30.12.2011 | 00:44
Gleðilega rest
Vertinum skilst að það sé víst fyrir margt löngu kominn tími á blogg því frásagnir af sjúkrasögu títtnefndrar hefur legið í dvala undanfarið og einn og annar verið að kvarta undan tíðindalitlum æsifrásögnum af hægðartregðu og öðrum óáran. Þetta bloggleysi er auðvitað leti um að kenna fyrst og fremst og engu öðru eða því sem næst. Konfektát, sjónvarpsgláp og prjónaskapur hefur þó þurft sinn tíma og smá lúrar inn á milli til að jafna þrótt og þrek sem er stundum er minna en meira. Ég get vaknað hin hressasta og rokið upp í morgunmat og látið eins og ég sé alheilbrigð og svo þarf ég að leggja mig í framhaldinu eins og hver annar kramaraumingi en það er bara eins og gengur.
Ég get sofið allar nætur eins og þyrnirós, hreyfi mig ekki jafnmikið og áður á nóttunni og ligg eins og skata í sömu stellingunni þar til ég vakna til að snúa mér við og það gengur alveg átakalaust fyrir sig. Hér áður fyrr var ég á stöðugri hreyfingu allar nætur og oftar en ekki var náttkjóllinn svo umsnúinn utan um skrokkinn þegar ég vaknaði að ég náði varla andanum og það var meiriháttar mál að greiða úr náttkjólaflækjunni en nú hefst þetta með hægðinni.
Ég tók upp á því að fá kvef en hér fyrr "sönnan" eru bara allir með kvef svo það væri hinsegin ef ég gripi það ekki glóðvolgt en það virðist þó ætla að vera til friðs enda engin ástæða til að ætla annars. Ég hristi það af mér eins og allt annað.
Hér er allt á kafi í snjó og allt hvítt og fallegt um að litast, bílar festast með reglulegu millibili í innkeyrslunni að blokkinni en það er auðvitað eins og við er að búast í höfuðborginni. Þetta virðist vera óskapleg snjóakista hérna núna amk en jólalegt og fallegt.
Andri fór norður í land til kærustunnar og Lilja fór vestur á firði til kærastans svo svo við erum bara fjögur heima núna. Loksins þegar við erum hér með krökkunum fyrir sunnan þá fara þau út og suður en það er bara fínt, það eiga allir að fá að gera það sem þeim langar til. Það eru mikil rólegheit svífandi yfir vötnunum á bænum enda engin ástæða til annars en að taka lífinu með ró.
Strax á nýju ári hefst lyfjameðferðin á ný og ég vonast til að komast í heim í næsta "fríi" en það er alveg kominn tími á það. Svo verður í framhaldinu farið að safna stofnfrumum í gríð og erg til að eiga í handraðanum þegar þar að kemur.
Annars þá fór ég í bíó í kvöld og sá eitt af mínum uppáhaldsævintýrum um Tinna og það var ekki leiðinlegt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
25.12.2011 | 13:14
Dagur 39 - aðfangadagur
Þetta var einn besti dagurinn minn í langan tíma og ég var hin hressasta allan daginn, var reyndar á mínum steraskammti sem hjálpaði kannski eitthvað en samt þá er allt í áttina. Reyndi að vera til aðstoðar eins og mér var frekast unnt en fékk ný reyndar lítið að gera enda nægar hendur til að hjálpast að. Jólin komu með öllum sínum hefðbundna hátíðleik og það var allt eins og blómstrið eina eins og venjulega. Jólin koma alltaf á sínum tíma Við fjölskyldan vorum öll saman og það var það sem máli skiptir. Þórunn var í sinni sveit og Anton heima hjá sér fyrir vestan. Fékk fullt af jólagjöfum og kveðjum með góðum óskum.
Bakið er bara að vera nokkuð gott og ég er í raun alveg forundran yfir því hve góð ég er orðin miðað við allt. Ég er auðvitað á allskonar verkjalyfjum ennþá og á orðið heilt apótek hér í einum eldhússkápnum og finnst það nú vera fullmikið á köflum því ég hef ekki takið nein lyf að neinu ráði allt mitt líf. Ég reyni þó að minnka lyfin mín eins og frekast er kostur eftir því sem ég verð betri og betri og það gengur bara fínt. Þegar maður stendur í svona veikindum fær maður endalaust af pillum til brúka við hinum og þessum pillum og svo mallast þetta allt saman í belgnum og svo er það extra plús ef þetta skilar sér eftir eðlilegum leiðum á endanum.
Ég átti semsagt frábæran aðfangadag
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.12.2011 | 12:31
Dagur 38 - þorláksmessa
Síðasta sprauta þessarar meðferðar rataði beint í belginn í morgun og það var létt verk. Guðmundur læknir kallaði okkur inn á fund og þar kom í ljós að meðferðin gengur vonum framar og þessar óæskilegu frumur hafa tekið sig saman og bara horfið eða eru komnar niður að núlli á ný eins og í eðlilegri manneskju. Það eru vissulegar gleðifréttir og mun þetta stytta meðferðina mína svo búast má við að ég taki allt í allt fjórar lyfjameðferðir í stað sex, fyrir stofnfrumumeðferðina, eins og lagt var upp með í upphafi. Því mun ég væntanlega tækla mig fyrr í gegnum þetta en áætlað var í upphafi. Þetta getur svo auðvitað skotið upp kollinum aftur og aftur og þá verður bara að vona að ég bregðist eins vel við og núna og haldi sama dampi og ég hef gert. Mergfrumuskipti eru auðvitað svo inni í myndinni en þá fengi ég frumur úr mér skyldum eða úr mergfrumubanka erlendis en það er seinni tíma umhugsunarefni en ég er það ung að það er vel inn í myndinni ef í harðbakkann slær.
Beinbyggingarefnið sem ég fæ í æð á fjögra vikna fresti, dregur þú úr kalkinu í líkamanum og því þarf að bæta við það í fríinu mínu núna um jólin svo ég verði ekki eins slöpp og ég hef verið annað slagið. Annars er gott jafnvægi í öllum öðrum líkamsbúskap. Hvítu blóðkornin eru nægjanleg og allt í gúddí.
Ég er gríðarlega heppin að þetta skyldi uppgötvast þó þetta snemma, því hjá sumum kemur sjúkdómurinn ekki í ljós fyrr en fólk er orðið lamað og bakið jafnvel allt fallið saman og þá er erfitt að byggja það upp á ný eins og verið er að gera hjá mér. Það virðist miserfitt að greina þetta í fólki eftir því hvar mótefnið myndast í frumunum.
Ég mun þó verða veikari í baki það sem eftir er og verð að haga mínu lífi í samræmi við það í framtíðinni sem er auðvitað alveg nýtt fyrir mér eða þannig. Eftir á að hyggja þá er ég trúlega löngu farin að hlífa mér að einhverju leiti, trúlega vegna þessa sjúkdóms míns sem getur hafa blundað í mér í mörg ár en nær sér ekki alveg á strik fyrr en á haustmánuðum. Ég var fyrir margt löngu hætt að sveifla bjórkútunum í kringum mig eins og hverju öðru smottreýi í Kjallaranum og eitt og annað sem var farið að segja til sín en ég hélt það væri aldurinn, en ég hélt líka að ég væri ennþá 18 svo þetta var svoldið snúið á köflum.
Fór í skötuveislu til Hrefnu mágkonu og Bigga og það var æðislegt að fá smakk af vestfirsku skötunni. Kom við hjá Auði og Kidda með pakkana en það er nýstárlegt að hitta fjölskylduna sína hér fyrir sunnan á þessum tíma og það er bara mjög gaman. Gaui er duglegur að hitta mömmu og stendur sig þar með prýði og sér um hana vel og vandlega með krökkunum sínum en það eru vissulega miklar breytingar hjá mörgum þessi jólin en það koma önnur jól eftir þessi.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.12.2011 | 01:22
Dagur 37 - fimmtudagur
Dagurinn í dag hófst með hefðbundinni upprisu eins og flestir aðrir dagar, ég er svosem ekkert að rísa upp á þriðja degi líkt og frelsarinn, heldur kýs ég að gera það svona dags daglega dags og er bara glöð með það. Ekkert tiltakanlega spræk og frekar þróttlaus enda engir sterar til að halda mér almennilega uppi en það er svona. Ég verð hressari á morgun því ég fæ allar hugsanlegar töflur til að halda dampi og lyf beint í vömbina í fyrramálið. Það verður fljótgert.
Ég þjösnaði Jóni í smá verslunarferð og var orðin fullþreytt og hef legið í rúminu síðan seinnipartinn. Ég verð auðvitað að gæta mín á köflum en ætla mér auðvitað aðeins um of stundum enda kerling sem hef stjórnað heilum her af mikilli röggsemi svo lengi sem elstu menn muna og því erfitt að þurfa að gæta aðsér en það lærist með tíð og tíma.
Við rákumst á Kristinn H. í Kringlunni og drukkum með honum kaffi á kaffitári en hann er einn af fjárhirðunum í Einarshúsi eða bókari og hefur verið okkur innan handar undanfarið við að endurskipuleggja reksturinn og þar var slegið upp stjórnarfundi eins og ekkert væri og öll vandræði leyst á einu bretti. Það var mjög gott.
Fékk í dag frábærar fréttir frá gestakomum þjóðverja næsta sumar en búið er að fullbóka margar vikur næsta sumar sem er mikið meira en var sl. sumar og langt fram úr vonum. Það mun því verða mikið að gera í Einarshúsi næsta sumar og ég hef þegar fengið boð um margar hjálparhendur mér til aðstoðar svo það á allt eftir að ganga vel.
Ég fékk einkar ánægjulegt símtal í dag frá gömlum bekkjarbróður og konu hans sem vildu senda mér jólaglaðning fyrir jólin til að styðja við mig og fjölskylduna. Það er alveg ótrúlegt hvað ótrúlegasta fólk er gott við mig í þessum hremmingum mínum. Ég átti aldrei von á því að ég ætti þennan stuðning inni hjá fólki en ég er greinilega í huga margra og get ekki annað en verið þakklát fyrir það.
Kvöldið endaði svo á Mugison í sjónvarpinu og Fjallabræðrum sem algjörlega toppaði daginn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.12.2011 | 00:32
Dagur 36 - miðvikudagur
Nú var aldeilis heilsufarið til fyrirmyndar í dag og undan neinu að kvarta. Farið var í Smáralindina með Jóni og Elsu, af því að læknirinn hvatti títtnefnda til að vera helst ekki þar sem margir kæmu saman, en þar sem enn átti eftir að kaupa nokkrar jólagjafir og ég var svo fjandi hress var bara ekkert annað í stöðunni. Ég var reyndar orðin dauðþreytt og komin með bjúg á fæturna en hvað er það á milli vina. Ég lagði mig þegar ég kom heim og vaknaði bara hress og kát.
Í Smáralindinni gekk ég um ganga þvera og endilanga og lét bara vel að mér í hvívetna. Ég hef nú á tilfinninguna að visst stabilisted sé að myndast á líkamsbúskapnum og ég sé að venjast lyfjameðferðinni. Það er sko sérdeilis aldeilis fínt og vonandi heldur það áfram. Síðasta sprautan á þessu ári er á Þorláksmessu og þá er frí fram til annars janúar.
Ég er búin að skrifa á jólakort til sumra en hef gleymt nokkrum eða kannski flestum. Sumir hafa kannski fengið tvö jólakort þessi jólin en hinir fá einhverjir bréf og aðrir góð hugskeyti. Það verður að fyrirgefast þegar svona stendur á.
Þetta eru semsagt fréttirnar í dag. Ekkert annað en gott.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.12.2011 | 23:14
Dagur 35 - þriðjudagur
Haldiðið ekki að Vertinn hafi bara sprottið upp úr rúminu í tíma í morgun hin hressasta, merkilegt hvað dagarnir geta verið misjafnir. Ein eða tveim tylftum af pillum var sporðrennt með morgunmatnum og síðan var brunað niður á Lansann með lífverðinum honum Andra. Sex blóðprufur biðu mín og það gekk eins og í sögu enda virðist nóg blóð í kellingunni ennþá sem betur fer.
Eftir að búið var að " borga" fyrir blóðprufuna var haldið rakleiðis upp á göngudeildina þar sem ég fékk lyfin mín í þennan lífa fína brunn sem ég er með. Það er sko algjör lúxus að hafa hann þarna til að grípa í þegar á þarf að halda. Í ljós kom að það vantaði að taka þrjár blóðprufur til viðbótar svo það var bara tekið úr brunninum milli lyfjagjafa svo það var ekki mikið mál. Í lokin fékk ég svo "beinbyggingarefni" í æð sem varð að sjálfsögðu að " borga" fyrir á apótekinu niðri en það efni mun ég fá á fjögra vikna fresti á meðan á meðferð stendur en einnig í marga mánuði eftir það. Þær lyfjagjafir er hægt að gefa á Ísafirði svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af því að koma suður eftir að ég er endanlega komin heim.
Saumurinn var tekinn í dag svo ég lít út eins og nýútsprungin rós........eða þannig. Síðan var " borgað" fyrir herlegheitin uppi á göngudeild og haldið á ný út í daginn.
Ég er búin að fara tvisvar í Kringluna í dag bera rétt til að viðra mig og sjá framan í aðra. Ég sá reyndar alltof marga en ég svosem stoppaði stutt en gat keypt smá. Ég vonast til að komast í fleiri verslanir á morgun því ég fæ sterana líka á morgun og þá get ég keypt þær jólagjafir sem upp á vantar.
Merkilegt nokk að í hvert skipti sem ég gekk fram hjá spegli í Kringlunni fannst mér ég sjá þvílíka kerlingarhverfu að ég brá á það ráð að telja mér trú um að þetta væri einhver önnur en ég. Hárið líflaust, fötin passa illa og allt það, en svo virðist reyndar því fólki sem ég hitti, sér finnast ég líta svo asskoti vel út. Held að þetta hljóti að vera einhverjir meðaumkunar - gullhamrar eða kannski er þetta bara í kollinum á mér eða speglarnir í Kringlunni handónýtir.
Það er þó vissulega viss sparnaður í lélegum speglum því ég kaupi mér sko ekki föt þennan dyntinn.
Allir eru komnir til síns heima og flest allt eins og það á að vera.
Heyrumst á morgun
Dægurmál | Breytt 21.12.2011 kl. 13:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2011 | 00:48
Dagur 34 - mánudagur
Það fór nú eitthvað lítið fyrir stórræðunum hjá títtnefndri í dag þrátt fyrir fögur áheit um eitt og annað. Það var á plani dagsins að " skella" sér í sturtu, klæða sig og taka kannski eins og einn sprett í stigaganginum svona í tilefni dagsins. Jú svo stóðu vonir til þess að ég kannski kæmist út á rúntinn eitt augnablik til að sjá jólaljósin og eitthvað en þegar heilsan er ekkert til að stóla getur þetta farið úr skorðum.
Það getur auðvitað verið hverjum kramaraumingja eins og mér fullmikið að fara til eðlilegra salernisferða og ætla sér svo í sturtu bara beint í framhaldinu og skolpa af sér. Ég átti fullt í fangi með að koma mér bara aftur upp í rúm og þar lá ég meira og minna í dag alveg dauðþreytt. Ég hringdi til öryggis á deildina mína á spítalanum bara rétt til að kvarta ögn yfir ástandinu en ákveðið var að ég tæki það bara rólega heima að öllu óbreyttu því ég á að mæta í fyrramálið í lyfjainntöku. Þá fæ ég gleðiglundrið mitt og ætti því að geta tekið gleði mína á ný.
Eina hetjudáðin sem ég drýgði var að sitja kjurr í stofusófanum í kvöld meðan Þórunn snyrti á mér neglurnar og er ég nú fær í flestan sjó og ætti að geta staðið klár fyrir læknagengið á morgun. Svo hef ég horft á matreiðsluþætti í sjónvarpinu en það virðist vera alveg sama á hvaða stöð maður stillir hér fyrir sunnan, allsstaðar matreiðsluþættir á matreiðsluþætti ofan. Ég ætti amk. að kunna undirstöðuatriðin í matreiðslu eftir þessa meðferð mína.
Saumurinn frá því að brunninum var komið fyrir verður tekinn í fyrramálið en aðra eins bróderingu hef ég varla séð. Það mun varla sjást ör eftir verknaðinn og skurðlæknirinn hefur sko kunnað til verka. Á morgun munu Jón og krakkarnir koma suður en veikindi á stelpunum setti strik í reikninginn og því komu þau ekki í dag. Andri mun því fara með mömmu sína í lyfjatökuna á morgun og blóðprufurnar.
Þetta er því allt eins og áður var lofað. Það eru engar sérstakar hetjudáðir drýgðar í þessari stöðu aðrar en þær að halda ótrauður áfram í baráttunni og reyna að vera nógu helv...jákvæður og andsk...hress.
Það hjálpar mér amk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.12.2011 | 00:39
Dagur 33 - sunnudagur
Ferðirnar upp og niður stigaganginn urðu ekki nema tvær í dag enda er það bara alveg ágætt þennan dyntinn.l Dagurinn búinn að vera ósköp rólegur enda ekkert annað í stöðunni en að slaka bara á fyrir jólin. Ég er reyndar búin að vera alveg eins og slytti í dag, það verður bara að segjast alveg eins og er og oft verið hressari en oft verið verri sem er gott. Mig grunaði það svosem að ég yrði ekki til stórræðanna í dag og vænta má þess að ég verði í rólegheitagírnum á morgun líka enda fer ég í lyfjatöku á þriðjudaginn aftur og þá hysja sterarnir mig upp á ný og þá fer ég aftur að rífa kjaft eins og mér einni er lagið.
Ég er nú annars ósköp geðprúð og finn mér venjulega eitthvað til dundurs og læt mér aldrei leiðast enda engin ástæða til. Ég hlakka þó til þegar bakið hættir að plaga mig og ég get farið að vera meira á hreyfingu því það skiptir svo miklu máli að líkaminn stirni ekki upp og funkeri rétt. Það yrði nú sjón til næsta bæjar ef Jón færi að draga mig steinstífa upp á Óshyrnuna í gönguferð næsta vorið til að liðka mig til.
Hárlosið hellist yfir mig annað slagið og segjast verður alveg eins og er að það er smá eftirsjá í þessum hárflyksum sem yfirgefa mig annað slagið en það er þó eins og hárið hamist við að spretta þess á milli sem það dettur af. Því er ómögulegt að vita hvernig ég kem til með að líta út á endanum en ég verð örugglega bara sæt og fín eða tel mér trú um það amk.
Þetta eru nú allar fréttirnar í dag. Jón og krakkarnir koma aftur á morgun og þá mega jólin bara fara að koma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.12.2011 | 00:17
Dagur 32 - laugardagur
Dagurinn í dag búinn að vera ósköp rólegur en góður. Ég er farinn að taka "spretti" niður stigaganginn til að koma mér á hreyfingu og liðka mig aðeins og koma mér í betra form. Það þýðir ekkert annað. Eina sem plagar mig er bakið auðvitað sem er enn að gróa en það er alltí góðu því það hefur bara sinn gang og grær í rólegheitum. Það er þetta með helv. þolinmæðina muniði sem ég var að segja ykkur frá um daginn. Maður verður bara að eiga nóg af henni núna.
Jón fór vestur dag ásamt sínu skylduliði og náði Tónleikum Mugisons í nýja Félagsheimilinu og þótti góðir. Honum fannst þó skrýtið að koma í rólegheitin heima þegar bæði vantaði hundinn og kerlinguna í kotið til að rausa yfir hinu og þessu en það venst. Nýtt ár ber svo sannarlega með sér vonir um nýtt líf og nýja heilsu í húsið svo það er bara tilhlökkunarefni.
Mamma vissa varla í hvorn fótinn hún átti að stíga þegar Jón og Elsa heimsóttu hana á skýlið í kvöld enda átti hún ekkert svosem von á þeim núna. Hún er nú hálfhissa að ég skuli ekki ætla að fara að koma heim amk. til að halda jólin hátíðleg fyrir vestan fyrir fjölskylduna eins og ég hef verið vön, en hún er nú kannski ekki alveg að skilja þetta og það er allt í lagi. Ég á nú allteins von á því að fara að birtast í byrjun næsta árs í smá heimsókn ef allt fer sem horfir.
Tengdó hefur mig bara núna út af fyrir sig og virðist njóta þess að stjana við mig og ég læt mér vel það líka. Hún hefur mjög ríka þjónustulund enda af Selkotssystraættinni en þær systu voru allar eins hvað það varðar.
Nóg hefur verið að gera í Einarshúsi síðan ég fór og hinir og þessir hópar í trakteringum hjá Gunnu. Prjónakaffið / jólaglöggið hikk..var víst ágætt eitt og bókasúpan sló í gegn á föstudaginn og allt gengur eins og blómstrið eina. Ég mátti til að kíkja í öryggiskerfi hússins í tölvunni til að að sjá stemninguna í Bókasúpunni og lét gestina veifa til mín og segja hæ svona rétt til að upplifa stemninguna og ég gat ekki annað séð en að þetta gengi vel án mín. Annars þá er hið alsjáandi auga ekkert að fylgjast með því sem er að gerast í húsinu í öryggiskerfinu svona dags daglega dags nema síður sé.
Jæja vildi aðeins bara láta í mér heyra. Það er líka gott fyrir mig að skrifa svona dagbók til að fletta í ef ég þarf að muna eitthvað. Tíminn er eitthvað svo ótrúlega fljótur að líða og þegar maður man varla neitt frá degi til dags er eins gott að skrifa það niður.
Ég fæ enga stera á morgun og enga á mánudaginn svo ég veit ekki hvað sprettirnir á stigaganginum verða margir en við sjáum til.
Heyrumst
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.12.2011 | 00:01
Dagur 31 - föstudagur
Vertinn varð að vakna frekar snemma til útréttinga og tók samviskusamlega lyfin sín til að vera borubrött og steratöflurnar áttu að nýtast til að auka mér úthald. Fyrst var Landsbankinn heiðraður með heimsókn minni til minniháttar bankaviðskipta og viti menn, þar þekkti mig ekki nokkur kjaftur. Ég var ekki með nein skilríki til að sanna hver ég væri og enginn kannaðist við Vertinn í Einarshúsi svo ég varð að hrökklast þaðan út í forundran. Það er nú eitthvað annað í sparisjóðnum heima þar sem allir þekkja mig og mína.
Þaðan varð ég að fara í annað reddingarútkall og það var ofan í bæ og þegar ég kom út úr því húsi hélt ég að ég væri að koma út úr Landsbankanum og vissi því hvorki í þennan heim né annan og hefði trúlega ekki ratað heim aftur ef Jón Bjarni hefði ekki farið með mér og lóðsað mig að bílnum og keyrt mig heim til að leggja mig. Svona gera þessi lyf mann alveg handótnýtan á köflum.
Gleðiglundrið var svo í boði eftir hádegið og það var bara ein lauflétt sprauta í magann svo það var ekki hægt að hugsa sér það betra. Næsta gleðiglundur verður á næsta þriðjudag og þá dæla þeir í mig einhverju meira glundri og taka sauminn eftir brunninn. Þá verður mælt kalkið í beinunum og mér gefið kalk í æð ef upp á vantar. Þetta gleðiglundur á það til að tæta niður bæði góðar og slæmar frumur í líkamanum og uppbygging beinanna í bakinu gæti minnkað ef ekki er fylgst vel með og það er eiginlega minn veikasti hlekkur núna.
Jón fylgir mér um allt og sleppir ekki af mér hendinni sem mér þykir mjög gott. Hann fer þó vestur á morgun ásamt Elsu, Lilju, Antoni og Bryndísi Elsu rétt í smá heimsókn. Andri, Þórunn og tengdó passa mig á meðan.
Þannig að mín er gætt eins og hvítvoðungs
Heyrumst á morgun
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635850
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm