Þorskurinn 2009

thorskar_og_styri_teikning_litu_copy.jpg"Þorskurinn 2009" er tónlistarhátið sem haldin verður í Kjallaranum í Einarshúsi laugardaginn 21. nóvember milli kl. 16:00 og 19:00 í tengslum við Kærleiksdaga sem haldnir verða í bænum. Stefnt er að því að hátíðin verði árviss viðburður í framtíðinni og verið haldin í Garðinum við Einarshúsið á sjómannadagshelgi en meiningin er að hún auki við flóru menningarviðburða í bænum og lífgi upp á tónlistarlífið og mannlífið almennt. Hugsunin er að bjóða sem flestum að taka þátt í Þorskinum og hvetja þá sem eru tónelskir að stíga fram á sjónarsviðið og láta ljós sitt skína. Markmiðið er að hvetja þá sem bera með sér þann draum að koma fram og syngja og spila fyrir almenning tækifæri á að sýna hvað í þeim býr og stíga fyrstu skrefin. Allir hafa þó tækifæri til að stíga á stokk og koma hæfileikum sínum á framfæri en vestfirskir tónlistarmenn verða þó sérstakir heiðursgestir á hátíðinni enda ber hún blæ fólksins við sjóinn.

Þorskurinn hefur frá ómunatíð verið bjargvættur vestfirskra sjávarbyggða sem standa og falla með því að dugmiklir sjómenn fái að renna í hann færi, sér og þjóðinni til lífsviðurværis. Bolungarvík er elsta verstöð landsins og hafa bolvískir sjómenn stundað ægi af kappi frá örófi alda og eru einir dugmestu fiskimenn sem landið hefur af sér alið. Það er því vel við hæfi að halda hátíð sem ber nafn Þorsksins, sem haldið hefur lífi í þorpunum við sjóinn frá örófi alda og minna í leiðinni á mikilvægi þess að róið sé til fiskjar frá Bolungarvík og að menn fái að draga björg í bú.  

Fiskvinnslan Jakob Valgeir ehf. hefur ákveðið að taka þátt í þessari tónlistarhátíð þetta árið og gefa hverjum þeim listamanni sem fram kemur eina öskju af þorski að launum, en einn sá heimsins besti þorskur sem bragðast hefur er framleiddur hjá fyrirtækinu.

Fjölmargir hafa þegar tilkynnt þátttöku á "Þorskinn 2009" og eru áhugasamir hvattir til að gefa sig fram hjá Vertinum í Víkinni á netfangið ragna@einarshusid.is

 

 


Gott kvöld með Greifa

Greifinn með Mæju Bet og SigurbjörguHann var bara sérdeilis framúrskarandi Greifinn sem sótti Einarshúsið heim í gærkvöld. Hann hóf kvöldið á Kjallarakeppni og spurði mann og annan spjörunum úr. Að endingu hrepptu tvær bráðgáfaðar ungar bolvíksar konur hnossið og fóru seint um síðir með drukk frá Vífilfelli heim. Það var þó ekki fyrr en kvöldið rann sitt skeið á enda því fjörið var einstak og Bjössi Greifi hlítur mikið lof fyrir góða frammistöðu því hann var fantagóður. Hann kunni tónstigan frá upphafi til enda og spilaði eitthvað við allra hæfi og það var sungið og dansað. Þegar Vertinn í Víkinni gat litið upp úr gömlu kolageymslunni var brunað út á dansgólfið og dansað af lífsins sálar kröftum. Það er innifalið í starfi Verta og vinnuhjúa hússins að dansa við kúnnann þegar þannig viðrar og það er sannkallaður kaupauki þegar gömlu góðu lögin óma og gamalkunni takturinn rífur í.

Greifinn spyrill

Bjössi söng frystikistulagið á spurningakeppninni og kunni textann upp á hár

Elsa og Steina

Þessar mættu auðvitað galvaskar og tóku þátt

Sigurbjörg, Birna og Helena

og líka þessar

Sæbjúgukarlar á Kjallarakeppni

að ógleymdum sæbjúgukörlunum sem komu gagngert frá Grundarfirði til að taka þátt í Kjallarakeppni og kannski veiða nokkra konupunga í leiðinni

Greifinn á stóra sviðinu

og trúbadorinn blés ekki úr nös allt kvöldið

 


Jón Þorgeir á súpufundi um atvinnumál

Jón Þorgeir Einarsson, eða Nonni Addýjar, atvinnurekandi í Bolungarvík verður á vinnustaðasúpufundi í Einarshúsi í hádeginu á morgun, föstudag kl. 12:15 - 13:00. Þar mun Jón kynna starfssemi sína en hann er löggiltur endurskoðandi og hefur rekið endurskoðunarskrifstofu í Bolungarvík til margra ára, jafnframt því að reka útgerðina Blakknes ehf  ásamt Guðmundi bróður sínum sem oftar en ekki er nefndur Gummi Addýjar.

Engin lögregla í Bolungarvík

Lögreglustöðinni í Bolungarvík hefur verið lokað og staða forvarnarfulltrúa lögð af. Staða lögreglumanns var færð í burtu samhliða því að fjölgað var á Patreksfirði er embættin runnu saman í eitt. Þar með hafa Bolvíkingar misst tvö störf ásamt starfsstöðinni frá sameiningu embættanna árið 2007 þrátt fyrir gefin fyrirheit um annað.
mbl.is Dómsmálaráðherra hætti við niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Volare kynning í Einarshúsi

Það er engin önnur en Guðlaug Bernódusdóttir sem alla jafna starfar sem vinnuhjú í Einarshúsi sem heldur kynningu á vörum frá Volare fimmtudagskvöldið 29. október frá kl. 20:00 til 23:00. Í Volare má finna snyrtivörur í bland við allskyns krem úr kurkkum og sápur. Neðanmittissápan virðist vinsæl bæði handa körlum og konum en hún er ætluð fyrir sérlega viðkvæm svæði líkamans. Vertinn telur tilvalið að mæta og versla sér swiss mocca eða bara drukk úr dælunni á spottprýs og dunda sér við að kynna sér kosti kremsins.

Að baki

Það var eins og Okurbúið hefði lokað fyrir rafmagnið í Ísafjarðardjúpinu í kvöld er lagt var upp í daglega göngutúrinn og það var meira að segja svo að slökkt var á stjörnunum sem alla jafna lýsa upp hafflötin og glitra við geyminn og glansa við Snæfjallaströndina. Kolniðamyrkur blasti við er aldan lagðist að landi og leit með velþóknun á göngugarpana og sönglaði söngva sjómanna sem horfið hafa í hafið fyrir þá sem vildu hlusta. Stigahlíðin var ekki eins aflíðandi upp á við eins og hún var í fyrstunni og varnargarðurinn virtist veita eitthvað skjól á leiðinni og því var leiðin farin skref fyrir skref. Göngustígurinn í Bernódusarlundi var umvafinn greni og furu og snjóhulan á fjallatoppum lýsti ögn í skammdeginu og bogabrúin beið þolinmóð að vanda. Hólskirkjan kallaði títtnefnda upp á hólinn og söng um drottinn og guð þegar á hólminn var komið og þá sást glitra í stjörnu. Augum var gjóað að leiði Péturs Oddssonar og hans fjölskyldu sem hvílir í gamla kirkjugarðinum en Vertinn á eftir að koma því í verk einn góðan veðurdag að laga leiðið eitthvað til svo það geti orði til sóma. Hlaupið var við fót niður hólinn og þar beið annar garður, kirkjugarður með vinum og vandamönnum sem farin eru á vit nýrra ævintýra. Á ný sóttu göngugarparnir niður að sjónum sem hefur varðveitt Víkina í öll þessi ár. Nýr vegur innan úr Óshlíð lá makindalega í fjöruborðinu og nýr og glæsilegur bátur við bryggju. Ef þessi bær á ekki framtíðina fyrir sér þá veit ég ekki hvað.

Dagurinn bar þó með sér skipulaginu Kærleiksdaga sem er einkar skemmtilegt viðfangsefni. Þar kemur samstaða Bolvíkinga berlega í ljós því allir vilja leggja sitt af mörkum til að vel geti tekist til. Draumurinn um að halda tónlistarhátíð mun rætast á Kærleiksdögum en 20 listamenn fá að koma fram í þessu fyrsta kasti "Þorksins 2009". Áhugasamir geta haft samband en allt útlit er fyrir það að bekkurinn sé að fyllast og trúlega komast færri að en vilja sem er einkar áhugavert. Þessi hátíð er hugsuð sem vettvangur fyrir alla sem vilja koma sér á framfæri og langar að syngja og spila. Verið er að hanna lógó hátíðarinnar og eru listamennirnir Nína og Smári að leggja lokahönd á verkið. Þau eru snillingar að koma hugsungum margnefndrar á blað í skemmtilegt form.

Aðeins var gripið í prjónana í dag og nokkrir garðar slegnir milli þess sem unga stúlkan gekk hljóðlega um með sína flensu sem ætla má að sé svínapestin ógurlega. Einarshúsið var heimsótt og farið yfir viðburði helgarinnar. Það var fjör á laugardagskvöldið og Vertinn og unga konan kíktu út á lífið og stigu dans. Hrólfur Einarsson fékk verðlaunin í spilavistinni og fékk að launum gjafabréf hjá Volare en Guðlaug vinnuhjú í Einarshúsi selur guðdómlegt krem sem sléttir úr hrukkum og gerir karla sem konur frískari en nokkurntímann áður. Svokallað " klobbakrem" virðist nokkuð vinsælt í þessari línu snyrtivara en það er borið á viðkvæm svæði sem ekki þola krem sem ætlað er á síður viðkvæm svæði líkamans. Lesendur eru hvattir til að mæta á fimmtudagskvöldið í Einarshúsið og kynna sér kosti kremsins því kynning verður á Volare snyrtivörum þá um kvöldið og gestir leiddir í undur og stórmerki Volare snyrtivara í eitt skipti fyrir öll.

Bloggið lokar svo hringnum enda komin hánótt og fjölmörgu komið í verk og fjórir kílómetrar að baki. Nýr dagur bíður með fjölmörg spennandi verkefni.


Þorskurinn 2009

Tónlistarhátíðin Þorskurinn 2009 verður í Kjallaranum í Einarshúsi í samstarfi við Jakob Valgeir ehf. 21. nóvember nk. milli kl. 16:00 og 19:00. Jakob Valgeir ehf. gefur hverjum listamanni sem leikur og syngur á hátíðinni eina öskju af heimsins besta þorski sem verkaður er hjá fyrirtækinu. Tónlistarhátíðin Þorskurinn verður árlegur viðburður í Garðinum bak við Einarshúsið að sumri til en þessi fyrsta tónlistarhátíð er forsmekkur af því sem koma skal en hún verður liður í Kærleiksdögum í Bolungarvík að þessu sinni. Á Þorskinum 2009 geta allir fengið að syngja og spila, trúbadorar sem hljómsveitir, ungir jafnt sem aldnir og þegar eru tónlistarmenn farnir að skrá sig til leiks.

Áhugasamir tónlistarmenn hafa samband við Vertinn í Víkinni í síma 864-7901 eða á netfangið ragna@einarshusid.is

 


Heimsviðburður í Einarshúsi 14. nóvember

........meira um það síðar

Veist þú kannski líka...

...að það er heitur reitur í Einarshúsi og frí internettenging og því getur þú komið með tölvuna þína og vafrað um á netinu þér að kostnaðarlausu?

...að þú getur komið með prjónana þína og setið yfir rjúkandi kaffibolla

...að þú getur komið með bók með þér eða jafnvel gluggað í Einars sögu Guðfinnssonar, Brimgný eða Sögu Bolungarvíkur?

...að þið getið komið mörg saman eða í sitt hvoru lagi, með mömmu og ömmu og pabba og afa og stelpum og strákum, vinum og vandamönnum?

...að ef þú kannt á hljóðfæri og getur sungið ert þú velkomin til að torða upp og láta ljós þitt skína?

...að þetta verður allt bara í boði ef ÞÚ mætir


Veist þú...

...að það er heitur matur í hádeginu í Einarshúsi alla virka daga?

...að það er opið alla mánudaga, þriðjudaga og miðvikudaga frá kl. 11:00 til 17:00?

...að það er opið alla fimmtudaga frá kl. 11:00 til 23:00?

...að það er tilboð á kolamola öll fimmtudagskvöld frá kl. 21:00?

...að það er opið alla föstudaga frá kl. 11:00 til 03:00?

...að það er opið alla laugardaga frá kl. 17:00 til 03?

...að það er tilboð á krepputíma öll föstudags og laugardagskvöld frá 23:00 til 24:00?

...að það er matseðill sem bíður upp á úrval girnilegra rétta?

...að það er alltaf plokkfiskur og heimabakað rúgbrauð í hádeginu á fimmtudögum?

... að það er ætíð gómsæt súpa í hádeginu á föstudögum?

...að það er kaffivél sem malar einstaklega góða kaffi og súkkulaðidrykki?

...að það eru tertur á boðstólnum margfalt ódýrari en á höfuðborgarsvæðinu?

...að þar er spilavist annað hvert föstudagskvöld?

...að það er Kjallarakeppni annað hvört föstudagskvöld á móti spilavistinni?

...að þar eru oft tónleikar og lifandi tónlist í húsinu?

...að það er undir ÞÉR komið hvort svona staður lifir yfir vetrartímann?

 

..


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband