18.2.2007 | 22:49
Höfuðborgin heimsótt
Sagnakvöldið fór vel fram og Drangabræður fóru með rímur og sögðu sögur af hjartans list. Vertinn fékk sinn skerf að sögum sem fluttar voru í bundnu máli og er það alltaf skemmtilegt þegar einhver hefur fyrir því að yrkja bögu um eitthvað ámóta skemmtilegt og mann sjálfan. Kvöldið fór vel fram og reytingur var að gera, en ég hefði viljað sjá fleiri gesti á sagnakvöldinu, það hefði án efa skapað meiri stemningu. Þetta var mjög gaman engu að síður.
Flugfélag Íslands afhenti mér rós á flugvellinum í tilefni Konudagsins og tók ómakið af bóndanum. Það hafði reyndar alveg farið fram hjá mér að þessi tiltekni Konudagur væri í dag og það kom satt best að segja dálítð fát á mig þegar Finnbogi flugvallarstarfsmaður rétti mér rauða rós svona upp úr þurru. Ég hélt sem snöggvast að hann væri að biðja mín og var hálf ráðvillt um stund en áttaði mig fljótlega á því hvers kyns var. Allar konur fengu rauðar rósir í dag frá Flugfélagi Íslands og er það fagnaðarefni að þeir skuli hafa efni á slíkum munaði. Þess ber að geta að flugfarið milli Ísafjarðar og Reykjavíkur kostar jafn mikið ef ekki meira en flugfar kostar til London og ég verð alltaf jafn undrandi á því hvernig geti staðið á því að það skuli þurfa að vera svona dýrt að fljúga milli staða hér innanlands. Fólk myndi ferðast mikið oftar á milli ef það væri ekki svona kostnaðarsamt.
Vélin tók upp í brakandi blíðu á Ísafirði og afskaplega fallegt var um að litast. Sjórinn bylgjaðist blíðlega á haffletinum og ég horfðist í augu við tilkomumikil fjöllin er vélin klifraði hratt og örugglega upp í mót á leið sinni til höfuðborgarinnar. Annað veifið dansaði Dash 8 sem er nýjasta vélin í flota Flugfélagsins tangó við háloftavinda og smá kitl bjó um sig í maganum en það var bara til að auka skemmtunina. Dimmt og drungalegt var um að litast í henni Reykjavík. Rigningarsuddi tók á móti mér en það hafði engin áhrif á ánægjuna yfir því að hitta Andra og þórunni sem tóku á móti mér á flugvellinum. Leiðin lá beint á Landspítalann til tengdapabba en hann er frekar slappur en það mjakast þó allt í áttina held ég.
Leiðin lá síðan á veitingastaðinn Vegamót enda voru garnirnar farnar að gaula, en þar fæst dýrindis sjávarréttabaka sem er alveg sérlega góð enda rann hún ljúflega niður og allir urðu saddir og sælir eftir þessa kvöldmáltíð.
Ég kem til með að dvelja í góðu yfirlætil hjá tengdamömmu, þá get ég keyrt hana á spítalann og annað það sem hún þarf að útrétta. Fæ ég þeirrar ánægju aðnjótandi að aka um á gullmola þeirra hjóna sem er Subaru bifreið sem dekrað hefur verið við frá fyrstu tíð. Það er sko upphefð að fá að taka í þvílíkan eðalvagn og vandfundinn sá ökumaður sem treystandi er fyrir þeim gæðagrip.
Tannlæknirinn mín bíður mín með mikilli eftirvæntingu og hef ég haft spurnir af því að hann sjái fyrir sér að komast í siglingu um Karabískahafið um páskana eftir að hafa lítið upp í mig í nokkur skipti. Ég reyni bara að herða sultarólina enn frekar eftir að ég kem heim. Ef ég verð þokkalega tennt, þá er það í lagi. Ég á tíma hjá honum á morgun.
Lífið heldur þó áfram fyrir vestan þó ég hafi brugðið mér af bæ og fóru þær systur Elsa og Lilja í langan og mikinn útreiðatúr á Blesa og Tenór í dag. Þær riðu sandinn og nutu þessa að horfa inn Jökulfirði er tekið var á sprett í sólinni og góða veðrinu á þessum gæða klárum.
Jón Bjarni heldur áfram yfirreið sinni um Vestfirði á morgun en fundur er á Hólmavík annaðkvöld um löggæslumál og Drangsnesi kvöldið eftir.
Allir vilja vera vinir Valda en það er nafnið á bandinu sem hann setti saman til að spila í Kjallaranum nk. föstudagskvöld. Margir hafa haft samband við hann og vilja koma og vera með, enda er Valdi vinamargur og vinsæll. Þetta verður á endanum stórsveit, trúlega sú stæsta sem leikið hefur í Einarshúsi fyrr og síðar.
Eiki Rauði var valinn til að fara fyrir okkar hönd í Eurovision keppnina. Finnst ykkur hann ekki orðinn full gamall fyrir leðurbuxur?? Alltaf jafn hallærislegt að sjá rígfullorðið og ráðsett fólk klæða sig með þessum hætti
Man ekki eftir meiru í bili til að segja sem vit er í.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
17.2.2007 | 13:51
Troðfull spilavist
Troðfullt var á spilavistinni í gærkvöldi og komust færri að en vildu. Spilað var á átta borðum og hef ég haft spurnir af því að fólk hefi skemmt sér hið besta. Ég þarf greinilega að fá mér fleiri borð og stóla ef þetta ætlar að halda svona áfram. Verst ef ég þarf að fara að byggja við kofann. Ester Hallgríms og Pétur Jóns báru sigur af hólmi í þessari æsiviðureign spilasjúkra spilafíkla og fengu að launum þessa líka flottu rósir í ennþá flottari blómavösum keyptum hjá Steffý. Geisladiskurinn með Sigga Björns var svo veittur til verðlauna þeim sem á botninum voru og með fæst stigin og vermdi Doddi botnsætið eitt skiptið enn og Guðjón Ingólfs var honum þar til samlætis.
Landsfrægir menn létu víst sjá sig og fengu að skoða húsið hátt og lágt. Tel ég næsta vís að spurningaþátturinn Meistarinn verði tekinn upp í Einarshúsi enda enginn staður betri, en ég hef svo sem ekkert fyrir mér í því. Vænti þess þó að hann komi með einhverjar spurningar tengdar húsinu í næsta þætti. Mér þykir þó verst að hafa misst af því að upplifa allan þennan kynþokka sem á víst að leggja frá þessum frækna fýr, en það er víst ekki hægt að fá allt upp í hendurnar sem maður óskar.
Ég var með hóp í súpu seinnipartinn í gær og það tókst vel í alla staði. Perlan hún mamma hjálpaði mér að elda hana svo það var ekki við öðru að búast en að hún skyldi smakkast vel. Ég er svo lánsöm að líf mitt er alsett perlum og demöntum sem eru stoðir mínar og styttur í blíðu og stríðu. Ég var reyndar orðin svoldið sein fyrir og varð að skilja súpugestina mína eftir eina í smá stund, því Þorrablótið beið í Holti og blótsgestir voru orðnir úrkula vonar að ég myndi mæta. Gunna Ásgeirs mætti síðan galvösk í Kjallarann og vann kvöldið út í gegn. Gunna er ein af þessum perlum sem leiða mig í gegnum lífið. Anna Ólafía var henni til aðstoðar enda þýðir lítið annað en að hafa kjarnorku kvensur í vinnu við svona barstörf, maður þarf að hafa bein í nefinu og vera stífur á sinni meiningu og láta ekki vaða yfir sig ef allt á að ganga vel. Það sem gildir er að vera rólegur og yfirvegaður en samt ákveðinn, þá gengur yfirleitt allt eins og í sögu.
Þorrablótið var hreint æðislegt og ég skemmti mér hið besta. Eftirminnilegastur er Jón Jens stórskáld þeirra Önfirðinga, hann er ótrúlega góður hagyrðingur og hefur húmorinn í góðum hlutföllum við kveðskapinn. Halla Signý sló að sjálfsögðu í gegn með sínum árlega annál en hún er ein af mínum bestu vinkonum svo það er ekki við öðru að búast en að hún vekji verðskuldaða athygli. Stór hluti karlakórsins Ernis var á staðnum svo það var vel tekið undir í fjöldasöng og reyndar var mikið sungið kvöldið út í gegn. Baldur og Margrét spiluðu á ballinu og þau er æðislega skemmtileg, þessi unglingur sem er með henni Möggu er ótrúlega sprækur og strákslegur og Magga er svo lifandi á sviðinu og skemmtileg. Lagavalið er mjög gott og öll lögin eru spiluð með góðum takti. Ég fékk að njóta mín í gömlu dönsunum því margir ágætir dansherrar eru í sveitinni en skottís, vals og polki voru allsráðandi og var sveiflan til fyrirmyndar.
Gógó lét sig ekki vanta og var hin hressasta. Ég hélt ég yrði ekki eldri þegar hún tók stefnuna að gamalli og lasburða konu sem sat úti í horni og lét lítið fyrir sér fara enda frekar óstyrk á fótunum. Gógó þóttist þó sjá út úr augunum á þessu aldna fljóði að henni langaði að taka nokkur dansspor undir hlómfagurri hljómlistinni og dró hún hana því nauðuga viljuga út á gólfið og hætti ekki fyrr en eymingja gamla konan tók að dilla sér taktfast eftir tónlistinni. Það sem var þó fyndnast var svipurinn á dansfrú gömlu konunnar sem ljómaði líkt og andlit miskunnsama samverjans gerði hér forðum er hann vann góðverkin af mikilli auðmýkt. Ég hló mig alveg máttlausa.
Þegar maður er edrú þá er svo auðvellt að koma auga á svona óborganleg atvik sem annars myndu líða hjá án þess að þeim væri veitt nokkur athygli. Ég ætla ekki að lýsa því hvað ég skemmi mér mikið betur núna eftir ég varð allgáð, ég skil hreint ekki hvað mér gekk til að þurfa að vera að svolgra þenna bjór sinkt og heilagt. Ég þarf svo sannarlega ekki á því að halda enda er ég svo ótrúlegt tryppi að það hálfa er heill hellingur. Margir þurfa þó að tala við mig um þessi mál og segja frá sinni reynslu og sinna nánustu og fá hjá mér ráð og það er bara gott. Heyrði af einum í gærkvöldi sem er á leið á Vog og það eru mikil gleðitíðindi ef menn stíga slík framfaraskref í átt að betra lífi.
Drangabræður væntalegir í Kjallarann í kvöld. Það verður æðislegt og ég hlakka til.
Flýg á morgun í borg tísku og töfra. Ég veit að Andri á eftir að fara með mig flugrúnt. Ég held að það verði bara gaman. Ég ætla þó að gera erfðaskrá áður en ég fer í loftið, svo þið skuluð fylgjast vel með blogginu mínu, þið gætuð átt von á glaðningum eftir minn dag.
Hafið það gott.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2007 | 23:56
Lítið markvert
Fundur var í Menningarráði í dag og þar fór hugur nefndarkvenna á flug er unnið var að stefnumótunarvinnu í menningarmálum í byggðarlaginu. Þessari vinnu þarf að vera lokið fyrir mánaðarmót því hún á að vera innlegg í aðalskipulagsvinnu sem Teiknistofan Eik er að vinna fyrir kaupstaðinn.
Þorrablótið í Holti er annaðkvöld. Ég hræðist örlítið að ég verði látinn sitja frammi á gangi við vegna þeirra ummæla sem ég heft viðhaft um þetta annars ágæta blót. Ég vona að Jón Bjarni nái tímalega heim svo hann geti komið með mér, en hann er á leið til höfuðborgarinnar með lögreglustjóra en ætlar að koma aftur á morgun. Tengdapabbi er enn lasinn og því eru öll tækifæri notuð til að skreppa suður til að heimsækja hann.
Ég fer suður núna á sunnudaginn eins og áður hefur komið fram. Ég hef þéttskrifaða dagskrá í farteskinu eins og ætíð þegar haldið er í höfuðborgina. Trúlega byrja ég á naglaásetningu, en ég hef sérlegan naglasérfræðing í Garðabæ sem ég kynntist ekki alls fyrir löngu og eru hún afskaplega flink að setja gerfineglur á miðaldra húsfreyjur eins og mig. Ég hef ekki getað dýft hendi í kalt vatn síðan ég fékk fyrstu neglurnar hjá henni, sem er gott því ég er ekkert fyrir það að vera með hendurnar alltaf í köldu vatni.
Veðrið var frekar leiðinlegt í dag, sjórinn var úfinn og Ægir frekar úrillur. Gekk frá dreifibréfinu eins og þið sjáið, það verður borið út á morgun. Mér finnst dagskráin metnaðarfull og er rígmontin með mig, en það er nú ekkert nýtt eins og þið vitið.
Nú þykir enginn maður með mönnum nema hafa komið í Einarhús í einhverjar trakteringar. Ég fæ súpuhóp á morgun og það er gott fyrir bisnesinn, ekki kvarta ég.
Ætli ég láti þetta ekki nægja í bili enda heyrið þið það glöggt að ég hef ekkert markvert að segja.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.2.2007 | 21:18
Dreifibréf tvö framhlið
.
Kjallarinn-Péturskaffi
.
Einarshúsinu
.
Hafnargötu 41Bolungarvík Sími 456-7901 og 864-7901 .
.
Spilavist
.
Föstudagskvöldið 16. febrúar kl. 21:00 .
.
Sagnakvöld
.
Laugardagskvöldið 17. febrúar.
.
Drangabræður mæta á svæðið og segja magnaðar sögur og kveða rímur og leiða okkur inn í nóttina með dagsönnum lygasögum og kjarnyrtum kveðskap.Nú lætur enginn sig vanta.
.
Kjallarakeppnin
.
Fimmtudaginn 22. febrúar kl. 22:00
.
Athugið breyttan tíma.
.
Spyrill er Jón Steinar Guðmundsson.
.
Sjá bakhlið
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.2.2007 | 12:54
Dreifibréf tvö.
Kjallarinn-Péturskaffi
.
Einarshúsinu
.
Hafnargötu 41BolungarvíkSími 456-7901 og 864-7901
.
Vinir Valda
.
Föstudaginn 23. febrúar.
Nýstofnað stórband valinkunnra tónlistarmanna úr vinahópi Valdimars Olgeirssonar leika fram á rauða nótt, eftir hið árlega Kútmagakvöld Lionsmanna.
Það verður brjálað stuð.
.
Fyrirhugað er að halda
.
Góugleði Í Kjallaranum
.
Laugardagskvöldið 24. febrúar
ef næg þátttaka fæst.
Benni Sig og Hrólfur Vagns skemmta.
Borðapantanir í síma 864-7901 fyrir 20. febrúar nk.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.2.2007 | 22:52
Sagnakvöld
Heyrði rétt í þessu í Sveini Kristinssyni frá Dröngum en þeir bræður eru væntanlegir hingað vestur um helgina og koma í Kjallarann á laugardagskvöldið. Þá ætlar Sveinn að segja sögur en hann þykir nokkuð snjall sögumaður. Hann hefur þann eiginleika að geta glætt sögurnar lífi og fær áheyrendur til lifa sig inn í atburðarrásina. Það þarf að sjálfsögðu ekki að taka fram að þessar lygasögur eru allar dagsannar. Guðjón bróðir hans er einnig liðtækur sögumaður og hann kveður einnig rímur af miklum móð í góðra vina hópi. Ég veit að þetta verður æðislega skemmtilegt kvöld en það læðist þó að mér sá grunur að þessi kvöldstund kunni að dragast á langinn, því þegar þessir piltar komast í ham þá stoppar þá ekkert. Mér heyrðist á Sveini að hugsanlega komi fleiri drungalegir Drangamenn til með að taka til máls og leggja eitthvað inn i umræðuna. Ég sé þá alveg fyrir mér þessa fornu fýra að segja krassandi draugasögur í rökkrinu. Ég vona bara að enginn verði hræddur.
Maturinn heppnaðist mjög vel hjá Lions mönnum en ég var að stússast í því í dag. Oft er þetta meira en full vinna að vesenast þetta i kringum reksturinn í Einarshúsinu. Svo þykist ég ætla að fá mér aðra vinnu með, ég veit nú ekki alveg hvernig það á að ganga upp. Ég þarf þá væntalega að byrja á því að biðja þennan þarna uppi um fleiri stundir í sólarhringinn svo dæmið geti gengið upp. Þannig að ef hann er að lesa bloggið mitt sá hái himnafaðir, þá væri gott ef hann tæki smá tilllit til þessara óska.
Ég ætla að láta þetta vera gott í bili. Ég og Gunnar Ásgeirs ætlum að fá okkur smá göngutúr á eftir til Gunnu Jóns en hún er sérlegur sendiboði friendex fatnaðar tísku fyrirtækis og er ansi lagin við að pranga inn á mig allskyns tuskum og dulum, svo ég mynnist nú ekki á allar druslurnar sem hún fær mig til að kaupa dýrum dómum. Nýr listi með flottum fötum var að koma í hús og það bráðliggur á að vera fyrstur til að panta dragtir og dress fyrir vorið.
Eitt sinn ætlaði ég og fyrrnefndar Gunnur að fara í göngutúr saman og var markmiðið að losa um nokkrar kaloríur. Eftirfarandi skilaboð sendi ég þeim þá í sms.
Eigum við Gunna, að fara að ganga. Galvaskar arka um dali og fjöll. Í seiðandi sjávarnið leitum við fanga, sjálfsagt við hittum þar álfa og tröll. Nú hlusta ég hvorki á rex eða pex. Hittumst við Kjallarann klukkan sex.
Ekki gleyma sagnakvöldinu á laugardagskvöldið.
Heyrumst
Dægurmál | Breytt 15.2.2007 kl. 15:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.2.2007 | 22:50
Dansinn dunar
Nú dansa norðurljósin leiftrandi darraðar dansa við störnurnar á himnum svo geislarnir glampa og loga inn allt Djúp. Það er meira hvað þetta getur verið falleg sjón. Veðrið hefur verið yndislegt í dag og tel ég líklegt að veðurguðirnir hafi ákveðið að fagna með okkur ákvörðun Ríkisstjórnarinnar um jarðgöng um Óshlíð. Ég dró fánann að húni í tilefni dagsins enda er þetta stór dagur í lífi okkar hér vestra
Bæjarstjórnin í Ísafjarðarbæ og Bæjarstjórn Bolungarvíkur hittust í Einarshúsi í dag og sendu frá sér sameiginlega ályktun þar sem þessari jarðganga ákvörðun var fagnað. Þá voru þessir ágætu fulltrúar tveggja stæðstu sveitarfélagana á Vestfjörðum sem einn maður og mikillar bjartsýni gætti meðal fólks. Þessar framkvæmdir koma til með að hafa mikil áhrif á atvinnu- og mannlíf á Ísafirði ekki síður en hér, því göngin verða boruð beggja megin frá og iðandi líf verður án efa hvar sem litið verður. Ég hlakka til þegar framkvæmdir hefjast.
Mörgum sigrum hefur án efa verið fagnað í Einarshúsi gegnum árin en mörg stríð hafa einnig tapast þar innan veggja. Tveir merkustu útgerðarmenn landsins hafa búið þar og segja má að Bolungarvík hafi verði stjórnað úr þessu húsi stóran part síðustu aldar. Húsið ber þó bæði sögu sorgar og gleði. Pétur Oddsson lét byggja húsið árið 1902 og flutti þangað inn með fjölskyldu sína árið 1904. Hann átti vægast sagt ömurlega ævi í húsinu því hann missti nær alla fjölskyldu sína úr berklum. Þegar Helga elsta dóttir hans dó árið 1930 var hún fjórtánda líkið sem hann fylgdi til grafar frá þessu húsi sínu eins og ég hef áður minnst á. Einar Guðfinnsson flutti síðan í húsið árið 1935 og átti þar góða daga með sinni fjölskyldu.
Þrátt fyrir að sagan sé sorgleg á köflum þá er virkilega góður andi í þessu húsi og fyrrum íbúar þess hafa góða nærveru.
Siggi Björns hringdi í mig í dag frá Þýskalandi en hann er væntanlegur til landsins í apríl og treður að sjálfögðu upp í Kjallaranum, hvar annarsstaðar. Hann hefur reyndar uppi hugmyndir um að halda fleiri upp ákomur en bara eina en það mun koma í ljós síðar. Hann heldur tónleika fjórða apríl en hann ætlar kannski að slá öllu upp í kæruleysi og spila eitthvað fram á nóttina fyrir mig. Hann hefur áður haldið tónleika hjá mér og þeir voru frábærir.Sjá nánar http://www.siggib.com
Fanney og Kisi í The Pitchfork Rebellion halda síðan tónleika 9. mars en þau spila mest gömul sígild djasslög, svo sem Ellu Fitzgerald, Ninu Simone og Frank Sinatra og ég er full tilhlökkunar að heyra í þeim.
Vinir Valda, sem er nýtt stórband á svæðinu eru að æfa á fullu fyrir uppákomu í tengslum við Kútmagakvöldið. Valdimar Olgeirs er þvílíkur gæðadrengur og er alltaf boðinn og búinn til að koma og aðstoða mig ef eitthvað vantar. Ef mig vantaði strák til að ættleiða þá myndi ég ættleiða hann. Ég myndi trúlega ættleiða Einar Jón líka í leiðinni. Þeir eru í miklu uppáhaldi hjá Vertinum og tilheyra hópi uppáhaldsdrengja Kjallarans. Fleiri drengir og stúlkur, konur og menn eru þó í uppáhaldi og verður þeirra örugglega minnst jafnt og þétt í pislum mínum í framtíðinni.
Eins og þið heyrið þá mun dansinn áfram duna í Einarshúsi enda nauðsynlegt að halda uppi menningarlífi hér á staðnum til að létta fólki lífið.
Þetta er nú meira bullið sem rennur upp úr mér þessa dagana. Held ég ætti að fara að láta staðar numið í bili.
Dægurmál | Breytt 14.2.2007 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2007 | 19:40
Jarðgöng um Óshlíð
Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson kynnti nýja samgönguáætlun á fundi í dag sem haldinn var í húsnæði Vegagerðarinnar á Ísafirði. Þar leggur hann til að jarðgöng verði lögð milli Bolungarvíkur og Hnífsdals sem komi út á Skarfaskeri. Það var einmitt sú leið sem mér hugnaðist best og er ég því hæst ánægð með þessa niðurstöðu. Gert er ráð fyrir að þessum gangnaframkvæmdum verði lokið árið 2010. Ég efaðist reyndar aldrei eitt augnablik um það að farsæl lausn myndi finnast á þessum samgangnamálum hér á milli byggðarlaga og held að fáir geri sér grein fyrir þvi hversu gríðarleg áhrif þetta á eftir að hafa á framtíð byggðar hér í Bolungarvík. Ég fer aldrei ofan af því að ákvörðun um að ráðast í jarðgangnaframkvæmdir á Óshlíð hafi verið tekin að hluta til í Kjallaranum í Einarhúsi eftir að þingflokkur sjálfstæðismanna kom þangað í morgunkaffi einn haustmorgunn árið 2005 og naut góðra veitinga. Mér er enn í fersku minni hvernig mönnum varð við ræðu Elíasar Jónatanssonar er hann fór yfir þær ógnir sem stafa af Óshlíðinni og við hvaða aðstæður við höfum þurft að búa. Sem sagt ég er ánægð með mína menn með Samgönguráðherra í broddi fylkingar.
Þegar ég keyrði Óshlíðina heim eftir fyrrnefndan kynningarfund var ég vör við að Búðarhyrna brosti út í annað, Arafjallið blikkaði mig og Óshyrnan var glaðhlakkaleg að sjá og gjóaði augunum blíðlega til mín í tilefni þessa merkis dags en Óshlíðin liggur utan í þessum þremur fjöllum. Oft hafa þessi fjöll mótmælt umferð um þennan Óshlíðarveg og látið óánægju sína í ljós með grjóthruni eða snjóflóðum og þá höfum við óþyrmilega verið minnt á hversu óvarin við erum er náttúruöflin taka völdin.
Annars þá er bóndinn á yfirreið um kjálkann ásamt lögreglustjóra og fleira skylduliði að kynna nýja skipan löggæslumála í fjórðungnum svo ég verð gift einstæð móðir eitthvað fram í vikuna. Stelpurnar mínar lasnar heima en ég vona að ég sleppi við flensur og annan óáran.
Hópur kemur í trakteringar í Einarshús á morgun svo ég þarf að stússast í kringum það. Lion fundur á miðvikudag og þá vilja karlarnir mínir eitthvað gott að borða. Eilíf vandræði eru með kútmagana en trúlega endar það með því að Kútmagakvöldið verður föstudagskvöldið 23. febrúar með stórsveit og sveiflu. Þorrablótið svo kvöldið eftir auk þess sem Sjálfstæðismenn funda og einn hópur kemur í súpu á sunndudaginn 25. febrúar. Ég verð örugglega lögð inn á Reykjalund á mánudagsmorguninn 26. febrúar með viðkomu á Kleppi þar sem ég verð væntanlega reyrð niður í spennitreyju í hljóðeinangruðum klefa eftir annir þessarar helgar.
Tannlæknirinn minn er orðinn blankur, greyið svo ég held til höfuðborgarinnar á sunnudag í tannaðgerðir og fleira skemmtilegt því tengdu. Kíki örugglega í Zik Zak og skoða af mikilli gaumgæfni nýjustu tísku. Ætli ég hói ekki skólasystrunum saman. Við hittumst ekki alls fyrir löngu og mikið var það gaman. Mér þótti þær hafa elst svoldið blessaðar, þær voru orðnar frekar fyrirgengilegar og báru aldurinn misvel, það er annað en ég, unglambið sem breytist aldrei og heldur sér svo vel.
Læt þetta duga í bili
Til lukku með göngin
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.2.2007 | 22:11
Södd og sæl
Nú er ég södd og sæl eftir velheppnaðan kvöldverð með góðum gestum innar fjölskyldunnar í tilefni afmælis Elsu. Fjör var í afmælisveislunni sem hún hélt fyrir félaga sína í gærkvöldi og fékk afmælisbarnið margar góðar gjafir sem eru án efa mjög nýtilegar.
Ég ætla að skella mér á þorrablót í Holti á næsta föstudag en það er orðið ansi langt síðan ég hef farið þangað á blót. Ég var tíður gestur í Önundarfirði þegar Halla Signý bjó á Kirkjubóli í Bjarnadal svo ég þekki þar örlítið til.
Ég get þó ekki látið hjá líða að nefna þær reglur sem viðhafðar eru á þessu blóti og koma mér mjög spánskt fyrir sjónir. Þar sem ég er formaður næstu þorrablótsnefndar í Bolungarvík tel ég það skyldu mína að hafa miklar skoðanir á þessum óréttmætu reglum sem þar eru hafðar í hávegum.
Á þetta þorrablót mæta bara boðsgestir!!! Þvílíkar reglur. Þeir sem ekki þekkja neinn í skemmtinefndinni eiga sem sé engan séns á að fá að mæta.
Tökum dæmi:
1. Stormur Styr er nýfluttur til Flateyrar og er vinalaus og enginn vill virða hann viðlits. Honum langar að komast á samkomur í sveitinni og kynnast fólkinu betur, en enginn bíður honum til blóts. Hann verður að sitja heima með tárin í augunum og ákveður í framhaldinu að flytja aftur heim til Eskifjarðar.
2. Magnfríður frá Merkigili býr á elliheimilinu á Flateyri og er í hjólastól. Hún vildi svo gjarnan fara á blótið og hitta sveitunga sína og eiga með þeim góða kvöldstund en enginn úr skemmtinefndinni hefur haft tíma til að heimsækja hana á elliheimilið til að bjóða henni, svo hún verður að sætta sig við það eitt árið enn að sitja heima. Hún er orðin 96 ára gömul og er orðin úrkula vonar að fá að hitta fólkið sitt áður en hún kveður þessa jarðvist.
3. Friðrik Freðýsa er fjósamaður í Hólakoti í Dýrafirði og hefur lengi haft hug á stúlku í næsta firði. Eina skemmtunin sem hún sækir er þorrablótið í Holti svo það er eina tækifæri Friðriks til að hitta hana og gera hosur sínar grænar fyrir henni. Honum er ekki boðið enda segja sögur að það sé ekki algengt að boðið sé út fyrir sveitina. Hans framtíð er því ráðin og hann verður ólofaður og barnlaus það sem eftir er.
Blótum þó ekki blótinu í Holti. Ég ætla að mæta með góða skapið og skemmta mér hið besta.
Mér er nefnilega boðið.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
10.2.2007 | 20:54
Mikið að gera
Loksins er farið að hægast um hjá mér og róast yfir. Dagurinn í gær og dag búnir að vera annasamir og taugatrekkjandi. Það er búið að reyna töluvert á þolrifinn í Vertinum en hann stóðst álagið með sóma. Einhverntíma hefði ég bara svolgrað í mig nokkra ískalda til að róa taugarnar en nú er það ekki í boði, samt vaknaði ég grauttimbruð í morgun og er búin að vera hálfslöpp í allan dag. Trúlega má kenna litlum svefni um að einhverju leiti og áhyggjum sem blandast með í kaupbæti, auk mikilla anna.
Súpufundur Sjálfstæðismanna var mjög góður. Einar Kristinn sjávarútvegsráðherra mætti í Einarhúsið með fríðu föruneyti og spjallaði við gesti um hin ýmsu mál. Það var létt hljóðið í fólki og súpan hennar Dóru var mjög góð enda ekki við öðru að búast. Vænta má fregna af jarðgöngum hér á milli innan skamms og sveitastjórnarmenn hafa verið boðaðir á blaðamannafund með samgönguráðherra á mánudaginn kemur. Það verður mjög spennandi að fara á þann fund.
Hópur frá Alta kom óvænt í súpu líka í hádeginu og þau sátu niðri og nuta veitinga, sæl og glöð yfir komu sinni hingað vestur.
Ég fékk ekki starfið sem ég sótti um hjá Skattstjóranum. Hún var búin að benda mér á að það samræmdist ekki alltaf að reka eigið fyrirtæki jafnframt störfum þar, svo ég gat átt von á þessu. Það eru reyndar alltaf viss vonbrigði þegar maður fær ekki það sem manni langar í, en þá opnast bara ný sóknar-og tækifæri sem verður að reyna að nýta sér á sem bestan hátt. Mér fannst ég reyndar merkja mikinn skilning hjá skattstjóra á ágæti mínu í starfsviðtalinu sem ég fór í og þóttist sjá skýr merki þess að henni fyndist enginn umsækjenda hafa tærnar þar sem ég hef hælana en eitthvað hefur mér brugðist bogalistin í þeim útreikningum.
Mér var boðið í teiti í gærkvöldi og ætlaði svo sannarlega að mæta og sýna mig og sjá aðra. Elín Jóns var að útskrifast sem einhver virðisaukaskatts útreikninga sérfræðingur með höfuðáherslu á bókhald og allskonar reikningsskil. Hún er sérfræðingur með tölur og getur reiknað allskonar talnarugl aftur á bak og áfram og fengið það til að STEMMA! Hún er endurskoðandinn minn, er ég ekki heppin. Hún er orðin kerfisfræðingur og lauk því námi með allsherjar partýi sem lukkaðist vel að sögn veislugesta. Það var viðtal við hana í tímaritinu Ský nú nýverið um þetta nám, svo þið verðið að vera dugleg að ferðast flugleiðis hér á milli og lesa um þessa námsfúsu námsmeyju.
Ég er búin að komast að því núna að þarna fer ég auðvita kolrangt með staðreyndir. Kerfisfræði hefur víst ekkert með bókhald að gera.
Partýið fór þó fyrir ofan garð og neðan því það sprakk rör í Einarshúinu svo ALLT fór á flot og ég fór næstum því á taugum. Halda mátti að Gullfoss sjálfur hefði tekið á sig sveig hingað vestur og sett stefnuna beint í Kjallarann, vatnsflaumurinn var þvílíkur. Það vantaði bara að Geysir fylgdi í kjölfarið til tilheyrandi gosi og skvettum. Það hefði kórónað þetta allt saman.
Ég kallaði mína góðu nágranna út með neyðarkalli og komu þau mæðgin Gunnu Ásgeirs og Baldur með það sama, Hafþór pípari kom á leifturhraða og einnig Víðir Ben sem sér um trygginarnar mínar og voru þessir aðilar langt fram á kvöld að veita vatninu út úr húsinu en rör hafði sprungið inn í starfsmannaaðstöðinni. Ég hélt satt best að segja að ég yrði ekki eldri. Jón Bjarni í Reykjavík og þið getið ímyndað ykkur hvernig honum leið að vera þar og geta ekkert gert með mig á barmi taugaáfalls að standa í þessum stórræðum hér heima. Kjallarakeppnin var haldin uppi svo það slapp fyrir horn og sýndu gestir mínir mikla þolinmæði og létu enga óánægju í ljós þótt þeir þyrftu að vaða elginn upp í klof á köflum. Kúnnarnir mínir eru nefnilega frábærir upp til hópa.
Hitinn fór reyndar af húsinu því einhver öryggisloki hafði gefið upp öndina um leið og rörið sprakk en Hafþór kom galvaskur í dag og reddaði því.
Gógó gleðipinni lét bíða eftir sér eins og allar stórstjörnur gera. Hún kom í vaðstígvélum til að undirstrika þetta mikla stórfljót sem rann um kjallaragólfið af krafti. Gógó sló í gegn eins og ætíð, spurði skemmilegra spurninga og hafði húmorinn meðferðist frá Flateyri. Ég fíla fólk með góðan húmor sem kemur til dyranna eins og það er klætt. Að endingu stóðu upp tvö lið með jafnmörg stig, svo farið var í bráðabana. Lið Gríms bæjarstjóra tapaði fyrir liði Höllu Signýar og fór hún heim með vegleg verðlaun í fljótandi formi.
Reytingur var á barnum fram eftir nóttu svo ég sofnaði seint og illa og var ekki nærri útsofinn þegar klukkan vakti mig til að fara á íbúaþingið. Það var reyndar mjög gaman á þinginu og 127 manns mættu sem telst mjög gott miðað við íbúafjölda hér. Fólk tók virkan þátt og það verður virkilega gaman að sjá útkomuna úr þessu öllu saman.
Tengdapabbi er frekar lasinn. Kominn með hita og var komin með súrefni í dag. Það tekur líkamann tíma að jafna sig eftir svo stóran skurð. Hann var þó eitthvað farinn að rölta um svo það er vonandi allt í áttina. Lilja er komin með hita en hún dvelst í Reykjavík eins og áður hefur komið fram og ber sig aumlega í símann þegar við tölum saman en þau feðginin koma heim á morgun.
Í Mogganum á fimmtudaginn var vitnað í bloggið mitt þar sem ég var að tjá mig um grein Hörpu Oddbjörnsdóttur. Svona læði ég mér í alla fjölmiðla með hægð og legg þá undir mig. Bíð bara eftir því að mín verði getið í biblíunni sem eins af spámönnunum.
Elsa er farin að halda upp á afmælið og ég er ein að rolast. Halla Signý er þó mjög frambærilegur gestgjafi svo ætli ég heimsæki hana ekki í kvöld en hún hringdi áðan og er væntanlega að undirbúa komu mína. Okkur gömlu konunum finnst gaman að rifja upp liðna tíma og hlægja saman að gömlum stelpupörum.
Verð að láta hér staðar numið.
Dægurmál | Breytt 11.2.2007 kl. 12:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm