9.4.2007 | 23:36
Hitt og þetta
Nú er páskahelgin að baki og aðeins farið að hægast um hjá Vertinum í Einarhúsi. Þetta er búið að vera annasamur tími og taugarnar hafa verið þandar til hins ýtrasta. Ég kem frekar illa sofin frá þessu öllu saman en hver segir að maður þurfi alltaf að vera sofandi. Það er nægur tími til að sofa þegar á elliheimilið er komið, ef hægt er að sofa þar á annað borð fyrir útúr rugluðum gamalmennum.
Það er búið að vera gífurlegur gestagangur í Kjallaranum yfir hátíðarnar og mér var eiginlega farið að finnast vera komið nóg í nótt þegar húsið yfirfylltist eina ferðina enn og ég þurfti að kalla út aukamannskap. En mikið lifandis skelfing er búið að vera gaman. Það er fátt skemmtilegra en að taka á móti skemmtilegu fólki. Fjölmargar myndir voru teknar og ég mun setja þær inn á síðuna mína fljótlega svo þið getið fengið að njóta þess sem þar var í boði. Gaman að segja frá því að tveir nafnar létu sjá sig og voru stoltir af nöfnunum sínum. Á myndinni hér til hliðar má sjá þá Baldur Smára til hægri og hinu megin við hann stendur Baldur Smári og er hann því vinstra megin á myndinni. Ég veit ekki alveg hvor er hvað enda skiptir það engu máli.
Ég er komin til Reykjavíkur og mun dvelja hér í rúma viku. Tannlæknirinn minn kallar en hann hyggur nú á landvinninga og stefnir á ferðalag kringum hnöttinn með alla stórfjölskylduna og vantaði aðeins upp á að endar næðu saman. Ég kem því færandi hendi alla leið vestan af fjörðum til að létta undir með blessuðum karlinum svo honum skorti nú ekki klink í ferðalaginu. Ég kem veltennt heim og það er fyrir öllu.
Ég fékk far með ungum manni og litla guttanum hans sem senn verður tveggja ára. Sá stutti kallaði mig ömmu allan tímann og þótti ekkert eðlilegra. Ég hafði bara gaman af því og vonandi á ég eftir að upplifa það einhvern daginn að verða amma. Þá skal ég spilla barnabörnunum og ofdekra þau eins og ég get. Ég hlakka bara til þegar þau koma eftir NOKKUR ár. Ég er ekki tilbúin til að verða amma alveg strax.
Ég fór í mína fyrstu hestareið á föstudaginn langa og það er eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert um ævina. Mikið rosalega var gaman. Blesi brokkaði og lullaði á víxl með kerlinguna á bakinu og hélst hún með undraverðum hætti upp á hrossinu allan tímann. Það var farið yfir ár og læki, hleypt á skeið upp dali og yfir engi og tún. Sungið var um rósina undir háu hamrabelti og áð í Meirihlíð þar sem Finnbogi og Dísa buðu upp á trakteringar. Þetta nánast toppaði alla páskana. Stórveisla var í boði í félagsheimili hestamanna eftir reiðina en mamma og pabbi voru með matarboð fyrir fjölskylduna og þangað lá leiðin í Íslenskan fjallahrygg með öllu tilheyrandi. Hátíðarfundur AA samtakanna var svo um kvöldið í Ísafjarðarkirkju og það var mjög fínt að komast þangað og ekki spillti fyrir að kökur og kaffi voru í boði á eftir.
Denni mætti galvaskur um miðnættið á föstudaginn langa og það var ekki að spyrja að því að hann sló í gegn enda prýðistrúbador. Í hléum tók Einar Örn í gitarinn og Benni Sig líka svo þið getið rétt ímyndað ykkur hvort það hafi ekki verið gaman. Sumir unglingar urðu yfir sig ástfangnir og fannst Vertinum á tímabili ástarlotin fara út í öfgar svo þessar turdildúfur voru barðar með borðtuskunni og þorðu þau ekki öðru en að halda sig á mottunni eftir það. Það má með sanni segja að þetta er fjölbreytilegt starf að vera Vert og maður þarf að grípa inn í ýmsar athafnir
Vertinn kíkti á tónleika þeirra sem aldrei fóru suður á laugardagskvöldið, því berja þurfti Flæðið augum en þar leika Benni Sig og Valdi aðalhlutverkin ásamt öðrum prýðis tónlistarmönnum. Þeir voru auðvita bestir. Önnur tónlistaratriði fóru fyrir ofan garð og neðan. Lilja sagðist hafa séð hundrað karla í lopapeysum með sítt skegg á hátíðinni og þótti nóg um. Það var svoldið einkennandi útlit á samkomugestum. Við stoppuðum stutt og fórum snemma heim. Ég var í fríi á laugardagskvöldið þegar Gunna Gumma Hafsa spurði spjörunum úr. Það var slangur að liði sem tók þátt í spurningakeppninni og fóru Arnar Heiðars og Ingvi, hennar Þóru Hans, mað sigur að hólmi. Gunna var með frekar erfiðar spurningar að sögn þeirra sem tóku þátt. Búðin hjá Kitta Summa, afa Gunnu, hét Hringur en það var ein spurningin hjá henni. Því var ég búin að steingleyma en stundum lagði maður leið sína þangað þegar vantaði gott í gogginn. Þær mæðgur og bardömur, Gunna og Helga dóttir hennar fengu að vinna fyrir kaupinu sínu á barnum því þegar líða tók á nóttina fylltist Kjallarinn af fólki og þeir í HAM fóru í ham ásamt öðrum sem fóru úr ham en allt var þetta í góðu og menn skemmtu sér hið besta.
Páskadagur rann upp eins og við mátti búast og tilhlökkunin yfir að heyra þá tvo trylltu og töfrandi sem ætluðu að troða upp um nóttina í Kjallaranum var yfirþyrmandi. Einkasamkvæmi var í Einarshúsi um kvöldið og því mikið um að vera strax og opnað var fyrir almenning. Það er ekki beint hægt að segja að þeir Orri og Bjarni Pétur hafi slegið í gegn en þeir voru svo sannarlega trylltir og töfrandi og tældu til sín fullt hús af fólki. Ein og ein falsetta slæddist með söngnum en það var ekkert sem orð er á gerandi. Undirleikurinn var til fyrirmyndar svo og allt þeirra fas og yndisþokki svo það er ekki undan neinu að kvarta. Valdi kom og greip í gítarinn af sinni alkunni snilld og hélt uppi stuði og það skemmdi ekki fyrir góðu kvöldi. Mikið fjör var í Kjallaranum og mikið gaman. Merkilegt hve mikið af fólki kemst í svona lítinn kjallara ég tel víst að það hafi ekki verið mikið fleiri á Aldrei fór ég suður en sýndu sig hjá Vertinum um páskana.
Á morgun rennur upp nýr dagur og ég á án efa eftir að lenda í einhverjum ævintýrum. Ég læt ykkur fylgjast með.
Dægurmál | Breytt 10.4.2007 kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.4.2007 | 14:54
Tveir trylltir og töfrandi
Í fyrsta skipti á Íslandi mæta Tveir trylltir og töfrandi í Kjallarann og taka lagið frá miðnætti. Margir hafa velt fyrir sér hvað dásemdarljós standi að baki þessu dúói en Vertinn hefur ekkert látið upp um það. Nú er bara að mæta og berja þessa dýrindis kappa augum. Þeir eiga án efa eftir að trylla líðinn með sinni tælandi og töfrandi útgeislun. Nú lætur engin sig vanta með góða skapið og léttu lundina því nú skulu páskarnir kvaddir með stæl því góð helgi er senn að baki.
PS. Vertinum vantar far suður á morgun. Ef einhver á leið til höfuðborgarinnar og er til í að taka aukafarþega, hafið endilega samband.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2007 | 13:19
Gunna Gumma Hafsa spyrill á Kjallarakeppni
Gunna Gumma Hafsa verður spyrill í kvöld á Kjallarakeppninni svokölluðu sem haldin er annan hvern föstudag i Kjallaranum. Hún verður með mjög svo erfiðar spurningar í bland við léttar og spaugilegar. Ein spurning verður þó erfiðari en allar hinar en það er sú spurning sem gefur frían kolamola úr kolageymslunni og því erfiðari sem hún er því glaðari verður Vertinn. Upplagt að kíkja í heimsókn í Kjallarann í kvöld og spreyta sig, því vegleg verðlaun eru í boði fyrir sigurvegara kvöldsins.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 12:18
Denni mætir á miðnætti

Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.4.2007 | 10:53
Ferming
Föstudagurinn langi er runninn upp í öllu sínu veldi og þessi dagur hefur upp á margt að bjóða. Fjöldi fólks er í bænum vegna rokkhátíðarinnar Aldrei fór ég suður og stefnan er tekin þangað í kvöld. Vertinn verður að sýna sig og sjá aðra og jafnvel er nauðsynlegt að gera samninga við stórstjörnur sem hugsanlega geta tekið lagið í Kjallaranum í framtíðinni. Það er að mörgu að hyggja í svona kráar bransa.
Fermingardagur Bryndísar í gær var fallegur og skemmtilegur. Við vorum á seinustu skipunum til messu og litlu munaði að við bárumst með straumi fermingarbarnanna er við gengum inn kirkjugólfið. Það hefði verið saga til næsta bæjar ef ég hefði verið fermd upp á nýtt. Séra Magnús hefði án efa farið út af sakramentinu í ræðu sinni er hann sagði söguna um Jesús frelsara vorn er hann átti að hafa laugað fætur lærisveina sinna og sýnt okkur með því að við erum öll jöfn fyrir guði. Ég tók hinni postulegu kveðju er ég gekk til altaris og meðtók lof og prís ásamt blóði og líkama Krists. Það var svo hátíðlegt og fermingarbarnið tók deginum svo alvarlega er það var hrifsað með ógnarhraða frá því að vera saklaus unglingur upp í að tilheyra tölu fullorðinna. Veislan var í Einarshúsinu og var öll hin glæsilegasta. Mér þótti nýnæmi í þvi að þurfa ekkert að skipta mér af einu né neinu, hvorki vaska upp né ganga frá og komst bara upp með að eta og drekka og fara svo heim.
Stefnan var tekinn í Önundarfjörðinn seinni partinn í gærkvöldi því til stóð að heimsækja Höllu óðalsbónda í sumarhúsið sitt. Mættum við þeim systrum, henni og Helgu, á leið til messu í Holti. Þær ljá sínar fögru raddir kirkjukórnum og ætluðu að syngja yfir söfnuðinum. Við litum í staðinn inn í kvöldkaffi hjá Ása í Tröð og þáðum trakteringar og ekkert var út á það að setja. Á heimleiðinni ómuðu óhljóð um dalinn líkt að verið væri að kvelja kött en við nánari eftirgrennslan bárust þau óhljóð frá kirkjunni í Holti þar sem kirkjukórinn kyrjaði sálminn "Ó jesú bróðir besti" með þvílíkum tilþrifum að Maggi Hans hefði trúlega farið yfir um ef hann hefði verið viðstaddur. Maggi Hans er ekki hrifinn af kirkjukórum eins og kannski margir vita en hann aftur á móti hefur reglulega gaman af því að flagga og flaggar að jafnaði annan hvern dag til að halda upp á, eða minnast atburða, af ýmsu tagi og brúkar þá Íslenska fánann jafnt sem þann Pólska.
Hestamenn fara í útreiðatúr í dag og hver veit nema Vertinn skelli sér með og taki smá monttúr á Blesa. Blíðskaparveður umvefur Víkina og því tilvalið að nota tækifærið og drífa sig út og fá frískt loft í lungun. Fjölskyldan er öll boðin í mat á Miðstrætið til þeirra gömlu og þar fær maður eitthvað gott í svanginn ef ég þekki hana mömmu rétt. Messa er síðan á dagskránni í kvöld. Þá koma drykkjusjúklingar eins og ég saman og njóta kyrrðar og friðar í Ísafjarðarkirkju. Kaffi verður á eftir og meðþví. Þangað ætla ég að mæta. Edrútími minn spannar bráðum 5 mánuði og ég er mjög stolt af mér að eiga þennan tíma þar sem ég hef haft yfirhöndina og ráðið för í mínu eigin lífi. Ég hef reyndar afrekað svo mikið þessum tíma að ég er gáttuð á því sjálf. Ég hefði sko engan tíma til að blogga ef ég væri ennþá að sulla í bjór, svo þið eru líka heppin ég skuli hafa hætt.
Ætli ég láti þetta ekki duga í bili. Hver veit nema ég skelli mér í göngutúr á eftir. Tveir svanir hafa sest að á tjörnunum við gönguleiðina mína og ber það vott um að vorið sé að nálgast. Sagan segir að Pétur Oddsson sá hinn sami og byggði Einarshúsið hafi einnig séð svani í Syðridalnum á sínum tíma en þeir voru 13 að tölu og hafði Pétur þá á orði að nú væri fjölskylda hans, sem hann hafði misst og saknaði sáran, komin til að líta efir honum. Pétri fannst vanta einn í hópinn, en það var hann sjálfur.
Denni mætir með gítarinn á miðnætti og syngur fram á nótt. Hann er alveg frábær strákurinn og ég hlakka til að hitta hann.
Svo þið sjáið að ég fer ekki yfir um vegna aðgerðarleysis.
Til stendur að hafa það skemmtilegt í dag og ég vona að þið getið einnig átt góðan dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2007 | 12:03
Af sem áður var
Það má með sanni segja að það er af sem áður var hvað varðar bloggsskrif hjá Vertinum. Hér áður þurfi ég að segja ykkur frá nánast öllu sem á daga mína dreif í mjög svo ævintýralegum fréttastíl og svo dettur úr þessu botninn eins og hendi sé veifað. Heilinn í mér er þó síður en svo hættur að vinna því það kallar á mikila hugstormun að starfa sem fréttastjóri og hreint ótrúlega mikill tími sem liggur að baki fáeinum línum. Það er greinilega mikið sáluhjálparatriði hjá fjölmörgum fjölskyldum að fá að fylgjast með lífssögu minni og taka þátt í öllum þeim ævintýrum sem ég lendi í. Ekki vil ég hafa það á samviskunni að hleypa öllu í bál og brand og ætla því að setja mér það markmið að láta í mér heyra reglulega.
Einar Örn kom sá og sigraði í gærkvöldi enda var hann frábær. Þetta var eitt af stærstu kvöldum Kjallarans en þau hafa reyndar verið nokkuð mörg frá upphafi. Húsið var troðfullt og kvöldið laðaði sig að væntingum Vertsins. Það var lagt upp með það að sem flestir létu sjá sig og gleðilegt hve margir studdu við sinn mann sem kominn var langa leið til að leyfa okkur að njóta tónlistarinnar sinnar. Vertinn brosti hringinn og lék á alls oddi, dansaði og söng. Minna þekktir trúbadorar tróðu upp annarsstaðar í bænum og bárust fregnir af bergmáli sem skall á milli tómlegra veggja. Það er nú einu sinni svo að þegar Vertinn spilar út sínum trompum þá tekur hann yfirleitt flesta slagina. Næg tromp eru eftir upp í erminni sem sett verða út eftir hendinni. Ég er afskaplega ánægð með kúnnanna mína sem styðja mig svo dyggilega. Þið eruð öll frábær.
Eitt af morgunverkunum er að renna í gegnum netmiðla til að leita að fréttum frá Bolungarvík til að setja inn á Víkara. Ekkert markvert er að finna að svo stöddu en rak ég þó augun í það að froðupartý er ekki lengur aðalfréttin á vef Bolungarvíkurkaupstaðar, en sú frétt hefur verið á forsíðunni ásamt öðrum auglýsingum um hina og þessa viðburði um nokkurt skeið. Nú virðist vera búið að taka froðuna út. Merkilegt nokk.
Andri og Þórunn eru í heimsókn og það er svo gaman að hafa alla rollinganna sína heima í hreiðrinu. Nóg er að sýsla hér heima við heimilsverk af ýmsu tagi. Ég þarf ekki að fjölyrða frekar um dugnað minn við heimilisverkin þið þekkið það öll. Við fórum mægurnar og tengdadóttirin í reiðtúr í gær og ég og Blesi náðum svo vel saman. Við riðum heim að Hofi og komum við hjá mömmu og pabba og áðum þar litla stund. Brokkað var alla leiðina og tekið á smá stökk í bland og reiðtúrinn toppaði daginn. Hestamenn hér í Víkinni fara í reiðtúr á Föstudaginn langa og þá verður nú sprett ur spori.
Bryndís Elsa bróðurdóttir mín fermist inn á Ísafirði í dag og veisla verður haldin í Einarhúsi, hvar annarsstaðar. Ég á eftir að renna yfir gólfin í Kjallaranum eftir nóttina og tína upp sígarettustubba sem liggja á víð og dreif fyrir utan. Ætli það sé ekki best að fara í það núna.
Hafið það annars sem best á þessum bjarta og fallega skírdegi.
Dægurmál | Breytt 6.4.2007 kl. 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.3.2007 | 23:42
Hestafóður
Vertinn lagði land undir fót í dag því leiðin lá til Þingeyrar til að vera viðstödd vígslu nýrrar reiðhallar á Söndum í Dýrafirði. Reiðhöllin hefur fengið nafnið Knapaskjól og hljómar nafnið mjög vel. Húsið er allt hið glæsilegasta og vonandi á það eftir að verða iðandi af lífi og fjöri í framtíðinni og nýtast hestamönnum hér í Bolungarvík vel. Blesi minn hefur sprett úr spori með smáfólk á námskeiði í þessu glæsilega húsi og kom hin ánægðasti heim aftur.
Bolvíkingar spiluðu stórt hlutverk og komu ríðandi hver á fætur öðrum á þvílíkum eðalklárum að annað eins hefur ekki sést hér vestra um langa hríð. Þau sýndu okkur listir og heilluðu áhorfendur upp úr skónum. Þetta var til fyrirmyndar og ekki spilltu snitturnar fyrir og heita súkkulaðið sem borið var á borð í restina.
Forseti bæjarstjórnar hringdi í mig í morgun og bað mig að færa aðstandendum þessarar reiðhallar blóm fyrir hönd bæjarstjórnar og segja örfá orð. Ég gerði eins og fyrir mig var lagt enda er það eitt af skildum bæjarfulltrúa að koma fram fyrir sitt byggðarlag og flytja árnaðaróskir frá Bolvíkingum þegar það á við. Við erum sjö fulltrúar kjörnir af fólkinu í bænum og þetta tilheyrir okkar starfi þegar við getum komið því við.
Ég gekk upp í pontu með blómvöndinn hægum og öruggum skrefum. Leit til allra átta og bugtaði mig og beygði enda voru þarna ráðherrar, þingmenn, bæjarfulltrúar auk hestamanna og annara góðra gesta. Ég flutti óaðfinnanlega tölu þar sem ég fór í fáum orðum yfir ræktun íslenska hestsins í aldanna rás. Annað veifið leit ég yfir líðinn og gjóaði augunum reglulega á bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar sem breyttist alltaf meir og meri í púka eftir því sem ég tjáði mig meira um graðhesta, tilhleypingar og sæðisgjafir. Að lokum voru honum vaxinn horn og hali og heimtaði að fá orðið á eftir mér. Þurtfti hann þá að hæðast að blómvendinum sem ég kom með færandi hendi frá Bolvíkingum og sagði að ég hefði komið með hestafóður handa hestunum. Ég tók hann auðvita á teppið fyrir þessi heimskupör en hann skammaðist sín ekkert.
Spilavistinn var stórskemmtileg að vanda. Hálfdán Guðröðarson og Magnús Sigurjónsson fóru með sigur að hólmi en Lilja og Sigga Kára voru með jafnmörg stig í kvennaflokki og fór Sigga heim með Villa Valla og Lilja með Bjarna Guðmundsson. Óli Óla fékk Villa Valla einnig með sér heim. Villi Valli er orðin margfrægur hér í Víkinni og hefur verið sendur heim með hinum og þessum.
Annars er allt kvöldið búið að vera undirlagt hér við tölvuna. Fréttaritarinn tekur sinn tíma í fréttaskrif og ekkert nema gott um það að segja. Ég hef svo gaman af þessu.
Stórkostleg tilboð eru í Kjallaranum í kvöld og ég er í fríi. Elsa og Gunna standa vaktina í nótt. Ég ætla þó að kíkja niðureftir á eftir og líta við. Slangur af fólki er víst mættur enda stórkostleg tilboð á kolamolum úr kolageymslunni. Tilboð verða alla páskana. Alltaf er að bætast við páskadagskrána í Kjallaranum og voru "Tveir trylltir og töfrandi" jafnvel að boða komu sína um páskana. Það verður ekkert frekar látið uppi um þá að svo stöddu. Vonandi nást samningar við þær stórstjörnur.
Munið bara að fylgjast með blogginu mínu og vera dugleg að koma við með góða skapið ykkar eins og ætíð því það er svo gaman að vera saman og gleðjast í góðum hópi.
Dægurmál | Breytt 6.4.2007 kl. 11:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.3.2007 | 22:34
Páskavika í vændum
Skipulagning pásaviku er í algleymingi og Vertinn hefur í nógu að snúast. Panta þarf guðaveigar til að væta þurrar kverkar páskagesta og góð tilboð verða á köldum Kolamolum alla páskana. Vegleg dagskrá er í smíðum og birtist von bráðar. Ég vænti góðrar mætingar á þá viðburði sem þar verða haldnir og vona að þið fylgist með blogginu mínu og lesið vel dreifimiðana sem ég sendi í húsin.
Opnun kosningaskrifstofu Sjálfstæðismanna var í dag á Ísafirði og þar var mikið um dýrðir. Þangað fór Vertinn aðsjálfsögu skarti hlaðinn og upp stríluð. Ég keypti mér nýverið úr, alsett demöntum og perlum. Til að halda ballans varð ég að fá mér tvö hringa á hægri hendina til að vega vega upp á móti þyngdinni á úrinu svo ég héldi fullri reisn. Auðvita bar ég af og naut mín í botn enda mjög gaman að hitta skemmtilegt og heiðarlegt fólk.
Vildi bara aðeins láta í mér heyra.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2007 | 22:21
Spilavist í Einarshúsi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.3.2007 | 23:19
Frjósemisbragur
Lag: Flagarabragur
Í bænum hefur bæjarbúum undanfarið fækkað
og tíðni barnafæðinga í framhaldinu lækkað
en ráð við þessu reiðileysi vissi engin maður
og Víkin var að verða einn, vesæll eymdarstaður.
Við þetta ástand Bolvíkingar vildu ekki una
af vörum manna heyrðust bæði andvörp þung og stuna
Hjá Sossu ekki heillaráðin bæjarbúa sviku
því nú við skildum sofa hjá, í ágúst eina viku.
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Og strax var hafist handa við að fjölga hér í bænum
því hérna þurfti kraftaverk og það í einum grænum
Svo lýsa varð með rauðum ljósum bolvískt næturhúmið
því lokka varð nú elskendur, beina leið í rúmið.
Í öðru hverju skúmaskoti sáð var ástarfræjum
svo hér var meira líf en er í flestum öðrum bæjum.
Og margir áttu meiri háttar unaðskrem í krukkum
sem mýkti upp og slétti úr, millifóta hrukkum
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Hjá sumum reyndust vandamál sem nánar varð að skoða
ef verma skildi kynlífs kul og margra ára doða.
Í lyfjabúð þá skundað var ef leita þurfti ráða
því lífga varð í snarhasti, þróttlausa og þjáða.
Á apóteki afsláttur var veittur út á visa
og viagra var tuggið, til að fá hann til að rísa.
Með tilhlökkun þá turtildúfur brugðu sér í bólið
og taumlaus reyndist ástríðan, ef funkeraði tólið.
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Þá varla þessa vikuna var tími til að vinna
því náttúrunnar kalli varð í sífellu að sinna,
og ekki mátti tímanum í óþarfa að sóa
því margvíslegar stellingar, þurfti nú að prófa
Að fjölga hér í bænum flestir settu þá á oddinn
og fagnandi svo bæjarbúar fengu sér á broddinn.
Nú eftir næstu ástarviku erfitt er að bíða
því öllum hérna langar svo, upp í rúm að ..............sofa?
Viðlag:
Ó, já þá skulum hafa gaman
í ástarleikjum ýmisskonar gamna okkur saman.
Ef þátttakendur ástarviku héldu sínu spori
mun ástarinnar ávöxtur, fæðast nú að vori.
Þorrablótið 2005
Höf: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm