3.5.2007 | 21:49
Það rignir
Rigningin hefur lamið á gluggarúðunum undanfarið, þó hefur rigningarsuddinn látið sig hverfa annað slagið og hlaupið í felur til auka á margbreytileikann i veðrinu en mætt jafnharðan aftur með enn meiri krafti en áður. Það er merki um rigningu ef Vertinn hengir þvottinn á snúruna og ekki brást henni bogalistin núna frekar en fyrri daginn. Það hefur nánast ekki stytt upp eina einustu stund eftir að tauið var hengt upp með svo mikilli natni á snúrurnar til þerris. Bolvíkingar lesa í þvottinn minn líkt og lesið er í garnir á Dalvík og þykir það með eindæmum hve mikið er að marka þessi teikn. Ólguský byrja að plotta sig saman til að ráðgera ausandi skúraveður þegar ég kem út í sakleysi mínu með þvottabalann minn. Þau nikka þó til mín með falsglott á vör er ég lít til himins bænaraugum um þurrkatíð. Siggi stormur veðurfræðingur samdi við Bjöggu Summ um að láta sig vita þega ég álpast til að hengja út og hefur hann reynst nokkuð sannspár síðan um rigningu og rok hér fyrir vestan. Það verður þó að geta þess að þrjóska Vertsins er þó með eindæmum og bíður hún óhikað rigningunni byrginn. Þvotturinn er látinn hanga þangað til hann er orðinn þurr og oftar en ekki er fröken rigning frekar þurr á manninn er hún játar sig sigraða og hverfur af vettvangi. Sagt er að sá vægi sem vit hefur meira og má vel vera að það sé rétt en ég tek það ekki til mín í þessu sambandi.
Afmælisdagurinn minn var alveg yndilegur þrátt fyrir háan aldur þá ber ég mig vel. Fólk er ennþá að faðma mig að sér og kyssa mig og knúsa. Það er svo notalegt og þetta er að mínu mati kostur við að búa í svona litlu bæjarfélagi. Það er svo gott að geta treyst á það að fólk gleðjist með mér þegar ég upplifi hamingjustundir og einnig er mikill styrkur í því að geta treyst á það að þetta sama fólk sé mín stoð og stytta þegar eitthvað bjátar á. Sumir geta ekki glaðst með öðrum vegna öfundar og afbrýðissemi og ég held að þeir hafi bogið bak sem burðast með þær stöllur sína lífsleið.
Fjöldi manns sótti Reyni Torfason heim í Einarshúsið til að skoða málverkin hans. Hann seldi kynstrin öll af verkum og var hinn ánægðasti. Skyldfólk mitt var duglegt að sýna sig og sjá aðra og ég skemmti mér hið besta. Það sem mér þykir alveg sérstakt er að báðir afar mínir prýða veggi stofunnar en þeir voru báðir heiðraðir á sjómannadag árið 1957. Guðjón Jónsson er á ljósmynd og Hjálmar Þorsteinsson er á mynd sem Reynir teiknaði og er í minni eigu. Svona til gamans þá get ég sagt frá því að ég tók á móti heiðursmerki pabba míns á sjómannadaginn árið 1996 í fjarveru hans. Hugsið ykkur að eiga eina slíka minningu í hinum dýrmæta lífsins sjóði. Ómar Már mætti galvaskur frá Súðavík ásamt Laufeyju konu sinni og upplagt þótti að smella mynd af okkur frændsystkinunum ásamt mökum okkar. Ómar verður spyrill í Kjallarakeppninni eftir hálfan mánuð og þá hef ég fengið alla bæjarstjórana hér í kring til að spyrja. Heyrst hefur eftir mjög áreiðanlegum lygasögum að Ólafur Ragnar sé farinn að ókyrrast á Bessastöðum og vilji koma og fá að vera spyrill og hver veit nema hann reki úr ykkur garnirnar einhvern daginn. Ég á eftir að setja myndir sem ég tók á 1. maí inn í myndaalbúm fljótlega.
Mikið líf var í Einarshúsinu í gær og fjör á báðum hæðum. Bekkurinn hennar Lilju hélt kveðjupartý í Kjallaranum fyrir bekkjarfélaga sinn sem flytur senn héðan í burtu og þau voru til fyrirmyndar enda eru krakkarnir í 7. bekk alveg einstök. Þau bera virðingu hvert fyrir öðru og þau eiga að fá orðu fyrir framkomu sína og kurteisi. Þau stilltu sér upp í einum bátanna á höfninni og ég fékk að taka af þeim mynd og eins og sjá má fer þar fríður hópur.
Uppi í salnum mætti forysta Starfsgreinasambandsins og stjórn Verkalýðs og sjámannafélagsins í súpu og brauð og Vertinn lagði frá sér svuntuna eitt augnablik og brá sér í gerfi fréttamanns hjá Víkara og spjallaði við fólkið og bjó til smá frétt. Ég get ekki kvartað undan að lifa einhæfu líferni, það er víst ábyggilegt. Ofvirknin er reyndar stundum að fara með mig og það er ekki laust við að heilinn heimti að ég fari að slaka á en það er enginn tími í einhverjar slökunaræfingar þegar allt er að gerast. Kemur ekki til greina.
Ég brá mér á Ísafjörð í hádeginu á súpufund hjá Sjálfstæðismönnum en þar talaði Einar Oddur um efnahagsmálin. Það var nokkuð fjölmennur fundur og sveppasúpan rann ljúffeng niður undir ræðu frambjóðandans.
Netheimar eru að vinna auglýsingabækling fyrir Bolungarvík og fyrirtæki hér í bænum geta keypt auglýsingar og Einarshúsið er með að sjálfsögðu með. Leiðin lá þessvegna til Magga Hávarðar eftir súpufundinn til að útlista nánar hvernig smámunasami Vertinn í Víkinn vildi hafa auglýsinguna. Þetta er stórskemmtilegur bæklingur og vel útbúinn. Ómar Smári listamaður á Ísafirði teiknaði mynd sem verður á forsíðu hans og enginn verður svikinn af teikningunum hans Smára. Hann vinnur að sýningu sem haldin verður í Einarshúsi í febrúar og þar á margur eftir að verða undrandi.
Aðalfundur Ferðamálasamtaka Vestfjarða er um helgina á Tálknafirði og Vertinn leggur því land undir fót á morgun. Það ríkir mikil tilhlökkun að hitta fólk sem er í ferðamannabransanum og bera saman bækur sínar. Ég gisti á Patreksfirði en húsbóndinn er að vinna þar um þessar mundir og hittumst við því í mýflugumynd um helgina. Við erum því einar heima mæðgurnar og búskapurinn gengur þokkalega enda semur okkur vel, sem er ekki skrýtið ef miðað er við hvað við erum einstaklega skemmtilegar allar þrjár. Ég tek tölvuna með mér og reyni að leyfa ykkur að fylgjast með hverju mínu skrefi eftir fremsta megni. Ég er nefnilega búin að sannfæra mig um það að þið lifið svo tilbreytingasnauðu lífi að eina gleðin og birtan í lífi ykkar sé að lesa bloggið mitt. Svo ég fæ alltaf samviskubit ef langt líður á milli blogga.
Kjallarakeppnin er að vanda á föstudagskvöldið og verður Sigga Kára spyrill. Mig grunar að Svenni verði henni innan handar svo nú skal spurt að leikslokum.
Kristinn H. Gunnarsson heldur súpufund í hádeginu á laugardag og ég er búin að semja við frjálslynt og fjörugt fljóð til að elda sjóðheita og seiðandi súpu í fjarveru minni fyrir gesti alþingismannsins og án efa á hún eftir að bragðast hið besta.
Valdimar Lárusson mágur hennar tengdamömmu og vinur okkar lést á afmælisdaginn minn á sjúkrahúsinu á Hvammstanga. Hann var kunnur leikari í gamla daga og lék meðal annars í Jeppa á fjalli sem fór hringferð um landið á sínum tíma. Valdi var lögreglumaður og skáld og svo var hann líka pabbi hennar Sigrúnar í Dæli í Víðidal vinkonu minnar. Hann gaf út nokkrar ljóðabækur sem ég glugga oft í.
Hann orti um Fyrsta maí:
Verkalýðsbarátta !
Lífsbarátta !
Barátta !
Baráttan hans er töpuð og leiðin liggur á vit nýrra ævintýra.
Ranka amma mín dó líka á afmælisdaginn minn þegar ég var 11 ára gömul. Af því má sjá að fólk velur sér þennan dag bæði til að fæðast og til að deyja.
Dægurmál | Breytt 4.5.2007 kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.4.2007 | 23:25
Afmælisboð
Nú skal blásið til stórveislu 1. maí því Vertinn á afmæli. Þrátt fyrir að heil 42 ár séu nú að baki ber Vertinn sig afskaplega vel enda nokkuð ern ef miðað er við aldur. Ég er stolt af hverju einasta ári enda hef ég lifað þeim að mestu leiti leiti í sátt við guð og menn. Maður á að gleðjast yfir hverju ári sem safnast í sarpinn og ég þakka fyrir að fá að vera ung í anda og létt í lund.
Mig langar að bjóða ykkur öllum til mín í Einarshúsið á málverkasýningu hjá Reyni Torfa kl. 15:00 - 19:00 og njóta þessa að hitta mig og dáðst að málverkunum hans. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en það myndi gleðja mig mikið ef þið létuð sjá ykkur og fögnuðuð þessum tímamótum með mér.
Annars leið dagurinn eins og örskot og mikið var að gera. Umsýsla í kring um svona rekstur er ótrúlega mikill. Tröppurnar á Einarshúsinu voru steyptar í dag svo húsið fer að fá sitt upprunanlega andlit. Allt kemur þetta í rólegheitunum því góðir hlutir gerast hægt og ekkert þýðir að vera með neinn asa. Það verður gríðarlegur munur þegar nýju útidyrnar sem eru smíðum verða komnar á sinn stað en þá fyrst mun húsið breyta um svip.
Forstjóri DAS mætti til að stappa í mig stálinu en ég er með umboð fyrir það happdrætti. Hann þáði dýrindis kaffi og var allur annar maður á eftir. Nú fer nýtt happdrættisár að byrja og brýnt að spíta í lófana því mikið liggur við að halda áfram byggingu dvalarheimila. Til stendur að stækka herbergin á Hrafnistu í Reykjavík því þau standast ekki lengur tímans tönn og brýnt að færa þau nær nútímanum. Ég bauð honum að flytja höfuðstöðvar happdrættisins hingað í Víkina en hann gaf ekkert út á það en ég held áfram að þjarma að honum því okkur vantar störfin hingað vestur og það strax. Það er langt þangað til ég fer á Hrafnistu enda bráðung og fjörið rétt að byrja og nægur tími til að huga að varanlegum dvalarstað í ellinni.
Það er þó töluvert styttra þangað til amman á myndinni hér til hliðar fer á elliheimilið en hún er einnig 1. maí barn eins og ég bara mikið eldri. Við Halla Signý erum búnar að vera vinkonur síðan við vorum unglingar og sá vinskapur heldur enn. Ólöf María kom í heimsókn með ömmu sinni einn daginn og skemmti sér hið besta. Halla er bara hreint ágæt kerlingin og ég nota hér tækifæri og sendi henni afmæliskveðju.
Að öðru leiti þaut þessi dagur hjá með ógnarhraða eins og hver annar. Tíminn til að blogga af einhverju viti er af skornum skammti en það mun vonandi hægast um innan tíðar.
Læt þetta duga í bili og ég hlakka til að hitta ykkur í tilefni afmælisins. Sjáumst eldhress.
Dægurmál | Breytt 1.5.2007 kl. 02:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
30.4.2007 | 01:37
Hugleiðingar eftir helgi
Þá hefur enn ein helgin runnið sitt skeið á enda og ný vika er runnin upp. Hver dagur sem líður er gott innlegg í sjóð dýrmætra minninga. Helgin er búin að vera góð en annasöm eins og flestar aðrar helgar hjá Vertinum í Einarshúsi. Ég stóð vaktina báðar næturnar með draumadísinni minni henni Gunnu Ásgeirs. Spilavistin gekk vel fyrir sig eins og við var að búast og töpuðu Doddi og Hrafnhildur með glans en Óli, hennar Þórunnar og Mæja Þórarins fóru með sigur af hólmi í æsilegri baráttu spilafíkla á spilavist. Kex, ostar og vínber voru í boði og allir kunnu að meta þær trakteringar og menn og konur voru í góðum gír. Fólk sat frameftir nóttu og naut þess að sitja að spjalli við mann og annan og létt var yfir mannskapnum.
Vertinn svaf eins og ungabarn á laugardag en vaknaði að endingu í yndislega fallegan dag þar sem sólin lék við börnin sín og heitur vindurinn tók þátt í leiknum. Ég og Elsa hoppuðum á trampolíninu þessum fallega degi til heiðurs og laðaði glaðværðin og hlátarsköllin Sísí með í leikinn en hún var í göngutúr. Lékum við okkur eins og krakkar um stund enda erum við óttalega börn og það er gott að geta leikið sér áhyggjulaus þrátt fyrir að vera orðin rígfullorðin. Blessuð börnin í nágrenninu flissuðu og vissu ekki sitt rjúkandi ráð er við kerlingarnar svifum meðal fuglanna í hæstu hæðum og létum eins og fífl. Vonandi geta þau látið svona á okkar aldri.
Vertinn í Kjallaranum þurfti að leita á náðir Vertsins á Langa Manga því allur bjór var nærri búinn og Gummi reddaði mér enda bóngóður líkt og aðrir góðir veitingamenn. Þá hafið frúin hans og forsprakki Óbeislaðrara fegurðar hún Matta, verið í útvarpsviðtali um morguninn og gerði hún feiknafjöri á þessum tveim eðalkrám hér fyrir vestan góð skil. Ég kann vel við slíka samvinnu sem er lýsandi dæmi um hve sterk við getum verið ef við vinnum saman. Gummi kemur innan tíðar að spila í Kjallaranum og komin tími til að hann spili fyrir okkur Víkarana.
Undirbúningur fyrir myndlistasýningu hjá Reyni frænda mínum er í algleymingi og kom hann og Gígja í dag með fullan bíl af málverkum sem príða munu veggi Einarshúss á 1. maí. Við drukkum kaffi og jógúrtköku úti á palli og nutum veðurblíðunnar ásamt mömmu og pabba. Ljómandi góður dagur.
Mikil hátíðarhöld hafa verið í Grikklandi undanfarna daga er fregnir bárust af því að Vertinn hyggur á landvinninga á eyjuna Rhodos í ágúst nk. Stefnt er að því að vera þar í hálfan mánuð og hitta aðra þjóðhöfðinga og fyrirmenn. Allur hópurinn minn kemur með auk Bryndísar bróðurdóttur minnar sem fær að fljóta með enda er kært á milli hennar og Lilju. Þetta verður hreint æðislegt og ég hlakka til að njóta seiðandi sólar á suðrænni strönd með krökkunum mínum. Þvílíkur munaður að geta leift sér slíkt og mikið er ég lánsöm.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2007 | 12:55
Pabbi
Afmælisdagurinn hans pabba er í dag en þessi unglingur er 84 ára gamall og ber aldurinn furðuvel enda sprækur og hress. Hann hefur alla tíð verið dugnaðarforkur og líf hans einkennst af vinnu og atorkusemi. Hann er enn að þrátt fyrir þennan aldur og herðir steinbít og ýsu af miklum móð og færir okkur með stolti enda ber harðfiskurinn hans af hvað bragð og gæði snertir. Pabbi er sonur Ragnars Jóhannssonar frá Garðsstöðum og Ragnheiðar Jónsdóttur en Guðjón Jónsson og Margrét Halldórsdóttir tóku hann í fóstur mjög ungan og ólu hann upp í Bolungarvík. Hann hefur alla tíð átt heima hér í bænum þótt hann hafi silgt um öll heimsins höf á sínum yngri árum kom hann alltaf aftur heim. Hann átti trillu með afa og sótti sjóinn stíft um árabil og þótti fiskinn með afbrigðum. Hann er geðprúður maður, glaðvær og afskaplega fallegur. Ég hef ella tíð verið sögð lík honum og ef miðað er við ofangreinda lýsingu sjá allir að það er ekki leiðum að líkast.
Bæjarstjórnarfundurinn fór vel fram og var frekar létt yfir mannskapnum. Ég bauð bæjarstjóranum að ganga í Sjálfstæðisflokkinn og hann ætlaði að hugsa málið og fá að sofa á því örlitla stund en eins og sjá má á myndinni þá er hann hugsandi og dreyminn er hann heldur á kristalstæru bergvatni merktu x-D. Hann svolgraði hið ískalda og ljúffenga vatn með áfergju úr flöskunni og þótti það vera bragðgott og naut hvers sopa. Ég tel það næsta víst að hann svari mér fljótlega og er nokkuð bjartsýn á að hann gangi fagnandi til liðs v
ið okkur.
Súpuhópur beið mín eftir bæjarstjórnarfundinn svo næstu skref voru stigin ofan í Einarshús en þar var uppskeruhátið á íslenskunámskeiði sem haldið var fyrir útlendinga. Þar var glatt á hjalla og mikið gaman og mikið fjör. Ég auðvitað trauð mér með í samkvæmið enda mikil selskaps og samkvæmismanneskja og borðaði pólskar kökur og hlustaði á fransmann og drakk íslenskt kaffi með. Það er alltaf gaman að vera innan um skemmtilegt fólk. Á myndinni má sjá þennan föngulega hóp ásamt kennurum sínum þeim Elísabetu Guðmundsdóttur og Björgvini Bjarnasyni. Alain sómir sér vel innan um pólverjanna en hann bjó í Einarshúsi til margra ára og þekkir því vel til hússins.
Dægurmál | Breytt 28.4.2007 kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2007 | 01:19
Spilavist í kvöld
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.4.2007 | 00:54
Regnboginn
Regnboginn umvafði Víkina góðu í dag og sendi frá sér góða strauma í öllum regnbogans litum. Hann hafði fyrir því að sýna sig og sjá aðra eftir gróðrarskúr sem vökvaði gróðurinn sem er nú í óða önn að vakna til lífsins. Hlýtt var í dag og volgur sunnanvindurinn strauk blíðlega vanga minn er ég fór í hesthúsin að hitta vini mína. Hestarnir bera skilyrðislausa virðingu fyrir mér og þakka mér tugguna fullir lotningu. Þeir eru miklir gleðigjafar og ég nýt þess að fá að strjúka þeim og njóta um leið kyrrðarinnar í Syðridalnum og fegurðarinnar sem þar blasir við mér yfir undir og allt um kring. Það er svo gott að geta notið þess sem fyrir augum ber og hér er hægt að dáðst að hverri þúfu og hverjum hól.
Umsýslan í Einarhúsinu tók af mér meiripart dagsins. Sölumaður heimsótti mig og seldi mér eitt og annað. Ég fer væntanlega að fá nýja kaffivél því þessi sem ég hef verið með hefur ekki alltaf annað eftirspurn svo ég er alsæl yfir því að geta nú staðið mína plikt í uppáhellingum og þvíumlíku. Ekki veitir af ef þið ætlið öll að kíkja til mín í kaffi í sumar og fá hjá mér kaffi og eitthvað með því. Ég tek á móti ykkur fagnandi. Ég pantaði einn kassa af gómsætu súkkulaði með núggatfyllingu sem ég ét af mikilli græðgi og sel í minna mæli fyrir vikið. Ég er pínulítill sælgætisgrís þegar þannig liggur á mér og það er ekkert við því að gera.
Reynir Torfa listmálari kíkti í kaffi og skoðaði salinn í leiðinni en hann er í óða önn að leggja síðustu hönd á málverkasýninguna sína og var að taka húsakynnin út. Ég vona að fólk veri duglegt að mæta og njóta málverkanna hans.
Meiriháttarfundur var svo haldinn fyrir Bæjarstjórnarfundinn á morgun en á slíkum fundum hittist minnihlutinn í bæjarstjórn og fer yfir málin. Ég og Elín og Sölvi komum saman til skrafs og ráðagerða og drukkum kaffi og átum súkkulaði og höfðum það bara fínt. Það er nauðsynlegt að hittast annað slagið og stilla strengina og fá þá til að hljóma nokkurn veginn í takt. Auðvitað hljóma þeir ekki alltaf eins en það er samt hægt að spila sama lagið þótt tónhæðin sé kannski ekki alltaf sú sama. Aðalatriðið er að halda sig sem næst á D-strengnum og leika svo á hörpunnar strengi ljúfa tóna.
Ég ætla að fara með þýðan hörpuslátt sem veganesti inn í nóttina. Vonandi dreymir okkur ljúfa og góða drauma.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.4.2007 | 01:30
Leiðtoganámskeið fyrir konur
Ég fór á leiðtoganámskeið fyrir konur í Félagsbæ á Flateyri í kvöld og sé sko alls ekki eftir því. Ég gat svosem sagt mér það fyrirfram að þetta námskeið yrði frábært því Guðfinna Bjarnadóttir fyrrum rektor Háskólans í Reykjavík og núverandi frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins hélt um stjórnartaumana á námskeiðinu sem bar yfirskriftina, Leiðtogi í lífi og starfi. Hún fyllti þær konur sem þarna voru samankomnar gríðarlegu sjálfstrausti enda var framsetningin svo uppbyggileg og jákvæð. Hún hvatti okkur til að dusta rykið af manngildum okkar og pússa þau reglulega upp. Hennar gildi eru bjartsýni, heiðarleiki, hugrekki og væntumþykja. Hver og ein okkar hefur sín gildi sem við byggjum okkar líf á og nauðsynlegt fyrir okkur að vita hver þau eru og hlúa vel að þeim svo við séum meðvitaðar um fyrir hvað við stöndum. Hún minnti okkur líka á að rödd hverrar manneskju er einstök og á skilið að heyrast því hver og ein okkar hefur eitthvað frábært fram að færa og við eigum að vera óhræddar að láta okkar kosti í ljós. Það eykur sjálfstraustið hjá okkur og sjálfstrausti fylgir kraftur, athafnasemi og stolt.
Mér finnst ég vera full af krafti, athafnasemi og stolti um þessar mundir að stundum held ég að hjartað í mér fari á yfirsnúning vegna þess en einhverra hluta vegna tóri ég enn. Stundum vildi ég að hægt væri að tappa þessari atorku minni af endrum og sinnum en ég fæ útrás í bloggi og annari vitleysu. Ég held stundum að krafturinn allur sem býr innra með mér núna sé ættaður frá hinum háa herra eða einhverjum í fjölskyldunni hans og kalla gott ef sá sem situr við hægri hönd Guðs föðurs almáttugs sendi mér ekki strauma við og við. Ekki taka því þannig að ég sé orðin frelsaður drykkjusjúklingur því það er ekki svo. Í sannleika sagt hafði ég smá áhyggjur af því að ég yrði þannig þegar ég hætti að drekka en svo er ekki. Samt sé ég lífið í nýju og svo miklu betra ljósi.
Ég var skipaður veislustjóri á þessu leiðtoganámskeiði en Birna Lárusdóttir sá til þess, blessunin. Um leið þurrkuðust allir brandarar og smellnar gamansögur úr kollinum á mér í einu hendingskasti og ég vissi ekki mitt rjúkandi ráð um stund. En hafði mig þó í að aula út úr mér einum ljóskubrandara og sneri honum að sjálfsögðu upp á Guðfinnu sem tók því bara eins og hverju öðru hundsbiti í hæl. Ég var síðan látin stýra umræðum um hverjir væru styrkleikar og veikleikar þess bæjarfélags sem við komum frá og hvað mætti betur fara en konur voru þarna samankomnar frá Ísafjarðarbæ, Súðavík og Bolungarvík. Ég sló í gegn eins og við var að búast og bar mig mannalega og þóttist vita jafnmikið og rektorinn fyrrverandi og sló þar með ryki í augum á viðstöddum. Það er nefnilega alltaf gott að bera sig vel og leika af fingrum fram á svona stundum. Ég lít upp til Guðfinnu Bjarnadóttur og hún hafði einstök áhrif á mig þegar ég hitti hana í fyrsta skiptið. Þá hugsaði ég með mér að þessari konu vildi ég líkjast og setti mér það markmið að verða eins og hún og svei mér þá ef ég er á góðri siglingu með að ná henni í persónutöfrum og visku.
Aðgerðin hjá tengdapabba gekk framar vonum og útlit er fyrir að hann nái sér að fullu svo dagurinn skilaði góðum fréttum og við erum glöð í hjarta okkar fyrir það.
Af þessu má sjá að dagurinn hjá mér var yndislegur. Ég svaf til hádegis á mínu græna eyra eins og prinsessa og vaknaði í forundran yfir öllum þessum svefni. Þarna sjáið þið hvað ég er heppin að geta sofið eins og ég vil og haft hlutina alveg eftir mínum hentugleika.
Hér fáið þig smá gullkorn áður ég fer í háttinn:
Lífið er fullt af valkostum! Hamingjan felst í stöðugum þroska og að læra alltaf eitthvað nýtt um sjálfan sig, aðra og hversdagslegt umhverfi sitt. Óskirnar rætast þegar hamingjan drepur á dyr, hvar sem er og hvenær sem er.
Þetta var mikill hamingjudagur
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.4.2007 | 22:35
Glæstar og glitrandi
Ég var varla búin að þurrka stýrurnar úr augunum í morgun þegar Inga Lind, hin margfræga sjónvarpskona frá Stöð 2 hringdi og vildi fá að hitta mig í Einarshúsinu. Ég varð að sjálfsögðu við þeirri bón enda er ég bóngóð með afbrigðum. Hún kom með sitt geislandi bros og ljómaði er hún kom inn í Kjallarann og sá hvaða dýrgrip þetta hús hefur að geyma. það kom mér frekar á óvart hvað hún var stutt i annan endann en eftir myndinni hér til hliðað að dæma þá erum við svipaðar á hæð, þannig að ég hlít að vera frekar smávaxin. Ég bauð upp á súpu og brauð að bolvískum sið og Grímur bæjarstjóri fékk að fljóta með í hádegisverðinn enda sársvangur. Heilmikið viðtal var tekið við Vertinn og fórst honum það afskaplega vel úr hendi. Það á reyndar eftir að koma í ljós hversu aulalega mér tókst að koma því frá mér sem ég ætlaði að segja af svo mikilli visku. Ég fór á hundavaði yfir sögu hússins og brosti út í eitt til að sýnast gáfulegri. Hárið á mér stóð reyndar allt út í loftið eins og á fuglahræðu en gyllta vestið sem ég klæddist fór ágætlega við hið glansandi yfirbragð Vertsins svo ég bind vonir við að fólk veiti því óskipta athygli og hárið á mér verði ekki eins áberandi fyrir vikið. Eins og sjá má á myndinni fóru þarna glæstar og glitrandi dásemdarljós og tel ég mig ekki gera of mikið úr glæsileik okkar og þokka.
Í heimsókn minni til Ísafjarðar í dag sótti ég Reynir Torfason frænda minn og málara heim en hann opnar málverkasýningu í Einarshúsi 1. mai og er í óða önn að ganga frá málverkum og ramma þau inn fyrir þann viðburð. Ég smellti nokkrum myndum af kappanum heima hjá honum og Gýgju konunni hans. Ég hlakka til að fá myndirnar hans á veggina í Einarshúsinu og það verður gaman að njóta þeirra þar. Reynir og mamma eru systrabörn svo við erum nokkuð tengd.
Annars hefur dagurinn farið í Víkarann en ég er farin að sinna honum ansi mikið miðað við efni og aðstæður. Það geri ég trúlega af því ég hef svo óskaplega gaman af þessu. Mér finnst reglulega skemmtilegt að setja fréttir inn á Víkarann og er svo sæl með að hafa tekið að mér að sinna þessum netmiðli.
Tengdapabbi leggst undir hnífinn á morgun en skera á í burtu krabbameinsæxli úr lifrinni hans sem gert hafa sig heimakomin í óþökk allra. Vonandi fer það allt saman vel.
Konungur hafsins hefur verið í ham í dag og frussar og freyðir á haffletinum. Ægir er eitthvað pirraður og lætur það bitna á okkur. Honum verður vonandi runnin reiðin á morgun.
Ætli ég fari ekki að láta hér staðar numið. Ævintýrin bíða handan við hornið svo það er eins gott að ég verði þá velhvíld til að takast á við nýjan dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.4.2007 | 14:46
Síðasta kvöldmáltíðin
Matarboðið í gærkvöldi heppnaðist fullkomlega og svínahamborgarahryggurinn sem framreiddur var með kostum og kynjum af Vertinum sjálfum var hinn besti. Fullyrt var í mín eyru að þessi kvöldmáltíð hafi slegið út þeirri sem haldin var að síðustu fyrir lærisveinana hér forðum þegar frelsarinn steikti lærisneiðar fyrir vini sína sem voru honum svo kærir. Gunna vinkona mín og Dóri komu færandi hendi með rauðvínsflösku til að leggja á borð með sér og einnig voru þau svo hugulsöm að mæta með eplasafa innpakkaðan í slaufur og annað pjátur fyrir drykkjurútinn sem hættur er að bragða það. Eins og sá má á myndinni hér til hliðar þá er Vertinn hæstánægður með að hafa fengið epladrykkinn en þó ánægðastur með að hafa fengið hana Gunnu og Dóra í heimsókn en þau hyggja á búferlaflutninga í forarpytt sem tilheyrir Njarðvíkum innan tíðar. Þá mun einnig fækka um einn í bekknum hennar Lilju þegar Gunnar sonur þeirra flytur. Dóri var að vinna hjá Ratsjárstofnun og var einn af þeim sem missti vinnuna og það var mikill skellur fyrir okkar litla byggðarlag. Þau störf sem þar voru unnin af hendi voru að mestu leiti flutt suður og það er svo sárgrætilegt að hugsa til þess að slíkt skuli gerast einmitt þegar okkur vantar störfin hingað vestur. Gunna hefur verið að selja fötin frá frentex og á hún eftir að missa af gríðarlegum viðskiptum þegar ég hætti að versla við hana því ég hef verið eins og gangandi auglýsing fyrir fyrirtækið til margra ára.
Frekar rólegt var í Kjallaranum í nótt og Elsa og Gunna stóðu vaktina með mikilli prýði enda dugnaðarforkar á ferð. Ég kíkti eitt augnablik með matargestina mína og eldurinn snarkaði vinalega í kamínunni og notalegt andrúmsloft lék um staðinn. Jón Bjarni er að komast aftur í gírinn og er byrjaður að slá upp fyrir útitröppum sem vonandi verða tilbúnar fljótlega. Þá verður hægt að ganga beint af götunni inn í salinn á efri hæðinni. Hingað til hafa gestir mínir þurft að fara inn um Kjallarann og síðan upp og það hentar ekki næganlega vel. Einnig er Jón Bjarni farinn að rífa inn úr gömlu borðstofunni en þar hugsum við okkur að hafa eldhús og borðkrók í framtíðinni. Mikilvægt er að klæða húsið að utan í sumar og vonandi tekst það því útlit hússins fælir fólk oft frá og mörgum finnst óhugsandi að nokkuð með viti geti leynst þarna innandyra en það er auðvitað ekki útlitið sem skiptir höfðumáli heldur hið innra ágæti. Þannig er því líka háttað með okkur öll. Ég stefni á að hafa opið alla daga í sumar og bjóða upp á kaffi og meðlæti og einhvern mat fyrir svanga ferðalanga. Myndin hér til hliðar var tekinn um pásakana af nokkrum góðglöðum gestum.
Oft var margt um manninn í Einarshúsi er Einar Guðfinnsson og Elísabet Hjaltadóttir bjuggu þar ásamt börnum sínum og fjölskyldu. Stundum var það mikill gestagangur hjá þeim hjónum að börnin urðu að sofa í tjöldum út í garði á sumrin. Það er gleðilegt að sjá líf færast í húsið á ný. Í Einarssögu Guðfinnssonar segir af ferðamanni einum sem kom hungraður og þreyttur inn í bæinn og spurði mann er hann hitti á götu, hvort matsölustaður væri í bænum. Hann fékk það svar að hann væri ekki til en það væru oft margir í mat í Einarhúsi. Engum togum skipti að ókunni maðurinn arkaði þangað inn án þess að banka eða gera vart við sig með öðrum hætti. Hann settist við eldhúsborðið hjá Einari og fjölskyldu hans og gerði þeim góða mat sem lagður var á borð góð skil og spurði svo að endingu hvort Einar hefði rekið þessa matsölu lengi. Nokkur undrunarsvipur kom á ferðamanninn er honum var tjáð að þarna væri enginn griðarsala rekin en honum var velkomið að njóta þeirra veitinga sem voru á borðum og það þótti ekki tiltökumál að bæta við einum svöngum munni. Svona er gestrisni okkar Bolvíkinga rétt líst.
Þá er ég búin að hæla mér og ykkur hinum nóg í dag. Læt þetta gott heita og fer að drífa mig út í daginn.
Dægurmál | Breytt 23.4.2007 kl. 01:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.4.2007 | 13:02
Sumarið er farið
Sumarið virðist vera fokið út í veður ef vind ef marka má þann snjóstorm sem æðir um holt og hæðir í dag. Norðangarrinn bítur í kinnar og Kári jötunnmóð er í essinu sínu. Ekki veit ég hver hefur boðið honum að koma til baka en trúlega er hann að mótmæla því að hann þurfi að hopa fyrir sumri og sól. Harpa virðist ekki hafa bolmagn til að halda honum í skefjum en hún fer væntanlega að blása til sóknar og koma karlinum frá innan tíðar. Ekki má þó láta veðrið hafa nein áhrif á sig og við höldum á inn í sumarið hægt og sígandi. Á mínum bæ eru sólarlandaferðir skoðaðar í gríð og erg og hugurinn stefnir á sól og sand í sumar. Tilhugsunin um að skorða rassinn í sandinn á ströndinni og hlusta á sjávarniðinn og finna löðrið leika um fætur sér er ljúf og góð. Hver veit nema við skellum okkur í sumar með allan krakkahópinn.
Kjallarakeppnin var stórskemmtileg að vanda og Doddi stóð sig hið besta og spurði skemmtilega. Sigurvegarar kvöldsins voru systkinin Hrafnhildur og Elvar en þau hafa ítrekað verið nærri búin að vinna en alltaf beðið aðeins lægri hlut eða verið óheppin. Einu sinn skildi einn meter þau og sigurliðið að þegar Geiri spurði um lengdina á bátnum sínum henni Sirrý í bráðabana. Systkinin svöruðu því til að báturinn væri 11 metrar en hann er einum metra lengri. Það rættist vel úr kvöldinu og slatti af liði heimsótti mig í Kjallarann. Björgvin Halldórsson söng yfir gestunum og vel var tekið undir enda er karlinn bolur inn við bein og fjári góður. Sumum þótti þó sopinn betri en öðrum en það er eins og það er. Bakkus hefur mismikil tök á fólki og oftar en ekki hefur hann töglin og haldirnar hjá þeim sem sem fylgja honum hvað fastast eftir.
Dagurinn í dag bíður upp á smá tiltekt og hver veit nema einhverjum útvöldum verði boði í kvöldmat. Ég þekki eina vesalings húsmóður hér í bæ sem er grasekkja og er í óða önn að pakka sig niður því ún hyggur á flutninga suður í sollinn. Ef þú ert að lesa, kerling, þá stattu klár í kvöld.
Stóra skipsstýrið er farið og prýðir nú sýningu í Borgarnesi og verður þar fram í september. Það er auðvitað töluverður missir af stýrinu en það er nóg annað sem glepur augað. Botninn á bjórglasinu er trúlega það helsta sem fólk gjóar augunum til á góðum stundum í Kjallaranum og það er bara gott mál fyrir Vertinn.
Að öðru leiti er allt í fína og dagurinn lofar góðu þrátt fyrir smá éljagang. Þvotturinn bíður eftir að verða brotinn saman og eitthvað smálegt hér og þar vill fara að komast ofan í skúffur og upp í skápa. Á svona dögum er líka gott að taka hlutunum með ró og njóta þess að eiga gott heimili og hlýja og notalega sæng til að skríða undir er vindurinn næðir um fjallahring.
Læt kannski heyra í mér síðar í dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm