8.3.2012 | 12:36
Viðtalið fína
Trúlega halda margir núna að Vertinn sé haldinn athyglissýki af einhverju tagi því enn eitt drottningarviðtalið hefur nú birts á netmiðlinum bb.is. Það er auðvitað alls ekki svo enda hægversk og hógvær með afbrigðum eins og allir vita sem til mín þekkja. Ekki er nema ár síðan ég var aðalskvísa sama blaðs en þá var reyndar verið að ræða reksturinn í Einarshúsi en nú eru það veikindin og bloggið sem eru aðalumræðuefnin svo það er allt annað mál. Það vantar trúlega eitthvað núna til að selja blaðið og því ekki að tala við viðlíka vitleysing og mig með reglulegu millibili.
Annar þá er ég mjög hress og kenni hvergi krankleika ef svo má segja. Tannverkurinn á undanhaldi enda eins gott, ég er farin að minnka verkjalyfin örlítið og það virðist ætla að sleppa. Samt virðist bakið vera ósköp veikt því ég þreytist við minnstu áreynslu. Ég stalst til að þvo smá ullarvesti og ullarkraga í baðkarinu í gær sem ég nýverið prjónaði og tengdamamma ætlaði sko ekki að líða það að sjúklingur eins og ég væri að standa í svona löguðu. Hún heimtaði að fá að gera þetta sjálf og því varð ég að læsa hana úti til að fá frið. Ég varð auðvitað dauðþreytt í bakinu en ég myndi aldrei viðurkenna það fyrir henni.
Í dag á að leggja land undir fót og skreppa í Dæli til Sigrúnar og Villa og vera það í nótt svona rétt til að lyfta sér upp eitt augnablik. Ekki vinnst tími til að fara heim núna því ég á að mæta í blóðprufu á mánudagsmorgunn. Í framhaldinu af því hefst stóra stofnfrumumeðferðin svo það styttist óðum í það að þessu stóra verkefni mínu ljúki í bili.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.3.2012 | 13:36
Allt i góðu
Vertinn var sendur í snarhasti til tannlæknis til að ganga úr skugga um að engar sýkingar væru í tanngarðinum. Þá kom í ljós að einhverjar bakteríur voru að grassera í einni jaxlrótinni og ekkert í stöðunni annað en að draga viðkomandi tönn úr því enginn tími er til að laga neitt með svo skömmum fyrirvara en stofnfrumumeðferðin byrjar þann þrettánda. Þá verður ofnæmiskerfið algjörlega drepið niður og því verður að gæta þess að engar bakteríur grasseri í skrokknum. Allar tennur verða að vera i fullkomnu standi og nú er búið að laga allt sem laga þarf. Það er því ekki nóg að ég verð hárlaus heldur hálftannlaus í þokkabót.
Vertinn þarf að vera með ísklaka í munninum þennan hálftíma sem aðal-eitrinu er dælt í æðarnar í stofnfrumumeðferðinni en það er gert til að hæga á blóðflæðinu til munnsins því öll slímhúð líkamans þurrkast upp. Reynt er því að kæla niður munninn eins og frekast er kostur svo ég þorni ekki alveg upp í munninum. Þetta verður töff en það tekur enda.
Ég fór í útskrift í Hjallakirkju þar sem Þórunn tengdadóttur var útskrifuð með láði frá Snyrtiakademíunni um helgina en þar dúxaði stelpan að sjálfsögðu líkt og kærastinn og sonurinn sem dúxaði úr flugskóla Íslands um árið og á enn, eftir því ég best veit, hæstu meðaleinkunnina.
Annars hef ég lítið farið út og verið meðal fólks. Hef ekki áhuga á að smitast af inflúensunni og finnst nóg að berjast við tannverki og viðlíkan óáran sem hefur verið að hjá mig eftir heimsókn til tannlæknisins. Tannholdið greri ekki nógu vel svo ég varð að fara til tannsa í gær til að láta krukka í sárinu og það kallaði á enn meiri verki.
Heilsan er þó að verða nokkuð góð þessa dagana og kannski verður tími til að kíkja heim í nokkra daga en það yrði sko sérdeilis gaman.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.2.2012 | 23:15
Einn sextíu og sex
Vertinn vaknaði í tíma til að fara til prófessors í tannlækningum í Tanngarðinum svokallaða til að láta kíkja á skoltinn. Eitthvað þarf að hreinsa og taka til áður en stofnfrumuaðgerðin sjálf fer fram svo ekki myndist sýkingar í slímhúðinni. Ég þarf víst að fara til tannlæknis í þessu kærkomna fríi til að láta laga eitt og annað. Ætli ég komist nokkuð vestur vegna þessa.
Lungnaprófið tókst með ágætum svo lungun virðast í góðu standi ef miðað er við hæð og aldur. Það kom þó verulega á óvart að ég skyldi vera að dragast saman því alltíeinu núna virðist ég hafa minnkað um heila tvo sentímetra á stuttum tíma. Ég þrætti við vesalings stúlkuna og heimtaði að ég yrði mæld upp á nýtt en það var ekki um villst, ég var orðin einn sextíu og sex ( sko á hæð) eða bara hálfgerður dvergur miðað við það sem ég var þegar ég var stærst í bekknum á sínum tíma en þá var ég 168,5 cm. Bráðum verður hægt að mæla mig í fermetrum ef fram fer sem horfir. Kannski hafa beinin ekki vaxið ennþá eftir beinþynninguna svo ég geri mér vonir um að ég spretti kannski eitthvað. Ég verð þá bara að sætta mig við að vera eins og lítil kúla í laginu. Ég er þó nokkuð ánægð með aukakílóin núna því ég held ég þurfi á þeim á halda í átökunum stóru.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.2.2012 | 00:08
Frí
Leggurinn rann léttilega úr í morgunsárið enda er Harpa hjúkka einkar klár og kann til verka. Það var pís og keik. Í framhaldinu kom í ljós og ég var frekar blóðlaus og fékk að dúsa oná spítala til kl fögur til að fá blóð en tveir pokar runnu glatt í æðar Vertsins. Kannski hefur blóðið komið úr fyrrum sýslumanni Ísfirðinga sem nýverið fékk viðurkenningu fyrir endalausar blóðgjafir, því mér fannst ég svo valdsmannsleg á eftir.
Ég var frekar lág í kalkinu líka svo ég bryð kalk í gríð og erg. Er með verki í fótunum trúlega þess vegna en það mun lagast.
Tannlæknir og lungnapróf eru í fyrramálið en svo hef ég frí til 13 mars og mun það væntanlega verða gott frí.
Þá ætla ég að lífsins í botn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.2.2012 | 22:52
7,3 milljónir
Í dag söfnuðust 7.3 milljónir stofnfruma og telst það nægjanlegt til viðbótar því sem safnaðist þarna um daginn. Það gekk reyndar hálf brösuglega að koma leggnum fyrir í hálsinum því hann leitaði út í handlegginn en ekki í áttina að hjartanu. Því þurfti allskyns tilfæringar á skurðarborðinu svo hægt væri að koma ómtæki fyrir svo hægt væri að þræða legginn á réttan stað. Það hófst þó allt á endanum og ég var komin í skilvinduna uppúr kl. 10 í morgun. Þar las ég örlítið yfir vesalings hjúkrunarfræðingnum frá Blóðbankanum sem kominn var til að aðstoða mig og heimtaði að fá að vita nákvæmlega hver hefði klikkað síðast á talningunni, ég ætlaði nefnilega að heimsækja hann sko og lesa honum pistilinn. Það varð eitthvað fátt um svör.
Fimmtán lítrum var dælt úr kerlingunni og það gekk bara nokkuð vel. Ég gat sofið og dormað mestan partinn en einnig greip ég í prjónana eitt augnablik.
Þegar söfnun var að ljúka kom í ljós að það hafði blætt inn á hálsinn og myndast gúlpur og þess vegna varð ég að fá blóðflögur til að auka storknun í blóðinu og fljótlega fór hálsinn að líta betur út. Ég fór svo heim um fjögurleitið og hef verið meira og minna í rúminu síðan. Líðanin svona og svona.
Leggurinn verður tekinn í fyrramálið og málið er dautt.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.2.2012 | 10:16
Vanagangur
Lífið gengur sinn vanagang þó ég sé ekki eins og landafjandinn út um allar trissur. Á mánudagsmorgun verður leggurinn settur í aftur og þá byrjar vonandi söfnun á ný. Ég reikna með að það taki tvo til þrjá daga því ekki ætla þeir að láta þetta mistakast enn á ný. Til allrar lukku hef ég ekki fengið flensu í þessu ferli og ætti því að vera betur undir þetta búin núna.
Eftir söfnunina fær ég frí í þrjá vikur til að ná upp smá þreki á ný fyrir stofnfrumuaðgerðina og hver veit nema við skreppum heim í einhverja daga. Einhverjar rannsóknir og tannlæknaferðir verða þó á þessum tíma svo tímasetning er ekki alveg komin.
Mikið er að gera varðandi Einarshús í sumar og nú virðast bara allir vilja hafa þar viðdvöl með sína gesti. Ferðaskrifstofur um allt land eru að falast eftir gistingu og veitingum og það er alveg frábært og alveg í takt við það sem við lögðum upp með þegar við tókum gistinguna í gegn með þeim hætti sem við gerðum. Þjóðverjar verða þó fyrirferðamiklir í maí og júní og eru nær allar vikur uppteknar í húsinu þann tíma. Öll rúm eru glæný og einkar þægileg og allur aðbúnaður eins góður og best verður á kosið. Ég vil þó minna á að þeir sem ætla að heimsækja bæinn í sumar geta auðvitað átt möguleika á gistiplássi í þessu frábæra húsi því það gæti verið laust herbergi. Síminn er 456-7901 eða senda má fyrirspurn á ragna@einarshusid.is og því verður svarað um hæl.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.2.2012 | 20:36
Lítið
Það er frá afskaplega litlu að segja núna enda hef ég verið við rúmið undanfarið. Fór reyndar á bráðamóttökuna í gærkvöldi og dvaldi þar í blóðprufum, þvagprufum og generalprufum svona rétt til að fylgjast með ástandinu langt fram á kvöld. Ég var góð í hvítum en samt leystu þeir mig út með sýklalyfjum svona rétt upp á grín, kannski aðallega til að losna við mig eða þannig. Ég svitna eins og skaðbrennt svín svona annað slagið en það fylgir víst lyfjatökunni. Ég er ekki komin á breytingaraldurinn ef einhverjum hefur dottið það í hug enda er ég bráðung og á langt í það.
Ég gat þó til allrar guðs lukku etið á mig gat af saltkjöti og bollum og það er nú fyrir mestu að geta borða þegar svona stendur á því gott er að hafa aukaforða.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2012 | 20:40
Frekar slöpp
Eitthvað er Vertinn búin að vera þreytt þessa dagana. Ég ligg nú bara mest megnis upp í rúmi og dorma yfir sjónvarpinu. Þetta er einhver vesældómur svona eins og gengur. Ég svitna eins svín og er bara hálfgerður kramaraumingi. Ég hef á tilfinningunni að hvítu blóðkornin séu frekar lág þennan dintinn og þessvegna sé ég svona mikill vesalingur en það lagast vonandi á morgun þegar ég fæ fyrstu sprautuna í belginn en eins og áður fæ ég sprautur kvölds og morgna hér heima til að losa mergfrumurnar út í blóðið.
Ég gat þó farið með ungu foreldrunum í þrívíddarsónar í dag og þar lék litli ömmustrákurinn allskyns kúnstir fyrir okkur og það var svo gaman.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.2.2012 | 20:25
Gleðiglundur
Vertinn hélt suður á bóginn í gær með viðkomu á Skaganum hjá Lilju ljósbera og Antoni en þar var farið út að borða í Gamla Kaupfélaginu svona rétt til að lyfta sér upp og það var alveg ljómandi. Litli ömmudrengurinn dafnar vel í kúlunni og ég heyrði svo greinilega að hann kallaði " AMMA" þegar ég lagði eyrað upp við maga Lilju, svo hann er strax byrjaður að læra að tala. Þetta verður mikið gáfubarn eins og kyn hans stendur til langt aftur í ættir.
Við vorum þó komin tímanlega í Stífluselið því ég átti að mæta upp úr átta í morgun í blóðprufu á Lansann og síðan í gleðiglundrið. Það var fjórfaldur skammtur í þetta sinnið með öllu tilheyrandi, steratöflur, ógleðitöflur, beinþéttiefni og ég veit ekki hvað og hvað fékk að fljóta með svo ég er eiginlega uppfull af allskonar eitri sem er til þess fallið að hjálpa mér að ná heilsu á ný. Ég er nú byrja ég upp á nýtt að undirbúa mig undir stofnfrumusöfnun og lyfjagjöfin í dag fór bara þokkalega vel í mig. Ég gat dormað eitt augnablik og prjónaði þess á milli. Harpa hjúkrunarfræðingur sá um mig eins hvítvoðung og sá til þess að allt færi nú rétt fram.
Ég er búin að vera ágæt í dag, aðeins illt í hausnum og fótunum og í svitakófi annað slagið en hvað er það á milli vina. Hvítu blóðkornin eru frekar í lægri kantinum svo ég þarf að fara frekar varlega svo ég taki ekki einhverja flensu því það vil ég alls ekki núna.
Ég er þó að spá í að fara bara í mál við Blóðbankann því nú er í tísku að fara í mál við hina og þessa banka en þeir snuðuðu mig um 3.5 milljónir stofnfruma í síðustu talningu eins og ég hef sagt frá áður. Ég á því margar milljónir inni hjá þeim sem bera enga vexti né vaxtavexti, en þessar milljónir voru víst bara eintóm froða og voru aldrei til. Hljómar nokkuð kunnuglega ekki satt? Ég efast þó um að það beri nokkurn árangur að lögsækja Blóðbankann enda nenni ég ekki að standa í því enda ætla ég að bíta á jaxlinn og klára þetta mál í eitt skiptið fyrir öll.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.2.2012 | 23:48
Útkysst
Vertinn hefur verið heima undanfarna daga í afskaplega góðu yfirlæti og hefur haft það alveg glimrandi gott. Búin að labba tvisvar ofan í Bjarnabúð og einu sinni á Skýlið sem er nú engin smá vegalengd þegar sú sem þetta ritað á í hlut. Mamma er heimsótt daglega enda verður að nota tímann vel því langt verður á milli næstu heimsókna.
Ég byrjaði dvölina hér vestra á því að fara á þorrablót Grunnvíkinga á laugardagskvöldið í boði Höllu Signýjar vinkonu minnar og skemmti mér konunglega og dansaði meira að segja, ekki kannski trylltan dans en dansaði þó líkt og sönnum Grunnvíking sæmir. Ég var mest undrandi á því að ég skyldi getað dansað ennþá svona hliðar saman hliðar. Ég lagði þó ekki í " kokkinn" því ég var svo hrædd um að lenda á einhverjum karlinum sem myndi hringsnúa mér svo á dansgólfinu að ég sæi ekki til sólar meira. Ég sat því sem fastast og fylgdist með honum Jóni mínum stíga á tærnar á hinum kerlingunum í staðinn.
Ég er án efa sú útkysstasta persóna bæjarins því allir keppast um að smella á mig kossi hvar sem ég kem og hvert sem ég fer. Ég á víst skilið kossa þegar ég stend í þessari baráttu segja menn og útbreiddur faðmur er víða, svo hlýlega er tekið á móti mér eins og ætíð þegar ég kem heim. Kveðjur frá hinum og þessum dynja á mér og æði margir virðast með hugann við heilsufarið mitt.
Ég skrapp Ísafjörð í gær og viti menn, ég gat keypt mér eitt og annað á góðu verði. Það eru algjör forréttindi að fá að versla í flottum búðum sem allar eru á einum og sama blettinum, tískuvöruverslunin, garnbúðin, ljósmyndastofan og apótekið og ég veit ekki hvað og hvað. Ég held að það væri mikið nær fyrir höfuðborgarbúa að koma vestur til að versla frekar en að arka langa ganga í Smáralind og finna ekkert sem passar fyrr en eftir dúk og disk.
Sóknarpresturinn kíkti við í dag til að líta eftir mér og mínum og Laufey vinkona er væntanlega í hádeginu á morgun svo ætli það sé ekki tímabært að fara að halla sér.
Dægurmál | Breytt 15.2.2012 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm