18.9.2009 | 00:38
Forréttindi
Vertinn reynir nú sem best hún má að stunda alhliða hreyfingu nær daglega og arkar hringinn með húsbóndanum og hundinum. Göngustígur í Tungudal fær þeirrar gleði aðnjótandi að hýsa fótatak títtnefndrar og bylgjast blíðlega undir fótum þeirrar sem þetta ritar. Furan og annar trjágróður flautar marsinn undir göngunni og þýður vindurinn blæs grasinu til svo göngutúrinn verði fullkominn. Fjöllin vaka svo rétt á meðan og rökkrið heldur sér til hlés svo dimman verði ekki allsráðandi en téður Vert er einstaklega náttblind og þyrfti oftar en ekki að hafa blindrastaf við höndina á dimmum síðkvöldum. Leiðin er einstaklega skemmtileg yfirferðar og ætíð fyllist margnefnd þakklæti fyrir að geta einungis gengið örfá skref út úr byggðinni til að komast í aðra eins perlu og gönguleiðina úr Bernódusarlundi. Bogabrú hefur haganlega verið fyrirkomið neðst í dalnum sem leiðir frækna göngugarpa beggja megin við bakka Hólsár og hundurinn syndir í ánni er gengið er yfir. Gönguleiðin liggur svo niður Hólinn í afar fallegu umhverfi upp á veginn sem liggur að Hólskirkju og þaðan beint niður að kirkjugarðinum þar sem afar og ömmur hvíla í sátt við guð og menn. Höfnin með öllum bátunum er svo heimsótt á heimleiðinni og oftar en ekki er hafflöturinn spegilsléttur og bátarnir vagga í takt. Það eru forréttindi að geta fetað slíkan slóða á lífsins leið og gott að eiga hann traustan og tryggan í heimabyggðinni
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2009 | 11:33
Plokkfiskur á fimmtudegi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2009 | 10:03
Smettisskruddan
Það er ekki ofsögum sagt að andlitsbókin eða feisbúkk hafi tröllriðið flestum íslenskum velmetandi heimilum undanfarið og komið í veg fyrir að misviturleg blogg fái litið dagsins ljós. Það er auðvitað megn tímasóun að vafra um á síðum fólks sem er manni ekki kunnugt að neinu eða einu leiti og fylgjast með því sem það segir sín á milli eða við sína vini sem eru alveg ótengdir þeirri sem þetta ritar. Varla er hægt að fylgjast með því sem gerist hjá sínum nánustu í hinu daglega lífi vegna þess hve mikill tími fer í að fylgjast með fólki sem maður þekki hvorki haus né sporð á. Nánast er hægt að vita allt um alla og hægt er að reikna út hegðunarmynstur tegundarinnar sem lifir og hrærist í heimi feisbókarinnar og þekkja flest þau skref sem stigin eru. Auðvitað er þetta gott að vissu marki því hægt er að hafa uppi á flestum þeim sem voru vinir og kunningjar í gamla daga en þó vekur það oftar en ekki upp undrun er litið er á breytinguna sem orðið hefur á mörgum sem eitt sinn voru ungir og sætir en eru nú bara sætir...eða þannig.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2009 | 01:37
Tónleikar með Túpílökum
Það er ekki að spyrja að framúrskarandi uppákomum í Einarshúsi í nánustu framtíð. Það eru öngvir aðrir en Túpílakarnir sem stíga á stóra sviðið á föstudaginn kemur og koma öllum í glimrandi gott skap. Spurnir berast af töluverðum áhuga á tónleikunum og því má búast við að örtröð geti myndast við innganginn og raðir jafnvel legið niður á höfn. Því má telja tryggara að mæta snemma og hafa fimmtánhundruðkallinn við hendina til að greiða fyrir herlegheitin.
Raðir hafa áður legið frá Einarshúsi niður á höfnina því eitt sinn kviknaði í kjallaranum og reykinn lagði um húsið og sjá má merki þess enn þann dag í dag og loftið í Kjallaranum er sótsvart á köflum. Þá herma sagnir að þá hafi menn myndað röð niður að höfn með fötur sem svett var úr á eldinn þar til hann gaf upp öndina og lét undan. Þá brann eitt og annað af lager verslunarinnar sem var á efri hæðinni og eitt og annað varð eldinum að bráð. Fræg er brunaútsalan sem varð í kjölfarið en þar var m.a. hægt að kaupa skópar á spottprýs eða verulega niðursettu verði. Báðir skórnir voru upp á sama fótinn og af sitt hvorri stærðinni þvi skórinn á móti hafði orðið eldinum að bráð. Slikt þóttu kostakaup í denn og skórnir án efa þótt kostagripir.
Eina brunaútsalan í Einarshúsi um þessar mundir er þegar kolamolinn er á kostakjörum á krepputíma. Landslög banna víst að tala um hlutina eins og þeir eru og því þarf að fara í kringum þá eins og heitan graut og kalla hlutina alls ekki réttum nöfnum til að ginna sakleysinga ekki í gapastokkinn. Kolamolinn er einnig á spottprýs á fimmtudagskvöldum eftir kl. 21:00 og fram á lokun fyrir þá sem eru ginkeyptir fyrir slíkum tilboðum á guðaveigum úr krana Vífilfells.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.9.2009 | 10:38
Sjávarréttahlaðborð
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2009 | 14:50
Hvíldardagur
Í dag er hvíldardagur hjá Vertinum í Víkinni og Einarshúsið því lokað. Það nær auðvitað engri átt en svo verður þó víst að vera enda fríið kærkomið eftir afar annasamt sumar. Ef lokun dagsins í dag vekur athygli og eftirtekt þeirra sem telja sig undir yfir og allt um kring í aðalyfirumsjón með ferðaþjónustu á Vestfjörðum, eru þeir hinir sömu beðnir að koma kvörtunum í athugasemdardálkinn hér neðar en ekki í greinarskrifum fyrir alþjóð.
Opnunartíminn fer að breytast þegar tekur að rökkva en rífandi gangur hefur verið allt fram á þennan dag og títtnefnd himinlifandi með gang sumarsins. Búið er að skipuleggja haustið að mestu og spýtt verður í lófana sem aldrei fyrr til að laða að fólk. Vertinn hefur á tilfinningunni að nú fari fólk að nýta sér græna grasið í heimabyggðinni og hefur því ákveðið að slá hvergi slöku við og sjá til þess að menningin lifi í plássinu og mannlífið blómstri.
Mannlífið blómstrar nefnilega í Bolungarvík sem aldrei fyrr, þrátt fyrir að einhverjir reyni að halda því fram í ræðum og riti að allt hafi koðnað hér niður og menn misst móðinn eftir að skipt var um skipper í bolvísku brúnni. Það verður nú oft þannig að þegar menn einblína um of á eigið ágæti, sjá þeir ekki tilveruna í kringum sig réttum augum og það sem annað fólk leggur af mörkum til samfélagsins.
Það er aðdáunarvert að líta út um glugga Einarshúss og fylgjast með lífinu við höfnina og þeim dugmiklum aðilum sem koma að uppbyggingu þar í grennd jafnt á láði sem legi og þá talar Vertinn einungis út frá þeim litla radíus sem telur einhverja hundruði metra frá húsinu og snýr norður, suður, austur og vestur. Þar iðar allt af lífi og þar hefur enginn misst móðinn heldur hafa menn haldið á af krafti. Er vert í þessu sambandi að nefna þá gríðarlegu fjárfestingu sem Einarshús hefur lagt í til uppbyggingar svæðisins til að fegra og bæta bæinn en óþarft er að nefna það starf sem fram fer í húsinu sem þeir einir þekkja sem sækja viðburði og annað menningarlíf.
Ylfa Mist fór á kostum í gærkvöldi eins og við var að búast en fleiri komust þó að en vildu. Súpan rann ljúflega niður enda sérlega bragðgóð og brauðið var æði en meistarakokkar Einarshúss sáu um trakteringarnar. Ylfa mun eiga kvöld í húsi sorgar og gleði einu sinni í mánuði í vetur og er það sérstakt tilhlökkunarefni. Næst mun hún stíga á stokk þann 10. október og þá með góða gesti. Denni steig svo á stóra sviðið síðar um kvöldið og söng fram á dimma nóttina og húsið var opið á meðan húsfrú leyfði. Það var svosem ekki að sökum að spyrja að það var kjaftfullt og má ætla að rúmlega 100 manns hafi með einum eða öðrum hætti stigi fæti í Einarshús í gærkvöld til að njóta kvöldsins. Var þetta kvöld m.a endaslúttið á Íslandsmeistaramótinu í skák en skákmenn hafa dvalið langdvölum í húsi sorgar og gleði undanfarinn hálfan mánuð og það verður eftirsjá í þeim.
Vertinn er kominn með tölvuna sína aftur en harði diskurinn gaf upp öndina. Þar fóru allar myndir og öll gögn undanfarinna tveggja ára í glatkistuna. Þó skulu sérfræðingar fá að meðhöndla diskinn frekar til að freista þess að ná þeim til baka. Lífið gengur þó sinn vanagang þrátt fyrir það og byrjað er bara upp á nýtt en það eru forréttindi að geta byrjað upp á nýtt og það eru ekki allir svo heppnir í lífinu. Því er því gott að geta gefið sér tíma til að vafra um netið og bloggað um hin ýmsu hugarefni með litlu tölvuna sem hentar svo vel til slíks.
Hver veit nema Vertinn bregði sér í fréttaritarastarfið eitt augnablik og fari út með myndavélina síðar í dag og reyni að finna gott myndefni á vefinn. Ætli sé þó ekki best að leggja sig aðeins áður og ná úr sér hrollinum eftir nóttina sem náði langt fram á morgunn og safna ögn meira þreki fyrir komandi daga.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2009 | 12:57
Matseðill vikuna 13. til 18. sept
Mánudagur: Steiktur fiskur með kartöflum og salati
Þriðjudagur: Píta með sósu og grænmeti
Miðvikudagur: Lasagne með salati og brauði
Fimmtudagur: Plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði
Föstudagur: Kjúklingasúpa með heimabökuðu brauði
Súpa eða grautur er borinn fram með rétti dagsins og hver getur borðað að vild
Verð 1300,-
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.9.2009 | 01:51
Mát
Vertinn vakir alltof lengi þennan dyntinn og sefur að sama skapi lengur á morgnana en góðu hófi gegnir. Títtnefndri hættir til að vaka fram á rauða nóttina á meðan bærinn sefur og dunda sér við eitt og annað meðan . Tunglið var sveipað huliðshjúp fyrr í kvöld og kallaði til margnefndrar að fara í háttinn á skikkanlegum tíma svo hægt væri að vakna inn í nýjan dag örlítið fyrr en ella en allt kemur fyrir ekki.
Helgin kúrir handan við hornið og bíður eftir að stíga framúr og stíga léttan dans við mann og annan en mikið líf og fjör verður í húsi harma og hamingju um helgina. Spilavistin hefst í kvöld og kvöldstund með Ylfu Mist verður á laugardaginn auk þess sem Denni ætlar að syngja og spila á stóra sviðinu og nokkuð öruggt má telja að það verði gaman.
Skákmenn hafa sett stóran svip á bæinn undanfarna daga enda er skákmót í Bolungarvík um þessar mundir og brugðið er fyrir sig Sikileyjarvörn þegar síst skildi. Vertinn hefur þó aldrei verið skák né mát í viðskiptum við skákmenn og aldrei leikið af sér enda kunn manngangi af ýmsu tagi. Riddarar hafa þó hrókerað peðum á víxl til að gera drottningarnar í Einarshúsi ánægðar og biskupinn hefur lagt blessun sína yfir leikinn og taflið því unnist í hverjum leik.
Fregnir herma að danskur Íslendingur búsettur á Patreksfirði sé Íslandsmeistari í skák eftir þessa viðureign skáksnillinga í Bolungarvík og er hann án efa vel að titlinum kominn. Hann kom þó í hús harma og hamingju nýverið og sló um sig á ensku og gat Vertinn ekki látið hjá líða að benda honum kurteisislega á að Íslandsmeistari í skák yrði að tala íslensku og hana nú.
Fátt annað er þó að gera í stöðunni þegar þessi orð eru rituð en að halla sér enda svefnhöfginn að segja til sín. Vertinn teflir því riddara á seres sex og bíður góða nótt.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009 | 01:31
Túpílakarnir halda tónleika
Túpílakarnir halda tónleika í Einarshúsi föstudaginn 18. september kl. 21:00. Þessa frábæru skemmtikrafta má enginn láta fram hjá sér fara.
Hið annálaða sjávarréttahlaðborð Einarshúss er á laugardagskvöldið kl. 20:00 ef næg þátttaka fæst. Brýnt er að panta borð í tíma. Verð 4000;-
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.9.2009 | 01:20
Helgin 11. og 12. september
Spilavistin hefst á föstudaginn kl. 21:00. Er þetta fyrsta kvöld í þriggja kvölda keppni.
Ylfa Mist fer á kostum á laugardagskvöldið kl. 20:00 yfir ilmandi sjávarréttasúpu. Betra er að panta tíma í tíma og verð er 1500,- krónur fyrir herlegheitin.
Denni mætir í Kjallarann síðar um kvöldið og leikur og syngur út í rauða nóttina
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm