2.2.2010 | 00:47
Heimkoman
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2010 | 20:57
Helgin
Helgin er búin að vera afar viðburðarrík hjá Vertinum á meðan á dvölinni stendur í höfuðborginni og hver mínúta skipulögð fram í fingurgóma. Bjart var yfir Kringlunni þó sólin hafi ekki náð þangað inn af neinu viti glampaði hún þó á okurverðmiðann á hverri flíkinni á fætur annarri. Fékk títtnefnd nett sjokk og yfir höfuðið er tugþúsunda kjólar og pils fallbuðu sig á allt öðru en spottprís á orkupöllum reykvískra glamur og glansbúða. Pyngjan var með léttara móti svo haldið var í við krónuna og passað upp á aurinn enda kreppa í landinu og betra að fara sparlega með og leggja fyrir til mögru áranna.
Snæfellsjökull bar við himinn í fjarska við Útskálakirkju en þaðan var frænkan borin til grafar í gær og þangað lét Vertinn sig berast með hópnum. Frænkan fékk að lifa alltof stutt en það er nú einu sinni svo að við förum ekki endilega í þeirri röð sem við komum og ljós okkar lýsir mislengi. Í jarðaförinni hitti títtnefnd skyldfólk sitt sem hún hefur jafnvel ekki séð í áratugi og það var gleðilegt en jafnframt sorglegt en svona skiptis lífið á sorgum og gleði í bland.
Fréttaritarinn á Víkara mátti svo til með að láta sjá sig á balli þorrablótsfélagsins sem haldið var í gær. Það er einkar góður kostur að geta skýlt sér á bak við myndavélina fyrst það er ekki lengur val að glápa úr sér glyrnurnar gegnum flöskubotninn og því voru teknar myndir af blótsgestum í gríð og erg sem birtar verða á vefnum í fyllingu tímans. Dansað var eins og enginn væri morgundagurinn og það var reglulega gaman. Hjölli var enn í gallabuxunum sem hann klæddist í denn með hárið niður á herðar og Maggi og Fríða tjúttuðu í taumlausu tjútti, Belli missti andann er hann átti að flytja ræðuna sína og Mæja Bet hljóp í skarðið fyrir bróðir sinn og Bjöggalingarnir voru á sínum stað og skemmtu sér hið besta og maður var manns gaman.
Heimferð er fyrirhuguð á morgun og vænta má þess að Vestfirðir taka á móti Vertinum með gleði og eins gott að vegir verði allir greiðfærir og rennifæri í boði Vegagerðarinnar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2010 | 02:03
Grín
Vertinn leggur í hann í býtið ásamt unglingum sem sló svo eftirminnilega í gegn á árshátíð grunnskólans ásamt bekkjarfélögum sínum í 10. bekk. Það eru hreint frábærir krakkar allir sem einn og ættu að fá fálkaorðu fyrir frammistöðu sína á túlkun sinni á kennurum sínum í kennaragríninu.
Suðurlandið sést í hyllingum handan hornsins því títtnefnd rétt drepur þar niður fæti yfir helgina í hinum ýmsu erindagjörðum. Myndavélin verður með og hver veit nema tækifærið verði notað til að smella af myndum af Bolvíkingum á þorrablótsballi fyrir sönnan því enginn er jú óhultur fyrir Vertinum í Víkinni þegar þannig viðrar. Menn eru því beðnir að gera sig sérstaklega til og flikka upp á útlitið sem mest þeir mega, klæða sig í kjól og hvítt og brosa sínu blíðasta í blossann frá myndavél Víkara ef títtnefnd sést á ferðinni og reyna eftir fremsta megni að láta ljós sitt skína. Án gríns...þá mætir Vertinn þegar hún mætir ef hún mætir........
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2010 | 00:30
Gáfumennið
Það má með sanni segja að sonurinn hafi staðið undir nafni í gær er hann dúxaði í bóklegu atvinnuflugmannsnámi í Flugskóla Íslands með sómaeinkunn og viðurkenningu upp á vasann. Það var svosem vitað mál að honum myndi ganga vel enda hefur hann lagt allan sinn metnað í námið undanfarið ár og venjulega uppskera menn eins og þeir sá. Hann á eftir tvö Flugmálastjórnarpróf og vænta má þess að hann sé meðal hæstu nemenda þar einnig og Vertinn bíður spennt að heyra lokatölur úr þeim prófum. Varla þarf að geta þess að vitið hefur hann varla frá móður sinni sem ennþá hefur allar sínar gáfur að mestu leiti svo faðirinn hefur væntanlega erft þetta gáfnaljós af sínum vitsmunum. Nú bíður verklegur pakki sem strákurinn þarf að taka til að geta flogið með móður sína á vit erlendra stórborga út um víða veröld.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.1.2010 | 02:25
Fyrsti reiðtúrinn
Þá er fyrsti reiðtúr ársins að baki og þó að hann hafi verið stuttur í upphafi varð Vertinn frjáls þegar farið var fetið í fyrsta sinn í langan tíma. Ekki svo að skilja að títtnefnd sé í einhverri ánauð, síður en svo en tilfinningin að sitja á góðum hesti sem ber knapa sinn öruggum skrefum í fallegu veðri í enn fallegra umhverfi lætur einhverja sælutilfinningu líða um hugann og tilfinning er líkust því að vera fugl á flugi. Nú skal stefnt að því fara að fara að fara oftar á bak en áður hefur viðgengist undanfarið.
Ætla má að suðurlandið fái að njóta samvistanna við títtnefnda er líður að helginni og hver veit nema stoppað verið einn til tvo sólarhringa svona rétt til að sýna lit. Börnin draga títtnefnda til sín og ekkert tiltökumál er því að renna suður í stuttan stans til að sjá hvort þau braggist ekki vel í borg óttans. Sonurinn klárar bóklegt atvinnuflugmannsnám á föstudag og dóttirin undirbýr sig fyrir fyrsta vinnudaginn hjá alheimsfegurðardrottningunni í Baðhúsinu og unglingurinn fer í námsferð suður svo Vertinn, sem er í senn móðir allra þessara barna, má því til með að standa á hliðarlínunni og fylgjast með.
Hver veit nema frænkan verði kvödd hinstu kveðju í leiðinni og henni fylgdur síðasti spottinn en það er víst gangur lífsins að ljósin lýsa mislengi og því fer sem fer. Eitt sinn léku saman þessar frænkur er þær voru litlar og áttu samleið um tíma enda náskyldar og systkinabörn í ofanálag. Lífið bauð ekki upp á nánari kynni þó minningin væri ljóslifandi um samverustundirnar í æsku og bréfaskriftir á bréfsefnið sem keypt var í Bjarnabúð. Nú hefur stundaglasið hennar tæmst og tíminn er úti en lífið heldur þó áfram og ljúft er að njóta hverrar stundar sem hefur að geyma leyndardóma framtíðar og minningar fortíðar í farteskinu.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2010 | 13:03
Forréttindi
Vertinn brá fyrir sig fréttaritarastarfinu og beitti því forréttindum sínum til að fá að stinga sér rétt inn á Þorrablótið í Bolungarvík í gærkvöld og taka myndir af samkomunni. Prúðbúnir þorrablótsgestir brostu sínu blíðasta enda ærin ástæða til að gleðjast á slíkum fagnaðarfundum og hlátrasköllin ómuðu um sali íþróttahússins Árbæjar. Títtnefnd tróð sé milli stólaraðanna í salnum til að ná að festa augnablikið sem best á filmu og smellti af í gríð og erg þegar nefndarkonur tóku upp á því að syngja brag um margnefnda og gera grín að ljósmyndaáhuga hennar á mannamótum og hve listalega hún fjallar um mannlífið í bænum hér á blogginu. Kom það nokkuð vel á vonda þar sem stóð í miðri þvögunni með myndavélina og var byrjuð að semja bloggfærsluna í huganum og krydda hana fjölbreyttu orðaskrúði. Svona eru bæjarbúar jafnan afhjúpaðir á þessari þorraskemmtun og eru það forréttindi að rata inn í skemmtiatriðin því það segir að þeir sem fá skot og verða fyrir háði og spotti eru þá ekki að baslast til einskis.
Það þótti svo að sjálfsögðu upphefð og sönn forréttindi að fá mynd af sér með Vertinum og fáir útvaldir urðu þeirrar ánægju aðnjótandi. Títtnefnd þótti þó ekki tilhlýðilega klædd og í engu samræmi við atburðinn enda þótti skotapilsið stinga í stúf við hinn hefðbundna þjóðbúning bolvískra kvenna sem allar konur klæddust þetta kvöld. Ullarjakkinn minnti þó nokkuð á gamaldags ullarlagða úr vaðmáli og því féll fatnaðurinn að hluta inn í stílinn. Títtnefnd hélt þó sínu striki og vann vinnuna sína og naut skemmtiatriðanna eins og frekast var kostur og fangaði stemninguna í gegnum myndavélaaugað. Fleiri myndir af þorrablótinu í Bolungarvík birtast innan tíðar á fréttamiðli allra fréttamiðla www.vikari.is.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.1.2010 | 14:48
Vestanátt
Það blæs byrlega fyrir nýju stúlknabandi sem fæddist í Bolungarvík fyrir stuttu en hljómsveitin "Vestanátt" tók þátt í söngvakeppni Mammúts í gærkvöldi og frumleikinn í flutningi stelpnanna var til fyrirmyndar. Þær fluttu erlent lag sem ber heitið "Accedentally in love" en Vertinn snaraði íslenskum texta við lagið og laðaði hann að laglínunni en keppnisskilyrði eru þau að syngja skal á íslensku. Þær stóðu sig með stakri prýði og vonandi ná þessar stelpur að stilla saman strengi sína í framtíðinni og kannski halda þær tónleika við tækifæri. Tækifærin eru jú handan við hvert horn og ljúft að hafa tök á því að vera þátttakandi í ævintýrum dagsins og vera með í upplifun sem þessari. Textinn fer hér á eftir og "ukulele" Lilja sá til þess að nóturnar rötuðu á rétta staði sem sinni alkunnu tónlistarsnilli.
Komdu
G C G D
G C Em A C
G C
Hvað er það sem er að hrjá þig vinur
G C
hamast hjartað líkt og bál
EM
svo djúpt í þinni sál?
A
Ástin býr í brjósti þér og bíður eftir því
C
að þú vaknir á ný.
G C
Tilfinningin er sem töfrum líkust
G C
taumlaus leikur hún um allt
EM
og hlustaðu þá skalt.
A D
Lætur hún þig líta við og leiðir þig í sátt
C
í gangstæða átt.
Óó
C AM
Komdu, komdu
C D
hvíslaðu í eyra,
G AM
komdu, komdu
C D
leyfðu mér að heyra.
G AM
Komdu, komdu
C D Em - A - C
varir þínar hvísla ást.
G C
Er þú líður eins og ljúfur blærinn
G C
ertu sá sem aldrei brást
EM
með barmafylli af ást.
A C
Hógvær tek ég hönd þína og leiði þig um strönd
G
við hamingjulönd.
G C
En ástin mun ekki dofna
G C
og strengurinn milli okkar aldrei rofna.
EM A
Þetta er ást sem er svo sönn og hrein og tær
C
Saman sálir tvær
EM C
Því ástin lýsir þér,
G
þú ert aldrei einn,
Am X
aldrei aleinn, nei, nei
G C
Komdu, komdu
C D
kjassaðu mig núna,
G C
komdu, komdu
C D
misstu ekki trúna.
G C
Komdu, komdu
C D Em - D
leyfðu mér að finna ást.
G C
Komdu, komdu
C D
knúsaðu mig fastar,
G C
komdu, komdu
C D
flýttu þér, nú hastar.
G C
Komdu, komdu
C D Em - A - C
kannski þá við finnum ást.
G - C
Því ég elska þig einan
EM - D
Því ég elska þig einan ( x7)
Því ég elska þig,
G
elska þig
C
Elska þig, elska þig
EM
Elska þig, elska þig
D
Elska þig
Því ég elska þig (x2)
G AM
Komdu, komdu
C D
vangann viltu strjúka,
G AM
komdu, komdu,
C D
kysstu kossinn mjúka.
G AM
Komdu, komdu
C D Em D G
saman finnum sanna ást.... það er ást
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.1.2010 | 01:32
Fer ekki
Það þykir sæta tíðindum ef harðgiftar konur í bænum sem bæði eru giftar eiginmönnum sínum og eiga þjóðbúning í þokkabót, fara ekki á hið margfræga þorrablót í Bolungarvík. Nu ber það þó svo við að títtnefnd hefur ekki boðið bónda sínum til blóts og gerir það með fúsum og frjálsum vilja. Eftir tæplega 20 ára veru á þessari samkomu verður tekið frí frá fjörinu og aðrir látnir sjá um að skemmta sér og öðrum. Ástæðan er að hluta til sú að harðgiftu hjónakornin eru orðin tvö í trogi því allir þeir sem setið hafa saman að snæðingi í fyrrnefndu trogi undanfarin ár eru annað hvort fluttir úr bænum, fráskildir eða jafnvel dánir eða svo fornemaðir út í reglur blótsins að þeir geta ekki með neinu móti hugsað sér að mæta. Réttur þeirra sem skilja, flytja og deyja er því fyrir borð borinn í þessu samhengi og aðgangur að himneskri þorraskemmtun Bolvíkinga fyrir bí og því fer sem fer. Í ljósi alls þessa má segja að það sé sjálfhætt, því hver vill eiga það á hættu að flytja, skilja eða deyja bara til þess eins að geta etið súrmatinn úr hnefa með títtnefndri í trogi. Því er lag að draga sig í hlé á þessum vetvangi. Skemmtunin verður alveg söm við sig eftir sem áður og fólk mun njóta hverrar mínútu og það er eins og það á að vera. Maður kemur ætíð í manns stað og lífið heldur áfram og klukkan tifar og hringir inn þorrablótið í Bolungarvík eitt árið enn.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.1.2010 | 19:28
Kostulega Kjallarakeppnin
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 01:20
Gjaldmiðillinn laskaður
Göngutúrinn var arkaður að vanda í blíðunni og ferskur andvarinn fyllti lungun af hreinasta lofti veraldar. Skógræktin og Stigahlíðin tóku fagnandi á móti göngugörpunum og sótt var á brattann upp Hólinn. Hundurinn Dollar elti spýtuna og ærslaðist í grasinu enda er göngutúrinn með húsbændunum besti tími dagsins og þar nýtur hann sín í náttúrunni og orkan er endalaus. Ámátlegt vein heyrðist þó sem glumdi um fjallanna hring er spýtan reif tungurótina svo illa að töluverður skaði varð. Dýralæknirinn leit á djúpt sárið og gefa þurfti sprautu og lyf til að lina þjáningarnar hjá þessum einkar ljúfa hundi sem er núna eins og lítið barn sem þarf huggun og klapp og endalausar strokur. Hann liggur nú rólegur inn í hellinum sínum undir stiganum og bíður þess að Vertinn og húsbóndinn vakni og fari með hann hringinn í morgunsárið og leyfi honum að hlaupa um alla móa og mela. Vonandi verður morgundagurinn góður hjá honum eins og okkur hinum og sárið farið að gróa.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm