15.12.2011 | 23:39
Dagur 30 - fimmtdagur
Það var eins og við mátti búast að orkan vaknaði ekki með Vertinum í dag enda engir sterar með morgunmatnum. Því var lífinu tekið með ró. Sem betur fer er alltaf hægt að grípa í prjónana til að hafa eitthvað fyrir stafni. Svo þarf að svara fullt af bréfum og senda bréf hingað og þangað því lífið heldur áfram og við verðum að halda dampi þó svo að mér hafi verið kippt út úr hringiðunni um stund.
Heddý húsfrú í Enniskoti og tengdamamma Andra kom með box fullt af smákökum því ég á sko alls ekki að svelta hér fyrir sunnan eins og hér hefur oft komið fram.
Lyfjagjöf á morgun og ég þarf að útrétta eitt og annað í leiðinni en það á að vera í lagi því ég fæ sterana mína í fyrramálið svo ég ætti að vera hress og kát.
Heyrumst á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.12.2011 | 23:08
Dagur 29 - miðvikudagur
Eftir 10 steratöflur sem ég tók í morgunsárið fannst mér ég eiga allan heiminn. Hugurinn bar mig hálfa leið upp í Esju og ég er búin að vera full af orku í allan dag. Fór í bíltúr og ók Laugaveginn og allt hvað eina og forðast rúmið eins og heitan eldinn. Undir kvöld var ég þó farin að þreytast eins og gengur og það er aðallega bakið sem er þreytandi.
Eina aukaverkun af lyfjunum hefur algjörlega hundsað mig en ég átti að finna fyrir lystarleysi og það var mjög jákvætt að mínu mati í öllu þessu ferli. Ég ét þó örugglega eins og meðaltrukkabílstjóri og virðist sísvöng þessa dagana og grennist því lítið sem ekkert fyrir vikið. Það er þó ekkert til að hafa áhyggjur af held ég og nægur tími til að hugsa um það síðar. Hárið virðist enn sitja fast og hárlos ekkert plagað mig síðan þarna um daginn svo kannski tollir það bara á toppstykkinu allt til enda.
Ég skrifaði mömmu jólabréfið í dag og þá meyrnaði Vertinn heldur betur og allar flóðgáttir opnuðust og ég grét yfir því að geta ekki heimsótt hana um jólin og hún yrði ein og að pabbi væri farinn og allt það.
Aldrei hef ég grátið yfir eigin ástandi nema rétt fyrst þegar ég fékk fréttirnar af veikindunum en þá varð ég auðvitað að tilkynna börnunum mínum hvernig ástatt væri fyrir mér og þá grét Elsa pínulítið og mér fannst ég verða að vera sterk fyrir hana en þegar ég hringdi í Andra varð ég auðvitað að grenja fyrir hann en hann kann nú lagið á grenjandi kerlingum og róaði mig niður. Jón Bjarni þurfti síðan að segja Lilju frá þessu þar sem hún lá fárveik á spítalanum og það var ekkert auðvelt og hún varð auðvitað leið yfir þessu öllu eins og allir aðrir. Svo eftir því sem maður veit meira um sjúdóminn og veit hve vel lyfameðferðin fer í mig verður þetta allt í lagi.
Svo þegar ég var rétt búin að jafna mig á bréfinu til mömmu frétti ég að Lionsmenn heima ætluðu að styðja okkur og þá varð ég að gráta ögn meira yfir góðmennsku þeirra okkur til handa. Lögreglufélag Vestfjarða hefur líka stutt okkur í þessari baráttu og ég veit eiginlega ekkert hvað ég á að segja. Ég bjóst aldrei við þessu og er full þakklætis.
Dagurinn í dag er semsagt búinn að vera mjög góður, búin að hlæja og fíflast og gráta og anda að mér frísku lofti, gera grín að tengdó og allt hvað eina. Prjóna og éta, hitta krakkana mína, heyra í Írisi fyrrum lækni heima sem tilkynnti koma fjölskyldunnar í janúar svo ég hef nægan tíma til undirbúnings. Svo þið sjáið það að þetta er allt í fína.
Ég fæ reyndar enga stera aftur fyrr en á föstudaginn fyrir næstu lyfjagjöf svo búast má við að ég verði aðeins orkuminni á morgun en það kemur í ljós.
Kveðjur til allra og heyrumst á morgun
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.12.2011 | 22:32
Dagur 28 - þriðjudagur
Vertinn var mætt tímanlega í blóðtöku í morgun klukkan átta og það tókst að ná einhverju blóði í sýnatökuhulstrin þrátt fyrir það að það rynni ansi hægt. Ég komst að því í morgun að lyfjabrunnurinn minn fíni verður ekki notaður til að taka blóð nema nauðsyn beri til svo það kemur til með að þurfa að stinga mig með reglulegu millibili.
Gleðiglundrinu var dælt í gegnum lyfjabrunninn og þrátt fyrir að svæðið þar sé bólgið og svoldið aumt ennþá var það allt annað að þurfa ekki að láta þræða nálina upp handlegginn í viðbót við hitt. Svo brunnurinn er til mikilla bóta. Ég fékk bæði lyfin í dag og það tekur svona tvo til þrjá tíma allt í allt. Ég fæ hefðbundin krabbameinslyf og lyf sem sérstaklega virka á mínu meini í annað hvert skipti og svo fæ ég bara mitt lyf við merfrumimeininu þess á milli og það tekur stutta stund og er farið að gefa undir húð. Ég ligg bara með öðrum sem eru í lyfjagjöf í rafstýrðum hægindastól sem hægt er að stilla á alla kanta, við reyndar sitjum ekki öll í sama stólnum svo enginn haldi það. Ég dormaði bara og prjónaði þess á milli og svo fór ég bara heim og var ágæt framan af degi. Þá fór ég að verða hálfslöpp og fékk hausverk sem hangið hefur í allan dag en ég fékk engan hita og það er sko gott. Vonandi helst það. Ég hef mest megnis haldið mig við rúmið enda hálf heilsulaus í annað þennan dyntinn.
Guðmundur læknir minnkaði ekkert lyfjaskammtinn eins og ég kannski hélt hann myndi gera, heldur lét mig fá steratöflur til viðbótar sem ég tek meðan ég er á lyfjameðferðinni og ógleðilslyf svo ég þurfi ekki að kasta upp. Jón Bjarni heldur utan um lyfjagjafir og er að verða færari en lyfjafræðingur í þeim efnum enda eins gott því ég gæti ruglað þessu öllu saman. Ég fer næst í lyfjagjöf á föstudag, aftur á næsta þriðjudag og enda á Þorláksmessu og þá á ég að vera komin í 10 daga frí.
Lilja og Jón Bjarni eru byrjuð að pakka inn jólagjöfunum sem eiga að sendast hingað og þangað á meðan Elsa sekkur sér ofan í skólabækurnar en hún fer í lokaprófið á föstudaginn og fljótlega eftir það ætla þau vestur að ná í vistir. Andri á þá frí í vinnunni og ætlar að passa upp á mömmu sína ef eitthvað kemur uppá.
Ekkert að plaga mig sérstakt semsagt þessa stundina og allt er enn í orden.
Heyrumst á morgun
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.12.2011 | 22:42
Dagur 27 - mánudagur
Þetta er búinn að vera tíðindalítill dagur. Hinn og þessi rekið inn nefið og Vertinn haldið sínu striki í prjónaskapnum og lagt sig þess á milli. Fór í Hagkaup í kvöld til að sjá hvort ég gæti ekki keypt einhverjar jólagjafir en þreyttist svo fljótt í bakinu að ég varð að fara heim eftir tíu mínútur. Það er af sem áður var þegar títtnefnd gat gengið stórmarkaði þvera og endilanga og þreyttist aldrei. Þetta mun þó allt lagast með tíð og tíma.
Ég fer í gleðiglundrið klukkan átta í fyrramálið, fer í blóðprufu og hitti Guðmund lækni. Þá byrjar 11 daga törn og ég rétt næ að klára fyrir jól sem verður gott.
Læt í mér heyra aftur á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.12.2011 | 23:46
Dagur 26 - sunnudagur
Vertinn er nánast búin að vera betri en nýr í dag og öll að koma til. Búin að taka plásturinn frá skurðinum mínum og þetta lítur allt vel út. Ég finn fyrir stykkinu fyrir innan húðina og það er bara töff. Morgundagurinn er síðasti dagurinn áður en ég fer í næstu lyfjameðferð svo ég ætla að reyna að nýta hann aðeins og ganga frá jólagjöfum og þess háttar. Jólin koma þrátt fyrir allt svo það er eins gott að reyna að undirbúa sig eitthvað þegar maður hefur heilsu til. Annars þá getur vel verið að ég verði bara hress og kát það sem eftir er og ég held í þá von að svo verði.
Við fórum öll í glæsilegt matarboð til Auðar og Kidda og það var sko reglulega gaman og gott að lyfta sér aðeins upp. Þar át maður svo sannarlega á sig gat svo þið sjáið það að ég lifi eins og blóm í eggi.
Það er trúlega uppúr miðjum október sem ég fer að finna fyrir óþægindum í baki og fór að hætta að geta gert einföldustu verk. Það að klæða sig, fara í sturtu, fara fram úr rúminu og þess háttar auðveldar athafnir voru orðnar erfiðar og ég skildi ekki af hverju. Snúa sér í rúminu og lyfta sér upp og eitthvað svoleiðis skítauðvelt stöff var mér bara svo sérkennilega erfitt. Við vorum alveg endalaus að reyna að finna skýringar á þessu og Jón Bjarni fór að leggja ofuráherslu á að draga mig í langa göngutúra, jafnvel hálfgerðar fjallgöngur upp á Óshyrnu. Ég lagði kókosbollukúrinn á hilluna því ég þóttist viss um að aukakílóin væru að sliga títtnefnda. Rætt var um að ég hætti að ganga á háhæluðu og hætti að prjóna og bara allt var fundið til svo hægt væri að laga þessa farlama kerlingu sem funkeraði lítið sem ekkert. Mér tókst þó að gera eitt og annað þar til ég gat ekki meir. Svo kom auðvitað skíringin á þessu öllu saman þegar upp komst að ég var eiginlega hryggbrotinn á tveimur stöðum svo þetta var allt eðlilegt.
Við erum að reyna að skrá niður sjúkrasögu mína og auðvitað sjúkrasögu Lilju í leiðinni en hún er búin að vera mjög veik á meðgöngunni og hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna ofþornunar en við lágum eina nótt saman á sjúkrahúsinu á Ísafirði svo Jón Bjarni þyrfti ekki að vera að sinna okkur báðum á tveimur stöðum. Þetta er í rauninni búið að vera eins og í lygasögu og ennþá er Lilja veik svo dögum skiptir en við höldum í vonina að það fari að lagast enda á hún það alveg skilið
Að öðru leiti er ég öll að koma til og himinlifandi með daginn í dag
Vildi bara aðeins láta í mér heyra
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.12.2011 | 22:04
Dagur 25 - laugardagur
Það sem er ekki stjanað við títtnefnda þessa dagana. Tengdó og Jón sjá sko örugglega til þess að Vertinn hafi það náðugt. Ég má hvorki þvo né elda mat né bara gera það sem eðlilegt þykir á bestu bæjum. Auðvitað kvarta ég ekki því þá get ég prjónað eða bloggað eða bara lagt mig, horft á sjónvarpið eða bara hvað sem er.
Svo eru líka fjölmargir sem passa upp á það að ég fái nóg að borða og mættu Áslaug og Mæja bekkjarsystur mínar með stóran konfektkassa í dag og það var svo gaman að fá þær í heimsókn. Sigga konan hans Gísla frænda kom með nýbakaðar flatkökur og svo er Auður systir búin að bjóða okkur í mat á morgun svo þið sjáið það að það leggjast allir á eitt að skaffa mér æti. Andri og Þórunn eiga það líka gjarnan til að mæta með kjötsúpu eða eitthvað annað kjarngott úr sveitinni fyrir okkur svo það er ekki hægt að segja annað en að vel sé hugsað um mig hér syðra.
Ég er búin að vera góð í dag, var að klára peysuna sem ég byrjaði á fyrir viku síðan og verð ég því að finna mér annað verkefni hið bráðasta. Eina sem plagar mig er smá þreytuverkur í bakinu annað veifið og þá hvíli ég mig bara og bryð verkjatöflur, það er ekkert að því. Ég má víst aldeilis vera heppin að vera orðin þetta góð á ekki lengri tíma.
Plásturinn frá sárinu eftir drenlögnina má ég taka á morgun og þá má ég einnig fara í sturtu svo þið sjáið það að allt er að komast í fastar skorður. Það er auðvitað lúxus að geta þrifið sig svona endrum og eins.
Glöggt má því sjá að ég hef það gott og hef ekki undan neinu að kvarta
Alltílæbless - í bili
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.12.2011 | 21:30
Dagur 24 - föstudagur
Vertinn glaðvaknaði kl. sjö og mátti til með að fara í sturtu á fastandi maga. Um klukkutíma síðar var ég mætt á lansann tilbúin í stálísetninguna eða drenlögnina sem fest var á viðbeinið vinstra megin rétt fyrir ofan brjóstið. Ég fór fram á það við svæfingarlækninn að fá að sofna létt og dreyma að ég væri stödd á sólarströnd með volgan sjóinn við tærnar með með ískalt appelsín mér við hlið og hann reyndi að gera það sem hann gat í þeim efnum amk. hætti ég að vita af mér þegar búið var að staðdeyfa svæðið og í þann veginn og hinn færi skurðlæknir tók upp hnífinn og hóf sína vinnu.
Það er reyndar búið að eyðileggja þann draum fyrir títtnefndri að hún leggi mótelstörf fyrir sig í framtíðinni því skurðurinn er hátt í 10 sentímetra langur og liggur þvert á bringuna en það stóð svosem ekkert til að fara út á módelmarkaðinn úr þessu. Þetta stáldren mun auðvelda allar nálastungur héðan í frá svo þetta á eftir að vera mikið til bóta.
Ég fékk með mér passa til að hafa tiltækan ef ég fer til útlanda með drenið í mér því allt mun pípa í hliðinu er ég geng í gegn með stálið innanborðs svo það er vissara að hafa eitthvað í höndunum sem skýrir það.
Hárið er byrjað að losna svo ég vænti þess að enda í háhöfuðhártískunni áður en yfir líkur, nauðasköllótt en það vex aftur. Ég fæ mér bara einhvern fallegan hatt eða annað höfuðfat eða læt bara vindinn nauða um skallann, við sjáum til.
Ég er búin að vera bara við rúmið í dag að jafna mig. Ekkert að hrjá mig nema leti svo það er allt í lukkunar velstandi.
Heyrumst á morgun
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.12.2011 | 22:58
Dagur 23 - fimmtudagur
Dagurinn hófst á ferð á fósturgreiningardeildina þar sem Lilja ljósberi fékk að sjá litla ljósið sem hún ber undir belti. Þar var allt í sómanum og allt eðlilegt og ekki var annað að sjá en að blessað barnið líktist mér, amk. var það einstaklega fallegt hvað sem á það er litið og mikil ró og værð hvíldi yfir litla krílinu. Við systurnar verðum báðar ömmur á árinu en Auður fær sitt fyrsta barnabarn í janúar en ég í júní svo það er bara gleðiefni. Lilja og Anton eru reyndar ansi ung en þau eiga eftir að spjara sig með góðri hjálp.
Eftir hádegið fór ég síðan í blóðprufu því ég fer í stálígræðsluna í fyrramálið kl. átta og þeim þótti alveg tilvalið að stinga mig örlítið svona í síðasta sinn. Ég verð nokkuð kát þegar sú aðgerð verður búin en þetta verður reyndar bara pís of keik eins og allt annað.
Ég er farinn að geta gengið nánast óstudd um allt og nota göngugrindina mína svona aðallega undir fötin mín, enda ætlaði ég ekkert að nota hana, því ég get verið þrjóskari en andskotinn sjálfur þegar þannig viðrar. Grindin mun þó verða heima ef eitthvað kemur uppá.
Dagurinn í dag semsagt búinn að vera mjög góður þó ég geri varla nokkurn skapaðan hlut. Fór reyndar í Mjóddina í garnbúð svona rétt til að skoða. Ég keypti ekkert en Andri keypti garn í peysuna sem hann er að prjóna.
Elsa lögfræðineminn einbeitir sér algjörlega að lærdómnum en stórt próf bíður handan hornsins og því fer afar lítið fyrir henni.
Jón er kominn í hlaupahóp í Hafnarfirði með krökkunum og hleypur þar þrisvar í viku. Það er sérdeilis fínt.
Held ég fari bara að sofa svo ég verði útsofin fyrir aðgerðina á morgun
Heyrums síðar
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2011 | 22:04
Dagur 22 - miðvikudagur
Leið eins og Þyrnirós þegar ég vaknaði enda er ég farin að sofa eins og engill. Farinn að geta snúið mér á alla kanta í rúminu og ég veit ekki hvað. Þegar ég hugsa til baka þá átta ég mig á því að það var æði margt sem ég var bara algjörlega hætt að geta gert og fann ég allskyns ástæður fyrir því sem auðvitað áttu ekki við nein rök að styðjast því þá var sjúkdómurinn farinn að láta á sér kræla.
Ég fékk slökunarnuddið í dag og það var alveg ljómandi gott, lét hana klippa á mér táneglurnar í leiðinni og er því eins og ný til fótanna. Annars stjana allir við mig sem mest þeir mega, svo segja má að ég hafi þjóna á hverjum fingri.
Að öðru leiti hefur þetta verið átakalaus dagur, hef setið og prjónað og borðað og lagt mig inn á milli svo lífið er ljúft og gott.
Vildi bara aðeins láta í mér heyra
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.12.2011 | 00:24
Dagur 21 - þriðjudagur
Líðanin í dag mjög góð. Ég þreytist auðvitið í bakinu og þarf að hvíla mig á milli. Svo geng ég frá eldhúsglugganum í áttina að stofuglugganum og tek nokkra góða spretti kringum stofuborðið en annars gengur þetta allt nokkuð smurt.
Ég á að fara í stálígræðsluna á föstudaginn og í undirbúning fyrir hana á fimmtudaginn. Það verður fínt að klára það. Það er létt svæfing og smá skurður þar sem slanga verður þrædd upp í æð og stálstykkinu komið fyrir og það á örugglega eftir að ganga allt vel. Engar stungur meira á meðferðinni sem er mikið gleðiefni. Mig hlakkar ekkert til en kvíður heldur ekki fyrir.
Að öðru leiti þá get ég prjónað af mikilli áfergju og vænta má þess að stingandi jólagjafir verði í jólapökkunum í ár.
Sigga nuddari mágkona mömmu er búin að bjóða mér í slökunarnudd á morgun og þangað ætla ég og láta hana stjana við mig.
Svo fer ég með Lilju ljósbera í mæðraskoðun á fimmtudaginn og það verður gaman að sjá tilvonandi ömmubarnið í sónarnum. Næsta vor þegar ég verð orðin alheilbrigð mun að öllu óbreyttu fæðast lítill ljósgeisli í fjölskylduna svo það er æðibjart við endann á göngunum.
Ég neita því ekki að ég sakna þess að komast ekki heim, sérstaklega til að heimsækja mömmu en vegna þess að hún heyrir svo illa er ekki hægt að hringja í hana til að spjalla svo ég get ekki einu sinni heyrt röddina í kellingunni minni, en ég veit að það er vel hugsað um hana á Skýlinu. Jón Bjarni, Elsa og Lilja eiga þó eftir að kíkja vestur fyrir jólin og ná í föt og annað því farið var í þeim fötum sem við stóðum í og þá munu þau líta til hennar. Ég mun vera hér heima og passa uppá mig eins vel og get.
Heyrumst betur á morgun
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm