9.12.2009 | 03:08
Fjárhirðar
Mitt í jólatörninni gefur Vertinn sér tíma til að blogga lítið eitt. Jólahlaðborðin taka töluverðan tíma frá títtnefndri þennan dyntinn eins og við er að búast. Varla er hægt að reikna með jólahlaðborðum annan tíma ársins svo þetta er nokkuð eðlilegt og í samræmi við væntingar. Það er helst í miðri viku sem hægt er að slaka örlítið á og búa sig undir næstu törn en segjast verður alveg eins og er að brjálað er að gera um þessar mundir og ekki allt búið enn. Jólahlaðborðið á laugardaginn verður án efa eitt það mannmesta um langan aldur en áður hafa þó jafnmargir og jafnvel fleiri setið til borðs í Einarshúsi og átt notalega stund í góðra vina hópi. Húsið verður að gjöra svo vel að laga sig að þeim fjölda sem í húsið kemur og fjalirnar svigna til að allir komist fyrir með góðu móti og panellinn færist úr stað svo vel rúmist um alla sem húsið vilja sækja heim. Svona er þetta bara.
Hálfdán Guðröðarson bar sigur úr býtum í spilavistinni og vann jólahlaðborð fyrir tvo á sl. helgi. Hann var kampakátur er hann kom með sína ektafrú og naut góðra veitinga og skemmtunar. Spilavistin heldur áfram eftir áramótin og verður greint frá því síðar.
Kjallarakeppnin heldur sínu striki á föstudaginn kemur en þá spyrja Atli Freyr og Elmar Ernir gesti spjörunum úr. Vinningurinn er sem fyrr kassi af drukk frá Vífilfelli svo til mikils er að vinna og eru menn hvattir til að koma og spreyta sig.
Gummi Hjalta mætir svo galvaskur á stóra sviðið í Kjallaranum á laugardagskvöldið 12. des eftir jólahlaðborðið og leikur og syngur fram á rauða nóttina. Allt eins er reiknað með miklu stuði og fjöri fram á morgun og væntanlega verður dansað og djöflast innan eðlilegra marka eða því sem næst.
Jólablandan Malt og Appelsín mun svo trylla lýðinn þann 19. desember nk. og koma öllum í rétta jólaskapið í eitt skipti fyrir öll. Þá ætlar Lýður læknir að halda úti taumlausu stuði og minnast fæðingar frelsarans af krafti og kynna mikinn fögnuð þá um kvöldið fyrir gestum Einarshúss. Hann hefur umorðað hin fallegustu jólakvæði og gert þau sérbolvísk og flest þeirra alls ekki við hæfi barna, ungmenna né gamalmenna. Sér til halds og trausts hefur hann læknirinn, þ.e. Írisi ektakvinnu sína, sem hann var svo séður að nappa í á sínum tíma væntanlega og helst og aðallega til að lækna sig ef hann yrði eitthvað veikur. Með þeim verður svo einvalalið, leikara, hljómlistarmanna auk lögreglumanna sem ætla að reyna að halda lagi með þeim og gera kvöldið eftirminnilegt og hleypa jólunum að í eitt skipti fyrir öll.
Fjárhirðarnir verða á barnum að vanda og líta eftir með hjörðinni og breyta vatni í vín þegar líður á kvöldið. Þeir munu sjá til þess að boðorðin tíu verði í hávegum höfð og þau virt í hvívetna þó 11 boðorði verði þó sérstaklega fylgt eftir en þar stendur að enginn skuli bera sitt eigið vín inn í annarra manna hús þá sérstaklega veitingahús enda er það er bannað með landslögum. Einnig mun 12 boðorðið um aldurstakmark ekki vera brotið enda ritað í sáttmála sýslumannsins á nýtísku pappír úr regnskógum Afríku.
Spámennirnir sem spáðu hagnaði hlutabréfa sinna hanga ugglaust fram á borðin og gráta gamlar arðgreiðslur frá Sparisjóðnum á meðan Betlehemskertin loga á hverju borði og veita von um betri tíð með blóm í haga. Nægt húsrúm verður fyrir Maríu mey enda er Einarshús opið öllum á stundum sem þessum enda býr María í öllum konum. Frelsarinn verður þar líka enda er hann allstaðar með mönnunum og reynir að leiða þá á rétta vegu og koma vitinu fyrir þá sem hafa glatað því í glasinu. Vitringarnir þrír mæta án efa líkt og öll önnur kvöld í góðu stuði, þeir verða kannski ekki með gull, reykelsi og myrru í þetta sinnið en trúlega má ætla að einhver viska falli af þeirra vörum líkt og venjulega við barborðið.
Vertinn og hennar skyldulið í hlutverki fjárhirða þarf að huga að öllum þessum einstaklingum á síðbúnum vetrarkvöldum og gæta fjárhússins við skinið frá Betlehemsstjörnunni yfir Bolungarvík.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2009 | 20:06
Slegið í gegn
Það er skemmst frá því að segja að helgin er búin að vera sérdeilis frábær í alla staði. Vertinn vaknaði klukkan fjögur á aðfaranótt laugardags enda þurfti að smyrja á annað þúsund snittur vegna þess að slegið var í gegn í Bolungarvíkurgöngum. Títtnefnd vippaði sér í föt forseta bæjarstjórnar þegar snitturnar voru loksins klárar og flutti ræðu er kveikt var á jólatrénu og gantaðist við jólasveininn í leiðinni. Forseti bæjarstjórnar var einnig kynnir í stórveislu í Íþróttamiðstöðinni um miðjan dag sem haldin var í tilefni af síðustu sprengingunni og tókst það alveg með ágætum svo títtnefnd segi sjálf frá.
Frá íþróttamiðstöðinni æddi sú sem þetta ritar í loftköstum inn í Bolungarvíkurgöng þar sem síðasta sprengingin ómaði. Þó var ótrúlegt að upplifa hljóðbylgjuna sem kastaðist frá sprengingunni og sló hvern mann næstum kaldan um koll og það var sérstök tilfinning.
Frá jarðgöngunum lá leiðin í Einarshús en þar sátu lögreglumenn að snæðingi og gerðu sér glaðan dag og það naut títtnefnd þess að láta laganna verði stjana við sig í hvívetna. Ekki svo að skilja að það var nægjanleg löggæsla á svæðinu þrátt fyrir allt og allt undir kontról.
Kjallarinn var svo troðfullur fram á nóttina enda frábærir trúbadorar á stóra sviðinu. Andri Ívars og Eyþór Ingi slógu hvergi og þeir stóðu svo sannarlega undir væntingum. Vertinn dansaði eins og hver dans væri hennar síðasti enda fer hver dans með bormönnum Bolungarvíkur að verða sá síðasti því þeir fara til síns heima innan tíðar. Slóvenskur aðdáandi situr um dansinn og reynir af veikum mætti að gera sig skiljanlegan á ensku en það gengur frekar illa. " Jú ar a verí næs kreisí girl" voru lokaorðin er hann kvaddi títtnefnda í nótt og á leið heim í háttinn.
Segjast verður þó alveg eins og er að það var nokkuð gott að leggjast á koddann klukkan sex í morgun eftir 26 tíma vöku. Það á þó eftir að taka sinn toll og títtnefnd verður án efa eitthvað fram í vikuna að jafna sig.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.11.2009 | 13:18
Kökuuppskrift
1 bolli sykur
4 stór egg
2 bollar þurrkaðir ávextir
1 teskeið bökunarsódi
1 teskeið salt
1 bolli púðursykur
1 bolli sítrónusafi
1 bolli hnetur
1 FULL flaska af Grand
Smakkið Grandið til að vera viss um að það sé ekki skemmt.
Takið stóra skál.
Athugið Grandið aftur til að vera alveg viss um að það sé ekki skemmt.
Hellið í einn bolla og drekkið. Endurtakið.
Kveikið á hrærivélinni, hrærið 1 bolla af smjöri í stóra, mjúka skál.
Bætið 1 teskeið útí og hrærið aftur.
Athugið hvort Grandið sé nokkuð farið að skemmast, fáið ykkur annan bolla.
Slökkvið á hrærivélinni.
Brjótið tvær fætur og bætið í skálina og hendið út í bollanum af
þurrkuðu ávöxtunum. Hrærið á kveikivélinni.
Ef þurrkuðu ávextirnir festast við hrærararrarna losið þá þá af með
rúfskjárni.
Bragðið á Grandinu til að athuga brestgratið.
Næst, sigtið 2 bolla af salti. Eða einhverju. Hverjum er ekki sama.
Athugið Grandið. Sigtið sítrónusafann og teygið hneturnar.
Bætið einu borði. Skeið. Af sykri eða eitthvað. Hvað sem þú finnur nálægt.
Smyrjið ofninn.
Stillið kökuformið á 250°.
Gleymið ekki að hræra í stillaranum.
Hendið skálinni út um gluggann.
Athugið Grandið aftur. Farið að sofa.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.11.2009 | 01:46
Tvær fyrir eina
Næstkomandi helgi verður stór og mikið umleikis. Smyrja þarf óteljandi snittur vegna hátíðarhalda inn í jarðgöngunum undir Óshyrnu og munu vinnuhjú Einarshúss hafa nóg að gera við undirbúning. Embættisverk forseta bæjarstjórnar munu einnig taka tíma á laugardag því kveikja þarf á jólatrénu og halda utan um veislu í Árbæ í tilefni þess að slegið verður í gegn í göngunum. Embættisverkum fyrrnefnds forseta fer þó senn að ljúka enda er þetta síðasti veturinn sem títtnefnd starfar í bæjarstjórn svo vænta má að þetta séu með síðustu skiptunum sem ljós forseta skín og ásjóna títtnefndrar fær að njóta sín í því hlutverki.
Fyrir utan allt sem hér hefur verið talið þarf Vertinn að sitja aðra veislu á jarðgangasvæðinu síðar um daginn og fram á kvöldið. Þá væri ósköp gott ef Vertinn og forseti bæjarstjórnar væri sitt hvor manneskjan því önnur hátíð er haldin í Einarshúsi þar sem fjöldinn allur af fólki situr að snæðingi og þyrfti títtnefnd einnig að vera þar með hinum. Gott væri ef Kári Stefánsson væri ekki langt undan og gæti klónað kellu og útbúið tvær úr einni svo títtnefnd gæti verið á fleirum en einum stað en ætli sé ekki nóg að hafa einn Vert líkt og þennan sem þetta ritar í einu byggðarlagi...eða kannski er það bara einum Vert of mikið.
Eitt er þó víst að laugardagskvöldið mun enda í Kjallaranum því Vertinn ætlar ekki að missa af Eyþóri Inga og Andra Ívars á stóra sviðinu fyrir nokkurn mun. Það má hverjum manni vera ljóst eftir frammistöðu þeirra á markaðshelgi að þeir munu trylla lýðinn og það verður brjálað fjör.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2009 | 23:42
Kjallarakeppnin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2009 | 23:39
Spilavistin
Ekki má gleyma að geta hverjir urðu stigahæstir í spilavistinni á föstudagskvöldið var. Það var Hálfdán Guðröðarson sem skoraði hæst frá upphafi en hann var með 190 stig og spilaði sem kona. Unnsteinn Sigurjónsson var hæstur í karlaflokki og Falur Þorkelsson og Lilja fengu verðlaun fyrir að vera með fæstu stigin þetta kvöld. Spilað var á sex borðum og því var líf og fjör. Lokakvöldið verður haldið 3. desember þar sem jólahlaðborð er þann fjórða.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2009 | 23:32
Fósturlandsins Freyja Fjallabræðra
Alveg magnað lag og texti Magnúsar Þórs í frábærum flutningi Fjallabræðra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.11.2009 | 00:39
Þrælgott þríeyki
Ebba Kristín á fiðlu, Anna Þuríður syngur og Lilja leikur á ukulele
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2009 | 22:53
Bestu þakkir
Til allra sem tóku þátt í Þorskinum 2009.
Sjáumst hress og kát og miklu, miklu fleiri á Þorskinum 2010
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.11.2009 | 22:33
Frábær helgi að baki
Helgin er vægast sagt búin að vera frábær í alla staði. Vertinn hefur reyndar staðið vaktina lengur en góðu hófi gegnir og var orðin ansi framlág undir restina en ætlar bara að sofa eitthvað fram í vikuna til að ná eðlilegu jafnvægi á ný. Það passar nokkuð pent að þegar svefninn verður orðinn eðlilegur á ný og títtnefnd hætt að vaka á nóttunni og sofa fram á daginn rennur upp ný helgi með nýjum viðburðum og þá snýst þetta allt við á ný. Kærleiksdagar voru í Bolungarvík um helgina sem Vertinn í Víkinni átti stóran þátt í að standa að og tók títtnefnd Kærleiksmessu í Hólskirkju á föstudagskvöldið með trompi og var það góður undirbúningur fyrir komandi viðburði helgarinnar. Kynlegir kostagripir tróðu upp í Kjallaranum síðar um kvöldið og það var ekki að spyrja að því að það tókst með afbrigðum vel og var bráðskemmtilegt.
Laugardagurinn rann svo upp í drottins dýrðar faðmi og strax mátti finna ilminn af einhverri spennu í loftinu. Herlegheitin byrjuðu á hádegiskrami með Höllu Signý í hádeginu og þar var öllum boðið í sjávarréttasúpu og komust fleiri þar að en vildu. Vertinn var undir það búin að þurfa að brauðfæða mörg þúsund manns úr örfáum fiskum en það fór þó ekki svo og nóg var af súpu fyrir alla. Engu vatni var breytt í vín fyrr en síðar um kvöldið svo bergvatnið dugði í hádeginu eitt og sér. Fjórar ungar stúlkur buðu upp á tónlistaratriði og voru þær sér og sínum til mikils sóma og hrein unun var á að hlýða. Lilja, Ebba og Anna sungu sig inn í hug og hjörtu þeirra sem hlustuðu og stóðu sig með stakri prýði og það gerði Kristín líka með harmonikkuleik sínum.
Þorskurinn hófst svo á slaginu fjögur og rann dagskráin ljúft og fór alveg eftir áætlun og skeikaði ekki sekúndu. Svo nákvæm var tímaáætlunin að það var eins og herinn hefði stjórnina en ekki títtnefnd sem var klædd eins og Sigga Vigga, með svuntu og skuplu um hárið sem bundin var úr tóbakskútnum hans pabba og með hárauðan varalit en þannig voru allar vinnukonur hússins klæddar í tilefni hátíðarinnar. Hver dagskráliðurinn eftir öðrum rann fram hjá á augabragði og frumsamið efni í takt við gamalt og gott, íslenskt og útlent ómaði um Kjallarann. Tuttugu listamenn fengju öskju af þorski fyrir að koma fram og stefnt er að því að tvöfalda þann fjölda af öskjum fyrir Þorskinn 2010 og gera hátíðina enn meiri og stærri. Kjallarinn var troðfullur og fullt var af fólki allan tímann og
það var alveg í takt við væntingar Vertsins. Fullur hugur er á því að halda enn veglegri hátíð næsta ár.
Hjörtur Trausta kom sér svo þægilega fyrir á stóra sviðinu þegar klukkan sló miðnætti og hann blés vart úr nös fram að klukkan þrjú eða rétt um það bil. Fólk dansaði og duflaði og daðraði, söng og hló og tjúttaði fram á morgun og lífið var ljúft. Þeir síðustu yfirgáfu staðinn er klukkan var ískyggilega langt gengin í morgun en þá mátti Vertinn kveðja hvern gest með kossi eða faðmlagi því það var jú kærleiksnótt og allir vildu knús og kram. Því er Vertinn alveg úr takti við daginn í dag og kemur sér ekki í neitt verk af viti.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm