21.9.2011 | 13:02
Fjáröflun-Fjáröflun-Fjáröflun
Vertinn í Víkinni ætlar að standa fyrir fjáröflun í formi vöfflusölu og sölu á kaffi við Einarshús í dag milli klukkan 13:00 og eitt. Passað verður sérstaklega upp á að staðsetning verði fyrir utan yfirráðarétt hússins því þá þarf hvorki leyfi til sölunnar né þarf að greiða virðisaukaskatt til Steingríms skattmanns. Ríkisskattstjóri þarf því ekki að hanga yfir öxlina á títtnefndri og vakta að sinn hluti sölunnar renni óskiptur í ríkissjóð.
Heilbrigðiseftirlitið þarf ekki að koma í reglubundið eftirlit rétt á meðan og rafmagnið til að kynda vöfflujárnin fæst vonandi úr húsnæði bæjarins sem er þar í nágrenninu.
Engin verður á launaskrá enda er þetta allt unnið í sjálboðavinnu svo 0 krónur renna í atvinnuleysistryggingasjóð af Tryggingagjaldi sem verður þess valdandi að einhverjir sem eru án atvinnu og vinna allt í sjálfboðavinnu fá minna en ella þegar til langs tíma er litið. Lífeyrissjóður, endurhæfingasjóður og verkalýðsfélagið fá heldur ekki neitt af vinnu við sjálfboðastörf svo þetta er allt eins og blómstrið eina.
Allur ágóði rennur óskiptur til að greiða eftirlitsgjöld til Heilbrigðiseftirlits svo halda megi rekstri Einarshúss áfram um sinn og ef það verður einhver afgangur sendir margnefnd börnin kannski í einhverja ferð.
Heilbrigðisfulltrúinn fær frítt, sem og Bæjarstjórinn og Sýslumaðurinn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.9.2011 | 13:25
Vöfflukaffi í dag
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2011 | 16:34
Viðburðir á næstunni
Það er vel við hæfi að stikla á stóru í viðburðardagatali Einarshúss á haustmánuðum. Reynt verður að hafa opið alla daga eins og hægt er til áramóta og upplagt að kíkja við af og til.
Spilavistin fer nú að hefjast en hún hefur verið mjög vinsæl undanfarin ár. Vinningar hafa verið sérlega veglegir og í vetur verður engin breyting þar á. Spilað verður annan hvern föstudag og byrjað þann 23. september næstkomandi. Aðgangseyrir er 1000 krónur.
Prjónakvöldin eru nú þegar byrjuð en þau verða á þriðjudagskvöldum í vetur. Næsta prjónakvöld verður haldið 27. september næstkomandi og síðan hálfsmánaðarlega eins og fyrr segir.
Kjallarinn verður opinn af og til í vetur og reynt að hafa uppákomur amk einu sinni til tvisvar í mánuði og það auglýst sérstaklega. Laugardagskvöldið 24. september ætla Bláberjadrengirnir frá Súðavík þeir Eggert Nielsson og Þorstein Haukur að stíga á stóra sviðið á ný en þeir spiluðu nýlega í Einarshúsi og þóttu einstaklega skemmtilegir. Aðgangseyrir er 1000 krónur og fylgir kolamolinn með í kaupunum.
Töðugjöldin verða haldin 1. október og þá ætla Sveinn og Finnbogi, bræðurnir úr Þjóðólfstungu að heilgrilla íslenskt fjallalamb í bakgarðinum. Guðjón frá Dröngum gefur " Bústólpa Bolungarvíkur" sem sá fær sem segir bestu söguna úr sveitinni. Töðugjöldin hefjast kl. 20:00 og aðgangur er 3500 krónur. Nauðsynlegt er að panta borð í síðasta lagi miðvikudaginn 28. september. Lágmarksfjöldi verður að nást til að það borgi sig að grilla lambið og svo má ekki gleyma því að það dugar bara fyrir viss marga, svo brýnt er að panta borð í tíma og tryggja sér sæti.
Kertaljóskvöldverður verður haldinn laugardagskvöldið 29. október næstkomandi. Þá verður reynt eftir fremsta megni að skapa kósýstemningu og bjóða upp á afbragðs þriggja rétta máltíð. Eggert Nielson og Þorstein Haukur leika og syngja ljúfa og góða tónlist undir borðhaldi. Hvaða dýrindis réttir sem í boði verða verður auglýst sérstaklega síðar.
Vöfflukaffi verður alla sunnudaga og einn sunnudagur verður valinn sérstaklega til að bjóða fólki til að skoða sýninguna á efstu hæðinni. Af framansögðu má sjá að betra er að taka frá alla þessa daga og njóta þess sem í boði verður
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2011 | 14:56
Töðugjöld frestast
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2011 | 19:05
Kveðja
Kópavogurinn var spegilsléttur í gærkvöldi og glitrið varpaði birtu ljósanna frá byggðinni á hafflötinn er tengdapabbi kvaddi á Rjóðrinu, líknardeild. Himnaríkið opnaðist í allri sinni dýrð og rauðgullinn bjarminn frá sólsetrinu teygði sig til jarðar til að vísa honum veginn inn í eilífðina. Hann var umvafinn ástvinum sínum er lífið fjaraði út og þegar síðast andardrátturinn þagnaði var höfði dropið í þakklæti fyrir að hafa fengið að ganga svo stóran hluta lífsleiðarinnar með þessum einstaka geðprúða manni.
Í báðum þessu tilvikum var þó dauðinn fallegur og friðsæll. Nokkuð kærkominn í þetta skiptið því tengdapabbi varð krabbameini að bráð og erfitt var að horfa upp á þennan mann sem eitt var svo stæðilegur tærast upp. Í hans tilviki kom sorgin í skömmtum eftir því hve sjúkdómurinn náði meiri tökum á honum, en kveðjustundin er alltaf jafn erfið og þungbær. Það er þó mikils virði að hann leið ekki kvalir svo neinu nemi, en óttinn við það var aðaláhyggjuefnið í fjölskyldunni þann tíma sem hann lág banaleguna sína.
Hann Geir og við öll, urðum þeirra gæfu aðnjótandi að komast að á Rjóðrinu líknardeild í Kópavogi en þar lág hann síðustu dagana sína. Umhverfið er svo fallegt, starfsfólkið svo einstakt og þjónustan yndisleg. Þar er dásamlegt að deyja, svo friðsælt og fínt. Þar áttum við síðustu stundirnar saman og það er dýrmætur fjársjóður í minningakistuna.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.9.2011 | 23:51
Töðugjöld í Einarshúsi
Töðugjöld verða haldin í Einarshúsi laugardagskvöldið 10. september næstkomandi. Þá ætla Finnbogi og Sveinn Þjóðólfstungubræður að heilgrilla íslenskt fjallalamb í bakgarðinum af sinni alkunnu snilld. Kristinn H. Gunnarsson mun segja sögur af bændum og búaliði og einnig verður keppni um hver segir bestu söguna úr sveitinni. Sá sem segir bestu" söguna úr sveitinni" verður gerður að Bústólpa Bolungarvíkur og fær að launum verk eftir hinn snjalla tréútskurðarmann Guðjón Kristinsson frá Dröngum.
Verð á töðugjöldin eru 3500 krónur og innifalið í verði er einn kaldur og svalandi kolamoli en auk þess verður frítt inn á Bláberjadrengina í Kjallaranum síðar um kvöldið. Þá ætla Þorsteinn Haukur og Eggert Nielson, sem léku svo stórt hlutverk á Bláberjadögum í Súðavík, að halda uppi taumlausri stemningu fram á rauða nótt. Aðgangseyrir á tónleikana er 1000 krónur og innifalið í verði er kolamoli beint úr kolageymslunni.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 864-7901 eða í Einarshúsi. Einnig er hægt að senda netpóst á ragna@einarshusid.is, senda bréfdúfu eða bara reykmerki. Það telst þó frekar brýnt að panta borð á töðugjöldin fyrr en seinna því fjöldi þeirra sem komast að er takmarkaður.
Dægurmál | Breytt 3.9.2011 kl. 09:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.8.2011 | 16:36
Huldukonur á húsvegg
Það væri synd að segja að það væri ekki nóg að gera á galeiðunni í Einarshúsi. Vertinn kom þó nokkuð vel undan helginni þó svo að rúmlega 150 manns hafi sótt húsið heim þessa tvo daga í mat og drykk og reytingur hafi mætt í Kjallarann á föstudagskvöldið. Ferðamannastraumurinn er því langt í frá búinn og hver veit nema títtnefnd haldi áfram að hafa opið eitthvað fram á veturinn. Það er þó allt háð eftirspurn eins og gefur að skilja.
Stór hópur kom í hádegið á laugardegi og fékk að hlýða í andakt á sögu hússins og hlaut í leiðinni þann heiður að skoða húsið hátt og lágt. Sýningin á efstu hæð hússins heillaði en hún er nú tilbúin og er einstök á sínu sviði og hvergi svo vitað sé hefur þessum aðferðum verið beitt í myndasýningu af þessu tagi. Lagt var upp með að sýningin skapaði hið rétta andrúmsloft og það má með sanni segja að það hafi tekist með afbrigðum vel. Sýningin sem prentuð er á plexigler og fellur nánast inn í panelinn á veggnum svo halda mætti að fólkið á myndunum væri hluti af innviðunum. Fólkið speglast af dulúð á veggnum eftir því hvernig lýsingin endurkastar birtunni, dáldið spúkí en skemmtilegt. Sýningin á efstu hæðinni er fyrsti hluti sýningarinnar sem verður í húsinu um aldur og æfi en þar eru vinnufólki gerð skil. Á miðhæð hússins verður heimilisfólkinu gerð skil og í kjallaranum verða myndir frá vinnu við sjóinn og höfnina. Vertinn hefur nú þegar safnað miklu magni af myndum og þær sem ekki komast á veggi hússins verða settar í myndabók í fyllingu tímans. Er Nina Ivanova hönnuður sýningarinnar og hún hefur skilað afar góðu verki.
Bæjarbúum verður boðið að koma og skoða efstu hæðina og sýninguna þegar líður á haustið og verður það auglýst síðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.8.2011 | 07:32
Laufey og léttadrengirnir

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.8.2011 | 19:04
Góður gangur í Einarshúsi
Ljómandi góður gangur hefur verið í Einarshúsi í sumar. Gestagangur hefur margfaldast milli ára og hefur hin glæsilega gisting á efri hæð hússins haft mikið að segja. Herbergin eru hvert öðru fallegra og í anda liðinna tíma í bland við nýtísku þægindi og notalegheit. Stofa hússins þykir hin glæsilegasta og þar stendur tíminn kjurr og gestir hverfa aftur um 100 ár eða svo þegar þangað kemur. Útsýnið er stórfenglegt og gott þykir að sitja á svölum hússins og virða fyrir sér það sem fyrir augu ber. Allt umhverfi hússins er orðin fallegt. Búið er að malbika götuna og rífa gamla húskofa, mála það sem þurfti að mála og girðingar settar til að stúka af lóðir hér í kring. Það er allt til fyrirmyndar enda hafa gestir haft það á orði í sumar hve umhverfið er að verða fallegt sem er alveg öfugt við það sem ferðamaðurinn hefur rekið augun í undanfarin ár.
Nú má segja að húsið sé að verða eins og lagt var upp með í upphafi. Allar hæðirnar eru nýttar á bestan hátt og eitt rekstrarformið vinnur með öðru. Hver eining verður þó að skila hagnaði og því verður að breyta áherslum eftir því hvernig vindar blása. Einarshúsið er einkarekstur eins og flestir vita en ekki opinber rekstur svo Vertinum er í sjálfs vald sett hvert stefnan er tekin og hefur engar skyldur aðrar en þær að gæta þess að skútan haldi sjó. Heppilegast er að hafa gistihúsið alltaf fullt af fólki því þar er hagkvæmasta rekstrareiningin og þá kemur það að sama skapi niður á opnunartíma Kjallarans því afar hljóðbært er í húsinu. Ekkert er við þessu að gera nema nýta sem best þá viðburði sem þar eru í boði í hvert og eitt skipti og gæta þess að mæta, í stað þess að sitja heima og nöldra yfir því hve lítið er um að vera í Kjallaranum þess á milli.
Núna á föstudaginn til að mynda, verða tónleikar þar sem tónlistarfólkið kemur alla leið frá Fljótsdalshéraði og eftir miðnættið stígur í fyrsta sinn í Bolungarvík á stokk hljómsveitin "Laufey og léttadrengirnir" en hana skipa stórgóðir tónlistarmenn héðan og þaðan af norðanverðum Vestfjörðum. Aðgangur á tónleikanna er 1000 krónur en frítt er inn á barinn eftir að þeim líkur fyrir þá sem vilja njóta þess að mæta á einn flottasta bar landsins í kjallaranum í Einarshúsi og hlusta á léttadrengina hennar Laufeyjar á stóra sviðinu.
Meira um þá vestfirsku hljómsveit síðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.8.2011 | 14:15
Æskuheimilið til sölu
Fallega æskuheimilið þar sem Vertinn í Víkinni sleit barnsskónum er nú falt fyrir rétt verð. Ástæða er auðvitað sú að hjarta foreldranna slær þar ekki lengur eftir að pabbi dó og mamma fór á skýlið. Húshljóðin sem voru svo notaleg heyrast ekki lengur, brakið sem barst um innviðina er hljóðnað og eftir situr þögnin ein sem er svo yfirgnæfandi og þung. Minningarnar um lífið í húsinu fylgja við hvert fótmál og lifa í hverjum krók og kima og skúmaskotin varðveita sögu uppvaxtaráranna. Skjólið sem Vertinn átti ætíð í foreldrahúsum er horfið og tíminn liðinn.
Húsið að Miðstræti 15 hefur að geyma tvær hæðir sem aðskildar eru með hringstiga. Uppi er lítið salerni, stofa og stórt svefnherbergi sem eitt sinn voru tvö en var síðan stækkað í eitt stórt. Gengið er út á svalir í suður á efri hæð. Á neðri hæðinni er eldhús, baðherbergi með sturtu og tvö herbergi. Úr öðru þeirra herbergja er gengið út á verönd og út í garð sem er gróinn en kominn í örlitla órækt. Þar uxu í denn hinar fágætustu jurtir og blóm sem hvergi í plássinu sáust annarsstaðar enda var mamma frumkvöðull í garðyrkju í Bolungarvík á þeim árum. Hún gat látið viðkvæmar jurtir dafna vel og lengi. Úti er geymsla, þvottahús og vísir að bílskúr. Þar geymdi pabbi hið fágæta " drasl sitt" og tókst með ágætum að fylla þær vistarverur af gagnlausum hlutum sem honum þótti afar verðmætir og til þess fallnir að geyma þar til yfir lauk. Það fylgir þó ekki húsinu nema þess sé óskað sérstaklega.
Elsti hluti hússins á Miðstræti 15 er hluti af elsta uppistandandi húsi Bolungarvíkur, byggt árið 1894 eða þar um bil. Þá tilheyrði það Ytri búðum en síðar Miðstræti 13. Pabbi bjó því á þremur stöðum um ævina en alltaf í sama húsinu þó. Seinna meir var byggt við húsið og það stækkað en segja má að það sé í raun elsta húsið í bænum. Húsið er á góðum stað og stutt í alla þjónustu.
Verðhugmynd er 8.5 milljónir króna og gefur títtnefnd allar nánari upplýsingar í síma 864-7901
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 635849
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm