3.2.2007 | 18:25
Ljúfur laugardagur
Laugardagur til lukku stendur skrifað og þessi er engin undantekning frá þeirri reglu. Ég er búin að vinna á skrifstofunni í dag og virðisaukinn er frá. Þvílíkur léttir.
Spilað var á fjórum borðum í spilavistinni í gærkvöldi sem er fínt þar sem margir af fastaspilurunum eru í burtu. Skammarverðalaun hlutu Ester Hallgríms og Doddi en hann hefur vermt neðsta sætið fyrr, hlutu þau kassa með eðalsúkkulaði rúsínum að launum. Sigurvegarar kvöldsins voru Hrólli Addýar og Pétur Jónsson og fengu þeir geisladisk með Villa Valla í verðlaun, en Halldór í Ögri gaf mér nokkra diska með þessum fyrrum bæjarlistamanni Ísafjarðarbæjar. Allar slíkar gjafir eru vel þegnar og koma sér vel. Nokkrir tónelskir tónlistarmenn og geðugir gítaristar hafa troðið upp í Kjallaranum og taka þetta til sín.
Áfram var spilaður rakki og kani fram eftir nóttu og slæðingur leit inn á kránna og sötraði söngolíu og sat að spjalli. Fínt kvöld með góðu fólki. Hljómsveitin Abba hljómaði í húsgræjunum ásamt írskum drykkjusöngvum við góðar undirtektir gesta.
Stútungur er út af borðinu svo Kjallarinn verður opinn í kvöld. Ég heyrði á kúnnunum mínum að þeir fylgjast með helstu uppákomum í Einarhúsinu á blogginu minu svo ég verð að reyna að standa mig áfram og blogga um það helsta sem ég bíð upp á.
Ætli ég drífi mig ekki í göngutúrinn á eftir. Snjóslæða hefur lagst yfir tún og engi og umhverfið því bjart yfir að líta þó farið sé að rökkva. Það hressir bætir og kætir að fara í góða gönguferð í góðu veðri og njóta þess fallega útsýnis sem hér er í boði.
Verið svo stillt og prúð og gerið nú ekkert sem ég myndi ekki gera
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2007 | 18:09
Út að borða
Bóndinn sló um sig í dag og bauð mér út að borða í hádeginu. Ég bjóst við rómantískum hádegisverði með kertaljósi og kósýheitum og var því full tilhlökkunar og eftirvæntingar. Ég klæddi mig upp á í kjól og hvítt og mætti þar sem mér var ætlað. Bóndinn strunsaði síðan með mig á efstu hæð stjórnsýsluhússins á Ísafirði þar sem pönnukökur fylltar af hrísgrjónum og gulum baunum biðu á þar til gerðu fati. Hlynur Snorrason og Helga Dóra í Tröð sátu með okkur til borðs og gerðu stundina ögn bærilegri og ég er ekki frá því að nærvera þeirra hafi náð að skapa rómantískt andrúmsloft um stund. Þess ber að geta að maturinn kostaði tvo matarmiða á mann og inn í því var sallad, sínalco og sósa.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2007 | 09:21
Horft til hafs
Ég sé að veðrið er gott og stillt. Steinhúsið gnæfir eyðilegt niður á Kambinum og horfir til hafs minnugt liðinna tíma þegar húsið iðaði af lífi. Maddý mágkona mín og Einar eiga húsið núna. Vonandi tekst þeim að reisa það aftur til vegs og virðingar þegar um hægist hjá þeim. Skin jólaljósanna hjá Magga Hans er eitthvað farið að dvína og lífið er að komast aftur í fastar skorður. Bakkavík hefur slökkt á skútunni sem gnæfir yfir bæinn um dimmasta skammdegið. Það birtir meira með hverjum deginum sem líður og birtan lýsir upp huga og hjarta.
Ég var að opna tölvupóstinn minn og sá þá bréf frá Steinþóri Bragasyni er varðar vegamál á Vestfjörðum þar sem hann leggur til að könnuð verði hagkvæmni þess að að tengja þjóðveg 61, Djúpveg í Kollafirði, með göngum þaðan í Ísafjörð í stað þess að leggja láglendisveg um miðbik Reykhólasveitar. Ég á eftir að lesa betur yfir hugmyndir hans og spekúlasjónir.
Mér finnst mjög ánægjulegt að framkvæmdir við Djúpveg skuli vera hafnar og hlakka til þegar ég get keyrt allt Djúpið á bundnu slitlagi.
Sá á pistlinum hans Gríms að Sigur Rós er húsnæðislaus. Ég tel það næsta víst að þeir hugsi með hlýhug hingað vestur og bíð þá velkoma. Ég myndi meira að segja lána þeim Kjallarann til að koma sinni músik á framfæri. Svona er ég nú góð inn við beinið.
Andri fer í flugprófið í dag svo loksins sér fyrir endann á þessu flugnámi hans. Hann er óttaleg óveðurskráka og oftar en ekki hefur helst yfir höfuðborgina stórt og mikið óveðursský þegar hann hefur átt að fara í flugtíma svo þetta nám hefur dregist fram úr hófi. Flugkennarar Flugskóla Íslands voru farnir að bregða á það ráð að bóka hann undir dulnefni til að leika á veðurguðina og var hann nefndur Ægir þegar svo bar undir. Ég er frá því að það hafi haft eitthvað að segja.
Elsa verður átján ára á næstunni og mikil tilhlökkun fylgir því. Samkvæmt nýjustu fréttum er stór afmælishátíð í vændum þar sem mikið verður um dýrðir og mörgum boðið. Vakin hefur verið athygli á því að gamalt fólk sé ekki vel séð í slíku teiti og þar er væntanlega átt við mig. Mér finnst ég vera lítið eldri en hún og hlusta því ekkert á þennan þvætting.
Í kvöld er þorrablót hjá bekknum hennar Lilju og sviðin bíða á borðinu eftir að verða soðin. Ef ég þekki þessa rollinga rétt þá verður eitthvað um samkvæmisleiki og ógeðsdrykki sem blandaðir eru af mkilli kostgæfni handa okkur foreldrunum. Það er bara gaman.
Stútungur er á Flateyri á laugardagskvöldið. Hver veit nema Vertinn setji slagbrandinn fyrir Kjallarann og skelli sér á Stútung og sletti svoldið úr klaufunum.
Spilavistin er í kvöld kl. 21:00. Vegleg verðlaun í boði að vanda.
Ekkert nýtt er að frétta af Þorrablótinu og Kútmaganum. Þið fáið að fylgjast með jafnóðum.
Njótum þess að vera til.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.2.2007 | 22:19
Andleysi
Óskaplega get ég verið andlaus stundum. Ég hef setið dágóða stund við tölvuna og rembst eins og rjúpan við staurinn við að upphugsa eitthvað viturlegt til að segja ykkur, en heilasellurnar virðast bara ekkert virka. Það er væntanlega vegna þess að nú er ég í óða önn að klára bókhaldsvinnuna fyrir virðisaukaskattsskilin á mánudag og það hreinlega þurrkar upp í mér heilann. Ég get ekki neitað því að mér er ekki mjög skemmt yfir þessari vinnu en ég er alltaf að reyna að vera jákvæð og líta björtum augum á tilveruna og verð að trúa því að þetta hafist í tíma.
Það að geta haft jákvæðni í farteskinu gerir lífið svo leikandi létt og allir vegir verða svo greiðfærir, hvernig sem viðrar. En til að geta verið jákvæður þarf maður vera í góðu jafnvægi og eiga ró innra með sér. Þegar ógnarmáttur áfengis nær tökum á fólki glatast þessi innri ró og reiði og pirringur nær tökum á sálinni sem gerir það að verkum að fólk breytist. Lífið leiddi mig inn á þessa braut og þau spor sem ég steig með Bakkus mér við hlið voru óheillaspor, en samt reynsla sem ég bý að alla ævi. Öll reynsla sem við öðlumst, hvort sem hún er góð eða slæm, gerir okkur að þeim manneskjum sem við erum. Þetta er ekki flóknara en það. Það vill til að ég er enn jafn hrekkjótt, óþekk og stríðin og nýti hvert tækifæri til að slá um mig með hæfilega klúrum aulabröndurum sem yfirleitt engin hefur gaman af. Ég tel það mikinn kost í fari fólks að hafa góðan húmor og ég hef þá trú að hláturinn lengi lífið.
Ég hafði það af að skrifa grein um væntanlegt íbúaþing sem send var fréttablaðinu í dag. Hún birtist einhvern næstu daga í blaðinu. Það virðist hvergi vera friður vera fyrir málæðinu í mér.
Nú ætla ég að viðra mig örlítið fyrir svefninn. Ætli ég taki ekki á mig rögg og labbi til hennar Gunnu Jóns vinkonu minnar á Holtunum. Hún þykist vera að flytja í burtu í vor. Ég ætla að reyna að snúa ofan af henni og leiða henni fyrir sjónir hversu yndislegt er að búa hérna og að suður sé ekkert að sækja.
Læt þetta duga í bili enda dauðþreytt eftir daginn.
Heyrumst
Dægurmál | Breytt 2.2.2007 kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.1.2007 | 09:04
Janúar kveður.
Síðasti dagur janúarmánaðar er að renna upp og hann lofar nokkuð góðu. Veðrið virðist vera gott svona við fyrstu sýn svo janúar virðist stíga síðustu skrefin í sátt við Guð og menn.
Dagurinn í gær var erilsamur, ég er í raun hálfundrandi hve miklu ég kom í verk. Sumir dagar virðast nefnilega komast upp með það að líða án þess ég geri nokkuð af viti.
Fyrst ber að nefna að ég hafði það af að panta tíma fyrir bílinn í skoðun en eitthvað virðist það hafa dregist fram úr hófi. Hin vökulu augu laganna varða hér vestra hafa fylgst nokkuð grant með mér og gefið mér illt auga vegna þessa undanfarið. Sumir þessara annars ágætu þjónar réttvísinnar hafa dregið augað í pung í hvert sinn sem þeir hafa mætt mér og ygglt sig yfir þessari yfirsjón minni. Þannig að nú geta þeir farið að elta uppi alvöru glæpamenn og einbeitt sér að öðru en að fylgjast með hverju mínu fótmáli á bílnum.
Það kom reyndar í ljós í skoðuninni að eitt dekkið var ónýtt svo ég brunaði beint á dekkjaverksstæði og lét skipta. Arkaði á meðan á Langa Manga og fékk mér swiss mokka og átti gott spjall við vertinn þar. Hann var í góðum gír að vanda, greip þó ekki í gítarinn og söng slagara að þessu sinni enda ekki vinsælt á þeim ágæta bar að vera með einhvern óþarfa hávaða ef marka má fréttir af klögu og kærumálum sem birtast af og til í BB á hendur þessum ágæta stað. Ég rek tærnar stundum þangað inn og finnst það ágætt en það verður enn betra þegar reykingar verða ekki leyfðar þar lengur.
Ég fór til Árnýjar en hún var búin að klára myndirnar af Pétursfólkinu. Ég er alveg hæstánægð með útkomuna en hún þurfti að vinna þær töluvert upp úr bókinni Brimgný en þar segir Jóhann Bárðarson sögu Péturs Oddssonar og hans fjölskyldu. Ég prúttaði reyndar aðeins um verðið á myndunum við litla ánægju ljósmyndarans, en ég verð að hugsa um hverja krónu. Ég hef reglulega gaman af því að segja sögu fólksins sem búið hefur í húsinu og mikla ánægju af því að glæða það lífi liðinna tíma með myndum.
Eftir það lagði ég leið mína í Bókhlöðuna eftir myndarömmum. Það er nú eitt. Alltaf er ég jafn forundrandi yfir afgreiðslunni þar. Afgreiðslumennirnir strunsa æði lítið brosmildir af einu borði á annað og vísa mér út um alla verslun eftir þeim hlutum sem mig vantar. Oftar en ekki verð ég svo rugluð að ég kaupi eintóma vitleysu bara til að losnað þaðan út. Fallega brosið hans Orra gerir það þó að verkum að ég slysast þangað inn öðru hverju. Þeir eru heppnir að hafa hann í vinnu.
Afmæli sundlaugarinnar fór vel fram. Margar ræður voru fluttar og sundlauginni bárust góðar gjafir. Toppurinn var svo kappsund milli Einars og Gríms en Óli Kitt bar fyrir sig bakverk á ögurstundu. Auðvita vann Einar, það var vitamál enda liðtækur sundkappi og Sjálfstæðismaður af bestu sort. Þó hafði Grímur töluvert forskot því hann er jú mikið hærri en Einar og það hlýtur að hafa eitthvað að segja. Boðið var upp á tertu á eftir en ég lét það eiga sig að smakka á henni.
Breytingar verða varðandi kútmagakvöldið. Þeir á hótelinu geta bara útbúið þá 10. febrúar, sama kvöld og ég ætlaði að hafa þorrablótið svo eitthvað fokkast þetta upp. Við verðum að láta sjá hvað setur.
Gógó vonkona mín á Flateyri verður næsti spyrill í Kjallarakppni 9. febrúar en Ómar Már sveitastjóri í Súðavík er á leið til Ásralíu svo hann spyr síðar. Við Ómar erum þremenningar, ömmur okkar voru systur, þær Ingbjörg og Auður Sigríður dætur áðurnefnds Hjálmars ( Hjalla Tudda). Gógó er hress og kát og án efa verður gaman að glíma við þær spurningar sem hún leggur fyrir gesti.
Ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili og fari að gera eitthvað af viti.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2007 | 11:04
Afmæli sundlaugar.
Þá er bæjarráðsfundurinn búinn, þar var mikið rætt og mikið talað. Ég er eiginlega orðin þurrausinn eftir allt þetta málæði svona snemma dags. Gleðitíðindi bárust að bæjarstjórar á Vestfjörðum fara ásamt fylgdarliði á fund ríkisstjórnar og þingmanna svæðissins á föstudaginn. Það hlýtur að teljast jákvætt ef við getum unnið í sameiningu að málefnum fjórðungsins. Vonandi kemur eitthvað gott út úr þessari ferð.
Sundlaug Bolkungarvíkur fagnar 30 ára afmæli sínu í dag. Veisla verður fyrir bæjarbúa kl. 17:30 og þar kemst ég eina ferðina enn í tertur og tilheyrandi. Spenntust er ég fyrir kappsundi bæjarstjóra sem verður háð í sundlauginni. Grímur, Óli og Einar etja kappi í að troða marvaða. Mikið skal ég skemmta mér yfir því. Mér er mjög minnistætt þegar sundlaugin var tekin í gagnið. Kristján Möller kenndi okkur sundtökin og er það trúlega honum að þakka að miklu leiti að ég er þokkalega synd. Áður en laugin kom hérna fórum við krakkarnir á sundnámskeið inn á Ísafjörð með Kela á rútunni og það var vissulega ævintýri út af fyrir sig.
Halla Signý þurfti að dvelja á sjúkrahúsinu á Ísafirði í nótt en hjartað í henni tók upp á því að slá í einhverjum óreglulegum takti. Þriðja hvert slag sló hreint ekkert í takt við hin tvö á undan svo þetta var orðin hálfgerð taktleysa allt saman. Hún er búin að jafna sig sem betur fer, enda er ólseigt í kerlingunni. Hún er í óða önn núna að senda út glaðningarseðla frá bæjarskrifstofunni í formi fasteignaálagningar.
Baldur Smári vakti athygli á Vertinum á bloggsíðu sinni í gær. Sagði að ég væri frábær og yndisleg í alla staði. Baldur er fínn. Hann hefur reyndar haft í nógu að snúast undanfarið og rólegra hefur verið yfir Víkara.is en oft áður, en eitthvað er nú heldur að glæðast yfir þeim ágæta vef núna. En skýringin fyrir þessum miklu önnum Baldurs er auðvita sú, að hann hefur haft ''öðrum hnöppum að hneppa''.
Fjárans bókhaldið bíður og ég ætti að reyna að taka mig saman í andlitinu og fara að klára að vinna það.
Þið heyrið kannski betur í mér í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2007 | 20:29
Hitt og þetta.
Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið og ég er strax farin að huga að hljómsveit fyrir þorrablótið að ári. Það er eitt af skyldum formanns þorrablótsnefndar að útvega almennilegt band sem sérhæfir sig í gömlu dönsunum, nýbylgjurokki og pönki af ýmsu tagi. Ég verð auðvita að toppa öll fyrri blót og lág því beinast við að tala við Mick Jagger söngvara Rollinganna en ég tel mig þekkja hann ágætlega, a.m.k. á myndum. Elton John er nýbúin að troða hér upp í veislu og þykir ekki lengur flott að bjóða upp á spangólið í honum blessuðum karlinum. Skemmst er frá því að segja að Mick Jagger tók vel í hugmyndina og sagði það vera sérstaka upphefð fyrir hljómsveitina að fá að troða upp í þvílíku krummaskuði eins og Bolungarvík og þótti honum Félagsheimilið tilvalinn staður til að syngja gleðisöngva eins og ''I cant get no satisfaction'' og fleiri slagara í svipuðum dúr. Gaman væri ef Elvis Presley myndi syngja í hléum sínar ballöður til að hleypa rómatíkinni á hærra plan en eins og allir vita þá lifir Elvis enn, svo honum ætti því ekki að vera skotaskuld úr því að mæta hér vestur og taka lagið. Til öryggis ef allt myndi klikka þá hafði ég samband við Möggu Geirs sem er söngkona í stórsveit Baldurs Geirmunds og Möggu Geirs á Ísafirði og ég vona svo sannarlega að þau verði tilbúin að skemmta ef þeir Mick og Elvis forfallast. Hafði haft af því spurnir að þau væru upp pöntuð langt fram tímann svo ég ákvað að vera tímanlega og hringdi í Möggu í dag. Þau eru mjög skemmtileg á sviði og einstaklega fjörug og í ljós kemur á næstu dögum hvort þau verða tilkyppileg ef á þarf að halda.
Það er búið að rigna eldi og brennisteini dag. Sparisjóðurinn sýndi sjö gráður um hádegisbilið og ekki lýgur hann. Nýja skiltið út á Óshlíð sýndi tíu gráður og logn um miðjan dag. Þetta veðurfar er alveg með eindæmum núna í enduðum janúar.
Ég fór á fund með stýrihóp um Íbúaþing sem halda á 10. febrúar, en það var símafundur með fyrirtækinu Alta sem heldur utan um skipulagningu þingsins. Ég á eftir að skrifa grein um sýn mína á slíkt íbúaþing og hver veit nema eitthvað fæðist í huga mér seinna í kvöld sem ég get fest niður á blað um það.
Þorrablót Bolvíkingafélagsins er um næstu helgi í Reykjavík og leggja fjölmargir Bolvíkingar leið sína þangað. Ég hef aldrei farið á þetta þorrablót en á kannski eftir að upplifa það áður en ég leggst undir græna torfu.
Ég stefni á að halda Þorrablót í Kjallaranum 10. febrúar og sendi ég auglýsingu þess efnis frá mér fljótlega. Benedikt Sigurðsson eða Benni Sig. verður mér til halds og trausts, en hann ætlar að spila undir fjöldasöng og syngja gamanvísur. Síðan mun enginn annar er Hrólfur Vagnsson mæta með nikkuna og spila fyrir dansi eitthvað fram eftir. Ég veit að þetta á eftir að verða stór skemmtilegt. Nú verður forvitnilegt að sjá hvort einhver áhugi er fyrir slíku Þorrablóti en engar reglur ríkja um hverjir hafa aðgang að þessari skemmtun. Haldið verður í reglur og hefðir sem ríkja í Einarhúsi um reykingar en þær eru alfarið bannaðar. Það sígur verulega í Vertinn ef þær reglur eru brotnar og menn gera það ekki nema einu sinni.
Svo ég upplýsi hér hluta af stóru leyndarmáli þá er ég að íhuga að sækja um starf á Ísafirði á morgun sem er laust til umsóknar. Ég tel það næsta víst að ég verði frambærilegasti umsækjandinn en það á víst eftir að koma í ljós.
Bæjarráðsfundur í fyrramálið. Án efa get ég sagt ykkur einhverjar fréttir af þeim fundi.
Bið að heilsa í bili.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2007 | 18:37
Íþróttamaður ársins.
Íþróttamaður ársins í Bolungarvík var valinn áðan við hátíðlega athöfn í Félagsheimilinu. Rögnvaldur Magnússon varð fyrir valinu að þessu sinni fyrir að skara fram úr í golfíþróttinni og ber hann þennan titil með sóma. Rögnvaldur stundar nám í háskóla í Danmörgu og var því fjarverandi en pabbi hans tók við myndarlegum bikar og viðurkenningum fyrir hans hönd. Margir fengu viðurkenningar fyrir góðan árangur í sínum íþróttagreinum og sendi ég þeim öllum hamingjuóskir. Það svignuðu veisluborð undan dýrindis tertum og öðru góðgæti sem Valli bakari og Gunnhildur reiddu fram af sinni alkunnu snilli.
Ísinn hafði hopað síðan í gær en ísspöngin lá hér rétt útaf í gær. Mér þótti öruggara að hafa teygjubyssuna mína tilbúna ef á þyrfti að halda ef ísbirnir gengu á land en sú varúðarráðstöfun reyndist ástæðulaus. Samt eru stjakar á víð og dreif um Djúpið sem líkjast snjóhnoðrum á haffletinum. Tilkomumikil sjón.
Veðrið í dag hefur verið dásamlegt. Ég og Lilja höfum varið deginum að stórum hluta í hesthúsunum. Við fórum í reiðtúr á Blesa mínum og Brá. Lékum okkur í gerðinu og höfðum gaman. Blesi fer með mig eins og drottningu en er ekki mjög sprettharður og vill fara rólega enda kominn til ára sinna. Ég prufaði Brá í fyrsta sinni en hún þykir mjög góður reiðhestur. Hún er einstaklega þíð skepna en töluvert viljugri en Blesi. Ég held að fátt slái því út að fara fetið á góðum klár í góðu veðri og njóta náttúrunnar.
Köld slóð er í bíó í kvöld. Ég hef heyrt að hún sé ekkert síðri en Mýrin og þá hlýtur hún að vera góð. Ætli við skellum okkur ekki bara í bíó í kvöld og brjótum hversdagsleikann aðeins upp. Þá eru allir sáttir við að ganga inn í nýja viku.
Ég fór á ráðtefnu um friðlandið á Hornströndum í gær og þótti einstaklega áhugavert það litla sem ég sá. Hefði alveg viljað vera lengur en það er víst ekki hægt að vera allstaðar.
Frekar rólegt var í Kjallaranum um helgina. Ég lokaði frekar snemma á föstudagskvöldið en reitingur var að gera í nótt svo ég var með opið til kl. 03.00. Ég er nýbúin að setja upp spald fyrir pílukast og þó nokkrir spreyttu sig á því um helgina. Spilavistin er síðan á föstudagskvöldið og undirbúningur þorrablóts í vændum. Ekkert nema skemmtilegt framundan.
Læt þessar hugleiðingar mínar nægja í bili.
Dægurmál | Breytt 29.1.2007 kl. 01:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.1.2007 | 11:23
Þórunn þokkadís.
Þórunn Inga kærastan hans Andra á afmæli í dag. Hún er nítján ára gömul. Þórunn er eineggja tvíburi svo systir hennar, Þóra Björg fagnar sínum afmælisdegi líka. Þær sveita stöllur eru frá Enniskoti í Víðidal sem er í Vestur Húnvatnssýslu og þar dvelja þær á afmælisdaginn. Stefnan er tekinn á þorrablót í Víðihlíð í kvöld og þar á án efa eftir að vera gaman. Ég hefði verið til í að vera þar með þeim.
Húsfrúin í Dæli í Víðidal er góð vinkona mín en þar rekur Sigrún ásamt Villa sínum myndarlegt ferðaþjónustubýli. Þangað fer ég reglulega í heimsókn og mér finnst æðislegt að vera þar. Elsa hefur unnið þar undanfarin sumur við þrif, hesta umhirðu og ýmislegt annað sem til fellur. Það verður að segjast eins og er, að þar sem ég og Sigrún koma saman, þar er gaman. Hún verður örugglega á blótinu í kvöld í Víðihlíð kerlingin sú. Það er alltof langt síðan við höfum átt góða kvöldstund saman.
Ég get sem sagt átt von á því að þegar ömmubörnin fara að hrúgast niður gætu komið tvö og tvö í einu. Þetta getur víst gengið í erfðir. Ég er þegar farin að koma með uppástungur varðandi nöfn á tvíburana og hef ég aðalega mitt nafn í huga enda einstaklega fallegt og passar bæði á drengi sem stúlkur. Litla Ragna og Jóhann litli er alveg tilvalið finnst ykkur ekki?
Heyrði sérstök mannanöfn nýverið eins og Stormur og Styr og Ljúfur og Spakur. Þetta hafði ég aldrei heyrt fyrr. Nafnið Glóð hljómaði í fyrsta sinn í eyrum mér nýverið, það er sérstakt en fallegt.
Ég átti að heita Guðbjörg Hjálma eftir langafa mínum og langömmu Hjálmari Þorsteinsson og Guðbjörgu Sigurðardóttur. Hjálmar hafði viðurnefnið Hjalli Tuddi en hann þótti skaptyggur á köflum en var mikið gæðamenni inn við beinið, þau ólu mömmu upp í gömlu húsi niður á Kambinum. Pabba dreymdi rétt fyrir skírnina mína að pabbi hans kom að vöggunni minni og bað um nafnið. Það var þá ákveðið að ég skildi heita Ragna Jóhanna í höfuðið á honum en hann hét Ragnar Jóhannsson og var frá Garðsstöðum. Hann dó ungur af slysförum og þótti fríðleiksmaður og framúr hófi myndarlegur. Það virðist fylgja nafninu. Margar bera nafnið hans, þ.m.t. Ragna á Laugarbóli.
Mig langar svo í lokinn að senda ykkur afmæliskveðju kæru systur Þórunn og Þóra. Góða skemmtun á blótinu í kvöld.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.1.2007 | 21:19
Fyrsta baðið.
Komst nú aldrei svo langt að fara á Hornstranda ráðstefnu í dag. Ætla að reyna að fara í fyrramálið og hlusta á erindi um hvert stefni í ferðaþjónustu- hagræn áhrif og möguleikar til framtíðar. Reyndar er margt annað áhugavert á morgun sem gaman væri að hlusta á.
Formaður Húsfriðunarnefndar Magnús Skúlason kom í heimsókn í Einarshúsið í dag en húsið hefur fengið styrki frá Fjárlaganefnd Alþingis sem Húsfriðunarnefnd útdeilir. Við erum mjög sátt við þann styrk sem runnið hefur til hússins. Magnús er stórskemmtilegur karl og ég heimsæki hann reglulega þegar ég fer suður. Hann er mjög umsetinn og upptekinn alla jafna og fólki ber að panta sérstaka viðtalstíma. Ég geri það aldrei heldur mæti á staðinn og brosi mínu blíðasta þegar Magnús maldar í móinn. Ég er ansi lagin við að brosa mínu blíðasta til þeirra sem hafa yfir að ráða peningum sem ég hugsanlega get nýtt til að gera upp húsið. Maður tapar aldrei á því að brosa. Næst þegar ég kem suður ætlum við að skella okkur í heita pottinn en hann fer daglega í sundlaugarnar. Magnús er mjög ánægður með þær framkvæmdir sem eiga sér stað í húsinu enda er þetta sögufrægt hús með mikla sögu.
Til gamans gríp ég niður í Einars sögu Guðfinnssonar.
Fyrsta baðkerið í Bolungarvík, sem vatn var leitt að, var í Einarshúsi. (Það var að vísu gamalt baðker úti í Sameinaða, en það var borið vatn í það.) Í baðkerinu í Einarshúsi fengu ýmsir utan heimilis að baða sig, þar á meðal læknirinn, Sigurmundur Sigurðsson. Það var nú svo um þann ágæta mann, Sigurmund, að þótt hann væri greindur, þá var hann misgreindur. Hann virtist til dæmis ekki vera sterkur í eðlisfræðinni, ef dæma má af aðförum hans í baðkerinu í Einarshúsi. Hann fleytifyllti ævinlega baðkerið, áður en hann fór niður í það, og þá náttúrlega sullaðist úr kerinu og flóði útum allt gólf.Gólfið var trégólf og undir baðherberginu var klæðaskápur Elísabetar og dætranna. Þær báru sig illa undan þessu flóði frá lækninum, en frúin harðbannaði að þetta væri nefnt við lækninn, því hún vildi ekki styggja hann, henni var vel til hans, eins og flestum Bolvíkingum. Þetta gerðist eins í hvert skipti, sem hann fór í bað, að hann fleytifyllti kerið og fór svo uppí það, og hann áttaði sig aldrei á þessari staðreynd, að þá myndi flæða útúr kerinu.
Ég vona að læknishjónin hér í bænum þau Íris og Lýður hafi tekið betur eftir í eðlisfræðitímum en doktor Sigurmundur.
Ekkert sérstak verður um að vera í Einarshúsinu um helgina. Opið eitthvað fram eftir nóttu eða eins og Vertinn nennir.
Gangið svo hægt um gleðinnar dyr.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 635851
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm