11.11.2009 | 02:02
Kærleiksdagar í Bolungarvík
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.11.2009 | 23:34
Þorskurinn 2009
Þorskurinn 2009
Tónlistarhátíð í Kjallaranum í Einarshúsi 21. nóv
kl. 16:00 - 19:00
Eftirtaldir stíga á stokk:
Kl. 16:00 Haltur leiðir blindan
Kl. 16:15 Steingrímur Rúnar Guðmundsson
Kl. 16:30 Sítt að neðan
kl. 16:45 Guðmundur Hjaltason
Kl. 17:00 Elfar Logi Hannesson
Kl. 17:15 Steingrímur Guðmundsson
Kl. 17:15 Benóný Ægisson
Kl. 17:15 Henna Riika Nurmi
Kl. 17:30 Arnar Guðmundsson
Kl. 17:45 Íris Sveinsdóttir
Kl. 17:45 Lýður Árnason
Kl. 18:00 Hávarður Olgeirsson
Kl. 18:15 Hálfdán Bjarki Hálfdánsson
Kl. 18:30 Hjörtur Traustason
Kl. 18:45 Bæjarstjórabandið
Búast má við að dagskrá riðlist enda er kvöldið ungt og tíminn nægur
Dægurmál | Breytt 19.11.2009 kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.11.2009 | 00:44
Heimsviðburður í húsi harma og hamingju 14. nóv
Nú verður uppljóstrað um heimsviðburðinn sem varpað var fram í hálfkæringi hér á blogginu ekki alls fyrir löngu. Það verður að segjast alveg eins og er að Vertinn í Víkinni hefur oftar en einu sinni grátbeðið þann sem nú stígur á stokk að troða upp við tækifæri en venjulega hefur hann verið upptekinn við tónleikahald hirst og her um veröldina. Það er því sannur heiður að kynna til leiks heimskunna tónlistarmanninn Mugison sem kemur alla leið frá Súðavík af öllum stöðum til að halda tónleika. Með honum er einn snjallasti gítaristi sem Ísland hefur af sér alið, sjálfur Björgvin Gíslason.
Vertinn óskar af þessu tilefni bæjarbúum til hamingju með að þessi stórkostlegi listamaður ætli að koma í sína heimbyggð og flytja tónlist sína í húsi harma og hamingju. Títtnefnd mælir svo um og leggur áherslu á að allir sem vettlingi geti valdið mæti á tónleika þeirra kappa og sýni þeim hve mikils virði það er að fá slíka listamenn í heimsókn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2009 | 14:02
Úrslit spilavistar
Elfar Stefánsson og Kristinn H. Gunnarsson hlutu flest stigin í spilavistinni í gærkvöld en spilað var á fimm borðum. Einar Guðmundsson og Hálfdán Sveinbjörnsson fóru heim með öngulinn í rassinum en fengu samt kerti að launum í slitnum skó, sem mun án efa loga glatt í svartasta skammdeginu. Sá sem fær flestu stigin eftir þrjú spilakvöld hlýtur að launum tvo miða á jólahlaðborð í Einarshúsi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2009 | 00:55
Kveðjukossinn
Tregafullt lag Bjössa Greifa sem heimsótti Vertinn um helgina leiddi hugann niður í fjöruna þar sem aldan hlær og vindurinn hvíslar ástarljóð til þín. Með sorg í hjarta horfði hún á eftir ástinni sinni í hyldýpið án þess að fá tækifæri á því að kyssa hann kveðjukossinn.
Hér má heyra þetta gullfallega lag og texta títtnefnrar í fyrstu upptöku. Hér eftir fer textinn þó örlítið fínpússaður og breyttur.
Kveðjukossinn
Er horfir hún á hafið, ætíð hugsar hún til mín.
Þá aldan hlær og raular þennan óð.
Um vangann vindur hvíslar öll sín ástarljóð til þín
sem safnað var í minninganna sjóð.
Ég fór án þess að kveðja út í kaldan vetrardag
og kalið hjartað, enn ber þann þunga kross.
Ég hefði átt að syngja henni fagran ljúfan brag
að morgni dags eftir mjúkan kveðjukoss.
Við sendna sjávarströnd
sálir hönd í hönd
leiðast þar tvær, út við sjónarrönd.
Báran lék við bátinn, ólgar hafsins djúpa dröfn
brátt kaldur kvíðinn, senn yrði fyrir bí.
Því ástin myndi bíða eftir mér í heimahöfn
og bráðum mátti ég sjá til lands á ný.
Við sendna sjávarströnd
sálir hönd í hönd
leiðast þar tvær, út við sjónarrönd.
En fleyið bar mig aldrei heim ég sigldi víst í strand
við skerið braut og báturinn fór á kaf.
Í hyldýpið svo bljúgur sökk í ægis mjúka sand
með allt það vit sem guð mér sjálfur gaf.
Við sendna sjávarströnd
sálir hönd í hönd
leiðast þar tvær, út við sjónarrönd.
Er horfir hún á hafið beygð við blóðrautt sólarlag
í hjarta sínu ætíð ber hún þungan kross.
Því ekki fékk hún þennan dimma, dökka sorgardag
sinn draumaprins að kyssa kveðjukoss.
Við sendna sjávarströnd
sálir hönd í hönd
leiðast þar tvær, út við sjónarrönd.
Lag: Sveinbjörn Grétarsson
Texti: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2009 | 20:23
Einvalalið á Þorskinum
þeir sem hafa staðfest þátttöku á "Þorskurinn 2009" eru hljómsveitin Haltur leiðir blindan þar sem Hlynur Snorrason, Jón Bjarni Geirsson og Kristján Karl Júlíussoneru ma. innanborðs auk Guðmundar Ásgeirssonar og Sigurðar bassaleikara. Steingrímur Rúnar Guðmundsson eða Denni mætir, auk ofurkvennadúettsins "Sítt að neðan" en þar leika Ylfa Mist Helgadóttir og Hjördís Þráinsdóttir stórskemmtileg lög við allra hæfi. Guðmundur Hjaltason, Elfar Logi Hannesson, Hálfdán Bjarki Hálfdánsson og Arnar Guðmundsson. Einnig stíga á stokk Íris Sveinsdóttir, Hávarður Olgeirsson og Hjörtur Traustason Fjallabróðir. Ekki má svo gleyma Bæjarstjórabandinu þar sem Ólafur Kristjánsson og Elías Jónatansson stilla saman strengi auk Einars Péturssonar sem aðstoðar þá við að flytja sannkallað bæjarstjórarokk.
Vertinn sér reyndar í fljótu bragði að það vantar fleiri konur til að troða upp til að gæta jafnvægis í kynjahlutföllum. Títtnefnd mun endurskoða möskvastærðina fyrir næstu Þorskveiðar ársins 2010 með það að markmiði að gæta jafnræðis í stofnstærð og viðhalda þorskstofni tónelskra og töfrandi tónlistarmanna af báðum kynjum. Ennþá gæti verið pláss fyrir eins og eina söngkonu og nú er lag að gefa sig fram.
Lógó Þorksins er unnið af sérlegum listamönnunum Vertsins í Víkinni þeim Ninu og Smára
Dægurmál | Breytt 10.11.2009 kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2009 | 20:03
Bjössi live
Bjössi Greifi live á stóra sviðinu
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2009 | 19:36
Tónleikar Rósarinnar falla niður
Tónleikar Rósarinnar falla niður
vegna Haraldar,
nei.. faraldar
Friður sé með yður
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2009 | 13:15
Þorskurinn 2009
"Þorskurinn 2009" er tónlistarhátið sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi laugardaginn 21. nóvember milli kl. 16:00 og 19:00 í tengslum við Kærleiksdaga sem haldnir verða í bænum. Stefnt er að því að hátíðin verði árviss viðburður í framtíðinni og verið haldin í Garðinum við Einarshúsið á sjómannadagshelgi en meiningin er að hún auki við flóru menningarviðburða í bænum og lífgi upp á tónlistarlífið og mannlífið almennt. Hugsunin er að bjóða sem flestum að taka þátt í Þorskinum og hvetja þá sem eru tónelskir að stíga fram á sjónarsviðið og láta ljós sitt skína. Markmiðið er að hvetja þá sem bera með sér þann draum að koma fram og syngja og spila fyrir almenning tækifæri á að sýna hvað í þeim býr og stíga fyrstu skrefin. Allir hafa þó tækifæri til að stíga á stokk og koma hæfileikum sínum á framfæri en vestfirskir tónlistarmenn verða þó sérstakir heiðursgestir á hátíðinni enda ber hún blæ fólksins við sjóinn.
Þorskurinn hefur frá ómunatíð verið bjargvættur vestfirskra sjávarbyggða sem standa og falla með því að dugmiklir sjómenn fái að renna í hann færi, sér og þjóðinni til lífsviðurværis. Bolungarvík er elsta verstöð landsins og hafa bolvískir sjómenn stundað ægi af kappi frá örófi alda og eru einir dugmestu fiskimenn sem landið hefur af sér alið. Það er því vel við hæfi að halda hátíð sem ber nafn Þorsksins, sem haldið hefur lífi í þorpunum við sjóinn frá örófi alda og minna í leiðinni á mikilvægi þess að róið sé til fiskjar frá Bolungarvík og að menn fái að draga björg í bú.
Fiskvinnslan Jakob Valgeir ehf. hefur ákveðið að taka þátt í þessari tónlistarhátíð þetta árið og gefa hverjum þeim listamanni sem fram kemur eina öskju af þorski að launum, en einn sá heimsins besti þorskur sem bragðast hefur er framleiddur hjá fyrirtækinu.
Fjölmargir hafa þegar tilkynnt þátttöku á "Þorskinn 2009" og eru áhugasamir hvattir til að gefa sig fram hjá Vertinum í Víkinni á netfangið ragna@einarshusid.is
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.10.2009 | 19:52
Gott kvöld með Greifa
Hann var bara sérdeilis framúrskarandi Greifinn sem sótti Einarshúsið heim í gærkvöld. Hann hóf kvöldið á Kjallarakeppni og spurði mann og annan spjörunum úr. Að endingu hrepptu tvær bráðgáfaðar ungar bolvíksar konur hnossið og fóru seint um síðir með drukk frá Vífilfelli heim. Það var þó ekki fyrr en kvöldið rann sitt skeið á enda því fjörið var einstak og Bjössi Greifi hlítur mikið lof fyrir góða frammistöðu því hann var fantagóður. Hann kunni tónstigan frá upphafi til enda og spilaði eitthvað við allra hæfi og það var sungið og dansað. Þegar Vertinn í Víkinni gat litið upp úr gömlu kolageymslunni var brunað út á dansgólfið og dansað af lífsins sálar kröftum. Það er innifalið í starfi Verta og vinnuhjúa hússins að dansa við kúnnann þegar þannig viðrar og það er sannkallaður kaupauki þegar gömlu góðu lögin óma og gamalkunni takturinn rífur í.
Bjössi söng frystikistulagið á spurningakeppninni og kunni textann upp á hár
Þessar mættu auðvitað galvaskar og tóku þátt
og líka þessar
að ógleymdum sæbjúgukörlunum sem komu gagngert frá Grundarfirði til að taka þátt í Kjallarakeppni og kannski veiða nokkra konupunga í leiðinni
og trúbadorinn blés ekki úr nös allt kvöldið
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm