Dagur 54 - sunnudagur

jan12 020Afskaplega lítið hefur verið gert í dag enda hef ég ekki farið út úr húsi. Það er reyndar eins gott í allri þessari hálku. Þess í stað sat ég við prjónana mína eins og miðaldra piparjúnka sem ekkert annað hefur fyrir stafni en að telja lykkjur og þess háttar. Um kvöldmatinn fengum við allan krakkaskarann í mat sem var afskaplega gaman. Á myndinni má sjá Jón með blessuðum börnunum að horfa á eitthvað einstaklega áhugavert í tölvunni eftir að hafa borðað góðan mat.

Ég svaf eins og þyrnirós sl. nótt og þar gerði svefnpillan gæfumuninn tel ég upp á. Vaknaði er leið að hádegi og allt í gúddý.


Dagur 53 - laugardagur

Það er víst vissara að setja nokkrar línur niður á blað svo dyggir lesendur haldi ekki að ég hafi hrokkið upp af í einum vetfangi. Það er nefnilega síður en svo enda sprelllifandi og stálhress. Það ber trúlega að þakka þessum bévítans sterum sem hamla orðið svefninum og ræna mig draumum og allt hvað heita hefur. Þeir halda mér uppi megnið af sólarhringnum og fyrir það ber að þakka.  Mig sifjar ekkert og ég ligg bara eins og skata og bíð eftir Óla lokbrá sem virðist fara með ógnarhraða framhjá Stífluselinu. Ekki það að sjónvarpið hefur ofan af fyrir mér eða tölvan svo þetta er allt í lagi, bara óvanalegt því ég hef alla tíð verið mikil svefnpurka og þótt einstaklega gott að sofa. Ég fæ því að heyra allskonar næturhljóð fyrir vikið, bíla að aka um og fólk að koma í blokkina á öllum tímum, sumir pissa standandi að mér heyrist og sumir sitjandi eins og gengur á hinum og þessum tíma sólarhringsins og einstaka hrotur berast um húsið. Það er aðeins meira ónæði en við Hólastíginn heima þar sem einungis eru örfá hús og örfáir íbúar við götuna. Þar heyrist í sjófuglunum og niðurinn frá sjónum róar manni í svefninn. Aðeins er rumskað þegar nágranninn fer á sjóinn en síðan ekki söguna meir. Þar hef ég reyndar aldrei verið á sterum svo það er ekki að marka.

Ég lét það eftir mér að fara í Kolaportið í dag og fékk út úr því alveg ágæta hreyfingu. Það var nú reyndar afskaplega lítið að sjá og það var eins og að koma inn í daunillan gamlan fataskáp sem var fullur af allskyns drasli. Fyrr um daginn fór ég með Jóni að skoða aðstöðu fyrir trommara niður á Granda en hann má ekki missa niður taktinn meðan hann dvelur hjá mér fyrir sunnan og verður að æfa sig sem mest hann getur.

Slátur var síðan borðað með bestu list hjá Andra og Þórunni en Elsa var í allan dag að læra með vinkonum sínum. Lilja og Anton voru fjarri góðu gamni enda leiðinda veður og mikil hálka og því varla þorandi að fá þau hingað í dag. Vonandi komast þau á morgun.

Ég hef semsagt haft það fínt í dag og gert heilmikið þrátt fyrir allt.

Ég ætla nú samt að láta eina svefntöflu eftir mér núna til að athuga hvort hún slái mig ekki í rot.

Góða nótt


Dagur 52 - föstudagur

Sterarnir héldu fyrir mér vöku í nótt líkt og undanfarið en þá var brugðið á það ráð að taka svefntöfluna góðu sem gerði nokkuð gagn. Ég var því hálf ringluð þegar Auður systir hringi í morgun og tilkynnti að hún væri orðin amma en Maggi og Þóra eignuðust afskaplega hrausta og heilbrigða dóttir í morgun. Það er því þegar farið að fyllast í skörðin sem skilin voru eftir í fyrra en rétt tæpir níu mánuðir eru síðan pabbi dó. Þegar Lilja ljósberi fæðir sitt barn verða níu mánuðir frá því að tengdapabbi dó og það er nokkuð merkilegt. Það er eins og þeir séu að koma aftur blessaðir karlarnir.

Andri fór með mig í sprautuna í dag og það var létt verk og fljótlegt, bara rétt ein stunga í vömbina. Ég gat lagt mig um miðjan daginn og það var svo sannarlega góður lúr. Það eru því góðar fréttir héðan, allt í rólegheitunum svosem enda engin ástæða til annars en að taka lífinu með ró.


Dagur 51 - fimmtudagur

Allt í einu eru sterarnir að gera mig vitlausa og ræna mig öllum svefni. Ég vandræðast allar nætur helst valkoppandi kringum helv. ísskápinn til að gleypa í mig allan andsk....en get ekki sofnað samt. Ég brá á það ráð að taka eina svefntöflu þegar leið undir morgun og það sló mig út af laginu fyrir rest. Ég aldeilis óvön því að geta ekki sofið, það hefur frekar verið í hina áttina að ég hef sofið allt of mikið svo þetta er alveg nýtt.

Bjarni, Irena og DaníelFjárhirðir Einarshúss, hann Kristinn H. kom í morgun til að ganga frá pappírum og fljótlega í kjölfarið fékk ég heimsókn alla leið frá Noregi en þar býr " litli" strákurinn hann Bjarni Heiðar sem ég passaði eitt sinn og er nú orðinn svo stór og kominn með sína fjölskyldu. Það var reglulega gaman að fá að sjá þau og hitta.

Seinni partinn lág leiðin upp á Akranes til að hjálpa Lilju ljósbera að koma sér fyrir á heimavistinni en hún byrjar í skólanum á morgun. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessum vetri og held að hún eigi eftir að hafa það fínt á Skaganum og vona bara að heilsan hennar verði góð í vetur.

Ég fæ gleðiglundrið á morgun og Andri fer með mig þangað því Jón er upptekinn í öðru og Elsa byrjuð á fullu aftur í skólanum enda hversdagsleikinn tekinn við í öllu sínu veldi og það er bara gott.

Ég er semsagt búin að eiga skemmtilegan dag, svolítið ör væntanlega út af svefnleysi og áhrifunum af sterunum og hef lítið getað slakað á  enda finn ég það alveg á blessuðu bakinu en það þýðir víst lítið að kvarta yfir slíku smotteríi.

 


Dagur 50 - miðvikudagur

Haldið þið ekki að dagurinn í dag hafi endað á útsölu í Hagkaup eftir matarboð hjá Hrefnu og Bigga þar sem Vertinn gat fundið með mikilli útjónasemi mussu sem passaði. Ég hlít að hafa rambað á deildina sem hefur að geyma yfirstærðir í einhverri rælni og því fór sem fór.

PrjónadótDagurinn í dag var ósköp rólegur þar sem mesta tímanum var varið í prjónaskap en það hefur heltekið mig svo um munar og framleiðslan er eftir því. Set með eina montmynd því það er svosem lítið annað sem hægt er að hreykja sér af þessa dagana.

Ég er hætt að þurfa ógleðistöflum með lyfjagjöfinni sem er mjög gott og sterarnir gera mig svo yfirmáta hressa að ég get ekki orðið sofið á nóttinni vegna ofurorku. Það er nú reyndar fullmikið því ég þarf sko minn svefn og engar refjar. Ég virðist vera algjörlega upplagður sjúklingur í krabbameinsmeðferðir og skólabókardæmi um hvernig þetta getur gengið sem best og vonandi verður það þannig áfram. Það eina sem plagar mig er bakið og það mun taka sinn tíma að batna og ég mun þurfa beinbyggingarlyf í langan tíma og mun aldrei verða jafngóð og áður sem er alltílagi því ég var hálfgerður kraftajötunn og í raun nautsterk lengi framan af.

Ég fer aldrei út án fylgdar í þennan snjó því ég er svo hrædd um að það komi hlykkur á bakið eða að ég detti í hálkunni svo ég hef ætíð minn fylgdarmann sem er svo heppinn að vera eiginmaður minn í þokkabót og líf mitt og heilsa þennan dyntinn. Það vill til að hárið er svo þykkt að enn sér varla högg á vatni sem betur fer og það svona bætir aðeins útlitið að halda þó hárinu og gott fyrir sálina líka.

Þetta er nú allt afrek dagsins og ég er bara nokkuð sátt.  

 


Dagur 49 - þriðjudagur

Komugjöldin á lansann höfðu hækkað um áramótin um einhver lifandis býsn og vænti ég þess að það sé sérstök nýársgjöf frá Steingrími fyrrverandi fjármálaráðherra til vesalinganna í landinu sem þurfa á læknisaðstoð að halda. Ég get nú svosem huggað mig við það að brennivínið hefur hækkað margfalt og sígarettur líka en þar sem ég er hætt þvílíkum ósóma vegur það upp á móti háum lækniskostnaði hins íslenska helferðarkerfis. Verra með helv. díselolíuna sem er orðin jafnokurdýr og geimsteinar og gull eða því sem næst en það þýðir víst lítið að nöldra um þetta, það hlustar hvort eð er enginn.

Mótefnið í skrokknum sem þessar óæskilegu frumur framleiða er nánast horfið en í eðlilegum manni er það um 2% en hjá mér er það komið í 0,86% sem er nú bara vel af sér vikið. Það verður byrjað þann 20. janúar að safna stofnfrumunum og það er smá svona vesen eða þannig. Stór leggur verður þræddur í hálsinn á mér og í slagæð, væntanlega, því það þarf að vera svo mikið rennsli á blóðinu en 15 lítrar þurfa að fara úr mér og aftur í æðakerfið á ný þegar nýjum og fínum stofnfrumum er safnað. Öllu mínu blóði er þrídælt í þessa sérstöku skilvindu.  Þetta mun taka sirka sex tíma í hvert sinn og með mér verða hjúkrunarfræðingur og einhverjir frá blóðbankanum skildist mér og svo bara hinir og þessir. Þetta þarf að endurtaka kannski tvisvar eða þrisvar og ég verð svo heppin að fá að hafa þennan legg í hálsinum á meðan þetta ástand varir og þið getið ímyndað ykkur hvort það sé ekki mikið tilhlökkunarefni. Það er þó örugglega margt verra en það og óþarfi að mála skrattann á vegginn hvað það varðar. Versta við þetta allt er að ég fæ ekki að fara á klósettið meðan á þessu stendur heldur ætla þær sko hjúkkurnar að koma færandi hendi með bekken ef mér verður mál, en þeim verður sko ekki skotaskuld úr því, ef ég get ekki pissað í klósett eins og manneskja þá pissa ég bara ekkert og hana nú.

Ég mun því bara eiga viku frí eftir þessa lyfjameðferð en ekki 10 daga en ég ætla samt heim, annað kemur ekki til greina.


Dagur 48 - mánudagur

Vaknaði á skikkanlegum tíma og dreif mig framúr enda kominn tími til að snúa sólarhringnum við og haga sér eins og manneskja. Skrapp á útsölur og allt í tilefni dagsins en sá ekki neitt sem mig langaði í en það er ekkert nýtt. Ég heillast venjulega að því dýrasta í búðinni svo það er dauðadæmt um þessar mundir að ég versli eitthvað að ráði.

Ég arkaði Kringluna fram og til baka og fékk smá hreyfingu á kroppinn sem er gott og veitir ekki af. Það auðvitað kallaði á fjögra tíma lúr eftir að ég kom heim, sem kallar sjálfkrafa á það að ég sofna seint um síðir í nótt og verð svo í vandræðum með að vakna í fyrramálið.

Sem betur fer þá hafði ég vit að því að fá tíma á hádegi í lyfjagjöf á morgun svo það er ekkert sem dregur mig framúr neitt tiltakanlega snemma. Þá hefst þriðja og næstsíðasta lyfjameðferðin og fyrr en varir verður þetta allt búið og liðið.

Allt er því gott að frétta af mér og mínum og líðanin bara nokkuð góð.


Dagur 47 - nýársdagur

Þá rann þessi fyrsti drottins dýrðarinnar dagur upp á nýju ári. Sofið var fram á miðjan dag eða alveg þangað til tengdamamma kallaði mig fram í matinn en lífið þessa hátíðisdaga virðist ganga út á að sofa og eta og eta meira og svo sofa. Þetta ástand hlýtur að kalla á allsherjarendurskipulagningu á lifnaðarháttum í framhaldinu og átsiðum ýmiskonar sem hafa algjörlega farið úr böndum þessi jólin eins og svo oft áður.

Heilsan frekar góð í dag og allt í gúddý. Sýklalyfin hafa slegið á kvefið og hitann svo ég er að verða góð og svo bíð ég bara eftir að byrja í næstu meðferð núna á þriðjudaginn og þá bíð ég bara eftir að henni ljúki svo ég komist heim í heiðardalinn. Það verður svei mér skemmtilegt og þá mun títtnefnd brosa framan í réttláta sem rangláta og lýsa upp þorpið eins og sólin...tja kannski ekki eins og sólin en það mun eitthvað birta til vona ég.

Fregnir herma að fjör hafi verið fram á nýársnóttina í Kjallaranum þar sem Gunna og Guðlaug stóðu vaktina á barnum ásamt fleirum sem voru þeim til aðstoðar. Bjarni Kristinn og Kittó sungu af hjartans list ásamt fleirum og fólk skemmti sér hið besta sem er frábært.

Fastir liðir hefjast svo á þessu nýja ári að venju og vonandi næ ég að vera eitthvað viðstödd einhverja viðburði í fríunum mínum.

Læt þetta duga í bili

 


Dagur 46 - gamlársdagur

Gamlársdagur heilsaði með 38,5 og hósta og þvílíku kjaftæði. Vertinum þótti því vissara að hringja niður á deildina á landspítalanum sem ég þykist eiga með húð og hári og læknirinn þar setti mig í snarhasti á sýklalyf til að ná óþverrarnum úr mér. Það virkaði alveg ágætlega og ég var orðin borubrott seinni partinn, svo borubrött að ég gat farið með öllu mínu skylduliði til Maddýar mágkonu rétt fyrir skaupið og sat þar frameftir. Það var nú sérdeilis fínt að geta lyft sér örlítið upp.

Árið 2011 var kvatt með lítilli eftirsjá enda búið að vera frekar ömurlegt svo ekki sé meira sagt. Því eru miklar væntingar bornar til ársins 2012 enda engin ástæða til annars en að trúa því og treysta að það verði gott ár og gæfulegt í alla staði.

Það þykir því tilhlýðilegt á þessum tímamótum að óska þeim sem þetta lesa farsældar á því ári sem nú rennur upp í öllu sínu veldi og þakka liðna tíma. Sérstaklega má þakka allan stuðninginn sem ég hef fengið og fundið hjá samferðafólki mínu vegna veikindanna minna sem er nú ekkert smáræði og verður seint fullþakkað.


Dagur 45 - föstudagur

Plötulopastatíf 1Lítið er nú fréttnæmt héðan af suðvesturhorninu þennan daginn. Sprengingar óma um nágrennið og snjónum hefur kyngt niður hér fyrir sunnan sól og vestan mána sem minnir á það að það eru víst að koma áramót.  Ég hef verið innivið þennan dag eins og marga aðra enda greip ég kvefpest og læt fara vel um mig hér heima meðan það bráir af mér. Ég er hress að öðru leiti, ét sælgæti eins og enginn sé morgundagurinn og úða í mig slikkerýi sem menn hafa verið að bera í mig undanfarið en það virðist vera keppikefli æði margra að sjá til þess að ég hafi nóg að eta. Ég er meira að segja farin að skipta skapi sem er flestum til armæðu eins og þeir vita sem til þekkja.

Ég, sem hafði ekki horft á sjónvarp að neinu viti í mörg ár, ligg yfir hasar- og glæpamyndum í bland við rómantískar ástarvellur sem varpað er upp á skjáinn endrum og eins.

Núna er ég að prjóna sokka en ég fékk tilþessgerða græju í jólagjöf sem geymir plötulopann og lætur hann án vandræða rata upp á prjónana og það er sérdeilis frábært. Ég er ansi hrædd um að prjónakellingarnar mínar á prjónakvöldunum verði ástfangnar um leið að þessari plötulopagræju. Ég birti mynd af henni til gamans en það er afi Þórunnar sem smíðar þennan eðalgrip og getur víst smíðað fleiri.

Andri og Þórunn komu að norðan í dag en Liljan mín verður vestra yfir áramótin hjá Antoni sínum. Svo koma þau skötuhjúin strax á nýju ári og fara bæði í skóla á Akranesi fram á vorið. Litla ömmukrílið er farið að láta öllum illum látum í maganum á Lilju og það er bara skemmtilegt. Elsa fór hvergi og Jón er hér og ég og tengdamamma fær einnig að vera heima yfir hátíðarnar svo ástandið er stöðugt og stabílt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband