ekki beint við dauðans dyr þá liggur margnefnd og veltir sér upp úr vorkunnsemi annað slagið. Ekki er farið að örla á legusárum að neinu viti enda er þetta einungis annar dagurinn þar sem títtnefnd er föst við fletið. Slenið skal þó hrist af sér í bítið í fyrramálið enda er súpufundur um atvinnu-og menningarmál í hádeginu á morgun og lag fyrir Vertinn að mæta og leiða samkomuna áfram.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2009 | 01:01
Starfskrafta vantar
Það þykir tilhlíðilegt að geta þess svona rétt áður en títtnefnd dettur í draumasvefninn að Vertinn hefur ákveðið að auka nýbreytni í viðburðarflóru Einarshúss og bjóða upp á erótískan dans við og við. Þar mun jafnræði milli kynjanna verða í hávegum haft og því hefur verið ákveðið að óska eftir dönsurum til verksins sem eru bæði konur og karlar af hvoru kyni sem er. Einkadans er með öllu óheimill nema í afmörkuðum rýmum og súludans í skúmaskotum stranglega bannaður nema undir eftirliti starfsmeyja hússins. Ekki er gert ráð fyrir að umsækjendur séu vaxnir í samræmi við súlurnar en ljóst að betra er að vera vel klæddur innanundir svo flísar styngist ekki í kroppinn þegar síst skyldi. Snyrtilegur klæðnaður er áskilin og svokölluð suðvesti, enda eru sjómenn í landlegum sérstaklega hvattir til að sækja um. Loðnir leggir teljast til tekna hvort sem um er að ræða konu eða karl og útlit og aldur skiptir ekki máli. Laun eru reiknuð eftir launavísitölu neysluverðs og miðast við verð á einum sviss mokka að jafnaði.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu skulu setja sig í samband við Guðlaugu í Einarshúsi í hádeginu eða Gunnu Ásgeirs í Bjarnabúð strax eftir hádegið ef hún er þá ekki hjá Gumma eða í Safnaðarheimilinu og láta vita um áhuga viðkomandi.
Merkja verður umslagið:
Erótík í Einarshúsi
Fyrstir koma fyrstir fá á fyrsta apríl
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.3.2009 | 20:53
Endurreisnin
Endurreisnarstarfið hófst fyrir 2000 árum og enn standa sömu góðu gildin fyrir sínu. Svona rétt til að hnykkja á helstu atriðunum telur Vertinn tilhlýðilegt að birta boðorð endurreisnarinnar hér í heild sinni:
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2009 | 10:50
Ósafl á súpufundi
Ósafl, dótturfyrirtæki íslenskra aðalverktaka og svissneska verktakafyrirtækisins Marti Contractors sem sér um framkvæmd Bolungarvíkurganga og byggingu sjóflóðavarnargarðs í Bolungarvík, ríður á vaðið á súpufundi í Einarshúsi um atvinnu- og menningarmál sem haldnir verða vikulega í hádeginu á fimmtudögum fram á vor. Er það Rúnar Ágúst Jónsson staðarstjóri Ósafls á svæðinu sem mun kynna starfssemi fyrirtækisins og fara yfir þau verkefni sem fyrirtækið vinnur að hér vestra um þessar mundir.
Markmiðið með fundunum er að auka skilning milli ólíkra atvinnugreina, hefðbundinna og nýrra, auka víðsýni fólks og þekkingu á heimabyggðinni og því atvinnulífi og menningu sem þar blómstrar, tækifærum og möguleikum sem liggja í leyni undir hverjum steini. Fundir sem þessir hafa verið haldnir á Hólmavík um nokkurt skeið að frumkvæði Jóns Jónssonar menningarfulltrúa og Sigurðar Atlasonar og nýverið byrjuðu fundir um atvinnu- og menningarmál á Patreksfirði.
Fundurinn hefst kl. 12 á hádegi og verð fyrir súpu og brauð er 1200 krónur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2009 | 14:10
Tveir heimar
Ef marka má fréttir dagsins þá lemur iðulaus stórrhríð Víkina fyrir vestan og varla sést milli húsa. Þessar fréttir bera sólargeislarnir hér syðra með sér í hita dagsins og hvísla fréttum um drunga og dimmu í veðurfarinu fyrir vestan. Gærdagurinn kom þeim boðum áleiðis í gær að messufall hefði orðið í kirkjunni á Hólnum heima vegna veðurs og því hefði Jesú bróðir besti ekki verið sóttur heim þennan sunnudaginn. Það kom þó ekki í veg fyrir það að Vertinn gengi til altaris og fengi að bragða á líkama krists og alkóhólblönduðu blóði hans í leiðinni því ferming var innan fjölskyldunnar og Hjallakirkja í Kópavogi bauð heim fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra.
Vertinn gistir höfuðborgina þessa stundina í góðu yfirlæti og lætur vel að ljúfum blænum sem leikur um vangann. Hugurinn hugsar þó heim og furðar margnefnd sig á því hvernig á því geti staðist að títtnefnd skuli geta spókað sig hér í brakandi blíðu á háhæluðu þegar veturinn lemur Vestfirðina með hörku og hlífir hvergi. Veðurguðirnir verða þó að fara að hugsa sinn gang og hleypa vorinu að í rjóðrinu heima og losa klakakrumlurnar sem nú hafa hert takið um byggðina og leyfa sólinni að þýða hugskotið og húsasundin í leiðinni.
Vertinn hefur setið landsfund sjálfstæðismanna og hefur það tekið drjúgan tíma frá Smáralindarrambi og Kringlukúldri. Það verður þó að segjast alveg eins og er að það er ekki að sjá að mikil kreppa skeki pyngju landans því yfirgengilegt kaupæði virðist eiga sér stað í hverri verslun. Kannski hafa verið gefin út ný eyðslukreditkort af kortafyrirtækjunum til að steypa kaupóðum Íslendingum endanlega í glötun og gera þá gjaldþrota fyrir lífstíð.
Pyngja Vertsins er þó galtóm þessa stundina því dóttirin losnaði við spangirnar og tannréttingasérfræðingurinn tók andvirði eins indversk smábíls að launum fyrir ómakið. Vænta má þess að sú sem tók við aurunum hafi getað keypt sér eitthvað fallegt fyrir afganginn
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm