Garðurinn

StéttinSvona rétt til að leyfa lesendum að njóta birtist nú mynd af fínu hellulögninni í bakgarði Einarshússins. Hverri hellu hefur verið einkar vel fyrirkomið í fallegu mynstri fiskibeina sem tekur sig vel út í aldingarðinum sem varðveita mun Evu og Adam framtíðar. Gestir verða þó að gæta sín á forboðnum ávöxtum og ekki er gert ráð fyrir að menn klæðist laufblöðum nema í algjörri neyð og þá væntanlega einungis yfir hásumarið og alls ekki fyrr er girðingin hefur risið. Eins og sjá má á myndinni steig sólin fram til að samgleðjast með eigendum hússins enda ærin ástæða til að halda daginn hátíðlega. Garðurinn var þó alls ekki á dagskránni þetta árið en aðstæður höguðu því þannig til að hann komst á fullt skrið áður en nokkur fékk rönd við reist. Þar var trúlega tekin ákvörðun að handan eins og svo oft áður að ganga í þetta framfaraverk. Því er það bjargföst trú að hann veiti öruggt skjól á komandi tímum gestum hússins til gleði og yndisauka.

Námskeið í áströlskum saumi frestað

Námskeið það sem fyrirhugað var að halda í áströlskum saumi nú um helgina verður frestað fram í nóvember ef næg þátttaka fæst. Hér skal bent á það ótvírætt að þetta er ekki námskeið í átröskun eins og sumir hafa lesið út úr auglýsingunni, því skal lögð áhersla á það að saumurinn er ættaður frá Ástralíu sem er heimsálfa sem tilheyrir móður jörð og þar virðast íbúar hafa verið einkar lagnir í saumaskap frá örófi alda.

Rækta garðinn sinn

Sól skein í heiði í Súðavík í dag er Vertinn kom úr yfirhalningu í Dekurhúsinu þar sem makkinn fékk sérstaka meðhöndlun. Hið nýja yfirbragð lífgaði heldur betur upp á ásjónu títtnefndrar sem varð eins og ný eftir að hafa fengið lit í hárið og allskyns krem til að ferska upp á lokkana sem vaxið hafa í hálfgerðri órækt undanfarið. Án efa hefur sólin lagst svo lágt af því tilefni og skotið nokkrum geislum á títtnefnda og ákveðið að gera sér dagamun og láta Vestfirðina ögn sjá sig en hún hefur verið ótrúlega spör á sig í sumar enda virðist hún hafa átt fullt í fangi með að skína á suðurhornið.

Sólin skein þó varla nema rétt augnablik og engin sérstök birta var yfir þeim fréttum er bárust títtnefndri í dag þess efnis að  harði diskurinn væri farinn í viðhaldinu og því væru öll gögn og allar þær þúsundir mynda sem teknar hafa verið á undanförnum tveim árum glataðar. Það mun taka langan tíma að koma sér upp því safni sem haganlega var fyrirkomið í tölvunni og eftirsjá í mörgu. Þó má ætla að einhverjir sérfræðingar komi til með að reyna til hins ýtrasta til að ná gersemunum úr þessu töfratæki sem fylgt hefur Vertinum í Víkinni til langs tíma og betra er því að spyrja að leikslokum og vona hið besta. Þetta ástand er afar bagalegt þegar rita þarf fréttir og þvíumlík á vefinn því heimilistölva tók upp á því upp á sitt eindæmi að bila hinni til samlætis og tölva ungu konunnar fékk fyrir hjartað og er því utan þjónustusvæðis í augnablikinu og því eru nánast allar tölvur heimilisins illa nothæfar. Halda mætti að svínflensan herjaði á heimilistækin og leggði þau að velli eitt af öðru.

Rólegri tími fer nú í hönd í Einarshúsi sem gerir það að verkum að spýta þarf í lófana sem aldrei fyrr og hafa uppákomur á uppákomur ofan til að hafa ofan af fyrir þeim sem koma ofan af holtum og neðan af mölum svo ekki sé talað um þá sem búa á grundunum og bökkunum. Sú óbilandi bjartsýni sem einkennir Vertana í Einarshúsi hefur gert það að verkum að húsið iðar af lífi allan ársins hring og ekkert er í spilunum annað en að halda á.  Í vetur verða eintóm grönd og tromp á hendi sem spilast jöfnum höndum þegar þarf.

Garðurinn á bak við er nú tilbúinn að mestu en eftir er að smíða girðingu sem stúkar gesti Einarshúss og gerir þeim kleift að vera útaf fyrir sig þ.e ef hitastigið verður ekki við frostmark eða því sem næst. Kuldaboli verður ekki einn af fastagestum garðsins ef títtnefnd fær einhverju ráðið og hvetur hann til að láta sig hverfa áður en garðurinn verður endanlega vígður. Stefnt er að því að hafa útisalerni í garðinum bæði fyrir karla og konur auk þess sem rabbabari og aðrar matjurtir verða gróðursettar í þartilgerðum beðum. Gróðurhús er einnig ofarlega á óskalistanum og ef vel gengur mun allt grænmeti og krydd sem notað er í rekstrinum ræktað þar því Vertinn er komin með grænar fingur og þykir einkar gaman af því að rækta garðinn sinn. 

 

 

 

 

 


Stutt blogg

Fór með kistuna fyrir kanínu út á flugvöll en kanínan var í andaslitrunum þegar kallað var eftir kistunni en hjarnaði víst eitthvað við og er því ekki dauð enn. Athygli Vertsins var vakin og sofin yfir skokkurum sem hlupu um allt á Ísafirði í belg og biðu og stefndu jafnt austur og vestur, norður og niður í grennd við Skutulsfjarðarbrautina. Ekki kom títtnefnd auga á ástæðu þess að allir hlupu hingað og þangað því ekkert eða enginn virtist elta neinn og því taldi títtnefnd enga ástæðu til að flýta sér sem raun bar vitni. Án efa eru þessir nágrannar hinu megin fjallsins verið að reyna að ná af sér aukakílóunum eftir að hafa hlaupið í spik....Vertinn gekk hinsvegar í hægðum sínum inn í bónus eftir að hafa farið með kanínukassann og keypti sér kassa af kókósbollum.......................og keyrði svo heim.

Í Víking

Óskar VíkingurÞað þurfti hvorki meira né minna en sannan Víking til að aðstoða við uppbyggingu Einarshúss. Hann kom vel vopnum búinn með sverð og skjöld meðferðis en auk þess bar hann klæði landnámsmanna Víkingatímabilsins í töskunni. Ekki hafði hann þó í handraðanum írska ambátt né þræl enda kom hann ekki til að nema land til frambúðar í Bolungarvík heldur til að vera húsbóndanum innan handar við endurgerðina eins lengi þó og þurfa þykir. Næg eru svosem verkefnin í húsi sorgar og gleði og mikilvægt að fara að komast fyrir endann á þessu mannvirki og ljúka því í eitt skiptið fyrir öll. Allt tekur þó sinn tíma og víst verður að sætta sig við það að góðir hlutir gerist hægt. Eitt má þó verða hverjum manni ljóst að lítið þýðir að ráðast til atlögu við bændur og búalið á meðan Víkingurinn úr bardagaliði Rymmugýgs dvelur hér vestra og því betra að halda sig á mottunni í tíma og ótíma enda engin ástæða til annars. Kappinn er vanur bardagalistum landnámsmanna og smíðar jafnvel vopn sín sjálfur og kann þar vel til verka. Friður sé því með yður.........

 

 


Ástralskur saumur kenndur í Einarshúsi

Inga Ragna kennir ástralskan saumNámskeið í svokölluðum Áströlskum saumi verður haldið í Einarshúsi um helgina eða fjórða, fimmta og sjötta september. Ástralskur saumur er m.a. silkiborðasaumur, upphleyptur saumur, þrívíddarsaumur og vöfflusaumur. Kennari verður Inga Ragna Holdö frá Selfossi en hún hélt tvö námskeið á Ísafirði árið 2006 þar sem færri komust að en vildu. Inga hefur farið nokkrum sinnum til London á námskeið hjá áströlskum kennara en er að öðru leiti sjálfmenntuð. Saumurinn er kenndur við Ástralíu því þar varðveittist hann best en annars er silkiborðasaumur uppruninn í Kína og margar aðrar gerðir voru mikið í Evrópu á dögum Lúðvíks X. Hægt er að skrá sig á námskeiðin hjá Vertinum í Víkinni í síma 864-7901


Matseðill 7 - 11 sept

Mánudagur: Djúpsteiktur fiskur með salati og hrísgrjónum

Þriðjudagur: Pastasalat með salati

Miðvikudagur: Hamborgarar með öllu tilheyrandi

Fimmtudagur: Plokkfiskur með heimagerður rúgbrauði

Föstudagur: Sjávarréttasúpa


Matseðill vikan 31 - 4 sept.

Mánudagur: Steinbítur í hvítlauksmarineringu með kartöflum og salati

Þriðjudagur: Kjúklingur í hnetusósu með hrísgrjónum og salati

Miðvikudagur: Taco með grænmeti og sósum

Fimmtudagur. Plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði

Föstudagur: Kjötsúpa

 

Plokkfiskur er ætíð í boði á fimmtudögum og einhver ljúffeng súpa á föstudögum. Ætíð er matseðillinn birtur með fyrirvara um breytingar og að sjálfsögðu kemur fyrstur og kemur fær eins og vænta má í bransa sem þessum.

 

 


Matseðill vikan 24-28 ágúst

Nú skulu birtir matseðlar hungruðum til handa vikulega á blogginu eða því sem næst. Hér kemur yfirlit vikunnar 24-28 ágúst:

Mánudagur: Saltfiskur með congassósu, salati og kartöflum

Þriðjudagur: Kjöötbollur í brúnni sósu með kartöflum og salati

Miðvikudagur: Kjúklingur í doritos með hrísgrjónum

Fimmtudagur: Plokkfiskur með heimabökuðu rúgbrauði

Föstudagur: Gúllassúpa með heimabökuðu brauði

 

Ætíð er súpa í boði með rétti dagsins og verð per máltíð er 1300,-. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar greiða 1.200,-


Sambandslaus

Vertinn er sambandslaus thvi vidhaldid virkar ekki. Their sem thurfa ad senda tittnefndri post verda tvi ad syna tholinmaedi medan tolvan fer i vidgerd til thartilgerdra serfraedinga og taka upp tolid og hringja eda hafa samband eftir odrum leidum. Ekki thydir ad senda reykmerki, barmmerki eda bannmerki og siminn er thrju stutt og thrju long.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband