Doddi á Kjallarakeppni

DoddiDoddi verður spyrill í Kjallarakeppninni í kvöld og hefur hann verið undir feldi ásamt Þorgeiri ljósvetningagoða undanfarna daga við að semja spurningar. Það er trúlega betra að undirbúa sig vel undir kvöldið því það þarf án efa að brjóta heilann töluvert er svara þarf spurningunum hans. Hann var fenginn til að grafa frá Einarshúsinu í vikunni til að koma frárennslismálum í lag og vildi hann ólmur grafa sig inn í bjórkútinn sem varðveittur er á barnum. Það vildi til að Óli Óla hafði vitið fyrir honum og stoppaði hann af. Þið getið þessvegna verið nokkuð örugg um það að nægur gleðivökvi verður til um helgina. Þarna á myndinni sjáið þið kappann glaðbeittan á stóra vörubílnum.

Annars er dagurinn búinn að vera stórskemmtilegur. Það var mjög gaman upp á Skálavíkurheiðinni og ég renndi mér eins og litlu börnin niður brekkurnar og skemmti mér hið besta. Í fyrstu ferðinni kom Halla Signý með mér upp og mátti litlu muna að snjóbíllinn gæfist upp á miðri leið því trúlega hefur honum þótt við vera of þungar svona samanlagt ef miðað er við hæð. Við héldum dauðahaldi í sleðana okkar og skelfingarsvipurinn lísti upp dalinn en upp komumst við þó og meira að segja niður aftur á fleygiferð. Ég læddi mér á snjósleðann hjá Reimari og það var eins og að sitja í hægindastól heima í stofu, þægindin voru þvílík. Svona þeystist ég um fjöll og firnindi í dag bæði á sleða og stórri uppblásinni slöngu og það var sko gaman. Þetta er gott framtak hjá björgunarsveitinni og heilsubænum.

Trampólínið okkar er komið upp í garðinum og það er ein af mínum uppáhaldsstundum að hoppa þar. Það kitlar svo hláturtaugaranar hjá mér að það hálfa er nóg og það sameinar góða líkamsþjálfun og príðisskemmtun. Við Lilja hoppuðum hæð okkar af kæti nú í kvöld og ætluðum aldrei að hafa okkur inn. Ég hoppaði nánast hvern einasta dag í allt fyrra sumar og fór oft svo hátt að fuglar himins horfðu á mig með forundran. Þetta er æðislega gaman og þið ættuð að prófa. Um að gera að vera búin að prófa sem flest ef ske kynni að maður færi að taka upp á þeim leiða ósið að hrökkva upp af.

Broshýr á BrodwayÉg hef alveg gleymt að geta þess að ég setti smá pistil af afdrifum mínum í höfuðborginni á dögunum á síðu sjávarútvegsráðherrans.  Þar læt ég móðan mása um allt og ekkert en þó aðalega um lokahófið sem haldið var á Brodway. Þar fór Geir Haarde á kostum og bæði dansaði og söng. Hann þurfti reyndar enn einu sinni að fara heim af ballinu með næstsætustu stelpunni því Vertinn fór ein heim enda ekki á lausu og harðgift. Þarna fer brandari sem allir þekkja og bráðnauðsynlegt að setja í nýjan búning við og við. Á myndinni hér til hliðar má sjá síkáta Sjálfstæðismenn brosandi á Brodway í góðum gír á góðri stundu.

 


Gleðilegt sumar

Harpa hefur bankað upp á og boðið góðan dag með sumardaginn fyrsta í farteskinu. Gleðidagur og tilhugsunin er góð og ljúft er að hugsa til þess að nú fari að hlýna og gróðurinn að grænka. Ég er á leið upp á Skálavíkurheiði á eftir til að sýna mig og sjá aðra. Brosa framan í hina og þessa og njóta samvistanna við ykkur á þessum fjölskyldudegi sem Heilsubærinn stendur fyrir ásamt björgunarsveitinni hér á staðnum. Ég ætla að renna mér með hinum krökkunum og hafa gaman. Njótið dagsins.


Óbeisluð fegurð

Óbeisluð fegurðMyndin hér til hliðar er tekin af mér sl. sumar. Þarna er ég hvorki komin með nýju tennurnar né hætt að drekka. Auður systir er reyndar búin að komast í tæri við myndina af Vertinum og gera örlitlar breytingar. Vonandi teljast þær ekki til bóta.

Keppnin um óbeislaða fegurð er í kvöld.

 Hefði ég kannski átt að taka þátt??


Komin heim

Það mundaði minnstu að ég missti af flugvélinni í morgun vegna umferðar. Ártúnsbrekkan var full af bílum og röðin náði eins langt og augað eygði. HVERNIG NENNIÐ ÞIÐ ÞESSU?? Ég er þessi óþolinmæða týpa og færi yfir um á taugum ef ég þyrfti að standi í þessu á hverjum morgni. Það skal engan undra að mengun sé yfir henni Reykjavík við viss skilyrði.

Ég kom hlaupandi inn á flugstöðina hlaðin töskum og pinklum og rétt gat munstrað mig inn áður en vélin tók sig á loft. Ég fékk sæti framarlega og sat hjá Kristni Gunnarssyni sem var á leið til Ísafjarðar á stjórnmálafund sem haldinn var í kvöld í beinni útsendingu. Vélin var full af fjölmiðlafólki sem og þigmönnum svo Vertinn féll vel inn í hóp þekktra einstaklinga í þjóðfélaginu. Flugferðin var alveg stórgóð enda veðrið með afbrigðum gott og útsýni mikið. Sólageislarnir dönsuðu yfir henni Reykjavík í flugtakinu og Perlan var líkt og eðalgeimsteinn er sunna lét geisla sína leika um það tignarlega hús. Vélin kom reyndar niður í Djúpið nokkuð utarlega og stórbrotið var að upplifa hvernig tignarlegu fjöllin hér fyrir vestan breiddu faðminn á móti mér og buðu mig velkomna heim aftur. Þau voru farin að sakna mín og ég þeirra. Það er gott að vera komin heim.

Súpufundur Sjálfstæðismanna er í hádeginu á morgun í Einarhúsi og munu Einar Kristinn og Birna mæta og heyra í fólki. Allir eru velkomnir. Ég ætla að elda súpu ofan í mannskapinn. Það er reyndar rennt blint í sjóinn hversu margir mæta og þess vegna erfitt að finna út hversu mikið ég á að elda en það verður að hafa sinn gang. Lion er svo annaðkvöld og þá elda ég eitthvað gómsætt ofan í karlana. Morgundagurinn er því fullbókaður í eldamennsku.

 


Systur

'I rólunni.jpgVertinn er búin að brosa hringinn í allan dag enda rík ástæða til. Tannbrúin passaði fullkomlega og ég er hæstánægð með hversu vel hefur tekist til. Sæt var ég fyrir en nú lítur allt út fyrir að ég sé fullkomin. Auður systir mín er flinkur ljósmyndari og tók af mér myndir í gríð og erg í dag úti í garðinum sínum. Þar eru há og tignarleg tré svo víða var hægt að stilla Vertinum upp til myndatöku og allstaðar myndaðist hún jafn vel. Þarna situr Vertinn í rólunni sem hangir úr einu myndarlegasta trénu í garðinum og hagar sér eins og smástelpa. Sagt er að tvisvar verði gamall maður barn og ég tel það næsta víst að Vertinn sé á fyrsta hrörnunarskeiði lífs síns sem brýst út í slíku athæfi.

Heimferð er fyrirhuguð á morgun og fokkerinn bíður spenntur á vellinum eftir að fá að fljúga heim með Vertinn því næg verkefni bíða fyrir vestan. Þið getið nú glaðst yfir því að nú hætti ég í bili að segja ykkur frá tannlæknunum og fer að huga að einhverju öðru til að þreyta ykkur á. Leiðin liggur á Mr Bean á eftir og því tilvalið að nota tækifærið og rabba við ykkur þangað til.

Kristinn mágur minn tók þessa mynd af okkur systrunum og eins og sjá má fara þarna fríðleiks stúlkur.Ragna og Auður.jpg Af okkur stirnir og drípur glæsileikinn í öllu sínu veldi. Við erum ekki mjög líkar í sjón en án efa er margt líkt með okkur ef vel er að gáð. Hún er aðeins eldri en ég en á þessari mynd er ekki hægt að greina það svo glöggt. Hún er örugglega búin að eiga töluvert mikið við myndina og má út allar hrukkur af andlitinu á sér ef ég þekki hana rétt. Ég lít nefnilega út fyrir að vera komin nokkuð vel til ára minna svo mig grunar að maðkur sé í mysunni. Auður á nefnilega svo fínt ljósmyndaforrit og leikur sér að því að afskræma mig ef hún sér þess nokkurn kost og yngja sig upp í leiðinni. Hrekkjulómaskapurinn er eitt af því sem við eigum sameiginlega og við getum stundum eytt heilu og hálfu dögunum í eintóma hrekki og fíflagang.

Þegar ég verð komin heim og hjólin farin að snúast eðlilega og ég farin að taka myndir af ykkur og öllum hinum í Kjallaranum þá breytist nú yfirbragð síðunnar til hins betra. Það er auðvitað alveg út í hött að vera alltaf með myndir af sjálfri sér hér dag eftir dag. Ég þarf bara að fá að njóta mín smá og ég veit þið þolið það vel og hafið gaman af.

 


Smotterý fyrir svefninn

Tel best að láta aðeins í mér heyra fyrir svefninn. Hef haft í nógu að snúast í dag. Ég vaknaði hress og kát eftir frábært lokahóf í gærkvöldi og sagan af því á eftir að birtast von bráðar. Nú fer ég að halda heim hvað úr hverju. Tönnunum verður komið fyrir á morgun og það er mikið tilhlökkunarefni. Dálítill kvíði er þó farinn að búa um sig innra með mér því ég á eftir að finna út hvernig ég á að borga brúsann. Mér datt það snjallræði í hug að mæta í Kringluna í Smáralindinni í fyrramálið og sína nýju tennurnar hverjum sem vill. Ég ætla að hafa gamla tanngarðinn meðferðis ef einhver sem veit ekki aura sinna tal ætti leið um og vildi gera mér tilboð í gömlu tennurnar. Ég tel það næsta víst að einhverjum þyki það vænlegur kostur að eiga tanngarðinn úr Vertinum að vestan. 

Ég haga mér auðvita heimskulega en ég er búin að liggja yfir pistli í allan dag sem birtur verður á vísum stað fljótlega og þar er ég búin að vaða á súðum og er því þurrausin af góðum og smellnum sögum til að segja ykkur frá í augnablikinu.

TvíburasysturÉg gisti hjá Andra og Þórunni kærustunni hans. Þóra tvíburasystir hennar er í heimsókn en þær eru eineggja tvíburar og eru töluvert líkar en samt ekki. Ég smellti mynd af stelpunum og ég tel upp á það að stelpan mín sé hægra megin á myndinni. Þær eru fæddar 27 janúar 1988 og koma frá Enniskoti í Víðidal og eru því óttalega miklar sveitastelpur. Önnur þeirra stundar nám í Borgarholtsskóla en hin í Fjölbrautarskóla Norðurlandsvestra á Sauðárkróki. Báðar bráðvelgefnar að sjálfsögðu og vel af guði gerðar.

 


Föstudagurinn þrettándi

Vertinn og EinarFöstudagurinn þrettándi rennur brátt sitt skeið á enda vandræðalaust. Engin óhöpp hafa hent Vertinn að neinu gangi og má telja guðs mildi ég skildi ekki keyra á neinn því aksturslagið er ekki alltaf eins og best verður á kostið. Tónlistin er svo há að ég heyri ekki hvenær ég á að skipta um gír og þen tíkina því þannig að það ríkur nánast upp úr húddinu. Ég er ekki vön beinskiptum bíl og gírskiptingar fara því stundum fyrir ofan garð og neðan.

Sjávarútvegsráðherrann brosti sínu blíðasta á Landsfundinum í dag enda var Vertinn  í góðu skapi og fékkst til að sitja fyrir á mynd ásamt ráðherranum og ekki er annað að sjá að þessi tvö myndist þokkalega vel. Þið þekkið auðvita öll mína minnimáttarkennd og vitið að ég er ekkert fyrir myndatökur eða að láta bera á mér. Ég gerði þetta svona meira fyrir Einar. Hárið er reyndar úfið en það hefur hrokknast svo mikið með aldrinum að það hálfa væri nóg. Teiti var í boði í kvöld fyrir sjálfstæðismenn í Norðvestukjördæmi í Safnaðarheimili Háteigskirkju og þar fórum við með bænir og báðum þann sem öllu ræður að blessa framboðið. Svo fengum við okkur snittur og sumir breyttu vatni í vín og skemmtu sér hið besta. Vertinn hélt sig á mottunni og fylgdist með og hafði sig ekki eins mikið í frammi og oft áður enda þreyta farin að láta ögn bera á sér. 

Lítið var sofið í nótt út af tannverkjum svo Vertinn kom snemma heim og fer því snemma í háttinn eftir óhappalausan dag.

 

 

 


Landsfundurinn

FanneyLandsfundur sjálfstæðismanna var settur í dag við hátíðlega athöfn í Laugardalshöllinni. Múgur og margmenni var mætt á svæðið til að sýna sig og sjá aðra. Ég mætti aðeins of seint því ég var á Café Milano með Fanney að úða í mig súkkulaði köku af bestu sort. Fanney vinkona er mjög hrifin af súkkulaðikökum af ýmsu taki og sýnir okkur hér með stolti dýrindis köku sem hún borðaði með bestu list. Fundargestir voru orðnir frekar óþreyjufullir að bíða eftir Vertinum og þegar ég gekk í salinn litu sumir mig hornauga. Strax og ég settist var Diddú gefið orðið og hún söng ættjarðarsöngva í bland við aðra gleðisöngva og hafði hún sér til fulltingis Jóhann Friðgeir ásamt Léttsveit Reykjavíkur. Ég er orðin svo gömul að mér er farið að þykja gaman af klassískum söng og naut min í botn. Að endingu gengu allir frambjóðendur fram á sviðið og var þeim vel fagnað af viðstöddum enda prýðis fólk í forustusveit. Ég stóð upp við og við til að reyna að festa forsætisráðherra og aðra tigna fyrirmenn á filmu og héldu fundarmenn þá að þeir ættu að standa upp líka og var það eins og við manninn mælt að það nægði að ég stæði upp þá risu allir aðrir úr sætum en talið er að um 2000 þúsund gestir sitji þennan 37. landsfund Sjálfstæðismanna. Ég rabbaði smá stund við alla helstu ráðherra í ríkisstjórn Íslands og heyrði ég lítið barn spyrja mömmu sína hvaða karlar þetta væru við hliðina á Vertinum. Það er auðvita von að barnið spyrji.

Ég varð einum endajaxlinum fátækari í dag en hann var dreginn úr með miklum tilþrifum. Það varð víst að gera það og ekkert meira um það að segja. Mig er búið að verkja talsvert í dag en það er vonandi að líða hjá. Ég hitti tannlækninn í fyrramálið og þá verður nýja postulínsbrúin borin við andlitið á Vertinum og það er eins gott að hún passi og að hún lappi eitthvað upp á útlitið. Þegar þig sjáið mig næst getið þið átt von á svo hvítu og geislandi brosi að trúlega á það eftir að minna ykkur á nýþvegna klósettskál.

Ég er alltaf að dudda eitthvað í víkaranum og set inn fréttir við og við. Baldur lánaði mér tölvu svo ég gæti bloggað svo ég verða að reyna að vinna eitthvað í staðinn. Ég er að hringja í alla sem ég þekki eða sem mig langar að kynnast sem eiga peninga og væru til í að styðja og styrkja við bakið á okkur og það á eftir að ganga vel. Ég er nokkuð viss um það að þeir láta eitthvað af hendi rakna á endanum bara til að losna við kvabbið í mér. Ef þið viljið auglýsa á frábærum netmiðli og jafnvel veita styrki til að styðja við bakið á vikara.is þá sendið mér línu. Ég er þess fullviss að þessi litli netmiðill skipti miklu máli fyrir litla samfélagið okkar.

vertinn.jpgBúið er að biðja Vertinn um að vera gestapenni á síðu hjá einum vel þekktum manni í þjóðfélaginu. Það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart að einhver skuli nenna að lesa þessa vitleysu sem ég buna út úr mér. Ég læt ykkur vita síðar hvar sá pistill kemur til með að birtast. En sá pistill á án efa eftir að vera stórskemmtilegur ef ég dett niður á að skrifa um eitthvað af viti. Set að gamni sjálfsmynd af mér sjálfri svona bara rétt til að lyfta egóinu upp á hærra plan en þarna sit ég sjálf á Óliver og ber svipurinn með sér að ég sé að segja eitthvað bráðsmellið við sessunauta mína.

Föstudagurinn 13 er á morgun. Vonandi ber hann eitthvað skemmtilegt í skauti sér. Ég sit að mestu leiti landsfundinn og get án efa sagt ykkur eitthvað krassandi þegar tækifæri gefst næst til að blogga.

 


Oliver

Ég rauk upp með andfælum um miðja nótt og náði vart andanum. Þá hafði brúin losnað og stóð föst í hálsinum á mér svo ég átti í miklum erfiðsmunum að draga næganlegt loft í lungun og var því hætt komin. Mér tókst með miklu snarræði að ná henni aftur svo andardrátturinn varð eðlilegur á ný og ég hef haft það eftir atvikum í dag. Það vildi til að blokkin sem ég bý í er ætluð þeim sem eru 50 ára og eldri svo allar nauðsynlegar skyndihjálpargræjur eru við hendina og það hefur án efa bjargað lífi mínu. Tannlæknirinn brást fljótt og vel við þessum hrikalegu aðstæðum og kallaði mig til sín í dag og reddaði málunum. Þá komst ég að því að hann er margfrægur körfuboltamaður og leikur með Stjörnunni í úrvalsliði og er á leið til Bandaríkanna eftir helgi. Þar ætlar hann að berja aðra handboltamenn augum og leika fótbolta og hafa gaman af. Hann hefur því greinilega margt til brunns að bera annað en að vera þokkalega góður tannlæknir. Hann virðist líka liðtækur í að handfjatla skopparabolta.

Áslaug, Beta, Ragna, Fanney og MæjaVið bekkjarsysturnar hittumst á Oliver og borðuðum saman dýrindiskvöldmáltíð þar sem bragðlaukarnir voru kitlaðir af gómsætum réttum. Þjónustan góð og maturinn til fyrirmyndar. Það var auðséð að stelpurnar höfðu eytt miklum og löngum tíma í að spartla í dýpstu hrukkurnar og mála síðan yfir öll herlegheitin. Magabeltin stóðu þeim inn að beini svo þær náðu varla andanum og ég tók út fyrir að horfa upp á þær blessaðar reyna að ná andanum með erfiðismunum. Þær voru þó með fullri fimm og nokkuð með á allt sem sagt var og það var til bóta. Það kom ekki að sök þótt ég hefði misst 20 kíló frá því er við hittumst síðast því þær höfðu bætt svo duglega á sig að meðalfallþunginn var svipaður og þegar við hittumst fyrir um ári síðan. Þetta er auðvita allt haugalygi því eins og sjá má á myndinni hér til hliðar þá fara hér þvílíkar fegurðardísir að það þótti tíðindum sæta að hafa svona gersemar allar inn á einum og sama staðnum. Við áttum þvílíkt skemmtilegt kvöld og mikið gátum við skemmt okkur yfir sögum sem við sögðum hver af annarri. Það er alltaf eins og við hefðum hist í gær og þannig er það með góðar vinkonur. Ég og Fanney ætlum að hittast aftur á morgun og jafnvel dífa tánni í Bláa Lónið ef vel viðrar.

Landsfundur Sjálfstæðismanna byrjar á morgun og þar er í fyrsta sinn sem ég sit þann fund. Það verður spennandi og gaman og ég hef heyrt að ráðherrar og aðrir þingmenn hlakki til að hitta Vertinn. Þið fáið kannski að fylgjast frekar með því síðar.

 

 


Höfuðborgin

Þessi fyrsti dagur í borg tísku og töfra brást ekki frekar en fyrri daginn. Mér finnst svo gott að koma hingað annað slagið og sjá nýtt fólk í nýju umhverfi. Leigubílstjórinn sem keyrði mig niður eftir í morgun til að sækja bílaleigubílinn hafði frá svö mörgu að segja að ég komst varla að, enda var aðalumræðuefnið vangaveltur um trúmál hinna og þessa trúarhópa og ég er ekki mjög sleip á því sviði. Ég sagði já og amen eftir efninu þegar ég hélt að það ætti við og reyndi að láta sem ég væri vel að mér í kóraninum og þekkti biblíuna út í gegn. Litli bíllinn minn beið mín svo á bílaleigunni svo sprækur og hress og ég er búin a endasendast um alla borgina á honum í dag.

Tannlæknirinn minn tók á móti mér með bros á vör. Það vill til að þetta er afskaplega fallegur og yndislegur drengur. Hann gerði allt klárt undir postulínið sem senn verður komið fyrir í munninum á mér og ef ykkur hefur fundist ég brosa breytt undarfarið þá á ég eftir að brosa enn breiðar þegar ég verð uppmubluð af postulíni.

Smáralindin kallaði háum rómi á Vertinn og laðaði svo lokkandi í verslanir sem þar eiga samastað. Zara bauð upp á blússur, buxur og pils af öllum sortum og ekki létu Vera moda og allar hinar búðirnar sitt eftir liggja að toga mig til sín. Tískan minnti mig á fatnaðinn sem var alsráðandi þegar ég var um fermingu og köflóttir skokkar og skræpóttar blússur reyndu að freista og litu svo tælandi í áttina til mín. Ég lét auðvita freistast enda passaði ég mig á því að koma hingað suður með tómar töskur og var því algjörlega fatalaus.

Það jafnast svo ekkert á við að setjast inn á gott kaffihús og fá sér ilmandi kaffi og tertusneið þegar staðið er í slíkum stórræðum. Þar gat ég horft vel yfir sviðið og sá kerlingar af öllum stærum og gerðum hlaupa stefnulaust milli tískuvöruverslana hálfsturlaðar af kaupæði með innkaupapoka merkta hinum og þessum. Ekki var annað að sjá en að þetta væru flest allt dreyfbýliskvensur sem fóru alveg yfir um þegar þær komust í alvöru búðir og bara keyptu hvaða druslur sem var hvort sem þær pössuðu eða ekki. Ég hálf aumkaðist yfir þessar aumingja konur sem höguðu sér með þessum hætti. Ég segi bara við þessar kaupóðu kvensur, verslið í ykkar heimabyggð!!

Ég hringdi í bekkjarsysturnar og lét vita að ég væri mætt á svæðið. Þær vissu það allar enda lesa þær bloggið og biðu bara eftir símtali. Við ætlum að borða saman annaðkvöld og þá verður ýmislegt rifjað upp frá gamalli tíð sem ekki verður látið á prent. Helga Svana var okkar aðalkennari og leiddi okkur styrkri hendi gegnum skólann. Það er henni örugglega mikið að þakka hversu vel við erum úr garði gerðar. Ég læt mynda okkur saman á morgun og þá fáið þið að sjá þann fríða hóp gamalla bekkjarsystra.

Vonandi snúast hjólin snúist ennþá þarna fyrir vestan þó ég hafi brugðið mér af bæ. Stór hópur er væntanlegur í kaffi á morgun í Einarshúsið og munu Elsa og mamma sjá um af hafa fyrir því fólki. Lífið gengur víst sinn vanagang þótt ég sé ekki potturinn og pannan í öllu.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband