22.11.2009 | 19:41
Einarshúsið lokað
Einarshúsi hefur nú verið lokað svona dags daglega dags og því verður hádegismatur ekki í boði lengur í hádeginu og ekki hægt að fá sér guðdómlegar gulrótar- eða súkkulaði kökur með kaffinu. Áfram verða þó uppákomur í húsinu og aðrir viðburðir og það mun verða auglýst sérstaklega í það og það skiptið. Stefnt er þó að því að húsið standi undir nafni næsta sumar og verði tiltækt ferðamönnum og öðrum þeim sem vilja sækja það heim.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2009 | 17:02
Eyþór Ingi og Andri Ívars

Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.11.2009 | 13:36
Enn bætist við Þorskinn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.11.2009 | 02:21
Verkefnalistinn
Vertinum tókst að haka við þónokkur atriði í dag sem átti eftir að framkvæma á verkefnalistanum langa. Títtnefnd fékk athafnateyguna um miðjan dag og notaði tækifærið að leggja lokahönd á skipulagningu Kærleiksdaga í Bolungarvík rétt á meðan. Margnefnd fór í Sparisjóðinn með auglýsingablöð sem bera munu hróður Kærleiksdaga um alla norðanverða Vestfirði en sá sami sparisjóður studdi verkefnið dyggilega og gerði það mögulegt að hægt var að láta prenta glæsilegan einblöðung í vistvænni prentsmiðju fyrir sunnan. Það verður gaman að sjá hvernig til tekst með þetta verkefni sem nokkrar valkyrjur í Víkinni ákváðu að fara út í til að þjappa fólki saman og mynda samhug í bænum og minna á kærleik og vonandi taka allir þátt sem vettlingi geta valdið. Vonandi verður bærinn iðandi af lífi og stútfullur og allir kátir og glaðir. Af tilefni Kærleiksdaga má alveg hengja upp jólaseríurnar og lýsa upp sem mest menn mega og eru allir hvattir til þess hér og nú svo ekki sé talað um öll kertin sem eiga að loga hist og her.
Umsókn um styrk til Húsafriðunarnefndar sendist óðfluga til réttra aðila er leið á kvöldið og þótt títtnefnd sé ekkert sérlega bjartsýn á þessum krepputímum þá hefur Vertinn staðið sína plikt í þeim efnum og umsóknin er farin til réttra aðila. Verkframvinda í verkefni sem títtnefnd er þátttakandi í og nefnist Krásir var einnig útfyllt samviskusamlega og send Impru nú í kvöld en þar fékk títtnefn styrk til matartengds verkefnis sem er fólgið í því að láta útbúa matseðil úr sjávarfangi. Beðið er með öndina í hálsinum eftir styrkveitingum Menningarráðs Vestfjarða því þar bíða hvorki meira né minna en þrjár umsóknir um hitt og þetta sem draumur er að láta rætast í Einarshúsi. Reyndar er það ekki alveg rétt að öndin sé í hálsinum því betra er að búast við litlu eða jafnvel engu og gleðjast yfir hverju því litla sem að manni er rétt í það og það skiptið. Styrkir Menningarráðs eru þó mikilvægir til að styðja við bakið á menningarverkefnum á fjórðungnum og vonandi rennur einhver hluti þeirra til Bolungarvíkur í þessari úthlutun.
Þó verður það að segjast alveg eins og er að algjör viðsnúningur er á sólarhringnum þessa dagana sem getur verið bagalegt, sérstaklega þegar þarf að fara að sofa á kvöldin svo ekki sé talað um að þurfa að vakna fyrir hádegi á morgnana. Því hefur klukkan verið stillt kl. 10:30 í fyrramálið og títtnefnd ætlar að reyna að rífa sig upp þá um miðja nótt og ganga inn í nýjan dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.11.2009 | 02:50
Kynlegir kostagripir í Kjallaranum
Kynlegir kostagripir verða í Kjallaranum á föstudagskvöldið í tengslum við Kærleiksdaga í bænum. Þá munu Guðrún Snæbjörg og Jón Sigurðsson mæta frá Þingeyri og stilla sér upp á stóra sviðinu ásamt húsbóndanum sem tekur í trommurnar. Þá eru menn hvattir til að taka lagið með hljómsveitinni eða bara fá að spila á alvöru sviði á einum flottasta bar landsins, svo Vertinn geri orð Mugisons að sínum. Öllum þeim sem langar að láta ljós sitt skína verða endilega að láta sjá sig þetta kvöld og láta drauminn sinn rætast um að slá í gegn í eitt skiptið fyrir öll. Því er lag að fjölmenna í Kjallarann og láta alla hugsanlega látúnsbarka vita af uppátækinu og einnig þá sem kunna að spila á hljóðfæri og langar að spreyta sig á gömlu góðu lögunum. Þeir sem geta ekkert sungið eru einnig velkomnir en heppilegra telst að hafa lágmarkskunnáttu á hljóðfæri ef slá á nokkra tóna í taumlausu stuði.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2009 | 13:57
Uppselt
Á jólahlaðborð 4. og 12. desember. Ennþá eru sæti laus á jólahlaðborð þann 12. desember.
Glaðvær gestur við gamla jólatréð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.11.2009 | 01:34
Gleðirécept
Skemmst er frá því að segja að tónleikar Mugisons og Bjögga Gísla voru framúrskarandi og hrein unun á að hlýða. Ekki var svosem við öðru að búast þegar svona tveir þrusugóðir tónlistarmenn leggjast á eitt um að stilla saman strengi sína. Húsfyllir var á tónleikunum og troðfullt út úr dyrum og reikna má með því að hátt í tíu prósent bæjarbúa hafi hlýtt á kappana sem er nokkuð gott ef miðað er við mannfjölda. Búið var að endurraða upp á nýtt í Kjallaranum og breyta þessum gamla verslunarlager í tónleikasal og stemningin var stórkostleg eins og svo oft áður í þessu húsi sorgar og gleði. Það má í raun teljast til stóratburða hvað er að gerast í þessum Kjallara sem var nánast rústir einar bara fyrir fimm árum síðan. Nú sækjast færustu listamenn landsins eftir því að fá að troða þar upp og þykir það bara nokkuð merkilegt að fá að tilheyra þeim hópi sem þar hefur komið fram.
Til að toppa helgina að þessu sinni var ferð á Heilsugæzluna í Arnardal. Þar beið uppáskrifað lyfseðilsskylt résept frá doktor Lýð lækni stútfullt af skellihlátri og skemmtilegheitum. Þar fóru leikararnir Elfar Logi og Margrét Sverrisdóttir á kostum í hlutverkum lækna og sjúklinga og Vertinn í Víkinni fékk bót allra sinna meina og varð alheil á svipstundu. Ekki það að til allrar hamingju er títtnefnd frekar hraust að eðlisfari og er ekki tíður gestur á læknastofum í leit að lækningu á kvillum af ýmsu tagi í tíma og ótíma.
Heldur sú sem þetta ritar að flestir geti séð sjálfa sig í einhverjum af þessum vesalings sjúklingum sem komu á stofuna til læknisins til að fá pillur við hinum ýmsu vanköntum tilverunnar og til að öðlast betra líf og jafnvel hamingju. Það vita auðvitað flestir að hamingjan er ekki fólgin í mixtúrum eða pillum af öllum stærðum, gerðum eða litum, en þær gera auðvitað sitt gagn oft á tíðum eitt augnablik eins og tildæmis þegar náttúran við "Niagra" hefur yfirgefið karlmenn og lágt er á þeim risið og þeir því til lítils gagns en það er nú önnur saga.
Alcohólistinn Ragna Mjöll þótti kunnugleg ekki síst fyrir þær sakir að hún var stuttklædd og glansandi flott en kjóllinn náði rétt niður á mið lærin og pallíetturnar vörpuðu ljóma yfir persónuna. Skórnir voru alskreyttir glimmeri og háu hælarnir gerðu yfirbragð og þokkann líkan þeirri sem alla jafna stendur í gömlu kolageymslunni uppá klædd í stuttan kjól, fagurlega skreytt með glansandi glimmer. Það nær auðvitað engri átt að líka sér við bestu glæsimeyna í leiknum og án efa segir einhver að nú þurfi títtnefnd að fara til læknis og það væri eflaust heillaráð að mati einhverra.
Vertinn í Víkinni er þó búin að átta sig á því að besta leiðin til að halda heilsu er einmitt að fara í leikhús sem þetta, hlægja sig máttlausa yfir kaffibolla og marengstertusneið eftir langan göngutúr um bæinn. Fá að njóta tónleika eins og á laugardagskvöld þar sem frábærir tónlistarmenn léku óaðfinnanlega músík er eins og heilt lyfjabox af gleðipillum, bleikum og bláum og allrahanda. Að fá að dansa lítið eitt og lifa lífinu lifandi með skemmtilegu fólki er álíka örvandi og heilt meðalaspjald örvandi lyfja og að geta svo farið heim og kúrt fram eftir degi er álíka róandi og uppáskrifað pillubox róandi taflna en allt þetta veit auðvitað Lýður læknir mætavel.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2009 | 14:57
Jólahlaðborð í Einarshúsi
Vertinn telur tímabært að fara að panta á jólahlaðborði í Einarshúsi enda er ekki ráð nema í tíma sé tekið. Þrjú jólahlaðborð verða í Einarshúsi fyrir þessi jól og vegleg söngdagskrá í boði fyrir gesti en flutt verður úrval laga úr rómantísku leik- og söngdagskránni "Vegir liggja til allra átta" sem Litli leikklúbburinn hyggst frumsýna eftir áramótin en þar verður gripið niður í lög systkinanna Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmssonar.Lifandi tónlist verður svo í Kjallaranum eftir hlaðborðin og leikið og sungið fram á nótt.
Nú þegar er orðið uppselt á jólahlaðborð þann 4. desember. Laust er á jólahlaðborð þann 5. desember og einungis örfá sæti laus þann 12. desember.
Verð er 6500,- á mann og byrjað er að taka á móti pöntunum í síma 456 7901 á opnunartíma Einarshúss
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.11.2009 | 00:29
Helgin
Það þykir einstaklega viðeigandi að fara yfir það helsta sem í boði er um helgina í Einarshúsi. Í hádeginu á morgun eða kl. 12:15 verður Verslun Bjarna Eiríkssonar með vinnustaðakynningu og fer Stefanía Birgisdóttir yfir sögu fyrirtækisins. Gúllassúpa verður í boði og heimabakað brauð.
Um kl. 22:30 verður Kjallarakeppnin og þar spyrja Jóhanna Bjarnþórs, Jenný og einhver ein önnur sem Vertinn getur bara ekki með nokkru móti munað hver er í augnablikinu. Að aflokinni Kjallarakeppninni fer Birgir Olgeirsson á kostum á stóra sviðinu og leikur og syngur út í nóttina.
Varla þarf að geta stórviðburðarins á laugardagskvöldið þegar Mugison sjálfur stígur á stokk ásamt Bjögga Gísla. Títtnefnd telur það vera einn mesta viðburð í sögu hússins eða hér um bil, því sem næst og margnefnd telur það vera magnað að fá þá tvo til að troða upp. Vænst er húsfyllis.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2009 | 02:24
Undir bláhimni
Undir bláhimni stjörnubjartrar vetrarnætur voru gönguskórnir teknir fram og arkað var hringinn að venju. Hringurinn er venjulega fjórir til fimm kílómetrar eftir því hvort farið er fram í Múrhúsin og aðeins lengri leiðina heim eða bara stóra hringinn um bæinn. Þessi gönguhringur er farinn daglega eða því sem næst og markmiðið er að hressa sálina og andann og reyna ögn að ná af sér síðuspiki sem safnast hefur frekar ótæpilega með síðunum eftir allar guðdómlegu gulrótarkökur Guðlaugar í sumar. Það þarf svosem engann að undra að títtnefnd er margfallt sprækari en þegar hún hóf þessa einstöku göngueflingu og slengir nú handleggjunum með síðunum af ákafa og tekur svo stór skref að þau virðast ógnvænlega löng miðað við klofsídd og meðallengd konu á miðjum aldri.
Í kvöld var Vertinn í Víkinni kjölfestan í göngutúrnum og þurfti að vísa veginn í myrkrinu og var í fararbroddi göngugarpa. Það er lítið hald í því að hafa jafn náttblindan leiðsögumann til að vísa veginn og þennan sem þetta ritar en þegar ekkert annað er í boði þýðir lítið að malda í móinn. Títtnefnd telur sig þó þekkja göngustíginn í skógræktinni alveg út og inn og sló því hvergi af þegar skógurinn þéttist og ekki var hægt að merkja hann lengur fyrir trjám.
Á einu augnabliki þóttist títtnefnd sjá stíginn sveiga í 180 gráður til vesturs, eða til hægri sem eðlilegt er hjá þeirri hægrimanneskju sem hér um ræðir. Snarstansaði því forkólfur göngunnar og beygði í snarhasti og óð beint sem leið lá inn í skóginn þar sem hann var þéttastur og minnstu mátti muna að títtnefnd týndist í skóginum líkt og Rauðhetta forðum og myndi ekki rata til byggða á ný. Það vildi þó til happs, er barist var um á hæl og hnakka og greninálar léku sér að því að stinga margnefnda í síðuspikið, að hlátrasköll dótturinnar fengu Vertinn til að rata á göngustíginn á ný.
Glöggt mátti heyra fliss skógarins blandast andvarpi úlfsins að missa af svo góðum bita og tóna við hlátrasköll dótturinnar sem var bókstaflega að deyja úr hlátri yfir þessum axarsköftum móður sinnar. Það var meira að segja svo að tröllið undir bogabrúnni yfir Hólsá gat sér enga björg veitt fyrir hláturkrampa og hleypti okkur yfir eins og ekkert sé undir bláhimni á einstaklega fallegu kvöldi.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm