19.5.2009 | 22:07
Hann var sjómaður dáðadrengur
Frumdrög að dagskrá sjómannadagshelgar í Einarshúsi
Föstudagur 5. júni kl. 22:30 verður Kjallarakeppni. Síkáti sjóarinn Bjarki Friðbergsson spyr gesti spjörunum úr í Kjallarakeppni. Þema kvöldsins er Sjómennskan. Trúbadorinn Guðrún Snæbjörg Sigþórsdóttir kemur alla leið frá Þingeyri og tekur lagið á stóra sviðinu eftir Kjallarakeppnina og syngur fyrir sjómenn, dáðadrengi og aðra dugnaðarforka út í rauða nóttina.
Laugardagur 6. júní kl. 19:00 verður þriggja rétta kvöldverður handa aflaklóm að hætti Ragnars Edvardssonar matreiðslumeistara. Ragnar Edvardsson matreiðslumeistari og fornleifafræðingur eldar guðdómlegan og seiðandi sjóararamálsverð fyri aflaklær jafnt sem landkrabba. Hljómsveitin Hermann og hásetarnir mun stíga á stóra sviðið síðar um kvöldið og halda uppi dúndurstuði fram á nótt. Því skal lofað að niður hafsins mun bylgjast rétt fyrir utan og dilla sér við hljómfallið frá Hermanni Ása, Benna Sig, Baldri Hannesar og kannski einhverra fleiri.
Vertinn áskilur sér allan rétt til að breyta og bæta við dagskrána eins og þurfa þykir en telur lag fyrir áhugasama að taka sjómannadagshelgina í Bolungarvík frá og njóta þess sem verður í boði
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2009 | 01:28
Heija Norge
Mikill fögnuður braust út á heimili títtnefndrar er Noregur hreppti fyrsta sætið í söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva og ekki var minni gleðin er Jóhanna söng sig inn í hug og hjörtu Evrópubúa með laginu sínu sem skilaði því upp í annað sætið. Þetta er glæsilegur árangur og þjóðarrembingurinn er alveg yfirþyrmandi og norski skiptineminn alsæl og allir hinir heimilismeðlimir einnig. Ekki skemmdi svo fyrir að þjóðhátíðardagur Norðmanna, 17. maí rann upp í öllu sínu veldi í framhaldinu. Það var ekki frítt við það að Idu langaði örlítið heim til að taka þátt í hátíðarhöldunum í heimalandinu en hún reyndi að hafa fánann sinn nálægt og klæddi sig upp í kjól og hvítt í tilefni dagsins og tók lífinu með stóískri ró að vanda þrátt fyrir áhugaleysi landans á þessum merka degi. Enginn var til að syngja með henni þjóðsönginn, enginn skrúðganga var í Víkinni en hún gat fengið sér ís og keypti sér pylsur líkt og hún gerir heima. Ekki óraði Vertinum fyrir því hve mikilvægur hann er í augum Norðmanna en reyndi þó eftir bestu getu að hafa hátíðlegt. Það hefði verið gott ef Peri gamli hefði verið enn á lífi og í næsta húsi, það hefði farið vel á með þeim tveim
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.5.2009 | 17:17
Í háloftunum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2009 | 21:20
Júróvisíon í Einarshúsi
Enginn Íslendingur horfir á Júróvisión en allir sitja sem fastast fyrir framan imbakassann meðan á keppninni stendur þrátt fyrir það. Ekki nokkur lifandi hræða sést á labbi og fólk þorir varla að fara á salernið svo það eigi ekki á hættu að missa af sekúndu skemmtunarinnar og dregur vart andann er framlag Íslands er í flutningi. Þess vegna situr Vertinn í Víkinni límd við skjáinn í augnablikinu en gefur sér þó tíma til að blogga örlítið svona rétt fyrir lesendur. Mörg lög eru frambærileg og önnur ekki eins og gengur og títtnefndri nærri slétt sama hver vinnur og hver tapar en er þó fylgin lagi sinnar þjóðar í hvívetna og lögum nágrannaþjóðanna.
Þessu ástandi má líkja við slúðurtímaritið " Séð og heyrt" sem enginn þorir að viðurkenna að fletta nokkurn tíðan tímann en samt lesa það allir bæði aftur á bak og áfram. A.m.k. virðast ansi margir vita æði mikið um hvað fína fólkið í höfuðborginni gerir sér til dundurs en ekkert þykir þó eins fréttnæmt og þegar fólk er að gera það sem ekki má. Er nær undantekningalaust búið að ganga frá skilnaði áður en giftingin fer fram á forsíðu til að eiga nægt slúður upp í erminni til að tjalda fram þegar lítið annað fréttnæmt er í boði.
Spurningar hafa vaknað hvar best sé að halda keppnina ef það kemur í hlut okkar Íslendinga. Einarshúsið er auðvitað augljós kostur í því sambandi enda virðist húsið laða sig að öllum þeim gestum sem heimsækja hús sorgar og gleði í Bolungarvík. Stóra sviðið er kjörið fyrir viðburðinn og hægt er að varpa herlegheitunum á skávarpann á efri hæðinni ef þarf svo ekkert er að vanbúnaði. Borð og stólar eru fyrir hendi og nóg af kolamolum úr kolageymslunni svo þess vegna þykir þessi hugmynd einstaklega heppileg og góð fyrir land og þjóð.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2009 | 01:37
Ferð í kotið
Ferð í Hólakot er fyrirhuguð á morgun svona rétt til að breyta um umhverfi og hlaða batteríin. Reikna má fastlega með að það geti orðið sérlega skemmtileg ferð líkt og síðasta ferð í bústaðinn sem heppnaðist einstaklega vel í alla staði. Þá var grillað eins og í denn, varðeldurinn kveiktur eins og jafnan áður og allir undu sáttir við sitt þó engin væri tölvan, sjónvarpið né síminn. Nú verður vonandi hægt að fara í pottinn eins og einu sinni var daglegt brauð og kannski verður hægt að bera á pallinn eða dytta að hinu og þessu og krakkarnir geta setið áhyggjulaus í grasinu eins og þau á myndinni. Veðrið mun væntanlega leika við hvurn sinn fingur og fiðrildin fljúga fyrir utan gluggann þótt afi fari á honum Rauð. Vinnuhjúin munu gæta Einarshúss eins og sjáaldurs auga síns rétt á meðan
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 20:20
Kveðja
Burtu var tekinn dáðadrengur
nú drottinn mun gæta hans.
Slitinn var lífsins silkistrengur
nú söknum við þessa manns.
Ávallt hann gleði, glens og fögnuð
glaðbeittur með sér ól.
En nú er nikkan hans Tana þögnuð
og slokknuð hans gullna sól.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.5.2009 | 02:23
Mörg hlutverk
Vertinn í Víkinni þurfti að bregða sér í mörg hlutverk í dag eins og svo oft áður. Stundum kemur það fyrir að ekki er vitað með vissu, í gervi hvaða kvikinda líki þarf að bregða sér í þegar svo ber undir. Stundum kemur það til góða að geta nýtt sér kosti þess að vera Vert, fréttaritari og bæjarfulltrúi í einni og sömu andránni en svo kemur fyrir að það kemur sér afar illa og er alls ekkert hentugt.
Það að vera "sjálfs síns herra" þýðir í raun að margnefnd er flækt í neti sem hefur það litla möskva að engin leið er að synda þaðan út. Ætíð verður að standa vaktina og vera til taks þegar kallið kemur og lítið þýðir að afþakka vinnuna og biðja um frí á ögurstundum. Þennan fórnarkostnað verður þó hver sjálfs síns herra að færa með bros á vör því reksturinn stendur og fellur með því að Vertinn standi sína plikt. Segjast verður þó alveg eins og er að títtnefnd myndi alls ekki inna samsvarandi verk af hendi fyrir nokkurn annan lifandi mann fyrir þetta kaup.
Títtnefnd vakti athygli á því á þingi um atvinnumál sem haldið var í dag hve nauðsynlegt er að hlúa að þeim fyrirtækjum sem fyrir eru í samfélaginu og sprottið hafa upp af atorku og eljusemi bæjarbúa. Stundum þarf að opna augu fólks fyrir því sem hér er í boði og áður hefur Vertinn komið inn á það að ef við nýtum okkur ekki það sem boðið er uppá í bænum, gætum við átt á hættu að missa það í burtu. Þess vegna er mjög mikilvægt að standa vörð um það sem er í byggðarlaginu og styðja og styrkja það sem frekast er unnt og þar bera allir mikla ábyrgð. Vertinn glennti glyrnur og eyru sem von er, á fundinum þegar upp kom sú hugmynd að hér í bæinn vanti annað kaffihús en kaffihús hefur verið rekið í Einarshúsi undanfarin ár en aðallega þó yfir sumartímann. Þegar staðið er upp á endann alla daga, allan ársins hring við að finna leiðir til að brjóta upp hversdagsleikann og bjóða upp á næga afþreyingu og andlega og líkamlega næringu læðist að sá grunur að margnefndri að það sé tilgangslaust að standa í slíku þegar svona snjöllum hugmyndum er varpað fram.
Vertinn, bæjarfulltrúinn, ljósmyndarinn og fréttaritarinn brá sér svo í gervi ruslatínslumanns sem týndi ruslið kringum hún harma og hamingju og varð að vaða drullupollana sem valdir hafa verið af handahófi til að þjóna hlutverkum bílastæðis fyrir gesti Einarshúss. Vonandi þorna þeir fyrir sumarið svo ekki þurfi að vaða upp í klof til að komast að húsinu til að njóta trakteringa.
Til að bæta gráu ofan á svart brá títtnefnd sér í búning grúpp-píu á hljómsveitaræfingu HLB í kvöld. Þá vöru hlutverkin orðin æði mörg yfir daginn og glöggt má sjá að orðið atvinnuleysi er ekki í orðabók títtnefndrar. Hér er láti fljóta með upptaka af æfingunni í kvöld
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
10.5.2009 | 15:18
Ósk
Af heilum huga þess nú bið
að hjartað fyllist innri frið
því stundirnar sem átti ég með þér,
vekja hjá mér minningar, svo ljóslifandi allstaðar,
og leika sér svo lokkandi og lífga upp á sálartetrið
Viðlag:
Þér ég aftur næ, ef óskina ég fæ
þá fáum við að vera saman
og lífið verður aftur gaman.
Þétt við mína kinn, verður aftur minn.
Ef örlögin í tauminn taka
trúlega þá fljúgum aftur frjáls.
Við lifum aftur liðna tíð
og lífsglöð fetum ár og síð
þá léttstíg örkum greiðan æviveg.
Glaðleg göngum hönd í hönd um hamingjunnar sæluströnd
þá gerum ekki mistökin sem slitu okkur tvö í sundur.
Viðlag:
Þér ég aftur næ, ef óskina ég fæ
þá fáum við að vera saman
og lífið verður aftur gaman.
Þétt við mína kinn, verður aftur minn
Ef örlögin í tauminn taka
trúlega þá fljúgum aftur frjáls.
(Því ástin lifir
við höfum villst af lífsins leið
en núna bíður brautin greið)
Viðlag:
Þér ég aftur næ, ef óskina ég fæ
þá fáum við að vera saman
og lífið verður aftur gaman.
Þétt við mína kinn, verður aftur minn
Ef örlögin í tauminn taka
trúlega þá fljúgum aftur frjáls.
Höfundur: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Dægurmál | Breytt 4.11.2009 kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.4.2009 | 00:46
Tangó
Skemmst er frá því að segja að undanfarnir dagar hafa liðið með ógnarhraða. Stírurnar hafa varla verið stroknar að morgni dags þegar kvöldhúmið leggst upp að og leiðir Vertinn til hvílu. Reyndar er morgunskíman oftar en ekki við sjóndeildarhring þegar læðst er upp í rúm um helgar og oftar en ekki slær hjartsláttur Einarshúss taktfast við gestagang næturinnar. Ylurinn frá kamínunni varpar ævintýralegum skuggum á andrúmsloftið og skuggarnir dansa tangó við títtnefnda þegar líða tekur á. Með öðrum orðum þá er vaktin staðin fram á rauðan morgunn og oft er margnefnd orðin ansi framlág undir restina og þarf oftar en ekki allan daginn eftir til að jafna sig.
Vertinn stóð fyrir framboðsfundi á síðasta vetrardag í Einarshúsi þar sem öllum frambjóðendum í NV kjördæmi bauðst að senda fulltrúa sína. Það var eins og við manninn mælt að húsfyllir var á fundinum enda var þetta eini fundurinn sinnar tegundar í kjördæminu. Það má í raun furðu sæta hve allir tóku vel í framtakið og flest framboð sendu fulltrúa á fundinn með stuttum fyrirvara og allir stóðu sig með stakri prýði eins og við var að búast, ekki síst Óli Kitt sem var fundarstjóri.
Lýðræðishreyfingin sendi þó ekki fulltrúa á fundinn enda má ætla að þar á bæ hafi frambjóðendum þótt þessi framboðsfundur verið pakkaður full mikið í kassa og þeir sem sátu fyrir svörum þurft þess vegna að svara fyrirframákveðnum spurningum sem ákveðnar voru af þeim sem spurðu, en ekki þeim sem áttu að svara. Þess vegna er fjarvera þeirra eðlileg en ánægjulegt að geta þess að allir fengu sömu eplin í sína körfu og sama tækifæri á að koma og vera með og lítið þýðir fyrir Ástþór að segja að títtnefnd hafi sent honum appelsínu þegar allir hinir fengu epli. Þá er hægt að loka þessari ávaxtaumræðu í eitt skipti fyrir öll.
Helgin var annars þokkalega góð og vel var tekið á móti þeim sem komu í heimsókn. Stíft áframhald er fyrirhugað og byrjað er að bóka fyrir hópa langt fram á sumar. Vertinn er mjög vongóð og bjartsýn á gott sumar og er þegar full tilhlökkunar að taka á móti þeim sem sækja Bolungarvík heim. Viss útrás er fyrirhuguð þó ekki sé beint hægt að tala um að títtnefnd tilheyri hópi útrásarvíkinga en ótal hugmyndir eru í farvatninu sem ekki verða uppgefnar á þessari stundu. Vænta má þess ef þær verða að veruleika, birti enn frekar yfir bænum og geri hann fýsilegri áfangastað fyrir vikið. Betra er þó að tala minna og framkvæma meira því það telst jafnan heillavænlegast svo væntanlega er lag að láta hér staðar numið um það sem ekki má segja frá.
Nú er ég auðvitað búin að gera alla frávita af forvitni og ætla því að skipta snarlega um umræðuefni. Allteins má geta sér þess til að allt geti verið haugalygi eða helber ósannindi sem hér er ritað hvort eð er, ef því er að skipta, svo lesendur ættu því að hafa varann á og reyna ekki að lesa milli línanna.
Helgin verður undirlögð af uppákomum eins og vant er í Einarshúsi. Kjallarakeppnin er á sínum stað að vanda á föstudaginn en spyrill er Hrafnhildur Sigurgeirsdóttir trukkabílstjóri með meiru. Sýslumaðurinn verður á súpufundi um atvinnu og menningarmál í hádeginu á fimmtudag og Bjarni Ómar Haraldsson mun halda tónleika á laugardagskvöldið og kynna diskinn sinn sem ber heitið Fyrirheit. Það er ósköp ljúfur og rólegur diskur og þeir sem vilja eiga góða kvöldstund eru hvattir til að mæta. Bjarni Ómar mun svo stíga á stóra sviðið um miðnættið aftur ásamt Stefáni Jónssyni píanóleikara og bróðir hennar Hjöddu í Tungu og halda uppi taumlausu stuði út í nóttina. Af þessu má sjá að tangó verður stiginn þessa helgina líka og húsið mun dilla sér í takt við taumlaust stuðið
Fyrsti maí er þó frátekinn hjá Vertinum í Víkinni fyrir stund að heiman ásamt fjölskyldunni. Þá verður títtnefnd fjarri góðu gamni er bæjarbúar flagga og fagna afmælisdeginum. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeir sem vilja minnast margnefndrar eru vinsamlega beðnir að mæta í hús sorgar og gleði og skála í guðaveigum og hrópa fjórfalt húrra milli kolamola úr gömlu kolageymslunni Vertinum til handa.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm