10.2.2007 | 19:18
Grein vegna Íbúaþings birtist í BB
Í Bolungarvíkinni er björgulegt lífið.
Svona hljóðar upphafsstefið í Bolungarvíkurbrag eftir Gísla Ólafsson úr Skagafirði sem ortur var árið 1916. Bragurinn er í 17 erindum en oftast eru bara sungin fyrstu tvö erindin. Allir Bolvíkingar geta tekið höndum saman og sungið þennan brag sem einn maður og þá skyggir ekkert á samheldni bæjarbúa, allir halda lagi og dilla sér með í góðum takti. Segja má að þessi söngur sé okkar sameiningartákn og þegar við kyrjum hann saman á góðri stundu, fyllumst við stolti yfir því að vera Bolvíkingar. Það er rok, rok ég ræ ekki, hefur síðan smokrað sér inn í þennan taktfasta texta og er sungið sem eitt sérstakt erindi á Þorrablótinu hér í bæ. Krækja menn þá höndum saman og róa sér í sætunum líkt og stefnan væri tekin á gjöful fiskimið, er stefið er sungið.
Það er rok, rok ég ræ ekki...hvað geri ég þá? er einmitt yfirskriftin á Íbúaþingi sem halda á 10. febrúar nk. hér í Bolungarvík. Þessi yfirskrift vekur vissulega upp spurningar um hvert stefnir hér í byggðarlaginu en líka hvaða úrræði við sjáum fyrir okkur í framtíðinni til að eflast og styrkjast. Ekki ætlum við að leggja árar í bát heldur róa á mið sóknar og tækifæra, því mikill dugur er í Bolvíkingum og samstaða ríkir um velferð bæjarins.
Á þessum íbúaþingi verður leitast við að fá hugmyndir bæjarbúa um þeirra framtíðarsýn á byggðarlagið. Metnaðarfull dagskrá hefur verið unnin þar sem áhersla er lögð á atvinnumál, umhverfi, útivist og yfirbragð sem og ásýnd byggðarinnar svo fátt eitt sé nefnt.
Ég bind vonir við það að sem flestir mæti á þetta þing og móti sér skoðanir á samfélaginu sem við búum í og sköpum saman og komi með tillögur um hvernig best sé að feta veginn áfram í átt að enn björgulegra lífi í Bolungarvík.
Mættu á staðinn og taktu þátt, því þín skoðun skiptir máli.
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir. Bæjarfulltrúi og starfa í stýrihópi um íbúaþing.Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.2.2007 | 09:55
Afmæli
Elsa mín á afmæli í dag, hún er átján ára gömul blessuð stelpan. Það er orðið hart þegar börnin eru að verða eldri en maður sjálfur. Það verður víst meiriháttar teiti í kvöld fyrir félagana og án efa mjög gaman. Til hamingju Elsa og stattu þig áfram jafn vel og þú hefur gert hingað til.
Annars er ég að verða of sein á íbúaþingið, svaf eiginlega yfir mig því ég þurfti að vaka svo lengi.
Heilmikið fjör í gær sem ég segi ykkur frá síðar í dag.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.2.2007 | 01:13
Seiðandi, sjóðheit og sæt
Ég eignaðist einkaflugmann í gær. Andri stóðst prófið með ágætum enda ekki við öðru að búast, strákurinn er bráðskarpur eins og mamma sín. Ég get ekki séð að ég geti vikið mér undan því að fljúga með honum fljótlega. Mig grunar þó að hann eigi eftir að taka mig á taugum, fljúga á hvolfi, taka nokkur stoll og æfa nauðlendingar með kerlinguna innanborðs. Sá fær þá á baukinn. Hann hefur tekið sólópróf í svifflugi en ég tel það stórhættulegt og bara fyrir ofurhuga og upp í svifflugu fer ég aldrei í lífinu alveg sama hvað tautar og raular.
Ég var boðin í skötu til mömmu eftir bæjarstjórnarfundinn og hún rann ljúflega niður. Þrif biðu í Einarshúsinu því súpufundur Sjálfstæðismanna er í hádeginu á dag, föstudag. Þar heimsækja okkur þingmenn kjördæmisins og fékk ég Dóru Línu sem er mikill snillingur í súpugerð til að elda fiskisúpu. Sjálfstæðismenn hittast alltaf í súpu í hádeginu annan föstudag í hverjum mánuði og þar eru bæjarfulltrúar viðstaddir til skrafs og ráðagerða.
Úrskurður kom varðandi veikindi tengdapabba. Það var eins og við var að búast, krabbamein hefur tekið sér bólfestu í honum og hreiðrað um sig bæði í ristli og lifur. Búið var að fjarlæga æxlið úr ristlinum og góðar fréttir bárust í gær um að hægt væri að taka meinið úr lifrinni líka en það telst til undantekninga að það sé hægt. Þannig að reglulega góðar fréttir bárust í bland við þær slæmu svo þetta jafnaðist aðeins út. Það er því full ástæða til bjartsýni og við horfum fram á veginn jákvæð og vongóð. Karlinn er frekar hress enda geðgóður með afbrigðum og lætur ekki á því bera að þetta komi honum úr jafnvægi.
Hef haft af því spurnir að það sé flókin aðgerð að setja inn athugasemdir á bloggið mitt. Nú á að vera búið að færa það til betri vegar svo nú á það að vera auðvelt og ekkert mál. Ég var farin að halda að engin ykkar kynni að skrifa svo nú er lag að fara að koma með innlegg í umræðuna. Það er svo skemmtilegt ef ég fæ að heyra ykkur segja mér hvað ég sé æðislega skemmtileg, seiðandi, sjóðheit og sæt.
Nú er ég komin með óráð eins og þig heyrið og tel tímabært að ég hætti þessu bulli og fari og halla mér.
Verð vonandi komin með ráð og rænu þegar ég blogga næst.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
8.2.2007 | 15:50
Nú hlær marbendill
Kristinn H. Gunnarsson sagði sig úr Framsóknarflokknum og gengur í lið með Frjálslyndum.
Ef þið viljið sjá framtíðina ljóslifandi fyrir ykkur, komið þá til mín ég tek að mér að spá í bolla, bala og hlandkoppa af öllum stærðum og gerðum.
Vertinn
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.2.2007 | 11:19
Íþróttameiðsl
Dreifibréfið fer í póst í dag. Yfirleitt eru þau öll með sama sniði en kaffibollinn og bjórkannan sem eru aðalsmerki Kjallarans fengust ekki til að vera til friðs og voru því ekki með á dreifibréfinu sem þið fenguð að sjá í gær.
Mig hlakkar svo til að hitta Gógó sem er spyril Kjallarakeppninar en það er alltof langt síðan við fífluðumst saman síðast. Hún er eldhress og skemmtileg. Hún hefur fengið að upplifa erfiðleika í sínu lífi en stendur svo keik og ber sig svo vel. Hún er dugleg stelpa. Við höfum farið með körlunum okkar á fótboltamót fyrir gamla lögreglumenn og svitnað þar yfir glæsi tilþrifum okkar manna í boltanum og hvatt þá áfram af bestu getu. Oftar en ekki hafa þeir verið skakkir og skældir og skakklappast heim. Það eru víst kölluð íþróttameiðsl. Í slíkum leikjum ætla þeir sér mikið meira en getan segir til um. Blessaðir karlarnir.
Kútmaginn er orðinn ákveðinn 17. febrúar og það er verið að setja saman stórband sem mun troða upp í tilefni þess. Það verður mjög spennandi að sjá og heyra hvernig það kemur til með að hljóma. Þar fara fremstir í flokki ungir piltar sem ég hef miklar mætur á.
Góugleðin verður svo 24. febrúar og þá munu Benni Sig og Hrólfur Vagns vera mér til aðstoðar eins og áður var ákveðið.
Við erum bara einar heima mæðgurnar ég og Elsa. Restin er í Reykjavík. Veikindi eru að koma upp í fjölskyldunni og fundur með aðstandendum síðar í dag. Vonandi fer þó allt vel. Það þýðir ekkert annað en að vera bjartsýnn og vongóður.
Ég byrjaði að taka pabba upp á bandi í gærkvöldi og hann fór á kostum eins og búast mátti við. Hann hefur svo gaman af að segja frá og er svo minnugur og fróður. Ég var að pikka hans æviágrip á tölvuna til klukkan tvö í nótt og er orðin stíf í öxlunum. En ég verð að fórna mér fyrir málstaðinn og tek bara íbúfen og læt sem ekkert sé.
Bæjarstjórnarfundur í dag. Ég held að hann verði rólegur miðað við þau mál sem fyrir honum liggja. Stóra refa og tófuskottsmálið er á dagskrá og gæti verið tekist á um það en ég er búin að fá greitt fyrir skottið mitt svo þetta er ekki eins mikið hitamál í mínum augum og það væri ella. Auðvita er þetta sagt í gríni því verk bæjarfulltrúa er að vinna að framfaramálum í byggðarlaginu sem flestum bæjarbúum til handa, eins og kostur er . Ég tel það einn versta ókost í fari bæjarfulltrúa eða fólks í slíkum störfum að ganga erinda síns sjálfs og sinna nánustu á pólitískum vettvangi . Það á ekki að eiga sér stað.
Ég er svo spennt hvað Kristinn H. Gunnarsson ætlar að gera en hann tilkynnir áform sín í dag um sína pólitísku framtíð. Ég munstraði hann í frjálslynda flokkinn um daginn eins og einhverjir kannski muna. Koma mun í ljós í dag hversu sannspá ég var.
Best að fara í hesthúsin að hleypa þessum greyjum út í daginn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 18:59
Dreifibréf
Kjallarinn - Einarshúsi
.
Hafnargötu 41Bolungarvík
Sími 456-7901 og 864-7901
Kjallarakeppnin
Föstudagskvöldið 9. febrúar
Spyrill kvöldsins er föngulegt fljóð frá Flateyri.
.
GÓGÓ
.
eða Gróa Haraldsdóttir
húsfrú.
Kjallarakeppnin hefst stundvíslega klukkan 22.30.
Tilboð í gömlu kolageymslunni
Lokað laugardagskvöld vegna einkasamkvæmis
Súpufundur Sjálfstæðismanna í hádeginu 9. febrúar.
Spilavist 16. febrúar.
Kútmagakvöld 17. febrúar.
Kjallarakeppni 23. febrúar.
Góugleði 24. febrúar.
http://www.vertinn.blog.is/blog/vertinn/
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.2.2007 | 12:16
Sólstafir
Harpa Oddbjörnsdóttir segir nú sögu sína á BB í afar áhugaverðum pistli en hún þurfti að þola kynferðismisnotkun á sínum uppvaxtarárum. Ég dáist að dugnaði hennar, kjarki og þori að koma fram. Hún stendur svo sterk á eftir og ber höfuðið svo hátt. Ef það væri ekki fyrir konur eins og hana þá lægi þessi ófögnuður í enn meiri þagnar og leyndardómshjúpi. Nú er unnið hörðum höndum að stofnun systursamtaka Stígamóta hér á svæðinu sem munu bera nafnið Sólstafir. Það er fallegt nafn sem hentar vel á slík samtök og er það von mín að Sólstafir glitri um sumardag. Sælt verði á grund og engi. Algróið tún og unnið flag, ilmi í sunnanvindi. Geri ég þarna orð Guðmundar Inga Kristjánssonar skálds á Kirkjubóli í Bjarnadal að mínum. Ég vona að stelpunum gangi vel.
Grazyna er orðin bloggvinur. Það er kjarnorkukona sem stendur sig frábærlega. Hún bjó hér um nokkurt skeið og er þar af leiðandi Bolvíkingur og ein af stelpunum okkar. Merkilegt hvað strákarnir og stelpurnar okkar standa sig vel og skara fram úr hvar sem drepið er niður fæti. Maður á að vera stoltur af sínu fólki ef það stendur sig vel.
Óttarr er líka nýr í bloggvinahópnum. Hann er bróðir hennar Sibbu konu Geira á sjoppunni (er ég þá Ragna kona Jóns í löggunni??) og telst því eiginlega vera einn af strákunum okkar. Það var hann sem pantaði eintak af bókinni hans pabba og því hlítur að vera eitthvað i strákinn spunnið.
Bið að heilsa í bili.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.2.2007 | 14:16
Með sól í sinni.
Bæjarráðsfundurinn afstaðinn. Farið var yfir drög að samningi vegna Fræðaseturs sem á að hafa aðsetur hér en sá samningur verður lagður fyrir bæjarstjórn á fimmtudaginn. Lagt var fram erindi frá Grunnavík ehf. en höfuðpaurinn þar og yfirskipstjórinn er Frikki Jó og hann hefur verið með bátsferðir á Ramónu yfir í Jökulfirði og Strandir undarfarin sumur. Ég fór með honum til Hesteyrar í sumar og skemmti mér hið besta. Báturinn duggaði við og við en ég lét sem ég væri alvön slíku vaggi og velti og bar mig mannalega. Bréf frá Eygló Harðar fráfarandi formanni þorrablótsnefndar var einnig til umræðu en hagnaður af þorrablótinu var 65 þúsund krónur og var það lagt inn á reikning í sparisjóðnum til stólakaupa í Félagsheimilið. Einnig var farið yfir ferð sem bæjarstjóri og formaður bæjarráðs fóru í með forystumönnum sveitarfélagana á Vestfjörðum nýverið. Þessi fríði flokkur hitti ríkisstjórn Íslands og fór yfir helstu áherslumál okkar í þá veru að efla og styrkja fjórðunginn.
Mér fannst bæjarráðsfundurinn reglulega góður og gagnlegur, einungis var rætt um það sem skiptir máli og ekkert þar fyrir utan. Ég var svo einstaklega geðgóð að vanda og naut þessa fundar fram í fingurgóma. Sem sagt dásamlegt.
Ég kláraði afmælisbraginn í nótt en hann átti pantað flugfar til suðrænna sólarstranda eldsnemma í morgun svo það var ekki um annað að ræða en að klára hann. Alltaf gott þegar eitthvað klárast. Það tekur reyndar alltaf eitthvað annað við en það er víst gangur lífsins. Ekki væri ég sátt við að vera aðgerðarlaus og sjá ekki fram á nein verkefni í framtíðinni.
Sólin leikur sér að geislum sínum í dag og skín jafnt á réttláta sem rangláta og ægifagurt er um að lítast í Víkinni. Það eru fáir staðir að mínu mati sem hafa á að skipa jafn fallegum fjöllum og þeim sem faðma okkur að sér hér og umvefja okkar yndislegu Vík. Ernirinn, Óshyrnan og Traðarhyrnan gjóa augunum hvert til annars og kinka blíðlega kolli er þau vaka yfir hverju okkar fótmáli. Glöggt má sjá steinrunnin tröll fara fetið upp fjallshlíðar og kletturinn Þuríður breyðir út faðminn mót hækkandi sól.
Finnst ykkur ég ekki vera skáldleg. Ef ég vissi ekki betur þá héldi ég að ég væri Matthías Jochumsson, Bólu Hjálmar eða Hallgrímur Pétursson.
Helgi Seljan er nýjasti bloggvinurinn minn en Hákon bróðir hans er kennari hér og nágranni minn. Ég horfi akkúrat núna inn um eldhúsgluggann hjá honum. Sé ekki betur en að hann hafi verið að maula Cheerios í morgunmat. Hann kemur frá Reyðarfirði og virðist bara vera ágætis drengur.
Ætlaði að segja mikið meira en hætti hér í bili. Ætla út að sleikja sólskinið og hitta skemmtilegt fólk og njóta þess að vera til.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2007 | 23:50
Ein tjúlluð
Er í óða önn að klára annan afmælisbraginn sem ég minntist á í gær, svo varla vinnst tími til að færa einhver tíðindi inn á síðuna enda svo sem lítið að segja af viti. Ég er samt farin að þreytast á bak við ennið, eða í höfðinu, svo ég þyrfti aðeins að fara að taka lífinu með meiri ró. Það er oft einkenni þessara öfgafullu alka að steypa sér í alltof mikla vinnu og keyra sig áfram, því þegar einum öfgunum sleppir þá taka aðrar við. Ég hef bara ekki tíma núna til að slappa af. Tel að það verði nægur tími til afslöppunar þegar ég verð lögð inn á elliheimilið.
Fór á fund í dag í Menningarráði en þar erum við að vinna að stefnumótun i menningarmálum fyrir byggðarlagið. Guðrún Stella er formaður ráðsins og hún er mjög hugmyndarík kona og eldklár.
Trúlega verður hvorki þorrablót né kútmagi þessa helgina. Það er ekki öll vitleysan eins en svona er þessu bransi. Kútmaginn verður trúlega 17. febrúar og Góugleði 24 febrúar. En það gæti allt verið breytt á morgun eins og þið vitið.
Bæjarráðsfundur í fyrramálið, svo þarf ég að gefa hestunum og moka skít, yrkja brag, blogga, undirbúa súpufund sjálfstæðismanna, undirbúa Kjallarakeppni, heimsækja mömmu og pabba, hugsa um blessuð börnin, elda matinn kaupa inn og.........................
Verð í bandi.
Dægurmál | Breytt 6.2.2007 kl. 00:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.2.2007 | 17:37
Farið á kostum
Eins og glöggvir lesendur síðunnar minnar sjá þá eignaðist ég nýjan blogg vin í morgun. Ég þekki svo sem ekkert til þessa nýja vinar en maður getur ekki átt of mikið af vinum er það nokkuð? Það sem vakti þó sérstakan áhuga minn og var þess valdandi að ég ákvað að gera hann að vini mínum var að árið 2003 útskrifaðist þessi ágæti maður af Fjölmiðlatæknibraut BHS og fjallaði lokaverkefnið hans um Kynlífsiðnaðinn á Íslandi.
Ef mínar bestu vinkonur eða bestu vinkonur bestu vinkvenna minna þurfa smá ráð er varða hin ýmsu tól og tæki sem nýtast í þeim tilgangi að auka unað við hinar ýmsu athafnir þá gæti ég spurt þennan nýja vin minn hvaða leiðir eru bestar til árangurs. Sem sagt, ef ykkur vantar nýtt dót í dótakassann, talið þá við mig.
Að öllu gamni og slepptu þá bíð ég hann velkominn í vinahópinn minn.
Spaugstofan var glimrandi fín í gærkvöldi. Pálmi fór á kostum sem Guðni landbúnaðarráðherra. Að öllum leikurum Spaugstofunnar ólöstuðum þá er Pálmi bestur enda Bolvíkingur í húð og hár og er því með réttu strákurinn okkar. Atriðið þar sem aumingja handboltaliðið var að klæmst á þjóðsöngnum var einnig bráðfyndið. Þeim tekst stundum ansi vel upp strákunum.
Rólegt var yfir vötnunum í Kjallaranum í nótt. Ég vann við vísnagerð en tveir bragir bíða á verkefnalistanum. Núna er ég að semja fyrir strákpjakk sem verður fimmtugur von bráðar og eftir það bíður bragur um sextugan gutta. Það er heilmikil hugarleikfimi að semja vísur og bragi en mér finnst það mjög skemmtileg. Þetta þjálfast með tíð og tíma og verður alltaf auðveldara að temja sér braghætti, setja stuðla og höfuðstafi sirka á rétta staði og láta textann falla að laglínunni. Sumt er auðvita óttalegur leirburður en ef fólk hefur gaman af þessu þá er tilganginum náð.
Tel mál til komið að ég hætti þessu kjaftæði.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm