Tónleikar í Einarshúsi

Arna og jón á fjalliHjónin Jón Ingi Arngrímsson og Arna S.D. Christiansen halda tónleika í Kjallaranum Einarshúsi næstkomandi föstudagskvöld. Þau eru hluti af hljómsveitinni Nefndinni sem starfað hefur nú í tæp 20 ár og gerir út frá Fljótsdalshéraði. Þau hjón hafa gert töluvert af því að koma fram tvö, og syngja þá við undirleik kassagítars og milli laga spjalla þau við fólk og segja léttar sögur í bland. Undanfarið hafa þau Jón Ingi og Arna aðallega sungið lög við ljóð Hákonar Aðalsteinssonar  á tónleikum sínum og munu þau ma. láta kveðskap hans óma  á tónleikunum á föstudagskvöldið í Einarshúsi.

Hljómsveitin Nefndin hefur gefið út 3 diska, en þeir eru  Frá báðum hliðum, sem inniheldur aðallega lög og texta af Austurlandi sem teygja sig aðeins til Færeyja,  Ljóð um þig, þar sem leikin eru lög og ljóð Bjartmars Guðlaugssonar  og Augnablik, en þar eru lög við ljóð Hákonar heitins Aðalsteinssonar, skálds og skógarbónda.  Einnig hefur Jón Ingi gefið út diskinn Þetta gengur ekki lengur, það eru aðallega lög og textar eftir hann sjálfan.

Tónleikarnir hefjast kl. 22:00 í Kjallaranum í Einarshúsi á föstudagskvöldið og aðgangseyrir er 1000 krónur.


Sumarið er tíminn

Reksturinn í Einarshúsi er nú kominn á fullt skrið enda 
ferðamannatímabilið að hefjast. Þó nokkur gestagangur  hefur verið 
undanfarnar vikur og hafa sjóstangaveiðimenn verið tíðir gestir í mat 
og drykk. Opið verður alla daga vikunnar í sumar og á matseðli verður 
boðið upp á fiskrétti í bland við kjötrétti og hrefnukjöt sem hefur 
slegið í gegn á matseðlinum það sem af er sumri. Einnig verður hægt að 
fá hinar guðdómlegu vöfflur völusteins auk hnallþóra af ýmslu tagi með 
kaffinu.

Gistiheimili var opnað á efstu hæð hússins í vor en þar eru fimm 
herbergi með handlaug og glæsilegri setustofu þar sem hægt verður að 
njóta anda liðinna tíma. Öll endurgerð hússins hefur miðast við að 
halda í gamla tíma og varðveita söguna og um þessar mundir er verið að 
vinna að sögusýningu um íbúa Einarshúss og stefnt er að því að fyrsti 
hluti hennar verði tilbúinn innan skamms en það eru myndir af vinnufólki sem príða munu veggina á efstu hæðinni.

Í sumar verður opið sem hér segir:

Mánudaga til föstudaga 11:00-23:00
Laugardaga 13:00 - 03:00
Sunnudaga 13:00 - 22:00


Elsku pabbi

         Kveðja

PDFPrentaTölvupóstur

Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni
veki þig með sól að morgni.
pabbi_smamynd.jpg

Drottinn minn faðir lífsins ljóss
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert, mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni
þú vekur hann með sól að morgni.

Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni
vekja hann með sól að morgni.

Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd.
Og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni
svo vaknar hann með sól að morgni.

Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.

Svo vöknum við með sól að morgni
svo vöknum við með sól að morgni.

Texti: Bubbi Mortens


Gisting við Grjóthrun

Gistingin er til reiðu í Einarhúsi eins og til stóð. Allir hinir háu herrar sem taka út leyfi til slíks rekstrar hafa gefið grænt ljós og blessað húsið í bak og fyrir.  Uppábúin rúm eru í öllum herbergjum. Verðin eru sanngjörn að mati Vertsins og í raun frekar ódýr ef miðað er við hve glæsilegt húsið er orðið.

Eins manns herbergi  7700,-

Tveggja manna herbergi 9900,-

Þriggja manna herbergi 11800,-

Morgunverður kl. 1300,-

10% afsláttur veittur ef gist er þrjár nætur eða lengur

Í Kjallara hússins er ölkrá. Þar verða miðnæturtónleikar á miðnætti á föstudaginn langa er Grjóthrun í Hólshreppi stígur á stokk og leikur og syngur fram eftir nóttu. Einnig verður kráin opin á laugardagskvöld til kl . 03:00. Það er frekar hljóðbært í húsinu svo þessir tónleikar gætu hugsanlega truflað nætursvefn hjá þeim sem ætla snemma að sofa.


Sætaferðir á "Aldrei fór ég suður" til og frá Einarshúsi

Sætaferðir verða til og frá Einarshúsi á "Aldrei fór ég suður" um páskana.

Fimmtudag 21. apríl

Uppistand og tónleikar í Krúsinni kl. 22:00-24:00 / húsið opnar kl. 21:00

Farið frá Einarshúsi kl.  21:00

Farið frá Krúsinni 24:00

Föstudag 22. apríl

Þá hefst dagskrá í KNH húsinu kl. 20:00 og henni líkur kl. 01:00

Farið frá Einarshúsi kl: 19:30 - 20:30 

Farið frá hátíðinni kl. 00:00 og 01:00

Laugardag 23. apríl

Þá hefst dagská í KNH húsinu kl. 18:00 og henni  líkur kl. 01:00

Farið frá Einarshúsi kl. 17:30 og 18:30

Farið frá hátíðinni kl. 00:00 og 01:00

Tíðari ferðir verða í boði ef þurfa þykir. það er Valdimar Lúðvík Gíslason sem verður með sætaferðirnar en hann er í síma 892-1417 begin_of_the_skype_highlighting              892-1417      end_of_the_skype_highlighting


gisting-gistin-gisting

Gistingin fer að verða tilbúin á efri hæð Einarshúss þar sem saga harma og hamingju marrar í hverri fjöl og útsýnið það besta í heimi. Hægt verður að leiga herbergi um páska og endilega látið fagnaðarerindi berast. Allar upplýsingar í síma 456-7901 & 864-7901

 


Til athugunar fyrir gáfnaljós

Eyþór Bjarnason Sólbergssonar er spyrill í Kjallarakeppni næstkomandi laugardagskvöld. Hann er bráðgáfaður og mjög vel að sér í vel flestu. Keppnin byrjar kl. 22:30 og kolamolinn verður á kostakjörum allt kvöldið. Ekki vera feimin við að láta þetta berast.

Doktor Finnbogi - ekki bara á fimmtudögum

Það hefur borið við undanfarna mánuði á hverjum fimmtudegi og konurnar í þorpinu hafa orðið eins og nýútsprungnar rósir og margar þeirra sem alla jafna líta út eins og óumbúin rúm, hafa skartað sínu fegursta. Glöggt mátti sjá fatastílinn sparilegan og hárið uppsett svo ekki sé talað um skrautmálninguna í andlitum kvennanna á besta aldrinum í bænum. Vertinum brá heldur betur í brún svona fyrst í stað þegar skælbrosandi kvensur sem alla jafna brosa ekki til títtnefndrar eða bara brosa ekki yfirleitt, gátu ekki leynt kátínu sinni yfir hinu guðdómlega lífi, já hér á hjara veraldar og brostu svo út í bæði munnvik að annað eins hafði varla sést.

Þegar margumtöluð fór að grennslast fyrir um hvað lægi í loftinu hvern fimmtudag kom það í ljós að læknirinn, Finnbogi, sem kemur alltaf á heilsugæslustöðina á fimmtudögum væri valdur að þessum breytingum hjá kvenþjóð bæjarins vikulega. Varla voru þessar konur komnar út úr læknaviðtalinu blóðrauðar í vöngum, þegar þær fóru að upphugsa hvaða kvillar gætu verið að angra þær næsta fimmtudag svo hægt væri að panta tíma strax í bítið og fá þennan bráðhuggulega lækni til að gefa þeim læknisráð sem dygðu eitthvað fram í vikuna en alls ekki lengur en það.

Það vill nú svo til að Vertinn er alla jafna mjög hraust og þarf yfirleitt aldrei eða sjaldan að fara til læknis, fór að finna fyrir allskonar ójafnvægi  innvortis í framhaldinu, aðallega andlegum einkennum sem komu hugarástandinu úr jafnvægi. Brátt fór allt að snúast um þennan sjúkleika, fyrir utan það að éta að sjálfsögðu og því varð  það brýnasta málið að komast til læknis til að fá pillur eða eitthvað. Ekki var hægt að fara til hvaða læknis sem er því  á mánudögum var einhver læknir starfandi á heilsugæslunni sem betur hefði lært bifvélavirkjun, á þriðjudögum var einhver sem sendi alla inn á Ísafjörð til læknis og á miðvikudögum var einhver sem sendi bara alla í sund svo það var vita mál að Vertinn yrði að fara á fimmtudegi til Finnboga og fá lækningu og bót meina sinna.

Þá fór að vandast málið því það var bara aldrei hægt að fá tíma á fimmtudögum hjá Finnboga svo þetta var bara sjálfhætt. Allur óstöðugleiki varð því að hætta af sjálfu sér og jafnvægi náðist í kroppinn á ný og engar pillur og mixtúrur þurfti til að lækna þennan óáran enda hvarf hann eins og dögg fyrir sólu með hækkandi sól, versnandi gengi og icesave.

Samt sem áður hefur títtnefndri tekist að snara doktorinn og geymir nú prívat símanúmer hans eins og sjáaldur augans. Það kemur þó einungis til af því að hann ætlar að koma í Einarshús á prjónakvöld við gott tækifæri og tala um kvennakvilla og það á miðvikudegi. Þar ætlar hann að hita upp fyrir fimmtudagsviðtölin og jafnvel létta ögn álagið en það er auðvitað viss hagræðing í því að geta jafnvel læknað margar í einu. Konur eru því beðnar að gera sig klárar og finna einhverja krassandi sjúkdóma fyrir doktorinn og leita svara við þeim spurningum sem brenna á bolvískum kvensum þá stundina.

 

 


Eftir kútmaga

Kútmagakvöldið gekk alveg glimrandi og var æðislegt í alla staði. Vertinn trauð reyndar fleirum í sæti en í raun rúmast í húsinu en allir komust fyrir engu að síður enda virðist húsið laga sig að öllum þeim sem vilja koma. Karlarnir átu þvílíkt og annað eins enda var maturinn einn sá besti sem hægt er að hugsa sér að fá á svona kvöldi og eldhúsið iðaði af lífi meistarakokka. Halldór Halldórsson stóð sig með stakri prýði í veislustjórn og karlarnir skemmtu sér hið besta. Frekari samvinna Magga Hauks í Tjöruhúsinu og hans einvalalliðs verður í framhaldinu og annað kútmagakvöld bæði karla og kvenna er fyrirhugað í næsta mánuði svo það er svo sannarlega til einhvers að hlakka. Þá munu borð svigna undan dýrðarkrásum og allt verður eins og blómstrið eina.....

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 635848

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband