22.10.2009 | 01:25
Jólahlaðborð í Einarshúsi 5. og 12. desember
Tvö jólahlaðborð verða haldin í Einarshúsi fyrir komandi jól. Boðið verður upp á hefðbundið hlaðborð líkt og undanfarin ár þó án efa megi búast við að bryddað verði upp á einhverju nýju á matseðlinum að þessu sinni. Lagt verður ofurkapp á að góðgætið bragðist sem best og renni ljúft niður kverkar.
Á jólahlaðborðunum í Einarshúsi verður flutt úrval laga úr rómantísku leik- og söngdagskránni "Vegir liggja til allra átta" sem Litli leikklúbburinn hyggst frumsýna eftir áramótin en þar verður gripið niður í lög systkinanna Ellýjar og Vilhjálms Vilhjálmssonar.
Lifandi tónlist verður svo í Kjallaranum eftir hlaðborðin og leikið og sungið fram á nótt.
Verð er 6500,- á mann og byrjað er að taka á móti pöntunum í síma 456 7901 á opnunartíma Einarshúss
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2009 | 21:34
Vegir liggja til allra átta
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.10.2009 | 01:00
Fjólublá fjöll við hafið
Lyngið var fjólublátt í hlíðum Ísafjarðardjúps í dag og var því í hámóð í haustlitunum og fór tískuliturinn afar vel við sægræna dröfnina og bláan himinninn. Rollurnar voru þó enn á beit á víð og dreif í djúpinu og hámuðu í sig þarann af áfergju. Þarinn gefur án efa eitt besta bragð sem finna má af íslensku lambakjöti í bland við lyngið og græna grasið sem sprettur hér vestra og er ein besta afurð sem um getur. Selurinn undi sér vel á steininum og sló sporðinum þolinmóður á hafflötinn og horfði á öldurnar bylgjast og fuglinn fylgdist með úr fjarlægð og stundin var áhyggjulaus. Fiskurinn beið við botninn og undraðist að engin skyldi vera búin að veiða hann og stilla honum snyrtilega á diskinn og auðlindin var spök. Fjöllin voru vel vakandi og fylgdust grannt með ferðalöngum sem óku inn í dýrð Vestfjarða og reyndu ítrekað að vekja athygli á því sem fyrir augu bar þar sem lífsviðurværið var undir, yfir og allt um kring. Ætíð er gott að koma heim eftir borgarferðir og finna nálægðina við fjöllin og hafið og anda að sér heilnæma lofti sjávarþorpsins sem ilmar svo ljúft milli fjalls og fjöru.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.10.2009 | 01:10
Múrinn fallinn
Berlínarmúrinn var reistur árið 1961 til að skilja austrið frá vestrinu og hélt hann fólki í ánauð allt fram til ársins 1989. Það er í raun ótrúlegt hve stutt er síðan hann féll og fólkið fékk frelsi og mikil gleði hlýtur að hafa ríkt í landinu þegar hann varð barn síns tíma. Víða er þó ástandið aumt austan megin enn þann dag í dag og margir búa við lakan kost og í slöku íbúðarhúsnæði.
Engir vopnaðir verðir ógnuðu títtnefndri við múrinn enda er hann kominn af fótum fram og er einungis ætlaður til að minna á ógnartíma þá er ríktu í denn. Upplagt þótti að stilla sér upp við múrinn til myndatöku til að sýna verksummerki nútímans
Mikill gleðidagur ríkti vestra í dag er annar múr féll, en vegurinn um Arnkötludal var vígður. Þá loksins 20 árum eftir að Berlínarmúrinn var felldur geta íbúar í höfuðstað Vestfjarða ekið á bundnu slitlagi alla leið frá Bolungarvík til Reykjavíkur og svo öfugt. Það telst íbúum á höfuðborgarsvæðinu til tekna hvað leiðin í Einarshúsið styttist við tiltækið og verður þeim tekið fagnandi þegar þeir mæta. Á myndinni gefur að líta gamla leikfimiskennarann og tengdason Bolungarvíkur sem jafnframt er samgönguráðherra við minnisvarða um bundið slitlag alla leið ásamt fyrrum samgönguráðherra.
Enga vopnaða verði þurfti við athöfnina enda hafa Íslendingar ætíð getað lagt vegi án vandræða og ekkert landamæraeftirlit var viðhaft enda er það óþarfi á fjallvegi sem þessum. Vegleg veisla var í boði í Félagsheimilinu á Hólmavík eftir formlega opnun og þar var öllum helstu fyrirmönnum þjóðarinnar boðið til veislu eins og sér á mynd Jóns Jónssonar menningarfulltrúa.
Verst er þó að heyra tómahljóðið í sjóðum þeim sem eiga að nýtast til vegamála næstu ára því Vestfirðingar eiga töluvert í land til að geta keyrt um á mannsæmandi vegum um fjórðunginn og marga múra á eftir að fella þar til það takmark næst að bundið slitlag verði lagt á hvern vegarspotta sem máli skiptir
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.10.2009 | 11:07
Hrund Karlsdóttir spyrill í Kjallarakeppni
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.10.2009 | 11:04
Algjör kómedía í Einarshúsi
Kómedíuleikarinn mun kynna vestfirkst leikár á hádeginu í Einarshúsi á föstudaginn kl. 12:15. Ryður hann með því úr vör vinnustaðakynningum vetrarins en leikhúsið er vinnustaður Elfars Loga leikarans góðkunna og orkubolta. Gúllassúpa verður í boði og nýbakað brauðið beint úr ofninum svo það má svo sannarlega gera sér glaðan dag og brydda upp á gráan hversdagsleikann.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2009 | 02:45
Berlín
Enn grípur Vertinn niður í sögu Berlínarferðar. Það þarf svosem engan að undra að hjartsláttur borgarinnar hafi slegið ögn örar er viðlíka Vert og vestan og hér um ræðir kæmi í heimsókn með friði og spekt.
Ekki var annað að sjá en að títtnefnd tæki sig vel út í garðinum þar sem áin bylgjast svo blíðlega um borgina. Aldrei var þó sorgarsagan langt undan sem varðveist hefur í árafjöld og bjó í hverju stræti, hverjum krók og hverjum kima.
Minnismerki um gyðingana stóð í austuhlutanum en í garðinum á bak við var grafreitur þeirra, sem nasistar jöfnuðu við jörðu og eyðilögðu.
Sumstaðar voru minningar um gyðinga greiptir á plötur sem áttu sér stað á götunum við hlið fallinna laufa. Þarna mátti sjá nöfn fólks sem endaði lífdaga sína í útrýmingabúðum nasista.
fararstjórinn var framúrskarandi en þarna stendur Eirík í elsta hluta Berlínarborgar og fræddi gesti um söguna.
Vertinn vílaði það þó ekki fyrir sér að stilla sér upp milli fóta fallinna kommúnista til að hægt væri að festa augnablikið á filmu
Smá skandall skók þó borgina eitt augnablik er Vertinn í Víkinni fór að hoppa á minnismerki um Helförina. Það þótti alls ekki viðeigandi sem það auðvitað er ekki. 2700 kassar tilheyra þessum stóra minnisvarða sem stendur á einum dýrasta stað Berlínarborgar. Sumar túlka kassana sem raðir lesta sem fóru með fólk í útrýmingabúðirnar, aðrir sem stíga þrautagöngu gyðinga og þeirra sem ekki þótti Hitler þóknanlegir. Hver getur þó túlkað minnismerkið eins og hann vill.
Konan þarna til hægri á myndinni er fótósjoppuð
Andartakið var þrungið álögum fyrri ára og ógnvekjandi að gera sér í hugarlund hvernig ástandið var á tímum stríðs og hörmunga í þessu landi
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 02:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2009 | 01:37
Ljótur hálfviti
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2009 | 12:10
Ferðasaga
Trúlega má telja það tilhlýðilegt að segja ferðasöguna til Berlínar en Vertinn brá sér þangað fyrir stuttu. Skemmst er frá því að segja að Berlínarborg hefur gríðarlega sögu sorgar og gleði líkt og hús harma og hamingju í Bolungarvík. Oftar en ekki leitaði hugurinn heim þegar saga eyðileggingar ófriðaráranna ómaði um strætin þar sem eitt sinn stóðu reisuleg hús og byggingar sem sprengd höfðu verið í tætlur. Húsin í Bolungarvík voru reyndar ekki sprengd heldur rifinn af mikilli áfergju til að ríma fyrir steinsteypuhöllum nútímans og sálin þar með rifin á bak og burt, svo glöggt má sjá að það er kannski ekki svo ýkja langt á milli Bolungarvíkur og Berlín í sögulegu samhengi. Þau h´su sem eftir stóðu voru oftar en ekki sundurskotin og mynntu því óþreyfanlega á liðna sorgartíma. Það sem gerði ferðina einstaklega eftirminnilega var frábæri fararstjórinn okkar sem fræddi okkur á einstaklega skemmtilegan hátt um sögu borgarinnar og það markverðasta sem hún hefur upp á að bjóða. Á myndinni standa títtnefnd og hennar ektamaki við ólympíuleikvanginn en þar voru leikarnir haldnir árið 1936. Nasistar voru þá búnir að hertaka borgina en ákváðu að halda veglega ólympíuleika í og með til að nýta í áróðursskyni en löngu var búið að ákveða hvar leikarnir yrðu haldnir áður en Hitler lagði borgina undir sig. Frægt er að hinn þeldökki Owens fékk gullverðlaun á leikunum og fékk að launum létt "vink" frá Hitler í fjarlægð. Vertinn sýndi þó engin sérstök tilþrif á leikvanginum enda ekki í formi til slíks þó auðvitað þurfi varla að geta hreystileika margnefndrar í rituðu máli né mæltu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2009 | 18:24
Á annað borð
Fyrst Vertinn er í stuði og byrjuð að sýna sýnishorn á annað borð koma hér fleiri í kjölfarið
Þarna gefur að líta töfrandi Túpílaka á tónleikum í Einarshúsi
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm