Dagurinn í dag.

Mikið er gott að fá tækifæri til að setjast niður og setja hugleiðingar sínar og þankaganga á blað. Það er góð leið fyrir mig til að líta upp úr amstri hversdagsleikans að fá að bulla fyrir ykkur einhverja vitleysu. 

Dagurinn í dag er búinn að vera góður. Allir dagar eru reyndar góðir, bara misgóðir. Stundum gefur á bátinn, þess á milli siglir maður sléttan sjó. Það er þannig hjá okkur öllum og það kemst enginn í gegnum lífið öðruvísi en að lenda í stormi við og við, enda kann maður þá svo vel að meta lognið sem á eftir kemur. Það þýðir þó ekkert að gefast upp þótt róðurinn verði þungur.  Mér finnst ég nánast í stakk búin til að takast á við öll heimsins vandamál eftir ég lagði áfengið á hylluna. Ég ætla mér að hafa það upp í hyllu það sem eftir er.

Það var mikið að gera í Einarhúsinu um helgina og hátt á þriðja hundruð manns litu þar við. Fyrir utan Kútmagann þá tók ég á móti fjórum stórum hópum í súpu.   Það er gleðilegt þegar nóg er að gera en stundum væri heppilegara að álagið væri jafnara en kæmi ekki allt á sama tíma. Svona er reyndar þessi atvinnurekstur og ég sætti mig að sjálfsögðu við það. Aðalfundur sparisjóðsins er á föstudaginn og ég hef umsjón með honum og þar verður gleðin örugglega í samræmi við gróða sjóðsins og ég vona svo sannarlega að hann hafi grætt sem mest. Maður á að gleðjast yfir velgengni þeirra sem eru að standa sig vel. Verra er ef hann er bara að græða á þjónustugjöldunum og vöxtunum sem ég er að borga í mjög ríku mæli.

Spilavistin er kl. 21:00 á föstudagskvöldið og mér heyrist á fólki bæði hér og á Ísafirði að það ætli að mæta og reikna með fullu húsi. Nú er þriðja og síðasta lota í þessari keppi og veitt verða sérstök aðalverðlaun fyrir stigahæstu konur og karla eftir þessi þrjú spilakvöld. Auk þess verða veitt verðlaun karla og kvenna fyrir þetta tiltekna kvöld sem og skammarverðlaun eins og venjan er.  Fólk lifir sig mikið inn í spilamennskuna og það er gaman að fylgjast með.

Ég er búin að vera að föndra við að koma fleiri myndum inn á síðuna og loksins gekk það upp. Ég á eftir að sýna ykkur fleiri myndir af uppákomum í Einarshúsi í framtíðinni. 

Ég keypti vinnufatnað á stelpurnar mínar í hágæða tískuvöruverslun í höfðurborginni en við bardömurnar þurfum að vera nokkuð frambærilega klæddar þegar mikið stendur til. Ég ákvað að kaupa fallega boli og pils og ég taldi ekki veita af að hafa pilsin stutt og við þóttum bara nokkuð flottar í tauinu þegar við trítluðum með guðaveigar milli borða á Kútmagakvöldinu. Þetta passaði á skvísurnar eins og ég hefði látið sauma flíkurnar eftir máli og þær voru hæstánægðar með þessi fatakaup mín.

Bæjarstjórnarfundur er á morgun og mæta Baldur og Sölvi auk mín. Við hittumst núna áðan ásamt Elínu og fórum yfir þau mál sem eru á dagskrá fundarins. Við köllum þetta "meiriháttarfundi" en það hljómar mun betur en " minnihlutafundir".

Menningarráð efndi til fundar meðal bæjarbúa á mánudagskvöld í Einarshúsi um stefnumótun í menningarmálum. Þar var boðið upp á súpu og brauð, fjöldinn allur af fjólki mætti og það var rífandi stemning. Ráðið á eftir að vinna úr þeim tillögum sem þar litu dagsins ljós.

Ég hef lítinn tíma gefið mér til útreiðatúra og þarf að fara að taka mig á í þeim efnum. Ég fer þó alltaf á morgnana í hesthúsin til að gefa og hleypa út. Þeir eru stundum orðnir óþreyjufullir eftir tuggunni sinni því Vertinum finnst gott að sofa á morgnana en þeir láta þó ekki á neinu bera og taka mér fagnandi þegar ég birtist. Ég fór þó í göngutúrinn minn í dag og skellti mér í heita pottinn á eftir. Það hreinsar bæði sál og líkama. Öllum börnum yngri en sextán ára er boðið í sund í tilefni af þrjátíu ára afmæli sundlaugarinnar og ég vona að fólk komi til með að nýta sér það vel á afmælisárinu.

Ætli ég láti þetta ekki duga í dag enda frekar andlaus.

Heyrumst á morgun

 

 

 

 

 

 


Afmælisbragur

Gummi Addýar varð fimmtugur fyrir skemmstu. Eftirfarandi brag orti ég í tilefni þessara tímamóta fyrir systkini hans og söng Runólfur Pétursson hann fyrir afmælisbarnið úti á Kanarýeyjum.

Gummi Einars fimmtugur. 

 

Lag: Í Bolungarvíkinni. 

 

Á Kanarý eyjum með Gumma er gaman

og galvösk við syngjum hér örlítinn brag.

Af sérstöku tilefni komum hér saman

því sjóarinn sigldi  á afmæli í dag.

Hvorki er kappinn neitt gugginn né grár

þótt gírugur kveðji hér fimmtíu ár.

Trall..........

 

Hann ólst upp í samrýmdum systkinaflokki

við Völusteinsstrætið þau áttu sér skjól.

En ódæll oft þótti sá fyrrnefndi hnokki

sem ólmaðist daglangt um byggðir og ból.

Á Laugarvatn lagði með nesti og skó

þá læddist um heimilið friður og ró.

Trall............... 

 

Við borðtennis borðið oft hrósaði happi

þá baráttuviljinn vill hlaupa í strák.

Svo leikandi léttur oft etjar hann kappi

hann liðtækur liðsmaður þykir í skák.

Ef leikurinn tapast þá tryllist um hæl

og taflmönnum fleygir um staðinn með stæl.

Trall......  

 

Einn dag var sem himinn opnaðist heiður

er hugumstór gekk inn á Syðridalsvöll.

Þar blasti við golfvöllur glæstur og breiður

en þar með er sagan sko hreint ekki öll.

Nú keppir sá kylfingur léttur í lund

hér heima sem úti á erlendri grund.

Trall....  

 

Á gítarinn glamrar og tryllir og tætir

og telur sig sýna þar meistaratakt.

Ballöður Bowies hann vafalaust bætir,

en bagalegt hvað er á Ásgerði lagt.

Það þreytir þó stundum það sagt er með sann

að þola svo tónelskan hljómlistarmann.

Trall............ 

 

Svo fengsæll og fiskinn á fyrirtaks fleytum

af festu hann siglir um sæfesta Dröfn

á Einari Hálfdáns á vordegi heitum

með fullfermi kemur hann ætíð í höfn.

Við stefnið hann heimsmetin staðfastur slær

þá skipstjóri ársins svo glaðlega hlær.

Trall...........  

 

Við mömmu oft kenndur er títtnefndur peyi

því Gumm´i hennar Addýar hljómar svo vel.

Hann leysir oft vindinn á góðviðrisdegi

þá búkhljóðin óma um móa og mel.

Hann er sínum nánustu traustur og trúr

húmorinn góður, en örlítið klúr.

Trall.... 

 

Að endingu viljum þér óska til handa

þú ætíð hér gangir um gæfunnar dyr.

Áfram þú siglir til ókunnra stranda

í seglin þú fáir svo blússandi byr.

Þér færum af fögnuði afmælisbrag

og óskum til lukku með daginn í dag.

Trall............ 

  

Höfundur:Ragna Jóhanna Magnúsdóttir     

Til lukku með fimmtíu árin góði granni.


Elsti Bolvíkingurinn

Hálfdán Einarsson er níræður í dag og er elsti íbúi Bolungarvíkur. Vinir hans og ættingjar héldu honum veglega afmælisveislu og fjölmenni mætti til að fagna með honum á þessum tímamótum. Þessi unglingur er töluvert á ferðinni og ekur um á Volvo af fínustu sort. Þegar gott er færið fer hann svo hjólandi um bæinn. Hann er ein okkar besta fyrirmynd og mikið gæðablóð.

Þér afmælisósk berst í ljóðavendi.

Í brúnni svo staðfastur stendur klár.

Þér hugheilar hamingjuóskir sendi,

með heillarík níutíu ævi ár.

 


Ljós og skuggar systu

Ljós og skuggar systu Auður systir mín er á ljósmyndanámskeiði og notaði tækifærið og tók myndir af systur sinni enda ekki hægt að hugsa sér heppilegra módel. Hún er greinilega efni í fyrirtaks ljósmyndara.

Komin heim.

Aftur er ég komin heim í heiðardalinn eftir þessa stuttu dvöl í höfuðborginni. Ástæða fyrir þessu litla lífi á bloggsíðunni minni er ekki leti, heldur hef ég ekki haft neinn tíma til að dunda mér við þessi skrif mín vegna mikilla anna. Þetta er ekkert annað en athyglissýki í mér að þurfa að bera það fyrir alþjóð hvað ég er að hugsa og gera svona dag frá degi en ég nýt þess samt fram í fingurgóma og er þess fullviss að þið gerið það líka.

Undanfarnir dagar hafa verið mjög viðburðarríkir og skemmtilegir. Ég undrast það stundum hvað lífið getur verið skemmtilegt og spennandi. Ég virðist vera þeim eiginleikum gædd að lenda í ævintýrum nánast uppá hvern dag.

Ég stefndi á að koma vestur á fimmtudaginn var, en vindáttin hér vestra var óhagstæð og nokkuð snörp svo ekki gaf að fljúga. Þetta tók á taugaranar hjá Vertinum því kútmagakvöldið var á föstudagskvöld og það átti eftir að hnýta ansi marga lausa enda áður en það gæti orðið að veruleika. Þá þýddi ekkert annað en að fjarstýra liðinu símleiðis og var húsbóndinn ásamt Elsu og Gunnu Ásgeirs í fullu starfi við að standa og sitja eins og mér þóknaðist á meðan ég sat eins og fín frú á kaffihúsum borgarinnar. 

Ég fór þó ekki að ókyrrast að einhverju marki fyrr en á föstudaginn þegar allt stefndi í að flug lægi niðri þann dag líka.  Ég tók þá ákvörðun að keyra vestur í snatri um hádegisbilið en til tals hafði komið að ég kæmi akandi á bíl sem Bolungarvíkurkaupstaður var að kaupa fyrir áhaldahúsið. Ég brunaði því í sakleysi mínu í Brimborg og hugðist sækja litla skutlubílinn sem ég taldi að búið væri að kaupa. Þar hitti ég þennan stimamjúka sölumann og við gengum frá þeim nauðsynlegum pappírum sem átti eftir að undirrita áður en haldið yrði heim. Auðvitað var búið að panta bílinn eftir litmyndum þar sem tegund og gæði voru mjög ýtarlega yfirfarin af æðstu embættismönnum kaupstaðarins ásamt starfsmönnum áhaldahúss.  Allt var því klappað og klárt og ég sá loksins hilla undir það að ég kæmist heim fyrri kútmagann.  Mér brá heldur betur í brún þegar stimamjúki sölumaðurinn sýndi mér stóran og mikinn sendiferðabíl blóðrauðan að lit úti á bílaplani. Þessi dísleljálkur var eins og illa brotinn kassi í laginu, gluggalaus og skelfilegur í alla staði. Ekki mátti miklu muna að til þyrfti ökuskýrteini fyrir stórar vöruflutningabifreiðar til að uppfylla skilyrði til aksturs á þessu ferlíki. Ég lýg því ekki að það duttu af mér allar dauðar lýs í einum vetfangi og þær sem ekki voru dauðar urðu bráðkvaddar með það sama er þær sáu þennan rútubíl sem ég átti að fara að keyra alla leið vestur á firði. Stimamjúki sölumaðurinn fullvissaði mig um að þetta væri rétti bíllinn enda höfðu eins og fyrr segir æðstu embættismenn bæjarins hver af öðrum gefið fyrirskipanir um að þessi bíll yrði keyptur. Hann tjáði mér að hann væri mjög lipur í akstri og ég þyrfti ekki að kvíða því að fara á honum heim svo ég ákvað að slá til. Til allrar hamingju heyrði ég í skrifstofustjóra bæjarins áður en ég lagði upp í þessa langferð og þegar ég fór að lýsa ferlíkinu varð uppi fótur og fit á bæjarskrifstofunni og mönnum varð þar ljóst að eitthvað hefði farið úrskeiðs í pöntunarferlinu á nýja bílnum. ÞAU HÖFÐU PANTAР VITLAUSAN BÍL!!!!! Ég ætla ekki að segja mikið meira um þessar gloríur æðstu embættismanna Bolungarvíkurkaupstaðar en reikna þó með að greinarvísitala þessara gáfnaljósa hafi verið undir þolmörkum rétt á meðan þessi bíll var pantaður.

Bílaleigubíll var tekinn og höfðuborgin kvödd um sinn og haldið var á heimaslóðir Þuríðar Sundafyllis landnámskonu en hún kom frá Hálogalandi í Noregi og festi byggð í Bolungarvík.

Ég var ekki fyrr komin upp í Borgarnes en Flugfélagið tók upp á því að fara að fljúga vestur og það var stöðug loftbrú milli Reykjavíkur og Ísafjarðar alla leiðina og Fokkerinn hæddi mig og gerði að mér grín og ekki var frítt við það að ég heyrði hlátrasköllin í flugfarþegum þegar þau flugu yfir mig er ég keyrði heiðar og hálsa á leið minni heim. Ekki var búið að moka Hestakleif og ég hugsaði vegagerðinni þegjandi þörfina er ég brunaði fyrir Reykjanesið.

Mér tókst að ná tímanlega í Einarshúsið og ferðin gekk vel enda færðin nokkuð góð og greiðfær. Þá beið mín bara vinna og stóð ég vaktina til klukkan fjögur í nótt. Upp aftur klukkan tíu því ég átti vona á súpuhóp vegna fundar sjálfstæðismanna. Það er víst engin miskunn hjá Magnúsi. Ég skil ekki alveg hvaðan ég fæ þennan kraft sem ég keyri á þessa dagana.

Karlarnir tróðu út vömbina á kútmögum og fleira góðgæti. Logi Bergmann var veislustjóri og fórst honum það vel út hendi og mikil og góð stemning ríkti á borðhaldinu. Nokkrir dónabrandarar fuku milli manna og mikið var hlegið.

Vinir Valda slógu í gegn eins og við var að búast. Það var dansað fram á nótt og mikill glaumur ríkti og gleði. Alltaf gaman þegar nóg er að gera.

Myndir koma á síðuna af nýjustu uppákomum fljótlega.


Vinir Valda í Kjallaranum

Vinir Valda í Kjallaranum á föstudagskvöld

Kjallarinn er í Einarshúsi við Hafnargötu
Nýstofnað stórband valinkunnra tónlistarmanna úr vinahópi Valdimars Olgeirssonar leikur fram á rauða nótt eftir hið árlega Kútmagakvöld Lionsmanna og er aðgangur ókeypis. Bandið skipa Valdimar Olgerisson sem syngur og leikur á bassa, Benni Sig. sem þenur raddböndin af sinni alkunnu snilld, Magnús Hávarðarson sem leikur á gítar og Kristinn Gauti Einarsson sem spilar á slagverk. Von er á fleiri gesta spilurum og söngvurum til að troða upp með hljómsveitinni þetta kvöld því Valdimar er vinamargur og vinsæll.

Allar konur fá frían fyrsta drykkinn við komuna í Kjallarann og tilboð verða í gömlu kolageymslunni fram til klukkan eitt um nóttina.

Kjallarakeppnin

Jón Steinar spyrill í Kjallarakeppninni í kvöld

Kjallarinn er í Einarshúsi við Hafnargötu
Jón Steinar Guðmundsson verður spyrill í þriðju "Kjallarakeppni" ársins en svo nefnist spurningakeppni í léttum dúr sem fer fram á kránni Kjallaranum í Einarshúsi í Bolungarvík. Spurningakeppnin gengur almennt undir heitinu "Pub-Quiz" og fer þannig fram að gestir Kjallarans svara 30 spurningum og hlýtur sigurvegari kvöldsins að launum vegleg verðlaun í fljótandi formi. Tveir keppendur mynda hvert lið og er öllum heimil þátttaka. Keppnin er að þessu sinni á fimmtudagskvöldi og hefst kl. 22.00.

Erfðaskrá

Til stendur fara í flugtúr með syninum ef einhverjar flugvélar verða á lausu og veðrið verður til friðs. Flugvélin sem um ræðir er einshreyfils fjögurra manna Cessna sem á að vera mjög örugg. Ég er nokkuð róleg yfir þessu því ég veit að ég get verið nokkuð viss um að allt sem fer upp kemur alltaf niður aftur en spurningin er bara hvernig. Fram þurfa að fara nákvæmir útreikningar á hæð flugvélarinnar miðað við stefnu því öruggir flugmenn reikna alltaf með að eitthvað smávægilegt geti farið úrskeiðis eins og að það drepist á hreyflinum og þá þarf vélin að vera í þeirri hæð að hún nái landi án vandræða. Ég hef litlar sem engar áhyggjur af flugferðinni sjálfri, meiri áhyggjur hef ég af því að vera ekki búin að ráðstafa helstu eigum mínum til vina og ættinga áður en ég fer og ætla ég nú að fyrirbyggja það að vandalausir fari að ráðskast með það sem ég hef sankað að mér í í gegn um tíðina í eftirfarandi erfðaskrá.

Erfðaskráin er rituð á tölvu af mér sjálfri í engra votta viðurvist. Hún er mest megnis bull og kjaftæði en þó leynist sannleikskorn innan um. Er þetta eingöngu gert til gamans og til að létta mér og ykkur lundina.

Hefst þá lesturinn.

Músarrindill fær hlandkoppinn minn sem er í senn afar handhægur og þægilegur til síns brúks. Hann hefur þann eiginleika að hægt er að spá fyrir um óorðna atburði með því að lesa í hann, það er reyndar vandasamt verk og ekki á færi nema galdramanna að vestan. Hafðu þó varann á því á botni koppsins hefur tekið sér bólfestu Marglitta ein ill og ljót. Hún gæti bitið hvern þann í rassinn sem á kappinn sest. Hlandkoppurinn er úr gegnheilu brotajárni og því eðalgripur og mikið erfðagóss.

Halla Signý fær páfagaukinn Tomma, sem reyndist vera kvenfugl þegar nánar var að gáð. Hann er reyndar dáinn fyrir löngu síðan og hefur verið geymdur í frystikistunni um nokkurt skeið. Ekki hefur fundist tími til að halda honum sómasamlega útför en til stóð að grafa hann við hliðina á  leitarhundinum Nökkva sem er jarðaður í Dýrafirði. Reyndar verð ég að segja alveg eins og er að páfagaukurinn er það albesta gæludýr sem ég hef átt og er ég þá að meina eftir að hann dó. Hann var lagður í ryðfría áldós, umvafinn híalíni úr flottasta efni sem um getur og var þar ekkert til sparað. Ég kíkji á hann reglulega og þá helst er ég tek hann upp úr kistunni í misgripum fyrir eitthvað matarkyns og alltaf er sami friðurinn yfir honum blessuðum. Hann skríkir aldrei, hann þarf ekkert að éta, það þarf ekkert að þrífa eftir hann og hann er eins og engill sem er sendur af himnum ofan.  Ég veit að Halla á eftir að kunna að meta Tomma.

Gamla testamenntið fær Gógó á Flateyri en hún er að fara til Ítalíu og hún á pantaðan tíma í Vatikaninu hjá Páfanum svo mér þykir við hæfi að hún hafi guðsorð í farteskinu er hún leggur upp í það ferðalag. Bókin er orðin svoldið þvæld enda mikið lesin því hef ég alltaf haft Amen eftir efninu að leiðarljósi í lífinu eins og allir vita. Ég hef þó rifið úr þá kafla er fjallar um upprisu holdsins og freistingar sem hægt er að falla í samhliða því enda geri ég ráð fyrir að það sé aðalmarkmið þessarar ferðar að fræðast um þann drottinn vorn sem getinn er af heilögum anda en ekki hella sér út í saurlifnað. Ég reikna þó alveg fastlega með því að Páfagarður verið uppiskroppa með messuvín eftir þessa heimsókn en ef ég verð sest við hægri hönd Guðs föðurs þá skal ég reyna að kippa í einhverja spotta og sjá til þess að öllu vatni verði breytt í vín á Ítalíu rétt á meðan þessi ágæti hópur dvelur þar úti.

Auði systir ætla ég að eftirláta tanngarðinn sem ég keypti í Búlgaríu í fyrra. Við systurnar höfðum heyrt af svo ódýrum tönnum þarna úti á tilboði svo við fórum með fyrstu vél þarna út og keyptum tvo tanngarða fyrir einn. Þetta er svipað og tilboðin í gömlu kolageymslunni í Kjallaranum, tveir fyrir einn.  Við Auður erum reyndar með okkar tennur ennþá svo það er ekki þörf á að nota tanngarðanna strax en alltaf er gott að hafa vaðið fyrir neðan sig. Það er gott að eiga tennur til skiptana ef á þarf að halda. Tanngarðarnir eru reyndar nánast alveg eins og mér sýnist mótið hafa verið tekið úr hrossi eða kind, en það er varla svo naugið og óþarfi að velta sér upp úr þvílíkum smáatriðum.

Gunna Jóns fær hárkollurnar mínar, bæði þessa með hrokkna hárið og eins hina sem er með því slétta. Það fylgir með stór pakkning af hárspennum til að spenna þær niður en eins og margir vita þá er Gunna að flytja til  Suðurnesja og þar mun alltaf vera hífandi rok og sagt er að brimlöðrið gangi yfir hið hrjóstuga landslag hrauns og mosa nær daglega. Sannsöglir menn segja mér í trúnaði að þar sé hálfeyðilegt um að litast og ég hef af því áhyggjur að Gunna missi gleði sína yfir því að hafa flutt í burtu svo ég ætla líka að eftirláta henni gleðipillurnar mínar svo hún geti brosað að vild, en hún er að jafnaði mjög brosmild og létt. Það skal þó tekið sérstaklega fram að Gunna er ennþá með sitt eigið hár sem er þykkt og mikið.  

Sigrún húsfrú í Dæli fær allar matreiðslubækurnar mínar sem ég er löngu hætt að líta í. Helst ber þó að geta matreiðslubókar með 220 sjávarréttum sem bóndinn gaf mér í jólagjöf fyrir nokkrum árum síðan. Í bókinni eru einnig skátahnútar af öllum gerðum sem geta án efa komið sér afskaplega vel í matargerð ýmiskonar. Það er trúlega upplagt að hnýta eins og einn pelastikk hnút meðan fiskisúpan síður eða rembihnút yfir steikta steinbítnum. Það verður reyndar að viðurkennast að ég hef aldrei opnað þessa bók nema til að hæðast að innihaldi hennar og gera grín að hugmyndaleysi húsbóndans. Ég gaf það glögglega í skin þessi jól að ég vil gimsteina og perlur í jólagjöf en ekki matreiðslubækur með skátahnútum. Mér var efst í huga rammgerður hengingarhnútur þegar ég rók pappírinn utan af þessari jólagjöf. Þarna brýst út vanþakklæti heimsins í öllu sínu veldi. Ég veit þó að Sigrún á ekki eftir að fúlsa við slíkri bók enda notar Villi mikið af hnútum í sveitinni þegar hann þarf að binda óþekka ferðamenn með græna bandinu sem við gáfum honum eitt árið. 

Guja skrifar athugasemdir viðstöðulaust á bloggið og getur ekki leynt öfund sinni á kaffistellinu sem ég erfði efti langömmu mína. Amma hafði keypt sér þetta stell eftir að hafa verið kaupakona í Æðey eitt sumarið er hún var ung. Allur afsakstur sumarvinnunnar fór í að fjárfesta í þessu kaffistelli. Guja getur þá hent skörðóttu bollunum sem hún erfði eftir ömmu sína á sínum tima. Ég ætla að láta fylgja með 120 pakkningar af kaffi sem sölumaðurinn og daðrarinn sem ég minntis á í gær seldi mér en ég keypi af honum heilt bretti af kaffipökkum í bland við aðra göruga drykki. Þú gætir hugsanlega haft smá helgistund í hvert sinn sem þú drekkur rjúkandi kaffi úr rósabollunum hennar ömmu og vonandi minnist þú mín sem algjörar bulluskjóðu sem ekkert mark var takandi á.  

Það er nokkuð víst að margir hafa orðið útundan í þessari upptalningu minni og eru ugglaust sársvekktir út í mig fyrir að ánafna þeim ekki eitthvað spennandi. Ég man ekki eftir neinu merkilegu til viðbótar til að telja upp í þessu sambandi í bili. Ég ætla að vera í leðurbuxunum svo ég þarf ekki að rástafa þeim neitt sérstaklega.

Allir hinir sem ég elska geta svo rifist um restina.

Verið ekki með sorg og sút, það verður eins með mig og Elvis að ég kem til með að lifa áfram og endalaust og fylgjast með hverju ykkar skrefi.

 


Fílahirðirinn veltennti

Ég mætti galvösk til tannsa klukkan tólf eins og ráð var gert fyrir og fékk þeirrar ánægju aðnjótandi að liggja þar hjálparvana í tvo og hálfan klukkutíma meðan þessi ágæti drengur fór hamförum í  munninum á mér. Allt gekk svo sem eins og í sögu nema honum urðu á þau mistök að draga vísdómstönnina úr í stað augntannarinnar sem gerði það að verkum að sjóntaugin, sem var vafinn utan um rótina skaddaðist í kjölfarið og sjónin á hægra auga minnkaði til muna. Það kemur þó ekki að sök því ég sé allt tvöfallt á því vinstra svo ég kem til með að sjá það sem ég vil sjá eins og ég hef gert hingað til.

Að öllu gamni slepptu þá fór þetta allt vel og ég er hæst ánægð með bráðabirgðabrúna sem hann smíðaði á staðnum og smellti upp í hálf tannlausan góminn og núna lít ég út eins og fegurðardrottning. Ég hafði mp-3 spilarann minn í eyrunum allan tímann og það var merkilega róandi að geta hlustað á tónlist á meðan ósköpin dundu yfir. Þegar kom að því sem mig kveið mest fyrir stillti ég á Möggu Stínu syngja lag Megasar um hirðmanninn frá Súrín og ég sveif í huganum suður eftir og var farin að reka stóra fílahjörð áður en ég vissi af.  Fílarnir eru lúnir eftir langan dag í sólinni og þeir leggjast á árbakkanum, þá munar í lúrinn. Og hann klifrar upp fótinn og upp á herðakambinn þeirra með skrúbb og klút, fílahirðirinn minn frá Súrín. Æðislegt lag sem Magga Stína fer vel með. Fyrr en varði var þessu lokið hjá tannlækninum, honum þótti ég hálf ræfilsleg og treysti sér ekki til að upplýsa mig um kostnaðinn. Hann bara brosti sínu fallega brosi og sagði að ég liti vel út. Ég þarf trúlega ekki að hafa neinar áhyggjur því, hann á örugglega eftir að senda mér feitan reikning.

Af því ég minnist á fegurðardrottningu, þá fékk ég sölumann í heimsókn í Kjallarann fyrir stuttu. Einn sá besti sem ég hef hitt. Hann skjallar Vertinn þvílíkt og annað eins að leitun er af öðrum eins lygalaup og leikara.  Þegar hann fór að líkja mér við Lindu Pé æstust leikar og ég hreinlega missti mig í kaupæði og keypi af honum allskyns glundur af miklum móð og stóð uppi um síðir uppi heilum hundraðþúsund kalli fátækari. Þeir kunna lagið á svona kerlingum eins og mér þessi sölumenn.

Ég er að sjóða saltkjöt og baunir. Það verður mjög gaman að sjá svipinn á tengdamömmu þegar hún kemur heim á eftir af spítalanum. Hún var nefnilega búin að kaupa saltkjöt í morgun en mér líkaði ekki hvað bitarnir voru feitir og fannst þeir af ómögulegum stað á skepnunni. Ég skilaði þeim og keypi nýja og betri bita. Er ég ekki hræðileg tengdadóttir. Ég á trúlega eftir að látast skammast mín örlítið þegar hún fer að heimta af mér spikfeita síðubita en hún þekkir allt sitt heimafólk og veit að ég er ekkert skárri en hundarnir og skammast mín ekki fyrir neitt.

Til stóð að fara í flugferð í dag en það var vindasamt í höfðuborginni svo það verðu að bíða eitthvað. Erfðaskráin er nánast tilbúin og ég er búin að hafa reglulega gaman af því að rita hana niður. Birti hana kannski á morgun.

Kv

Vertinn


Bolludagur.

Bolludagurinn er í dag og hefð er fyrir því að rjómabollur séu borðaðar daginn út og daginn inn. Þessi tími er mjög eftirminnilegur frá mínum uppvaxtarárum því hefð er fyrir því að ungdómurinn klæðist allskyns skrípabúningum og fari að "maska" sem kallað er, en þá ganga krakkarnir í flokkum um bæinn og banka upp á hjá íbúum og sníkja sælgæti.  Það er oft líf og fjör í bænum og gaman að sjá Maska, klædda furðuflíkum flakka um göturnar með hrópum og köllum, syngjandi og trallandi. Oftar en ekki koma börnin svo heim, klifjuð súkkulaði, lakkrís og brjóstsykri sem þau úða í sig af mikilli áfergju sátt og sæl eftir frábæra kvöldstund.  

Saltkjöt og baunir verða svo á matseðlinum á morgun svo ég þarf að muna að leggja baunirnar í bleyti. Það er alltaf jafn gott að smakka þennan herramannsmat einu sinni á ári. 

Tannlæknirinn reif úr mér þessa líka fínu postulínsbrú í dag sem smíðuð var af mikilli kostgæfni fyrir nokkrum árum af Áslaugu vinkonu minni sem er tannsmiður. Nú þarf að ráðast í enn stærri brúarsmíði sem á eftir að gera mig enn huggulegri til munnsins sem leiðir til þess að ég get brosað enn breiðar en ég hef gert til þessa. Ég er búin að vera nánast tannlaus í dag vegna þessa og það er búið að vera alveg skelfilegt. Ég lít út eins og áttræð tannlaus kerlingarherfa sem hefur mátt muna fífil sinn fegri. Þetta stendur þó allt til bóta því á morgun fer ég í allsherjar tannaðgerð sem gerir það að verkum að ég kem til með að líta út eins og manneskja og er tannskurður þar víst ofarlega á listanum yfir þau verk sem vinna þarf. Ég get ekki sagt að mig hlakki til morgundagsins en mig kvíður svosem ekkert fyrir heldur. Þetta er víst ekki það versta sem getur hent mig á lífsleiðinni. Þið hugsið kannski hlýlega til mín um hádegisbilið á morgun.

Bæjarráðsfundur í fyrramálið og þangað mætir Baldur galvaskur í minn stað. Við heyrðumst aðeins á í dag og fórum yfir dagskrána og ræddum heima og geyma.

Ég er semsagt búin að taka það rólega í dag enda get ég ekki látið sjá mig meðal fólks svona illa tennt.

Kem til með að láta í mér heyra á morgun.

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 635850

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband