11.10.2009 | 13:12
Sýnishorn
Vorið kemur heimur hlýnar, hjartað mitt
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2009 | 05:47
Alveg eins og er
Það verður að segjast alveg eins og er að ekki er hægt að kvarta yfir neinu þegar kemur að því að gera upp kvöldið og nóttina sem nú ræður ríkjum. Framúrskarandi skemmtun var í boði í húsi harma og hamingju og lífið leik við gesti hússins í hvívetna. Ylfa Mist og hennar skyldulið sló í gegn svo um munaði og Vertinn ætlar svo sannarlega að vona það að þessi uppákoma hennar verði endurtekin fljótlega aftur. Húsfyllir var í fínu stofunni og allir komust vel fyrir þó hvert rými væri tekið og ómurinn bergmálaði um panelklædda veggi hússins sem kunni að meta uppátækið. Ljóti hálfvitinn var snoppufríður með eindæmum og Margrét og Hjördís skömmuðu sko alls ekki upp á er þær tónuðu með Ylfu. Þessir tónleikar fara svo sannarlega í topp þeirra kvölda sem hafa toppað öll kvöld hingað til sem verið hafa á toppnum..eða þannig.
Eftir tónleikanna færðist fjörið niður í Kjallarann sem tók öllum fagnandi og Guðrún Snæbjörg og Jón Sigurðsson smellpössuðu við stóra sviðið eins og þau hefur verið fædd þar og uppalin líkt og sjá má á myndinni hér neðar
Þau kunnu réttu lögin sem fólkið kunni
blúsarinn blés ekki heldur úr nös er hann tók í gítarinn en Arnar á kannski eftir að taka lagið aftur við tækifæri en hann dvelur nú hér vestra um þessar mundir
þessi söng um fjöllin og hafið
þessi spáði í mig að hætti Megasar
Lýður gaf syngjandi résept
Grímur vildi syngja sig inn í hjörtu heimamanna á ný
og Jónselli kraup við altarið og bað guð að hjálpa sér.
Það sem toppaði þó auðvitað kvöldið voru sýnishornatónleikar heima í eldhúsi fyrr um kvöldið þar sem dóttirin sló taktinn á litla gítarinn sinn sem nefnist "ugulele" og spilaði og söng meðan húsbóndinn trommaði undir. Lagt hefur verið blátt bann við því að birta myndir af því tilefni og því fá lesendur einungis að gera sér það í hugarlund hvernig það hefur ómað.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 05:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2009 | 22:46
Berlin
Vertinn er lent i Berlin og borgin idar af sogu sem bidur eftir af fa ad hljoma i eirum tittnefndrar en skodunarferd bidur morgundagsins um straeti og torg. Kvoldid er ungt og hopurinn situr ad spjalli og dreipir a gudaveigum. Alkinn atti sinar erfidu stundir i dag og strembin voru augnablikin sem budu upp a bjor tegar sist skildi og stemningin var stutfull af freistingum. Stundin leid hja og lifid helt afram og nir dagur rennur upp samfara solaruppras.
Heilsur til allra heima
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2009 | 11:36
Tvær flugur í einu höggi
Það má með sanni segja að Vertinn sló tvær flugur í einu höggi er hjónakornin Matthildur og Gummi Hjalta voru ráðin á einu bretti til að sjá um laugardagskvöldið 3 október. Matta er spyrill í Kjallarakeppni og Gummi trúbbast á stóra sviðinu síðar um kvöldið. Kjallarakeppnin hefst um kl. 22:30 og því er lag fyrir snargáfaða að mæta í tíma og taka þátt. Lagvissir og tónelskir eru einnig hvattir til að koma við en einnig þeir sem eru ekki alveg vissir hvattir til að kíkja í hús harma og hamingju. Það skal þó tekið fram að keppnin er á laugardegi að þessu sinni og verður með því brugðið út af þeirri viðteknu venju að hafa Kjallarakeppnina á föstudegi líkt og undanfarin ár.
Tveir og tveir eru saman í liði og svara 30 spurningum. Það lið sem hefur flest rétt svör fagnar sigri og fær að launum drukk frá Vífilfelli. Það er því mikilvægt að spila með og þá helst til sigurs.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.9.2009 | 02:15
Nótt
Framtíðin brosir út undir eyru enda bíður borgin Berlín óþreyjufull eftir að fá títtnefnda í heimsókn. Tilhlökkunin er beggja megin hafs því Vertinum hlakkar óskaplega til að skipta ögn um umhverfi og sjá eitthvað nýtt og framandi. Brottför er á föstudag frá Keflavíkurflugvelli og þá verður Íslands farsældar frón kvatt með kurt og pí. Vonir standa þó til að landið sökkvi ekki í sæ rétt á meðan og haldi sjó líkt og undanfarin árþúsund og stjórnvöld selji það ekki hæstbjóðanda á meðan dvalið er á erlendri grund.
Það er svosem ekkert nýtt að téður Vert sé á faraldsfæti út um hvippinn og hvappinn þó það hafi nú dregið úr endalausum heimsóknum um landið þvert og endilangt undanfarið. Væntanlega hefur það komið á daginn að heima sé best þrátt fyrir allt og grasið ívið grænna í túninu heima en víðast hvar annarsstaðar og því lag að vera heima í faðmi fjallana hér vestra í öryggi og skjóli. Þó er alltaf nauðsynlegt að lyfta sér upp annað slagið og finna ilminn úr náttúrunni handan hólsins þó þar skíni sama sólin á réttláta sem rangláta.
Sama sólin virtist þó ekki skína á landsbyggðina til jafns við höfuðborgarbúa þegar þenslan skók suðvestuhornið fyrir hrun. Þá máttu íbúar fjarri glaum og glys borgarinnar fylgjast með ævintýrinu í fjarlægð og bara horfa á, en ekki snerta. Á meðan stofnanir hjá hinu opinbera þöndust út og störf margföldust syðra sat landsbyggðin hjá. Nú þegar herðir á og skuldadagar renna upp skulu aftur á móti allir taka taka skellinn og þá er ekki nóg fyrir landsbyggðina að horfa á í fjarlægð, nú skal hún fá að snerta og taka þátt í niðurskurðinum. Litlu vaxarsprotarnir sem fengu að spretta í frjósömum jarðvegi úti á landi og þurfti að berjast svo mikið fyrir að fá eru í hættu vegna þess flata niðurskurðar sem virðist vera lausn á öllum vanda. Þetta er óréttlátt, það verður bara að segjst alveg eins og er.
Sólin mun þó halda áfram að skína og kólguskí koma og fara. Ólgand dröfn heldur áfram að kasta hvítflyssandi öldum upp í fjöruna og lífið telur í taktinn. Rjómablíðan í bland við logn verður vonandi uppistaðan í veðurfarinu hér vestra og Vertinn á sínum bás að vanda, þó ekki um helgina því kanslarinn kallar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 14:03
Gunnar Ágúst í Kjallaranum
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2009 | 00:56
Haust
Það er komið haust og dagurinn í dag bauð upp á það besta. Andvarinn var ívið kaldari en áður en blærinn samt blíður. Títtnefnd tók gjaldmiðilinn með sér í göngutúr og var Dollar skemmt á leiðinni enda er það hans ær og kýr að fá að hlaupa út um móa og mela. Fjöllin höfðu fengi snjóhulu yfir toppinn og voru jafnvel enn tignarlegri fyrir vikið. Furan dillaði sér í takti við göngulag margnefndrar og ómurinn barst frá byggðinni. Það er hvergi fegurra og betra að vera en í Bolungarvík á dögum sem þessum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2009 | 18:58
Opið í vetur
Opið verður sem hér segir í vetur
Mánudaga 11:00 - 17:00
Þriðjudaga 11:00 - 17:00
Miðvikudaga 11:00 - 17:00
Fimmtudaga 11:00 - 23:00 (Kolamolinn á kostakjörum frá kl. 21:00)
Föstudaga 11:00 - 03:00 ( kolamolinn á krepputilboði milli 23:00 og 24:00)
Laugardaga 13:00 - 03:00( kolamolinn á krepputilboði milli 23:00 og 24:00)Sunnudaga 15:00 - 23:00 ( Tertusneið og kaffibolli á 600,- kr. alla sunnudaga)
Heitur matur í hádeginu alla virka daga en einnig er hægt að kaupa af matseðil. Betra er þó að panta fyrir hópa.
Plokkfiskur er ætíð framreiddur í hádeginu á fimmtudögum ásamt heimabökuðu rúgbrauði. Guðdómleg gæðasúpa meðnýbökuðu brauði framborin í hádeginu á föstudögum.
Dægurmál | Breytt 26.9.2009 kl. 17:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2009 | 12:32
Wildenbruchstrasse
Berlín er næsti viðkomustaður Vertsins í Víkinni en þangað er ferðinni heitið um mánaðarmótin. Það er ekki ofsögum sagt að mikill viðbúnaður er í landinu í tilefni heimsóknarinnar og verið er að skipuleggja mikil hátíðarhöld því samfara. Þar skal kappkosta að sýna títtnefndri tilhlýðilega virðingu og hennar föruneyti og því allt lagt í sölurnar til að skapa stemningu sem hæfir Vert vestan af fjörðum. Svo heppilega vill til að októberfest ber upp á sama tíma og því er hægt að samnýta fagnaðina og spara þar með töluvert fé og fjármagn vegna alls þessa og gera hvoru tveggja jafnhátt undir höfði. Þess má einnig geta í framhjáhlaupi að 20 ár eru frá því að Berlínarmúrinn var rifinn og því ber tímasetningin upp á sama tíma og heimsókn títtnefndrar og væntanlega tækifærið notað til að minnast þess í leiðinni. Berlínarmúrinn var reistur í ágúst árið 1961 þvert yfir Wildenbruchstrasse og var um áratuga skeið helsta tákn kalda stríðsins en er nú döpur minning um aðskilnað austurs og vesturs.
Vertinn stefnir þó að því að setja fingrafar sitt á fjármálastefnu sveitarfélagana á leiðinni til Berlínar svona rétt í síðasta sinn og líta framan í mann og annan. Líkt og við fall Berlínarmúrsins líkur kafla títtnefndrar í sveitastjórnarmálum í vor og verður aðkoma margnefndrar að þeim málaflokki því minning ein líkt og minningin um Berlínarmúrinn.
Tími títtnefndrar fer æ meira í rekstur Einarshúss enda vindur hann upp á sig ár frá ári. Þar er Vertinn búin að byggja múr sem skerðir persónufrelsið töluvert og gerir það að verkum að títtnefnd getur sjaldan um frjálst strokið. Auðvitað getur títtnefnd farið óhikað á milli bæjarhluta og jafnvel í næsta bæ þegar þannig viðrar og heimsótt útlandið á köflum en er þó ætíð bundinn því að rekstur húss harma og hamingju gangi sem best svo hægt sé að halda honum á lífi og bjóða í leiðinni upp á stöðugar uppákomur og menningarviðburði. Í Einarshúsi ríkir þó sátt um uppbygginguna og kalda stríðið er víðsfjarri og þangað inn eru allir velkomnir háir sem lágir, ríkir sem fátækir, hvor sem þeir koma úr austri, vestri, suðri eða norðri.
Reyndar skal rísa múr utan um Garðinn á bak við húsið og þar munu gestir Einarshúss eiga vin í eyðimörkinni en þangað mega aðeins þeir koma sem eru gestir hússins. Verður farið í að reisa vegginn á næstu vikum og verður það fyrirmyndarframkvæmd. Þá mun verða sú breyting á og sú óumfrávíkjanlega regla sett, að út í Garðinn verður að fara á síðkvöldum til að fá sér frískt loft og taka smók og stranglega verður bannað að bera glös og annað sem tilheyrir út að framanverðu og það mun venjast fljótt og vel.
Til að skerpa á þeirri grundvallarreglu sem gildir á veitingastöðum almennt þá er stranglega bannað með lögum að bera áfengi inn á vínveitingastaði og er það afar hvimleiður siður sumra gesta. Því hefur Vertinn ákveðið að þeir sem verða uppvísir af slíku, geta átt það á hættu að verða umsvifalaust vikið út af staðnum og fá ekki inngöngu aftur fyrr en eftir dúk og disk.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.9.2009 | 11:26
Töfrandi Túpílakar
Pollurinn var spegilsléttur og ljósin í bænum spegluðust töfrandi á haffletinum er Vertinn gæddi sér á guðdómlegum veigum á Hótelinu í boði SÍBS í gærkvöld. Þriggja rétta máltíð bragðaðist afar vel og allt var eins og blómstrið eina og félagsskapurinn einkar geðfelldur. Títtnefnd er búin að vera umboðsmaður í á annan áratug og afgreitt nokkrar vinningana í plássið sem oftast hafa komið sér vel og farið á góðan stað.
Þó þurfti að hafa í huga að eyða ekki of miklum tíma í kvöldverðinn því Túpílakarnir biðu handan hornsins og höfðu komið sér haganlega fyrir á stóra sviðinu og biðu þess sem verða vildi. Skemmst er frá því að segja að tónleikar Túpílakanna voru stórkostlega skemmtilegir og húsfyllir var í Kjallaranum eða því sem næst og stemningin magnþrunginn. Lögin og textarnir voru alveg frábærir og þau bókstaflega fóru á kostum. Túpílakar urðu ástfangin af Kjallaranum líkt og fleiri og munu án efa koma aftur og aftur og aftur eins og allir hinir sem mátað sig hafa við stóra sviðið og kunnað því vel. Gaman er að geta þess að gestir komu sjóleiðina frá Æðey til að njóta tónleikanna og lögðu því bátnum við Lækjarbryggjuna og höfðu því besta stæðið.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm